Lögberg - 14.08.1913, Qupperneq 3
íjÖGBER'G, FIMTUDAGINN 14. Ágúst 1913.
3
ÞORSTEINN Þ. ÞORSTEINSSON.
GAMLIR NEISTAR.
V. DALURINN HEIMA.
^1901;.
Þ^ar, sem heima í helgri ró
hamra gnæfir salur,
inn í landiö, upp frá sjó,
unaös-liggur dalur. .
Lækir ofan liöast hlíö
likt og silfurþræöir
þegar sumars sóley fríö
sárin moldar græöir.
Fjallabróöir, fossinn minn
fornu ljóöin kveöur.
Fuglinn óöinn syngur sinn,
sumar hljóöum gleður.
Þ|á þú glitrar guðs af sól
geisla vafinn mundum,
vektu rós, er fönnin fól
fyr á vetrar stundum.
Lífga brjóstaböm þín kær,
breið þeim faöm á móti,
veit að alt sem andaö fær
ástar þinnar njóti..
Sýn þeim aðeins sjálfan þig —
svefni þungum varna,
til að hefja á hærra stig
hugsun frónskra barna.
Kenn þeim rétt aö þekkja þig —
þina krafta hljóta,
og aö vekja sjálfa sig —
sælu þinnar njóta.
Hvort þú sólar sveipast hjúp —
sumars ríkir ylur,
eða vetrar dimmblátt djúp
demantana hylur,
Þ|á er tign þin traust og jöfn
tilverunnar prýöi.
L)ú ert dýröar drauma höfn —
“drottins bezta smiði”.
Ef aö sæist svipur þinn
sveinum á og fljó'ðum,
vaxa myndi menningin —
minni þurö í sjóðum.
Vaxa myndi þrek og þor,
þjóðarandinn breytast —
yfir hrönn frá ygldri Skor
allir betur fleytast.
Heilladis þér hugargóö
huldum sæmdi gjöfum.
Þú átt falda Fofnisglóö
fjöllum í og höfum.
Nær sem börnin þekkja þig,
þá muií gullið finnast.
— Þau um ára og alda stig
öflum nýjum kynnast.
Þ|egar líður þessi öld
})jóð mun fegra dreyma;
aukast, blómgast bænda völd —
börn þín una heima.
Það er von mín, trú og traust,
tilverunnar herra,
að þú látir endalaust
l'slands meinin þverra.
Að sú frægð, er fyrrum kvöld
fann í tímans skauti,
klæöi land vort öld af öld
ára nýrra skrauti.
Hvar sem liggja leiöin skal
lífs um brautir, 'vinir :
okkar fagra fósturdal.
fegrum dætur, synir.
Hann oss kendi lífsins ljóð
ljúfra bernsku vona.
Hann á allra hjartablóð.
hreinna íslands sona.
Þar sem vorið ástaróm
ymur ljóss i salnum,
vona minna beztu blóm
blunda í æskudalnum.
Ófyrirgefanleg yfirsjón.
Önnur rödd úr suðrinu.
Aö öllum líkindum heföi þaö
sem eg ætla að segja, átt betur
heima í Heimskringlu, en af því
að það var vani minn, að senda
Lögbergi það litið eg skrifaði i
blöð hér fyr á árum, þá nenni eg
ekki að vera að bregða þeim vana
mínum á gamalsaldri. Nú er líka
sá blessaður friður ríkjandi milli
blaöanna, lof sé honum, aö eg veit
nærri fyrir vist aö Lögberg fer
ekki að firtast viö mig þó að eg
fari nokkrum sanngjörnum orðum
um hitt vikublaðið, hana Heims- ö
leyfi mér að skora á alk læsa ís-
lendinga að yfirfara með málefn-
inu maklegri andagt, og helzt að
rifja upp alla ritgerðina, ef eitt-
hvaö skyldi hafa gleymst, því að
hún er ein af þeim fáu bókmenta-
leg'u eðalsteinum okkar Vestur-
fslendinga, sem hVer maöur er
siðferðislega skyldugur til aö muna
og kunna. bormálinn er svona:
“Lengi hefir mig langað til að
ávarpa þig, hjartkæra Heims-
kringla, færa þér þakkir fyrir svo
óendanlega margt, sem ekki verð-i
ur alt upp talið, þótt að eins eg
nefni frjálslyndi, jijóörækni, fag-
urt mál, mentandi og fræðandi
greinir, réttsýni og framúrskarandi
‘ dómgreind, staðfestu i stjórnmál-
kringlu, og einkanlega úr því eg samfara s*nnleiksást og hrein
lofa þvi að sleppa allri bansettn
pólitik, en ætla mér aö ræöa mik-
ilsvarðandi mannfélagsmál, frá
minu eigin sjónarmiði.
Þa'ö' sem kernur mér, gömlum og
skökkutn hærukarli og nú til einr-
skis færum, aö gripa blek og
penna, er sú háleita og hjartnæma,
en skarpviturlega ritgerð, sem
stóö á 3. bls. 44. tölubl. Kkr. þ. á.,
sem út kom fyrra fimtudag,
með yfirskriftinni: A víS og dreif.
fNokkrar hugleiðingar frá Norð-
ur-Dakotaj.
Höfundurinn ávarpar lesend-
urna með þessum fagra, áhrifa-
mikla, en innilega formála, sem eg
skilni.
Hinn ungi ritstjóri þinn hefir
'hafið þig upp í ennþá hærra veldi,
en þú varst áöur í. Hann þekkir
og kann islenzka tungu með af-
brigðum, og fylliléga getur þú
sezt á bekk með Isafold og Lög-
réttu, hvað það snertir.
Þjað fer titringur i gegnum
hverja taug, þegar eg les vel rit-
aðar og fjörugar greinar í dálkum
þínum, þótt roskinn sé; lesturinn
hressir mann, og það er ætíö
hressandi og um leið lífgandi, aö
geta hlegið,--------”
Þarna vil eg taka undir með
þér herra íslendingur. 'Þ’etta var
orð í tima talað; því vildi eg svo
mega bæta viö, að sá maður hlýtur
að vera í meira Iagi andlega vol-
aður, sem nokkra aðra skoðun
hefir á þessu efni, heldur en þú
auglýsir hér, svo einstaklega ljóst
og einarðlega, og skiljanlega aö
jafnvel hver óbrotinn alþýðumað-
ur getur fylgst meö þínum hispurs-
lausa hugsanagangi. Hér flettir
þú svo fortakslaust ofan af þínum
innra manni, gagnvart nefndu
málgagni, að unun er aö sjá og
heyra, og get eg ekki betur séð,
en aö slíkur ritstarfaframgangs-
máti megi óhætt heita fegursta
fyrirmynd, svo eg ekki taki dýpra
í árinni.
Á hinn bóginn er eg ekki aö öllu
leyti ánægöur með meðferð þína
á Geinnundi. Mér þykir honum
naumast gefið “fult tækifæri”,
meö því að fara aö skipa honum á
bekk með Gröndal. Reyndar gef
eg það eftir að Gröndal var tölu-
vert sprækur rithöfundur á sinum
tíma, aö því er snerti víötækt hug-
myndaflug og stórgert háö, en aö
mínu áliti tekur Geirmundur hon-
um langt fram, dæmandi út frá
þeim kröfum, sem nú eru gerðar i
rithöfundaheiminum til hinnar hár-.
fínu skáldlistar.
Ekki vil eg sleppa því, úr því eg
tók pennann á annað borð, að
þakka höfundi fyrnefndrar rit-
geröar fyrir þann hjartanlega hlý-
hug og ákjésanlegu alúölegheit, til
okkar ólærðu mannanna, sem lypp-
ar sig eins og bláþráöalaus lopi
gegnum alla hans góðu og vel-
meintu grein, frá upphafi til enda.
Þjar kemur glöggur skilningur á
eöli okkar ólæröu mannanna og
sannarlegt litillæti fram i svo fag-
urri mynd, aö eg tel tvisýnt, aö
nokkurn tima hafi jafnvel tekist,
að sýna þá ágætu einkunn manns-
andans, svarta á hvítu með for-
gengilegri prentsvertu á venjuleg-
um vikublaða grápappír.
Samsinna vil eg með })ér„ höf-
undur góður, “þaö lyft”, sem þú
gefur þeim Stepháni G. og Guð-
mundi á Sandi. Þ|ó að kannske
mætti segja aö þar sé aö bera í
bakkafullan lækinn, nú orðið, þá
var þetta vel hugsað hjá þér, og
ætti ‘ aö taka vel” hjá almenningi.
Eg fyrir mitt leyti þori aö “gar-
antía” dönskukunnáttu Stepháns á
viö hvern mentaskóla-strák. Hins-
veginn þótti mér aftur hitt aö vera
að ryfja upp það sem sagt hafði
verið um Guðmund i Aldamótum.
Það er orðið svo langt um liðið ntí.
Þetta gæti bara spilt fvrir honum,
og P.reiðablikum gerir þa'ð ekkert
gott.
I m róluna og rithöfundatal
Heimskringlu skal eg vera fáorð-
ur. En ekki verður því neitað aö
þar koma fram skáldleg hugsjóna-
tilþrif höfundarins samtvinnuð
glöggri dómgreind og sjaldgæfu
rninni á mannanöfn. Heppilegt
var einnig af þér að minnast á
stefnu Hkr. i Japanitamálinu og
þá miklu og ómetanlegu blessun,
sent umheimurinn hlýtur aö hafa
af hinni skörulegu tramkomu
blaðsins í því stórmáli.
Þ/i hef eg nú yfirfariö megin-
atriöiö af hugleiöingum þínum,
vinur ntinn frá Noröur Dakota.
\ ona eg að allir sjái aö eg er þér
samdóma í flestum greinum. En
þó er eitt eftir ótalið, sem mér
Hkar ekki við þig, og það er aö þú,
jafnmikill maöur, hágáfaður og
ritfær með afbrigðum, skulir leyna
nafni þínu og kalla þig bara ís-
lending. Þetta var ófyrirgefanleg
yfirsjón af þcr, og það verðurðu
að viðurkenna að grein þín, er
ræöir um jafn stórkostlegt mann-
félagsmál eins og verðlagning
Heimskringlu og helztu rithöfunda
liennar, heföi haft miklu “melri
vigt", ef almenningur hefði fengiö
aö sjá neðan við hana þitt mikla
og góða nafn. Eftir mínu litla
viti, get eg heldur ekki séð, að
nokkuð það sé i greininni, sem þú
þyrftir að kynoka þér viö aö
meðganga, eða undirskrifa frammi
fyrir almenningi, því aö greinin er
meistaraverk að mínum dómi. En
þó aldrei nema að þetta væri ó-
fyrirgefanleg vfirsjón af þér höf-
undur góður, þá var hitt annað þó
enn þá ófyrirgefanlegra, og að
mínu áliti villandi og óþolandi
hæverska, að þú skildir ekki nefna
nafn þitt þar sem þú telur upp
helztu rithöfunda Heimskringlu.
Eg skal játa það, að eg hef ekki
allra minstu vitund á móti nöfn-
unum, sem þú telur þar upp. IÞáu
eru dregin fram af listæföu auga,
og skörpu hyggjuviti. En þitt vantar
þar stórbagalega, eins og þú hlýt-
ur að sjá sjálfur. Þjví að þó að þú
hafir reyndar enn skrifað minna í
Heimskringlu að vöxtunum, en
annarsstaðar — það er óþarfi að
tiltaka það nákvæmara í þetta
skifti — þá hefir þú samt sem áö-
ur markað þér bás í Kringlunni og
þessvegna var þaö siðferðisleg
skylda þin, að láta hana njóta allra
hlunninda, sem af slíku húsaskjóli
Ieiðir.
Það var þér innan handar. Þ}þ
gast látið nafn þitt fljóta með hin-
um rithöfundunum, og alveg hættu-
laust, en með fullum rétti, einkum
Komizt áfram
með því aís ganga á Success Business College á Portage Ave. og Ed-
monton St. eða aukaskólana í Regina, Moose Jaw, Weyburn, Calgary,
Letbridge, Wetaskiwin, Lacombe og Vancouver. Nálega allir Islend-
ingar í Vestur Canada, sem stúdéra upp á verz'unarveginn, ganga á
Success Business Coilege. Oss þykir mikið til þeirra koma. Þeir eru
góðir námsmenn. Sendið strax eftir ókeypis skóiaskýrslu til skólastjóra,
F. G. GARBUTT.
úr því þú settir bara undir hug-
leiðingarnar þínar nafnið íslend-.
ingur. Það er svo víðtækt að fáir
munu hafa séð í gegnum það nema
Hœrukarl.
Um ljósstofnun á íslanói.
éFramh. frá 2. síðu.j
eða í Reykjavík horfir þetta dálít-
ið öðruvísi við en viðast hvar ann-
ars staðar, þar sem um er að ræða
að setja upp þessi áhöld, meö því
að þar er engin rafmagnsstöð, svo
stofnunin verður sjálf að fram-
leiða það rafmagn, sem hún þarf
að brúka. Þ'etta eykur kostnaðinn
eigi að litlum mun.
■Til þess að fá nokkurn veginn
ábyggilegar upplýsingar um þetta
atriði, þá hef eg snúið mér til þess
félags, sem hefir sett upp öll
stærri Röntgen- og ljós-áhöld i
'Danmörku, þar á meðal líka áhöld-
in á ljósstofnun Finsens í Khöfn.
Sá 'minsti kostnaður, sem að fé-
lagsins áliti er hægt að setja þessi
áhöld upp fyrir, er nálægt þvi að
vera þessi:
Röntgenáhöld til lækninga
og rannsókna ásamt vél
til að framleiða raf-
magnið..................7000 oö
1 Finsen-lampi ('með öll-
um útbúnaðij.............984 00
1 Kromayer’s kvikasilfur-
kvarslampi...............250 00
Kostnaður við flutning og
við að setja áhöldin upp 1000 00
Þúsundir
manna, sem oröið hafa
heilsulitlir, hafa haft stór-
mikiö gagn af hófsamlegri
brúkun á
DREWRYS
Redwood Lager
Hreinasta malt-tonic
Æfinlega eins á bragð
ið og jafn góður.
REYNIÐ ÞAÐ
Alls ca. 9234 00
Þetta er sá minsti kostnaður,
sem hægt er að áætla, og má því
gera ráð fyrir. að hann fari varla
niður úr 9500 kr. Rúmið, sem
þessi áhöld taka upp, er ekki meir
en svo, að tvö herbergi, hvort 3x5
stikur, eru langsamlega nægileg,
auk rúrns fyrir reksturvélina.
Hvað viðhalds- og reksturskostnað
snertir, þá er ekki auðvelt að á-
ætla neitt um hann. Viðhalds-
kostnaðurinn fer mikið eftir þvi,
hvað mikið áhöldin eru notuð. En
félagið álítur, að reksturskostnað-
tirinn við útbúnað eins og þennan,
sem hér er áætlaður, muni nenta
hér um bil 0,75—1 kr. á klukku^
stund, auk gæzlu á vélunum, húsa-
leigu o. s. frv.
Að mínu áliti er þvi kostnað-
urinn við þessa stofnun evigan
veginn svo mikill, að þing eða
þjóð geti horft í hann, ef á annað
borð er nokkur þörf fyrir hana.
En að svo sé, vona eg að mér
hafi tekist aö sýna fram á.
—Lögrétta,
ROBINSON
&Co.
Limited
KVENKÁPUR
Hér eiu nýkomnar fallegar kápur
handa kvenfólki, skósíðar, víðar,
með smekklega kraga og uppslög-
um á ermum, með ýmislegum lit og
áferð. Allar stœrðir. Þetta er cér-
stök kjörkaup á..
Skoðið þœr í nýju
deildinni á 2. lofti.
$6.75
JAPANSKT POSTULlN
Nú stendur yfir stórkostleg kjör-
kaupa útsala á japönsku postulíni,
Það er handmálað og hver og einn
mun Iundra8t, að vér skulum geta
selt það með svO vœgu verði. Eng-
inn hefir ráð á að láta þessa sölu
fara fram hjá sér, svo lágt sem verðið
er og postulínið prýðilegt.
75c virði fyrir......
25c
ROBINSON
& Co.
Llmited
Nokkrar skýringar.
í síðasta tbl. Heimskringlu birt-
ist grein — áskorun réttara sagt
— eftir konu eina er Mrs. S. P.
Johnson heitir. Greinina nefnir
hún “Hjálp í neyð”. Eins og þeir
vita er grein hennar lásu, þá skor-
ar hún á landa sína hér vestra,
að þeir hjálpi með peningagjöfum
nauðstöddu gamalmenni, er Svein-
björg Sveinsdóttir heitir, og seni
hún segir að eigi við bág kjör að
búa, helzt vegna þess að hún hafi
veriö rekin út feins og hún kemst
að orðfj af því fólki sem hafi haft
eftirlit með henni, vegna þess að
hún hafi ekki getað borgað húsa-
leigu.
Það er langt frá því geðfelí
fyrir mig, að þurfa að stæla opin-
berlega við kvenpersónu þessa um
þetta efni, þvi fyrirtækið í sjálfu
sér er bæði þarfleg, enda nauð-
synlegt. En saint get eg ekki set-
ið á mér að benda fáeinum orðum
mínum til Mrs. S. P. Johnson.
Það er þá fyrst og fremst, að
Mrs. S. P. Johnson tekur })að
skýrt og skorinort fram, að fólk
það er hafi haft eftirlit með henni,
hafi rekið hana út úr húsum sin-
um, vegna þess að hún hafi ekki
getað greitt húsaleigu. Eg ber á
móti þessum óhróðri, að hafa
nokkurn tima rekið gamalmenni
þetta út, og sömuleiðis lýsi eg því
yfir, að Mrs. S. P. Jlohnson fer
hér með örgustu ósannindi; ósann-
indi sem alls ekki hæfa kvenmanni,
og sizt þeim, sem setur sig til þess
að gegna liknarstörfum. Að hún
skuli setja svona rógburð og ó-
hróður í opinbert blað, lýsir ekki
öðru en lágri staðfestu. Mrs. S.
P. Johnson þekkir ekki hið minsta
inn í sakir þessarar gömlu konu.
Sveinbjörg hefir dvalið hjá mér
i síðastliðin niu ár, án þess að
greiða nokkra húsaleigu, enda hef-
ir hún aldrei verið krafin hennar.
-áhöld
Þessi mynd sýnir
Milwaukee
steínsteypu
Vjel
Spyrjið eftir verði
THE STUART MACHINERY
COMPANY LIMITED.
764 Main St.,
Winnipeg, Man
Eddy’s <<Safeguard,, hœttulausu eldspítur
—í sérstökum stokk, sem snúa má við
—góðar eldspítur altaf til á botninn
—útbrunnum eldspítum stungið inn í toppinn
—•hljóðlausar; hausarnir halda ekki glóðin
—og alveg eiturlausar.
Eddy’s eldspítur eru
þaer einu ÖEITR-
UÐU eldspítur bún-
ar til í Canada.
Til ad fordast hættu-
Eddy’s „Safeguard(t
hættulausu eldspitur
Adeins ættu ad vera á
hverju heimili.
KARLMANNA BUXUR
Hentugar á vorin.
Hentugar til daglegs brúks
Hentugar til vinnu
Hentugar til spari.
Hver sem kaupir buxur hér,
verður ánægður með kaupin.
Þær eru þokkalegar og end-
ast vel, seldar sanngjarnlega.
Venjið yöur á aö koma til
WHITE & MANAHAN
500 Main Street,
Ctlbúsverzlun 1 Kenora
WiNNIPEQ
Því hefði eg átt að reka hana út
á árinu þessu, þegar húiý átti við
bágust kjör að búa? Eg segi bág-
ust kjör, því nú er hún orðin svo
ellihrum að hún getur ekki þjón-
að sér, og getur þá Iieldur ekki
verið þess megnug að sjá fyrir sér
sjálf, eins og Mrs. S. P. Johnson
staðhæfir. Konan mín er komin
hátt á sjötngs aldur, og er ein-
hend og farin að heilsu. A hún
því nóg meö að gegna sínum eigin
störfum. Höfum við bæði óskað
eftir betra heimili handa Sigur-
björgu.
Það hefir verið skrifað til dótt-
ursonar hennar sem býr vestur við
haf, ásamt móður sinni og systur,
og honum sagðar ástæður Sigur-
bjargar. En hann svaraði og
sagði að ástæður þeirra væru svo-
leiðis, að þau treystu sér ekki til
að taka hana til sín vestur. En
hann bað okkur að stuðla að því,
að hún færi á gamalmennahælið.
Sveinbjörg er farin frá okkur,
en eg skora á Mrs. S. P. Johnson
að sanna það að eg eða kona m1n
hafi rekið hana út úr húsum okk-
ar. ,
Páll Sigfússon,
398 Simcoe St., Winnipeg.
P. S. — Eg fór með ritgerð
þessa til Hkr., en þó að hún hefði
þar átt að birtast, er þar var á mig
ráðist, er mér neitað um rúm;
verð eg því að snúa mér til Lög-
bergs með hana. P. S.
Reykjavík 12. Júlí.
Austfirðingafundur var haldinn
í gærkveldi hér í bænum. Tilefni,
hans var bifreiðarflutningur á
Fagradalsbraut. Setti Alex Tulin-
ius fundinn, en ýmsir tóku til máls,
þar á nieðal þingmenn Sunnmýl-
inga og 2. þingmaður Norðlend-
inga. Voru allir á einu máli um
það, að nauösyn bæri til að ýta
undir framkvæmdir á bifreiðar-
flutningum þar austur frá og var
svolátandi yfirlýsing samþykt:
“Þar sem reynsla er fengin fyr-
ir því, að bifreiðarakstur hefir
hepnast á vegum hér sunnanlands
og þar sem vér vitum að Fagra
dalsbrautin er ekki ótraustara bygð,
heldur að sumu leyti betur lögð
en þeir eru að jafnaði, þá er fund-
urinn þess mjög hvetjandi, að ýtt
verði undir sem bráðastar fram-
kvæmdir á bifreiöarflutningi þar
eystra”.
—Isdfold.
THOS, JACKSON & SON
BYOGINGAEFNI
AÐALSKRIFSTOFA og birgiSaból 370 COLONY ST
TALS. Sherbr. 62 og 64
WINNIPEG, MAN.
GEYMSLUPLÁSS:
Vesturbœnum: horni Ellice og Wall St, Fón Sherb. 63
I Elmwood: horni Gordon og Levis, Fón, St. John 498
í Ft. Rouge: Pembina Highway og Scotland,
Vér seljum þessi efni í byggingar:
Múrstein, cement, malað grjót, ’
(allar stærð.), eldtraustan múrstein,
og eldleir, Flue Lining, möl, Hard-
wall Plaster, hár, Keene’s Cement,
hvítt og grátt kalk, hydrated kalk,
viðar og málm lath, gyps, Eubble
stone, Sand, ræsapípur, weeping
drain Tile, Wood Fibre Plastur,
Einnig Mortar, rautt, gult, brúnt,
standard og double strengtb black.
Tuttugu menn
óskast strax.
Vér skulum borga
kaup meðan þeir eru
þeim gott
í Moler’s
Rakara skóla, Vér kennum rakara
iðn til fullnustu á tveim mánuöum
og útvegum lærisveinum beztu
stöður að afstöðnu námi með $15
til $35 kaupi um viku. Grtðarleg
eftirspurn eftir Moler rökunun
sem hafa Moler vottorð. Varið
ykkur á eftirhermum. Komið og
skoðið stærsta Rakara Skóla í
heimi og fáið fagurt kver ókeypis.
Gætið að nafninu Moler á homi
King og Pacific stræta, Winnipeg^
eða 1709 Broad St. Regina.
J. J. Swanson & Co.
Verzla meS fasteignir. Sjá um
leigu á húsum. Annast lán og
eldsábyrgðir o. fl.
1 ALBERTA BLOCIt. Portage & Carry
Phone Main 2597
FUBNITURE
i» L »>, •’.o’tunls
OVERLAND
v,‘.I *.11 < .*.>DIR
FORT ROUGE
TUTATDr Pembina a
InLnlnll Corydon
Hreyfimynda leikhúí
Beztu myndir syndar
J. JÓNASSON, eigandi.
Eg hefi 320 ekrur af landi nálægt
Yarbo, Sask. sect.J, sem seljast á
með góðum skilmálum; eign í eða um-
hverfis Winnipeg tekin í skiftum. A
landinu eru um 90 ekrur plægðar og af
þeim 50 undir akri nú. Alt landið inn-
girt og á því um þúsund doll. virði af
húsum ásamt góðu vatnsbóli.
5. SIGURJÓNSSON,
689 Agnes Stræti, Winnipeg.