Lögberg - 09.05.1907, Síða 1
Þakklæti!
Vér þökkum öllum okkar íslenzku viBskiíta-
vinum fyrir góð viBskiíti síBastliBiB ár og
óskum eftir framhaldi fyrir komandi ár.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
538 Main Str. Teleptjone 338
Yér heitstrengium
aB gera betur viB viBskiftavini vora á þessu
ári en á árinu sem leiB, svo framarlega að
þaB sé haegt.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
538 MainSt. Telephone 339
20 AR.
Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 9. MAí 1907.
NR. 19
Hannes S. Blöndal, málum hér i landi eða litið um þau
er um undanfarin fimm ára tíma ritað, hefir hann margar skemti-
hefir unnið við Lögberg bæði sem legar °g fróðlegar greinar skrifaö
aðstoðarmaður ritstjóra og ráðs- ' Lögberg bæði þýddar og frum-
manns lætur af því starfi í önd- ’ samdar, og enda séð um útgáfu
verðum þessum mánuði, og hefir í Þess er ritstjóri heíir verií5 for*
hyggju að hverfa heim til tslands, ^ fal'aeur-
í för meS allmörgum íslendingum, Oss hefir hann verið einkar lið-
er héðan munu flytjast um miðjan látlegur og þýður samverkamaður
þenna mánuð austur um haf. 1 og getum vér þvx ekki annað en
Að því er oss er frekast kunnugt se® eftir honum.
hefir Hannes aldrei fest yndi hér Þegar þetta er ritað er eigi full-
í landi og jafnan þráð gamla ráðinn maður til að taka við starfa
Frón og mun ætlan hans vera að hans, en væntanlega verður þess
flytja þangað alfarinn, enda fer eigi langt að bíða.
hann með alla fjölskyldu sina, Um leið og vér þökkum Hann-
konu og fjögur börn. esi fyrir síðustu nærfelt tveggja
Eins og að Jikindum ræður hlýt- ára samvistir, óskum vér honuro
ur Lögberg allmikils í að missa við
burtför Hannesar. Hann er orð-
inn þaulvanur starfi Jxvi, er hann
hefir haft, og hefir unnið að
því með alúð og samvizkusemi. 1
blaðið hefir hann ritað alt það er
hann hefir haft tíma til frá öðrum
störfum, og kvæði hefir hann ort
fyrir blaðið, sem birt hafa verið
þar, og vér efumst ekki um að hafi
verið lesendunum einkar kærkom-
in. Þau eru létt kveðin og fjörug,
áferðarfalleg og allsnjöll flest.
'Það sem Hannes ritar er býsna
áþekt ljóðum hans. Hann ritar
hreint mál, lipurt og yfirlætislaust,
og þó að hann hafi lítið sint lands-
og fjölskyldu hans allrar hamingju
á ókomnum tíma. Og væntum
vér að hann eigi margar ánægju-
stundir eftir ólifaðar á fósturfoldu
sinni. En þangað hefir allur
hugur hans stefnt þó að hann
dveldi í fjarlægð, því að hann er
fölskvalaus ættjarðarvinur og að
voru áliti einhver sá islenzkasti ís-
lendingur, sem vér höfum kynst til
nokkurra muna hér vestra.
Að skilnaði gáfu samverkamenn
Hannesar honum vandaða ferða-
tösku og afhenti ráðsmaður blaðs-
ins, Mr. Paulson, hana með nokkr-
um velvöldum hamingjuóskum,
fyrir hönd gefendanna.
Fréttir.
Svo er að sjá af enskum blöðum,
sem þeir stjórnarformennirnir
Laurier og Botha (TransvaalJ séu
orðnir mjög samrýndir. Botfia
hefir boðið Laurier að heimsækja
sig í Pretoríu og er sagt að hann
hafi þegið það boð. Sagt er og að
Botha hafi afþakkað boð Lauriers
um að koma til Canada vegna
stjórnaranna.
Fyrir nokkru síðan var minst á
það, að norðurfarinn Rogert Pea-
ry hefði í hyggju að leggja á stað
í nýjan leiðangur til norðurheim-
skautsins á þessu sumri. Býst
hann við að leggja á stað í næst-
komandi Júnímánuöi. Ferðakostn-
aðurinn til fararinnar er ákveðinn
hundrað þúsund dollarar og hafa
enn eigi fengist meiri fjárframlög
til fyrirtækisins en fjörutíu þús-
undir. Er mælt að mestalt það fé
muni ganga til þess að gera við
skip Peary’s, Roosevelt, sem mjög
var af sér gengi* eftir síðustu
norðurförina. Hin sextíu þúsund-
in eru eigi enn fengin og takist
ekki að útvega þau verður auðvit-
að ekkert af ferð Peary’s á þessu
ári.
Stjórnmálaflokkur sá, er berst
fyrir heimastjórn írlands, kvað
all-æstur um þessar nxundir, og ber
fram ákveðnari tillögur um sér-
stöðu írlands en að undanförnu.
Á stefna þessi miklu fylgi að
fagna hjá kaþólskum þar, og sér-
staklega þó hinum yngri menta-
mönnum þjóðarinnar, stúdentun-
um. Mælt er að brezka stjórnin
muni ætla að taka alvarlega í
taumana, ef lienni þykir þess við
þurfa og írlendingar verða um of
heimtufrekir.
Fréttirnar af hungursneyðinni í
Rússlandi eru alls eigi glæsilegar.
Ofan á alla eymdina bætist það að
ýmsir sjúkdómar eru farnir að
geisa um landið. Þ’annig kvað
fjöldi manna þjást af skyrbjúg
bæði í Úfahéraðinu og víðar. Og
ýmsir fleiri krankleikar, er stafa af
illu viðurværi og langvinnum
vistaskorti, þjá landslýðinn í Suð-
ur-Rússlandi. Hjálparstofnanir
þar, sem hið opinbera hefir komið
á fót, sjá nú liðugri miljón manns
fyrir viðurværi, en í hinum ýmsu
héruðum landsins’ er þó sagt að
séu full hálf miljón manna, er
enga hjálp er hægt að veita þó
brýn þörf sé á. Feiknamiklu fé er
varið til hjálpar hinum bágstöddu;
er mánaðarlegur tilkostnaður við
þrjú matgjafahýsin talin sjö
hundruð og fimtíu þúsund dollar-
ar við hvert þeirra um sig.
1— Fregnirnar um uppskeruhorf-
urnar á Rússlandi eru og næsta ó-
glæsilegar sakir hinnar köldu veð-
uráttar, sem þar hefir verið að
undanförnu.
Eldgos og jarðskjálftar miklir
eru nú á Sikiley og smáeyjum þar
í grend. Kveður mest að þeim á
eynni Stromboli og gýs þar eldfjall
gamalt samnefnt eynni. Hafa all-
miklir skaðar orðið af jarðskjálft-
unum.
Loks er komið á samkomulag
milli verkanxanna í kolanámunum
hér i vesturlandinu og vinnuveit-
enda. Skal sitja við hið sama um
næstu tvö ár og var fyrsta Apríl
þessa árs.
Á mánudaginn var lézt að Mount
Pleasant í Iovva-ríkinu, presturinn
John Watson, heimsfrægur rithöf-
undur og ræðuskörungur. Ritaði
hann undir dularnafninu Ian Mac-
laren. Blóðeitrun varð þonum að
bana. Hann var á ferð hér í Win-
nipeg í siðastliðnum mánuði og
hélt þá fyrirlestur i Congregation-
al kirkjunni snjallan og fróðlegan
að viðstöddum fjölda manns. Um
hann er ritað í siðasta hefti
“Breiðablika”.
I stríðinu milli Japana og Rússa
síðasta, urðu margir hershöfðingj-
ar frægir fyrir drengilega fram-
göngu, og meðal þeírra má telja
Kuroki, er frægur er orðinn um
heim allan. Sem stendur er hann
á ferð hér um Ameríku; er hann
gerður út af Japansstjórn til að
vera fulltrúi hennar á sýningunni í
Jamestown. Þegar nann sté á
land í Seattle um daginn, var hon-
um forkunnarvel fagnað af lönd-
um hans þar og eins Bandarikja-
mönnum.
Lady Henry Somerset, bindind-
isfrömuður og mannvinur, á Eng-
landi, hefir nýlega lýst yfir því, að
hún heilsunnar vegna verði að
létta af sér mikið af störfum sín-
um. Hún hefir urn margra ára
skeið unnið að því að bæta kjör
drykkjumanna og kvenna. Auk
þess hefir hún barist fyrir réttind-
um kvenna, enda álitin einhver
mesti ræðuskörungur meðal enskra
kvenna.
Frétt frá Toronto getur þess, að
nýlega hafi gull mikið fundist í
grend við Larder Lake. Tveir
gullhnöllungar, sem þar fundust,
vógu eigi minna en tuttugu og
fimm pund hvor. Er sagt að tveir
þriðju partar af þessurn hnöllung-
um hafi verið “hreint gull.”
Þriðja þ. m. barst sú fregn frá
Calgary í Alberta, að kol hefðu
nýlega fundist i jörðu í þeim bæ.
Varð það með þeim hætti, að
maður nokkur þar í bænum var að
láta grafa brunn og þegar búið
var að grafa milli fjörutíu og fim-
tíu fet, hittu brunngraftrarmenn-
irnir á tvær kolaæðar er voru lið-
ugt fet á breidd hvor um sig, og
breikkuðu þær miklu meir er nið-
ur dró. Kol þessi voru reynd þeg-
ar í stað, og eru talin að hafa
brunniö vel. Þetta eru talin að
vera linkol, senx þarna fundust, og
var búið að grafa upp æði mikið
af þeim þegar fréttin var send.
Fyrir nokkrum árum síðan gerðu
Danir og Hollendingar með sér
samning þess efnis, að allur á-
greiningur milli landanna skyldi
útkljáður með gerðardómi í
Hague. Deuntzer var þá forsæt-
isráðherra i Danmörku og var hon-
um einkum þakkað, að þessi samn-
ingur komst á. Nú hefir Dana-
stjórn gert samskonar samning við
Portúgal rétt nýlega. Þykir frið-
arvinUm sem þetta muni verða
fyrsti visir til alþjóðafriðar, og að
stórþjóðirnár muni fara að dæmi
smáþjóðanna í þessu efni. Fleiri
samningar liks efnis kváðu vera í
aðsígi.
Óskar Svíakonungur lá lengi
veikur uni miðbik síðastliðins
vetrar, svo sem menn muna. Hann
hefir nú fengið nokkurn bata, en
er enn þá svo lasburða, að óvíst er
hvort hann taki aftur við stjórnar-
taumunum. Erfðaprinzinn gegn-
ir nú störfum hans.
Sumarkvöld.*)
Aftanblærinn létti líður
ljúft og hægt um sumarkvöld.
Sólin hverfur, söngfugl þýður
sofnar bak við skógartjöld.
Kyrt er alt. Um hvelfing heiða
himinstjörnur ljósgull breiða,
glitrar mánans geislafjöld.
Fagra kvöld!
Fagra sumarkvöld!
Hægan mér við eyra ómar
^ unaðsrödd með ljúfum nið.
Þótt að engir heyrist hljómar
hjartans streng hún snertir við.
Minning löngu liðnra tiða,
lofnargleði, sáran kviða,
strax eg þekki’ í strengjaklið.
Strengjaklið,
strengja duldra klið.
Blunda fugl á beði rósa,
blómarunnar veiti skjól!
Dreymi þig um daga ljósa
dýrðarbros frá morgunsól!
En ei hugfró haggað lætur
hríðin köld og vetrarnætur,
napurt él frá norðurpól.
Enn er sól,
enn þig vekur sól.
H. S. B.
*) Kvæði þetta var lesið upp á
heimboði kvenfél. Fyrsta lút. safn-
aðar miðvikudagskveldið siðasta í
vetri i næstl. Aprilmán.—Ritstj.
Heimboð kvenfélxiKs Fyrsta
lút. safnaðar.
Þau eru þrjú heimboðin, sem of-
annefnt kvenfélag hefir haldið
safnaðarfólkinu núna um sumar-
málaleytið.
Fyrsta heimboðið var haldið á
miðvikudagskveldið siðasta í vetri
og þangað boðið öllu giftu fólki í
söfnuðinum. Næsta dag, sumar-
daginn fyrsta, var boðið öllum
börnum og unglingum í söfnuðin-
um innan fermingaraldurs. Hófst
það heimboð eftir skólatíma þann
dag. Þriðja heimboðið var haldið
miðvikudagskveldið fyrsta í sumri
og þangað boðið öllu fermdu fólki
ógiftu i söfnuðinum.
Eins og gefur að skilja voru öll
heimboðin mjög vel sótt, og vönd-
uð prógröm, eigi sízt prógram
ið fyrir heimboð fullorðna fólks-
ins, en veitingar hinar rausnarleg-
ustu. Þó að kvenfélagið hafi áð-
ur haldið myndarleg heimboð,
má það með afbrigðum telja, að
ö//u safnaðarfólkinu hafi verið
boðið til ókeypis skemtana og veit-
inga eins og kvenfélag,Fyrsta lút.
safnaðar gerði nú, og hafa heim-
boð þessi orðið því til verðugs
sóma.
Ur bænum.
Á uppstigningardag, 9. þ.m.,
verður guösþjónustugerð í Tjald-
búðarkirkju, kl. 8 að kveldi. Run-
ólfur Fjeldsteð, prestsefni, prédik-
ar við það tækifæri.
Bandalagiö heldur opinn fund
16. Mai næstkomandi; þangað eru
allir boðnir og velkomnir, en veit-
ingar seldar á eftir til ágóða fyrir
hljóðfærissjóð félagsins.
Undir umsjá Good Templara-
stúkunnar Heklu verður haldinn
kapplestur og kappsöngur i Good-
Templara-salnum 21. Maí næstk,
Að eins börn innan 12 ára taka
þátt í þessu. Prógram í næsta bl.
—..............o
Miss Dora Hermann, dóttir
þeirra hjóna Mr. og Mrs. H. Her-
mann í Edinburg, N. Pak., verður
kennari í Bathgate næsta ár. Hún
útskrifast í vor af kennaraskól-
anum. Vel gefin myndarstúlka.
Guðsþjónustugerð fer fram i
Fyrstu lút. kirkju að kveldi upp-
stigningardagsins 9. þ.m. kl. 8 og
sunnudaginn næsta þar á eftir 12.
þ. m. yfirheyrir prestur safnaðar-
ins fermingarbörnin i kirkjunni.en
fernxt á hvitasunnudag.
íslenzki liberal klúbburinn held-
ur fund á vanalegum fundarstað í
Good Templ. byggingunni næsta
mánudagskveld, 13. þ. mánaðar.—
Þetta verður siðasti fundur á und-
an vanalegu funda uppihaldi um
sumartimann. — Allir meðlimir
klúbbsins eru beðnir að koma.
Annan þessa mánaðar.lézt ung-
lingspilturinn Guðnxundur Ágúst
Peterson fsonur Þorsteins G. Pét-
urssonar) að 253 Nena stræti hér
í bænunx, eftir tæpra tveggja sól-
arhringa legu, úr lungnabólgu.
Hann var jarðsunginn síðastliðinn
laugardag af séra Jóni Bjarnasyni.
Svo er sagt, að um 2,000 húseig-
endur hafi látið hjá líða að fá sér
sorpkönnur við hús sín, svo sem
læglugjörð bæjarstj. mælir fyrir
Þeir geta því átt von á að vera
kallaðir fyrir rétt, og ættu því
landar, ef einhverjir þeirra ættu
eftir að fá sér könnur, að gera það
sem fyrst. Þær kosta minna en
sektinni nenxur, sem við liggur að
hafa þær ekki.
A þriðjudagskveldið var héldu
Cood Templarar skemtisamkomu í
efri salnum í húsi sínu. Samkoma
þessi var vel sótt, enda skemtanir
margar og fjölbreyttar: söngur,
hljóðfærasláttur, upplestur og
ræðuhöld. Iveystu flestir hlutverk
sin mjög vel af hendi. S. B.
•Rrynjólfsson hélt ræðu um kven-
frelsismálið. Hann er eindreginn
fylgismaður þess máls; taldi hann
það nú komið á góðan rekspöl að
Því er atvinnu- og mentamál jfcgp-t-
ir. en að enn þyrfti að laga ílftrgt
áður konur fengju eignalegt og
pólitiskt jafnrétti á við karlmenn.
\’ar ræða hans og bendingar eink-
ar þörf hugvekja, jafnt fyrir kon-
ur sem karla. Að lokinni skemti-
skránni brá unga fólkið sér í dans.
Landi vor , Rarði G. Skúlason í
Grand Forks, hefir nýlega verið á
ferð hér í Winnipeg. Hann getur
þess í viðtali við sunnanblöðin, að
héraðið umhverfis Gretna og Mor-
ris, hér í fylki, hafi að mestu ver-
ið á kafi í vatni.—Sunnan landa-
mæranna telur hann ástandið að
nokkru betra, en óliklegt samt að
hægt verði að byrja alment plæg-
ingu fyr en eftir hálfan mánuð.
Hinn 6. þ.m. voru þau Zófonias
Hafstein úr Álftavatnsbygð og
Guðrún Brynjólfsson frá Winni-
peg gefin saman i hjónaband að
heinxili J. S. Gillies á Simcoe st.,
hér í bænum, af séra Friðrik J.
Bergmann. Ungu hjónin lögðu á
stað í skemtiferð suður til Dakota
8. þ.m. Þau halda síðan norður til
ættingja Mr. Hafsteins í Álfta-
vatnsbygð, en bú ætla þau að reisa
vestur i landi, í grend við Battle-
ford og flytja þangað í þessum
mánuði.
Svo sem mönnum er„ kunnugt,
þeim, er í borgum búa, þá vill oft
safnast fyrir ryk á strætum úti,
sem svo þyrlast framan i fólk við
þvínær hvað lítinn vindblæ sem er.
Til að ráða bót á þessu hafa menn
fundið ýms ráð, svo sem að vökva
strætin, er það gert með þar til
gerðum vatnsvögnum, og að sópa
þau. Þetta hefir þó þann galla,
að rykið vill þyrlast upp við það og
setjast niður að vörum aftur, svo
að heita rná að unnið sé fyrir gíg.
Nýlega hefir Winnipegbúi einn,
H. A. Huber að nafni, þóst finna
ráð til að bæta úr þessum vand-
kvæðum. Hann hefir gert götu-
sóp, með nýju lagi, er í stað þess
að þyrla upp rykinu, kastar því í
trog eða pönnu, sem síðar fleygir
því í geymi i vagni þeim er sóp-
urinn er við festur og ætlast er til
að sé bifreiðarvagn.
á mánudaginn næstkomandi ætl-
ar töluvert fjölmennur hópur ís-
lendinga héðan að vitja gamla
íslands. Sem stendur er ekki hægt
að segja hve margir þeir verða, en
þessa höfum vér heyrt nefnda;
Úr Winnipeg:
Mr. Árni Johnson,
Miss Sigríður Johnson,
Mrs. Halldóra Sigurjónsson,
Miss Valgerður Goodman,
Mr. Svanlaugur ísleifsson, kona
hans og barn.
Mr. Vilhjálmur Olgeirsson og
kona hans, Jóhanna Gísladóttir.
Mr. Hannes Blöndal með konu
og fjórum börnum. Miss Lára
Blöndal, frændkona hans.
Utan af landi;
Mr. Ólafur Hallson, Narrows,
Mr. Antonius Isberg, Baldur,
Mr. Gunnar Jóhannsson, Don-
gola.
Lögberg óskar þeim öllum góðr-
ar og skemtilegrar ferðar.
Nokkrir íslendingar i Winnipeg
eru að stofna nýja íslenzka lífsá-
byrgðar og sjúkrastyrks stúku af
reglunni Canadian Order of For-
esters. I þessari stúku verða að-
eins íslendingar. Þrjátíu og fimm
menn hafa nú þegar innritað sig.
Nálægt 150—170 íslendingar í
Winnipeg munu nú vera í hérlend-
um stúkum þessa félags. Flestir
þeirra ætla að ganga í þessa nýju
stúku, sem löglega verður stofn-
uð hinn 16 þ. m. Nafn stúkunnar
verður “Vínland”. Dr. Brandson
verður læknir hennar. Inn í stúk-
una geta gengið menn á aldrinum
frá 18—45 ára, og keypt bæði lífs-
ábyrgð og sjúkrastyrk. Læknis-
hjálp og meðul veitir stúkan með-
limum sínum ókeypis. Stúka þessi
verður ein hin stærsta, öflugasta
og áreiðanlegasta lífsábyrgðar-
stúka, sem Islendingar eiga völ á
i þessu Iandi, og þar að auki ein sú
ódýrasta. Þeir, sem vildu fá ná-
kvæmari upplýsingar um þessa
stúku geta snúið sér til Jakobs
Johnston, 572 Agnes st., eða til
Th. Thorarinssonar, 631 Elgin ave.
—Fundarstaður stúkunnar verður
i neðri fundarsal Good Templara
hússins á horni McGee og Sargent
stræta.