Lögberg - 27.09.1906, Qupperneq 1
Isskápar niðursettir
Skápar sem kostuðu $n.oo nú á $9.00. $20
á $17. $16 á $14. $8.00 á 7.50. Skoðið þá eg
fáið að vita um borgunarskilmála. Engu
sanngjörnu boði neitað.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
638Main Str. Telephone 339.
Burtfmeð ísskápana!
Við höfum of marga. og höfum því sett verð-
ið niður. Í20skápar nú á $'7 ogaðrir niðursett-
ir að samaskapi. Komið og skoðið þá. Gerið
sanngjarnt boðí þá og vér tökum því strax.
Anderson &, Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
53S Main St. Telephone 339.
19
AR.
Winnipeg, Man., Fimtudaginn, ‘27. September
1906.
NR 39
Fréttir.
Mælt er að Kristina Nilson,söng-
konan fræga, sem um margra ára
bil hefir búiíS á Spáni, og er gift
iþar aSalsmanni autSugum, hafi ný-
lega keypt landeign allstóra í átt-
högum sínum í SvíþjótS.
-------o------
Árgæzka mikil er nú í SvíþjóS;
uppskera meiri og betri um alt
land en veriö hefir um margra ára
tímabil.
Tyrkjasoldán er veikur og segja
læknarnir að þaS sé krabbamein í
nýrunum, sem aS honum gangi.
Ekki er það álitið hugsanlegt aS
hann eigi sér batavon né geti lifaS
lengur en í hæsta lagi eins árs
tíma.
Á Can. Norfhern járnbrautinni,
þrjátíu mílur vestur frá Port
Arthur, brotnaSi brú yfir gil í
vikunni sém leiS og tepti þaS korn |
flutnings-lestir, sem voru á leiS til j
Port Arthur. Svo er sagt, aS ná-
lægt því eitt þúsund aS tölu hafi
vagnarnir veriS, hlaSnir korni, er
teptir voru af þessum ástæSum og
biSu eftir þvi aS brúin kæmist á
aftur.
Fyrir skömmu síSan gripu j
Armeníumenn enn á ný til vopna.'
Hafa þeir brent og lagt í eySi all-
mörg þorp viö strendur Caspia- i
hafsins og í Caucasus-héruöunum \
á Rússlandi. Sent hafa Rússar1
þangaö herdeildir til þess aö
skakka leikinn og bæla niöur upp-
þot þetta.
Allmikill úlfaþytur hefir nýlega
orSiö út af því i blööunum á
[Þýzkalandi aö þýzku herskipi,
sem leitaði hafnar undan ofviöri
í Portsmouth á Englandi, hafi
veriö visaö þaöan á burtu og ekki
fengiö aö biða þar þangaS til
veðrinu slotaði. Portsmouth er
ein af aSal herkastala- og land-
varnarborgum Englands og mun
þeim ekki hafa veriö um þaS gef-^
iS aö láta þýzka hermenn liggja
þar við og kynna sér tilhögun
landvarnanna á þessum stöövum.
Sagt er nú, að yfir fimm þús-
und Kinverjar hafi látiS lifiö i
hvirfilbylnum sem gekk yfir bæ-
inn Hong-Kong i vikunni sem
leið, og á var minst í Lögbergi þá.
Eignatjónið bæSi á skipum og
húsum einnig sagt stórkostlega
mikið meira en fyrstu fréttirnar
báru meö sér.
Af stórflóöi í ám hafa skaöar
og manntjón nýlega hlotist í Mex-
ico. Á milli fimtíu og sextiu
manns er sagt aS farist hafi í
þessum vatnavöxtum, og yfir
fimm hundruð manns mist eignir
og óðul. Mjög margar borgir og
þorp, fram meö ánum, hafa ger-
samlega sópast á burtu og lagst í
evði og svo þúsundum skiftir af
gripum farist í þessum stórflóS-'
um.
Heldur þykir nú vænkast ráöiS
í þá átt aö konaa á friði og spekt á
Cuba. Hafa foringjar uppreistar-
flokkanna gefiS kost á því aS
semja um fullkominn frið, og aS I
leggja niöur vopniri, ef stjórnin,
láti aS aöal kröfu þeirra, sem er íj
þvi innifalin aS sleppa úr varS-j
haldi og gefa upp sakir öllumj
þeim uppreistarmönnum, er hún j
hefir nú í haldi. Að þessu er nú
mælt, að stjórnin muni-ganga, og
jafnframt veita eyjarbúum ýmsar
þær réttarbætur er þeir telja sér
nauðsynlegar. Svo er að sjá, sem
stjórnin sé orSin þreytt á hinum
sífeldu uppreistum, vopnaviSskift-
um og launmorSum eyjarbúa og
vilji nú flest til vinna til þess aö
friSa þá og fá þá til að leggja
niSur vopnin.
Tveir þingmenn frá British
Columbia hafa nýlega veriö send-
ir til Ottawa á fund Sir Wilfrid |
:Laurier til þess aS reyna aS fá
því framgengt aö bann verSi lagt
viS innflutningi Hindúa til Can-
ada. Þessi þjóS flytur nú í stór-
hðpum til British Columbia og
þykir alt annaS en æskilegir inn-
flytjendur.
JarSarför Trepoffs hershöfS-
ingja, foringja lífvarSarsveitar
Rússakeisara, fór fram í Péturs-
borg fyrra miSvikudag. HafSi
verið viS því búist, að uppreistar-
flokkurinn mundi heiöra minningu
hans með einhverjum spellvirkj-j
um við jaröarförina, en ekki varð \
þó neitt af því, enda voru það fáir
er hirtu um eða þoröu að fylgjal
Trepoff til grafar.' Ekki þorSi
keisarinn aö koma þar nærri en
sendi einn af yfirmönnum land-
hersins, meS nægu fylgdarliði, i
sinn staö. Keisarinrr er nú svo
lifhræddur orðinn aS hann þorir
helzt ekki að stíga fæti sínum á
land i Rússlandi og þessa sízt aö
koma til höfuöborgarinnar. Hefir
hann nú lengi sumars dvaliS á
skem.tiskipi sínu og veriö á ferð á
jþvi fram og aftur um finska fló-
ann.
Einn af foringjunum í stórskota-
liöinu rússneska var skotinn til
bana af anarkistum á strætunum i
Warsaw á Póllandi á fimtudaginn
var. Moröingjarnir hafa eigi náöst
enn sem komiS er, og litlar líkur
þykja til aS hendur verði haföar á
þeim. LandslýSur allur á Póllandi
—eins og viöast hvar innan rúss-
neska keisaradæmisins,— telur
þaS sjálfsagöa skyldu sina aö
hylma vfir meö slikum mönnuin
og vernda þá á allan hátt.
1 Helsingfors á Finnlandi voru
sjö af mönnum þeim úr sjóhern-
um, er þátt tóku i uppreistinni í
kastalanum Sveaborg í sumar,
skotnir samkvæmt dómi herréttar-
ins. Áttatiu menn aðir úr sjó-
liöinu, sem riðnir voru viö upp-
reistina, hafa dæmdir verið í haröa
hegningarvinnu um langt tímabil.
Musteri handa sér til guösþjón-
ustufunda ætla Múhamedstrúar-
menn á Englandi nú aS fara að
reisa í London. Á musteriS aö
veröa mjög skrautlegt að allri
gerö og kosta fimm hundruS þús-
und dollara. 1 Londorr er sagt aS
muni vera nálægt þrjú þúsund
menn Múhamedstrúar, og margir
þeirra vell-auöugir.
Sextán hudrnö dollara peninga-
sendingu var stolið úr póstflutn-
ingnum meö Can.Pac. jámbrautar
lest einni á fimtudaginn var, á
leiö frá Owen Sound í Ontario og!
til Toronto. Engar líkur eru fyrir
hendi, sem á nokkurn hátt geti á
neinn sérstakan mann bent, er
valdur sé aS peningahvarfinu.
MeS hagfræöisskýrslum frá Ind-
landi, sem nýlega hafa verið birt->
ar, er Það leitt í ljós, aö áriö 1905
hafi höggormar og önnur villidýr j
oröið yfir tuttugu og fjórum þús-
undum manns aö bana þar í landi.
Langflestum, eSa yfir tuttugu
þúsundum af þessum mönnum, er
þannig létust, uröu höggormar aS
meini. Nálægt því níutiu og níu
þúsundir hesta og nautgripa drápu
villidýrin einnig fyrir bændum á
Indlandi á þessu sama ári.
Þremur verkam<!»nnum, er voru
viö vinnu á Grand Trunk braut-
inni, skamt fyrir vestan Fort Wil-
liam, var grjótsprenging að bana
á fimtudaginn var. Fimm aðrir
verkamenn, sem þar voru viö-
staddir, uröu all-hættulega sárir,
og er jafnvel búist við, að sumir
þeirra muni ekki rétta viö aftur.
Svo er sagt, aö félag auömanna
á Englandi hafi tekiö sér fyrir
hendur aS kaupa fleiri þúsun’d j
ekrur af landi norSvestan til í I
'Canada og senda þangaS nokkrar
þúsundir af bændafólki frá Eng- j
landi til þess aö setjast þar aö, áö-
ur en langt líöur. Land þaö er
félagið kaupir er mestmegnis í
Dauphin, Glenella, Carrot River,
Swan River, Wadena og Quill
Lake héruöunum.
hafa læknarnir getaS gert sér fyr-
ir því hvernig á þessum óvanalega
og óvænta atburði muni standa, og
aldrei hefir það komiö fyrir fyrri,
aö þessi nafnfræga rannsóknaraö-
ferö hafi oröiö neinum manni aö
fjörtjóni.
Mjög slæmar uppskeruhorfur
eru nú á Rússlandi og þar af leið-
andi yfirvofandi hallæri í mörgum
héruöum landsins. Engar ráöstaf-
anir gerir hin duglausa rikisstjórn
til þess aö afstýra þessum yfirvof-
andi vandræöum, eöa veita þegn-
um sinum liösinni. Gerir þvi upp-
reistarflokkurinn sér miklar vonir
um að þetta ástand, meðal annars
fleira, veröi til þess að flýta fvrir
stjórnarbyltingu á Rússlandi.
þetta fyrir alla, sem hlut eiga aö
máli, og viöa kemur sá hnekkir
ómaklega niöur, eins og vænta
má.
Fjögra ára gömul stúlka, dóttir
enskra hjóna hér í bænum, andað-
ist af brunasárum á almenna spít-
alanum á föstudaginn var. MóSir
hennar hafSi sem .snöggvast geng-
iS út fyrir húsdyrnar og haföi
barnið á meöan komiö svo nálægt
eldstónni aS kviknaöi í fötum þess.
Þegar móöirin kom að var barnið
svo skaöbrent, aö því varö ekki
lífs auSiö.
Nýársdagur GySinga var á
fimtudaginn var, hinn 20. þ.m., og
byrjaSi þá árið 5667, eftir þeirra
tímatali. Sumir Gyöingar halda
þá heilagt í tvo daga og er enn
þann dag í dag nákvæmlega fram-
fvlgt öllum hinum fornu helgi-
siöum við liátiöarhaldiS. Aljög
rækilega leggja þeir stund á aö
sækja samkunduhús sín á þessari
stórhátiö, þó í fjarlægS séu og illa
sólct á öSrum helgidögum.
Séra FriSrik Hallgrimsson læt-
ur þess getið aS $3.25, sem hann,
auk annars, afhenfi til mannskaða
samskotanna, hafi veriS frá eftir-
nefndu fólki: Þorst. B. Mýrdal
$1, Bergst. Mýrdal $1, Mrs. B.
Mýrdal $1 og Óla Lyngholt 25C.
Nöfn þessara gefenda hafa ekki
áður veriS auglýst. Misprentast
haföi einnig á gefendalistanum
héöan úr bænum fööurnafn Sig. J.
Jóhannessonar á Ross ave. Á
nafnaskránni stendur Sig. Jó-
hannsson.
í bænum Jellico i Tennessy rík-
inu í Bandarikjunum, vildi þaö
voöaslys til á föstudaginn var, aö
kviknaöi í vagnhlassi af dýnanút, i
er beið þar á járnbrautarstöSvun-
um. Má svo heita, aö hin voSa-l
lega sprenging, sem af þessu varö,
legði bæinn í eyði aö húsurri. Ell-
efu manns aS minsta kosti kvað
slysið hafa oröiö aö bana, og ekki
færri en fimtíu uröu fyrir áverk-
um meiri og m‘nni.
Til verkamanna, er vinna bæjar-1
vinnu hér í Winnipeg, voru borg-
aðir út, hinn 14. þ. m., sextíu og|
tvö þúsund sex hundruö og fimtíu
dollarar, og var þaö hálfsmánað-1
arkaup verkamanna bæjarins. í
þessari útborgun er innifaliö ein-1
göngu kaup fyrir menn og hesta
við strætavinnu, lagningu gang-
stétta, skuröavinnu og hreinsun
strætanna. Hátt á þriöja þúsun’d
manns hefir stundaS þessa vinnu
nú i sumar. í síöastliönum Agúst-
mánuöi uröu verkalaunin viö
þessa vinnu hærri en þau hafa
nokkurn tíma áöur orðiö í sögu
þessa bæjar, og námu þá rúmijm
sextíu og fimm þúsundum dollara
fyrir hálfsmánaöar tímabil. ÁriS
sem leiö nam kaupgjalds-skráin
fimtiu og sex þúsundum dollara
mest, fyrir jafnlangt timabil .
Læst inni í herbergi hjá fóstru
sinni dauSri fanst fjórtán mánaða
gamalt barn í New York í vikunn'i
sem leið. Fyrir vist í fímm sólar-
hringa haföi barniö veriö þarna
eitt á lifi og hirðingarlaust hjá
liki fóstmnnar, sem farið var að
rotna, og var orðiö aö fram komiö
af hungri þegar aö var komiö.
Konan, sem var .ekkja, sextiu ára
aS aldri,haföi fyrir nokkrum mán-
uöum síðan tekiö aö sér barnið,,
sem var á fátækrahæli i NewYork,
og ætlaöi sér aö annast um upp-
eldi þess. Konan haföi auSsjá-
anlega orSið bráökvödd. BarniS
var næstum því meðvitundarlaust
þegar það fanst og örmagna og
raddlaust af gráti.
Járnbrautarslys varö á Eng-
landi, skamt frá London, í vikunni
sem leið, og biðu tíu manns þar
bana en margir uröu meira og
minna sárir. Þykja það hin mestu
undur, aö ekki varð meira slys aö,
þar sem hér var um farþegalest
aö gera, troðfulla af fólki, er rann
út af sporinu og valt um koll.
Nafnkendur bankari í Philadel-
phia dó nýlega í höndunurn á lækn
unum þar, er voru aö rannsaka
hann meö Röntgen-geislum.
Geislunum beindu læknarnir á
hjarta mannsins og jafnskjótt og
þaö var gert stirnaöi hann upp
eins og hann hefSi fengiö krampa-
slag og var dauSur að fáeinum
augnablikum liönum. Enga grein
Samkvæmt tillögu innanríkis-
málaráögjafa Dominion- stjórnar-
innar veröur allmikiS af skóla-
löndum í Manitoba selt á opinber-
um uppBoSsþingum nú í haust og
aS vori komandi. Öll eru lönd
þessi í grend við járnbrautir. Enn
er ekki búiS að ákveöa hvar eöa
hvenær uppboöin verða haldin.
Ur bænum.
SíöastliSinn mánudag féll einn
af vagnstjórum strætisvagnafé>
lagsins hér í bænum út af einum
„Park Line“ sporvagninum og
varö undir hjólunum sem möröu
af honum báöa fætur. Maðurinn
var fluttur á spítalann í St. Boni-
face og andaðist þar um kveldið
eftir miklar þjáningar.
Vinnufólk á tveimur vindla-
gerðarhúsum hér í Winnipeg
gerðu verkfall á fimtudaginn var.
Auk þess aö óska eftir kauphækk-
un, er fólkið óánægt meö aö leitað
er á því í hvert sinn og það fer út
úr vinnustofunum, bæöi konum og
körlum,og þaö svo grandgæfilega,
aö teknir eru af þvi skór og sokk-
ar, til þess að hafa gætur á aö ekki
hnupli þaö vindlum og hafi á burt
meö sér.
Verkfallinu hér í Winnipeg
heldur enn áfram, og segja þeir,
sem bezt þykjast til þekkja aS
lítiö meiri likur séu til þess nú að
samningar kornist á milli vinnu-
veitenda og verkamanna en var
.fyrir viku síSa*. Slæmur hnekkir,
nú undir veturinn, er verkfall
Jón Helgason héöan úr bænum
kom heim aftur úr íslandsferö
sinni snemma siöastl. laugardags-
morgun og meS honum þrír inn-
flytjendur, Sigurjón Jónsson og
Ólína Ólafsdóttir úr Bolungarvík
og Elizabet Ólafsdóttir, systir
hennar, frá Flatey á BreiöafirSi.
Hann kveöst hafa feröast allmikiö
um á íslandi, en dvaliö lengst í
Bolungarvík við ísafjaröardjúp,
og heldur hann því fram, aö þar
hafi hann séð framfarir mestar á
íslandi. Skemtileg þótti honum
feröin og ágætlega lætur hann af
viötökunum heima. En þrátt fyr-
ir þaö segist hann taka Canada
fram vfir ísland. Hann biður Lög-
berg aö flytja öllum vinum sínum
á gamla Fróni kæra kveðju frá sér
og þakklæti fyrir góöar og vin-
samlegar viötökur.
Fréttirfrá Islandi.
Reykjavík, 31. Ágúst 1906.
Dáinn er 20. þ. m. Þorsteinn
Magnúss. bóndi á Húsafelli, fað-
ir séra Magnúsar í Selárdal, einn
meöal merkustu bænda í Borgar-
firöi. — Þ jóSólfur.
Revkjavík, 15. Ag. 1906.
Nýtt fiskimið segir Noröri fund-
iö norðvestur af Horni, mitt á
milli íslands og Grænlands. Þar
hefir fiskiskipiö Havsulen á mán-
aðartima í sumar aflaö á annað
hundrað skippund af fiski, segir
blaöiö.
SíldveiSafélag hafa nokkrir
kaupmenn á SeySiSfiröi stofnaS í
sumar, ásamt J. Gunnlaugssyni
stórkaupm. í Khöfn. FélagiS rek-
ur í sumar síldveiðar með poka-
nót og hefir leigt til veiðanna
gufuskip um 3 vikna tíma, fvrir
150 kr. á dag, auk kola. Þlrjá daga
haföi skipið verið úti að veiSum,
er „Austri“ skýrir frá þessu, og
komiö inn meö 450 tunnur síldar,
og voru 200 af þeim þegar seldar,
á 20 kr. turinan.
Dengingarvél. BúnaSarritiö
hefir áöur auglýst áhald Guttorms
Jónssonar frá HjarSarholti til aö
dengja ljái. Nú hefir smiðurinn
stórum endurbætt þetta áhald; er
hin nýja dengingarvél hans stigin,
og er meS því fenginn ásláttur,
en Ijánum stýrt meö báðum hönd-
um. Þeir sr. Kjartan Helgason í
Hruna og Jón Jónatansson í
Brautarholti hafa notaö denging-
arvélina í sumar og láta báöir hiö
allra bezta yfir henni. Guttormur
er hvorttveggja í senn, hugvits-
maöur og þjóðhagur smiður, og
hefir hallan ,hug á því aö vinna aö
umbótum landbúnaöar - áhalda,
og ætti honum aö geta oröiö góö
atvinna viö þaö.
Reykjav. 25. Ágúst 1906.
Gulliö. Boranir eiga aö byrja í
Október í haust.
Höfnin. Á bæjarstjórnarfundi í
gærkvöld lagði hr. Smith fram
tvær áætlanir um hafnargerö hér.
Fullkomin og góö höfn kostar
eftir hans áætlun 1 milj. og 800
þúsund kr., en vel má komast af
meö aðgerð, sem ekki fer fram úr
einni miljón. Hann bauö aö gera
teikingar allar og útvega mann í
Noregi til þess að stjórna verk-
inu. Bæjarstjórnin hallaðist aö
uppástungu hans um, aö hugsa til
hafnargeröar þar sem höfnin nú
er.
—Lögrctta.
Reykjav. 10. Ágúst 1906.
Á heimleiBinni afréöu alþingis-
menn að bjóða 40 dönskum þing-
mönnum hingaö að sumri, sam-
tímis því er konungur kemur.Þeir
veröa aö öllu leyti gestir landsins
frá þvi aö þeir koma til Reykja-
vikur. í viðtökunefnd, stjórninni
til aðstoöar, eru Guöm. Björns-
son. Jón Jakobsson, Skúli Thor-
oddsen, Tr. Gunnarsson, Þ.órh.
Bjarnarson.
Ásgrimur Jónsson málari dvel-
ur nokkurn tíma í sumar vestur á
Snæfellsnesi. Ætlar aö gera þar
myndir af einkennilegu landslagi.
Reykjavík, 22. Ág. 1906.
Samþykt hefir veriö á hluthafa-
fundi aö reyna aö endurreisa verk-
smiöjuna „ISunn“ og halda henni
áfram. Enn fremur var samþykt
aö auka stofnféS um alt að 35 þús.
kr. meö sölu nýrra 100 kr. hluta-
bréfa, er ganga skulu fyrir hinum
eldri meö 5% vöxtum af árságóöa
félagsins. RáSgert aö nýja húsiö
veröi úr steini.
Þ.orv. Krabbe verkfr. kom hing-
aö um fyrri helgi úr ferö sinni
austur, noröur og vestur um land.
sem áður hefir veriö minst á hér
í blaðinu. Næsta verk hans er aö
rannsaka hvar hentugast mundi aö
leggja járnbraut héöan og austur
yfir fjall.
— Lögrétta.
Reykjav. 25. Ágúst 1906.
Húsasmíði hefir naumast veriS
nokkurn tíma eins mikið um hér í
bæ og þetta ár. Þau skifta mörg-
um tugum, húsin sem r-eist hafa
veriö frá því í vetur eöa veröa
fullbúin í haust. Atvinna afarmik-
il fyrir húsasmiöi, miklu meiri en
þeir komast yfir, og skifta þó
sjálfsagt mörgum hundruöum.
— Isafold.