Lögberg - 20.04.1916, Qupperneq 1
Peerless Bakeries
Heildsöluverzlun
Búa til beztu tegundir af sætabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það sem ljúffengast. Giftingar kökur búnar
og prýddar sérstaklega vel af manni sem er meistari íþeirri
iðn. Kringlur og tvibökur einnig til sölu. Pantanir frá
verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
C. HJALMARSON, Eigandi,
1156-8 Insersoll 8t. - Tals. G. 4140
ÞETTA PLÁSS ER
TIL SÖLU
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 20. APRlL 1916
NÚMER 16
Thomas Kelly tapar fyrir seinaata rjetti
Dómur féll í hæstarétti Banda- ýmsra lagakróka er þó ekki búist
ríkjanna á mánudaginn í máli við að hann komi fyr en í síCari
Kellys; hann er dæmcfur til þess hluta maí mánaðar. Málin koma
aíS fara til Canada og standa þar | fyrir 31. mai og veríur hann þá
fyrir máli sínu eins og annar borg- áreitSanlega kominn og sömuleiöis
ari, sem um glæp er kærtSur. Vegna Dr. Simpson.
Stórkostlegt mannfall í Iiði Canadamanna; 100 Winnipeg-
menn særast, þar á meðal einn Islendingur, Kjartan
Goodman en 27 falla.
Stríðsfréttir
iÞýzkur netSansjávarbátur sökti
gufuskipinu Chantalla fyrir Eng-
lendingum fyrra sunnudag og fór-
ust 8 manns.
í orustunni milli ÞjóSverja og
bandamanna hjá Verdyn stótS fleyg-
ur af her banda'manna inn í fylk-
ingar Þjóöverja; var þaö þar sem
Bettincourt heitir. Þennan fleyg
hafa Frakkar nú dregiö til baka.
og er sagt aö þeir hafi gert þaö til
þess aö hafa herlínuna beina.
Kenneth George Bowman, sonur
aöstoöar ráöherra opinberra verka
í Manitoba féll á Frakklandi í vik-
unni sem leiö.
Brezka gufuskipinu “Bronntau”
var sökt fyrra föstudag af þýzkum
skotbáti og sömuleiöis gufuskipun-
um “Clyde“, “Avon”, “Adannou”
og skipinu “Sainta Maria”.
R. E. N. Jones fyrverandi for-
maöur Canadian Bank of Com-
merce í Winnipeg hefir fallið í
stríðinu.
Mörg friðarfélög höföu tekiö sig
til og hafið samkomu í Trafaldgar
garöi í Lundúnaborg fyrra mánud.,
var þaö í því skyni aö vinna á móti
herskyldu og með því að friður
kæmist á. Sylvia Pankhurt kven-
foringi tók í því mikinn þátt. Þús-
undir manna réöust á fundarfólkið,
rifu fána þess ag ráku þaö sitt í
hverja áttina.
Mörg hundruð Canadamanna
féllu í orustunni miklu viö Verdun
nýlega, þar á meðal margir frá
Winnipeg.
“Olympic”, skipið sem flutti 61.
deildina frá Canada, er komiö
heilu og höldnu til Englands; voru
um 6000 manns á skipinu.
Bretum og tyrkjum lenti saman
í orustu á föstudaginn hjá Kut-el-
Amara; hröktu Bretar Tyrki á
löngu svæöi og varð mikið mann-
fall Tyrkja megin.
Rússar unnu stórt svæöi í áhlaupi
í vikunni sem leið nálægt Treby-
sound.
Montagu lávaröur á Englandi
kveöst vita til þess aö Þjóöverjar
hafi 60 Zeppelin loftbáta, sem þeir
muni koma meö til London i
kringum 30. maí. Hvernig hann
veit það er ekki ljóst.
Rannsókn hefir staöiö yfir i
Bandaríkjunum í sambandi viö
sprengingu Wellands skurösins.
Komst hæstiréttar kviðdómur aö
þeirri niöurstööu aö Franz von
Papen fyrverandi fulltrúi Þjóö-
verja i Washington heföi verið líf-
og sálin i samsærisflokki til þess
vinna spjöll og illvirki, og þar
á meöal þetta. Margir fleiri eru
flæktir viö máliö..
Bandaríkja forsetinn hefir sent
^jóðverjum eitt skjaliö enn, meö
mótmælum gegn neðansjávar hern-
aði þeirra. Er sagt aö þetta séu
siðustu skeyti og verði þeim ekki
vinsamlega svaraö og látiö að kröf-
11 m Bandaríkjann i, þá sé konu'ð í
sJnÖ milli þjóðanna. Mikill hiti er
ut af þessu máii í Bandaríkjtinum
f febrúarmánuði féllu 263, særö-
ust 597 og týndust 15 hermenn frá
Bnglandi, eöa alls 875 ; er þaö meira
en i nokkrum mánuöi áöur síðan
stnðiö byrjaöi. Áreiðanlegar skýrsl-
Ur eru ekki komnar frá marz.
'^essar skýrslur komu ekki fyr en
a föstudaginn var.
Frétt frá Svíþjóö á föstudaginn
segir frá því aö Þjóöverjar hafi
*agt stálnet i sundiö milli Svíþjóö-
ar og Danmerkur, til þess aö veiða
1 brezka neðansjávarbáta.
Þjóöverjar sö'ktu 33 skipum á
einni viku ffrá 8. til 15. apríl), þar
ar IO á föstudaginn; er þaö miklu
meira en á nokkurri annari viku
siöan stríðið byrjaöi.
Sir Sam Hughes kom til Ottawa
á föstudaginn frá Englandi. Var
kallaöur þaðan til þess aö standa
fyrir máli sínu í sambandi viö kær-
ur um óráðvendni þeirra, er hann
haföi veitt umsjón meö hernaðar-
vörum og skotfærum.
Flóð og skemdir.
Afarmiklir vatnavextir hafa ver-
ið í Manitoba að undanförnu. Brýr
hafa brotnað og skörö í járnbraut-
arhryggi; lestir tafist og samgöng-
ur hindrast á ýmsan hátt, auk þess
sem mikilF skaöi hefir hlotist
víða.
Dr. Bland.
Dr. Bland, sem kærur bar fram
í Port Arthur um fjárdrátt í sam-
bandi viö vistir handa hermönnum
í vesturfylkjunum, tók aftur orð sín
nýlega í kirkju sinni eins og getið
var um; en svo var hann kallaður
fyrir rétt til þess að standa fyrir
máli sínu austur í Ottawa og ber
þaö fram þar að ákærurnar séu
sannar.
Asquith í vandastaddur
Hörð rimma hefir staöiö yfir í
þinginu í London um þaö hvort
innleiöa skuli herskyldu eða ekki.
Sir Edward Carson hefir á prjón-
unum frumvarp þess efnis, og
Milner lávaröur ber það fram,
sumir ráðherrarnir eru meö því en
aðrir ekki og er sagt aö Asquith sé
í meiri vanda út af því máli en hann
hafi nokkru sinni komist í síðan
hann varö forsætisráðherra fyrir 8
árum.
Rússar taka Trepizond
Bærinn Trepizond, sem er ein
allra sterkasta borg Tyrkja meö
Svartahafinu, féll í hendur Rússa
í gærdag. Er það talinn mesti sig-
ur sem Rússar hafa unnið í stríð-
inu og talið liklegt aö meö því sé
þeim opnuö sigurför alla leiö til
Constantinopel.
Sam Hughes og kœrurnar.
Sam Hughes hermálaráöherra
kom frá Englandi á mánudaginn og
flutti ræöu í sambandsþinginu í
fyrradag. Sú ræöa er í líkum anda
og langa ræöan hans Dr. Montague,
sem Heimskringla flutti sællar
minningar, nema aö þvi leyti að
alla snild brestur. Þykir hann þar
hafa gefið enn þá meiri grun á
sjálfum sér en áöur var. Borden
hefir sjálfur tekiö að sér hermála-
stjóm og leyst Sam Hughes frá
henni um tima. Fáist full rann-
sókn er liklegt að eitthvað veröi
sögulegt. En ósanngjamt væri að
fara frekar út í málið nú. Þaö
verður skýrt þegar til kemur.
Fundur að Lundar fyrir 223.
deildina.
Mikill áhugi er sýndur í sambandi
viö 223. deildina víösvegar í fylk-
inu.
Fjölmennur liösafnaöar fundur
var haldinn aö Lundar fyrra mið-
vikudag og ágæt skemtiskrá. Þeir
fluttu ræöur sem hér segir: Thos.
H. Johnson ráöherra, H. M. Hann-
esson undirdeildarstjóri, séra H. J.
Leo, K. J. Austman og Paul Reyk-
dal og styöja þeir allir deildina af
alefli.
Aö fundinum loknum var tafar-
laust kosin borgaranefnd til liðsafn-
aöar aöstoöar og hjálpar deildinni
yfir höfuð. Þessir vom kosnir:
D. A. Blöndal, S. Breckman, Paul
Reykdal, D. Lindal, séra H. J. Leo,
J. Halldórsson og G. O. Thorsteins-
son.
Árangur fundarins varö sá að 5
menn kváðust viljugir aö gefa sig
fram í deildina. Mönnum er mjög!
ant um þessa deild á Lundar og er j
mikils árangurs vænst. .
í orustunni við St. Eloi nálægt
Verdun á Frakklandi varð mann-
fall bandamanna miklu meira en
álitið var i fyrstu. Að minsta kosti
400 manns féllu og fjöldi særöist
af Canadamönnum; ekki færri en
100 særðust frá Winnipeg og 27 í
minsta lagi féllu þaöan. Kjartan
Goodman, sonur Kristins Good-
mans og konu hans að 765 Simcoe
stræti hér í bæ var einn þeirra er
særðust, og nafn annars manns
bendir á að hann hafi verið islenzk-
ur. nafnið er David Goodman, og
er hann frá Sovereign í Saskat-
chewan.
Flóð í Regina.
Vatnavextir miklir hafa verið í
Regina og þar í kring. Woscana
vatniö hækkaöi svo mikið að til
stórtjóns horföi og vora yfir 100
hús i hættu. Fólk varö að flýja
heimili sín og bjarga í burtu hús-
munum. Brýr úti á landinu brotn-
uðu og skörð rofnuöu í járnbrautar
hækkanir.
Prestar á þing.
Framvarp er fyrir þinginu í
British Columbia þess efnis aö
prestum skuli leyft aö sækja um
þingmensku, en hingaö til hefir
það verið gagnstætt stjórnarskrá
fylkisins, þótt undarlegt megi
virðast. Eins og kunnugt er hafa
margir hinna allra fremstu þing-
skörunga á íslandi verið prestar;
má t.d. nefna séra Arnljót Ólafsson,
séra Sigurð Stefánsson, séra Sig-
urð Gunnarsson séra Olaf Olafsson
og fleiri. Þá mun engum dyljast
hversu mikill sigur það heföi verið
siðbótamálum þessa fylkis, ef á
þingi hefðu verið sumir leiöandi
ensku prestamir hér, t. d. séra
Gordon o. fl. Er taliö víst aö frum-
varp þetta veröi samþykt mótmæla-
lítið, og ættu samskonar lög að
sjálfsögöu að vera sett i gildi í öll-
um fylkjunum þar sem þau ekki eru
þegar.
Úr bygðum Islendinga.
Vatnabygðir.
Lena Josephson frá Kandahar
('dóttir Bjöms bónda Jósefssonar
ogkonu hansj andaöist í Saskatoon
fyrra föstudag. Dauöamein henn-
ar var heilaígerð. Miss Josephson
var ung stúlka efnileg og stundaöi
nám viö kennaraskólann í Saska-
toon.
Guörún Finnsson, kona F. W. S.
Finnssonar bónda skamt frá Wyn-
yard lézt aö heimili sinu fimtudag-
inn 6. þ.m. úr berklaveiki. Hún
var 35 ára aö aldri, vel gefin kona
og vinsæl. Hún lætur eftir sig einn
son fárra ára.
Valdi Sveinson, Finnur Johnson
og Frank Vatnsdal frá Wynyard
hafa nýlega gengiö í 223 herdeild-
ina.
S. A. Sigurðson deildarstjóri í
197 deildinni “Víkingum” er á ferö
um bygðina meðal íslendinga og
annara Skandinava í liösafnaöar
erindum.
Snjór var svo að segja horfinn í
Wynyard og þar i grend um síö-
ustu helgi; vora menn nýbyrjaðir
aö vinna þar á ökrum á stöku stað, j
enda er land hátt þar sumstaðar.
Vinnukraftur er þar lítill sökum
þess hve margir hafa fariö í herinn.
Saskatchewan kœrurnar
Þau mál ganga seint. Svo er þó
komið aö báöir ráðherrarnir Mc-
Nab og Langley hafa veriö meö öllu
fríkendir; aftur á móti er það víst
ekkert vafamál að Brown, sem get-
iö var um að strokið hefði, er sek-
ur í fjárdrætti, en stjórnin lét vinda
bráöan bug aö því að leita hans og
flytja hann heim tafarlaust.
Er mjög liklejt aö ennþá fleiri
hafi særst og fall.ð, en ljóst er orð-
ið.
Svo segir fréttin aö Canadamenn
hafi komið fram mjög hraustlega
í orustunni, en að við ofurefli hafi
verið að etja.
Símskeyti kom til Kristins Good-
mans að 765 Simcoe stræti 14. þ.m.
þar sem frá því var skýrt aö Kjart-
an sonur hans hefði fallið í orust-
unni hjá Verdun, en annaö skeyti
barst honum á þriöjudaginn, sem
ber þá frétt til baka. Kjartan hafi
aðeins særst allh.ættulega og verið
fluttur á hospítal í Frakklandi 7.
þessa mánaöar.
20. júní í sumar og óhætt að full-
yröa aö þau verða samþykt.
Bennett sambandsþingmaöur frá
Alberta bar fram uppástungu í
Ottawa þinginu nýlega þess efnis
að veita öllum þeim fylkjum sem
sölubann hafa, einnig vald til þess
aö hindra innflutning inn í fylkið.
Þegar þetta er athugað, er mjög
líklegt aö vínbann veröi komið á í
allri Canada næsta ár, nema ef
vera skyldi í Quebec, því þótt und-
arlegt sé, þá viröist kaþólska kirkj-
an vera fremur ó móti banninu. Aö
minsta kosti reyndist það þannig
við síöustu atkvæöagreiðslun í
Manitoba. En sigurinn er mikill
og framtíöin er björt.
Verðlaun fyrir ritgerð.
George Long, sonur B. M. Long
hlaut önnur verðlaun fyrir ritgerð
er hann skrifaði nýlega um áhrif
áfengis þegar þess sé neytt í hófi.
VTrðlaununum var heitið af Hvíta
bandinu og tóku þátt í því kappi
aðeins nemendur alþýöuskólanna.
Alls voru það tvö þúsund og
fjögur hundruð nemendur sem
reyndu sig og var því við marga að
keppa. Það var tekiö fram þegar
nöfn vinnendanna voru lesin upp að
ritgerð Longs heföi sýnt fullkomna
þekkingu á málefni því sem um var
ritaö. Mclntyre yfirumsjónarmaö-
ur skólanna var cftirlitsmaöur meö
ritgerðakappinu..
Vínbannið í Canada.
Útdráttur úr ræöu sem A. S.
Bardal flutti á fundi í Selkirk ný-
lega, þegar þar var komiö seman
til þess að fagna yfir sigri bindind-
ismanna í Manitoba.
Bindindisstarfsemin í Canada
hefir haft svo mikil og stórkostleg
áhrif, að hver einasti kristinn mað-
ur ætti að lyfta huga sínum til him-
ins meö þakklæti. Vér Goodtempl-
arar höfum lagt fram krafta vora
og baráttan hefir ekki oröiö til
einskis. Vinna vor hefir aöallega
verið í þvi fólgin að uppfræöa
Til Templarans í Heimsk.
Þegar þú veröur svo hreinskil
inn eöa drenglyndur að taka af þér
grímuna og segja til nafns þíns, þá
skal þér sannarlega verða svarað.
Stórtemplar.
Bœjarfréttir.
Séra Rúnólfur Marteinsson pré-
dikar í Skjaldborgar kirkju á
páskadagskveldið kl. 7.
íslendingar ættu að fjölmenna á
samsöng þann, er 223 herdeildin
heldur á mánudaginn kemur í
j “Central Congregational” kirkjunni.
| Kapp mikið kvaö vera á milli þjóð-
flokkanna fjögra, Islendinga, Svia,
Norðmanna og Dana aö sækja þessa
samkomu; enda veröur hún flest-
um samkomum fremri, þvi ekkert
hefir veriö til hennar sparað og
allra beztu kraftar koma þar fram
bæði frá oss og hinum Skandinöv-
unum.
Utanáskrift Hjalta ögmundsson-
ar er No. 311884, 3rd Sec. 3rd Div.
Amm. Col. C. E. F. War Post
Office, London, England.
Fundurinn sem haldinn veröur
annan laugardag verður óefaö fjöl-
sóttur, þar mæta allar Skanrinav-
þjóöina og vekja hana; þetta hefir *s.Kar ^°nur 'ier 1 ^æ> sem styrkja
oss tekist eftir 64 ára stríð og I vl,Ja 223- herdeildina, og er þess
mikla sjálfsafneitun. Stríðið hefir' .væ.U£? a^ e,c,<1 ver8i ver skipaöir
stundum gengiö skrikkjótt og mikið
hefir oröiö aö leggja á sig, en alt
fer vel sem endar vel.
Ásigkomulagið hér í Canada að
því er vínsölu snertir, er eins og hér
segir:
Nýja Skotland, alt undir vin-
banni nema Halifax, og nú fyrir
stuttu var samþykt þar í þinginu
að leyfa þjóðinni að greiða atkvæði
um það bráðlega hvort ekki skuli
Bakkus útilokaður þaöan líka. Er
lítil hætta á aö þaö mishepnist.
bekkir þar sem þær íslenzku sitja,
en systur þeirra frá hinum löndun-
um.
Þriðjudags-ikveld 18. þ.m. vora
þau Capt. Baldur Olson, læknir, og
ungfrú Sigríður Thorgeirsson gef-
in saman í hjónaband af séra Birni
B. Jónssyni á heimili brúðarinnar
662 Ross Ave. Ungu hjónin lögöu
þegar af staö í skemtiferð vestur
um land.
Djáknar Skjaldborgar safnaðar
Prince Edward eyja; þar hefir' eru að undirbúa samkomu, sem þeir
veriö algert vínbann í mörg ár. j halda 1. mai, veröur hún auglýst i
Nýja Brúnsvík, þar verða innan næsta blaði.
skamms greidd atkvæöi um algert ^ 777 ,
vínbann. Fynrlestn Johannesar S ephen-
_ , , ,, , . son um sannan knstmdom’, hefir
Quebec, þar er nalega helming- enn veris frestaö, sökum þess að
ur^undir héraösbanni og eyðst óö-^ stóra samkoma 223. deildarinnar er
þann dag. í næsta blaði verður
um
Ontario, þar hefir stjórnin ákveö-
iö aö banna alla vínsölu eftir 16.
september í haust og leyfa hana
ekki í þrjú ár; 1919 verða svo
greidd atkvæði um það hvort fólkið
vilji fá þar vínsölu aftur eöa ekki.
Manitoba. Þar verður öllum
vínsölustööum lokað 1. júní.
Saskatchewan; vínbann var þar
sett á í fyrra, þó þannig aö stjórn-
in lét selja áfengi á vissum stöðum
undir sinni umsjón og eftirliti. í
haust voru greidd atkvæöi um þaö
i 7 héruðum að hætta einnig þeirri
sölu og var þaö alstaðar samþykt.
Einnig var reynt að koma á vínsölu
þar í 5 nýjum stöðum, en alstaðar
felt. Nú ætlar stjórnin að láta
greiða atkvæði um þaö í haust að
afnema söluna meö öllu.
Alberta; þar voru greidd atkvæöi
um vínbann í fyrra og varð niöur-
staðan sú að 2-3. voru með því;
verður því allri vínsölu hætt þar 1.
júli í sumar.
British Columbia; þingið þar hef-
ir samþykt bannlög og veröa greidd
um þau almenn atkvæöi í kring um
dagur ákveöinn.
íslendingadags nefndin hélt fund
18. apríl. Embættismenn kosnir
þessir: Forseti Dr. B. J. Brand-
son, varaforseti J. J. Vopni, skrif-
' ari J. J. Swanson, féhiröir A. P.
j Johannsson. Thorsteinn Borgfjord
bar fram tillögu um aö Islendinga-
| dagur skyldi haldinn í ár. Samþykt.
Eftirfylgjandi nefndir voru kosn-
ar. Garðnefnd, 5 menn: Bardal,
| A. S., Johannson, Björnson, Borg-
fjord, Vopni. Prógramms- ogfaug-
lýsinganefnd, 5 menn: Swanson,
Vopni, Borgfjord, Johannson, Bar-
dal (P), íþróttanefnd, 7 menn:
Pálmason, Methusalemson, John-
son, Bardal )PJ, Bjömson, Steph-
enson, Bardal CA.S.).
Ásgeir Fjeldsted frá Árborg kom
hingaö fyrra þriöjudag alkominn í
herinn.
Dr.
Blaðiö
marz aö
Guöm. rinnbogason
“Fréttir” getur þess 26.
hann hafi farið af stað
hingað vestur með “Botniu’
hann fór frá íslandi 15. marz; kvað
ágæta tíð og góöa líðan; nokkuð
mikinn snjó á Norðurlandi, en eng-
an hafís. Baldur fór vestur í
Vatnabygöir og verður þar fyrst um
sinn.
Dr. Brandson fór vestur til
Baldur í lækningaerindum nýlega.
Þorsteinn Þorkelsson kaupm.
frá Oak Point var á ferð í bænum
fyrir helgina í verzlunarerindum.
Á það era menn mintir aö sækja
vel leikina á fimtudaginn og föstu-
daginn 27. og 28. þ. m. i Good-
templarahúsinu. “Varaskeifuna”
þekkja flestir, en hinn leikurinn er
nýr af nálinni og fjallar algerlega
um nútíðar atriði og gerist hér í
Winnipeg. Ritstjóri Lögbergs hef-
ir lesið leikinn. Hann heitir “Lýga-
svipir” og er eftir Árna Sigurös-
son leikara; ber þar ýmislegt á
góma. Þaö á ekki við aö dæma
ritið fyr en það hefir verið sýnt á
leiksviöi, en svo mikið má þó segja
að mörgun mun veröa skemtun aö
horfa á þaö og hlusta, og er ekki
ólíklegt að einhverjir sjái þar sitt
eigið líf í spegli. Munið eftir því
að þaö er lífið í Winnipeg sem leik-
iö verður.
Á síðasta fundi “Jóns Sigurðs-
sonar” deildarinnar (T.O.D.E) bár-
ust inntökubeiönir frá þessum kon-
um: Miss Þuríður Árnason, Mrs.
Guðný Baldvin, Miss Emma
Strang, Mrs. D. J. Mooney, Mrs.
P. S. Pálsson, Miss Emma Jóhann-
esson, Miss Helga Johnson, Miss
Louise Ottenson, Miss Sigríður Pét-
ursson, Miss J. Thorpe, Mrs. Clara
Miller, Mrs. Thordur Johnson,
Miss Elin Johnson, Miss Emma
Johnson, Miss Kristín Johnson,
Mrs. Gisli Olafsson, Mrs. Sigfús
Anderson. — Framvegis veröa
fundir félagsins haldnir í samkomu-
sal< John M. King skólans, nema
öðruvísi verði ákveðið, og verður
næsti fundur haldinn þriðjudaginn
2. mai 1916 kl. 8 að kveldinu. Allar
fclagskmiur ámintar um aö mæta
og koma í tíma, þar sem þaö var
samþykt á síðasta fundi að byrja
alla fundi kl. 8 stundvíslega og slita
þeim kl. 10.
Islenzkur maður að nafni Albert
Jameson andaöist í Spanish Fork,
Utah nýlega; hann var sonur Guð-
mundar Eyjólfssonar og konu hans
Ingibjargar Margrétar Jónatans-
dóttur Davíössonar. “The Herald
Republican” getur um jarðarför
hans, sem haldin var frá presbyter-
ana kirkju þar í bænum og hús-
kveðja fyrst heima, og fluttu ræður
þrír prestar. Svo er aö sjá sem
maður þessi hafi verið við háskóla,
því blaöiö getur þess aö fögur blóm
hafi verið send þaðan, sömuleiöis
frá alþýðu skólanum og frá
Makkabea kvenfélaginu. Jameson
var 26 ára gamall, fæddur í Helens
i Montana. Hann átti tvær systur,
segir blaöiö sem heita Ellen og
Rose, vel þektar fyrir hljómleika-
list, og þrjá bræöur, Jónatan,
Walter og Paul. Hann dó aö heim-
ili foreldra sinna.
Pétur Anderson frá Leslie, sem
hér hefir dvalið um tíma, fór vest-
ur í dag, til þess aö líta eftir lönd-
um sínum. Hann býst viö aö koma
hingað aftur eftir viku eða hálfan
mánuð.
Baldur Benediktsson fsonur séra
Benerikts sál. Kristjánssonar á
Grenjaðarstað) kom heiman frá
íslandi á mánudaginn var. Hann
var áður hér vestra en fór heim
Gleðilegt suma r I
BOTNIÐ ÞESSA. j
III.
Auga blómið yndi ljær,
eyraö hljómur gleður.
BITAR (
Únítara kirkjufélag Vestur-ís-
lendinga heldur 25 ára afmæli sitt
í dag. Þar er margs merkilegs að
minnast, meðal annars þesá að í
félaginu eru 5 prestar og af þeim
4 uppgjafaprestar, aöeins einn held-
ur áfram, þaö er séra Albert Krist-
jánsson.
Þar sem afturhaldið lét skafa
hafnarbotn í British Columbia og
rifleg borgun fyrir tenings yardið
var 52 cents, eftir því sem þeir
sjálfir segja sem unnu, voru borg-
aöir $9.20 á hvert yard. Níu dalir
og tuttugu cents fyrir hver fimtíu
og tveggja centa virði, eða um 18
dalir fyrir 1.
Menn era í óöa önn aö smiöa
báta í bæjum meöfram Rauðánní
til þess að vera viö flóðum búnir.
Nón gamli heföi ekki verið einn um
hituna ef menn heföu þá verið
, orönir eins vel að sér og þeir eru nú.
McBride forsætisráöherra í
British Columbia tók úr fjárhirzlu
fólksins $1,150,000 til þess aö borga
fyrir gamla neöansjávarbáta, sem
ekki kostuöu nema ð8oo,ooo nýir;
þaö var aðeins $350,000 hærra en
þeir kostuöu.
Sá sem skrifar persónuleg'ar
skammir um náunga sinn undir
fölsku nafni væri vís til þess að
stinga hann í bakið ef hann héldi
aö svo dimt væri að enginn sæi til
sín.
Sumir hestamir sem umboðs-
menn stjómarinnar keyptu fyrir
tvöfalt verð handa hermönnum
höföu aöeins eitt auga — ekki svo
mikið sem glasauga hinu megin.
Hverjir ætli þeir séu allir þessir
merku þingmenn frá Islandi, sem
hafa verið í Únítara söfnuöunum og
Pree Press getur um á laugardag-
inn? Enginn viröist muna eftir
neinum öðram en Jóni Ólafssyni.
Þaö var einu sinni karl á Vatns-
leysuströndinni sem sagöi frá stór-
eflis samkvæmi sem hann hafði
verið í; þegar hann var spuröur
hverjir þar hefðu verið, sagði hann;
“Þaö var Duus Petersen og eg,
Thordur Thoroddsen og eg, séra
Jens Pálsson og eg” o.s.frv.
V iðskiftabálkur.
Eftirmæli sem Mrs. Snorri John-
son frá Tantallon sendi koma í
næsta blaði.
Margir vísubotnar bíða næsta
blaðs.
Fyrirspum S.O.E. kemur í næsta
blaði.
21 Hátíða.guðsþjonustur í Fyrstn
lút. kirkju.
Skírdagskveld kl. 8.
Að kveldi föstudagsins langa kl.7.
^ uvi« i 1 • W/U gUVJ
1914; tafðist þó alllengi á leiðinni. þjónusta hefst með því aö sön
------------ I flokkurinn syngur kantata Prc
Samkoma kvenfélags Fyrsta lút.; Sveinbjömssons “Páskamorgun’1
safnaðar, sem auglýst er í þessu I D, , , ,, ,. ^ ,, .
blaði verður mjög vönduð, eins og Paskakveld kl. 7. Fer þa fra
skemtiskráin ber meö sér. , a,tansganga fynr almennmg.
m.
Canadiska-Skandinava
herdeildin
og aðstoðarfelag kvenna
FUNDUR allra skandinaviskra kvenna, sem ant láta sér
um þessa herdeild, verður haldinn í Goodtemplara hús-
inu á horni Sargent og McGee, Laugardaginn 29 Apríl
kl 8 e. h., í því skyni að stofna kvenfélsg deildinni til að-
stoðar. Komið og látið vinkonur yðar koma með yður.
ALLIR VELK0MNIR.