Lögberg - 16.11.1911, Blaðsíða 1
24. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 16. NÓVEMBER 1911
NÚMER 46
Konungur vor og drotn-
ing
Á leið til krýningar í Indlandi.
Georg konungur og María drotn-
ing héldu af stað frá London á
laugardaginn meö hinu fríðasta
fönineyti, á leiö til Indlands. Þar
á konungur vor aö krýnast til keis-
ara i Delhiborg þann 12. Desem-
ber, og er þaö i fyrsta sinn, að
ríkjandi konungur Englands legg-
ur upp x «líka ferö. Victoria drotn-
ing varö fyrst til aö taka keisara-
nafn yfir Indlandi, en kom þar
aldrei. Játvarður konungur var
og keisari yfir Indlandi, en kom
þar ekki eftir að hann tók konung-
dóm. Ferö konungs vors er búin
meö hinni mestu viðhöfn; Medina
heitir skip þaö, er hann ferðast á,
og er svo stórt, að 300 manns geta
setið þar aö matborði. Marga dýra
gripi hafa konungshjónin meö sér.
svo sem veizlubúnaö úr skíru
gulli, vígsluskrúöa sem krýning-
unni tilheyra, kórónu, veldissprota
og ríkis epli. Hertoginn af Teck,
mágur konungs, stýrir förinni og
með honum margir tignir menn og
stórir höföingjar, er hver hefir
sinn ákveöna starfa i krýningar
athöfninni og veizlum þeim, er
konungur mun halda höföingjum
á Indlandi.
Fjórir drekar fylgja skipi kon-
ungs alla leiö, en auk þess hittir
konungur fyrir sér nokkur herskip
sín, lxvar sem hann leggur til hafna
og nálega á annari hverri báru. ef
svo mætti segja. Hann fær tíðindi
á hverri stundu heiman aö meö
loítskeytum, og eftir því sem
lengra dregur burtu, verða þau
send yfir Gibraltar, Malta, Port
Said og Bombay.
' Konungur heíir sjálfur sagt fyr-
ir um tilhögun allra hluta á ferö-
inni og kernur honum nú aö góöu
haldi, aö hann er viöiförulli og
vanari feröum, en nokkur annar
konungur er ráöiö hefir Breta-
veldi á undan honum. Heimferð-
in er ráðiö að byrja skuli frá Cal-
cutta þann 12. Janúar.
Carnegie gefur enn.
Tibmargra Wuta hefir Carnegie
gefið stórfé, svo aö oflangt yröi
upp aö telja í fljótu bragöi. Allir
kannast viö bókahallimar, sem
hann hefir reisa látið víösvegar
um Ameríku og Bretaveldi. Hann
hefir lagt stórfé 11 eflingar heims-
friöi, annaö eins til verðlauna fyr-
ir hvatleik og hugprýði í lifsháska,
til ýmsra háskóla hefir hatxn gefið
og stofnað af nýju tvenna meö
10 miljón dollara tillagi til hvors.
Nú síöast 'hefir hann lagt 25 milj.
dollara til félags er stofnaö var á
þingi Bandamanna í fyrra, í því
skyni einu, aö sjá til með hvemig
vöxtum þess mikla auðs veröi var-
iö. Svo er taliö, aö gjafir Carne-
gies nemi alls um 200 miljónum
dollara.
Union bankinn flytur sig.
Union bankinn hefir hingaö til
haft aðal beykistöð sina í Quebec-
borg, þar sem h^nn var stofnaður
og mest fé var lagt til hans í
fyrstu. Nú er svo kotnið, aö bank-
inn hefir meira fé í veltu vestan
stórvatna en austan, og hefir miklu
meiri verzlun í Winnipeg heldur
en í nokkurri annari borg. Því
var þaö aö ráöi gert í vikunni
sem leiö, aö gera útibúið i Winni-
peg aö höfuöbóli fyrir starfsemi
bankans, og bendir þaö sem annaö
á vöxt og óðfluga viögang borg-
arinnar og sléttufylkjanna. Tveir
Winnipegmenn em í stjóirn bank-
ans, þeir E. L. Drewry og R. T.
Riley. Breytinguna verður aö
samþykkja meö lögum, svo aö hún
kemst ekki á fyr en meö vorinu.
Staðurinn tiltekinn.
Sú fregn keinur frá Ottawa í
morguni, að þaö sé ráöiö aö reisa
hinn nýja skála til heræfinga í
Winnipeg á Sargent ave., þar sem
skemtigarðanefndin lagöi til aö
setja lxann. Jafnframt er sagt, aö
þaö sé í undirbúnitigi. aö stofna
eina eða tvær hersveitir hér í borg
af þeitn mönnum, er fæddir eru ut-
an brezka rikisins. Æösti herfor-
ingi Vesturlandsins, Col. Steele,
er nú í Ottawa, og á þátt i þess-
um ráðabrotum.
Höfðingja skifti
Bonar Law tekur við af Balfour.
Það hefir gjörst tá Englandi,
sem þykir sæta meiri tíöindum en
flest annaö þar i landi um þessar
mundir, að J. A. Balfour hefir
lagt niður forstööu conservatíva
þingflokksinsi Hann bar fyrir
heilsuleysi, en kunnugir segja, aö
ástæöan sé fremur sú, aö hinum á-
kafari af flokksmönnum hans hafi
ekki þótt hann nógu öruggur í
þeim málum,. Sem flökkurinn sæk-
ir fastast, en þaö er hækkun tolla
og mótstaöa gegn rýmkun á rétt-
indum almennings. í þeim hluta
flokksins eru hátollamenn, kendir
viö stefnu Chamterlain’s, svo og
þeir lávarðar og höfðingjar, sem
harðast böröust gegn takmörkun á
valdi efri málstofunnar. Allhörö
rimma varð um það innan flokks-
ins, hver vera skyldi eftirmaöur
Balfours; vildu sumir hafa Austen
Chamberíain, son gamla Jósephs,
aðrir þann. er Walter Long heitir,
en sá varö loks hlutskarpastur, er
marga furöar á, meö þvi aö hann
hefir ekki verið lengi á þingi, hef-
ir hvorki auð fjár né metorð til
.þessa. Hann heitir Bonar Law,
er prestssonur frá New Bruns-
wick í Canada, og er hinn fyrsti af
sonum Canada til aö liljóta þessa
vandasömu vegsemdar stööu. Hann
er talinn maöur röskur og fylginn
sér, ákafur vinur hátolla og þvkir
conservatívum á Englandi hann
vænlegur til aö rétta h’ut þeirra,
er nú hefir lengi niöri legiö. Blöö
liberala hin ensku draga ekki dul
á, að hann muni haröari viöfangs
en nokkur annan, sem gat komiö
til greina í þá stööu.
Eftirköst Morokkó-
deilunnar.
Sú rimma var kölluð til lykta
ieidd þann 8. Nóv., er samníngur
Frakka og Þjóöverja var undir-
skrifaöur 1 Berlín af utanríkis-
ráöherra , Kiderlin-Waechter og
sendiherra Frakka Cambon. í
þeim samningum lofar þýzka
stjórnin, að láta aðgerðir Frakka
afskiftalausar í Morokkó, gegn því
aö Frakkar láti af hendi allmikiö
land sunnar í Afríku, fyrir noröan
Congófljót. Þaö land er 96 þús-
und og 500 fermílur að stærö með
rúmlega einni miljón íbúa og verzl-
un, sem nemur tveimur og hálfri
rniljón dollara á ári.
Með þessum samningi, sem er
betur þokkaður á Frakklandi en i
Þýzkalandi, er svo aö sjá, sem
skiftingu alls lands í Afríku sé
lokið. Að eins tvö ríki í Afríku
standa undir innlendra manna
stjórn, Liberia, sem Bandaríkin
vernda. og Abyssinia, senx keyröi
ítali af höndum sér fyrir fáum
árunx, og stendur fast á fótum.
Englendingar eiga . mest land 1
Afríku, Frakkar litlu minna; Þjóö^
verjar byrjuðu seinastir allra aö
“nema” þar land, en hafa fært
sig upp á skaftið á skömmum tíma
meö miklum dugnaði eöa frekju.
Svo er að sjá, sem mikill meiri
hluti Þjóöverja uni illa við mála-
lyktir, þyki minna hafa hafst upp
úr krafsinu en til stóö, og er sagt
meö vissu, að ríkiserfinginn, elzti
sonur keisarans, sé í broddi þeirr-
ar fylkingar. Þegar kanzlarinn
sagöi frá úrslitum málsins á þýzka
þinginu, fékk hann margar hnút-
ur, en enginn geröi róm aö máli
hans, nema þegar hann sagöi, aö
keisarinn vildi beita vopnum ef
ef sæmd ríkisins lægi viö.
Frakkar láta sem ekki sé ólik-
legt, aö skærur og viösjár hljótist
af samningunum út af landamerkj-
um og vænta sér ágengni af Þjóö-
verjum franwegis ekki síöur en
fyrirfarandi; þykir þó gott, aö
ekki skyldi til ófriðar koma. Þjóö-
verjar halda áfram vígbúnaöi til
sjávar einkanlega, og leggja ekki
í lágina, aö þeir vilji vera hverjum
jafnsnjallir. Að því veik flota-
ráöherra Breta, Winston Church,
ill, í ræöu sinni á fimtudaginn, á
þá leiö, aö brátt mundi úr skera,
hvort Bretar og Þjóöverjar héldu
áfram aö keppast um aö auka
herbúnað, ellegar tekið yröi til
annara ráöa. Það er nú bert fyr-
ir almenningi, aö miklu var nær
komið vopnaviöskiftum vit af Mor-
okkó málum, heldur en nokkurn
grunaöi út i frá.
Stríðið í Tripolis.
Hverir um sig, Tyrkir og ítalir,
ibera öðrurn illa söguna. Segja
sumar fréttir, að Italir sýni Aröb-
um mikla grimd, en aörir bera í
bætifláka fyrir þá og telja aftökur
og mannvíg utan bardaga svo
til komin, að Arabar, karlar og
konur, sýni þeim svikræöi, eitri
brunna, skeri særöa menn á háls1,
skjóti á þá sem 'hjúkra sárum
nxönnum, og hverjum ítölskum
hermanni sé bani vís, sem nokkuð
hvarflar frá liðinu, hnífstunga,
limlesting eöa meiöing einhvers
konar. Annars eru fréttir strjál-
ar af viðureign þeirra og mjög ó-
glöggar, því aö Italir hafa vakandi
auga á símafregnum, cg láta ekki
aðrar fréttir berast en þeim líkar.
Þeir eru að gera út flota sinn 1
leiðangur til Grikklands hafs, en
Tyrkir flýja af eyjunum og helzt
fyrir þá sök, að þeir óttast hina
grísku nágranna sína, að þeir leiti
hefndar við þá, þegar þeir hafa
flotann að baklxjarli. Af Tyrkj-
unx er það sagt, að þeir hafa mik-
inn viö'búnað heima fyrir, búa her
sinn og auka; snúa þeir sumu liö-
inu norður á bóg’nn til þess aö
vera viö Búlgaríu búnir, ef til
þarf aö taka, en sutnu ætla þeir
að beita viö ítali, ef þeir geta
kornið því við.
Þaö er ekki trútt um, aö illa
mælist fyrir þær aöfarir ítala, aö
vekja styrjöld af engu tilefni,,
r.tma ágirnd til landa og leiða þár
með dauða, drepsótt og hallæri
yfir fjölda manns.
Síðustu fréttir segja, aö Arabar
hafi, fyrir eggjan tyrkneskra
sendimanna, kvatt alla góða Mú-
hamedstrúarmenn til aö lcggja líf
og krafta í sölurnar til aö reka af
höndum sér hina kristnu, og aö
væntanlegur sé mikill her Araba
ofan úr fjöllum og innan af eiyöi-
mörkum, til aö berjast til þrautar
viö hinn italska her. Það fólk
kvaö vera hart og óþýtt, hiröi ekki
um dauða sinn, sé fult trúarofsa
og vel búiö aö vopnum. Tundur-
skipafloti Itala og margar víg-
snekkjur hafa sézt í Grikklands-
hafi fyrir noröan Krítarey. Stjóm
Tyrklands hefir tjáö sendiherrum
stórveldanna, að ef flotinn sæki
norður eftir hafinu, sjái hiin sig
neydda til að reka alla ítali burt
úr Tyrklandi.
C. N. R. teygir tána.
I Septemberlok haföi C. N. R.
félagiö látiö leggja 985 mílur af
járnbrautarteinum í Sásk. og Al-
berta, og tjáist muni ljúka viö eitt
hrndrað til, áöur en hörkur byrja.
Milli Calgary og Edmonton er
hryggurinn albúinn undir teina,
258 mílna langur, og stöövarstæö-
iö í Calgary undirbúiö svo að þar
rná taka til óspiltra málanna með
vorinu. 68 milna brautargaröur
hefir lagöur verið vestur frá Ed-
monton, og er ætlast til að tein-
arnir veröi settir þar á fyrir nýár.
—Mest hefir félagið lxaft aö vinna
í British Columbia. Þar eru á ein-
um stað þrenn járnbrautargöng á
þrem mílum. Eitt þúsund manna
eru þar aö verki og halda áfram
aö bora í allan vetur, því að þeir
hafa gott skjól þó að snjói. I
Ontario vinna 3.500 marma fyrir
félagiö á svæöinu frá Port Arthur
til Sellwood, 3 000 í Britisíh Col-
umbia, en alls og alls vinan 16,000
rnanns að því aö byggja brautir
félagsins.
Bæjarkosningarnar.
Um bæjarkosningar hefir litið
heyrst talað fyr en núna eftir siö-
ustu helgi. Þrir ráðsmannanna
hafa látiö það uppi, að1 þeir muni
sækja um endurkosningu. Þaö
eru þeir Cockburn, Harvey og
McArthur. Um borgarstjóra em-
bættiö sækja R. D. Waugh, sem nú
er bæjarráðsmaöur, og Frank W.
Adams, einn í bæjarstjórninni. I
þriöju kjördeild sækja J. J. Wal-
lace sem verið hefir fulltrúi þar,
°S W. J. Morley. I 4. kjördeild
hafa veriö tilnefndir, sem full-
trúaefni, Don Forester, J. A. Mc-
Kerchar og W. H. Hoop. Til-
nefningardagur verður eftir þrjár
vikur hér frá, og kosningar fara
fram aö mánuði liönum.
Styrjöldin í Kína.
Uppreisnármenn í Kínaveldi
gerast öflugri meö hverjum degi.
Hver stórborgin af annari gefst
á vald þeirra, liðsveitir keisara
ganga í lið meö þeim og þing í 14
fylkjum hafa lýst þvi, að þau séu
þeim samhuga. Uppreisnarmenn
viröast 'ara með ráöum og góöri
stjórn, fara spaklega, þar sem þeir
fá enga mótstööu, og hermannlega
þar sem þeim er viönám veitt.
Þrettán herskip keisarans gengu í
lið meö þeim á sunnudaginn. Þeir
hafa kvatt memx til þings í Shang-
hai. úr þeim héröðum, sem þeir
hafa á valdi sínu, til þess að sam-
þykkja stjórnarskrá og leggja á
skatta. Þaö þing ætlast þeir til að
korni í þess stað, sem nú situr á
rökstólum í Pekin, og keisara-
stjórnin kvaddi til. Þó er enn
langt frá því, aö þeir hafi náö full-
koitinum yfirtökum. Vetur fer i
hönd, og verður þá ó'hægt aö koma
við svo stórurn hersveitum sem við
þarf um langa leið og torsótta. Á
hallæri bólar allvíða, þar sem liös-
afli uppreisnarmanna hefir farið
urn eða haft dvöl og landstjórn er
óhönduleg í uppre snarfy’.kjunum.
senx viö er aö búast. Menn óttast
hungursneyð, þegar fram í sækir,
og drepsótt í fari hennar og upp-
hlaup og óviöráðanlegan ofsa al-
nxennings þegar svo er komið. Því
vilja hinir spakari koma sættum á,
þykjast vita, að áður en foringjar
uppreisnarmanna hafi bolmagn til
aö vinna bug á stjórn keisarans,
muni lýðurinn taka af þeim ráðin
og alt ríkið verða 1 hershöndum.
Hins vegar heldur svo mikill hluti
landsins trúnaði við keisarann, aö
þar er vis mótsaða, ef einhver
gefst foringinn. Af þessum hlut-
um spáir margur illa fyrir Kína-
veldi, ef ekki verður miölaö mál-
um mjög bráðlega.
Stjórn keisarans hefir helzt aö-
hafst það, aö gefa út yfirlýsingar
til almennings og lofa umbótum.
Keisarinn er barn aö aldri og til
einskis fær, en þeir, sem stjórna
landinu fyrir hann, virðast ekkert
aö'hafast; þeir eiga og öröugt aö-
stööu, því aö skattar gjaldast nær
engir, en lán torfengin í útlöndum.
meðan ekki sker úr. Þó er svo
sagt, að stjórnin safni liði sem á-
kafast norður og vestur í landi, og
má vel vera, aö hún sé athafna-
meiri en flestar fréttir herma.
Sá heitir Yuan Shi Kai, sem nú
er kallaður mestur maöur 1 Kína-
veldi. Hann hafði hæstu völd um
stund fyrir þrem árum, en var þá
hrundið og gerður aö fylkisstjóra
i útjaöri ríkisins, en sá heitir Chun
prinz, sem kom i stað hans og nú
er viö völd, maður brögöóttur,
stórauðugur og miöur vel þokkað-
ur. Nú þegar i nauöirnar rak,
sneri stjórnin sér til Ýuans og baö
hann fyrir hvem mun að taka við
æðstu völdum á ný og duga sér.
Han ntók því seinlega, en lét þó
tilleiðast að lokum og kom til
Pekin á sunnudaginn með 2.000
rnanns; var þegar öllum ráðum
skotið til hans.
Sumir álíta, að skjótt muni að
þvi reka„ aö Kínaveldi liöist í
sundur. Sagt er aö Rússar hafi
sent 1,500 Kósakka til Pekin-borg-
ar, sem undanfara meira liös, er
þeir ætli sér að hafa til taks, ef að
því skyldi koma, aö skifta upp
hinu forna ríki Kínverja.
Vetnrinn
gekk i garö í vikunni snögglega og
heldur harkalega. Bylur gekk yf-
ir öll sléttufylkin meö talsveröri
snjókomu, frosti og sterktun
stormi. Þá kólnaöi í veöri frá 10
til 30 stig á einu dægri.
I Calgary féll 8 þuml. snjór
meö mikilli frosthörku, 22 stig
fyrir neöan núll og álíka er sagt
frá Alberta fylki frá Calgary til
Edmonton. *í Regina var 20 stiga
frost, 18 í Saskatoon, 17 í Moose
Jaw. I Manitoba var frostiö
minna. — I Alberta er þreskingu
hvergi nærri lokið, og veröur víöa
að fresta henni til vors; þó er sagt
að sumir hafi haldið áfram aö
þreskja þó kalt væri, þar sem
minst var snjókoman, en haust-
plæging tók alstaöar fyrir.
Suöur í Bandarikjum urðu skaö-
ar og manntjón af völdum of-
viðris og hríðar; skipskaðar á
Kyrarhafsströnd með mannbjörg
þó og margvíslegur hrakningur.
Ur bœnum
Herra M. Markússon fór á
Sigurður E. Johnson og Sigur-
þriöjudaginn var vestur á Kyrra- rós E. Markússon voru gefin sam-
hafsströnd, til Vancouver og Se-
attle. /Etlar aö verða 1 feröinni
Stefán Jónsson frá Brú í Ar-
gylebygð var hér staddúr í bænurn rúma viku.
um söastliðna helgi. j ____________
,r • , . . , Herra Halldór Eggertsson kaup-
Iveir menn kalmr a hondum og ■ x, ,, , . A ,,
. r,. x, & maöur a Baldur, er her staddur
fótum voru fluttir á St. Boniface
hospitalið á laugardaginn var.
i um þessar mundir. Hann hefir nú
_______ ! selt verzlun sína í Baldur og hefir
Eimlestir xit úm alt þetta fylki * flytja hingaö til bœjarins
hafa tafist af þessum fyrsta snjó, °£ setjast hér aö.
sem falliö hefir í haust. j
----------- j Herra Hjörtur Sigurðsson og
Á þriðjudaginn var kviknaöi í Sigurður sonur hans frá Baldur,
vagnstöð George Snow á Main str. enx nú staddir hér x bænum. Mr.
og uröu skemdir af þeim bruna Sigurösson hefir lengi búiö í Ar-
um $11,000. ‘gy’e-bygð, en er nú aö flytja meö
j fjölskyldu sína vestur aö Kyrra-
an 1 hjónaband aö Flugustööum í
Breiöuvík í Nýja íslandi þ. 18.
Okt. síðastl. Séra Jóhann Bjama-
son gaf þau saman. Brúöguminn
er sonur Einars bónda Johnsons á
Flugustöðum, en brúðurin dóttir
Einafs sál. Markússonar sem bjó
á Víðirhóli í Breiöuvik.
Tekjur strætisvagnafél. hér níu Ha-fi-
fyrstu mánuöi þessa árs eru tald- -----------—
ar $1,433,540 eöa rúrnum 24 prct. Jaröskjálítamælirinn í St. Boni-
hærri en á sama tímabili i fyrra. j face sagöi jarðskjálfta öðru hvoru
------------! allan mánudaginn. Jaröskjálfta-
Enn eru dagblööin aö f jölyröa; svæöið um 3,600 milur burtu. Ekki
um sölu strætisvagnafélagsins hér hefir enn frézt hvar sá jaröskjálfti
í bænurn. Alt samt á huldu, eins hefir veriö mestur eöa hvort tjón
og áður, um þaö mál.
i hefir hlotizt af honum.
Rúm 40,000 manns eru á kjör-j Hon. Frank OHver var staddur
sk,á til bæjarstjómatkosninga hér i bænum eftir helgina. Haim
hér í ^ Winnipeg þetta ár. Um var a kie austur til Qttawa. Eng-
brezkir an fHigufót kvaö hann fyrir þvi,
hyggju aö hætta
3 000 þeirra
þegnar.
eru ekki
aö hann hefði 1
1 að gefa sig viö
stjórnarstörfum.
Carson Creaxuéry félagiö hér i B]öe conservatíva höföu verið aö
bæ ætlar aö láta reisa stórihýsi breiöa þaö út
mikið andspænis Happyland. Ái
sú bygging aö kosta um fjóröung
miljónar dollara.
Þaö hefir komið’ til mála aö
bærinn og strætisvagnafélagið hér
komi á •satnbandi milli aflstöðva
Rotturnar erti aö gerast mjog ^ þannj ag ef önnur hvor
aleitnar her . Wmmpegbæ og biIa8i ^ ti hin veitt þeim raf.
hlaupa um goturnar um habjartan, afþ sem meS þ ftu
dag. Hvorki bæjar eða fylkis-
stjórn gera enn neitt til að hefta
þann ófögnuö.
óráðið hvort nokkuð
þessu eöa ekki.
Enn er þó
veröur af
Herra Árni Eggertsson fatet-
eignasali hér í bænum. auglýsir á
firatu síðu þessa blaðsins mikil
kjörkaup á lóöum undir íbúðarhús
á svæöi sunnan viö Assiniboine-á i
grend viö Crescent Wood innan
bæjartakmarkanna. Landar vorir,
sem hafa hug á aö eignast lóöir á
þessu svæöi, ættu aö finna herra
Eggertsson aö máli; hann hefir
þar lóðir á ýmsu veröi, og er hinn
liprasti og þægilegasti maður í öll-
um viðskiftum.
Insurance blaöið “Office and
Field” getur þess aö New York
Life félagið hafi náö því hámarki
sem núverandi lög leyfa viövtkj-
andi nýju starfi á þessu ári, nfl.
$177,000,000. — Samkvæmt því
yrði þetta afarmikla félag annaöt-
hvort aö selja engum ábyrgö til
næsta nýárs eöa láta þaö, sem gert
verður teljast meö næsta árs starfi
og verður þaö sjálfsagt úr, því aö
óhæfa væri að neita heilbrigöu
fólki um tryggingu. Þetta sýnir
hversu óhafandi þessi lagagreín
er, enda er búist viö aö hún veröi
úr gildi numin.
,.v. , , v Laugardagsskólinn var allvel
Siðastliöinn sunnudagur var þaö sóktur siðast annað sJnni>
sem a herlendu rnali er nefndur^ hann hefir yerið haldinn
„Temperance Sunday”, og þá er í
kristnum kirkjum alment bent á
ókosti ofdrykkjunnar og nytsemi
bindindissemi.
ur
Herra Pétur Thorsteinsson, son-
merkisbóndans Steingríms
sem
á þessu
hausti. Þar mættu rúmlega sextíu
nemendur. Þar er enn rútn fyrir
fleiri. Sendiö bömin yðar á
laugardagsskólann, íslendingar
Winnipeg.
, , Hr. H. S. Bardal, bóksali aug-
Ihorsteuissonar , Wynyard, kom lýsir fjöldann a],an a{ islenzlcl]^
hingaö til bæjanns nyskeö. Pet- ^ á síðu þessa blaSs Sum.
ur gengur a bunaðarskola Mamto- ar eru nýkomnar af íslandi 5 boka_
bafylkis. Þetta er þrtðja anö hm hans Þar en]
hans þar.
Aö kveldi 10. þ. m. voru þau s B
George Randver Henry og Jó-|
hanna Vilborg Björnsson gefin
saman í hjónaband að 676 Sar-
gent ave. hér í bæ. Veizla var
hentugar bækur til jólagjafa. Les-
iö 'bókaskárna og finnið herra H.
Þeir Magnús Jónsson guöfræö-
ingur og Baldur Sveinsson lögöu
af staö heim til íslands á Iaugar-
daginn var. Þeir ætluðu aö leggja
leið sína suöur um Bandariki og
stiga á skip í New York. Þaðan
til Liverpool, London, Þýikalands
og Kaupmannahafnar; og þaðan
lieim til Islands. — Tjaldbúðar-
söfnuöur hélt Magnúsd samsæti
áöur en hann fór og Baldri Sveins-
syni buöu margir kunningjar í bæn
1 ttm heirn til aö kveðja hann. Næst
siðasta kveldi var hann i heimboöi
hjá Dr. O. Stephensen. en síöasta
kveldiö hjá herra H. S. Bardal.
Herra Ámi Eggertsson bauö þeim
Baldri og Magnúsi i miödegis-
veizlu daginn sem þeir lögðu af
staö. Þeir bjuggust viö aö’ veröa
komnir til íslands um 15. n. m.
Sökum þess hve snemrna tók að
snugga aö 1 haust varö aö hætta
. ... _ . , . . , ., , . . i steinsteyping við Midland járn-
haldin að loktnnt hjonavigslunnt. brautina hér j tenum. Félagiö
Dr. Jon Bjarnason gaf þau saman. ;hefir þy] eigJ ség séf fært að ljúka
Meðritstjóri Lögbergs i staö
Baldurs Sveinssonar er ráöinn
því verki liér sem það haföi sam-
iö um viö bæinn, og hefir farið
þess á leit að fá frest á verkinu,
kand. Kristján Sigurösson.^ Hann Qg beieist undan sektum þó aö það
hefir dvaliö hér vestra um átta ára
tíma, er ritfær vel og lesendum
geti ekki fullnægt samningunum.
Lögbergs kunnur fjær og nær, því
að hann hefir ýmislegt í þaö bTaö
skrifaö bæöi fyr og siðar. Vér
tnu
Margir íslenzkir drengir hafa
gengiö í “Boys Club” deiid þá,
. x , 1 sem hefir húsnæöi í gömlu ísl.
.1 \ ktrkjunm a hornt Sherbrooke og
Pacific. Þeir temja sér þar ýms-
ar leikfimnisæfingar o. fl. nyt-
samlegt. — Inngangseyrir er einn
dollar um áriö. Ungir drengir og
ærslamiklir eru miklu betur komn
ir þar, á kveldin en í erlinum i
strætum bæjarins.
Þess láðist aö getai, er talin
voru upp nýskeö hér í blaðinu
gullbrúðhjón hér vestan hafs, aö
Jósef B’jörnsson og Málmifríöur
Hallgrímsdóttir jfrá Vestaralandi
í Axarfiröi í Þingeyjarsýslu héldu ___________
gullbrúökaup sitt vestur í Argyle ., .
nokkru eftir síöastliöin aldamót.; FyHosstjoruin er aö gera raö-
Jósef Björnsson var móöurbróöir; stafanir l’í Þess aS fa uPPdratti
og fóstri Björns Waltersonar.
Björn Walterson er
vestan frá Argyle og var þresk-
ingu þar lokiö’ er hami fór þaöan.
Uppskera góö og varö svo sem
hann gat til viö Lögberg seint í
sumar frá 18 til 30 bushel af ekru.
Þeir Waltersons bræöur fengu um
30 bushel hveitis af ekru. 60—70
af höfrum og 47 af byggi. Björn
skrapp vestur aftur í gær og kem-
ur aftur eftir nokkra daga.
geröa aö hinum væntanlegu stjórn-
arbyggingum hér í bœnum. Kostn-
nýkominn! a®ur Þeirra er ^laöur um 2,000.-1 norSur'tif Lundar
Aðfaranótt síðastliðins mánu-
dags andaöist aö heimili sínu/ 710
Ross ave., húsfrú Guörún Jóhann-
esson, kona Sigurðar J. Jólliannes-
sonar skálds. Hún lá stutt, rétta
sjö daga. Banamein hennar var
lungnabólga. Guörún sál. var 72
ára gömul, fædd 1 Aíánaskál i
Laxárdal í Húnavatnssýslu. Hún
var ein meö tnerkustu konttm ís-
lenzkum vestan 'hafs, frábæríega
vel gefin, trygglynd og vinsæl.
Hjónaband þeirra Siguröar var
hið ástúölegasta. Gullbrúðkaup
sitt héldu þau réttum hálfum mán-
uði- áður en hún lézt. Dætur
þeirra þrjár eru á lífi, tvær giftar
hér t Winnipeg, en ein ógift, og
bjó hún hjá foreldrum sínttm. —
Guðrúnar sál. verður aö líkindum
minst riákvæmar hér í blaðinu
siöar. Jaröarför hennar fór fram
á miövikudaginn. Dr. Jón
Bjarnason hélt húskveöju og lík-
ræðu í kirkjunni.
Séra Carl J. Olson kom aö vest-
an 1 vikunni. Hann haföi hér
stutta viödvöl í bænum, en fór
í Álftavatns-
................. , bygö og þjónar söfnuðinum þar
etgt mjog t.l byggmga þessara stvo um hris _ Allir prestlausir sofn.
000 dollara. Mælt er aö vanda
að þær verði einhverjar fegurstu
byggingar þeirrar tegundar. sem
til eru í Canada. Nýju stjórnar-
byggingarnar eiga aö standa á
svæðinu, sem Broadway, Kennedy
stræti, Assiniboine áin og Osborne
stræti afmarka.
Baldvin G. Stefánsson, 29 ára
gamall, til heitnilis hjá foreUrum
sínum Guöna Stefánssyni og Guö-
nýju Högnadóttur. í Árdalsbygö í
Nýja ísiandi, andaöist snögglega
af heilblóðfalli þ. 2. þ.m. Var á
feröalagi meö fólk og flutning frá haft ómetanlegan hag af því aö
Árborg austur til Geysisbygöar og eiga fasteignakaup viö herra Odd-
andaðist á leiöinni heim þaöanJsoní, og nú gefst þeim nýtt færi á
Herra Th. Oddson, hinn góö-
kunni fasteignasali hér 1 bæ, ætl-
ar aö bjóða lesendum Lögbergs
fáheyrö fasteigna kjörkaup á í-
búöarlóöum, íögrum og skógi
vöxnum, vestur með Assiniboine-
á. Fjöldamargir tslendingar hafa
uðir í kirkjufélaginu vilja fá séra
Carí Olson.
Ivögberg hefir verið beöiö aö
geta þess. aö félagið “Ingólfur” í
Vancouver, B. C., hafi fastráöiö
aö veita bömum og unglingum til-
sögn t íslenzkri tungu á sunnudög-
um eftir hádegi. ÞaÖ er æriast til
aö þeiri, sem vilja sinna þessu þar
vestra, gefi sig fram viö J. P. ís-
dal eöa Helga Johnson eöa Miss
Emily Anderson, er öll eiga heima
í Vancouver.
Mælt er aö seldur sé nýskeö
einn fjóröungur hins svonefnda
Baldvin var röskleika maður og því. Lesið vandlega auglýsing! Tttxedo Parks, hér viö bæinn og
ellistoð foreldra sinna. Þau hjón frá honum í næsta blaði Lögbergs,! ttm 1,100 ekrur sem aö honum
bjuggu áöttr á Árbakka í Borgar-!og finnið' hann aö máli. Þaö liggja. Söluverðið var um eina
firöi í N.-Múlasýslu. í borgar sig. miljón dollara.