Lögberg - 02.07.1914, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. JOLÍ 1914
GREIDID ATKVÆDI YDAR
10. JÚLI MED FRAMSÓKN-
• •
ARMONNUM OG
BETRI STJÚRN
Stefnuskrá Framsóknarflokksins
1— Skólaskj'lda. Nauðsynleg kensla í enskri tungu. Auknar fjár-
veitingar til skólamála. Næg mentunartækifæri handa liverju
barni. Afnám Coldwell’s laganna.
2— Alþýðu atkvæði um lokun drykkjuskálanna (bars). Fækkun
vínsluleyfa. Afnám klúbbanna. Að búsettir kjósendur hafi
vald til þess að ákveða tölu vínsölulevfa.
4— Bein löggjöf.
3— Jafnrétti kvenna.
5— Ströng lög til þess að útiloka kosningasvik og þesskyns spill-
ingu. — óhlutdræg framkvæmd réttvísinnar.
6— Örugg vernd liagsmuna verkamanna.
7— Bætt akuryrkjumál. Aukin praktisk mentun. Endurbætt verzl-
unar- og samvinnumál. Tilraun til þess að fá ódýrari pen-
inga. Almennings eign sláturhúsa.
8— Góðir vegir í sambandi við sveitarstjórnirnar.
9— Aukning rafmagns, sem framleitt er með vatni.
10— Verndun á afurðum fylkisins fólkinu til handa.
11— Vald sveitanna til þess að ráða sjálfar sköttum sínum.
Kjósið þingmannseíni Framsóknar-
flokksins.
Skólaskylda.
Það er hin stærsta velferðarspurning allra sannra borgara
Manitoba á þessum tímum.
Sérhvert barn á lieimtingu á J>ví að fá góða skólamentun. Og
það á að verða lagaskylda foreldranna a sjá um að svo verði.
fyrstu skyldu sína—,
Ef framsóknarflokkurinn kemst tit valda, telur stjórn lians það
(1) —Að koma á hentugu fræðslumála fyrirkomulagi, sem nær
jafnt til allra barna í fylkinu.
(2) —Að setja skólaskyldulög.
(3) —Að fullnægjandi enskukenslu verði komið á í hverjum
skóla. Enskan er verzlunarmál fylkisins. Sérhvert barn, sem
ekki kann enska tungu, er fatlað í baráttunni fvrir tilverunni í
hinum enskumælandi heimi.
(4) —Að auka vöxt og viðgang sveitaskólanna með betra eft-
irliti og meiri fjárframlögum í þinginu, þannig, að ekki komi
minna en 200 dollarar á hvern kennara við sveitaskólana, sem
samkvæant fjárveitingu núverandi stjórnar er ekki nema $130.00.
Finst þér ekki uppfræðslumál barna þinna snerta þig æði mikið?
Þú getur ekki léð þeim flokki atkvæði þitt, sem fer með fræðslu-
málaspurninguna eins og einlivern liégóma.
Bein löggiöf.
Grundvallaratriðið í beinni löggjöf er alþýðuatkvæði — það, að
fólki sjálft getur valið eða hafnað’ ákvgðnum lögum. Borgurunum
gefst eðlileg og réttmæt hluttaka í tilbúningi laganna sem þeir eiga að
lifa undir.
í beinni löggjöf kemur þjóðarviljinn í ljós og getur notið sín. 1
staðinn fyrir að ósanngjörn stjórn getur annars dembt yfir fólkið
livaða lögum er henni sýnist/
Bein löggjöf er þjóðstjórn. — Roblin segir liún sé skrílstjórn.
Bein löggjöf verður vandari, hefir betri festu.
Betri og vandaðri stjórn er afleiðing hennar. ,
Standandi í vegi fvrir öllum framfara hreyfingum, Roblin og
flokkur hans hamast á móti beinni löggjöf.
Samt greip stjórnarformaðurinn til beinnar löggjafar 1902 til
þess að drepa með vínsölubannslög Macdonalds,—þá var gott að bjarga
sér með henni. — En nú er annað hljóð í strokknum.
Stjórnarformaðurinn, Roblin, segir, að bein löggjöf stríði á móti
brezkum reglum og venjum. En alkunnir stjórnmálamenn eins og
Hon. A. J. Balfour, Lord Lansdown, Lord Salisbury, telja alþýðuat-
kvæði í beinu samræmi við brezkt fyrirkomulag.
Hvernig lízt yður á ? Haldið þið að það sé farsælt a eiga alt sitt
undir stjórn sem ekki er í meira samræmi vi sjálfa sig, ekki vandaðri
að virðingu sinni en Roblinstjórnin?
Vernd verkamanna.
Hér um bil í hverju einasta áríðandi siiursmáli taka Liberal og
verkamannafélögin saman höndum, berjast að sama takmarki —- hafa
sömu stefnuskrá.
Það liefir enginn stjórnmálaflokkur tekið upp eins alþýðlega
stefnuskrá eins og Liberalar berjast nú fyrir.
Grundvöllur stefnuskrárinnar er vilji almennings, í þægð fyrir
fólkið. Þar er öllum gert jafnt undir höfði. Það gefur fólkinu tæki-
færi á beinni löggjöf, þar sem það getur vernflað sig sjálft fyrir yfir-
gangi einstakra ribbalda.
Hver einstaka grein í stefnuskrá Liberala ætti að fá atkvæði
verkaknanna. — Sérhvert undirstöðuatriði í “vernd” vei’kamanna
ætti a mæla með sér sjálft, til ykkar iðnaðannenn!
Frjálslyndi flokkurinn hefir ætlað sér með áframhaldandi löggjöf
að hjálpa og vernda verkamenn og endurbæta nauðsvnleg skilyrði til
lífsins.
Og semja lög um veitingu á mikilvægum fyrirtækjum héraða
og sveita.
Og láta þunga refsingu varða við, ef lögunum er ekki framfylgt.
Og sjá um að sá, sem hefir stjórnarverk á höndum, borgi verka-
mönnum sínum bæði vel og skilvíslega.
Að endurbæta, laga og uppbyggja efnahag verkamanna og greiða
götu hmálefna þeirra í einu sem öðru.
örugg venxd og réttindi skuli gefin hverjum einstaka manni, í hvaða
iðnaðargrein sem er.
Allar hugsanlegar varúðarreglur skuli notaðar, sem verndað geti
heilsu og vellíðan verkamanna.
Verkamenn! gefið þeim flokknum atkvæði ykkar, sem berst fvrir
hagsmunum alþýðunnar.
Stefna núverandi stjómar er í öllu gagnstæð kröfum ykkar, verka-
menn.
Munið það lO.Júli.
f* /x*>• •
booir vegir.
/ llir rnenn kunna að meta góða vegi, og allir sækjast eftir að fá
þá. Undir vegunum er heill bændanna komin. Þeir geta komið fram
störfum sínum á styttri tíma, flutt afurðir sínar á markaðinn á fljótari
og ódýrari hátt.
Góðir vegir eru lyftistöng menningarinnar.
Illir vegir standa öllum framförum fyrir þrifum.
Frjálslyndi flokkurinn hefir alt af staðið á verði um þetta mál sem
önnur. Og ef hann kemst til valda, mun hann beita sér af alefli fyrir
umbótum á vegamálum, í sambandi vúð beztu menn héraðanna. Roblin
stjórnin hefir ausið út fé fyrir brjóstmylkinga sína — gjörsamlega án
tillits til þess hvar þörfin var mest.
Sláandi dæma þessa var við Gimli-kosningarnar, þegar $93,000
var fleygt í dálítinn vegarspöl.
Munið, að þetta var yðar fé, sem þarna var leikið með.
Gleymið ekki ákærunum, sem fram koinu undir eið., að þar hafi
whisky verið veitt ábáða bóga, og önnur margskonar siðspilling verið
liöfð þar í frammi.
Bindindi.
Núverandí stjórn stendur í nánu sambandi við brennivínsverzl-
unina. Hún hefir verið Þrándur í götu allra umbóta í vínsölulöggjöf-
inni. Stjórnarformaðurinn verndar beinlínis' Ibrennivínið. Það er
augljóst, að náin samvinna er á milli hans og brennivínssalanna. Hinir
alræmdu klúbb^y, sem hafa eyðilagt heilsu og lieiður fjölda æskumanna,
eru verndaðir með öllum ráðum af stjórninni.
Undir eið var ómögulegt að koma fram breytingum í þinginu á
þeésu.
Hvernig haldið þér að ástandið verði ef svona stjórn situr lengur
að völdum?
Þér hljótið að greiða atkvæði vðar á móti þessari alræmdu brenni-
víns stjórn — sem nú ræður lögum og lofum.
KjósicV Þingmannsefni Frjálslyndaflokksins