Lögberg - 25.04.1907, Blaðsíða 1

Lögberg - 25.04.1907, Blaðsíða 1
Þakklæti! Vér þökkum oílum okkar íslenzku viCskifta- vinum fyrir góö viöskifti sít5astliöiö ár og óskum eftir framhaldi fyrir komandi ár. Anderson Sl Thomas, Hardware & Sporting Goods. B38 Hain Str Telephone 33« Yér heitstrengium a8 gera betur vi8 viöskiftavini vora á þessu ári en á árinu sem leiS, svo framarlega a8 þa8 sé hægt. Anderson ðt Thomas, Hardware & Sporting Goods. 538 MainSt. Te/tphene 339 20 AR. Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 25. Apríl 1907. NR. 17 Fréttir. Nýlega hefir páfinn útnefnt sjö nýja kardinála. Þeir eru allir It- aíir nema einn, sem er Spánverji. Hinn alkunn ameriski ráðunaut- ur i utanríkismála stjórnardeild Japana, Henry W. Denison, hefir nýlega verið skipaður af míkadó- nium til að mæta á friðarfundin- um í Hague sem fulltrúi. Ætlar Denison að leggja á stað frá Tok- io seint í 'þessum mánuði og fara austur um Ameríku. Er hann eini japanski fulltrúinn þaðan að aust- an, sem fer ,þá leiðina. Hinir ferðast vestur um Síberíu og Rússland og þaðan til Hollands. J Nýkomið símskeyti frá Valpar- j iso, jarðskjálfta-borginni í Chili- ríkinu í Suður-Ameríku, flytur | þær fregnir, að eldfjall nokkurt, er kallað er Puyeuhe, og liggur í grend við vatn eitt Því samnefnt í Valdivia-héraðinu, sé nú farið að gjósa í ákafa. Fylgja eldgosi þessu myrkur, jarðskjálftar og öskufall. Af jarðeldinum i fjalli j þessu kvað og hafa kviknað í skógum í grend við J>að, og hafa menn og skepnur orðið að flýja undan ófögnuði þessum. Mælt er, að Rússar hafi nýlega tekið upp þann sið,á járnbrautinni milli Moskva og Pétursborgar, að nota tuttugu og fjögra klukku- stunda timaskiftingu á klukkum sínum í stað tólf, sem áður var titt. Eru Rússar taldir að hafa orðið fyrstir af Evrópuþjóðunum til að taka upp þessa breytingu, sem hefir óneitanlega ýmsa kosti og meðal annars þá, að sama tima- markið verður eigi endurtekið all- an sólarhringinn, til þess að girða fyrir misgáning og óhöpp af þeim sökum við starfrekstur járn- brautanna. Vesturheimsmenn hafa áður tekið upp þessa tima- skiftingu. Ófriðurinn í Mið-Ameríku má nú heita til lykta leiddur, og allar horfur á því, að stefnt verði jnn- an skamms til fulltrúaþings af hálfu hijina ýmsu ríkja þar til að koma á og tryggja frið milli þeirra. Austurríkisstjórn kvað hafa á- kveðið að nota eftirleiðis rafur- magn sem hreyfiafl á öllum þeim brautum i landinu, ér stjórnin hef- ir til umráða. Hefir allfjölmenn nefnd af verkfræðingum vérið skipuð til þess að skoða fossa þá er i grend við brautirnar íiggja, og á að nota aflið i þeim til að knýja flutningsfærin áfram. Fundurinn milli stjórnarfor- manna úr öllum brezku nýlendun- um, sem minst var á hér í blaðinu fyrir skemstu, var settur 16. þ.m. í Lundúnaborg undir umsjá rikis- ritara, jarlsins af Elgin. Forsæt- isráðgjafi Englands, Sir Camp- bell-Bannermann, flutti langa velkomenda ræðu við það tæki- færi, og nefndi þar meðal helztu umræðu-atriðin, sem fyrir fundin- um lægju, verzlunarviðskiftamál- ið, fólksflutningamálið og land- vörzlu nýlendanna. Svq er til ætl- ast að breytt verði eftirleiðis nafninu á þessum fundi, og hann nefndur framvegis á ensku máli 'Tmperial Cotiference”, og skuli hann koma saman fjórða hvert ár til að ræða um helztu mál er snerta brezka veldið, og vera ráð- gefandi samkoma fyrir alríkis- stjórnina. Tvo fulltrúa eiga hin- ar ýmsu nýlendur Breta að senda á þetta þing. í þetta skifti er bú- ist við að þingið standi yfir um mánaðartima að minsta kosti, og heldur það fundi þrisvar í viku, en mikill timi gengur í heimboð og veizluhöld. Nú er Manchúría, er áður var vígVöllur Rússa og Japansmanna í ófriðnum mikla, aftur komin undir Kínastjórn. Samkvæmt friðarsamningunum i Portsmouth, áttu bæði hersveitir Rússa og Jap- ana að rýma landið átján mánuð- um eftir að samningarnir voru birtir eða þeim lauk, sem sé fyrir 15. Apríl þ.á. Munu ýmsir hafa dregið það í nokkurn efa, að stór- veldin tvö mundu uppfylla þessa samninga alveg bókstaflega; mun eigi sizt hafa verið uggað um að Rússar mundu þrjózkast við að verða burtu þaðan með allan her sinn innan þessa tiltekna tíma. En nú er það ljóst orðið, að sá grun- ur hefir eigi verið á gildum rök- um bygður. Allar rússnesku her- sveitirnar fóru burt úr Manchúria fyrir 21. Marz Þ.á., og siðustu japönsku herdeildirnar héldu það- an heimleiðis til Japan 8. þ.m. Að eins örfáir japanskir liðsmenn urðu eftir sem varðmenn við járn- brautina, en allur herbúnaður og hergögn önnur í sambandi við ó- friðinn.eru nú brott tekin og Kína stjórn hefir heimt aftur yfirráð sin yfir bæjum öllum og borgum þar i landi. Sagt er, að hinar svo nefndu Haviland-verksmiðjur i Lámoge í Frakklandi og ýmsar fleiri postul- línsverksmiðjur þar í landi, hafi orðið að segja upp fjölda manna af vinnulýð sínum fyrir þá sök, að hætt hafa verzlunarviðskifti þeirra við Ameriku að minsta kosti um stundarsakir. Orsökin til þess að hlé hefir orðið á við- skiftunum er talin sú, að það hefir komist upp, og verið tilkynt Bandaríkjastjórn, að áðurnefndar verksmiðjur selji vörur sínar á lægra verði í Bandaríkjunum en nkklandi. og striðir slíkt á móti viðskiftasamningum lanf- ! anna. Vegna þess að hlé varð á viðskiftunum mistu fleiri hundr- uð verkamenn atvinnu eins og áð- ur er á vikið, og jafnvel tahð lík- legt að þær ver’-sn.iðju. l. ’tti að starfa. Mál hefir verið höfðað gegn ýmsum auðmörtnum i Alabama- rikinu, flestum frá New Orleans, fyrir að hafa brotið lögin viðvíkj- andi lotteríum. Er mælt að eign- ir fimm hinna ákærðu hafi numið hundrað miljónum dollara. Einn þeirra, F. C. Fitzpatrick, frá Bost- on, hefir játað bro\ sitt, og dómur verður kveðinn upp yfir honum 4. Maí næstkomandi. í Philadelphia var fyrir skemstu tekin fastur maður nokkur að nafni James M. Williams, sem talið er að gengið hafi að eiga htfndrað og fimtíu konurt, alls. Átján þeirra kvenna hefir lög- reglan þegar fundið. Það var þrítugasta kona Mr. Williams, er klagaði hann. Næstliðna viku létust um sjötíu og fimm þúsundir manna á Ind- landi úr svarta dauöa. Flestir af þeim, sem dóu, voru í Bengal og þar í grendinni. Drepsóttin gerði vart við sig á þessu svæði í Októ- bermánuði 1897 og siöan hafa alls látist úr henni þar hálf önnur miljón manna. iÞ’rír menn brunnu til dauðs en nokkrir skaðbröndust í eldsvoöa, sem kom fyrir í stóru þvottahási H-’undry j i Montreal 19. þ. m. Kviknað hafði í einhverjum af þeim eldfimu efnum, sem notuö eru til þvotthreinsunar. Fjártjón af eldinum metið um þrjátíu þús- und dollara. Fregnir hafa nýlega borist um ■það, að uppvíst hafi orðið um samtök til Þess að kveykja í iðn- aðarsýningar stórhýsum í Dublin á írlandi, er “opna” átti x næsta mánuði. Er svo frá skýrt, að þar sé flokkur manna, er mjög and- vígur sé því, að sýning þessi yrði, þar eð þar átti að sýna alþjóða- iðnað, og telji áður nefndur flokk- ur það niðrandi fyrir Irlendinga, að iðnaður þeirra sé þar opinber- lega borinn- saman við iðnað ann- ara Þjóða, sem standi þeim miklu framar í þeirri grein. Tvær persónur, sem bæði eru um tírætt, og eiga heima í Ten- nessee í Bandaríkjunum, hafa lýst yfir, að þau ætli að gifta sig 26. Ág. næstkomandi, en sá dagur er hundraðasti afmælisdagur brúður- innar. Brúðguminn varð hundr- að og eins árs 1. Apríl siðastlið- inn. Hvorugt þeirra hefir gifzt áður, en þau höfðu verið trúlofuð á æskuárum og sannast á þeim að “seint fyrnast fornar ástir.” I vikunni sem leið var sagt frá því, að jarðskjálfti hefði orðið í Mexico. Nú eru komnar greni- legri fréttir um mannskaðann,sem af honum hefir hlotist. Segja nú fréttirnar, að látist hafi fimtíu manns, og að minsta kosti þrjú hundruð orðið fyrir áverkum. Dómkirkjan í borginni Mexico, einhver hin nafnkendasta kirkja í heimi, fyrir fegurðar sakir og aldurs. mörg hundruð ára gömul, skemdist mjög rnikið. Þó mikið sé nú að orðið, samkvæmt þessum fréttum, er þó i ljós látið, af mönnum á jarðskjálftasvæðinu, að ókunnugt sé unx ýms spell, sem jarðskjálftarnir ha.fi valdið og fréttast muni um þegar lengra liður frá. I næsta blaði hér á undan var minst á verkfall kolanámamann- anna i Vestur-Canada. Það sem þeir krefjast er: átta stunda vinnu tími,að kaupgjaldið sé hækkað um 10 prct. og greitt hálfsmánaðar- lega. Líklegt þykir, að svo verði auðið að miðla málunx, að nátna- nxennirnir taki til starfa laust eft- ir miðja þessa viku. Jarðskjálfta varð vart í Lisbon i Portúgal og víðar þar í grend 21. þ.m. Eigi er þess getið, að manntjón hafi orðið af þeim. Simskeyti frá Pétursborg skýr- ir frá því, að 22. þ.m. hafi fólks- flutningaskip eitt brotnað í is á ánni Neva og sokkið því nær sam- stundis. Miili tuttugu og þrjátiu manns er haldið að hafi druknað þar. ,,Kong Trygve“ strandaður- Um þetta mikla slys hefir Lög- rétta fengið 2 símskeyti svo hljóð- andi; Seyðisfirði, ,27. Marz, kl. 8,10 árd.—Kong Trygve lenti í byln- um á fimtudaginn í ísnum við Langanes og brotnaði. Skipverj- ar og farþegar, 32 tals, fóru í 3 báta á fimtudagsmorgun kl. 8, og var skipið þá að sökkva. Þetta var 50—60 enskar mílur suðaust- ur frá Langanesi. Einn báturinn kom að landi í Borgarfirði á laugardaginn og var þar í skip- stjórinn, skipsjómfrúin, 3 hásetar og 8 farþegar: Stefán Jónsson verzlunarstjóri frá Sauðárkrók, kona hans, systir og systurdóttir, Árni Stefánsson, Tryggvi Aðal- steinsson frá Seyðisfirði, Karl Jónasson frá Svínaskála í Reyð- arfirði, Helgi ísaksson og móðir ! hans frá Akureyri. Hina bátana tvo vantar enn, annan meö 13, en hinn með 5 menn. Af þeirn eru 5 íslenzkir; Jósep Jósepsson kauprn. á Akureyri og 4 kvenmenn. Mörs- ö fer norður kl. 10. Akureyri, 25. Marz, kl. 10 árd.: Kong Trygve er sokkinn; lenti í hafís 22. þ.m., 15 milur út frá Langanesi. Skipstjóri náði Borg- arfirði eftir 30 klst. hrakning á stórbátnum, við fjórtánda mann og voru það flest farþegar. Tvo báta vantar, annan með 5, en hinn með 12 rnanns. Á þeim voru far- þegar Þorleifur prestur Jónsson á Skinnastað og Jósef Jósefsson verzlunarmaður á Akureyri. ! Kong Trygve var á útleið, þeg- ar slysið vildi til; hafði kornið frá Akureyri og farið til Húsavíkur. Frézt hefir, að Þorleifur prest- ur á Skinnastað hafi farið í land á á Húsavík og er það því ekki rétt í Akureyrar-skeytinu, að hann sé einn þeirra farþega, senx vanta. Staðurinn, sem skipið fórst á, mun einnig rangt greindur i Ak- ureyrarskeytinu, en rétt í hinu. Á það bendir það, að bátur skipstj. tekur land i Borgarfirði. Rétt áður en farið er að prenta kemur enn annaö skeyti um strandið: Seyðisfirði, 27. Marz kl. 11. ár- degis:—Stóra bátnum frá Kong Trygve var bjargað i gær frá Fagradal i Vopnafirði og i honurn 10 mönnum lifandi. Stóri og litli báturinn frá strandinu hitt- ust á sunnudag utan við Bjarnar- ey!* Ánnar stýrimaður var þá veikur og fór hann þá úr litla bátnum, og kvenmaður með hon- um yfir í stóra bátinn, en 1. stýri- maður, Evensen, og annar maöur með honunx yfir í litla bátinn. All- ir íslenzku mennirnir eru þá konxnir fram, en einn hásetinn dá- inn. Allir að fram komnir. Leitað er enn eftir litla bátnum. Mörsö hefir getað fundið hann. Hún er farin á stað til Færeyja. Akureyri 27. Marz, kl. 11,15 ár- degis:—Stóri báturinn af Kong Trygve náði landi við Kollsmúla í gærkveldi með 10 menn mjög máttfarna aíarilla til í’eika. J. Jós- efsson hafði verið þrautseigastur. Stórbátinn, senx náði landi í Borgarfirði, hafði fyrst lxrakið suður á móts við Reyðarfjörð, en þá snerist vindur til suðurs, svo að hann rak aftur norður með landi til Borgarfjarðar —Lögr. Tryggva-strandið.— Frá Akur- eyri er fónað, að J. Jósefsson sé einn af þeim, sem enn vanta; hann hefir farið yfir í litla bátinn við Bjarnarey. — Lögrétta. -----0---- Fréttir frá lslandi. Nóttina milli 20. og 21. þ. m. fórust tveir menn af kútter Kjart- an, eign Bryde’s verzl. í Hafnar- firði, skipstjórinn, Sigurður Jóns- son og Jóhann Jónsson, skipstjóri af kútter Pollux, sem fór þessa ferð sem háseti, á meðan veriö var að gera við skip hans (Tol- luxj. Slysið vildi til suðaustur af Vestmannaeyjum og kastaði sjór- inn skipinu svo, að salt og annað lauslegt í skipinu kastaðist yfir í annað borðið og braut þilið, sem var á milli saltkassans og gangs- ins fyrir framan lyftinguna; skip- ið lagðist á hlðina, og lá þannig einn stundarfjórðung, að eigi var itnt að rétta það við, þar til annar kaðallinn, sem liggur aftur með stórseglsránni, slitnaði, svo að sjórinn rannúr seglinu, og lyftist skipið nokkuð upp við það, en þó eigi til fulls fyr en eftir næstum 2 klukkutíma. Ljóskerin hurfu og áttavitarnir brotnuðu og alt laus- legt í skipinu umhverfðist svo, að ekki var unt að finna skipsbækur eða sjókort eða neitt Það, er unt væri að leiðrétta sig eftir. Skips- höfnin var því mjög nauðulega stödd. Stýrimaður skipsins, Gísli Gunnarsson, sem að vísu hefir verið rnörg ár stýrimaður, en hef- ir ekki lært sjómannafræði, tókst stjórnina á hendur, og er karl- mensku hans og snarræði við þetta tækifæri viðbrugðið. Litlu síðar sá Gísli til annars skips, dró upp neyðarflagg á Kjartani og beið þess áð skipið kærni til þeirra; þetta var kútter Ester (skipstj. Kristinn Brynjólfsson frá EngeyJ; var þá svo ilt í sjóinn að ekki var unt að komast á milli skipa og beiddist Gísli því að mega fylgjast með Ester þar til þeir sæju land og væru úr hættu, og veitti Kristinn það fúslega. Þeir sigldu því þan ndag allan og lágu svo nærri hvor öðrum um nóttina sem unt var; daginn eftir sigldu þeir enn, þar til þeir voru komnir vestur undir Reykjanes, og þar skildu skipin kl. 4 e . h. laugardag. Hélt Gísli til Hafn- arfjarðar um kveldið og kom þangað á sunnudagsinorgunínn. í sjóvolki þessu hafði skipið reynst afbragðsvel og skipshöfnin sýnt framúrskarandi hugrekki, nær því undantekningarlaust, og lofsverð er hjálp sú og umönnun, er hr. Kristinn Brynjólfsson veitti henni, enda er hann talinn með beztu skipstjórum og drengur hinn bezti. J. Magnús Smith, ritstjóri tafldeildarinnar í “Free Press”, hefir auglýst, að innan skamms byrji áframhaldandi skákdænxa “tournament”, og gefi hann á hverjum mánuði litla gull- medalíu eða hnapp þeim, er flest skákdænxin hafi ráðið. Verður sá svo að byrja upp á nýtt, svo að allir keppinautar hans hljóta að vinna hnapp áður en hann vinnur í annað sinn. Tvö tvíleiks- eða þríleiks-skákdæmi verða prentuð í hverri viku og keppinautar verða að levsa úr þeim—finna leikina til að máta í svo mörgum leikjum. Magnús vonast til að senx flest- ir islenzkir taflmenn taki þátt í þessari skákdæmaraun, með því að það kostar ekkert nema nokk- urn tíma, og allir hljóta að vinna fyr eða síðar. 'Nánari upplýsing- ar verða prentaðar í tafldeiídinni, sem kemur út í hverju laugardags og vikublaði “Free Press.” Ur bænum. í dag (fimtudagj leggur hr. fasteignasali Á. Eggertsson, bæj- arfulltrúi, ásamt með konu sinni, á stað í skemtiferð suður til Bandaríkjanna og vestur á Kyrra- hafsströnd. Er ferðinni fyrst heitið til borgarinnar St. Paul í Minesota, og búast þau hjónin við að standa þar við í tvo daga. Þaðan ætla þau til borgarinnar Omaha í Nebraska-ríkinu, Denver City, Colorado Springs og Grand Cannon í Colorado-ríkinu. 3>ví- næst halda þau til borgarirmar Ixxs Angeles í California og búast við að dvelja þar í viku. Síöan afla þau að leggja leiö sína norð- ur Kyrrahafsströndina og koma við í San Francisco, Portland, Se- attle, Victoria og Vancouver og heimsækja landa sína þar. Þ?ðan ía’-a þau til Kamloops í Brit Co’- umbia og Calgary í Alberta, og, ef til vill, ferðast Þau eitthvað um' ísl. nýlenduna í Alberta, áður en þau halda heimleiðis. Hingað til Winnipeg búast þau hjónin ekki við að koma fyr en seint í Maí. Á meðan Mr. Eggertsson er að heiman gegnir Halldór bróðir hans störfum hans á skrifstof- unni. Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar býður hér með til sín öHu ógiftu fólki innan safnaðarins til skemti- fundar miðvikudagskveldið fyrsta í sumri ("5. Maí næstk.J. Samsæt- ið verður haldið í sunnudagsskóla- sal Fyrstu lút. kirkju. Félagið sendir engin boð einstaklingum, en auglýsing þessi á að duga fyrir alla. Konxið meö Bandalags- söngvana. Fyrir hönd kvenfélagsins, LÁRA BJARNASON, forseti. BRÚÐKAUP. Sunnudagskveldib 14. þ. m. gaf séra Jón Jónsson í Álftavatns- bygð saman í hjónaband Hávarð Guðmundsson, ekkjumann, og bú- stýru hans Guðnýju Stefaníu Sig- urðardóttur, að heimili þeirra að Lundar. — Fór þar fram myndar- leg veizla, er stóð fram undir morgun; munu þar hafa komið saman um 60 manns nxeð ungling- um, og skemti fólkið sér nxeð ræðuhöldum, samræðum, söng og dansi. Veitingar voru hinar beztu og var þó undirbúningsthni til veifelu þessarar mjög naumur til allra athafna. Bæði brúðguminn og rnágur hans, Pétur Sigurðs- son kaupm. á Sargent ave. i Winnipeg, gerðu alt til þess að boðsgestirnir gætu verið sem á- nægðastir. Þessir héldu tölur: Halldór Halldórsson talaði fyrir minni brúðarinnar, Guðmufridur ónsson, Rabbit Point, mintist íennar einnig sem fósturfaðir hennar, og séra Jón Jónsson talaði nokkur orð fyrir minni brúðgum- ans. Þar næst talaði brúðguminn sjálfur og skýrði frá því með klökkum huga, sem fæstir munu xafa vitað, að hann hefði lofað konu sinni, Kristrúnu sál. Sig- valdadóttur, er hann átti þar á undan, því á banasænginni, að hann skyldi ekki tvístra börnum þeirra fjórum er í ómegð eru, né slita búskap, og hann lýsti erfið- leikum sínum á þeirn fjórum árum sem liðin eru frá dauða hennar við að uppfylla þetta loforð sitt. Enda rná með sanngirni segja, að hann hefir með stakri stillingu og drenglyndi haldið þetta loforð, og þrátt fyrir marga erfiðleika upp- fylt það. Á þessu tímabili hafði hann haft fjóra kvenmenn fyrir bústýrur og bar þeim öllum góð- an vitnisburð. Meðal þeirra var kona hans, sem nú er. Það vita allir, að það er ábyrgðarmikið starf að taka að sér börn annara, hvort heldur það er sem stjúpfað- ir eða stjúpmóðir, en þessi kona hefir þegar sýnt það í verkinu, að hún er þeirri ábyrgð vaxin, og að það sé hennar einlægur ásetning- ur að reynast móðurleysingjunum sönn móðir. Og megni nokkurs heilla- og velferðaróskir , ekki einasta vina og vandamanna fjær og nær, held- ur og allra þeirra, sem þama toru viðstaddir.þá veit eg að þær fylgja þeim á þessari nýju Hfsbraut þeirra. J. J.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.