Lögberg - 19.05.1894, Side 2
2.
LÖGJ3EKG, LAUGARDAGLNN 19. MAÍ 1894.
Sögbetg.
öehð út aS 148 Princess Str., Wlnnipeg Man
of The fjigberg Printinfr ðr Publishing Co'y.
(Incorporated May 27, l89o).
Ritstjóri (Editor):
EINAR HJÖRLEIFSSON
Business managkr: B, T. BJORNSON.
AUGLÝSINGAR: Smá-auglýsingar í eitt
skipti 2ð cts. fyrir 30 orð eða 1 þuml.
dílkslengdar; 1 doll. um mánuSinn. Á stserri
auglýsingum eSa augl. um lengri tíma af-
sláttur eptir samningi.
BÚSTAD A-SXIPTI kaupenda verSur aS tii
kynna skrijlega og geta um fyrverandi bú
staS jafnframt.
UTANÁSKRIPT til AFGREIÐSLUSTOFU
blaSsins er:
Tt(E LÓCBERC P^INTINC & PUBLISH- C0.
P. O. Box 368, Winnipeg, Man.
UTANÁSKRIFT til RITSTJÓRANS er:
EDITOK LÖGBERO.
P. O. BOX 368. WINNIPEG MAN.
laugardagisn 19. maí 1894. —
Samkvæm ían^slögum er uppsögn
kaupanda á blað’. ógild, nema hann sé
skuldlaus, þegar haDn segir upp. — Ef
kaupandi, sem er í skuld við blað
ið flytr vistferlum, án þess að tilkynna
heimilaskiftin, þá er það fyrir dómstól-
unum álitin sýnileg sönuun fyrir prett-
visum tilgangí.
|f Eptirleiðis verður hverjum þeim sem
sendir oss peninga fyrir blaðið sent viður
kenning fyrir borguninni á brjefaspjaldi,
hvort sem borganirnar hafa til vor komið
frá Umboðsmönnum vorum eða á annan
hátt. Ef menn ffi ekki slíkar viðurkenn-
ingar eptir hæfllega lángan tíma, óskum
vjer, að þeir geri oss aðvart um það.
__ Bandaríkjapeninga tekr blaðið
fullu verði (af Bandaríkjamönnum),
og frá íslandi eru íslenzkir pen-
ingaseðlar teknir gildir fullu verSi sem
borgun fyrir blaðið. — Sendið borgun í
P. 0. Money Orders, eða peninga í Re
gistered Letter. Sendið oss ekki bankaá
visanir, sem borgast eiga annarstaðar en
i Winnipeg, nema 25cts aukaborgun fylgi
fyrir innköllun.
Snjallræði Ottawa-
stjórnarinnar.
I>að er sjaldgæft í sögu hverrar
pjóðar sem er, að sjá slíkan pólitisk-
an skrípaleik, eins og pann sem leik-
inu er í Ottawa um pessar mundir.
Mánuðum sa.nan lýsti stjórnin yfir
peirri ráðagerð sinni að endurskoða
tolllögin. Og mönnum var svo sem
gefið í skyn, að sú endurskoðun ætti
að verða í pá áttina að ljetta tollbyrð-
uium á almenningi. t>að var ekki
farið að leyna sjer, að almenningur
m indi vera óánægður með álögurnar,
se n að svo miklu leyti gengu í vasa
fájinna auðmanna; stjórnin ætlaði
svo sem að láta að vilja fólksins, og
sumir ráðherrarnir tóku sjer ferð á
hendur um landið til pess að fá áreið-
ánlega vitneskju um pað, hvar skór-
ina einkum kreppti að mönnum. Nú
var farið að kannast við pað, að verk-
smiðjueigendurnir hefðu svo lengi
notið verndar, að pað mundi vera
óhætt að láta pá fara að spila upp á
sinar eigin spítur að einhverju leyti.
I>að muna víst allir eptir peim ó-
sköpum, sem fyrir stjórninni vöktu í
u nbótaáttina um pað levti, sem kosn-
in^in fór frara hjer í Winnipeg í
ha ist. Svo mikið gekk á, að fylgis-
menn stjórnarinnar töldu pað hina
stökustu rangsleitni af Winnipeg-
mönnum, að sýna henni ekki pað
traust, að senda einn af hennar mönn-
um á ping, par sem hún ætlaði ein-
mitt nú að fara að láta verk-
smiðjueigendurna sigla sinn eigin sjó
og ekkert hafa annað fyrir augum en
hag fátæks almennings að eins.
Svo kemur pingið saman,og ept-
ir cokkurn drátt leggur stjórnin fyrir
pað tolllagabreytingar sínar. Vita-
sk ild Ijetu menn sjer pá lieldur fátt
um finnast; peir menn, sem enn höfðu
nokkra trú á Ottawastjórninni, höfðu
búizt við miklu meiru. En almennt
var pað pó viðurkennt, að pær litlu
breytingar, sem um var að ræða, væru
í rjetta átt — að eins pótti mönnum
breytingarnar of litlar.
En hvað skeður svo? Jafnskjótt
íjm tolllagabreytingarnar eru gerðar
heyrum kunnar, fara verksmiðjueig-
endurnir að flykkjast til Ottawa, og
sitja á leynifundum með ráðherrun-
um. Og árangurinu af {reim funda-
höldum verður sá, að stjórnin teáur
aptur hverja breytinguna eptir aðra,
og færir tollinn upp aptur sem pví
netnur, er hann hafði verið færður
niður fyrir örskömmum tíma.
Hvað á maður að hugsa um aðra
eins framkomu af stjórn Jandsins?
Engum heilvita manni verður talin
trú um, að ráðherrarnir hafi, eptir jafn-
langan umhugsunartíma og peir hafa
haft, flanað út í breytingar sínar í
hugsunarleysi, og svohafi verksmiðju-
eigendurnir með nokkurra mínútna
samræðu sannfært pá um, hyert óráð
pað væri, sem peir hefðu fyrir stafni.
Ráðherrarnir eru engin börn, engir
aular, og pví að eins hafa peir í ráð-
herrasessinn komizt. Hvernig stend-
ur pá á pessum hringlanda? Hvers
vegna standa peir ekki við sína fullu
tollvernd í byrjun pingsins, úr pví að
peir standa ekki við sína niðurfærslu
á tollinum, pegar fer að líða ápingið?
Munu peir ekki hafa rennt grun í, að
verksmiðjueigendurnir mundu verða
óánægðari með lágan toll en háan?
Hvers vegna var pá farið að gera pá
hrædda um nokkrar vikur, úr pví að
stjórnin reyndist ekki pess megnug,
að lofa peim að sigla sinn eigin sjó?
Hið merka blað llarald í Mon-
treal kemur með úrlausn á pessum
ráðgátum. í grein, sem pað flytur
um pennan kynlega hringlanda stjórn-
arinnar, kemst pað að orði meðal ann-
ars hjer um bil á pessa leið:
„Ef hægt væri að fletta ofan af
pví sem fyrir stjórninni vakti — eins
og hægt er að gera með pví að setja
saman nokkur atvik, sem mönnum er
kunnugt um — mundu menn komast
að raun um, að niðurfærslan á tollin-
um var í pví einu skyni gerð, að skrúfa
út úr verksmiðjueigendunum miklu
stærri mútusjóð heldur en unnt var
að fá með hinum heitustu fortölum.
Nokkrar afar auðugar fjártillaga-upp-
sprettur höfðu pornað upp síðan síð-
ustu kosningar fóru frem, og með
harða kosninga-baráttu fram undan
sjer sá stjórnin fyrir nokkru síðan
fram á, að horfurnar voru allt annað
en vænlegar. Snjallræði pað, að færa
tollinn niður og neyða verksmiðju-
eigendurna til samninga áður en toll-
urinn var aptur færður i sitt gamla
horf, hefur fyllt flokksfjárhirzluna svo
að út af flóir, og stjórnin er nú óðum
að komast í pær ástæður, að hún get-
ur farið að „kenna fólkinu“.
Meira í oröi en á borði.
Það var allmikið númer gert út
af pví í vetur, pegar Ottawastjóruin
færði tollinn á akuryrkjuverkfærum
niður í 20 af hndr. úr 35 af hndr. En
pegar til kemur, pá fylgir stjórnin
par sömu reglu eins og með aðrar um-
bætur sínar i tollmálinu, að taka með
annari hendinni pað sem hún gefur
með hinni, svo að niðurfærslan á toll-
inum á pessum vörum, sem hafa svo
afarmikla pýðingu fyrirpetta land, er
sannarlega rreira í orði en á borði.
Til pess að láta ekki pessa niður-
færslu verða áhrifameiri en stjórn-
inni kann gott að pykja, hefur hún
pað ráð, að fara ekkert eptir pví, hvað
jarðyrkjuverkfæri, sem keypt hefur
verið sunnan yfir landamærin, hefur í
raun og veru kostað, heldur lætur hún
tollpjóna sína virða pað, og svo er toll-
urinn lagður á samkvæmt peirri virð-
ingu. Sje verkfæriðkeyptfyrir $100frá
einhverju vöruhúsi í Bandaríkjunum,
pá hefur tollmáladeild stjórnarinnar
rjett til að virða pað á segjum $150,
og svo verður tollurinn eðlilega 30 af
hndr. i staðinn fyrir 20 af hndr., sem
lögin ákveða. Virðingin er algerlega
á valcti tollpjónanna, og eptir pví
samkomulagi, pvi nána sambandi og
peirri heitu vináttu, sem vitanlega
á sjer stað milli Ottawastjórnarinnar
og verksmiðjueigendanna, er ekki ó-
sennilegt að geta pess til, að við virð
inguna verði höfð hliðsjón af pví
verði, sem er á jarðyrkjuverkfærun-
um hjer nyrðra, enda var pað tekið
fram á pinginu í sambandi við petta
mál, að stjórnin virtist vera hrædd
um að Bandaríkjamenn mundu selja
bændunum í Canada vörur sínar of
ódýrt.
Það er allt á eina bók lært fyrir
Ottawastjórninní með tollmálið. Hún
hefur brennt skip sín og gengið í lið
með verksmiðjueigendunurn og auð-
valdinu fyrir fullt og allt. En pví
fylgir pá jafnframt sá kostur, að al-
menningur manna ætti ekki að purfa
að vera í neinum vandræðum með að
velja milli flokkanna, pegar til kosn-
inganna kemur.
Imyndan ein.
Eptirfarandi er „Þjóðviljanum
unga“ ritað úr Dalasýslu 1. apríl síð-
astliðinn, og setur blaðið framan við
pað fyrirsögnina „Agenta brellur“:
„Nú hefur Canadastjórn (eða
rjettara sagt fylkisstjórnin í Manitoba)
sent hingað til landsins tvo “agenta”,
og pað er ekki ósnotur aðferð, sem
nota á í petta skipti; ymsurn ungum
og einhleypum piltum ogstúlkum eru
send brjef pess efnis, að vinir peirra 1
Ameríku hafi borgað farbrjef fyrir pá
vestur, og pessi brjef fá ýmsir, sem
ekki vita til, að peir eigi neinn pann
vin eða vandamann í Ameríku, erpeir
geti vænzt pess af, og sem aldrei hef-
ur komið til hugar, að fara til Ame-
ríku!
„Það er reyndar ekki líklegt, að
íslendingar par vestra hafi fremur
peninga, — einmitt í pessu atvinnu-
leysisáii —, til pess að kasta út fyrir
fargjöld vina sinna hjer heima, en að
undanförnu, heldur mun Manitoba-
stjórnin vera pessi vinur, og “agent-
arnir” hafa snapað sjer upp nöfnin í
Winnipeg, pví að par munu nú sam-
an komnir menn úr flestum sveitum
íslands.
„Það er með öðrum orðum, að nú
á að fara að Jlytja fólJeið “fritt”, en
ekki nema úrval af ungu ogeinhleypu
fólki; hjer er pví synt, að Canada-
menn purfa ekki umferðar-“agenta”,
til pess að ná fólkinu úr landinu, og
hversu mælskir sem peir kunna að
hafa verið, pá er pó hætt við, að pen-
ingarnir reynist enn pá mælskari, peg-
ar fram í sækir”.
Oss er óhætt að fullyrða, að pessi
synd Manitobastjórnarinnar og„agent-
anna,“sem L'alamaðurinn kvartar um,
er ímyndan ein. Stjórnin er ekki
nærri pví svo útföl á fje til innflutu-
inga í ár, að hún sje að láta „snapa
sjer upp“ nöfn og kaupa farbrjef
handa mönnum eptir peim upplys-
ingum, að fornspurðum pessum fyrir-
huguðu innflytjendum. Engri stjórn
mundi nokkurn tíma neitt slíkt til
hugar koma. En allra sízt mundi
Manitobastjórnin byrja á slíku í ár,
pegar hún leggur minna fje til inn-
flutninga en nokkru sinni áður, síðan
núverandi ráðaneyti kom til valda.
Því fer svo fjarri, að íslendingar verði
fluttir “frítt” í ár, aðstjórnin hlutast nú
ekki hið minnsta til um pað, að nokk-
ur maður fái lánað fargjald eða nokk-
urn part pess. Hið eina, ssm Mani-
tobai'tjórnin gerir í ár til pess að
stuðla að innflutningi frá íslandi, er
að kosta til íslands menn, er eiga að
leiðbeina pví fólki, sem fara vill,
menn, sem alkunnir eru að pví að gefa
löndum sínum hjer vestra leiðbein-
ingar, sem komið hafa að góðu haldi.
Út af slíku virðist enginn purfa að
ganga af göflunum.
Nýstárlegt lierlið.
Euda pótt mörgum verði að
brosa að Coxey, sem heimtar ógrynni
fjár lagt fram til pess að gefa at-
vinnuleysingjum vinnu, og aðrir
skammi hann með einhverjum svæsn-
ustu orðunum, sem ensk tunga á til,
pá eru pó allt af að heyrast fleiri og
fleiri raddir f pá átt, að Bandaríkja-
stjórn verði etthvað að gera beint til
pess að bæta úr atvinnuleysinu. Nú
hefur George T. Angell, forseti
fyrir Mannúðarfjelagi Ameríku
(American Humane society) sent
congressinum bænarskrá og er
par komið með nyja bendingu,
enda pótt hugmyndin sje nokkuð
svipuð eins og sú er fyrir Coxey vak-
ir. Hann vill láta mynda hersveitir
af nokkrum hundruðum púsunda af
atvinnuleysingjum, lialda peim undir
ströngum heraga, en láta pá vinna
yms umbótaverk,sem almenningi geti
orðið til heilla. Hann nefnir nokkur
slík verk, sem her pessi gæti unnið
og almenningur haft gagn af, par á
meðal skipaskurð frá Mississippi til
Chicago, skipaskurð frá Michigan-
vatniuu til Detroit, skijiaskurð pvert
yfir Florida, umbætur á varnargörðum
fram með suðurjiartinum af Mississ-
ippi og öðrum stórám í suðurríkjun-
um,stórkostlegar vatnsveitingar í eyði-
mörkunum í Kansas, Colorado, Wyo-
ming og Nebraska, viðgerð á ymsum
höfnum, uppræting rússneska pistils-
ins og brautalagning. Angell vill
láta herpjónustutíma mannanna vera
frá einu til tveggja og priggja ára,
og að peir taki til starfa svo fljótt
sem unnt verður. „Verði spurt“,
segir hann, „hvort við höfum efni á
að gefa öllum pessum atvinnuleys-
ingjum, pá svara jeg: Höfum við efni
á að gera pað ekki?“
Til pess að fje fáist til pessara
fynrtækja vill hann láta fresta öllum
nyjum sjóliðskostnaði, og heldur pví
fram, að landið komist af, pó að pað
hafi ekki fleiri millíón dollara herskip
og sextíu púsund dollara fallbissur
sem kosti prjú til fjögur hundruð
dollara í hvert skipti, sem úr peim
sje skotið. Og hann spyr: „Er pað
ekki púsund sinnum betra og miklu
ódyrara, að gefa 500,000 mönnum at-
vinnu við einhver verk, sem almenn-
ingur manna hefur gagn af, heldur en
að lenda í stríði eða verða að láta pá
standa iðjulausa?“
, Islands frjettir.
í’ramh. frá 1. bls.
Á Vatnsleysuvík fór að fiskast 5.
p. m. og helzt pað enn; pað eru bátar,
sem Jrangað róa, og fá daglega fylli
sína par. Skipin, sem róa vestur,
bæði á Svið Ofg I Leirusjó, iiska lika,
en ekki betur en bátarnir. Ágætur
afli á grunni fram með allri Strönd,
og eins í Vogum og Njarðvíkum.
Þessa afla verða allir aðnjótandi, jafnt
fátækir sem hinir efnaðri, og gamal-
inenni geta notið hans, par sem svo
stutt er að sækja. Virðist fiskur vera
um allt á grunni, suður með öllum
Faxaflóa. „Það er líka víða vaknað-
ur reglulegur áhugi hjá mönnum að
bera niður á grunni. Þetta er t. d.
4. árið, sem Vogamenn gera pað kost-
gæfilega, og hefur pað synt hinn
bezta árangur; peir gerðu samtök um
pað sín á milli fyrir 4 árum, og síðan
hefur Vogavík farið að líkjast sjálfri
sjer aptur. Eins gera menn nú á
Vatnsleysuvík, og par var líka eins
farið að í fyrra, og par við lagðist pá
fiskurinn“.
í Herdísarvík og Þorlákshöfn gaf
að róa alla vikuna sem leið og fiskað-
ist ágætlega; en í Selvogi ekkert,
sökum brima. Á Eyrarbakka farið
að lagast með gæftir cg par með
byrjaður ágætur afli Jiar.
Á pilskip aflalaust að kalla; al-
veg sílislaust í sjónum.
Strand. Aðfaranótt hins 7. p.
m. strandaði saltskip til kaupfjelags-
manna í Garðinum, á Byjaskerseyri,
Franciske. Fórí.spón hjer um bil.
Skipshöfnin komst í skipsbátinn og
var bjargað síðan af „Margrjeti“,
fiskiskipi G. Zoega & Co., og flutt til
Keflavíkur.
Aðstoðarprestur. Próf. sjera
Þórarinn Böðvarscon R. Dbr, í Görð
uin, hefur kvatt sjer aðstoð.irprest,
prestaskólakand. Júlíus Þórðarson frá
Fiskilæk, er á að vígjast sunnudag
15. p. m. ásamt Vilhjálmi Briem (til
Goðdala).
Prófastur. Prófasturinn I Suð-
ur-Múla prófastsdæmi, sjera Jónas
Hallgrímsson, hefur fengið lansn frá
pví embætti, að beiðni sinni. í Norð-
ur-Múlaprófastsdæmi hefur biskup
sett sjera Einar Jónsson í Kirkjubæ
til að gegna prófastsstörfum við burt-
för sjera Sigurðar Gunnarssonar á
Valpjófsstað.
Mannsiíaði varð á Eyrarbakka
7. p. m. Þrlr menn drukknuðu, en 7
varð bjargað af Magnúsi Magnússyni
í Túni á Eyrarbakka. Þeir, sem
drukknuðu, voru: Sigurður Árnason
i Mörk á Eyrarbakka, kvæntur og
átti eitt barn; Oddgeir Vigfússon frá
Hæli í Eystrihrepp og Þórarinn, son-
ur Arnbjörns bónda á Selfossi. Slys
petta vildi til á sundinu. Var brim-
hroði töluverður og lágsjávað. Skip-
inu varð ekki bjargað og rak pað
til hafs.
Hermanníus Ei.ías Joiinson
fyrrum syslumaður Rangvellinga and-
aðist 2. p. m. eptirrúmrar viku legu f
inflúenza, að heimili sínu Velli á
Rangárvöllum.
Guðný Möller, háöldruð ekkja
hjer í bænum og pjóðkunn, pótt ekki
væri í neinni fyrirmannsstöðu, andað-
7. p. m.
„Aðfaranótt hins 10. p. m. and-
aðist hjer í bænum merkis og dugn-
aðarkonan Kristín Guðnadóttir í
Bakkabæ, kona Jóns bónda par Guð-
mundssonar, 66 ára gömul, eptir 14
vikna punga og pjáningarmikla legu“.
Rvfk 14. aprfl 1894.
AflahröGÐ. Misfiski mikið hjer,
og fiskur allt af magur. Sumir dá-
góða hluti. Róa gefur á liverj um
degi. Á Akranesi byrjaði afli laug-
ardag 7. p. m.; ágætur par síðan, en
sami fiskur og hjer. Suður í Garðsjó
og Leiru sæmilegur afli í net. Sunnan
Skaga (Miðnesi og Höfnum) aflalaust
Þilskip fá varla neitt, ekki 1 púsund
á 3 vikum.
Rvík, Í8. apríl 1894.
Mannskaði. Enn drukknuðu 2
menn í fiskiróðri á Eyrarbakka 11. p.
ra.: formaður Páll Andrjesson, fátæk-
ur barnamaður, og Jón nokkur í Rjett-
inni (á Bakkanum), Rangvellingar að
uppruna. Hinum bjargað.
Aflabrögð. Framhald hjer á
afla enn líkt og áður. Eins hjá Álpt-
nesingum og Hafnfirðingum; peir
fiskaymistmætavel, stundum ágrunni,
stundum á Sviði, eða pá varla ekki
neitt. Fiskur á flökti um allt. Tals-
vert af-lúðu og steinbít með, „sem
synir að petta er vestanganga".
Á Ströndinni einnig mjög mis-
fiskið. í net fiskaðist par ekkert fyr
en 14. p. m.; pá fengu Vogamenn
100—170 í trossu undir Stapanum; á
færi fengust par sama dag 50—70 f
hlut, sumir jafnvel inni í Gljánni
(skipslegunni). í Njarðvíkum hæst-
ur hlutur á helginni sem leið 450, en
margir um 350 og par nærri. Úti í
Garði einnig dágóður afli, en enginn
á Miðnesi og í Höfnum. Tregt í
GrindavSk.
Austanfjalls mjög vel lifnað við
með aflabrögð; 600 hlutir komnir í
Þorlákshöfn fyrir helgi, par af |- porsk-
ur, vænn og feitur. Á Eyrarbakka
einnig framhald á hinum ágæta afla.
Mannalát. Nylega er dáinn
merkisbóndinn Magnús Sæmundsson
á Búrfelli f Grímsnesi, á áttræðisaldri,
bróðir Sæmundar lieitins á Elliða-
vatni. Fám dögum áður Ijezt kona
hans, Guðrún Gísladóttir, alsystir
Guðrúnar ekkju Sæmundar á Vatni;
peir bræður voru svilar. Ásdís Gísla-
dóttir, kona Þórðar fyr. alpingis-
manns Þórðarsonar á Rauðkollsstöð-
Veitt
Hædstu verdl. a heimssyningunni.
M,. - JÍVli*
BAHING .
POWDfR
IIÍÐ BEZT tilbúna.
Óblönduð vínberja Cream of Tartar
Powder. Ekkert álún, ammonis eða.
önnur óholl efni.
40 ára reynzlu,
Ðlt
nm
w CREAM