Lögberg - 18.04.1907, Blaðsíða 1

Lögberg - 18.04.1907, Blaðsíða 1
Þakklæti! Vér þökkum öUum okkar íslenzku viðskifta- vinum fyrir góð viðskifti síðastliðið ár og óskum eftir framhaldi fyrir komandi ár. Anderson & Thomaá, Hardware & Sporting Goods. 638 Maln Str Teiepi)one 338 Yér heitstrengium að gera betur við viðskif tavini vora á þessu 6 ri en á árinu sem leið, svo framarlega að það sé hægt. Anderson & Thomas, Hardware & Sporting Goods. 538 MainSi. Telephene 339 20. AR. Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 1S. Apríl 1907. NR. 16 Fréttir. Nýkomin símafrétt frá Kaup-1 mannahöfn segir frá því, aö seint \ í siSastliðnum Marzmánuöi hafi eitt af strandferðaskipum Túliní- | usar-félagsins farist, úti fyrir s Austfjörðum. Var (það skipið “Kong Trygve”. Fréttin er svo óljós aÖ ekki er hægt af henni aö ráöa hvort margt eöa fátt af far- þegum og skipverjum hefir farist í þessu slysi. Tveir af skipsbát- unum höföu náö landi í Fagradal í Vopnafirði, eftir mikinn hrakning í þrjú dægur, og fólkið, sem á þeim var, að fram komið af vos- J búð. Meðal þeirra, sem saknað var, telur fréttin Jósep kaupmann Jósepsson frá Akureyri og þrjá j kvenmenn, ónafngreinda. Þriðji skipsbáturinn var ókominn til lands, þegar þessi frétt var símuð af Austfjörðum til Kaupmanna- hafnar. — Hinn 13. þ. m. komu um þrjár þúsundir innflytjenda austan um j haf, er stigu á land í Halifax. 1 kolanámu í Mexico vildi til slys af kolaloftssprengingu í vik- unni sem leið, og fórust þar fjórt- án manna. --------- ; Á mjög stórum svæðum í suður- hluta Bandaríkjanna, sérstaklega í ríkjunum Oklahoma og Texas, hefir einhverskonar maurategund eyðilagt allan gróður á hveitiökr- unum, nú undanfarið, og standa akrarnir eftir eins og bert flág, þar sem þessi ófögnuður fer yfir. Morömálinu gegn Harry K. Thaw i New York, sem áður hefir verið getið um hér í blaðinu, og mikið hefir verið ritað um i blöð- unum allan síðastliðinn vetur, lyktaði þannig í bráð, í vikunni sem leið, að kviðdómendurnir komu sér ekki saman. Vildu sjö af kviðdómendunum láta dæma Thaw sekan fyrir morö, en fimm vildu fríkenna hann. Búist er við að málið verði tekið fyrir aftur frá rótum, en ekki getur það orð- ið fyr en á næstkomandi hausti og verður Thaw að sitja kyr í fang- elsinu þangað til. Allvíða í Bandaríkjunum gerði snjóbyl með töluverðu frosti um síðastliðna helgi og hafa af því orðið stórskemdir á ökrum, þar sem illviðri þetta gekk yfir. Er það einkum í Mið-ríkjunum sem mestar skemdirnar hafa orðið. Altaf við og við eru hermenn á Rússlandi að gera uppreistir. feannig varð nú í síðastliðinni viku uppþot allmikið í herdeild einni á Suður-Rússlandi og drápu liðsmennirnir jþar og sserðu för- ingja sína. Búist er við innan skamms al- gerðu verkfalli af hendi kolanáma- manna í British Columbia. Undanfarið hefir Taft hermála- ráðgjafi dvalið á Cuba, til að kynna sér ástandið á eynni, sem eins og kunnugt er, er undir eftir- liti Bandaríkjastjórnar. Hefir Taft átt fundi með ýmsum helztu fulltrúum pólitísku flokkanna þar, til að ræða um hver aðferð mundí heppilegust til að koma sem fyrst aftur á fót fullkomnu sjálfstjórn- ar skipulagi á eynni. Búist er við að Bandaríkjastjórn ætli að sleppa eftirliti því er hún hefir haft með eyjarskeggjum, eigi seinna en 6. Júlí 1908 og geti Cubamenn ráðið sjálfir eftir það, svo framt aö fyrir þann tíma hafi veriö valinn J?ar forseti, ríkisembættismenn og lögjafarþing. Enn er eigi fastá- kveðinn tími fyrir þær kosningar, með því að stjórnmálaflokkana greinir á um hann, en ýmsir eru að geta þess til að kosningar muni þó verða þar fyrir lok þessa árs. Nýlega hefir landfræðisfélag í Bandaríkjunum sæmt hinn þjóð- kunna vísindamann, landa vorn Þorvald Thoroddsen prófessor, heiðurs gullpeningi sínum (hinum stærrij. Eftir því sem nýsent símskeyti frá Kaupmannahöfn skýrir frá, afhenti sendiherra Bandaríkjanna, Thomas J. O’Bri- en, Thoroddsen heiðurpeninginn á fundi í landfræðisfél. danska. Forseti þess félags er Kristján krónprinz. Við það tækifæri fór O'Brien sendih. nokkrum fögrum og vel völdum orðum um hina lýðkunnu sttarfsemi Thoroddsens, sérstaklega landfræðis- og jarð- fræðis rannsóknir hans á íslandi og árangurinn af þeim. Hraðfrétt frá Helsingfors á Finnlandi skýrir frá því, að i landsþingið finska hafi fyrir skemstu verið valdar nítján kon- ur. Níu af þeim voru socialistar. Er það i fyrsta sinni að konúr hafa átt sæti á þjóðþingum í nokkru landi. Frétt frá bænum Pierre í Suður Dakota getur þess, að innflutning- ur fólks fari nú óðum vaxandi þangað, sérstaklega til þess hluta ríkisins, sem liggur vestan við Mississippi-f 1 jótið. Er svo sagt, að næstum því hver lest, er að austan kemur, flytji fjölda fólks, er þangað haldi til að leita sér bólfestu. Kváðu margir setjast að í Stanley County og víðar þar Sem landrými er hægt að fá. Hungursneyðin á Rússlandi fer einlægt vaxandi. Símskeyti frá London segir að um tuttugu milj- ónir matina í suðurhluta Rúss- lands muni eigi lifa til næstu upp- skeru hjálparlaust. í borginni Samara er t. a. m. sagt, að mörg þúsund manna séu rétt komin í dauðann og um sjö hundruð þús- und er líði neyð af hungri. Lið- ugum þrjú hundruð þúsundum af siðasttöldu fólki hefir verið hægt að hjálpa ofurlitið, og láta það fá svo sem eina máltíð á sólarhring. en þar eð slíkur málsverður er ekki nema tvö pund af brauði og einn bolli af súpu, er sjáanlegt að enginn getur lifað lengi á svo skornum skamti. Mælt er að hjálparféð, sem fyrir hendi er, muni ekki endast þó svona spart sé á haldið nema fram til næstu mánaöamóta, en uppskeran komi landslýðnum ekki til hjálpar fyr en i lok Júlímánaðar. Hjálparfé er samt sent úr ýmsum áttum, til að bæta úr skortinum, bæði frá Ame- ríku og Evrópu-löndunum, en víst er þó talið að fólkið muni falla unnvörpum. Eitt hið stórkostlegasta járn- brautarslys, sem menn muna eftir um langan tíma á brautum C. P. R. félagsins hér í Canada, varð á miðvikudagskveld i vikunni sem leið i grend við bæinn Chapleau í austanverðu (Ontario-fylki. Lestin lenti út af sporinu, nokkrir vagn- arnir ultu út í sýkið utan við braut ina og kviknaði í þeim. Brunnu þar til dauös fimtán manns, en um fjörutíu særðust meira og minna. Flest af þessu fólki er talið inn- flytjendur frá Englandi, en sumt frá Massachusetts í Bandaríkjum. Þrjú hundruð pólitískir fangar voru sendir með einni lest austur til Síberíu í vikunni sem leið frá Pétursborg. Er mælt að það sé stærsti útlaga hópur, sem sendur hefir verið frá Rússlandi um langan tíma. Er það ætlan manna að stjórnin hafi verið að rýma til i fangelsunum í Pétursborg til þess að hafa pláss fyrir fanga þá, er væntanlegur herdómur verður kveðinn upp yfir. Norðmenn kváðu búast við þvi, að Roosevelt forseti—er meðal annara hlaut Nobel-verölaunin í ár, muni ef til vill fara til Noregs snemma á árinu 1909 til að halda fyrirlestra um friðarmál til full- nægingar þeim skilyrðUm, er verð- launin, sem hann var sæmdur, eru bundin. Mælt er að Bandarikjastjórn sé að gera alvöru úr þvi að stöðva hinn mikla straum af japönskum erfiðismönnum, er fast sækir það að ná bólfestu þar í landi. Siðasti congressinn samþykti lög er úti- loka þá frá ríkjunum, en svo lítur út sem þeir ætli að nota lika að- ferð til að sleppa yfir landamærin og Kinverjar fyrir liðugum tutt- ugu árum síðan. Er svo sagt að um fimm hundruð japanskir erf- iðismenn er komnir voru til Mexi- co liggi við landamæri Bandaríkj- anna og sitji um færi til að sleppa noröur yfir merkjalínuna, og sagt er að fjöldi Japana sé væntanlegur til Canada. Er ætlun manna að miklu erfiðara verði að sporna við innflutningi Japana heldur enKín- verja. Eru hinir fyrnefndu harð- ir í horn að taka og þola illa að þeim sé meinuð landsvistin. Hóta þeir innflytjenda embættismÖnn- unum öllu illu, þegar þeim er vís- að frá landamærunum, og kveðast munu svo koma síðar að þeim veröi ekki bönnuð innganga í Bandaríkin, en ekki hefir frézt að Bandaríkjamenn taki sér þá hótun nærri. Af hinni voöalegu hungursneyð í Kína berast þær fréttir, að tíu miljónir manna líði þar neyð, og farist nú daglega þar í landi úr hungri um fimm þúsund manna Féð, sem Kínastjórn hefir lagt fram,—að meðtöldu því sem önn- ur ríki og þjóðir hafa látið að mörkum.þar á meðal Vesturheims menn,—sem þegar nemur fjórum miljónum og finim hundruö þús- undum dollara, en áætlað er að eigi verði íbúunum viðbjargað með minni hjálp en tíu miljónum i viðbót. Símskeyti frá Englandi getur þess til að Curzon lávarður, fyrr- um vísikóngur á Austur-Indlandi, muni verða leiðtogi conservatíva flokksins á Englandi eftir Chamb- erlain. Fjárhagsskýrslur sambands- stjórnar Canada um tekjur og út- gjöld á síðastliðnum niu mánuð- um, talið til loka fjárhagsársins 21. Marz nl., bera það með sér, að tekjurnár fyrir þann tíma nema $65,814,457, og er tekjuaukinn þá $8,800,000, miðað við tekjurnar á sama tímabili í fyrra. Þó að tekju- aukinn nái nú nærri því níu milj- ónum hafa útgjöldin eigi vaxið nema um hundrað þúsund dollara. Að jþeim frádregnum veröur því hreinn tekjuauki $8,700,000 fyrir næstliðna niu mánuði. Nýfallinn er hæstaréttardómur í Washington um þ'að að smáeyjan “Isle of Pines” sunnan við Cuba, eigi að teljast sambandsland við áðurnefnda ey. Um það hefir lengi veriö þref mikiö, því að ýms- ir ibúarnir á Isle of Pines, aðal- lega BandaríkjamJanna flokkurinn hefir haldið því fast fram, að smá- eyja þessi heyrði undir Bandarik- in en ekki undir Cuba. Sagt er að Canadastjórn hafi ný- j lega keypt fjögur .hundruð vís- unda af hjarðeiganda einum suð- ur í ríkjurn, Palbo að nafni, og kostuðu dýrin um hundrað þúsund dollara. í sambandi við umgetin kaup er þess látið getið að stjórnin hafi keypt landsvæði vestur í Klettafjöllum skamt frá Grand Trunk brautinni, þar sem geyma á þessa vísunda hjörð, er ferða- menn geta skoðað eftir vild. Tvær borgir í Mexico hrundu til grunna að heita mátti í jarð- skjálfta hinn 15. þ.m. Að minsta kosti tólf manns biðu þar bana, en mesti fjöldi varð fyrir meiri og minni meiðslum. Eins og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu var fyrir nokkru síðan rússneski sjóliðsforinginn Nebagotoff dæmdur til dauða.fyr- ir að hafa geíist upp og mist flota sinn í sjóorustu við Japans- menn, er ófriðurinn stóð á milli þeirra og Rússa. Þessari hegn- ingu liefir nú verið breytt í tíu ára kastalafangelsi, og er nú búið að setja Nebagotoff í það. En sér- stök og þægileg herbergi kvað hann hafa þar, út af fyrir sig, og ekki þarf hann heldur að lifa þar við vanalegt fanga viðurværi. Yfir póstmeistarinn lýsti því yfir í Ottawa-þinginu 15. þ.m., að nú væru þeir samningar fengnir við brezku stjórnina, að burðar- gjald á brezkum dagblöðum og tíma'itum verði framvegis fært niður út átta centum ofan i tvö á pundið. Svo er nú sagt, að soldáninn í Miklagarði sé allmikið veikur, og að ýmsu leyti eigi hann andstætt stætt nú um þessar mundir. Eink- um er það í Litlu Asíu að óeirðir eru nú all-tíðar. Er svo sagt að ráðgjafar hann leggi honum þau heilræði að beina hug óeirðar- seggJanna frá innanlands styrjöld með því að segja Bulgariu stríð á hendur. Sagt er að ekkert annað muni hamla soldáni frá að aðhyll- ast þá ráöleggingu en það,að hann óttist, að Búlgaríumenn séu svo vel undirbúnir að þeir mundu sigrast á liðsmönnum hans í fyrstu atlögunum, og mætti þá, ef til vill, búast við uppreist af hendi þegna soldánsins í Litlu Asíu, ef þeir heyrðu fréttir af því að soldáninn færi halloka. Fullyrt er að soldán- inn sé búinn að láta kalla saman allar varaliðs-hersveitir sínar, og og töluvert margar herdeildir sé þegar búið að senda til ýmsra staSa á landamærunum. í siðasta blaði hér á undan var getið um stórkostlegan iþruna \ Montreal, er skaða gerði á bygg- ingum þeim er tilheyra McGill- hiskólanum þar, en 16. þ.m. skemdust byggingar þessa sama háskóla af nýjum bruna og brann þá læknaskólasafn háskólans.mjög verðmætt, því að það var talið eitt hið álitlegasta þeirrar tegund- ar í öllu Canada. Bókasafnsdeild- ina tókst þó að verja. Skaðinn er metinn mörg hundruð þúsund dollara virði. Nýkomin frétt frá íslandi segir að flutningaskip Thore-félagsins Kong Trygve, sem getið er um á öðrum staö hér í blaöinu, hafi brotnað í ís úti fyrir Vopnafirði, og að ís sé fyrir öllu Norðurlandi. Námamenn i kolanámum i Vest- ur-Canada hafa lagt niður vinnu, og er það með nokkuð öðrum hætti í þetta sinn , en áður, þegar meðlimir verkamanna hafa neitaö að halda áfram verki sínu. Náma- mennirnir vilja, sem sé, ekki kann- ast við að hér sé um nein samtök eða verkfall að ræða, í vanalegum skilningi þess orðs. Þeir segjast að eins liœtta, og annað ekki, og engin lög eru vitanlega til, sem geti þ vingað þá til þess að halda áfram þegar svo stendur á. Eins og vænta má hefir þetta tiltæki hin verstu áhrif á samgöngur og viðski ftalí f alt í Vestur-Canada. Verksmiðjum öllum, bæði í Cal- g3ry og öðrum bæjum vestra hef- ir orðið að loka, sakir kolaskorts, og Can. Pac. járnbrautarfélagið býst við að neyðast til, af sömu á- stæðu, að hætta að láta lestir sínar ferðast þar um. Vitaskuld er, aö alt verður reynt, sem framast er unt, til þess að miðla málurn á einhvern hátt, og koma í veg fyrir vandræði, sem af því hljóta að leiða, ef í kolanámunum yrði hætt að vinna yfir lengra tímabil. Innbrotsþjófnaður var framinn i St. Paul, Minn., aðfaranótt siö- astliðins þriðjudags. Voru það skrifstofur Northern Express fé- lagsins þar í borginni, sem brotist var inn í og stolið þaöan tuttugu og fimm þúsund dollara peninga- sendingu. Vatnsflóð í Serviu hafa nýlega gert hinn mesta skaða og eyöilagt bygðir þar víða, og manntjón nokkurt af orðið. Snjóflóð úr fjöllunum þar hafa og valdið töluverðu tjóni þegar hlýnaði með vorinu. Frá Harbin i Manchuríu er ný- komið hraðskeyti um að aðal- verzlunarstöð þeirrar borgar sé brunnin til öskft. Er mælt að hús- in sem brunnu hafi tekið yfir fullan fjórðung fermílu og eigna- tjónið metið um tvær miljónir dollara. Gyðingaofsóknunum heldur enn áfram á Rússlandi. Hinn 12. 5. m. er mælt hð byltingamenn hafi fylkt liði um götur ýmsra smábæja í Suður-Rússlandi um hábjartan dag, ruðst inn í hverja búð, þar sem þeir vissu að Gyð- ingar voru fyrir og skipað kaup- mönnunum að verða brott úr bæj- unum innan fárra daga, og ógn- uðu þeim með spentum marg- hleypum til að hlýðnast því vald- boði. Ur bænum. Óvenjulega köld hefir tiðin ver- ið næstliína viku og það sem af er þessari. Norðanhrið með tölu- verðu frosti á mánudaginn og þriðjudaginn fyrri partinn. Þá birti upp og á miðvikudaginn var bliðviðri og sólbráð. í vetur milli jóla og nýárs and- aðist í Blaine, Wash., Vilhjálmur Jónss*n, trésmiður. Hann mun hafa verið ættaður úr Eyjafirði. Ekkja hans er Sesselja Berg- steinsdóttir, ættuð af Suöurlandi. Þau hjón bjuggu á Gimli í Nýja Islandi. Fluttust þaðan til Selkirk og til Blaine 1902. — Vilhjálmur heitinn var um 56 ára gamall. Hann var hagleiksmaður mikill og greindur í bezta lagi. — Ásamt ekkjunni lét hann eftir sig einn sonjón að nafni, um tvítugsaldur. Samkvæmt auglýsingu í Lög- bergi í síðastl. viku, býður kvenfé- lag Fyrsta lút. safnaðar hér meö til sín öllu giftu fólki, innan safn- aðarins, ekkjum og ekkjumönnum til skemtifundar miðvikudags- kveldið siðasta í vetri fhinn 24. þ'. m.) kl. 8. Samsætið verður haldið í sd- skólasal Fyrstu lút. kirkju. Fé- lagið sendir engin boð einstakling- um, en þessi auglýsing á að duga fyrir alla. Komið með Banda- lagssöngvana. Fyrir hönd kvenfélagsins LAURA BJARNASON. fNánara í næsta blaði um heimboð ógifta fólksinsj Úr Argyle-bygð er skrifað 8. þ. m.: “Nú er búið að leggja tal- síma um alt miðbik bygðarinnar, og er ein miðstöð i Glenboro, en önnur i Baldur. Fyrir jól voru vírar og áhöld komnir til þeirra, sem beint samband hafa við Glen- boro-miðstöðina, en hinir, sem miöstöð hafa i Baldur, fengu ekki áhöld sín fyr en seint í fyrra mánuði. En vel komu þau sér þegar þau loksins komu, því sein- ustu vikurnar hefir verið illfært milli bæja vegna ófærðar, og hafa menn þá óspart notað sér þetta nýja tækifæri til þess að skiftast á orðsendingurn. Hafa nú 17 ísl. heimili utan bæjanna talsímasam- band, og er búist viö að fleiri bæt- ist við með vorinu. Hinn 15. f. m. var haldin fjöl- sótt skemtisamkoma á Brú,og stóð fyrir henni hornleikaraflokkur bygðarinnar; eru í honum eintóm- ir íslendingar, undir forustu hr, Alberts Oliver á Brú. Var þessi skemtun haldin í minningu þess, að þá voru 2 ár liðin síðan flokk- urinn hafði fyrstu æfingu sína, og bar frammistaða hans á þessari samkomit vott um það, að kapp- samlega hafði hann unnið síðan hann myndaöist, enda hefir hr. A. Oliver mikið verk á sig lagt fyrir hann; meðal annars hafði hann raddsett fyrir hornin lagið “Ó, guð vors lands” eftir Sv. Svein- björnsson, og var því tekið meö miklum fögnuði af áheyrendun- um. Þykir oss bygðarmönnum mjög vænt um flokk þenna, og vonum að hann leggi úr þesstt drjúgan skerf til þess að gjöra félagslífið hér í bygð sem fjöl- skrúðugast og fjörugast. Kvillasamt hefir verið hér sein- asta mánuðinn, og liggur nú nokk- uð af ungu fólki í taugaveiki; úr henni dó á skírdagsmorgun Ruby, dóttir Olgeirs Fredericksons, 12 ára gömul, gott barn og efnilegt; hún var jarðsett á föstudaginn langa að lokinni guðsþjónustu. Reynt er að stemma stigu fyrir því að veikin breiöist út, og er vonandi að það takist; að minsta kosti vita menn ekki til að neinn hafi af henni \*eikzt seinustu vikurnar tvær.”-------

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.