Lögberg - 10.10.1907, Síða 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN io. OKTÓBER 1907
I>rælaverzlun.
Livingstone taldíst svo til, aö
þrælaverzlun í Afríku svifti lífi
liálfa miljón manna árlega, og siö-
an hefir siömenningin barist öfl-
uglega gegn henni. Þessari svi-
viröilegu verzlunargrein er nú aö
heita má nær þvi undir lok liðin,
og þungar refsinga;r eru lagöar
viö henni, og hafa allar menta-
þjóðirnar veriö samtaka i því.
Þrátt fyrir það má fyrir víst
segja, að til sé eitt ríki enn þá,
þar sem manneskjur eru keyptar
og seldar á torgi opinberlega, meö
hundingjalegu kæruleysi og hafa
kaupendur ótakmarkað vald á lífi
þeirra og limum.
Þó undarlegt megi virðast, er
þessu ríki eigi svo í sveit komiö,
að menningin hafi eigi komist aö
því, eöa þaö liggi fjarri menta-
þjóðunum í Evrópu. Þangaö er
ekki nema fallbyssu skotmál frá
Gibraltar-kastalanum og ströndum
Spánar. Ríki þetta er Morocco,
siöasta sjálfstæöa riki Múhameds-
manna í Afriku, en niöurlögum
þess ráöa Frakkar nú líklega
bráöum. Um hundraö ára skeiö
hafa töluveröar tilraunir veriö
geröar til að afnema þrælaverzlun
Máranna. Hefir þaö bæöi verið
gert frá stjórnfræöilegu sjónar-
miöi og á annan hátt, en þó eigi;
tekist.
Salisbury lávaröi fórust líka eitt ■
sinn svo orð um Morocco, að þaö:
væri bækistöö siðleysis, frámuna-
legra grimdarverka, þekkingar-
leysis og afturhalds, þar sem
hvorki siðmenning né þjóðþrif
hefði getað fest rætur.
Bretar hafa verið taldir likleg-
astir til aö beina siömenningar-
straumi inn í undra- og ógna-
landið, sem liggur milli Tangier
og Atlasfjallanna. Samt sem áö-
ur hefir brezki ráögjafinn Sir
John Drummond Hay sagt, aö þó
að hann og fyrirrennarar hans hafi
getað kotnið inn hjá soldáninum,
vezírum hans og öldungaráði,ment
aðra manna háttum. þá væri samt
ekki hægra að útrýma þrælaverzl-
un í Morocco heldur en verið
heföi aö moka fjósiö hans Augeas-
ar til forna. Stórveldin gera það
sem þau geta. Til dæmis má geta
þess, að ef Márar, sem eitthvað
kveður aö, þurfa á styrk aö halda
og flvja í þvi skyni á náðir Breta,
Frakka eða Þjóðverja, þá er þeim
gert aö skyldu aö hætta viö alt
þrælahald.
En þetta er samt ófullnægjandi
í alla staði,'því aö sannleikurinn
er sá, að karlar, konur og börn j
eru seld þar opinberlega alt fram
á þenna dag, eigi aö eins uppi í
landi, heldur jafnvel í sjálfri J
Tangierborg fyrir augum stjórn- J
málaskörunganna þar. Stjórnmál |
Morocco eru svo einkennilega j
vaxin, aö enginn rá.ðgjafanna þor- j
ir aö gera neitt í þrælaverzlunar- í
málinu nema hann hafi óskiftj
fylgi allra stallbræðra sinna.
Engar aðrar hömlur harfa veriö j
lagðar á í þessu efni en þær, aö nú !
er bönnuð þrælaverzlun opinber-
lega í hafnarborgum landsins. En
í höfuðborg norðurlandsins, sem
heitir Fez, og hinni stórborginni í
suöurhlutanum, Marrakesh, kveö-
ur svo mikið aö þrælaverzlun, aö í
hvorri þessari borg fyrir sig er á-
kveöið svæöi innan borgartak-
markanna, sem til einskis er notaö
^annars, en til aö selja þræla. Þafc
er ekkert annaö en þrælasölu-torg,
öldungis eine og torgin þar sem
seldar eru korntegundin, ávextir,
hestar, múldýr og úlfaldar, vefn-
aðarvörur og aörir muijir. Má sjá'
á stnásögu þeirrj, sem hér fer á)
eftir, og Sir John Drummond
Hay hefir sjálfur skýrt frá, að
efnuðu Márarnir eru töluvert riön-
ir við þrælakaup enn þá. Sagan
er á þessa leið:
Einu sinni var vinur spanska
konsúlsins í Mogador í kynnisför
i hjá Caid Sidi El-Arbi, landstjóra
í Abda, og vildi þá svo til, að
Spánverjinn fór aö sýna Márum
skotfimi sína eitt kveld, inni í kast-
alagarðinum. Bauö hann þjóni
sjnum aö standa með spil í hend-
| inni i hundrað og fimtíu skrefa
^ f jarlægö. Miðaöi hann og skaut
fjórum sinnum og hitti spilið
þrisvar.
Landstjórinn hljóp þá fram,
varpaöi af sér skikkjunni og
sagöi: “Eg kann að skjóta líka,
lánaöu mér byssuna.” “M’Baruk”,
sagöi hann síöan við núbverskan
þræl, er sat á hækjum undir rauð-
um leirveggnum, “taktu þessa
“barada” (leirkrukkuj og haltu
henni uppi meö fótunúm”. Því
næst fékk Eil-Arbi Evrópumann-
inn til aö mæla hundrað og fimtíu
skref, staðnæmdist þar, varpaöi
byssunni skyndilega upp aö vang-
anum miðaöi og skaut um leið og
hann tautaði: “Lof sé hinum
Eina og Mikh.”
Þrællin hné út af á hliðina,
Því skotiö haföi gengið gegn um
báða fæturna á honum um öklana.
Húsbóndi hans fórnaöi þá hönd-
um og hrópaöi hástöfum: “Yala-
tif, yalatif; eg borgaði áttatiu
dollara fyrir þennan pilt fyrir liö-
ugri viku síðan og nú getur hann
ekki vikið sér þversfótar framar.”
Varla er hægt að shugsa sér á-
takanlegri sjón en opinbera þræla-
torgið í Marrakesh. Þaö er fer-
hyrntur flötur og girðing um-
hverfis meira en tólf mílna löng,
en á fleti þessum nálægt miöju
standa í hvirfing óþrifalegir,
skektir og skældir kofar hlaönir
úr rauðum leir. Að torginu ligg-
ur vegur vaxinn trjám á báða
vegu, og hvelfing yfir úr vafn-
ingsjurtum og vínviöar og pálma-
blöðum.—Þ rælauppboðið fer fram
þrisvar í viku rétt fyrir sólsetur.
Grein þessi er þýdd úr “World
Wide”. en tekin í það blað úr
“Daily Tribune”, New York, og
er eftir W. C. Fitzgerald Afríku-
fara. Þrælauppboðinu lýsir hann
á þessa leið:
“Eg kom til torgsins um mið-
aftansbil. Eg sá ekki einn einasta
þræl þegar eg kom inn á opna
sviðið innan girðingarinnar. Aft-
ur á móti sá eg þar raðir af Aröb-
um, sem sátu á hækjám. Voru
þeir svo margir aö hundruðum
skifti, og búnir hinum beztu bún-
ingum, í táhreinum sWkkjum úr
silki og ull. Margir þeirra höfðu
lítil börn við hönd sér, og voru föt
þeirra með öllum litum regnbog-
ans, gul, rauð, græn og blá.
Eftir litla stund sést Arabi
koma ríðanéi. Á undan honum
ganga tveir svartir þrælar með
hringi í eyruna. Eiga þeir aö
ryðja honum braut gegn um
mannþ^rpinguna. Maður þessi er
El-Glauri, «• heimtir nefskatt af
þ»ræl hverjum fyrir Márastjórn.
Koma hans er “dilalunum” eða
uppboðshöldurunum merki tim, að
koma út úr þrælakofunum og
gangast fyrir bænahaldi. Og er
sólin var að hníga að baki þeim,
hóf formaður þeirra upp rawst
sína til hins “Allija Hæsta , er
er boðaði hina sönnu trú fyrir
munn spámanns síns.” Blessun
Allah er lýst yfir kaupendun«m
væntanlegn og kaupskap þeirra.
Að lokinni bænagerðinni þýtur
mannfjöldmn á stað til þrælakof-
anna — lágu leirhattganna strá-
þöktu. Eg fylgdist með og sá, að
í einu hreysinu og einhverju því
stærsta voru tíu eða tólf mann-
eskjur, konur, un^lings stúlkur og
börn. Sumar stulkurnar brugðu
ullarskikkjum sínum fyrir andlit
sér og virtust biða með óþreyju
eftir að heyta kjör þau, sem þær
áttu í vændum. Sumar hinar voru
kæruleysislegar á svip eða jafnvel
brosandij litlu telpurnar og dreng-
irnir voru að leika sér á gólfinu.
Yfir - uppboðsstjórinn skifti
þrælunum, sem 'selja átti, milli
undirmanna sinna og svo hófst
uppboðið. Hver dilali leiddi fram
tvo þræla í hvert sinn. Eg sá aö
hver þeirra um sig haföi verið
færður í venju fremur góð klæöi í
þetta skifti. Sumar ungu stúlk-
urnar_ voru allsjálegar, í bleikum
silkikjólum með gilda ökla- og
armhringi úr hreinu silfri. Skraut
þetta hafði verið keypt rétt áður
en salan fór fram. Auk svertingj-
anna, sem bæði voru karlar og
konur, sá eg líka í þrælahópnum
“hvitar” stúlkur og ung hvít börn.
Furðaði mig á því. Þetta “hvíta”
fólk, sem eg kalla, var af Mára
eða Araba kyni, en sumir þeirra
eru jafnvel bjartari á hörund en
Suður-Evrópumenn. Þeir voru
ljóshærðir og bláeygðir.
Uppboðshaldari hver og föru-
nautar lians tveir, þrælarnir, sein
hann var að selja, skunda nú út á
völlinn og ganga þar um gólf í
ákafa, og þreyttist uppboðshaldai-
inn aldrei á að telja upp alla þá
góðu kosti er prýddu “parið”, sem
hann var með í hvert skifti. Sagði
að karlmaðurinn væri stór og
sterkur, líkur hetjunum til forna,
en stúlkan frið sýnum og mesti
snillingur í að búa til fáséðar
karfir, eða diska, og því um likt.
Eftir dálitla stund gengur dauf-
legur Mári fram og snýr til upp-
boðshaldarans. Síðarnefndur mæt-
ir honum á miðri leið,kastar á hann
kveðju og staðnæmist á hlið við
hann. Þrællinn krýpur þá á kné
og væntanlegi kaupandinn skoðar
í honum tennurnar og þuklar á
vöðvum hans. Síðan snýr kaup-
andinn sér að dilalinum og tautar
eitthvert boð, og rétt á eftir er
þrenningin komin á flugferð út
um völlinn frammi fyrir mann-
fjöldanum og dilalinn hrópar með
hárri röddu hvað boðið sé. Þetta
vekur eftirtekt. Þrællinn er skoð-
aður á ný. Yfirboð er boðið.
Þrællinn hækkar í verði um tíu
dollara og svo gengur koll af kolli.
Vanalega er söluverð þrælanna
frá fjörut'xu til fimtíu dollara í
vorum peningum og upp í tvö
Þúsund dollara. Tvö þúsund
dollar sá eg boðið í unga stúlku, á
að gizka seytján vetra. Hún var
fríð sýnum og vel búin. Bar á
höfði kórónu úr kóröllum og perl-
um. Hún var í ljósgulum silki-
búningi og hafði á fótunum græna
morocco-skó, útsaumaða með gull-
og silfurvír. Hana keypti hinn
voldugi og vellauðugi landstjóri
El-Gundaf, og bauð í hana fyrir
liönd hans einn héraðsstjóra hans.
Þegar þræla-“par” er selt fer
dilalinn aftur til þrælahreysanna
og sækir sér nýjan varning. Mjög
er misjafnlega farið með þrælana.
Eg sá t. a. m. gamla svertingja-
konu, líklega um fimtugt, dregna
um völlinn ffammi fyrir Araba-
fylkingunum, sitjandi á hækjum,
og var hlegið hátt að. Fimm til
sjö ára börn hlupu þar við fót,
djarfleg og brosandi, um tcrgið,
þegar verið var að bjóða þau upp.
Þar mátti líka sjá Márastúlkur
feimnislegar og skjálfandi; enn-
•fremur fíleflda svertingja risa, er
gátu hlaupið með tvö hundruð
puud, og mæður er gutu óttaslegn-
um augum til barnanna, er búast
rwátti við að þær yrðu sviftar á
hverri stundu.
Smámsaman má sjá þrælana
flykkjast til nýju húsbændanna og
setjast niður við fætur þeirra. —
Nú eru þrælahreysin orðin þvínær
tóm. Þar er ekkert eftir nema
nokkrir lasburða aumingjar, sem
enginn fæst til að gera boð í. Það
eru gráhærðir mafin og gamlar
konur, ungir menn, sem örkumlast
hafa “í púðurlefknum” eða í ófriði
við Þjóðflokka sína.
Lítið er skeytt um þá aðvörun
í Kóraninum, er svo hljóðar: “Sér
hver sá, sem fer illa með þræl sinn
skal ekki koníast inn í Paradís”,
því að gamlir þrælar, sem orðnir
eru ónýtir trl vinnu, eru reknir út
á stræti.til að deyja þar úr hungri.
Með eigin augum hefi eg séð aum-
ingja þessa liggja deyjandi á fjöl-
förnum strætum í Marrakesh.
Hvaðan koma Þ^ssar^élánsmann-
eskjur, sem seldar eru Þarna eins
og gripir?
Þeim hefir verið rænt frá varn-
arlausum þorpum suður með öllu
Nigerfljóti, en þangað má heita
að sé nær því sjö mánaða leið frá
Marrakesh. Arabarnir þar hafa
farið þessa ræningja leiðangra um
svertingjabygðir um mörg hundr-
uð ár, og þó að við slíku atferli
liggi sex mánaða betrunarhúss-
vinna og drjúgar sektir í tilbót,
virðist það ekki nægja til að halda
Aröbunum frá svertingjaránum.
Arðurinn af þeim er auðvitað gíf-
urlegur og þar að auki eru ráns-
mennirnir arabisku aldrei ánægð-
ari, en þegar þeir eru í slíkum
herferðum.
Minni háttar svertingjaræningj-
ar fást mest við það, að stela börn-
um, en aðrir, sem nokkuð kveður
að, ferðast til Haussalan og æsa
Þjóðflokkana þar til ófriðar. Gera
þeir það til þess, að hægra verði
fyrir þá sjálfa að ræna þorpin,
þegur vígu mennirnir eru flestir í
ófriði. Á leiðinni með herfangið
norður eftir er engu betur farið
með það en gripi, því að þó
nokkrir svertingjanna kunni að
deyja á leiðinni af hungri eða
þorsta, þá búast ránsmennirnir við
að geta fengið nýja i skarðið í
þorpunum, sem þeir fara um. Það
er ekki fyr en lestin er komin
norður til Atlas-fjallanna, snæ-
þöktu, að farið er að hirða nokkuð
um þrælana. En sannleikurinn er
þó sá, að þeir sem harðgerðastir
eru og þrautmestir, lifa einir af
þetta ferðalag, en hinir bera bein-
m beggja vegna brautarinnar sem
ránsmennirnir halda, — við hlið
úlfaldanna og múldýranna.
Maginn í ólagi.
Bezt að gefa hressingarlyf við
meltingarleysi.
Lystarleysi, slímug tunga, vont
bragð í munni, höfuðverkur og ó-
nota tilfinning um allan skrokkinn
eru einkenni magaveiki. Það sýn-
ir, að maginn er í ólagi, að hann
veitir ekki lengur blóðinu þá nær-
ingu, sem líkaminn þarf, þess
vegna verða öll líffærin að þola
kvalir við það. Það eru tvær að-
ferðir að lækna þetta. Gamli mát-
inn að láta magann fá fyrirfram
melta fæðu og tilbúin æsingar-
meðul, og nýja aðferðin—Dr.
Williams’ Pink Pills aðferðin —
þar sem ínaginn er styrktur til að
gera það verk, sem honum er ætl-
að að vinna. Nýlega hefir Mrs.
Jas. W. Haskell, Port Maitland,
N. S., öðlast bata með þessari að-
ferð, með því að taka hressingar-
lyf. Hún segir svo: “Svo árum
skifti átti eg beztu heilsu að
fagnav En alt í einu fór eg að fá
höfuðverk. Eg hafði slæmt bragð
í munninum og slím á tungunni.
Eg varð þreytt og lömuð; eg misti
matarlystina, og það sem eg borð-
aði gerði mér ilt eitt. Eg hafði
kvalir fyrir brjóstinu. Eg varð
máttfara og fékk oft uppköst. Eg
var við og við undir læknis hendi
og það beztu lækna, en þótt eg
fylgdi forskriftum |>eirra ná-
kvæmlega, batnaði mér samt ekki.
Dag einn, þegar eg var að lesa
blað, sá eg sjúkdómstilfelli mjög
líkt mínu, sem var leeknað með Dr.
Williams’ Pink Pills. Eg fékk
mér strax forða og áður en langt
um leið fór mér að skána. Eg
varð hraustari dag frá degi þang-
að til eg var orðin eins frísk og eg
hefi nokkurn tíma áður verið. Eg
hefi beztu matarlyst, er hraust og
fær um að sinna heimilisverkum
mínum án þess að þreytast. Eg
hika ekki við að mæla fram með
Dr. Williams’ Pink Pills við alla,
sem þjást af slæmri meltingM.”
Gigt, nýrnaveiki, fluggigt, riða,
höfuðverkur og bakverkur, mátt-
leysi, skjálfti og fjöldi annara
sjúkdóma eiga rót sína að rekja
til blóðsins alveg eins og maga-
veikin. Þess vegna er Dr. Willi-
ams’ Plnk Pills aðferðin. Þær
eru ágætt blóðgjafar og tauga-
styrkingar meðal. Seldar hjá öll-
um lyfsölum eða beint frá The
Dr. WilKams’ Medícine Co.,
Brockville, Ont., á 50 cent askjan
eða sex öskjur fyrir $2.50.
ÞAKKARORD.
Um leið og eg flyt frá þessum
bæ, sem við hjónin höfum búið í
nokkur undan farin ár, get eg
ekki látið hjá líða að þakka opin-
berlega starfssystrum mínum i
kvenfélagi Selkirk-safnaðar, fyr-
ir góða og systurlega samvinnu, í
þarfir þess félagsskapar, sem nú
eru forlög mín að hætta að til-
heyra, og einnig fyrir hjálpsemi
við mig og mína, sem þær oft
hafa sýnt. Sérstaklega þakka eg
þeim, og fáeinu fólki utan safn-
aðarins, sem hlut á að máli, fyrir
gjöf þeirra við brottför mina héð-
an; gullúr og festi, sem mér er
enn kærra fyrir hugarþel það,
sem það lýsir til mín frá gefend-
anna hálfu, en fyrir verðmæti þess
þó það út af fyrir sig sé sannar-
lega þakklætisvert. Sömuleiðis
þakka eg presti Selkirk-safnaðar,
séra N. Stgr. Thorlakssyni, og
konu hans fyrir það hvernig þau
hafa rækt starf sitt í þarfir krist-
indómsmála Þessa bæjar um veru-
tíma minn hér. Minningin um
samveruna verður méir ævinlega
hugljúf endurminning, á hinum
nýju stöðvum okkar hjónanna,
hvað svo sem framtíðin ber í
skauti sínu.
fMrs.J R. J. Sanders.
Thos. H. Johnson,
fslenzkur lögfræClngur og mála-
færslumaCur.
Skrifstofa:— Room 33 Canada Llff
Block, suðaustur hornl Portagi
avenue og Maln st.
Utanáskrift:—P. O. Box 1364.
Telefón: 423. Wlnnlpeg, Man.
• Dr. O. Bjornson, l
t Office: 660 WILLIAM AVE. TEL. 89
< Office-tímar: 1.30 til 3 og 7 til 8 e, h.
| House : O20 McDermot Ave. TeI'
Office: 650 Wllllam ave. Tel, 80
I Hours :Í3 to 4 &17 to 8 p.m.
Residence : 620 McDermot ave. Tel.4300
WINNIPEG, MAN.
I. M. CleghoFn, M D
Iæknlr og yflrsetumaður.
Heflr keypt lyfJabúSina á. Baldur, og
heflr þvf sj&lfur umsjön & öllum meö-
ulum, sem hann lwtur frá sér.
Elizabeth St.,
BALDUR, - MAN.
P.S.—Islenzkur ttSIkur viC hendina
hvenær sem þörf gerist.
Fáheyrt kostahoð
Allir, sem skulda kjötverzlun
okkar smærri eða stærri peninga-
upphæðir og greiða skuldir sínar
að fullu fyrir 15. Okt. n. k., fá
þriggja centa afslátt á dollarnum.
Viðskiftavinum okkar veitum við
þessi sérstöku hlunnindi. Enn-
fremur gjörum við öllum kunnugt,
að 1. Október tökum við upp þá
gullvægu reglu, að láta hond selja
hendi (seljum fyrir peninga út í
höndj. Við vonum að við getum
sýnt viðskiftavinum okkar með vel
úti látnum vörum,að peningaverzl-
un borgar sig æfinlega bezt í öll-
um viðskiftum.
Helgason & Co.
Butchers
530 Sargent Ave.
614 Ross Ave.
EGTA
SÆNSKT
_____NEFTOBAK.
merki
Búi6 til af
Canada Snuff Co
Þetta er bezta neftóbakiö £
sem nokkurn tíma hefir
verið búiö til hér megin
hafsins. Til sölu hjá
H. S. BÁRDAL,
172 Nena Street.
Fæst til útsölu hjá
THE COMP. FACTORY
249 Foúntain St.,.Winnipeg
A. S. Bardal
121 NENA STREET,
selur líkkistur og annast
um útfarir. Allur útbún-
aður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina
Telephone 3o6
KerrBawlfMamee Ltd.l
UNDERTAKERS & EMBALMERS
229 Main Street, Winnipeg
RáSa yfir fyrirtaks sjúkravacni. Fljót 04
góí afgreiSsla. Hvltur barnalikvagn 4Ct
FERDI.N.
Píanó og Orgel
enn dviðjafnanlesr. Bezta teguad-
in sem fæst í Canada. Seld með
afborgunum.
Einkaútsala:
THE WINNIPEG PIANO & ORGAN CO.
295 Portage ave.
PETKE & KROMBEIN
hafa nú flutt í hina nýju fallegu búð sina
Nena Block. Þar selja þeir eins og áður
bezta tegundiraf nýju söltuðu og reyktu
kjöti.smjörgarðávöxtum og eggjum. Sann-
gjarnt verð.
Nena Block lsONena str.
Auglýsing.
Ef þér þurfið að senda peninga til ís-
lands, Bandaríkjanna eða til einhverra
staða innan Canada þá nptið Dominiop Ex-
press Company‘s Money Orders, útlendar
ávísanir eða póstsendingar.
LÁG IÐGJÖLD.
Aðal skrifsofa
482 Main St,, Winnipeg.
Skrifstofur viðsve|(ar um borgina, og
öllum borgum og þorpum víðsvegar um
landið meðfram Can. Pac. Jámbrautinni.
dftmtib eftir
— þvf ftð —;
Gúdu’s Buooingapappir
ieldur húsunum heitum; og Vftrnar kulda. Skrífið eftir sÝnishorn
um og verðskrá til
TEES & PERSSE, LIH-
áOBNTS, WJNNIFEG.