Lögberg - 23.02.1907, Blaðsíða 4

Lögberg - 23.02.1907, Blaðsíða 4
er geflC út hvern flmtuda* af rhe Löcberg Prlntln* & PubUshlng Co., <löggllt), aS Cor. William Ave og Nena St., Wlnnipeg, Man. — Kostar $2.00 um á.ri5 (& lslandi 6 kr.) — Borgist fyrirfram. Einstök nr. ó cts. PubUshed every Thursday by The Lögberg Printing and Publishing Co. (Incorporated), at Cor.William Ave. éc. Nena St., Wlnnipeg, Man. — Sub- •crlptlon prlce $2.00 per year, pay- able in advance. Single copies 5 cts. S. BJÖRNSSON, Editor. M. PAULSON, Bns. Manager. Anglýslngar. — Smáauglýsingar I eltt skifti 25 cent fyrir 1 Þml.. A stœrri augiýsingum um lengrl tlma, aísláttur eftir samningi. Bústaðaskifti kaupenda verður að tllkynna skriflega og geta um fyr- verandi bústað Jafnframt. Utanáskrift til afgreiðslust. blaðs- ins er: The LÖGBEKG PRTG. & PUBL. Co. P. O. Box. 186, Wipnipeg, Man. Telephone 221. Utanáskrift til ritstjðrans er: Editor Lögberg, P. O. Box 186. Winnipeg, Man. Samkvæmt landslögum er uppsögn kaupanda á blaði ógild nema hann sé skuldlaus Þegar hann segir upp.— Ef kaupandi, sem er 1 skuld við blaðlð, flytur vistferlum án þess að tilkynna heimilisskiftin, þá er það fyrir dömstólunum álitln sýnileg sönnun fyrir prettvlslegum tilgangi. Ur bænum. Mrs. William Young frá Kenora, Ont., nú talin í Winnipeg, á bréf á skrifstofu Lögbergs. Um miðja þessa viku kólnaði tíðin. Hreinviðri og allhörð frost á miðvikudag og fimtudag. Snjóaði á föstudaginn. Greenway-stjórnin veitti af sjö ára tekjum sínum 22y2 prct. til mentamála. Roblin-stjórnin á jafn- löngum tíma bara 17 prct. af tekj- um sínum. Sigfús Pálsson, keyrslumaður, á heima að 488 Toronto st. Tel. 6760. Flutningur um bæinn fæst hjá hon- um greiðari og ódýrari en annars staðar. Greenway-stjórnin veitti af sjö ára tekjum sínum 30 prct. til al- menningsþarfa. Roblin-stjórnin veitti á jafnlöngum stjórnartíma að eins 26 prct. tekna sinna. Roblin treystir á knæpu-kóngana og skósveina þeirra. Edward Brown treystir á bindindisvini og menn sem unna þjóðarheill. — Hvor ætti að sigra? Ef Þér vilji'ð láta fjölga vinveit— ingaleyfum, og fá greitt fyrir ó- reglu og drykkjuskap hér í bænum og fylkinu, þá greiðið Þér atkvæði með Þingmannaefnum Roblin- stjórnarinnar. Fylgi T. H. Johnsons, liberala þingmannsefnisins í Vestur-Win- nipeg, eykst með hverjum deginum sem liður. Allir Þeir, sem bera hag kjördæmisins fyrir brjósti, ættu að styðja hann til sigurs, því áð hann verður góður þingmaður. Fasteignasali nokkur hér í bæn- um, John L. Strus að nafni, skaut sig til bana í herbergi sínu í Strath- cona hótelinu á fimtudaginn var. Erfiðar fjárhagsástæður er sagt að muni hafa knúið manninn til þessa verks. Hann var á þrítugsaldri og ókvæntur. Méð tíðindum má það telja, að conservatíva þingmannsefnið í Norður-Winnipeg hefir tekið aftur framboð sitt til þingmensku. Hefir auðvitað ekki treyst sér. Er búist við, að fleiri þingmannaefni con- servatíva fari að hans dæmi, og er nú illur kur í herbúðum þeirra. Síðustu fréttir segja, að con- servatívar i Norður-Winnipeg hafi í vandræðum sínum útnefnt ljós- myndasmið einn, Mitchell að nafni, í stað McKay, rétt til málamynda. Ef þér viljið hlynna að bindindi og fækkun vínveitingaleyfa og tak- mörkun drykkjuskapar óreglu, skuluð þér greiða atkvæði með Ed- ward Brown og Þingmannaefnum liberalflokksiní, sem hafa gert bindindismálið að einu helzta atrið- inu í stefnuskrá sinni. Tekjuhalli Greenway-stjórnar- innar var auglýstur í þingtiðind- unum árið 1900, bls. 427, og viður- kendur af báðum stjórnmálaflokk- unum að vera,þegar Roblin-stjórn- in tók við, $248,000. Roblin- stjórnin tók $500,000 lán og þótt- ist ætla að borga þenna tekjuhalla. Af því fé hefir hún stungið í vas- ann $252,000. Tekjuafgangur Roblin-stjórnar- innar nú eftir sjö ára ráðsmensku, er $812,000 í sjóði. Hún hefir fargað stofnfé fylkisins og fylkis- löndunum og fengið fyrir þau lið- ugar tvær miljónir dollara. Tekju- halli fylkisstjórnarinnar er þvi í raun og veru nokkuð á aðra miljón dollara. Von er á Þó Roblin-stjórnin sé orðin alræmd fyrir stjórnmála- svik og pretti, þar eð höfuð henn- ar, Mr. Roblin, stjórnarformaður, hefir lýst yfir opinberlega, að hann beri ckki ábyrgð á öllu bví, sem hann segi, ÞEGAR UM STJÓRN- MAL sé að rœða. Þegar Mr. Roblin var nýbúinn að gera hina alræmdu samninga sina við Can. Northern félagið, sagði hann, 14. Jan 1901: “Vér höfum leyst úr járnbrautar-vand- ræðum Manitobafylkis.”—En þeg- ar mest kváð að samgöngu-ólagi á brautum C. N. R. félagsins í vetur, tók Mr. Roblin aftur til máls i þinginu 8. Jan. síðastl. og sagði: “Vér getum enga stjórn haft á C. N. R. félaginu.” — Þannig leysti Roblin úr járnbrauta-vandræðum Manitoba-fylkis. Aðal-málgagn conservatíva hér í bænum fTelegram) lýsir yfir þvi, að Mr. T. H. Johnson hafi flutt langbeztu ræðuna af þeim fjórum þingmannaefnum bæjarins er töl- uðu á almenna liberalfundinum í Walker leikhúsinu næstliðið mið- vikudagskveld, og géfur fyllilega í skyn, að gagnsækjandi hans, Mr. T. Sharpe, megi vara sig. Con- servatívar eru hrœddir um, oð T. Sharpe verði undir. Liberahr eru vissir um, að T. H. Johnson sigr- ar. Mr. T. H. Johnson hefir fyrir skemstu opnað tvær nýjar nefndar- stofur fcommittee roomsj, aðra að 557 Sargent ve., fónnúmer: 6603; hina að 220 Nena str., fónnúmer: 4692. Aðal-nefndarstofan í kjördæm- inu er að 732 Sherbrooke str., fón- númer: 2651. — Stuðningsmenn Mr. Johnsons geta fengið allar þær upplýsingar viðvíkjandi kosning- unum, sem þá fýsir með því að snúa sér til einhvers af ofannefnd- um stöðum. Roblin-stjómin stærir sig af þvi að hafa lagt skatta á járnbrauta- félögin. En gleymir að geta þess, að hún bætir járnbrautafélögunum upp þetta skattgjald með því að banna bæjum og sveitafélögum að leggja skatta á félögin, og sviftir þannig bændur og bæjabúa álit- legri tekjugrein, auk þess sem upp- hæð sú, er járnbrautafélögin greiða x fylkissjóð er miklu minni en því nemur.er þau hefðu orðið að borga til bæjanna og sveitanna,ef Roblin- j stjórnin hefði ekki hlaupið undir bagga með þeim. ------0------- Stór-gróðavegir. Fyrir nokkrum árum síðan var stjórnarformaður, Mr. Roblin, að gefa vitnisburð fyrir rétti. Var honum bent á, að vitnisburður hans væri ekki í samræmi við það, sem hann hefði áður sagt um það Sama mál. Það var þá, sem Mr. Roblin gerði þessa makalausu vfirlýsíngu, staðfesta með eiði: „Eg ber ekki ábyrgð á öllu sem eg segi, þegar um stjórnmál er að ræða.” Aldrei hafði nokkur maður fyr talað eins og hann. Að Mr. Roblin lítur þannig á, livað ábyrgöarleysið snertir, hefir hann stöðugt sýnt, siðan hann tók j við völdum. Mr. Colin H.Campbell hefir víst litið alveg eins á þetta mál, eins og j leiðtogi hans, Roblin. En sá er j munurinn, að hann hefir aldrei haft drenglyndi til að gera þá hina góðu játningu. Roblin-stjórnin hefir, síðan hún kom til valda, selt fyrir hálfvirði og minna, til vina sinna og vildar- manna, nálega hálfa aðra miljón ekra af landi. Tekið inn í pen- ingum fyrir þessi lönd $2,00,540. Alla þessa upphæð hefir hún brúkað í almennan stjórnarkostn- að. Nú getur hún lika komið fram fyrir fólkið og sýnt, að hún eigi í sjóði átta hundruð og tólf þús- undir dollara. Já. Sú var ekki lengi að græða. Hún vissi hvernig hún átti að fara áð því. Það er ekki lítilsvert að hafa stjórn, sem þannig sýnir manni hvernig langfljótlegast er að græða. Aðferðin er mjög einföld. Hún er á þessa leið, þó i smáum stil sé: Maður á fasteign, sem er fjög- ur þúsund dollara virði. En hann á enga peninga. Hann hugsar sér að það sé myndarlegra fyrir sig að geta sýnt um næsta nýár, áð hann hafi grætt á árinu, og sé ekki al- veg peningalaus, eins og núna. Hann selur sina fjögur þúsund dollara fasteign fyrir $2,000. Lif- ir vel og lystilega a árinu og í það gengur annað þúsundið. En gæt- um að, hann getur sýnt að nú á hann eina þúsund dollara i pening- um, þar sem hann í fyrra var vita peningalaus. Svona hefir Mr. Roblin grætt fyrir íbúa þessa fylkis. Þetta er auðlærð gróðaaðferð. Hana geta allir lært. Það er sök sér þó að Mr. Rob- lin finni ekki til ábyrgðar fyrir því sem liann segir. Hitt er heldur lakara, að hann skuli ekki finna til ábyrgðar fyrir það, sem hann gerir. Dominion-stjórnin hefir fyrir löngu sett upp fyrirmyndarbú, víðsvegar um Canada. “Við eplin með” segir Mr. Rob- lin, og setur upp fyrirmyndar- Til kiósenda í Mid=Winnipegf. S Atkvæöa yöar Og áhrifa, viö næstkomandi kosningar, æsk- ir virðingarfylst Dr. J. A. MAGARTHUR ÞINGMANNSEFNI LIBERALAFLOKKSINS. Dr. MacArthur hefir átt heima í Winnipeg í síðastliðin tuttugu og tvö ár og hefir jafnan tekið mikinn þátt í málefnum þeim er snerta hag verkamannanna y jafnframt öðrum málefnum. £3 NEFNDARHERBERGI f LIBERAL CLUB BYCCINCUNNI á NOTRE DAME AVE, Beint á móti Winnipeg leikhúsinu. verzlun. — Landverzlan, til að sýna hvernig fljótlegt sé að græða. ------o------ Fáheyrt óþokkabragð. er þáð, sem Roblin-stjórnin hefir nýlega gert sig seka í, sem sé að láta neita stúdentum á Wesley og Manitoba college og læknaskólan- um hér í Winnipeg um að komast á kjörskrá. Nöfn þeirra manna standa hvergi annarsstaðar á kjör- skrám í fylkinu, og afleiðingin af þessu atferli stjórnarinnar verður það, að þeir tapa atkvæðisrétti sín- um, þó að Þeir hafi fengið öll borg- araréttindi. Auðvitáð veit Roblin-stjórnin ekkert um það, hverjum flokkinum þessir menn fylgja í stjórnmálum, en sennilegast er áð ætla, að hún gangi að því vísu, þar eð nefndir menn heyra til upplýstara hluta fólksins, muni þeim ekki hafa dul- ist stjórnarafglöpin, sem hún hefir gert sig seka í síðan hún settist að völdum. — Þess vegna hefir hún víst litið svo á, að réttast væri áð svipta þá alla atkvæðisrétti “upp til liópa.” The DOMINION BANK SELKIRK ÓTIBIÍIÐ. Alls konar bankastörf af bendi leyst. Sparisjóðsdeildin. Tekiö við innlögum, frá $1.00 að upphæð og þar yfir. Hæstu vextir borgaðir. Við- skiftum bænda og annarra sveitamanna sérstakur gaumur gefinn. Bréfieg innlegg og úttektir afgreiddar. Óskað eftir bréfa- viðskiftum. Nótur innkallaðar fyrir bændur fyrir sanngjörn umboðslaun. Við skifti við kaupmenn, sveitarfélög, skólahéruð og einstaklinga með hagfeldum kjörum. d. GRISDALE, bankMtjórt. Búðin þægilega. £48 Ellice Ave. TAKIÐ EFTIRI Febrúarmánuö út verður selt hér með mjög niðursettu verði. Allar vörurnar settar niður. Það er þess vert aö skoða kventreyjurnar hér í búuiuni. Þær eru ágætar og verðið óvið- jafnanlegt. Fylgið straumnum. Komið til Percy E. Armstrong. 14 DAGA afsláttur á gullhringum og armböndum. Kvenhringa, sem eru $3 til $5.75 virði læt eg fara fyrir. ... $2.40 Armbönd, sem eru ekki minna en $2. 50 til $4. 5cTvirði sel eg nú næstu 14 dagadyrir .... $1.95 Úr hreinsuð fyrir $1.00 og ábyrgst í eitt ár. Allar viðgerðir fijótt og vel af hendi leystar. — Gestir, sem heimsækja bæ- inn ættu að athuga þetta. Th. Johnson, Jeweler, 292h Main St., Winnipeg HH Phone 6006. ----- :■ '•■■■* Hér me'S auglýsist að vér höf- tim byrjað verzlun að 597 Notre Dame Ave. og seljum þar góðan, brúkaðan fatnað. Sýnishorn af verðlaginu: Karlm. buxur frá 25C. og þar yfir. Kvenpils frá 20C. Kventreyjur frá ioc. Þetta er aS eins örlítið sýnishorn. Alíir vel- komnir til að skoða vörurnar þó ekkert sé keypt. The Wpeg High Class Second-hand Ward- robe Company. 597 N. Dame Ave. : Phone 6539. beint á móti Langside. jtllaii Lliian KONUNGLEG PÓSTSKIP. milli Liverpool og Montral, Glasgow og Montreal. Fargjöld frá Reykjavík til Win- n'Peg.............. ..$42.50 Fargjöld frá Kaupmannahöfn og öllum hafnarstöðum á Noröur- löndum til Winuipeg .. . .$51.50. Farbréf seld af undirrituðum frá Winnipeg til Leith. Fjögur rúm í hverjum svefn-‘ klefa. Allar naubsynjar fást án aukaborgunar. Allar nákvæmari upplýsingar, viSvikjandi þrí hve nær kipin 'c?gja á sta'ö frá Reykjavík o. s. frv., gefur H. S. BARDAL. Cor. Elgin ave og Nena stræti. Winnipeg. Skautar og stígvél. Komið og skoðið byrgðirnar okkar af skautum og stígvélum. Við höfum allar teguudir fyrir sanngjarnt verð. Skautar frá 50C. til Í5.00 Stígvél ‘‘ $1.75 til Í4.00. Reynið að láta okkur hvelfa úr skautun- yðar á olíusteininum okkar. Yður muu líka sú aðferð. Kostar að eins 25C, Við gerum skautana slétta ef óskað er, en ráðum yður til að láta hvelfa þá. Með sérstökum samningi getið þér fengið þetta en ódýrra. Komið og finnið okkur, POTTEN & HAYES Bicycle Store ORRISBLCK - 214 NENA ST. ■0

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.