Lögberg - 10.09.1914, Blaðsíða 5

Lögberg - 10.09.1914, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. SEPTEMBER 1914 5 The Empire Sash & Door Co. Limited HENRY AVE. EAST WINNIPEG VIÐUR ”LATH“ ÞAKSPÓNN Fljót afgreiðsla. Abyrgst að kaupendur séu ánægðir KOL og VIDUR ALBERT GOUGH SUPPLY CO. Skjót afgreiðsla. Lægsta verð. 41 1 Triburte Buildine TALSIMI: M. 1246 fyrir því aö vér settum skilyrðiö áöurnefnda, aö næstum allir þeir sem á hælinu yröu teldust lútersk- ir menn. Þess vegna bæri oss með réttu andleg umsjón meö þvi fólki. Buöum vér jió um leiö, að væri á hælinu einstaklingar, er yfirgefið heföu kirkju vora og aðhylst aöra lifskoðun, t. d. Unítaratrú, þá skyldi klerkum og fólki þess flokks, er sá maður lieyröi til, heimilt hvenær sem væri, að koma og upp- byggja þann mann í trúarefnum, eftir því sem þeim þætti við eiga, en þó einslega og án þess aö boða öðrum trú sína um leið. Getur mér ekki annað sýnst, en að vér gengjum þarna eins langt i tilslök- unaráttina og framast mátti verða. Ef vér hefðum viljað vera strang- ir upp á réttinn, þá befðum vér átt að heimta, að fá gamla Unítarann þarna í hælinu til baka og þá banna að Unítarar fengi að heim- sækja hann og halda honum við í þeirra trú. Það er æði mikill munur á að stela hesti eða að ná stolnum hesti til baka. Menn biðja vanalega ekki um leyfi til að j mega taka hestinn sem frá þeim hefir verið stolið. Menn bara taka hann ef þeir geta. Sá sem stal rná þakka fyrir ef hann sleppur við hegningu. Gamli Unítarinn i hælinu hafði áður ver- ið lúterskur maður, en svo náðu Unitarar í liann og telja hann sína eign. Með öðrum orðum: Unitarar höfðu stolið hestinum frá oss, og það er svo langt frá að vér göngum hart að þeim að skila hestinum til baka, heldur segjum . vér blátt áfram, að þeir megi hafa og eiga hestinn sem þeir stálu, að- eins setjum vér þeim þann kost, að stela ekki fleiri hestum frá oss! — Svo þegar vinum vorum, Unítör- urn, var boðið að hafa andlega um- sjón yfir sínu eigin fólki í Gamal- mennahælinu, en öðru ekki, þá er móti ekki einasta fá að boða sína trú sínu fólki þar á stofnaninni, heldur öllum öðrum þar líka. Get eg ekki betur séð en trúboðsákafi þeirra væri miklu meiri en vor, ef rétt er álitið. EFramh. Jóhann Bjarnason. Dr. Jón sál. Bjarnason og skóli kirkjufélagsins. Með djúpri virðingu kannast ís- lendingar við það, að hinn látni for- ingi vors lúterska kirkjufélags, hafi verið faðir skólaniálsins hjá oss. Það sýndi kirkjufélagið á síðasta þingi þess með því að láta skólann bera nafn Dr. Jóns Bjarnasonar. Skóla- málið var eitt fyrsta mál hans í kirkjufélaginu, það var honum hjart- fólgið mál meðan hann lifði og á síðasta þingi, sem haldið var meðan hann lifði, hjálpaði hann til að leggja grundvöll ]>eirrar stofnunar, sem nú er kornin á fót. Árið 1890 var samþykt að byrja þennan skóla með kensiu í Winnipeg undir umsjón séra Jóns, og hefði það oröið að framkvæmd ef hann hefði ekki veikst. En þegar vér athugum þetta og margt annað, sem tengdi hann við skólamálið, ætti oss að vera sérstaklega hugnæmt að lesa það sem hann ritaði fyrst um málið. Það var i Ágúst-blaði Sameiningarinnar 1890. Mönnum til fróðleiks og ánægju setj- um vér hér byrjunar-kafla og niður- lagsorð þeirrar ritgerðar, svo hljóð- “Kirkjuþingið þetta síðasta, steig eitt stór-spor í áttina til framfara þjóðflokks vors hér í landi, er það tók ályktunina um að koma hið bráð- asta upp hér í Winnipeg ofurlítilli mentastofnun fyrir íslenzk ungmenni. Nauðsyn þessa fyrirtækis Hggur svo langt frá að verið væri að bera 1 vafalaust öllum hiuum skynsamara þeirra rétt fyrir borð, heldur var j hluta fólks vors svo 1 au?um uPPb að þeim fengið alt þaö í hendur er hun l)arf víst alls enSrar sönnunar þeim bar. Að hafa umsjón með sínu eigin fólki var alt og sumt því móti gat maður náð samvinnu með þeim í þesstt nauðsynjamáli, að öðrurn kosti ekki. Get eg ekki með nokkru móti séð, að samvinn- an strandaði á trúboðsákafa af vorri hálfu, heldur alveg hið gagn- stæða. Vér ætluðum að gera oss ánægða með að boða þvi fólki í stofnaninni evangeliskan kristin- dóm. sem enn héldi viö trú sína, en gefa öðrum eftir þó er frá hefðu horfið og aðhylst annarlegan boð- skap. Unitaramir vildu aftur við. Vér þurfum á sérstakri íslenzkri mentastofnan hér í landi að halda, sem þeir gátu réttilega krafist. sv0 framarle^ sem vér sem þjóð- Það átti að veita þeim, en með þaö ,flokkur ut af fyrir oss ei?um 1 ó' voru þeir ekki ánægöir. Ekkert j kominni tlð að &eta að nokkru Sert rninna en trúboð meðal allra íbúa osf /ll<lanð' ' hérlendu þjóðlíf.. hælisins gat gert þá ánægða. Með , . ,?vo . framarleSa «em islen"ku þjoðerm fylgir nokkuð það, er þessa lands þjóðlíf getur eitthvað haft gott af og þarafleiðanda sé vert að varð veita af iandnemunum íslenzku hér og niðjum þeirra, svo framarlega sem .nokkuð er í íslenzkum bókmentum, sem hér í landi er nokkuð gefanda fyrir, svo framarlega sem vér í and legu tilliti stöndum ofar en hver önn- ur villiþjóð sem er, þá hlýtur öllum að koma saman um það, að eitthvað verður að gera til þess, að þessi beztu andlegu einkenni vor geti fylgt þeirri kynslóð íslendinga. sem hér er að vaxa upp í hinu nýja landi, út í lífið. Og til þess að það geti orðið, þurf- um vér endilega á sérstakri íslenzkri skólastofnan að halda, skólastofnan, er safnað geti að sér nokkrum hópi vorra efnilegustu og námfúsustu ung- menna. "Og skólinn á bæði óbeinlínis og beinlinis að geta orðið máttarstólpi undir kirkjufélagsskap vorum. Kirkj- an vor sem lútersk kirkja getur ekki annað en lagt ákaflega mikla á- herzlu á mentan fólks vors. Hún verðskuldar ekki að bera hið lúterska nafn, ef hún ekki gerði alvöru af því að eignast sína eigin menta- stofnan ; — fyrst vísirinn náttúrlega, svo berið. Þeir sem vakanda auga hafa fyrir andlegum þörfum þjóð- flokks vors, gleyma því, vonum vér, ekki, að leggja þetta skólamál á hjarta almennings víðsvegar út um bygðir íslendinga i þessu landi. Menn verða nú endilega að gera þetta að brennnandi spursmáli i öll- um söfnuðum voruni.” Þannig talaði hann, sem nú með nafni sínu, þótt hann sé frá oss far- inn, varpar ljóma yfir skóla vorn. Vér, Vestur-lslendingar, heiðrum minning hans með því, að gefa gattm að orðum hans! Látið nú inngöngu-beiðnir streyma að skólanum úr öllum áttum. Winnipeg, 8. Sept. 1914. R. MARTEINSSON., 493 Lipton St. Frá Íslandi. Reykjavík, 12. Agúst 1914. William Paton Ker, prófessbr í enskum bókmentum við Lundúnahá- skóla, kont hingað með Vestu og fer austur í Árnessýslu í dag. Prófessor Ker hefir um langan tíma lagt stund á íslenzku og talar hana vel. Hann er höfundur að tveim bókum “The Dark Ages" og “Epic and Romance” og er i þeim mikið um forn-íslenzkar bókmentir. í hinni síðartöldu er mjög mikið um íslenzku fornsögurn- ar, og er sá kafli bæði skemtilegur og frumlegur. Auk þess hefir hann skrifað greinar um Sturlu lögmann Þórðarson, Guðntund biskup góða, Jón Arason o. fl. Hann hefir kostað hina nýju útgáfu af þýðingu Svein- bjarnar Egilssonar af Odysseifs- kviðu, sem kom út í hitt eð fyrra. Heiðursmerki. 21. f.tn. fékk land- ritari Klemens Jónsson konnnandör- kross dbr. orðunnar af 2. fl. Sama dag fengu skrifstofustjórar stjórnarráðsins Indriði Einarsson og Jón Hermannsson riddarakross dbr. orðunnar. J. . Aasberg skipstjóri á Botníu vafð sama dag dannebrogsmaður. Grasvöxtur er nú orðinn nteiri en í meðallagi austan fjalls, og yfirleitt mun hann allgóður víðast hvar utn land. En jturkar hafa verið vand- gæfir hér syðra, þangaö til nú síðustu dagana. Settur sýslumaður i Skaftafells- sýslu er Sigurjón Markússon lög- fræðingur. Fer hann austur að loknu [tingi ásamt ráðherra, er þá skilar af sér sýslunni. Vísir segir þá frétt í gærkvöldi, að farist hafi í gær vélarbáturinn Guð- ríður frá Isafirði, hafi rekist á sker fyrir utan Skagaströnd og sokkið, en skipshöfn verið bjargað. Til Stokkseyrar kom nú rétt fyrir helgina selgskip frá Bergen hlaðið salti. Það fór frá Noregi rétt í- því að stríðið var að byrja. Það er sagt, að eftir síðustu frétt- um að utan, að hveiti sé mjög dýrt, rúgmjöl einnig í töluvert hærra verði en áður; aftur hafi surnar kornteg- undir ekki stigið, t.d. hrísgrjón. og kaffi sé jafnvel lægra í verði en veriö hafi aö undanförnu. Stjórnarráðið fékk í fyrrakveld símskeyti frá skrifstofu sinni í Khöfn er segir, að Ingólfur fari þaðan til Norðurlandsins og Austurlandsins 14. þ.m. og aö Samein. gufuskipafé- lagið sendi skip beint til Reykjavíkur 16. þ.m. Frá Akureyri hefir frézt, að auk þess sé ferðbúið skip til verzlana Tuliniusar hlaðið vörutn. Það er ‘‘ForstekkV’ Haföi Tulinius látið skipið fara beint héðan frá landi með síld, og sendir það síðan upp aftur með vörur. Nýdáinn er merkismaðurinn Ásgeir Guðmundsson, hreppstjóri og dbrm. Reykjavík, 5. Ágúst 1914. Sturla Þórðarson lögmaður og sagnaritari átti 700 ára afmæli 29. f. m. /Efisaga hans er í Safni til Sögú íslands frá 1856, rituð af Sveini Skúlasyni. löng ritgerð og fróðleg, en síðan hefir B. M. Ólsen prófessor skrifað unt ritstörf Sturlu í hinni nterkilegu ritgerð sinni urn Sturlungu í sama riti. Ríkharður Jónsson myndhöggvari frá Khöfn dvelur hér í bænunt í sunt- ar. Hann hefir gert í gibs upp- hleypta vangamynd af Steingrími heitnum Thorsteinssyni og hefir hér til sölu nokkur eintök. Verðið er 12 kr. og myndin mjög vel gerð. Hillingar heitir kvæðasafn eftir Svb. Björnsson, sem verið er nú að prenta í Gutenberg. Náttúrufræðifélagið og Náttúru- gripasafnið hér í Rvík áttu 25 ára af- mæli 16. Júli síðastl.. Aðalforgangs- menn að stofnun þeirra voru þeir Stefán Stefánsson skólameistari og Benedikt heitinn Gröndal skáld. Var Gröndal framan af fortnaður félags- ins og forstöðumaður safnsins, en síðan tók við af honurn Bjarni Sæ- mundsson kennari og hefir haft hvort tveggja á hendi síðan. Safnið er nú geymt í Landsbókasafnshúsinu niðri og fer smátt og smátt vaxandi, og lætur forstöðumaðurinn sér ant um að auka það og gæta þess sem bezt. Dáinn er 30. f.m. Arnbjörn Ólafs- son kaupmaður og útgerðarmaður í Keflavík, 65 ára gamall. Hann and- aðist í Khöfn. og var banameinið heilablóðfall. Arnbjörn var kvæntur Þórunni Bjarnadóttur, systur séra Þorkels heitins á Reynivöllum. Son- ur þeirra er Ólafur kaupmaður i Keflavík, en annan son mistu þau ungan. Þýzki hóskólakennarinn. er Þjóð- verjar ætla að kosta hér við háskól- ann, kom hingað í síðastl. mánuði. Hann heitir dr. Kurt Busse og kall- ast lector. Hann er ungur rnaður mjög álitlegur. Islenzku hefir hann lært hjá prófessor Heusler í Berlín og skilur hana og talar þegar svo, að auðfundið er að hann mundi fljótlega verða vel fær í málinu, ef hann dveldi hér. En nú hefir hann farið heim- leiðis aftur vegna stríðsins. Vonandi er að hann komi hingað aftur heill á húfi úr stríðinu. Hann hafði sagt það áður hann fór, að ef hann kæm- ist lífs af, kæmi hann hingað aftur. “Prins Friedrich Wilhelm” heitir þýzka skemtiferðaskipið, sem hér var sunnudaginn 25. Júlí, mjög stórt skip og vandað. Með því voru um 500 farþegar. Héðan fór það norður um land og ætlaði til Spitsbergen og svo suður með Noregi, eins og venja er til um þessi skip. En 2. þ.m. fékk þýzki konsúllinn hér skeyti urn, að skipið hefði ekki komið fram, engar fregnir komið um komu þess til Spitsbergen, en þaðan er loftskeyta- samband til Noregs. Eru rnenn hræddir um að skipinu hafi hlekst á norður í íshafi. Veðrið er hið bezta nú síðutsu dag- ana, sólskin og þurkur. Yfir höfuð hefir tíðin veriö góð um hálfsmánað- atíma. Fálkinn tók. 1. þ.m. enskan botn- vörpung-, Drypool frá Hull, við land- helgisveiðar á Patrcksfirði. Undirréttardónnirinn í morðmál- inu, líflát konu þeirrar er játaði á sig að hafa veitt bróður sínuin bana, hefir verið staðfestur í Landsyfir- dómi.-—Lögrétta. Frú Elín Gunnarsson er nýlátin.— Kostnaður við starf fánanefndar, er ráðherra setti til að koma fram með tillögur í fánamálinu, nemur samtals 6.164 kr. z í fánamálinu urðu úrslitin þau, að benda konungi á tvær fánagerðir og láta hann ráða hvor lögfest yrði. \7ar önnur hin gamla: hvítur kross í blám feldi, hin rauður kross með hvitum brúnum á blám feldi. . Hinn nýi ráðherra og flestir hans rnenn voru mótfallnirþeirri samþykt, en hún hafðist fram með 19 atkvæðum gegn 16. Stjórnarskrárbreytingin var sam- þykt í þinglokin. Jódís Jónsdóttir liúsfrú andaðist á heimili sínu, Vesturgötu 26, aðfara- | nótt 5. þ.m., eftir langa og þunga 1 legu. Hún var kona Ámunda fiski- matsmanns (frá HlíðarhúsumJ, mesta merkis- og gæðakona, tæpra 57 ára gömul. Skemdir þær er urðu á Snorra Goða er Súlan sigldi á hann á Eyja- firði nýlega, eru metnar 1,200 kr., en bátur og varpa sem skemdist, 900 kr. Sjódómur ekki fallinn. Frönsk-íslenzk orðabók er nú að koma út eítir Pál Þorkelsson, prent- Komizt átram. meí þvl aS oranga á Success Business College á Portage Ave. og Edmonton St., eða aukaskólana I Regina, Weyburn, Moose Jaw, Calgary, Lethbrdge, Wetaskiwin, Lacombe og Vancouv- er. Nálega allir Islendingar í Vestur Canada, sem stúdéra upp á verzlunarveginn, ganga á Success Business College. Oss þykir mikiS til þeirra koma, peir eru góSir námsmenn. SendiS strax eftir skólaskýrslu til skólastjóra, F. G. GARIÍFTT. President D. F. FERGUSON, Principal. un hennar langt komin. Dr. Helgi Pétursson flutti í gær- kveldi (9. Ág.J fyrirlestur undir beru lofti fyrir ofan Skólavörðu. Var þar allmargt nianna að hlusta á. Drengur varð fyrir bíl á götunni í gærmorgun og meiddist eitthvað. Þó liyggja menn að það sé ekki alvar- legt. Moldrok hefir verið afskaplegt á götunum nú í hvassviðrinu einkum í fyrradag. Ekki borið við að væta göturnar. Kosiiing hlutu í bankaráð íslands- banka fyrir timabilið 1915—19: — Magnús Pétursson, þingm. Strand. með 20 atkv. og Matth. Ólafsson þ.m. Vest. Isf. með 16 atkv. Litlu fyrir miðjan Ágústmánuð var búið að salta niður af síld fyrir öllu Norðurlandi 95,114 tn, en í fyrra um sarna leyti um 80,000 tn. Er nú veiðin orðin allmiklu meiri en í fyrra. Kolmálin eru hér að nokkru út- kljáð þannig, að landstjórnin hefir ieyft Norðmönnum að nota sem þeir eiga gegn trygging fyrir því að kol komi aftur frá Noregi. Póstur frá íslandi mun að líkind- urn ekki korna hingað með póstskip- um að svo stöddu, enda koma þau ekki við í Leith á hingaðleið, eða svo er um Ceres í næstu ferð. Islendingafélag var stofnað í Kristjaniu 2. Ágúst í sumar. Það var við kveldverð hjá Ólafíu Jó- hansdóttur, þar sem staddir voru 22 íslendinga. Fyrsta verk félagsins var að senda heillaóskarskeyti til þjóðhátíðar Islendinga í Winnipeg og Reykjavik. Hér varð sem kunn- ugt er engin þjóðhátíð og skeytisins íiefir ekki verið getið hér. Arinbjörn Bardal var hinn eini full- trúi Stórstúku Manitoba á Hástúku- þinginu í Kristjnaíu. Hann kom ■neð Pollux hingað eftir þingið og dvelur hér um stund. Wsturheimsmennirnir þeir Albert Jónsson, Lúðvík Laxdal og Aðal- steinn Kristjánsson ern um þessar mundir á ferð um Þingeyjarsýslur og eru í fvlgd með þeini margir Ak- ureyringar. Frá ísafirði er símað 14. þ.m.: — Einar Sigurðsson Jfrá Vörum á Suð- urnesjum, gamall útvegsbóndi við Faxaflóa í fyrri tíð, er margir kann- ast viðJ drekti sér hér á ísafirði i gr. Hafði búið hér í mörg ár, orð- inn fyrir löngu eignalaus.—Vísir. Sjálfu sér likt. Mjög gömul handrit, ef gefa má þeim það nafn, er nýlega hafa fund- ist í Egyptalandi og verið flutt til London, sýna, að ekki hefir fólk breyst til muna síðan á dögum hinna görnlu Faraóa. Þarna er sagt frá því, að maður liafi hrapað ofan af þaki og beðið bana af. Hafði hann klifraö þarna upp til þess að geta betur séð nokkrar stúlkur, sem voru að dansa; sjálfsagt hafa þær verið venju íremur fríðar. Einnig voru þar auglýsingar um veðreiðar og í- þróttamót. Enn fremur var þar kæra, er kona hafði lagt fram gegn í manni sínum fyrir það, að hann vildi | ekki trúa henni fyrir að geyma lykl- • ana að húsi þeirra. i J. J. Swanson & Co. Verzla með fasteignir. Sjá um leigu á húsum. Annast lán og eldsábyrgðir o. fl. 1 ALBE«T/\ BLOC^. Portage & Carry Phon« Main 2597 ALLA NÆSTU VIKU Mats. á Verkamannadaginn, MiCv. dag og Laugardag. verður leikinn hinn áhrifamikli og og fagri leikur úr lifinu í Kentucky „In Old Kentucky“ PantiS me8 pósti nú þegar.—Sala í leikhúsi byrjar föstudag 4. Sept. Kveld. $1.50, $i, 75c, 50c. 25c. MatS. $1, 75c, 50c, 25c. VIKUNA FRA 14. SEPT. veróur' leikinn hinn mikli sorgar- leikur frá Drury Lane “THE WHIP” Kemur beint frá tveggja Sra sýningu á Drury Lane leikhúsinu, I Dondon á Englandi og eins árs í Manhattan leikhúsinu í N. Ýork. Sjáió bila-áreksturinn, hið mikla járnbrautarslys, átakanlegu kappreið- arnar, vax-sýningu Mme. Tussaud’s, kynbótahesta, I fjórum þáttum og 13 spennandi sýningum. Póstpantanir nú þegar Sala I lelikhúsi byrjar á föstudag kl. 10. —Kveltl $2 til 25c. Mats. $1.50 I til 25c. FROSTMORGUNINN. Drúpir fjóla á dánar hól drifin pólar rósum fyr en ból og stjömu stól stráði sólin ljósmn. J. G. G. ÆSKUSVIPUR ELUINNAR. Ellin breytir eðli manns upp í. bernsku vorið: vorar heitu geisla glans gýllir síðsta sporið. J. G. G. Walker Leikhúsið In Old Kentucky er leikurinn, sem sýndur verður á Walker þessa viku. Þéssi alþýðlegi leikur er svo fullur af fjöri og gáska, að hann hefir farið óslitna sigurför urn leiksvið Vestur- heims í tuttugu og tvö ár samfleytt. Hefir það aldrei brugðist, að hann hafi dregið húsfylli, hvar sem hann hefir verið sýndur um landið þvert og endilangt. Matinee á laugardag kl. 2.30. “The VV’hip” verður sýnt næstu viku. Sá leikur hefir verið sýndur í tvö ár í London, eitt ár i N. York og eitt ár í Chicago samfleytt. Matinee á miðvikudaginn og laugardaginn. — Það er stórmerkur viðburður í sögti leikhússins að fá þennan leik. Til þess að flytja áhöld og útbúnað allan sem honum fylgir, eru leigðir fimm sérstakir vagnar. Leikurinn er í fjór- um þáttum. með yfir hundrað leik- endurn og mörgum hestum og hund- um, sent leiknum heyra til. Byrjað að selja aðgöngumiða á föstudagsmorguninn kl. 10. Wonderland. Nýjum rafntagns Unaphonc hefir verið bætt við hljóðfærin í Wonder- Vinna fyrir 60 menn Sextíu manns geta fengið aðgang að læra rakaraiðn undir eins. Til þess að verða fullnuma þarf að eins 8 vikur. Áhöld ókeypis og kaup borgað meðan verið er að læra. Nem- endur fá staði að enduðu námi fyrlr $15 til $20 á viku. Vér höfum hundr- uð af stöðum þar sem þéi* getið byrj- að á eigin reikning. Eftirspum eftir riikurum cr æfinlegn mikil. Skrifið eftir ókeypis lista eða komið ef þér eigið hægt með. Til þess áð verða góðir rakarar verðið þér að skrifast út frá Alþjóða rakaraféiaginu. International Barber College Alexander Ave. Fyrstu dyr vestan við Main St., Winnipeg. 1000 manna, sem oröiö hafa heilsulitlir, hafa haft stór- mikiö gagn af hófsamlegri brúkun á DREWRYS Reúwood Lager Hreinasta malt-tonic Æfinlega eins á bragö iö og jafn góöur. REYNIÐ ÞAÐ J. J. BILDFELL FA8TEIGn ASALI Hoom 520 Union Bank - TEL. 2686 Selur hús og lóðir og annast alt þar aðlútandi. PeDÍngalán Gísli Goodman TINSMIÐUR VERKSTCEÐI: Korni Toronto og Notre Dame Phone : Heimilis Garry 2088 Carry 809 Thorsteinsson Bros. & Co. Byggja hús. Selja lóðir. Útvegm lán og eldsábyrgð. Fónn: M. 2992. 815 Somerset Bldf lleiinaf,: G .736. Wlnnipeg, Man. Þetta erum vér The Coast Lumber Yards, Ltd. 185 Lombard St. Phone Main 765 prjú “yards” and leikhúsinu. Þetta er nýjung í þessum bæ; þeir sem ekki hafa heyrt til þess hljóðfær- færis áður, ættu nú að nota tækifær- ið; þá mun aldrei iðra þess að hafa heyrt slíka unaðsóma. Skemtiskránni verður brevtt dag- lega eftir helgina. Yér höfum gert samninga við spánnýtt kvikmyndafé- lag utn að senda oss nýjar myndir daglega. ; ' ■ Hin stórkostlega “Paddock” sýmng úr leiknum “The Whip” á Walkerl eikhúsi alla næstu viku. — Matinees á miðvikudag og laugardag. j

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.