Lögberg - 02.03.1907, Blaðsíða 3
Til hinna háttvirtu kjósenda í
,,West Winnipeg“ kjördœmi
Eins og yður er öllum kunnugt, veittist mér sá heiöur á
tilnefningarfundi frjálslynda flokksins í þessu kjördæmi, hinn
14. þ. m., aö vera i einu hljóði valinn til þess aö vera þing-
mannsefni yðar við fylkiskosningar þær, sem ákveðið er að
fara skuli fram hinn 7. dag næstkotnandi Marzmánaðar.
Þ.ó áð mér á ýmsan hátt sé óhægt að takast þennan mikils-
verða og vandasama starf á hendur, þá gat eg ekki neitað áð
gjöra það, einkum vegna þéss, að áskoranir til min um það efni
voru svo sterkar og eindregnar, bæði frá íslendingum ('löndum ,
mínumj og öðrum kjósendum i kjördæminu, að þær virtust láta
í ljósi almennings álit og vilja.
Eg hefi því samþykt og lofað að sækja sem þingmannsefni
yðar í þessu kjördæmi við næstu kosningar, undir merkjum
frjálslynda flokksins, með þeim einlægum ásetningi, að reyna
af alefli á allan heiðárlegan og löglegan hátt*að bera sigur úr
býtum. 'En undir ötulli og eindreginni samvinnu yðar er það
að miklu leyti komið, hvort það auðnast eða ekki.
Eg þykist fullviss um'þáð, að skoðanir yðar og mínar á
fylkismálum séu í öllum aðal-atriðum mjög likar og að okkur
greini ekki á um það, að stjórn sú, sem nú situr að völdum,
hefir gjörsamlega brugðist þeirri tiltrú, sem meiri hluti kjós-
enda í þessu fylki veitti henni við tvær undanfarnar kosningar,
■og að hún hefir fyrirgjört rétti sinum til þess að sitja lengur
að völdum. Og þá hljótum vér einnig að vera sammála um
hitt, að það sé skylda vor, sem góðra og þjóðhollra borgara
fylkisins, að ryðja úr völdum óvandaðri og óhæfri stjórn, en
kjósa í hennar stað þá menn, sem vér treystum að hafi bæði vit
og vilja til þess að stjórna málefnum fylkis vors vel og sam-
vizktisamlega.
Stuttlega mætti benda á nokkur þau stór-brot, sem Roblin-
stjórnin hefir gjört sig seka um, fylkisbúum til mikils skaða og
.hnekkis, til dæmis:
Að hún er uppvís orðin að óeinlægni og tvöfeldni að
þvi er snertir löggjöf og meðferð vínsölumála fylkisins.
Að járnbrautarmálastefna hennar er óhyggileg, hefir
dregið úr samkepni járnbrautarfélaga, bakað fylkinu þunga
ábyrgð, sem fylkisbúar fá ekki annað fyrir, en uppspunnar
tálvonir um yfir-umráð stjórnarinnar á flutningsmálum
Canadian Northern jámbrautarfélagsins.
Að meðferð stjórnarinnar á landeignum fylkisins hefir
verið ill Og óviturleg og því til óbætanlegs skaða.
Að stjórnin hefir farið með fylkisfé í ráðleysi og
bruðli og reikningar hennar og skýrslur um það efni eru
bæði óhreinir og villandi.
Að það er óviturlegt af stjórninni að ætla með vald-
boði að kúga fylkisbúa til þjóðrækni, með þvi að skipa þeim
að draga fána á stöng daglega á öllum alþýðuskólahúsum
og hóta kennurum og skólanefndum sekt og hegningu, ef
út af er brugðið.
Of langt mál yrði það að telja hér upp alt það, sem Roblin-
stjórnin hefir unnið sér til saka, en á þeim stutta tima, sem
henni hefir þóknast að gefa oss til að íhuga það, fram að kosn-
ingunum, mun margt af því verða tekið til umræðu á fundum
vorum og er mér einkar kært að sjá þar sem allra flesta, er líta
á þessi mál líkt og vér, hverjum flokki sem þeir hafa að undan-
fðrnu fylgt \ stjórnmálum.
Að endingu vil eg taka það fram, að það eru vinsamleg
tilmæli mín, til allra þeirra, sem vilja styðja mig við þessar
kosningar, að þeir gjöri það í öllu tilliti samvizkusamlega og
lögum samkvæmt og forðist sem mest má verða persónuleg ill-
mæli og óhróður um andstæðinga vora. Sigurinn verður því
að eins til gagns og frægðar að vér berjumst með vopnum sann-
leikans og beitum þeim drengilega.
íslendingar, heiðruðu samlandar mínir! Eg leyfi mér
virðingarfylst að biðja um fylgi yðar og atkvæði við þessar
kosningar og óska þess einlæglega, að þáttur sá, sem þér takið
í þeim, verði þjóðflokki vorum til sæmdar og Manitoba-fylki og
sjálfum oss til gagns og blessunar.
Mcð virðingu,
Y.ðar einlægur,
THOMAS H. JOHNSON.
Greiðið atkvæði með
Thomas H. Johnson.
m
Cairns Naylor & Co.,
The DOMINION BANK
SEl.KIRK ÖTIBtíH).
Alls konar bankastörf af hendi leyst.
Glenboro
Manitoba.
„A,
m
/y\
ONNIJR MAKALALS KJORKAIPAVKA.
Hér er kjörkaupastaðurinn, staðurinn þar sem þér dag eftir dag og viku eftir viku
getið keypt betri vörur og ódýrari en nokkurs staðar annars staöar f landinu. Vér óskum
eftir viðskiftum Isléndinga. Vér óskum eftir að íslendingar geri þessá búð að aðalverzl-
unarstað sínum. Vér ábyrgjumst að gefa þeim betri viðskifti en þeir nokkuru sinni hafa
áður átt völ á. Mr. Halldór Bjarnason og Mr. Jón Baldwin eru ætfð við hendina í búð-
inni til þess að sinna löndum sínum.
FÍKJUR.
Sérstaklega góð tegund. Kosta
vanalega ioc pd. Utsöluverð nú
4 pd. á 25C.
YFIRHAFNIR FYRIR HÁLF-
VIRÐI,
Hugsið eftir því aðmargt af þessu
eru nýjar vörur.
Vanaí. $12 yfirhafnir á ..$6,00
,, 10 ,, 5,00
,, 15 .. ........ 7.5°
,, 8 ,, 4,00
,, 6 ,, 3,00
GÓLFDÚKAR
Nýju tegundirnar eru komnar,
tvö og fjögur yds á breidd, falleg-
ustulitir. Verð 350,500, öocog $1,10
KJÖRKAUP Á KVENPILSUM
Að eins fá eftia. Þau eru 85.00,
$6.00 og $7.00 virði. Nú fást þau
fyrir $3.00.
KÓRENNUR
Besta tegund frá Califórníu, vel
hreinsuð. Kosta vanalega I2)íc pd
titsöluverð nú I2pd á $1.00.
RtiSÍNUR
Hugsið að eins eftir hve mikið
þér sparið í þessum kaupum. Vana-
legt verð 15C pd. Útsöluverð nú
12 pd á $1.00.
PEAS
Bezta tegund sem fáanleg er af
grænutr Peas. Kosta vanalega ioc
Útsöluverð nú 3 könnur á 25C
NIÐURSOÐNIR AVEXTIR
Strawberries. vanal. 25C. Nú 20 c
Peaches ,, 25C. ,, 20 c
Pears __„ 20C. 15 c
DÖÐLUR,
Ágætar döðlur með niðursettu H
verði, þær eru glænýjar. Vanalegt
verð ioc pd, títsöluverð 4 pd á 25C
WAGSTAFFS JAM
Beita og hreinasta tegundin.svip-
uðust því sem búið er til heima fyr-
ir. Selt í tinfötum, Vanalegt vero
75C. Nú að eins á 50 c.
SIRZ,—Allar nýjustu tegundir af
sirzum og bómullarefnum. Komið
og skoðið.
Sparisjóðsdeildin.
Tekið við innlögum, frá $1.00 að upphaeð
og þar yfir. Hæstu vextir borgaðir. Við-
skiftum bænda og annarra- sveitamanna
sérstakur gaumur gefinn. Bréfleg innlegg
og úttektir afgreiddar. Óskað eftir bréfa-
viðskiftum.
Nótur innkallaðar fyrir bændur fyrir
sanngjörn umboðslaun.
Við skifti við kaupmeuu, sveitarfélög,
skólahéruð og einstaklinga með hagfeldum
kjörum.
0. GRISDALE,
bankastjóri.
14 DAGA
afsláttur á gullhringura
og armböndum.
Kvenhringa, sem eru $3 til $5.75
virði’læt eg íara fyrir..$2.40
Armbönd, sem eru ekki minna en
$2.50 til $4. 50 virði sel eg nú
næstu 14xtagja^yrir .. .. $1.95
Úr hreinsuð
ui«M fvrir $1.00
- «irt
«IU
og ábyrgst í eitt ár.
Allar viðgerðir fljótt
og vel aí hendi
leystar. — Gestir,
sem heimsækja bæ-
' inn ættu að athuga
þetta.
Th. Johnson,
Jeweler,
292i Main St., Winnipeg
Phone 6606.
Til kiósenda í
Mid=Winnipeg:.
Atkvæða yðar og áhrifa, við næstkomandi kosningar, æsk-
ir virðingarfylst
Dr. J. A.
MACARTHUR
ÞINGMANNSEFNI
LIBERALAFLOKKSINS.
Dr. MacArthur hefir átt heima í Winnipeg í síðastliöin
tuttugu og tvö ár Og hefir jafnan tekið mikinn þátt
í málefnum þeim er snerta hag verkamannánna
jafnframt öðrum málefnum.
NEFNDARHERBERQI
LIBERAL GLUB BYCCINCUNNI
NOTRE DAME AVE,
Beint á móti Winnipeg leikhúsinu.
Til kjósenda
-í-
SUÐUR-WINNPEG.
AUir andstæðingar Roblin-
stjórnarinnar eru hér með vin-
samlega beðnir að styðja að því
með áhrifum sínum og (atkvæö-
um að
beri sigur úr býtum við fylkis-
kosningarnar hinn 7. Marz.
Mr. Chatfey er mörgum
íslendingum að góðu kunnur,
síðan hann sat hér í bæjarstjórn-
inni.
Atkvæði [með Mr. Chaffey
þýöir atkvæði með • Edward
£rown, leiðtoga frjálslynda
flokksins; atkvæði á móti hon-
um þýðir atkvæði með Roblin,
Rogers og vínsölumönnunum.
Allir stuðningsmennjj Mr.
Chaffey eru vinsamlega ámintir
um að greiða atkvæði sitt
snemma dags.