Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.11.1909, Qupperneq 1
Verð árgangxinx (minnst I
60 arkir) 3 kr. 50 aur.; j
erlendix 4, kr. 50 aur., og
í Ameríku rioll.: 1.50.
B&rgixt fyrir júnlmán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
- TuTTU«A8TI Oö ÞRIEJI ÁHeANGUB. =|==—
|= RITSTJOKI: SKtJLI THORODDSEN. *-
l Vppsögn xkrifleQ ogild
\ nema komiö se til útgef-
j anda fyrir 30. dag júní-
1 mánaöar, og kaupandi
i samhliða uppsögninni
I borgi skuld sína fyrir
\ blaðið.
M 52.-53.
Kjeykjavík, 24. nóv.
1909.
O Gr
gæzlusíjórum
vikið frd bankanum.
—o—
BaDkastjórn Landsbankans vikið frá!
Fregn þeesi flaug, sem eldur í sinu,
um alla Reykjavík 22. nóv. þ. á.
Allt komst i uppnám, og fjöldinn ail-
ur þusti að auglýsingum frá stjórnarráð-
inu, sem íestar höfðu verið upp hór og
hvar í bænum.
Að forstjórum Landsbankans, banka-
stjóra Tryggva Gunnarssyni, og gæzlu-
etjórunum Eiríki Briern og Kristjáni há-
yfirdómara Jónssyni, hefði verið vikið frá
stöðu þeirra við bankann, mun bafa kom-
ið flatt upp á ailan þorra bæjarbáa, þrátt
fyrir kvis næstu dagana á undan.
En auglýsing stjórnarráðsins, sem fyr
getið, er svo látandi:
TILK YNNING
f r á
stjórnarráöi íslands.
I dag hefir forstjórum Landsbankans
í Reykjavik, framkvæmdarstjóra Trygeva
Gunnarssyni og gæzlustjórunum Eiríki
Briem og Kristjáni Jónssyni, verið vikið
frá stöðu sinni við bankann sökum marg-
víslegrar, megnrar og óafsakanlegrar ó-
reglu í starfsemi þeirra í stjórn bankans
og frámunalegs lélegs eptirlits með honum.
Um leið og landsstjórnin tekur það
fram, að ráðstöfun þessi er nauðsynleg
og óumflýjanleg eptir því sem fram er
komið frá rannsöknarnefnd Landsbank-
ans, lýsir hún því hór með yfir, að bank-
inn heldur áfram störfum sinum, og tel-
ur hún sjálfsagt að styðja bankann til
þess að standa í skilum við alla sína
skuldheimtumenn á hverjum tima sem er,
og hefir hún, ef þörf yrði slíkrar aðstoð-
ar, gjört þar að lútandi ráðstafanir utan-
lands og innan, og verður yfir höfuð gjört
allt, sem unnt er og jafn skjótt sem verða
má, til þess að kippa baDkanum í rótt
horf.
Hr. Björn Kristjánsson kaupmaður og
alþingismaður er settur framkvæmdarstjóri
bankans, og gæzlustjórar til bráðabirgða
(nokkrar vikur) þeir Karl Einarsson sýslu-
maður og Magnús Sigurðsson yfirróttar-
málfærslumaður, vegna sérstaklegs kunn-
ugleika þeirra á högum bankans eptir
rannsóknina.
Stjórnarráö íslands, 22.”nóv. 1909.
Bjöim Jónsson.
Jón Hermannsson.
Að því er róðið verður af „Tilkynn-
ingu“ þessari, virðist það hljóta að hafa
verið meira, en minni óregla, sem baDka-
rannsóknarnefndin hefir komizt á enoðir
um, þar sem róðherra hefir séð sig knúðan
til jofn alvarlegrar ráðstöfunar, og eigi
talið rétt, að bíða árslokanna, bíða þenna
rúman mánaðartíma, sem Irygqvi banka-
stjóri Gunnarsson átti enn að gegna em-
bættinu.
En í hverju nefnd „margvísleg, megn
og óafsakanleg óreglau, og hið „frámuna-
lega lólega eptirlit44, befir verið fólgið,
ber „tilkynningin“ eigi með sér, en vitn-
ast óefað bráðlega.
Blað vort fer því eigi frekar út í þá
sálma að sinni.
Á hinn bóginn getum vér þó eigi
látið þess ógetið, að vér hefðum kunnað
því betur, að „tilkynning“ stjórnarráðs-
ins, sem ætluð var almenningi, hefði leitt
hjá sér, að tilgreina ástæðurnar með jafn
hörðum orðatiltækjum, sem þar er gert.
Slikt særir þá að óþörfu, bem hér eiga
hlut að máli, og æsir þá, sem stjórninni
eru andvígir, sem sizt mun þó þörf á.
í „tilkynningu“ stjórnarráðsins er þess
eigi getið, að frávikningin só að eins um
stundarsakir; sem væntanlega hlýtur þó
að vera, þar sem lögin heimila ráðherra
eigi frekari rétt:
Hvað bankastjórann snertir, skiptir
þetta litlu, þar sem hann var á fórum
hvort sem var; en um gæzlustjórana, sem
kosnir eru af alþingi, er öðru máli að
gegna.
Yér teljum rótt að geta þess, að frá-
leitt þarf að óttast, að þessi ráðstöfun
stjórnarráðsins lamiaðnokkruframkvæmd- J
ir, og dagleg störf bankans, eða að þeirri
óreglu í stjórn bankans, sem tilkynning
stjórnarráðsins getur um, só svo varið, að
þeir, sem fé eiga á vöxtum í bankanum
þurfi nokkuð að óttast, enda tjáist sjórn-
in hafa gert ráðstafanir til þess, utan
lands og innan, að bankinn geti staðið i
skilum við þá á hverjum tíma, sem er.
Að öðru leyti drepur „Þjóðv.“ vænt-
! anlega á mál þetta síðar, er kunnugt er
orðið um þau atriði, sem gefið hafa til-
efni til ofan greindrar stjórnarráðstöfunar.
Tíðindin frá Landsbankanum.
TIL RITSTJÓRA „ÞjÓðviLO ANSh.
— O-
Eptirfarandi bréf, sem jeg hef skrifað
ráðherra Birni Jónssyni, vil jegbiðjayð-
ur, að Ijá rúm í heiðruðu blaði yðar:
Með bréfi, dags. í dag, ht.fið þér, ráð-
herra Islands, vikið mér úr gæzlustjóra-
stöðu við Landsbankann, og segið þér, að
það só eakir margvíslegrar, megDrar og
óafsakanlegrar óreglu í starfsemi mÍDni í
stjórn bankans, og frámunalega lélegs ept-
irlits með honum. Heimild til þessa
þykist þér hafa i 20. gr. bankalaganna 18.
saptbr. 1886. Þessi lagagrein heimilar
þó eigi, að vikja gæzlustjóra frá, nema
„um stundarsakir“. Býst jeg við, að skilja
beri frávikninguna á þá ieið, svo að húu
verði þó að minnsta kosti á yfirhorðinu
samkvæm lögum.
Eigi hafið þér, ráðherra, áður tjáð mér,
hverjar mínar yfirtroðslur séu, og eigi
hafið þér heldur gefið mér kost á, að bera
hönd fyrir höfuð mér, eða koma með neina
vörn af minni hálfu, áður en þessi ráð-
stöfun yðar var gerð. Hefir það þó hing-
að til verið talin sjálfsögð skylda sæmi-
legrar stjórnar, þegar um ráðstöfun er að
ræða, sem að nokkru er þessari lik. Þér
hafið dæmt mig, ód þess að láta migsjá
sakargiftirnar, og án þess að heyra vörn
mína. Þetta er eigi samboðið siðaðri
stjórn.
Jeg neita því gjörsamlega, aðjeg hafi
að neinu leyti sýnt vanrækslu í starfi
mínu við bankann, og staðhæfi, að jeg
hafi innt miklu meira starf af hendi fyrir
bankann, en iögin heimta af mér, og að
jeg hafi haft svo nákvæmt eptirlit með
bankanum, sem hægt hafi verið, eptir öll-
um atvikum, og lögin ætlast til.
En aðallega skrifa jeg yður þetta bréf,
til þess að benda yður á það, sem yður
virðist vera ókunnugt um, nfl. að eptir
1. nr. 12. 9. júlí 1909, mun jeg 1. janúar
næstkomandi taka sæti í stjórn bankans,
og mun frá\ikningar-ráðstöfun yðar eigi
geta haft nein áhrif á stöðu mína þar.
Alþingi (efri deild alþingis) hefir kosið
mig 4 sinnum gæzlustjóra við bankann,
sem sé 1897, 1901, 1905 og 1909, fyrir
tímabilið frá 1898—1914. Nú síðast (1909)
var jeg kosinn með öllum atkvæðum
samhljóða. Þessar kosningar getið þér
eigi gert ónýtar, eigi fremur hina síð-
astnefodu þeirra en hinar fyrri. Lögin
ákveða hinum þingkosnu gæzlustjórum
ársþóknun fyrir starf þeirra, og er þókn-
un þessi eigi miðuð við vikur, daga dó
mánuði. Jeg mun þvi heimta fulla þókn-
un fyrir yfirstandandi ár, eins það, sem