Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.03.1914, Page 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.03.1914, Page 4
44 ÞJOÐVILJINN XXVIII, 12,—13. IJ t 1 ö íi d . Helztu tíðindin, er borizt hafa ný skeð frá útlöndum, eru: Danmörk. Að kvöldi 4. febr. þ. á. var, í ráð- húsi Kaupmannahafnar, haldin viðhafn- armikil sorgarhátíð, til minningar um Jacobsen sáluga bruggara, og var þar margt stórmenna Dana saman komið. — f Látinn er í Kaupmannahöfn (í febr. þ. á.) A. C. Larsen, bókavörður og nthöfundur. 60 ára afmæJi átti Privatbankinn í Kaupmannahöfn 1. febr. þ. á.; — bank- inn byrjaði upprunalega með að eins 20 þús. ríkisdala hlutafé, en siðasta árið vár viðskipta-velta bankans þó um 600 millj. kr., og hluthafar fengu 7 °/0 af fé sinu. — f 2. febr. þ. á. andaðist í Kaup- mannahöfn listmálarinn Ingeborg Seide- lín. — Vinnumaður á Mors veitti ný sKeð (^ febr. þ. á,) banatilræði ungri stúlku, freklega tvítugri, er eigi vildi taka bón- orði hans, — seerði hana á höfði, og á annan höndinni. Vinnumaðurinn reyndi síðan, að skjóta sjálfan sig, en mistókst, og tók því það ráðið, að hann hengdi sig. Svíþjóð. Eins og íslenzk blöð hafa getið, sóttu ný skeð 30 þús. bænda, úr ýmsum hér- uðum Svíþjóðar, fund Gustafs konungs, til þess að tjá honum áhyggjur sínar, út af landvarnarmálinu, er þeir töldu nauðsynlegt, að komið væn sem allra bráðast í viðunandi horf. Konungur tjáöi sig þeim að öllu sam- þykkan, og kvaðst i þvi máli í engu vilja þoka trá því, er hernaðar- eða sér- fróðir menn teldu nauðsynlegt. En með því að ummæli konungs fóru hér í aðra átt, en ráðherrar konungs, Staaff-ráðaneytið, fylgir fram, þar sem það vill að vísu auka hervarnirnar nokk- uð, en þó engan veginn fara svo langt, sem konungur lýsti sinn vilja, urðu þær málalyktirnar, að ráðaneytið, er hefur þó afl atkvæða í báðum deildum þings- ins, beiddist lausnar. Konungur fal síðan G. L. de Geer, fríherra, landshöfðingja í Kristiansstad, að mynda nýtt mðaneyti, en eigi hafði það þó enn lánazt, er síðustu blöð bár- ust frá útlöndum. Vandræðin mun það og hafa aukið að mun, að ýmsir meðal Svia kunna því illa, að konungur gripi þannig fram fyrir höndurnar á ráðaneytinu, er ábyrgð ber þó á stjórnarathöfninni. Að vísu þyrpist til Stokkhólms fjöldi stúdenta, frá hinum þrem háskólaborg- unum i Svíþjóð (Uppsölum, Lundi, og Gautaborg), er tóku í strenginn með bændum, og vottuðu konungi aðdáun og hollustu sina. — En á hinn bóginn fóru þá og 34 þús. verkamanna í skrúðgöngu um göturnar í Stokkhólmi, og vottuðu Staaff-ráðaneytmu samhugasinn, — kváðu verkmannastéttina eigi geta risið undir þyngri álögum til hersins, enda væri og mest um það vert, að auka bróðurkær- leikann milli þjóðernanna. _____ I Bretland. Þing Breta hó£st 10. febr. þ. á., og er ! þess vænzt, að „irsku heimastjórnarlög- | in“ verði nú samþykkt í neðri málstof- unni í þriðja skipti, og verði þá að lög- um, hvað sem lávarðadeildin segir. íhaldsmenn heimta að vísu all-ákaft, að nýjar þingkosningar verði látnar fram fara, áður en málinu sé til lykta ráðið, I en það telur Asquith-ráðaneytið á hmn I bóginn eigi geta komið til neinna mála, j ! þar sem það væri brigðmælgi við írsku j þingmennina. Þá verða og að þessu sinni rædd á I | þinginu lögin um skilnað ríkis og kirkju j í Wales, er lengi hafa á dagskrá verið, sem og breyting kosningarlaganna — þá og jafnframt um kosningar- og kjör- gengisrétt kvenna —, og að lokum land- búnaðarlaga nýmælin, sem kennd eru við Lloyd George, og blað vort mun hafa drepið á. — Belgía. Þar hefur nú ný skeð verið efnt til fjársamskota, til að reisa Leopold kon- ungi minnisvarða, og mun þá mega tslja 1 það víst, að líkneskinu verði staður ætl- { aður í Brussel, höfuðborginni. Portugal. Róstusamt enn æ öðru'hvoru í Lissa- bon, og viöar í Portugal, einkum í norð- urhóruðunum. 4. febr. siðastl. stöðvaði lögregluliðið mannfjölda, er stefndi til bústaðar lýð- veldisforsetans. og var þá varpað sex sprengikúlum, eða vítisvélum, sem eigi virðast þó hafa valdið manndrápum. Á hinn bóginn var sama daginn varp- að sprengivél í borginni Oporto, og biðu þar þrír menn bana. — Aðfaranóttina 4. febr. síðastl. gerðu járnbrautarþjónar að mun óskunda í Lissabon, — vörpuðu sprengivélum, er særðu eigi allfáa, og ollu að mun eigna- tjóni. Vera má að vísu, að í símskeyta- fregnunum sé blandað saman atburðum, — eða tvennt gert úr einu. að því ei !. tiJ óspektanna í Lissabon kemur. Tyrkir eru enn í óða önn, að reyna að búa her sinn sem bezt, og er mælt, að Krupp’s-verksmiðjan í Essen hafi nú ný skeð heitið þeim 40 millj. rígsmarka að láni (þ. e. 35—36 millj. kr.), enda kaupi þeir þá þegar fallbyssur, og ýms hergögn önnur, í Essen. Þýzkaland. Mælt er, að Vilhjálmur keisari ætli á komanda vori að heimsækja Victor Emanuel, Itala konung, er hann bregð- ur sér til sumarbústaðar síns á Korfu. — 19 ára gamall piltur í Berlín, gest- gjafa sonur, tók ný skeð peningakistu karls föður síns, og bjóst síðan til varn- ar í lystihúsi, í húsagarðinum, er karl- inn kvaddi lögregluþjóna sór til aðstoð- ar. Varðist drengurinn þaðan um hríð, og lét skotin dynja í sifellu, unz skot- færi þraut að lokum, — skaut þá og síðustu kúlunni í höfuð sér, og var því nær dauða en lifi, er hann náðist. -— 1. mai næstk. hefst í Berlín sýnmg ýmsra listaverka, og búist við, að eigi verði henni lokið, fyr en í sept. þ. á. Rússland. Þar urðu ráðherra-skipti í febr. þ. á., — forsætisráéherrann, Kokootzev að nafni, leystur frá embætti, epfir að hafa gegnt því á þriðja ár að mun, þ. e. síðan Stoly- pin, forsætisráðherra, var myrtur. Goremykín heitir sá, er nii er yhr- ráðherra orðinn, — var áður yfirráðherra um hríð, þ. e. áður en Stolypín tók við völdum. Bandarikin. Fulltrúadeild sambandsþingsins var, er síðast fréttist, að ræða um breytingu á innflutningalögunum í þá átt, að krefj- ast þess, að hver innflytjandi fullnægði ákveðnu þekkingarskilyrði, — líklega þá áskilið, að hver innflytjandi hafl vottorð þar að lútandi meðferðis, svo sem að hann hafi sótt alþýðuskóla, eða því um líkt. 100 þús. dollara verðlaunum er nú heitið, sé farið í flugvél á 90 dögum um- hverfis jörðina, meðan er heimssýningin í San Francisco stendur yfir, þ. e. San Francisco, komið við í tilteknum lönd- um, og borgum — þar á meðal á Græn- landi og íslandi —, og að lokum til San Francisco aptur, áður en 90 dag- arnir eru liðnir. Balkanskaginn. Brytt hefur að mun á óánægju, í garð Ferdínand’s keisara, á ýmsumstöð- um í Bfilgaríu, og orðið að grípa til her- liðs, til þess að bæla niður óevrðir, t. d. í Janíbolí, Vratza o. s. frv. Mælt er, að keisari vogi sér og eigi út fyrir húsdyr, eða þá eigi lengra, en út í hallargarðinn, og er fjöldi hermanna einatt látinn gæta öryggis hans. — Mexiko. Stjórnin í Mexico befur nú nýlega samið við frakkneska verkfræðinga um víggirðingar umhverfis Vera Cruz, er kosti alls 100 millj pesos. — 17 mexikanskir liðsforingjar, er dvöldu í París, til að læra þar, að stýra flug- vélum, voru nýlega kvaddir heim skyndi- lega, þar sem þeirra myndi þar bráð- lega brýn þörf.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.