Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1911, Blaðsíða 1
Veröjnrgangsins (minnst,
60 arkir) 3 kr. 50 aur.
erlendts 4 kr. 50 aur.,r og
í Ameriku dott.: 1.50.
Borgist ýyrir júnlmánað-
mrlok.
ÞJÓÐVILJINN.
=|= Tu TTUGASTI OG FIMMTI ÁBGANGUB. --■
_«—RITSTJORI SKÚLI THORODDSEN. =»<aft-—>—
| Uppsogn skrifleg, ógild
| nerna komið sé til útgef-
I anda fyrir 30. dag júní-
I mánaðar og kaupandi
samhliða uppsögninni
I horgi skuld sína fyrir
hlaðið.
M 4.-5.
Beybjavík. 30. JAN.
íe ii.
Jj 11 ö ii d.
—O—
Þessar eru helztar útlendar fréttir, sem
siðaet hafa borizt.
Danmörk.
Heilsa Albertis er sögð ágæt. Áður
var altalað, að hann væri mjög tauga-
veiklaður og hefði sykursýki, en nú er
það álit lækna, að hann geti lifað út hegn-
ingartímann, sem eru átta ár, að frádregn-
um 16 mánuðum. Hann er nú að eins
59 ára gamall. Undirréttardómi vildi
hann eigi áfrýja og var því fluttur með
eimskipi til hegningarhússins i Horsens j
og fæst þar við að prjóna, að sögn.
ý dáin er nýlega skáldkonan írú
Elfride Filiger, 78 ára að aldri.
Noregur.
100 ára gömul kerling greiddi ný-
lega atkvæði við bæjarstjórnarkosningu í
Kristjaníu.
íbúar í Kristjaníu voru 1. des. síðastl.
243,801 eða 16,174 fleiri en 1900, en frá
1890—1900 óx íbúatalan um 74,500.
Bæjarstjórnin í Kristjaníu hefir ný
skeð veitt fó til að reyna kvennmenn sem
lögreglustjóra.
Svíþjóð.
Eimskipið Cederic frá Landskrona,
sem var á ferð frá Hull til Gefle rakst
á grunn 16. des. síðaetl. og sökk á 4 mín-
útum. 3 vitfirringar vörpuðu sér í sjóinn
og drukknuðu, báti hvolfdi með 6 á, 3
dóu af þreytu áður á land kom, en að
eins 3 komust Jífs af.
Bretland.
Þing Breta hefst 31. jaD. næetk. Flokka-
skipun er örlítið breytt frá þvi áður var;
stjórnarfylgendur eru 398, en andstæð-
ÍDgar 272.
Voðalegt slys varð í Prætorianámun-
um við Bolton 21. des. síðastl. og biðu
352 menn bana. Var þegar efnt til sam-
ekota og söfnuðuet 1 millj. kr. á fyrsta
deginum.
7. febr. 1912 eru 100 ár liðinfráfæð-
ingu skóldsÍDe Charles Dickens og er
þegar farið að ráðgera hátíðaböld.
17. des. siðastl. geyeaði afskaplegasti
stormur, sem komið hefir í 80 ár. í
grennd við WorthÍDg slöngvuðust skip
all-langt á land upp. Höllin Crickhowell,
sem reist var af normanna baróninum
Paunoefort og tekin af Cromwell gjör-
eyddist. Fjöldi manna hefir beðið bana hér
og þar. Ofvöxtur mikill hlaupið i Thames.
Þýzkaland. i
Þýzki stjórnfræðingurinn dr. Wilhelm |
M. Meyer dó Dýlega i Meran, 58 ára að
aldri. Hpnn hefur skrifað mörg alþýðu-
rit um stjórnfræði.
f 24. des. síðastl. andaðist Ballestrem
greifi, 76 ára að aldri. Hann var forseti
rikisþingsins frá 1898—1906 og var einn
af helztu mönnum kaþólska flokksins.
Auðmaðurinn Ándrew Carnegie hefur
gefið 5. milljónir i sjóð fyrir þýzka björg-
unarmeno.
f 7. des. síðastl. andaðist í Berlín mál-
arinn Ludwig Knaus, 81 ára að aldri.
Prakkland.
Járnbrautarslys varð nýskeð við Arbanats
og hlutu 3 menn bana.
Ritstjórar tveir, Matín og Hutin að
nafni, háðu nýlega einvígi út af orða-
sennu á þÍDgi. Hlaut. Hutin sár á brjósti
og handíegg.
27. des. var bankastjóri bídd i Paris
tekinn fastur. Hafði svikið bankann um
3 millj. franka.
• t 5. des. andaðist Robert Philip Louis
Eugene Ferdinand, prÍDz af Chatres, f
9. nóv. 1840, er afi hans Louis Philippe
var konungur.
Hann var liðsforÍDgi í liði ítala 1859
í ófriðnum gegn Austurríki.
Nýlega hefur skáldsagnarhöfundinum
Charles Perrault verið reist likneski í
hallargarðinum í Tuillerie.
11. des. siðastl. voru liðin 100 ár frá
fæðingu skáldsins Alfreds Musset.
*
Bússland.
Nýskeð varð uppvist um byltÍDga-
samsæri, sem náði yfir allt Rússland og
hafa mörg hundruð manna verið hDeppt
í varðhald, einkum i Moskwa og Kiew.
Sakamál hefur verið höfðað gegn 5
ritstjórum í Pétursborg, vegna birtingar
þingræðukafla, sem vnr mjög nærgöng-
ull í garð keisarans.
SprengÍDg varð nýskeð í fallbyssu-
verksmiðju í Kolpina og fengu 3 menn
bana, en 34 urðu sárir, sumir þeirra
hörmulega limlestir.
Stjórnin hefur falið prófessor Amand
Adamson að búa til afar-stórt líkneski
— 40 fet á hæð. Efst er kona, er tákn-
ar RússlaDd, og hefur skjöld í annari
hendi, en lárviðargrein , hinni. Á stall-
inum eru sýndir viðburðir úr sögu Riissa.
f I des. síðastl. andaðist gyðingur-
inn Giinsbourgb barón, milljónaraæringur,
þ5 ára að aldri. Hanfi hefur gert mik-
ið til að hindra réttartröðkun gyðinga þar i
landi.
í þorpinu Volos60V, skammt frá
Pétursborg, sýktust 22 altarisgöngugestir
og dóu 4 kvalafullum dauða, með þvi
að meðhjálparina hafði byrlað eiturika-
leikinn.
Austurriki.
22. des. fannst i körfu á tröppu einni
limlest lík kvennmaDns. Komst upp að
það var sanraastúlka, Louise Weiss, er
geynit hafði ýmsa veiðmæta muni og
var myrt til fjár af unnusta hennar.
Italía.
Alþjóðasýning á munum, er konur
hafa gert, hófst í Tuiíd 4. des. siðastl.
og tóku flest lönd i Evrópu þátt í henni.
Páfinn hefur látið það boð út ganga að
hann telji árið 1911 sorgarár, og veiti því
eigi fleiri en einum áheyrn í senn og
einstökum mönnum sjaldnar en verið
hefur.
Talsverðir vatnavextir hafa verið í
ánum, sem renna í Po og gert mikið tjón.
Portugal.
Vatnavextir hafa víða valdið miklum
skaða, mikið af féDaði farizt og vofir
huDgursneyð yfir á mörgum stöðurn.
Manuel kóngur er enn þá kyr í Eng-
landi, er dú vita penningalaus og hefur
ekki getað borgað þjónum sínum i þrjá
mánuði.
Kolera hefur gengið í borginni Madeira.
Lög hafa verið samþykkt á aðfaDgadag jóla
um jafnrétti skilgetinna og óskilgetinna
bam8. — EnDfremur lög um borgaralega
skirn.
Grikkland.
Þar er nú lokið rannsókn gegn 20
liðsforingjum og urðu þeir uppvisir að
að því að hafa dregið eér.600 þús. dröchmur.
Jarðskjálptar hafa gengið í héruðun-
um frá Patræ til Pyrgos. Fjártjónið hef-
nr verið geysimikið. í Lechæna hrundu
nær öll hús.
Grikkir hafa keypt 2 amerísk herskip.
Sviss.
Lýðveldisforseti er þar nýkosinn M.
E. Ruohet.
Bandaríkin.
Kapt. Bartlett, sem áður var i förum
með Peary, ráðgerir nú ferð til suður-
pólsins á næsta hausti.
Auðmaðurinnn Andrew Carnegíe hef-
ur gefið 10 millj. dollara til stofnunar
alþjóðasjóðs, er vinna á að eflingu þjóða-
friðarins.
Taft forseti bélt nýskeð ræðu og taldi
þar óþárft að auka landher Bandamanna
meir, kvað sjóherinn nægan til að verja
rikið.
I Cinoinnati hafa orðið miklir hús-
brunar og er skaðinn metinn 10 millj.
dollara.
EnDÍremur hefur orðið 2 millj. dollara
skaði að húsbrunum í borginni Chioago.