Lögberg - 15.05.1913, Blaðsíða 1

Lögberg - 15.05.1913, Blaðsíða 1
Þegar nota þarf LUMBER Þá REYNIÐ THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD. WINNIPEG, MAN. Furu Hurdir, Furu Finish Vérhöfum birgðimar THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD. WINNIPEG, MAN. 26. ARGANGUR Róstur jkvenna. Þær sem sækja eftir atkvæöis- rétti á Bretlandi meö hryðjuverk- um og frekju, hafa látiö mikiö á sér bera upp á síökastið. Einn daginn fanst sprengivél í einu gistihúsi borgarinnar, þarsem fjöldi fólks var gestkomandi; ut- an um sprengivélina var vafiö skjali, og stóö þar á: “Atkvæöi fyrir konur!” íStúlka var hand- tekin fyrir þaö ódæöi. Einn morg- un kviknaöi eldur í einni kirkju í London; prestur var í kirkju snemnia og sá þrjár persónur ut- ar í kirkjunni, hugöi þær vera þar komnar til aö gera bænir sínar, með því aö kirkjan stendur ævin- lega opin, þeiin sem viljast biöj- ast fyrir. Prestur gekk sína leið, en lítilli stundu síöar stðó kirkjan i báli. Kvenréttinda konum er kent um þaö hryöjuverk. Margar aörar sögur eru sagðar af ótrú- legum frekju og grimdarverkum þeirra. Þegar þær eru teknar fastar eöa færöar fyrir dómara, þá láta þær einsog götudrengir aö sögn, tala viö dómarann einsog þær væru heima hjá sér og hlægja aö þvi, þegar þær eru kærðar um sakir, er varöa margra ára fang- elsi, ef karlmenn ættu í hlut. Forsprakkar þeirra sumir eru flúnir úr landi, eftir að lögreglan tók aðalaðsetur þeirra og lagöi löghald á; þaö hefir sannast, að kvenfólkið, sem kveikir í húsum og sprengir byggingar og mann- virki í loft upp, gera þaö ekki í bræöi eða af ofsa, heldur fyrir kaup, en sjóö sinn hefir kvenfólk- iö haft inn meö samskotum, er sum hafa gefin verið af fúsum vilja, en spm ekki. Mikill óhug- ur stendur Bretimi af ráölagi þessara kvenna. . Þegar Scott fanst. Kientenant Gran var einn þeirra er leituðu að Capt. Scott og sagði hann svo frá, er hann fór um Canada í vikunni sem leiö, aö Scott hafi dáiö síðastur þeirra fé- laga. Hann lá sjálfur upp í loft og hvílupoki hans viö hliðina á honiun, en félagar hans voru í sínum hvílupokum og mjög vel frá þeim gengiö, og gat enginn annar en Scott hafa gert það. Þeir voru bjargarlausir og eldi- viöar lausir, og munu hafa farizt af kulda, — beinlinis frosiö i hel. Vistabirgi var aöeins 9 mílur á brott, en það er sögö rösk dagleiö á þeim slóðum, og hafa þeir ekki haft orku til aö ná þangað. “Vér tókum þá félaga og lögðum þá hvern við hliðina á öörum, tókum ofan tjaldið og breiddum yfir þá, hlóðum þar á ofan stóra vöröu af klaka, 15 feta háa, tókum skíöi og negldum í kross og stungum ofan í vörðuna, og bjuggum um þá með reglulegum greftrunar for- mála.” Og þannig var þeim varöi reistur á ísmörkinni. Dauður konungsbani. Aleko Schinas, sá er myrti Georg Grikkja konung, fyrir fór sé!r einn daginn, meö þvi aö kasta sér út um glugga á fangelsi sínu í Saloniki. Hann sat um konung- inn og skaut hann í bakið er hann var á gangi á götum Saloniki borgar. Hann sagöi ástæöuna veriö hafa þá, aö fyrir þrem árum kom hann til hallar konungs að biðja um hjálp, en var vísað á bug af hallarþjónum. Schinas var aö fram kominn af brjóstveiki. 1 friðar erindum. Meö göfugu föruneyti er til þessarar álfu kominn jarlinn af Waerdale, brezkur maður tiginn, í þeim erindum, aö undirbúa stór- hátíö aö ári til minningar um þaö, aö þá veröa hundrað ár liöin frá því friður var saminn með Eng- lendingum og Bandamönnum, en tve&gja ara ófriði þeirra lauk meö friöarsamningi í Ghent þann 24. 1814. Sendinefnd þessi hin brezka hefir haft góöar viðtökur, og hef- ir gamli Carnegie, sem er óþreyt- andi friðar postuli, einkum stutt aö þvi. Theodore Roosevelt hef:r og haft þá i boöi sínu og kveöiö skörulega á um aö meö smningum WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 15. MAÍ 1913 NÚMER 20 milli Breta og Bandamanna skuli öllum ágreiningsefnum i framtíð- inni ráöið til lykta. Australia og Canada hefir sina fulltrúa i þess- ari sendinefnd. Allrar veraldar veg er genginn víökunnur landi vor Steingrímur Stefánsson. Hann andaðist 4. Maí síöastliöinn, eftir langa legu, í Washington D. C., þarsem hann hafði dvalið í ein 14 ár, sem einn af bókavörðum viö bókhlöðu þingsins. Steingrímur var fæddur 12. Júní 1860, á Álfta- nesi, varð stúdent árið 1881 og stundaði reiknings nám við Hafn- ar háskóla í nokkur ár, en til Chicago borgar mun hann hafa komið fyrir rúmum tuttugu árum; gerðist þar aðstoðar maöur viö Newberry bókasafn, og fekk svo rnikiö orö á sig fyrir fróðleik og þekkingu á hinumi óskyldustu fræðigreinum, að hann var færöur til Washington, þarsem löggjafar landsins gætu fært sér fróöleik lians bezt í nyt. Þar giftist hann fyrir hér um bil átta árum ekkju frá New York, Mrs. Annie Fooley ffædd Miss O'ReillyJ, og andað- ist hún í fyrra vetur, í December mánuöi. Steingrimur er sagður veriö hafa meö skörpustu mönnum, afar víðlesinn, minnugur, hvass til skilnings, oröfær manna bezt í kappræðunx og jafnvígur á flestan lærdóm. Hann lét rninna til sín taka, utan síns verkahrings, en vænta mátti, svo vel gefinn maður, en til þess bar einkum, að hann hafði engan metnað til að bera og lét sig engu skifta álit almennings, heldur lifði einsog honum líkaði sjálfum bezt, hvaö sem aðrir hugs- uðu eða sögöu um þaö. Hann átti fáa kunningja, en þeim var hann hollur og tryggur og þeir honum. Hann var i miklu áliti meðal sam- verka manna sinna fyrir sínar óvenju miklu gáfur og fróðleik. Kosningin. í Gimli kjördæmi er um garö geng- in og fór á þá leið, sem þeir spáöu, er kunnugastir voru aöferö Roblin stjórnarinnar í kosningnm. Herra Árni Eggertsso náði ekki kosningu aö vísu, en hann og hans menn lögðu sig rösklega fram meö öll- um löglegum ráöum og heföu vafa- laust unniö glæsilegan sigur, ef ekki hefði verið beitt fantalegum hörkubrögöum á móti. Um þaö ber öllum saman, aö aldrei hafi kosningabrellum Roblin stjórnar- innar veriö beitt með meiri ó- skamfeilni heldur en i þetta sinn. Hún kom sér líka vel við, hafði í engin önnur horn aö líta og gat þvi óskift gengiö meö öllu afli að verki. Peningar og whisky voru aðalvopnin, svo og loforö um alls- konar hagræöi bæöi sveitum og einstökum mönnum til handa og ennfremur heitingar sérstaklega um það, aö ekkert yröi gert í kjördæminu, ef mótstöðumaður stjórnarinnar yrði kosinn. Hversu harövítugt var aö verki gengið af stjórnarinnar mönnum, sýnir sig bezt á þvi, að eitt kjörsvæði lítið létu þeir afskifta laust, og þar fekk Mr. Eggertson 18 atkvæöi fram yfir mótstööumann sinn, en víðast hvar annars staðar var vopnunxim beitt svo ósleitiléga, aö þingmaö- ur conservativa hefir um 70O at- kvæöi fram vfir. Þaö kann að vera afsakanlegt, aö kjósendur bugast fyrir fögrum loforöum og hörðum hótunum, en þeir sem stóöu stööugir og létu ekki þokast hafa gert sjálfum séV sóma og landi sinu mest gagn. Þeir hafa sýnt drenglund og manndónx, og gefiö gott eftirdæmi sem nýtir borgarar. Úr bœnum Herra Kristján Bessason, fyrr- unx í Nýja íslandi biöur þess getiö að heimilisfang sitt sé, Canadian Fish & Cold Storage Co., Prince Rupert B. C. Heim til íslands í skemtiferö fóru á miðvikudaginn Sofonias Thorkelsson sögunarmaötir héöan úr bænum og Sveinn Thompson aktýgjasmiöur úr Selkirk. Á mánudags morguninn lögöu héöan upp þeir bræöur Jónas lækn- ir Kristjánsson og Guömundur Christie, svo og Mrs. Christie. Þau ætluöu beint til Björgvin i Noregi og ná þar i skip til Norð- urlands. Mr. og Mrs. Christie koma aftur seinni part sumars. Miss Margrét J. Bardal lagöi af staö heim til íslands í gærmorgnn og ætlar til foreldra sinna, Karls Sigurjónssonar Bardals og konu hans senv-búa að Bjargi i Miöfirði. Margrét kom vestur fyrir tveim árum nxeð H. S. Bardal fööurbróö- ur sinum. Henni var haldið sam- sæti áður en hún fór á þriðju- dagskveldiö aö heimili Mrs. A. Hinrikssonar. Komu þar saman kunningjar hennar og skyldfólk aö kveöja hana'og var henni gefið aö skilnaöi hálsmen og nisti, hvort- tveggja góöir gripir. Á föstudagskveldiö var kornu hingaö til borgar 17 islenzkir inn- flytjendur. Úr Reykjavík voru : Ásdís Arason (móöir Sigtryggs Arasonar stilsetjara LögbergsJ, og Hólmfríöur dóttir hennar. Mark- ús og Sigríður, börn Einars Mark- ússonar (ráösmanns holdsveikra spitalansj, Daniel G. Thorsteins- son, Hjálmar Sumarliöason, Sig- urbjörg Pálsson (móöir Jónasar Pálssonar söngkennara og þeirra bræöra), Ögmundur Sigurðsson, klæöskeri, Jörundur Jóns'son, Jón Eyjólfsson, Guöbjörg Jónsson, Bjarni Torfason og kona hans og Þorsteinn Jónsson. — Úr Hafnar- firöi: Sigurður Vigfússon. Úr Borgarfiröi: Friðfinnur Jónsson og Steinunn Jónsdóttir. Byggingarleyfi Wpg borgar eru nú komin yfir y/2 miljón dollara. — Nokkru minna en urn sarna leyti í fyrra. Mr. og Mrs. S. B. Brynjólfsson fóru nýskeö suður til Bandaríkja og dvelja þar um tíma. Ásmundur Jóhannsson con- tractor lagöi af staö hefm til Is- lands i skemtiftrð í gærmorgun ásamt konu sinni og þrem sonum. Hann bjóst viö aö dvelja aö minsta kosti sunxarlangt austanhafs. Einhver frétta slæöingur hefir borist hingaö vestur um þaö að Hekla sé aö gjósa og jarðskjálfta hafi oröiö vart á Suöurlandi. Lik- lega ekki mikil brögö aö því úr því blöðin hafa ekki fengiö símskeyti um það vestur. Maður sem er alvanur verzlun og hefir veitt verzlun forstööu í fjögur ár, óskar aö fá atvinnu ef um semur kaup. — Lögberg vísar á. Herra J. J. Vopni féhirðir kirkjufélagsins biður þess getiö, að í fjarveru sinni í sumar annist varaféhiröirinn, herra Friöjón Friðriksson fjármál kirkjufélags- ins, og biöur menn í þeim efnum aö snúa sér til hans. Heiuiili Mr. Friðrikssonar er aö 602 Alver- stone stræti hér í bænum. Þjóðhátíð halda Norðmenn á föstudaginn þann 16. Maí í ár, er fer fram á Manitoba Hall. Þar verður margt til skemtunar; meöal annars syngur þar sóló herra H. S. Helgason éSigurð Jorsalafar eftir GriegJ. Borgarstjórinn Deacon situr veizlu þessa og flyt- ur þar ræöu og fleiri góöir ræðu- menn veröa þar. Aðal ræöuna á að halda E. Smith—Petersen, lög- maður frá Park River N. D. — Aögöngumiöar fást viö innganginn og kosta 1 dollar fyrir karlmenn og 50 cent fyrir kvenfólk. Hvaðanœfa. — Bandarikja stjórn hefir viö- urkent Kína sem lýðveldi. Jafn- framt hefir Dr. San Yat Sen sent út áskoranir til ýmsra landa, að lána ekki JCínastjórn peninga, meö' þvi aö þeir muni veröa brúkaðir til aö kúga þjóðina. Þing þeirra Kinverjanna hefir meö miklum atkvæöamun samþykt árnæli á hendur Yuan forseta fyrir tilraun lians til að fá lán lijá stórveldun- um, nxeö skilyröum er Kínverjum sé óvirðing aö. — Þrjú herskip gríðarstór er nýbyrjaö að snxíöa í Japan, hina ógurlegustu bryndreka, er þar lxafa sést. Svo er aö sjá, sem aör- ar þjóöir vita ekki meö vissu, hvernig vígvélum er háttaö í þess- um nýju skipum. + ♦ + + + + + + + + + + + + + + + ♦ + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + + * + + + ♦ + + + + + + + + + Guðrún Indriðadóttir. Kveðja frá Helga magra. Hver sannsögull leikur er líf okkar sjálft, sem lætur oss skilja þaö betur. sem. yndis- og sorgdjúpið heilt jafnt sem hálft viö hug vorn í nátengsli setur. Sem sýnir oss drauminn, er dagurinn sá, og drauminn, sem koldimma framtiöin á. Hver leikari sannur, er lærisveinn trúr, sem listina meistarans krýnir. Sem leysir hvert hugtakiö lesrúnum úr og lifandi bókstaf hvern sýnir. Sem blossandi löngun og þungdjúpa þrá í þjóöanna fylgsnum oss kennir aö sjá. Og Guörún þar áttu þér öndvegi glæst á íslenzkum vorgróöurs lönduni. Nú er ekki svefnhöllin lengur sxi læst, sem listina geymi í böndum. Og snildin fær sigur en heimskan flýr hljóö frá hækkandi gróð'ri og vakandi þjóö. Og kornan þín var okkur Vestmönnum kær, sem velkjumst meö álfum og tröllum. Hvert svipbrigði þitt var sem sveröglampi skær og sólskin um vordag á f jöllum.--- Hver leikur hér þyrfti aö laga oss með písl og láta oss brenna og frjósa á víxl. Nú flyturðu á vori meö fuglunum þeim, sém fjallanna í blámóðu leita. Og þökk vor þér fylgir hin hlýjasta heim um haíið til ættjaröarsveita. Þar á hún bezt heirna vor íslenzka list. Þar öölast hún gildi sitt sí'ðast og fyrst. . Þ. Þ. Þ. t t t X + t t t f + ♦ I t + + + I + + t t t + + + + + + + + + + + t t + I + + + + + 1 + i + t t t — Sir Wilfrid Laurier hélt fund i Toronto 5. Maí, mjög fjölsóttan, um stefnu liberala í herflota mál- inu, og sýndi fram á, aö stjórnin hefði framið ósvinnu, aö skjóta ekki því máli til úrskurðar þjóð- arinnar. Hann fordæmdi einnig kröftuglega þaö örþrifaráð con- servativa, aö breyta þingsköpum sér í hag, meöan á deilunni stóö. — Brezka stjórnin hefir viöur- kent stjórn Huerta í Mexico, og hefir Georg Bretakonungur sent forseta þessum bréf, ritaö meö sinni eigin hendi. Huerta er sagð- ur illa staddur, félaus með öllu, en uppreisn magnast í landinu á hend- ur honum. -— Ennþá horfir til sundurþykk- is meö Bandamönnum og Japön- uni xxt af löggjöf Californiu hin- um síöari viðvíkjandi. Fyrir at- beina utanrikis ráðherrans Brvans, var ákvæöi laganna um þá Japana, er eignast vildu lönd i California breytt á þann veg, er Japansstjórn lét sér lynda, en jafnframt var lagður 10O dala skattur á fiski- veiðalevfi japanskra manna fyrir Californiu ströndum; fyrir það leyfi borga aörir útlendingar 10 dali en Bandamenn sjálfir aðeins $2.50. Japanar eru uppvægir yfir þessu. Lausafréttir segja japönsk skip vera á sveimi við mælingar meðfram ströndum Alaska. —- Þar sem heitir Auburn í New York ríki, lögöu verkamenn i vei'ksmiöjum International Har- vester félagsins niöur vinnu sina. Þangaö varö aö senda herliö til aö skakka leikinn. Kvenfólk var fult svo harövítugt í þeim óróa, er þar gerðist, einsog karlmenn. Grjót var þar haft að vopnum og hvað annað sem hönd festi á. — Fjörutíu og fimm mílur aust^- ur af Prince Rupert hafa fundizt allmiklar saltnámur, skamt þaöan sem Grand Trunk brautin liggur. Kuwitiza heitir staðurinn þarsem þetta steinsalt hefir fundizt og er þaö hin fyrsta saltnáma er menn hafa orðið varir viö i hinu málm- auðga British Columbia. — Fullgera skal í sumar biaut C. N. R. félagsins milli Toronto og Edmonton. Sá partur sem eftir er, liggur milli Port Arthur og Subbury og þar eru nú mörg þús- und manns aö verki. Til hafsins þykjast þeir ætla aö komast meö brautina i árslokin. Meö vorinu á aö kaupa stór eimskip, og ætlar þetta járnbrautarfélag aö láta þau ganga milli Varicouver og Asiu og Astraliu, en sum um Panama skurö til Evrópu. — Um næstu mánaða mót verð- ur fullgert hús þaö er ætlað er fyr- ir sölutorg þeirra matvæla, sem bændur selja borgarbúum, svo sem ket, kálmeti o. s. fr, Þessi nýi “stóri markaöur” er á Main St., sunnan viö Iðnaöar sýninguna. —a Sex ára gamalt stiilkubarn var drepið í Calgary, skorið á háls af verkamanni, er nefnist Josep Dionne. Faðir bamsins leitaði þess í kofa mannsins, sem var í nágrenni viö hann, og meöan hann var aö brjótast inn um gluggann, stökk Dionne út um dymar. Faðir barnsins náði hon- um og misþyrmdi honum og hefði gengið af honum dauöum, ef lög- reglan hefði ekki tekið hann af honum. Illvirkinn er sagður frá Montreal. Frá íslandi. Fréttabréf frá Vestmanneyjum. Vertiðin hefir veriö heldur stirö hér, það sem af er. Reyndar heíir oftast nær fiskast, þegar gefið liefir á sjó, en veðuráttan hefir veriö svo afleit þessa þrjá mánuði, J sem liðnir em af árinu, aö það þykir einsdæmi. Nú um síðustu mánaöamót fór tíöin loksins að skána, og hefir fiskast all-vel síö- an. Á þessari vertíð hafa gengiö héöan úr Eyjunum um 60 vélarbát- ar. Mun óhætt aö telja verömæti þaö sem liggur í bátum þessum nálægt 3—400 þúsund krónur. 1 Kringum 400 mann mun sækja sjóinn héöan. Alls eru taldir hér um 1600 íbúar, þeir sem eiga heima hér árlangt; en á vertíðinni munu vera hér rúmlega 2000 manns. Eru því mestu vandræöi um húspláss hér á vertiðinni, og þó hafa verið reist 30 til 40 hús hvort af þessum síöustu tveim árum. Yfirleitt má sjá ýms og marg- visleg framfaramerki hér á Eyj- unum. Nýlega hafa t. d. verið settar á stofn tvær smiðjur, sem leyst geta af liendi allar viðgerðir á vélum o. s. frv., og eru það hin mestu þarfafyrirtæki; áöur var það svo, aö engar stærri skemdir á vél- uyi var hægt að laga hér, og urðu því vélarbátar þeir, sem fyrir slík- um skejndum urðu, aö hætta, og mistu stundum þannig af heilum og hálfum vertíöum, og má geta nærri hvert tjón bátaeigendunum það var. Af öörum framförum liér má helzt telja fiskimjöls-verksmiðju þá, sem félagið J. P. Brillouin & Co. er aö setja hér á stofn. Mun bráðlega verða byrjað á aö reisa húsiö, en sagt er að ekki sé von á vélunum fyr en um næstu mánaö- armót, eöa ef til vill seinna. Mun verksmiðjan því tæplega geta tekið ' til starfa nokkuö fyr en á næstu vertíö. Er ætlast til aö hún vinni fiskimjöl og áburö úr öllum þeim fiskiúrgangi, sem hingaö til hefir ekki veriö notaöur, svo sem haus- um, hn-ggjum og slógi. Er félagiö þegar byrjað aö hiröa þetta, og er þaö mönnum hér "mikill hægðar- auki og sparar þeim talsverð út- gjöld, þar sem öllum bátaeigendum var áöur gert þaö aö skyldu, ,aö flytja úrganginn á sjó út, til þess aö koma i veg fyrir þá óhollustu er stafaöi af því, aö slógiö lægi á göt- unni og rotnaöi. Annars ber lítið hér til tíöinda, sem í frásögur sé færandi. Þó varð ein nýlunda hér fyrir nokkrum dögum, sem mikiö hefir veriö talaö um, og sem ekki er algeng hér, sem betur fer: Læknirinn á frakkneska spítalaskipinu “France” var kæröur fyrir mjög svo ógeðs- legt tiltæki viö 13—14 ára gamalt stúlkubarn, og var þaö mjög al- menn ósk, aö hann væri látinn sæta réttmætri hegningu fyrir. Fram- koma sýslumanns í þessu máli var hin röggsamlegasta. En þar eö aö- standendur stúlkunnar tóku kær- una aftur, var máliö látið falla niður, meö þvi aö brotið var taliö heyra undir 175 gr. hegningarlag anna, enda þrætti sakborningur fyrir brotiö. Líklegt þykir þó, aö læknir þessi veröi látinn fara af skipinu, hvað sem öðru liður. Reykjavík 8. Apríl. Ungmannafélag Reykjavíkur sýndi glímu i Iönaðarmannahúsinu föstudagskveldiö i fyrri viku. Glímumenn voru 24, og glímdu undir leiösögu Guömundar Sigur- jónssonar, íþróttakennara. Kaus hann menn til aö eigast viö og fórst þaö vel. Ein bændaglíma var glímd og voru þeir bændum Guöm. Kr. Guömundsson og Bjarni Pjarnason frá Auösholti. Lauk þeirri glimu svo, aö Bjarni fékk sigur og var þá einn hans manna ófallinn. Glímumenn glímdu vel og lipurlega og sáust hvorki bolast né níða. — Því miöur meiddust tveir menn í glímum þessum, er bót er það. aö félagið á nokkurn slysastyrk. — Meöan glímt var, skemti hljóöfæraflokkur Bern- burgs. Reykjavik 15. Apríl. Klofnað “firxna” ('RefhvörfJ. í vikunni sem leið auglýstu þeir Reinh. Anderson og Jón Laxdal nýja fatasöluverzlun i búö Ander- sons á “Hótel ísland”. 1 vikulok- in brast “firmað”, og fluttist Jón Laxdal með alt sitt um þvera götu og setti upp í búð Nec. Bjarnasens. Þykist nú hvortveggja hafá betra en áöur. —Tngólfur. Reykjavík 2O. Apríl. Húsfrú Elisabet Siguröardóttir Árnasonar í Höfnum og Sigurlaug- ar Jónsdóttur, dó fyrir viku á Skagaströnd 76 ára aö aldri, fædd x júní 1836. Þliin var tvígift. Fyrri maöur hennar var Knudsen verzlunar- stjóri á Hólanesi og síöar umboös- maður. Lifa 3 svnir þeirra, Jens og Tómas i Ameríku, og séra Lúövik Knudsen á Bergstöðum hér á landi. Seinni maður hennar var Gunnlaugur Gunnlaugsson og lifir sonur þeirra Ragnar i Ameríku. Húsfrú Elisabet var mjög vel gáfuö kona, og dugleg meö af- brigöum. Aöfaranótt þess 17. Apríl brann, á Blönduósi Möllers íbúöarhús til kaldra kola. Mjög litlu varö bjargaö. Eldsins varð vart kl. 2 um nótt- ina. Hann haföi komifi upp , í kjallaranum, en þar er aldrei fariö með eld. Snemma í víkunni var bátur úr Ólafsfirði á selveiði í Eyjafjaröar- mynni og voru þrír menn á. Þeir hittu fyrir höfrung og gátu veitt hann, en er þeir vildu innbyrða hann hvolfdi bátnum, komust tveir mennirnir á kjöl, en einn druknaöi. Nokkru eftir slysið kom bátur og bjargaöi þeim tveim, er á kili voru. —Vísir. Óánœgður með Graham eyju. Eftir.fylgjandi bréf hefir oss veriö leyft aö birta, og meö því aö mörgum mun vera íörvitni á aö heyra frásögn sjónarvotts af Gosenlandinu á Graham Island, þá þykir vel við eiga að láta bréf þetta koma fyrir almennings sjónir. R. “Mr. Chr. Ólafsson. Kæri vin! Eg lofaði aö senda þér línu, en ætlaði ekki aö gera það fyr en seinna, en af því að eg frétti í gær aö Mr. Breiðfjörð ætlaði að koma í næsta mánuði meö 50 Is- lendinga, þá datt mér i hug að senda þér þessar línur. Af þeim 19 íslendingum sem fóru frá Winnipeg 29. f. m., hefir enginn skoöað landið á þessari nýju eyju eins mikiö og eg. Þaö sem eg hef aö segja er þetta: Meðfram viröi aö hreinsa ekruna; þaö álxtur stjórnin sjálf faö sagt erj og. aö mínu áliti er þaö mjög sanngjörn áætlun. Jarðvegur er mjög frjó- samur. Skógarbeltið mun vera 2 til 4 mílur á breidd, þá tekur viö opiö land, sem er alt, á því svæöi sem eg hefi séö, kviksyndi fmuskegj. Blettir finnast þar upp þurkanlegir, en meiri parturinn af því sem eg hefi séö er óræktan- legt; eg hefi ekki komist niður úr mosanum á 6 fetum, en náttúrlega er hann víöa mikið þynnri; eg hef enn ekki séö hér þaö land, sem eg vil eyða rétti mínum á. Þaö geta náttiirlega víöa veriö góö lönd á Graham Island, þó eg hafi enn ekki séö þau; þaö kostar mjög mikla peninga aö skoða vel landið, því vegir eru engir, en flest dýrt sem feröamaöxtrinn þarf aö kaupa. Til dæmis er það aö máltíöin er 50 cent. Eg er búinn aö vera á eyjunni 18 daga; af þeim hafa 2 verið þurrir, þó rigndi báðar næturnar; meiri og minni rigning hina sextán, oft hvítt i lofti og því kalsi, sífeldur störmur meö úr- fellinu, fjórar nætur frost, en lítiö. Enga sort af nýjum fiski hef eg getað fengiö keypta, ekki svo mik- ið sem í eina máltíö, síöan eg kom, því aö algerlega fiskilaust hefir verið um lengri tíma inn á fjörö- um. Fiskiveiði byrjar hér ekki fyr en einhverntíma í Maí. . Reyn- ist fiskiveiðin ekki betur en þaö sem eg liefi séð af landinu, þá gef eg lítið fyrir ropiö úr G. S. Breiö- fjörð og félaginu sem hann vinn- ur fyrir. Ef eg lifi næsta Nóv., þá skal eg gefa Lögbergi og Heimskringlu nákvæmar upplýs- ingar, því þá verö eg aö líkindum búinn að revna fiskiveiöina og skoða meira landið. Þegar eg fór úr Winnipeg festi eg kaup í 10 ekrum af þessu gæöa landi, sem átti að vera óviöjafnanlegt, en þegar eg sá landið, þá vildi eg þaö ekki gefins livað þá keypt. En til allrar lukku áttu þeir góöu herrar ekkert í landinu og höföu vist ekki heldur nein ráö á því. Nátt- úrlega býst eg við aö fá þetta lít- | ilræöi ti! baka, sem eg borgaði, því eg efast ekki um aö félagið sam- 1 anstandi af heiðarlegtim drengj- | um, ]ió þeir veröi utan viö sann- j leikann meö köflum. Allir Is- lendingar sem frá Winnipeg fórtt 29. f. m. keyptu 6 1-4. ekru hver, og sumir keyptu fyrir menn a’ust- ur frá; verðið $450 fyrir þá spildu sean borgist á 3 árum méð 6 per cent vöxtum og hreinsa ekru á ári. Félag frá Vancouver er aö selja og kann vel að tala fyrir því. Landið sem þeir keyptu er 21 míla inn frá Masset P. O., norövestan við fjörðinn. Eg og annar til sleftum hjá okkur þeirri gullnámu enda verðum viö liklega aldrei rík- ir! Sannarlega vildi eg ráðleggja fslendingum aö flytja.ekki hingað, fvr en viö sem komnir erum liingað, heföum eitthvaö betra aö segja; náttúrlega er liver sjálf- ráöur, en ekki veldur sá er varir þó ver fari. Ekki veit eg til aö nokkur úr hópnum liafi enn getað fengiö vinnu einn dag, hvaö þá meir. Mikiö- kostar aö leggja mílu góöan veg í Nýja íslandi, en þrisvar til fjórum sinnum meira kostar hver míla hér. Viö fiski- veiöina veröum viö í North Island; þaö er lítil eyja noröur af Graham Island; fiskurinn sóttur daglega frá Prince Rupert. Utanáskrift min því fyrst um sinn: Ben. Guðmundsson Graham Island B. C. c-o. Canadian Fish and Cold- storage Co. Prince Rupert. sjó ám og lækjutn er karga skóg- ur, og mun vera 5:—800 dollara

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.