Lögberg - 14.08.1913, Síða 6

Lögberg - 14.08.1913, Síða 6
e LÖGBERG, FTMTUDAGINN 14 Agúst 1913. Drenglyndi, ÞaS var einn fagran Október morgun a8 Nora Sullvian stóö út viö gluggann í setustofunni sinni í höllinni Quincairne. Hún var ung og fögur, aöeins 21 árs, hún var eigandi hallarinnar. Þaö var aöfall og hátt sjávað, og virti hún fyrir sér hvernig sjórinn smátt og smátt féll lengra upp á landið. Höllin stóö á hæö, og umhverfis hana var fallegur blóma garöur, sem náði fram á brún hæðar- innar, og þar tók við þverhnýpt berg niður í sjó, hér um bil 30 feta hátt. Þó þetta berg tæki mikið úr. þegar sjávargangur var, kom þó fyrir að sjór rauk upp á glugga og blómin í garðinum í ofveðrum. Útsýnið var yndislegt; samt var ekki neitt það í andliti Nóru Sullivan, sem bar þess vott, að hún hefði ánægju af að horfa á fegurðina kringum sig. Það leit helzt út fyrir að hana væri að dreyma. Hún hafði staðið þannig góða stund, þegar dyrn- ar opnuðust og inn kom öldruð kona, sem Nóra líkt- ist mjög, þrátt fyrir mikinn aldursmun, og hið föla og veiklulega andlit Mrs. Sullivan, sem var biluð að heilsu. Maður hennar hafði verið hershöfðingi » enska hernum. og hún hafði feðrast með honum i ýms lönd, þar sem loftið var óheilnæmt, og hafði þannig mist heilsu sína. Nú langaði hana til að komast frá Quincairne og í betra loftslag. til að reyna að fá bót heilsu sinnar. En þarna hafði Nóra alist upp hjá föðursystur sinni. ’ Nóra tók brosandi móti móður sinni. “Mamma mín! Eg hef enn ekki sýnt þér gjöf- ina, sem eg fékk í morgun.” Og um leið og hún sagði þetta, tók hún fallegt gullarmband upp úr öskju. Það var alsett smára- mynduðum blöðum úr smarögðum. “Þetta sendi Mr. Mordaunt mér”, hélt hún áfram. “Þtykir þér ekki smárablöðin falleg?” “Jú, þau eru makalaust falleg. Þessir smaragð- ar hafa hlotið að vera dýrir, og svo er þetta svo smekklegt; en hvers vegna kallar þú hann Mr. Mordaunt ?” “Ó! Eg er ekki búin að venja mig á að kalla hann Jón ennþá, en þú hefir ekki gætt vel að arm- bandinu. Sjáðu, þarna á lásnum er grafið fanga- markið mitt.” “Já, elsku Nóra mín, það er mjög fallegt”. Eftir stutta þögn hélt Mrs. Sullivan áfram: “Segðu mér nú satt Nóra. elskar þú nú eiginlega Jön Mordaunt?” Hún horfði i augu dóttur sinnar. “Já, vist þykir mér vænt um hann. Þú veist lika að eg ætla að giftast honum.” “Þ(ú talar öðruvísi um þetta mál en eg vildi Ertu viss um að þú elskir Jón Mordaunt eins og eg elskaði föður þinn?” “Þú ert altaf svo rómantísk í anda, elsku mamma min. Mér þykir vænt um Jón upp á skynsamlegan máta, og honum þykir þeim mun vænna um mig.” Mrs. Sullivan stundi við, og sagði: “Þú mátt vera viss um það barnið mitt, að ef þú giftir þig, vegna auðs eða metorða, þá leggur þú þér þann bagga á herðar, sem þú getur ekki borið og skyldur sem þú ekki getur uppfylt.” “En mamma mín. J6n er maður sem hver stúlka getur verið stolt af.” Um leið og hún sagði þetta gekk hún skyndilega út úr herberginu. Hún gekk þreytulega og niðurlút upp stigann- sem lá upp á Ioftið og inn í herbergi sitt; fleygði frá sér armbandinu og lagðist upp í rúmið sitt. “Þlað sem móðir mín segir er satt”, sagði hún við sjálfa sig, ”en Jón er ágætismaður, og þetta get- ur nú samt alt farið vel.” Þessi Englendingur, sem Nóra var að tala um, var ungur, hraustur og fallegur. líann var vel eygður; augun voru góðleg og greindarleg. Fram- koma hans var látlaus og bar ljósan vott um stað- festu hans og drenglyndi. Hann var íþróttamaður mikill. í kappróðri bar hann jafnan hærri hlut. Hann synti eins og menn frá Kerny. sem kunna eins vel við sig í sjónum og á lynggrónu heiðunum sínum- Hann hafði tekið ágætis-próf í náttúrufræði. en Nóra. var nú ekki hrifin af því; hann hafði gaman af að skoða smá dýr og orma, en á því hafði hún mesta viðbjóð Mordaunt var sonur ríks kaupmans í Lundúnunr, hann hafði erft skrautlegt hús í New Forest og 40 þúsnud pund um árið. En það var þó engin eigingjörn ágirnd, sem hafði komið Nóru til að lofa Jóni Mordaunt eigin- orði. Hún vissi að heilsa móður sinnar var undir því komin, að hún gæti verið þar sem betra lofts- lag var, og til þess þurfti peninga. Ef hún giftist ríkum manni mundi móðir hennar geta heimsótt föð- urland sitt og fengið heilsuna aftur. Sjálf átti hún ekkert nema þessa höll og dálitla landspildu, sem setin var af bláfátæku fólki. Mrs. Sullivan hafði lífeyrir, sem ekkja, sem ekki var meiri en svo, að hún gat lifað af því, og afgjald- ið af hjáleigunum var aðeins nægilegt til að viðhalda eigninni. “Eg skal gera alt sem í mínu valdi stendur, til þess að móðir mín elskuleg fái heilsuna aftur, hugs- aði Nóra. Og eg vona að hún fái hana ef hún getur ferðast heim til föðurlands síns, og eg skal gera alt mitt til þess að verða Jóni Mordaunt góð kona., Og eg er viss um að hann verður umhyggjusamur við mig og móður mína. Nóra stundi við, því i stað hins göfugmannlega andlits Englendingsins, með brúnleita hárið og bláu augun, dróg Nóra upp í huganum aðra mynd, sem henni hafði þótt svo vænt um. Mynd sú var af eina manninum sem hún hafði elskað, og það þegar hún var svo að segja barn að aldri. Hann hafði gefið henni hring, sem hann hafði dregið á fingur henni: á hann var grafið blómið “gleym mér ey”, og aldrei hafði hún tekið þann hring af sér; en loforðið sem hann gaf henni þá, hafði hann aldrei endurtekið. Hann var yngri bróðir, átti engar eignir aðrar en gott nafn og hermannslaunin sín. og hún átti ekki nema þessa litlu landspildu kringum Quincairne höllina. sem gaf mjög litla leigu af sér; varla fyrir viðhaldi hallarinnar. Hún hafði fyrir löngu séð það, að undir núver- andi kringumstæðum, gæti hún ekki gifst Gerald McCartby hershöfðingja, og það vissi hann líka; og hafði ekki hreift því máli frá því þau voru unglingar. En Nóra hafði altaf vonað að eitthvert óvænt h4pp mundi koma upp í hendurnar á honum, sem mundi gera stöðu hans góða; en alt hafði setið við það sama, og ekkert útlit fyrir breytingu á því. Nóra hafði ekki gert sér grein fyrir hvað þessi von, svo veik sem hún var, var orðin rík hjá henni- Það var eins og æska hennar væri horfin. Þjessi glaðlynda og fjöruga Nóra Sullivan var ekki lengi til- vún har nú raunar ung stúlka, en reynd og ráðin í þvi að hlýða rödd skynseminnar. Hún var hermanns- dóttir og “heiður” og “skyldan” áttu hér eftir að verða einkunnar orð hennar. Hún tók litla hringinn af hönd sér, kysti hann: en um leið runnu tár niður eftir kinnum hennar. Hún lét hann ofan í litinn kassa, sem hún lokaði vandlega, þar ætlaði hún að geyma og fela ungdóms endurminningar sínar. Rétt í sania bili var barið að dyrum, og inn kom Lizzy þjónustustúlka Nóru. “Miss Nóra. Biddy Shehan er niðri, og biður um mjólk handa bömunum sínum, þau eru öll veik af kíghósta og svo er Kitty Q’Donavan hér líka og biður um tóbak.” “Gefðu Biddy mjólk, en segðu Kitty að eg skuli gefa henni tóbak seinna í dag.” “Jjá”, sagði Lizzy, “en það er svo lítil mjólk til. því tvær af kúnum vanta.” “En börnin mega til að fá mjólk. Taktu það sem til er af mjólk og gefðu Biddy og tóbakið skal eg sjá um að Kitty fái seinna í dag.” Nóra Iokaði dyrunum eftir stúlkunni; hún gladd- ist i huganum yfir því, að nú yrði hún bráðum rík, og gæti þá gefið og bætt þarfir þessara vesalinga, sem í kringum hana voru, og allir voru henni svo kærir. Seinna um daginn sá hún tóbakspoka, sem Jón Mordaunt átti, sem lá þar á borðinu. Hún tók það sem i honun: var og fór með það til Biddy Shehans, sem átti heima í litlum kofa skamt frá. Henni þótti vænt um landseta sína, og var ein- mitt að hugsa um, hvernig þeirn mundi geðjast að Englendingnum, sem nú átti að verða landsdrottinn þeirra. Biddy Shehan var ekki landseti Nóru, en kofinn sem hún bjó í var reistur upp við girðinguna á garði nágranna þeirra. og var sú girðing annar veggur kof- ans, sem var svo lélegur, að fæstir mundu hafa þor- að að hýsa þar inni. En þarna hafði hún fengið að vera án þess að gjalda leigu. Enginn gluggi var á kofanum, og sú litla birta sen: þar var inni, kom inn um dyrnar. “Ó, nú hefir verið gert við kofann þinn”, sagði Xóra. “Það hafa verið settar stoðir undir þakið, svo það síður dettur niður.” “O, ungfrú; ungi Englendingurinn gerði þetta og fékk tvo menn til að hjálpa sér. Eg á þetta hon- um að þakka”, og Biddy hló hátt. Þþð var seint um kveld, að Jón Mordaunt stóð fyrir utan húsið sitt, og kvaddi gamlan vin sinn, sem var að leggja af stað. Það var prófessor, sem átti heima við Trynity College í Cambridge og hafði heim- sótt hann í Killarny og dvalið þar í nokkra daga. Þetta var í fyrsta skifti sem Jón Mordaunt hafði skilið við vin sinn, án þess að það hrygði hann. Og strax hljóp hann niður að bátnum, losaði festina og réri yfir víkina til Quincairne. Fyrir rúmu ári síðan hafði hann leigt þennan satna bát og róið á honum yfir víkina, og þá hafði hann í fyrsta skifti séð Nóru Sullivan við tennisleik og strax orðið hugfanginn af henni. Síðan þau trúlofuðust hafði hann aldrei komið svona seint á degi til að heimsækja hana; hann réri knálega upp í lendinguna. Þjað var búið að kveikja ljós í dagstofunni og hann sá að Nóra hafði heyrt áraskröltið og leit út um gluggann. “Skyldi hún koma á móti mér ” hugsaði Jón Mordaunt. Já, Jjarna sá hann hana koma í tunglsljósinu, og rétti honum höndina um leið og hún sagði: “Eg hélt að ]:ú mundir ekki koma í kveld.” “Var þér farið að leiðast eftir mér, elskan mín?” spurði Mordaunt, um leið og hann kysti hana á kinnina. “Já, víst var mér farið að leiðast, og eg furðaði mig á að þú skyldir ekki koma,” svarað i Nóra glaðlega. “Það kom gamall kunningi minn til að heim- sækja mig”, sagði Jón Mordaunt. “Þú hefðir átt að koma með hann 'hingað yfir”, sagði hún. “Eg hélt að það mundi kannske þreyta þig og vildi þessvegna ekki gera það.” Hann tók bréf upp úr vasa sínum frá móður sinni. Hún bauð Mrs. Sullivan að koma og heim- sækja sig í New Forest. “Móðir min hefir lofað”, sagði Jón Mordaunt, “að hún skuli láta fara svo vel um móðir þínu, sem unt er; en hún ætti að fara strax. Hún þarf þess heilsu sinnar vegna, og nú ætla eg að biðja þig að hjálpa mér til að fá Mrs. Sullivan til að samþykkja þetta.” “Ó! hvað þú ert góður, að koma þessu til leiðar; og það var sannarlega fallega gert af móður þinni, að bjóða okkur til sín,” sagði Nóra, og gleði var auðsæ á andliti hennar. Mrs. Sullivan hélt að hún mundi tæpast geta ferðast svona langt, en eftir nokkrar fortölur lét hún þó tilleiðast og símskeyti var sent til Mrs. Mordaunt um það, að eftir þrjá daga mundu þau þrjú leggja af stað frá Quincairne, og áleiðis til New Fores.t “Mér þykir vænt um, að við getum verið á dans- leiknum hjá Mrs. Wilmott, áður en við förum”. sagði Nóra. Kveldið sem dansleikurinn átti að verða, keyrði Nóra þangað í litlum vagni og Jlón Mordaunt var ný- kominn, þegar Nóra kom. Hún var klædd í snotran og viðhafnarlausan hvítan kjól; hún hafði armband- ið. sem Mr. Mordaunt hafði gefið henni. og hálsfesti sem var gjöf frá móður hennar. Þjó búningur Nóru væri ekki viðhafnar meiri en þetta, hlutu þó allir að játa, að' hún var fallegasta stúlkan á dansleiknum. Hún hafði aldrei fyr dansað við Mordaunt. Hann dansaði ágætlega vel. Allir i danssalnum horfðu á þau þegar þau dönsuðu, og margir horfðu með undrun og aðdáun á unga, hraustlega Englend- inginn. Sonur Mrs. Wilmott hafði beðið Nóru að dansa við sig þjóðdansinn, áður en gcngið væri til borðs. “Nú skal eg þó sýna þér hvernig reglulegur dans er”, sagði Nóra við Jón Mordaunt, þegar Mr. Wilmott kom að sækja hana, um leið og dansinn byrjaði. Mordaunt horfði hrifinn á dansinn. Hann hafði aldrei séð slíkan dans fyr, svo fjörugan og fallegan. Hann dáðist í huganum að yndisleik Nóru, þar sem hún sveif un: danssalinn án þess að fæturnir virtust snerta gólfið. “Ertu ekki þreytt?” surði Jón Moraunt, þegar Nóra kom aftur frá dansinum. “Ekki það allra minsta”, sagði Nóra. “Mér þætti gaman að vera á dansleik i Lundúnum og sjá þar alla dýrðina.” Við skulum fara á eins marga dansleiki og þú vilt og mér er sama hvað þeir eru margir ef þú, ef þú bara dansar nokkra dansa við mig.” “Eg veit nú ekki raunar hvað eg er að biðja um”. sagði Nóra. “Því ekki er nú víst að mér geðjist vel að þeim, eða Jiyki þar skemtilegt.” Hún þaggnaði snögglega og leit fram eftir danssalnutn. Mordaunt leit J:angað lika, en gat ekki séð þar neitt annað en nokkra menn sen: hópuðust saman framan við dyrnar. Hann leit aftur á Nóru, henni hafði mjög brugðið: fyrst varð hún blóðrjóð í andliti en náfölnaði á næSta augnabliki og virtist helzt sem mundi ætla að líða yfir liana. “Er þér ílt Nóra? Segðu mér J>að, þú ert náföl?” | sagði J|ón Mordaunt. Hún virtist vera hrædd. “Já. mér Iiður illa. Gefðu mér vatn að drekka. Fólkið er nú að fara inn ! í borðsalinn, við skulum koma þangað.” J lann tók í hönd hennar og leiddi hana inn 5 salinn, ]>ar sem ]>au settust niður. Hún var mjög föl “Hér er vatn, en betra væri fyrir þig að súpa á kampavini, það hressir þig betur. Þú ert þreytt eftir J dagsinn, borðaðu hérna vínber.” Hún borðaði nokkur ber; þau hrestu hana og rödd hennar varð aftur róleg. Eg ætla að sitja kyr og hvila mig meðan þú ert aö borða; eg er líklega svona þreytt eftir dansinn.” Hún leit á hann um leið og hún sagði þetta, og gat hann hæglega lesið kvíða og örvæntingu í augna- ráði hennar. Honum brá mjög við að sjá þá breyt- ingu, sem á henni hafði orðið. Hvað gat hrygt hana þannig ? 'Hvað hafði komið fyrir hana?. Þjegar þau fóru aftur inn í danssalinn, kon: á móti þeim ungur maður laglegur; Mordaunt þekti að hann var einn af þeim sem hafði komið inn þegar þyrpingin var við dyrnar. Hann heilsaði og snéri sér að Nóru og sagði: “Viltu dansa við mig einn dans? Liklega ertu búin að lofa öllum dönsunum, en þetta er aukadans og hann getur þú dansað við mig.” Þessi ungi maður er herforingi, hugsaði Mord- aunt; hann er brúneygður, svarthærður og með dökt yfirskegg. Það er liturinn, sem sagt er að ungar laglegar stúlkur gangist svo mjög fyrir. “Eg vissi ekkert um þennan dansleik”, sagði ungi hershöfðinginn með ákefð við Nóru, og eg ætl- aði með engu móti að geta fengið íeyfi til að komast frá herdeildinni í kveld, en eg þóttist vita fyrir vist- að þú mundir vera hér, og eg vildi um fram alt sjá þig, hvað sem það kostaði. Og Nóra, segðu mér hvort það er satt að þú sért trúlofuð?” Hún gat engu svarað; hún gat varla staðið á fót- unum, og nötraði eins og hrísla. Hann horfði i augu hennar og gat þar vel lesið svarið. Þjau' dönsuðu eins og í leiðslu. Hann hætti dansinum skyndilega og sagði: “Mér er ómögulegt að dansa. Mér finst eins og eg geti ekki dregið andann hér inni. Komdu út með' mér.” Þau fóru út úr danssalnum og út i garðinn og gengu eftir grasgangi, sem lá milli trjánna niður að sjónum. Þau gengu þar inn í þéttan skógarrunna. “Nóra, hvernig á eg að geta borið þetta?” sagði Gerald. Hann sagði þetta i örvæntingarróm. Henni fanst hvert orö eins og hnífstunga. Hún vildi svo fegin hughreysta hann, án þess að hugsa nokkuð um sjálfa sig. “En, góði Gerald”, sagði hún, “hugsaðu um, að þá vorum við börn, og þá var móðir mín rík; en nú eru eigur okkar farnar, og móðir mín heilsulaus- Við megum nú heita fátækar.” “Fátækar! Hvað gerir það til?” sagði Gerald. “Gæti eg ekki rutt mér heiðarlega og arðsama braut. Sem hermaður mundi eg hafa unnið og þrælkað, jafnvel svelt mig, til að veita ykkur lífsþægindi.” Hann talaði hratt og í mikilli geðshræringu. Þþí næst bætti hann við: “En það hefir verið móðir. þín, sem þessu hefir komið til leiðar; það var hún, sem bannaði okkur að skrifast á.” Hann tók utan um hana. “Nóra, elsku Nóra, eina stúlkan, sem mér hefir nokkurn tíma þótt vænt um”, sagði hann og vafði hana að sér. Mordaunt hafði ekki flutt bónorð sitt með svona brennandi ákafa. Þegar Gerald þrýsti henni að sér- kysti hana á ennið og lagði höfuð hennar undir vanga sinn, fann hún nýjan og óþektan ástaryl leggja um sig. “Nóra ]>ú elskar ekki þennan mann — þú ert mín! Þú veist sjálf að þú elskar liann ekki!” Hún hljóðaði upp yfir sig og sleit sig af honum. “Eg verð aldrei þín, Gerald! Eg get það ekki. Vertu sæll!” Hann greip um báðar hendur hennar. “Og þú ætlar þá að giftast manni, sem þú elsk- ar ekki ? Hlustaðu nú á mig Nóra. Þ]að væri rétt- ara ykkar beggja vegna, jafnvel þó að komið væri fast að hjónavígslu athöfninni, að hann slefti tilkalli til þin og ekkert yrði úr þessu hjónabandi.’’ “Eg ætla mér ekki að verða til þess að bandið milli Mordaunt og mín slitni; eg get ekki rofið orð min,” bætti hún við með hægð. “Nei, þú vildir heldur ræna mig allri lífsgleði og ánægju.” “Eg heyri fótatak á bak við okkur. Hér getum við ekki verið lengur. Fylgdu mér ’heirn aftur.” “Ójá. Eg býst við að það sé aðeins eitthvert annað fólk, sem hefir orðið erfitt um andardráttinn inni, eins og okkur. Eða kenske það sé Mordaunt sjálfur’,’ bætti hann við háðslega, “sem komið hefir út til að sjá hvort hann finni ekki einhverja vissa kálormategund, eða orsakir kartöflusýki. Eg þori að segja að hann er í meira lagi skemtilegur lífsleiðtogi. ungri stúlku eins og þú ert.” “Fylgdu mér aftur heim að húsinu, Gerald! Ef þú leiðir mig ekki þangað strax, þá fer eg ein!” Eftir þetta töluðu þau ekkert saman. en gengu rakleitt inn og Nóra settist í sama sæti og hún hafði setið í áður. Um bleikar varir hennar lék nú bros. Gerald stóð þráðbeinn frammi fyrir henni. “Leyfi mitt úr herbúðunum verður útrunnið » fyrra málið. Eftir þrjá daga leggjum við af stað til i Egyptalands. Vertu sæl!” Nóra rétti honum hönd sina og um leið og hún leit upp og framan i hann með bænarsvip um fyrir- gefning, sagði i>ún: “Vertu sæll!” Hann leit að eins til hennar ásökunar-augum. Því næst kvaddi hann húsmóðurina og innan stundar var hann kominn á hestbak. “Litlu siðar kom Mordaunt til Nóru. “Nú á aö fara að dansa slaufudansinn, en þú er líklega of þreytt til að dansa”, sagði hann. “Eg ætla ekki að dansa meira í kveld, eg er svo þreytt,” sagði hún. “Á eg að biðja um að láta koma með vagninn þinn ?” spurði hann. Hann gekk burtu, en kom að vörniu spori aftur til að fylgja Nóru út í vagn hennar. og Hta eftir því að ábreiður væru nægar til að vefja utan um hana og að sem bezt færi um hana. Örðugt hefði verið að greina, að nokkur breyting væri orðin á honum; en breyting hafði orðið eigi að síður; al- vörusvipur mikill var kominn á andlitið. Nóra vissi vel, að eg Gerald hefði staðið í sporum Mordaunts, hefði hann orðið geysi-afbrýðissamur, en þó óttaðist hún meir þá miklu ró og bleika fölva, er hvíldi yfir andliti Englendingsins, heklur en þó að hann 'hefði sýnt af sér reiði eða geðofsa. Dr.R. L. HUR5T, Member of Royal Coll. of Surgeons, Eng., útskrifaður af Royal Cðllege of Physicians, London. Sérfræöingur í brjóst- tauga og kven-sjúkdómum. — Skrifst. 305 Kennedy Bldg, Portage Ave. (k móti Eaton’sJ. Tals. M. 814. Tími til viðtals, 10-12, 3-3, 7-9. THOS. H. JOHNSON og HJÁLMAR A. BERGMAN, íalenzkir lógfræOÍBgar, Skrifstofa:— Room 8n McArthur Building, Portage Avenue ÁRITUN. P. o. Box 1050. Telefónar: 4503 og 4504. Winnipeg ÓLAFUR LÁRUSSON BJÖRN PÁLSSON t YFIRDÖMSLÖGMENN } Annast IögÍTæðisstörf á Islandi fyrir Í Vestur-Islendinga. Otvega jarðir og 4 hús. Spyrjið Lögberg um okkur. 4 Reykjavik, - lceland -♦ P. O. Box A 41 Dr. B. J. BRANDSON Office: Cor. Sherbrooke & William Telephone garrv 380 Offick-Tímar: 2—3 og 7—8 e. h. Heimili: 620 McDkrmot Avk. Telephone garry 381 Winnipeg, Man. Dr. O. BJ0RN80N Office: Cor, Sherbrooke & William rELKPHONK GARRY 33» Office-tímar: 2—3 og 7—8 e. h. Hbimili: 81 O Alverstonc St TELEPHONEl GARRY TC3 Winnipeg, Man. Vér leggjum sérstaka áherzlu á aí selja meðöl eftir forskriptum lækna Hin beztu me'ðöl, sem hægt er að fá eru notuð eingöngu. pegar þér komit með forskriptina til vor, megið þéi vera viss um að fá rétt þaS sem lækn- irinn tekur til. COLCLEUGH & CO. Notre Daine Ave. og Sherbrooke St. Phone. Garry 2690 og 2691. Giftingaleyfisbréf seld. Dr. W. J. MacTAVISH Office 724J íargent Ave. Telephone óherbr. 940. l 10-12 f. m. Ofnce tfmar -j 3-5 e. m. ( 7-9 e. m. — Hbimili 467 Teronto Street — WINNIPEG tklephonk Sherbr. 432. Dr. R. M. Best Kvenna og barna læknir Skrifstofa: Union Bank, horni Sherbrooke og Sargent Tímar: 3—5 og 7—8. Heimili: 605 Sherbrooke Street Tals. Garry 4861 Lögbergs-sögur FÁST GEFINS MEÐ ÞVÍ AÐ GERAST KAUPANDl AÐ BLAÐINU. PANTIÐ STRAXI J. G. SNŒDAL TANNLŒKNtR. ENDERTON BUILDNG, Portage Ave., Cor. Hargrave St. Suite 313. Tals. main 5302. Jj Dr. Raymond Brown, Sérfræöingur í augna-eyra-nef- háls-sjúkdómum. 326 Somerset Blde Talsími 7262 Cor. Donald & Portage Ave. • Heima kl. io— 12 og 3—5 w* w m m m wwirwt A. S. Bardal 843 SHERBROOKE ST. selur líkkistur og annast om iltfarir. Allur útbún- aður sá bezti. Ennfrem- ur selur bann allskonar minnisvaröa og legsteina Tals Oai-x-jr 2152 8. A. 8IOUBOSOW Tais. Sherbr, 2786 S. A. SIGURÐSS0N & C0. BYCCIþCAfijEþN og F/\STEICN/\SALAR Skrifstofa: 208 Carlton Blk. Talsími M 4463 Winnipeg J. J. BILDFELL FASTEIGm A8ALI fíoom 520 Union Bank - TEL. 2685 \ Selur hús og lóðir og annast alt þar aOlútandi. Peningalán

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.