Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.05.1911, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.05.1911, Page 1
Verð árgangsins (minnst, 80 arkir) 3 kr. 50 aur. erlendis 4 kr. 50 aur., og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist ýyrir júnimánað- arlok. ÞJÓÐVILJINN. Tu TTUGASTI O G FIMMTI ÁBGAf^GUB. =..—- .+—■»»..= KITSTJORI SKÚL’I THORODDSEN. =«M6 » Uppsögn skrifleg 6gild nerna komið sé til útgef- anda fyrir 30. dagjúní- mánaðar og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína íyrir blaðið. M 23. Þer sem eg bregð mér nú, samkvæmt ráðstöfun alþingis, til Frakklands, til þess að vera þar, fyrir Islands bönd, viðstadd- ur þúsund ára hátiðina í Normandíinu (Göngu-HróIfs-hátíðahöldin), leyfi eg mér hér með að láta kjósendur mína í Norður- ísafjarðarsýslu vita, að s&kir þessa ferða- lags míns, getur eigi orðið neitt af þvi, að eg bregði mér vestur, fyr en þá siðar j í sumar. Tel eg rétt að geta þess8, þar sem alþingi hefir nú samþykkt breytingu á etjórnarskrénni,svo að þingkosningar hljóta að fara fram á komanda haust’, og býst eg við að eg gefi þá kost á mér til þing- mennsku. íteykjavik 16. maí 1911. Skúli Thoroddsen. JÞingið ný afstaöna. ___ I í þessu nr. blaðs vors, birr.um vér yf- ( írlit yfir tölu málanna, er ný afstaðið al- þingi hafði til meðferðar. Af yfirliti þessu sést það, að mélin hafa að vÍ9u verið mörg, en á hinn bóg- inn verður eigi sagt, að þau hafi að því skapi verið þýðÍDgarmikil fyrir þjóð- félag vort. Markverðasta málið var stjórnarskrár- málid, sem þjóðinni er nú ætlað að íhuga sem rækilegast, áður en kosningarnar fara fram á komanda hausti. Að því er til meðferðar þingsins á máli þessu kemur, þá er að vísu mörgu breytt til bóta, og að óskura þjóðarinnar. Á hÍDn bóginn var það þó mjög ó- heppilegt, að kjörtíminn til efri deildar var hafður lengri en til neðri deildar, og þaDnig gerð tilraun til þess, að gera hana að íhalds-afli, sem orðið getur þröskuldur á vegi ýmsra nauðsynjamála þjóðarinnar. Þá var það og ilia farið, er efri deild- inni — með tilstyrk íhaldssamari þing- mannanna í neðri deild — tókst að varna því, að vinnuhjúin fengju sömu pólitisk réttindi, sem aðrir, og ýmislegt fleira hefði oss þótt betur fara, en fór, sbr. breyting- Reykjavík 18. MAÍ artillögur vorar í 16—17 nr. blaðs vors j þ. á. Að því er þingið Dý afstaðna snertir, munu sumir líta svo á, sein það sé sjálf- stæðisflokkurinc, er þar hafi ráðið lögum og lofurn, og eigi því að mestu, ef eigi að öllu leyti, heiðurinn og vanheiðurinn skilið. Fráleitt þarf og eð efa það, að »nd- stæðingar vorir hampi þessu drjúgum, að því er hið síðara atriðið snertir. En þetta er mjög skalcld á litið. Aðgjörðir fyrverandi ráðherra (Björns Jónssonar), að þvi er landsbankamálið snerti, ollu því, að hr. Kr. Jónsson hafði það þegar í þingbyrjuD öllu öðru rikara í huga, að fá hlut. sinn réttaD. Fyrír Jmsu eina varð allt að víkja, — bagsmunir sjálfstæðisflokksinns, og þá um leið þjóðarinnar, ef svo vildi verk- ast. Hann afsagði þvi, að gjörast forseti efri deildar — en það hafði hann verið á þÍDginu næst á undan —, og vann að þvi, með konungkjörnu þingmönnunum, þó að hann teldi sig þá eDn til sjálf- stæðieflokksins, að koma síra Jens Páls- syni í forseta-sætið. A þenna hátt gat hann sjálfur, með tilstyrk konungkjörnu þÍDgmannaDna (Kheimaetjórnarmannannau), ráðið úrslit- um bankamálsins, og þar sem hann fygldi þessum nýju lagsmönnum sínum þá einn- ig að öðru leyti að málurn, þé var sjálf- stæðisflokknum á þenna hátt unninn mesti ógreiðinn, sem unnt var. Sjálfstæðismenn réðu því að eins 6 at- kvæðum gegn 7 í efri deildinni, — voru þar í minni hhda allan Ungtimann. Fyrir sjálfstæðisflokkinn leiddi þvi hið ílla — óvægilegar aðfarir fyrverandi ráð- herra í landsbankamáiinu — til hins versta. Þetta — að efri deildin var algjörlega á valdi „heimastjórnar“-liðsins — verða menn því að hafa í huga, er um starf ný afstaðDa þingsins ræðir. — Mjög greinilega kom það og í ljós á þessu þingi, hve gagnólik stefna flokkanna er út á við, þar sem „heimasjórnar“-lið- ið skipaði sér jaínan til varnar, er mál- ið var þannig vaxið, að ætla mátti, að dönskum stjórnmálamönnum líkaði mið- ur. Má í þessu efni benda á: þingsálykt- unina um sambandsmálið sem og fána- málið, hotnvörpusektirnar, viðskiptaráða■ nautinn, mótmœlin gegn gildi stöðulag- anna o. fl. Að því er fjárhaginn snertir, gerði sjáifstæðisflokkurinn sitt til þess, aðbæta hann að nokkiu, sbr. farmgjaldsfruravarp- ið, og er það því „heimastjórnarmanna1*, er frumvaipinu höfnuðu, að svara til sakar. 1911. Um þingrœðishrotið, sögulegasta at- burðinn á ný jafstaðna þinginu, hefur blað vort rætt a!l-ýtarlega, og förurn vér eigi frekar út i þá sálmana að þessu sinni. Fregnir frá alþingi. — o— IX. Y flr skoðun armaður landsreikninganna. Til þess að yfirskoða landsreíkning- ena fyrir árin 1910 og 1911 kaus efri deild alþingis af síduí hálfu: Lárus H, Bjarnason, lagaskólastjóra. Stjórnarfrumvörp ekki útrædd á þingi. Af frumvörpunum, er lögð voru fyrir alþingi af hálfu stjórnarinnar, voru þessi þrjú eigi útrædd, er alþingi var slitið. 1. Um iitflutningsgjald af ull. 2. — öryggi skipa og báta. 3. Frumvaip til siglingalaga. Stjórnarfrumvörp, er fóllu á þingi. Af frumvöipunum, er stjórnin bar frara á alþingi voru þessi felld á þingi: 1. Um fræðslu æskulýðsins. 2. — breytingu á tímanum, er reglu- legt alþingi kemur saman. 3. Um lögaldursleyfi. 4. — viðauka við giidandi lagaákvæði um utanþjóðkirkjumenn. 5. Um úttýming fjárkláðans. Þingmannafrumvörp eigi útrædd á þingi. Af frumvörpum, er borin voru fram á alþingi af þingmanna hálfu, voru 29 eigi útrædd, er þingi var slitið. Hin markverðustu frumvarpa þessara voru: 1. Um íslenzkan fána. 2. — ritsima- og talsimakerfi Islands. 3. — breytingu á landsbankalögunum. 4. — húsmæðraskóla. 5. — breytingu ábúðar- og úttektar- laganna. 6. Um merking á keti. 7. — stofnun fasteigna-veðbanka, og 8. — breytingu bændaskólalaganDa. Þingmannafrumvörp, er fóllu á þingi. Af frumvörpum, er þingmenn® bárM fram á alþingi, féllu þessi ellefu: 1. Um prentsmiðjur. 2. — breyting eóknargjaldslagaDna. 3. — búpeningsskoðunogheyásetning; 4. — breytingu ráðherra-eptirlauna. 5. — að eyða rottúm með eitri.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.