Lögberg


Lögberg - 19.05.1894, Qupperneq 1

Lögberg - 19.05.1894, Qupperneq 1
LöGBERG er gefið út hvern miðvikudag og laugardag af THE LÖGBERG PRINTING & PUBLISIIING CO. Skrifstota: Atgreiðsl ustoia: 148 Princess Str., Winnipeg Man. Kostar $2,00 um árið (á íslandi 6 kr. borgist fyrirfram.—Einstök númer 5 cent. Logbkkg is puidisbed every Wednesday and baturaay by Thk Lögberg PRINTING & PUBLISHING co at 148 Princess Str., Winnipeg Man. S ubscription price: $2,00 a year payable ia advance. Single copies 5 c. 7. Ar. | Winnipeg, Manitoba, laugardaginn 19. niaí 1894 { Nr. 38. ROYAL * CROWN » SOAP Kóngs-Kórónu-Sápan er ósvikin hún skaðar hvorki höndurnar, andlitið eða fínustu dúka, ullardúkar hlaupa ekki ef hún er brúkuð. tessi er til- búin af The Royal Soap Co., Wini\ipeg. A. FriQriksson, mælir með henni við landa sina. Sápan er í punds stykkjum. Umfram allt reynið hana. FRJETTIR CANADi. Kngisprettu-plága vofir yfir Ont- ario. Allmikið tjón varð par af þeira ófögnuði í fyrra, en menn eru hrædd- ir um að það verði miklu meira í ár. Við plægingar í einni sveitinni koma ungar engisprettur upp millíónum saman.____________________ Ontarioþingið hefur verið rofið, og eiga nyjar kosningar að fara fram 26. júní næstkomandi. Vegna kolaskortsins, er stafar af verkfalli I kolanáinum Bandaríkjanna, liefur Grand Trunk járnbrautarfjelag- ið auglyst, að pað flytji ekki fyrst um sinn vörur, nema pær sem rojög mik- ið liggur á með. Af sömu orsökum hefur og fjelagið orðið að loka verk- stæðum sínum, og verður par ekki tekið til starfa fyrr en eptir tvær til þrjár vikur. Mr. Laurier lijelt merkilega pólitiska ræðu I Pembroke á mánu- daginn, og hjelt pví par fram, að að- almálið, sem fyrir landsmönnum lægi, væri málið um skattaálögurnar. Eng- in stjórn hefði rjett til að taka neitt af pví er almenningur ynni sjer inn fram yfir það sem þyrfti til pess að standast kostnað stjórnarinnar til landsþarfa. Pað væri þetta prinsíp, sem frjálslyndi flokkurinn berðist fyr- ir. Stefna apturhaldsflokksins væri þessu mjög ólík. Stjórnin í Ottawa leggði skatta á fólk í því skyni að taka peninga úr vösum sumra manna og flytja þá 1 vasa annara. „Þetta kalla jeg að ræna menn,“ sagði ræðu- maður, „en þeir kalla það tollvernd.“ Laurier benti á það, á hve veikum fæti eða hitt þó heldur, verksmið ju- iðnaðurinn stæði lijer í landinu, þessi iðnaður, sem stjórnin er að styrkja með þungum álögum á almenning, og tók það til dæmis að Drummond sena- tor, gjaldkeri apturhaldsflokksins í Quebec, fengi $60.000 um árið í kaup fyrir að vera framkvæmdarstjóri fyrir sykurhreinsunar sambandið (sugar combine), meira en landstjórinri yfir Canada eða forseti Bandsrlkjanna. Ef tollverndin hefði gert eins mikið fyrir bændurna eins og hún hefði gert fyrir suma verksmiðjueigendurna, þá kvaðst Laurier skilja það, að sumir bændur hikuðu sig við að hverfa frá henni, en þar sem liún liefði sllk áhrif á landbúnaðinn, sem hún vitanlega hefði, þá sagðist hann ekki skilja í því, að þeir hikuðu sig eitt augnablik B4NDARIHIN. #500,000 tjón er talið að hafi orðið af ofsaveðri með regni, sem gekk yfir Minnesota og vesturhlut- ann af Visconsin á þriðjudagskveldið. Er það eitthvert hið mesta regn, sem menn vita til að komið hafi í norðvesturrikjunum. Víða varð vöxt- ur I ám svo mikill að bryr brotnuðu ocr flutu burt. Nokkrir menn misstu llfið. Á einum stað í Minnesota reif vindurinn upp langan stúf af North- ern Pacific brautinni, þeytti honum upp í loptið og dreifði honum I smá- molum um landið umhverfis. Afarmikill eldsvoði varð í Boston á þriðjudaginn; 190 hús brunnu og 1000 manns urðu heimilislaus. Dorpið Kunkel í Ohio,'sem hafði um 300 íbúa, sópaðist svo að segja með öllu burt af fellibyl á fimmtu- daginn. Nokkrir menn misstu lífið, og 30 særðust, þar af sumir ólæknandi. ÍITLÖND. Ilroðalegt járnbrautarslys vildi til í San Salvador nú í vikunni. 300 manna misstu þar lífið. Svo virðist, sem uppreistinni í Bra- zilíu sje ekki lokið, þrátt fyrir allt og allt. Nú í vikunni kom sú fregn fiá Brazilíu, að bardagi hefði verið háður af stjórnarliði og uppreistarmönnum, að stjórnarliðið hefði beðið ósigur og að 140 hafi fallið af því. Róstusöm jarðarför var lialdin á einum stað á írlandi nú í vikunni. Oraníumenn stóðu fyrir útförinni, og kaþólskur múgur rjeð á líkfylgdina. Óraníumenn börðu frá sjer og varð þar hinn harðasti aðgangur. Skamm- bissur og barefli voru viðhöfð frá báð- um hliðum, og áður en lögreglulið kom til að skakka leikinn hafði einn maður venð skotinn til bana Og ymsir særðir alvarlega. Lögregluliðið tvíst- raði bardagamönnunum og tók fasta 14 menn, er stóðu þar sem orustan var snörpust. En meðan það var á leiðinni til fangelsisins með menn þessa veitti múgurinn því atlögu og reyndi að ná mönnunum, sem tekuir höfðu ver’ð fastir. Lögreglumenn- irnir vörðust og skaut þá skríllinn á þá. Lögregluliðið fjekk þá aukinn mannkrapt, fleiri ófriðaseggir voru teknir höndum og múgurinn tvístr- aðist. Erkibiskuparnir og 31 biskupar á Englandi liafa gefið út mótmæla- yfirlysing gegn afnámi þjóðkirkjunn- ar í Wales, sem frjálslyndi flokkur- inn hefur tekið upp á prógramm sitt. Voðalegir jarðskjálptar hafa kom- ið í sambandslyðveldinu Venezela í Suður Amcríku. Merída, höfuðstað- urinn í ríkinu Los Andes, hefur hrun- ið, og varð þar afp.rmikið manntjón, 7000—8000 manna farizt, af 12,000, sem í bænum bjuggu. Alls halda menn, að um 20,000 manna í Venezu- ela bafi farizt í jarðskjálftunum, en annars eru fregnirnar enn ófullkomn- ar.—í Skotlandi varð vart við jarð- skjálpta á fimmtudaginn. Nokkrir tignir menn á Egipta- landi hafa að sögn höfðað sakamál gega Perdinand de Lesseps og öðrum gömlum stjórnendum Suezskurðarfje- lagsins, fyrir að liafa dregið undir sig fje, sem þeim hefði verið í hendur fengið til að láta grafa skurðinn. Er sagt, að þar sje um nokkrar millíónir að ræða, og jafnframt fylgir það sög- unni, að jafnmikið muni kveða að þessu máli eins og I’anama-hneyksl- inu mikla. Islancls frjettir. Rvík 24. marz 1894. Inflóenzasóttin er nú í mikilli rjenun hjer I bænum, eptir 3 vikna tíma, en margir þó rúmfaatir enn og enn fleiri lasburða. Um 20 manns hafa dáið hjer f sókn. Sóttin hagar sjer líkt hjer um nærsveitirnar allt er til spyrzt. Fimmtán lík uppi stand- andi í gær í Garðaprestakalli á Álpta- nesi. Nafnkendir engir dáið áður ó- nefndir, nema ögmundur bóndi Sig- urðsson í Tjarnarkoti í Njarðvík (frá Barkarstöðum), valinkunnur sæmdar- maður og dugnaðar. I>að mun áreiðanlegt vera, að sóttin hefur í þetta sinn borizt hingað til lands frá Khöfn með gufuskipinu „Vaagen“ (Wathnes),er kom til Seyð- isfjarðar 8. janúar. Hún er að lík- indum nú komin um land allt nema Vestfirðingafjórðung. Vestmannetjum 12. marz 1894: Veðrátta hefur yfir höfuð verið ákaflega stormasöm, einkum í febrúarmánuði; þá gengu næstum sífelldir suðvestan- og vestan-stormar. Mesta aflaleysi hefur hjer verið í allan vetur, því r.á- lega enginn fiskur hefur verið fyrir, þá sjaldan gefið liefur á sjó, og eigi er neitt æti farið að ganga, nema hjer varð á dögunum vart við hafsíld og svo nefnt mjóa seiði, en alls ekki við loðnu. Landeyingar komust hingað út 3. þ. m. og færðu með sjer megna kvef- sótt, sein þegar hefur gengið yfir alla eyna, og mun nú vera búin að tína upp megnið af fólki. Svo eru veik- indin almenn, að í dag fór hjer einn smábátur á sjó, og er þó rjett gott sjóveður. Sótt þessi virðist eigi vera nærri eins illkynjuð eins og sú, sem gekk hjer 1890. Margir liggja að eins 2 daga, aptur aðrir í viku, og hætt er mönnum við að slá niður apt- ur, ef þeir fara óvarlega með ^ig. Ai; stu it-S k a i'Ta fei.lssVslu (Nesj- um) 18. febrúar 1894: I>ar eð í minna lagi hefur verið eytt af heyjurn enn handa útipeningi (hrossum Og sauð- fje), er vonandi að allir komist af með hey,þótt nokkuð verði hart hjer eptir; auðvitað er allt komið undir því, hvernig vorið verður, því í mjög hörð- um vorum er nærri ótrúlegt, hvað upp gengur af lieyjum. Skepnuhöld eru vlst I betra lagi og fjenaður í allgóðu standi. Bráða- pestin h6fur lítið gert vart við sig í vetur,að einskind og kind hrokkið upp af; nema einum á bæ hjer í sveitinni hefur allmargt farið úr henni; í fyrra vetur var lítið um liana líka, en mörg ár þar á undan drap hún unnvörpum á mörgum bæjum bjer. Skömmu eptir að Papósskipið koin, gjörði influensa vart við sig í hjeraðinu. Sótt þessi var svo bráð, að á mörgum bæjutn lagðist rjett að segja allt heimilisfólkið í einu, og sumstaðar var um tíma (1—2 daga) varla svo mikið af flakkfæru fólki, að hægt yrði að gegna griputn, og nærri allir urðu lasnir, þótt þeir mættu til að dragast á fótum. Veikin varð mannskæðust 1 Lóni, þar dóu 5 úr henni, flest aldrað fólk. Ein af þeim var Sigriður Arnadóttir í Volaseli, te ngdamóðir Sveins bónda Bjarnason- ar þar, bróðir sjera Jóns í Winnipeg; hjer í sveitinni dóu 2 gamlar konur. Veikin er í rjenun og flestir eða allir í apturbata, þótt nokkrir liggi enn, bæði bjer og I Lóni. Viðbætir 22. febr.: í dag kom austanpóstur og eptir því er segir í brjefum er með honum komu hefur influensan orðið rnjög skæð á Hjer- aði; 12. þ. m. „standa uppi milli 40 og 50 lík hjer á Hjeraðinu, margt af því ungir ocr hraustir menn. í Fljóts- dalnura 2 bændur nydauðir: Ólafur Stefánsson I Ilainborg og Sæbjörn Egilsson á Hrafnkelsstöðum, segir í einu brjefi þaðan. Með póstinum frjettist líka það slys, að á Eiðum brann fjósið snemma I þessum mán- uði, og brunnu þar 4 nautgripir inni, 2 kyr naut og kálfur, en 3 kúnum varð með herkjum náð út; eldurinn hafði eitthvað lítilleefa komizt I eld- húsið, en ekki svo mikið að þar var hægt að kæfa hann, og hefði vindur- inn staðið öðru vísi, hefði líkleora all- ur bærinn brunnið. Rvík, 31. marz 1894. Meðal dáinna í pessari influenza hríð skal emi geta Porleiks bókbind- ara Arngrlmssonar í Hafnarfirði, er ljezt 14. þ. mán., 79 ára, og merkis- konunnar Guðnyjar Jónsdóttur, konu hins þjóðkunna, atorkumikla bænda- öldungs Pjeturs Ottesen á Ytra-hóltni á Akranesi; hún andaðist 19. þ. m., 76 ára að aldri, eptir 57 ára hjúskap og búskap. Aflabkögð. Hjer hefir reitzt nokkuð upp á síðkastið, vestur á Boliasviði, af mögrum eptirlegufiski. Suður I Garðsjó sagður nógur fiskur fyrir, nylega genginn, en umhleyp- ingar og veikindin hafa bannað sjó- sókn. Af þilskipunum hjeðan, er út komust loks úr páskunum við illan leik, fyrir veikindunum, hefur e’tf komið aptur (Agnes), með veikan mann, en lítinn afla, enda varla gefið að liggja neitt. Influenzasóttin mun nú vera um garð genginn að miklu leyti hjer um nærsveitirnar. Lengra að frjett ist eigi, sakir óvanalegs samgöngu leysis, er sjálfsagt stafar af veikind unum. Barðastr sýslu (vestanv. 8. febr.): Um hátíðirnar og fram undii þrettánda var storma og úrfellasamt I meira lagi, en ávallt mjög hlytt, svo að úrkoman var regn. Eptir nyárið var suma daga 4—5 gr. hiti á R. Mestur stormur var annan dag jóla, aftaka-suðaustan-rok, með mjög mik- illi bleytu-hríð um morguninn og kveldið. Rak þá út apturhafís þann, er fyllt hafði hjer alla firði fyrir jólin Frá því fyrir þrettánda og fram í fyrstu viku þorra var blítt og stillt veður, með litlu frosti og stundum (11 og 12.) allt að 5 gr. hiti. Pá kom allhart norðanveður í rúma viku, með töluverðu frosti, liæstu -f- 11 gr. Núna um umliðna helgi, föstuinn- ganginn, setti niður allmikinn snjó af útsuðri og bleytti, svo nú er liaglaust fyrst á vetrinum. Hefur nú í nokkra daga verið rosaveður og sífelldur snjó- gangur, og lítur enn út fyrir líkt veðurlag. Bráðapest hefur lítið gert vart við sig. Að eins á einum bæ hefur farizt í henni milli 10 og 20 fjár; annarstaðar eigi svo teljandi sje, að því er frjetzt hefur. Fáeinir fóru f h&karlalegn í kyrrviðrinu eptir þrett- ándann, og öfluðu dável. Heilsufar fólks er nú farið að skána. E>ó stinga ymsir kvillar sjer enn niður á stöku bæjuro, helzttauga- veiki. í henni lá um tíma hjeraðs- læknir D. Sch. Thorsteinsson. Rvík 7. apríl 1894. Mannalat. Hinn 28. f. m., 4. í páskurn, Ijezt Ámi Jónsson póstur á Flóðatanga í Stafholtstungum — Stykkishólmspóstur frá Arnarholti — af slysförum, drukknaði ofan um ís á Norðurá, við Haugahyl, skammt fyrir neðan Arnarholt. Af Vestfjörðum hefur frjetzt lát Jakobs bónda Rósinkranssonar (frá Æðey) í Ögri, úr taugaveiki, cr þar hefur gengið I vetur við djúpið. Hann var nefndarbÓDdi, á finimtugsaldri, fjáður vel. I fyrri nótt missti Helgi verzlun- arstjóri Jónsson í Borgarnesi konu síua, Kristínu Eggertsdóttur (Waage), frá mörgum börnum, góða konu og vel að sjer. Hún dó úr eptirkö3tum inflúenzaveikinnar. Úr Skagafirði skrifað 15. marz: E>essir menn liafa andazt í syslunni: Pjetur Pálmason, hálfáttræður, mjög merkur bóndi, á Álfgeirsvöllum, vin- sæll osr vinfastur oj vandaður, o^r Jætur hann eptir sig ekkju og mjö^r efnileg börn uppkomin; meðal þeirra er Pálmi, pöutunarfjelagsstjóri á Sjávarborg, og Halldóra, kona Ólafs Briems umboðsmanns. Hinn 2. febr. frú Helga E>or- valdsdóttir í Rjettarholti, ekkja Ara sál. læknis Arasan á Flugumýri, og var hún hið eina af hinutn nafukuunu börnum Porv. próf. Böðvarsonar, er er nú lifði. Húa var höfðings- og atgerfiskona, eins og hún átti kyn tit. Hinn 6. marz konan Halldóra Porfinnsdóttir á Krossi í Óslandshlíð, 62 ára gömul; og hinn 7. marz Helga Dorkelsdóttir á Svaðastöðu n, eiuuicr 62 ára. Hinn 10. marz merkisbóudir.n Jóhannes Dorfinnsson á Reykjum í Hjaltadal, 61 árs. Gufubátukinn „Eiín“ byrjaði ferðir sínar 3. þ. m., viku fyr en áætl- un ætlast til. Hún fór þaun dag suð- ur I Keflavík, með talsverðan ílutn- ing og nokkra farþega, og hafði auk þess I eptirdragi 7 róðrarskip suður, til fiskiveiða þar með mönnuin og á- höfn. Daginn eptir fór húa upp í Borgarues, með vörur fyrir Brydes verzlun, en af þeim varð ekki kcmið i land nema öriitlu sakir mannleysis — þar lá nær hvert mannsbarn í in- flúenza — og kom hún með flutning- inn suður aptur í gærmorgun. Stór- viðri hafði og tálmað nokkuð. Hósbruni. Aðfarauóít 30. f. m. brann vörubúðarhús, gamalt og gott, ullstórt, á Búðum, „Norskahúsið-‘, eigu Eyjólfs kaupmanns Dorkelsson- ar í Reykjavík, til kaldra ko'.a, á 2 klukkustundum; varð dálitlu bjargað if íslenzkum vörum, en öðru eio-'. Húsið var vátryggt og vörurnar að nokkru leyti. Infliíensa-sóttin. Hún var komiu vestur í Stykkishólm og Olafs- vík, er póstar voru þir 4 ferð fyrir aokkrum dögum, og lítið eitt farin að berast inn I Suður-D iliua úr Stykkis- hólmi. Dar (í Sth.) lagði hún nær hvert mannsbarn I rúmið á sköminu bragði, eins og hjer. Uin Myrar og Borgarfjörð hefur hún geysað kring- um mátiaða mótin síðustu og er þar enn bysnatnögnuð sumstaðar; skepn- ur orðið að standa málþola dögum saman á sumutn bæjum, af því að eDginn hefur getað skreiðzt á fótuin. f upp-lireppa Borgarfjarðar (Reyk- holtsdal o. fl.) var hún ekki komin á helginni sem leið. Að norðan heyrist hennar ekki getið, og mun hún ekki hafa verið lengra komin en I Dingeyjarsyslu, or póstferð fjell síðan; í gær komu póstarnir hingað að norðan og vestan. Aflabiiögð. Hjer var hinn fyrtti góði afladagur í gær á þessari vertíð, 30—50 í hlut nokkuð almennt. Illað- fiski I fyrra dag lijá Álptnesingum og Hafnfirðingum; líklega eins I gær. áömuleiðis byrjaður góður alli lengra suður með sjó alla leið. Austanfjalls inesta aflaleysi allt til þessa, eða rjettara sagt gæftaleysi, sem kemur í sama stað niður. Mikilí bjargarskortur þar manna á meðal, þeirra sem reitt hafa sig á sjóinn, sem eigi hefur brugðizt þar mjög mörg ár undanfarin. Rvík, 11. apríl 1894. Aflabrögð. Hjer hofur aflazt mætavel frá því um daginn, þangi ð til I gær, að talsvert dró úr því apuir, einkuin misfiski mikið. Fiskur allt af magur. Ilafnfirðingar og Álptnesingar fóru að fiska á Biúninni, sem kölluð er, 3. þ. m., og fiskuðu síðan mætavel þar nokkra daga, þar til laugardag 7. þá mjög lítið, en mánudag 9. aptur bezti afli þar. Dá daga (7.) fóru þeir að fiska grunnt á Sviði prýðisvel; Álptnesingar hlóðu þar á mánud, (upp að 70 í hlut) sunnarlega, en Hafnfirðingar, sem rerutil Sviðs noið- arlega, fiskuðu litið.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.