Lögberg - 25.01.1917, Page 5

Lögberg - 25.01.1917, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. JANÚAR 1917 5 Hver dagur er Purity- Flour-Dagur matreiðslu- konunnar, sem ánœgð er aðeins með bezta brauð og kökur. PURITV FLOUR "MORE. BREAD AND BE.TTER BREAD" 144 starf þeirra og teljum stööuna virö- mgar veröa i sjálfu sér, samþykkj- um vér þaö hjartanlega meö séra Magnúsi að þessir menn hafi fariö of langt í lasti um ættjöröu vora og of langt í lofi um þetta land. Manitobastjórninog Alþýðumáladeildin Greinarkafli eftir starfsmann alþýðumáladeildarinnar. Stutt námsskeið. Eitt bezta meöalið til þess aö ööl- ast þekkkingu í búnaöi ekki einung- is í Manitoba heldur í allri Noröur- Ameriku hvar sem búnaöarskóli er til. er meö því að til séu stutt náms- skeið og að fólkið hagnýti sér þau. Stutt námsskeiö má halda í ein- hverju sérstöku efni í skólanum sjálfum, eða þaö getur farið fram í i einhverjum öörum bæ fylkisins. Eru þá ræöumenn sendir þangað til þess að stjórna skólanum þar um tíma. Þegar sú aðferð er höfö, eru v'enjulega k^nd fleiri atriði. Árið sem leið voru sex slíkir skólar eða stutt námsskeiö haldin í Manitoba a ýmsum stöðumi í vetur eru þeir nitján og var þó búnaðarskólinn í Manitoba beðinn um miklu fleiri. Sumir þessara skóla eru nú úti. Fyrir jól voru þeir búnir í Beause- jour, Whitemouth, Brandon fþar var aö eins kent um akuryrkjuý og í Winkler. Frá 6. Janúar tjl 20. Janúar voru skólar haldnir í Souris, Eilbert Plains, og Holland. Á öðr- um stööum fara stutt námsskeið fram sem hér segir: Portage la Prairie—frá 22. Janú- ar til 3. Febrúar. Deloraine—frá 22. Janúar til 3. Eebrúar. A Woodlands—frá 5. Febrúar til 16. h'ebrúar. A Eangruth—frá 5. Febrúar til 16. Eebrúar. Killarney—.frá 19. Febrúar til 3. Marz. McCreary—frá f9. Febrúar til 3. Marz. Brandon—frá 19. Febrúar til 3. Marz. Boissevain—frá 5. Marz til 17. Marz. 'Birtle—frá 5. Marz til 17. Marz. St. Pierre—frá 5. Marz til 17 Marz Roblin—frá 19. Marz til 31. Marz Menn veita því eftirtekt, að þessi námsskeið eru vel dreifö yfir fylkið og ættu þvi mjög margir fylkisbúar að geta fært sér þau í nyt. Verkið í skólum þessum hefir ver- ið undirbúið í vetur á þann hátt, að það getur orðið utigurn mönnum að sem beztum notum, þrátt fyrir það þótt eldri menn séu þangað einnig boðnir og velkomnir. Að sjálf- sögðu fer öll kenslan fram á ensku. Tilgangurinrt með þessum stuttu námsskeiðum er að veita eins full- komna kenslu í helztu atriðum bún- aðarmálanna, sem hægt er, á sem skemstum tíma. Að kenna það eitt, sem ungir bændur geta tafarlaust fært sér í nyt, þegar náminu er lokið, á sinni eigin bújörð. Vegna þess hve mannfátt er t landinu, er stöðugt verið að biðja um kenslu í því að stjórna vélum, því vélar eru nú orðnar á svo mörgum heimilum. IÞað er áformað að eyða hér um bil 40% af kenslutíma kárlmanna t tilsögn með v'innuvélar, en hinum tímanum til jarðræktarkenslu. Og verður vagnhlass af vinnuvélum flutt á hvern kenslustað til þess að hafa við kensluna. Búnaðarkenslan fer frant að eins í einu eða tveim atriðum til þess að þeir, sem þátt taka t þessu stutta námsskeiði, geti lært reglulega hvað eftir annað- helztu atriði búnaðar- fræðinnar, sem kendar eru á búnað- arskólanum. Til þess ltægt sé að kenna þann- ig fullkomlega og reglubundið, hefir verið ákveðið að kenna aðeins einhver tvö af eftirfarandi atriðum: Kvikfjárrækt, kornyrkju, smjörgerð, hælnsnarækt, garðyrkju, bíflugma- rækt og búreikninga. Þeir sem læra vilja að stjórna vélum, geta fengið að taka próf, þegar námsskeiðið er á enda, og ef þeim hefir gengið vel námið, fá þeir viðurkenningu fyrir árs skóla- námi i þeirri grein og geta því byrj- að á öðru árinu ef þeir konta á búnaðarskólann síðar. Með dálitlu aukanámi má fá sömu skilmála i búnaðaratriðum, sem lærð eru, ef að eins er kosið eitt eða tvö atriði. Vélakenslan getur ekki orðið lengri en tvær vikur; en ef nógu margir eru til þess að biðja um á- framhald búnaðarkenslunnar viku lengur, þá verða aukakennarar út- vegaðir. |1 mörgum stöðum verða skólar fyrir kvenfólk á sama tima, og þar kendur heimilisiðnaður og fleira. Á hverjum stað þar sem þessir kvenna skólar verða, eru kend einhver tvö af eftirfarandi atriðum: Matreiðsla, sjúkrastundun, klæðagerð, hattagerð og niðursuða ávaxta með fleiru. Matreiðslan er að mestu innifalin í praktiskum matreisðlusýningum og reglum, sem nota má á hagkvæman hátt. Bæði í klæðagerð og hattagerð verður viku varið til námsins, með því að flest kvenfólk vill fullkomna sig í einu áður en það byrjar á öðru. Reynslan hefir sýnt, að þegar tvent er kent í einu og sama fólkið sækir hvorttveggja, þá verður út- koman ekki sem bezt. i B|úri(a|ðartskóladeildin i Manitoba lætur sér ant um að sem flestir les- endur þessa blaðs færi sér í nyt þessi stuttu námsskeið. Aliar upplýsingar fást frá Út- breiðsludeild búnaðarskólans, ef um þær er beðið. Bréf til Jóns Sigurðssonar fél. “Frakklandi, 13. des. 1916. Kæru vinir. Það var óvænt fyrir mig að fá frá yður stóra sendingu og þakka eg fyrir það sem bezt eg má. Sömu- leiðis flyt eg yður þakklæti fyrir sendingu til frænda míns Ásmunds- sonar, sem féll eins og hetja á víg- vellinum á Frakklandi og gerði skyldu sína með mesta hugrekki til hins síðasta. Það hryggir mig að eg má ekki segja hvar við vorum, þegar hann féll, en hann dó á svip- stundu. Við erum nú komnir frá þeim stöðvum til annara, sem sagt er að ekki séu eins hættulegar. Það var mjög vel gert af yður, að hugsa um okkur, sem hér erum, þrátt iyrir það þó við fáum sendingar að heiman. Ég þekki suma með vissu, sem ekki fá það sem þeim er sent. Öllum sendingum til okkar undir- deildar er skift jafnt milli allra. Við lifum og störfum- saman eins og bræður. Eg endurtek þakklæti mitt til yðar fyrir gjafimar. Með einlægum ósk- um þess að nýja árið megi flytja frið og hamingju, Yðar einlægur, Corpl. Frcderickson. Neyðaróp prestsins. Sviður mig i sitjandann, sár er læknis höndin; Lögbergingar, látið hann leggja niður vöndinn. K. 8 Lagasafn Alþýðu öll löggilt félög eða stofnanir verða samkvæmt lögum að hafa sitt eigið innsigli, og verða embætt- ismenn stofnunarinnar eða félagsins að nota það þegar þeir skrifa nöfn sín í nafni félagsins á alla þá samninga eða öll þau skjöl, sem innsigluð þurfa að vera, samkvæmt lögum. Víxlar eða reikningar eiga ekki að vera innsigl- uð, fyrir þá sök að þeim er með því breytt frá al- mennum samningsskjölum í sérstaka samninga. Innsigli verða að vera á eignabréfum fyrir fasteignum; veðsetningabréfum, skuldbindinga- skjölum og leigusamningum sem skráðir verða að vera. 6. óbeinir samningar eru þeir samningar kall- aðir, þegar skilyrðin eru ekki beint tekin fram, heldur eru skilin eða höfð í huga. Slíkir samn- ingar eru eins bindandi og þótt þeir væru ákveðnir; en oft er erfitt að sanna þá og enn þá oftar eru þeir misskildir. Til dæmis má taka þetta: Maður kemur til viðarsala og biður hann að senda sér eldsneyti, eitt tonn af kolum og $10 virði af við. Ekkert er tiltekið um verðið á kolunum og ekkert sagt um það hversu mikill viðurinn skuli vera sem seljast skuli fyrir $10, og ekkert talað um borgunar skilmála. En lögin lita svo á að þegjandi samkomulag hafi verið milli kaupanda og seljanda um verðið á vörunum og borgunartím- ann. Lagasafn Alþýðu I. KAFLI. Samningar. 1. Samningar eru þau laga atriði, sem oftast veroa deilur um og flestum verða að fóta kefli. Samningar eru margskonar. Til eru löglegir samningar og ólöglegir samningar; gildir samn- ingar og ógildir. Samningar geta ýmist verið ákveðnir og teknir beinlínis fram í orðum eða þeir geta verið innifaldir óbeinlínis í orðum eða athöfnum. Sumir samningar eru bindandi þótt þeir séu aðeins munnlegir, aðrir ekki nema því aðeins að þeir séu skrifaðir; enn aðrir verða að vera á inn- sigluðu skjali til þess að vera bindandi. Alt þetta er mönnum nauðsynlegt að vita^ ekki einungis að þetta er alt til, heldur einnig hvers konar samningar eru nauðsynlegir í hverju tilfelli fyrir sig. Samningar eru grundvöllur allrar verzlunar og allra viðskifta í smáum stíl og stórum. 2. Munnlegir samningar um kaup og sölu eru bindandi þegar um lausafé er að ræða, en ekki um fasteignir; og þó aðeins upp að vissu verðmæti, sem ákveðið er með lögum í hverju fylki fyrir sig. f Ontario er munnlegur samningur gildur, þegar ekki er um meira verðmæti að ræða en $40, . Nýjárs vísa. Áriö nýja auðnu hlýja veiti; guS alvaldur gefi friö, græöist kalda andstreymið. (Mrs.) Guðný Muller. Staka. „ Sóðar strita fen og fjöll, flest þaö ritin sanna; blóði lituö eru öll orö af vitum ínanna. B. B. Sorgir • i. Á miövikudagsmorguninn í vik- ttnni sem leið kviknaði í litlu timb- urhúsi í Transcona thjá rnanni, sem John Lúk heitir og brunnu þar til dauðs tvö böm hans, þriggja og fjögra ára. Kofinn var aðeins eitt herbergi tjaldað t sundur í miðju og kviknaði í ytri partinum. Móðir bamanna hafði verið að baka; fór hún út i næsta hús til þess að gæta að því hvað framorð- ið væri, en þegar hún ketnur aftur eftir 4—5 mínútur, stóö kofinn í björtu báli. Ruddist konan inn og ætlaði i gegn urn eldinn, til þess að bjarga bömunum, en það tókst ekki. Hún skaðbrendist sjálf á fótum, höndum andliti og víðar og liggur fyrir dauðanum. II. íbúðarhús í Melville í Saskat- chewan brann til kaldra kola 21. þ. m. Sá heitir A. Brotich er húsið átti. Kona hans og þrjú böm voru iheima en hann var við vinnu sína hjá G. T. P. félaginu. Þegar hann kom heim var húsið brunnið til ösku og höfðu öll böm- in og konan bmnnið inni. Líkin fundust ölil í öskuhrúgunni. Enginn veit hvemig eldurinn hefir kviknað, iþví að alt stóð í björtu báli þegar logans varð vart. Maðurinn sem stendur uppi alls- laus og hefir þannig mist alla ást- vini sína er utan við sig af sorg eins og nærri má geta. III. Atakanleg sorgarsaga gerðist hér í Winnipeg nýlega. Gömul hjón sem S. B. Mathews hétu fréttu að sonur þeirra væri fallinn i stríðinu. Móöir hans varð svo mikið um son armissirinn að hún dó 2. janúar af sorg, en maður hennar lézt 20. þ.m. einnig af sorg. pakkarávarp. The Prudcntial Insurance Co., of Amcrica. Herrar: Eg votta yöur nútt innilegasta þakklæti fyrir hin sérlega greiðu skil, sem þér sýnduö við borgun lífsábyrgðar sonar mtns, Jóns. Sömu- leiðis þakka eg innilega umboðs- manni yðar fyrir kurteisi hans og vináttu. Eg mæli með ánægju með “The Prudential” við alla, sem hafa í hyggju aö tryggja líf sitt. Með endurteknu þakklæti. Er eg yðar, (Mrs.) Guðrún Sölvason. Selkirk, Man., 11. des. 1916. Walker. Fyrir fimm árum hefði verið hlegið að því, hefði einhver spáð um orustur , loftinu; nú eru þær dag- legir viðburðir. Enn þá skilja menn þetta ekki al- ment; það líkist meira trölla- eða töfrasögpim en virkileika. Donald Thompson, myndasmiður fyrir ritið “Leslies’ Weekly” og hreyfimvnda- Ltmboðsmaður frönsku stjórnarinnar hefir komið með myndir af loftor- ustum. Thompson tók hundruð af myndunum á vígvellinum meðan á skothríðunum stóð. Nú hefir hann tekið myndir af loftorustum í því sem hann kallar “Stríðið eins og það er í raun og v'eru.” Þessar myndir verða sýnd- ar í Walker leikhúsi alla næstu viku og eru þær óviðjafnanlegar. Thompson var á stöð, þar sem voru '2,490 loftskip og fór sjálfur upp t einu þeirra 10,000 fet út frá jörðinni. Orpheum. Claude Gillingwater og flokkur hans koma þar fram nieð “The Frame-up” eftir Reginald Barlow, vikuna frá 29. Jan. Gillingwater er annálaður leikari hvar sem hann sýnir sig. Harry og Anna Semour hinir an- náluðu gleðileikarar, verða þar og. Pat. Barrett kemur þar fram með állskonar söngva einkennilega. Thomas Swift og félagar hans koma þar fratn í leiknum “Me and Mary.” Frank Wilson sýnir einkennilegar íþróttir á hjóli. Marietta kemur þar fratn með marga vel vanda hunda. Campbell stúlkurnar verða þar og nieö allskonar ágætisleiki. Myndir verða einnig sýndar á Orpheum frá AlpafjÖllum, Sumatra og af vinnandi ftlum o. fl. CANADA& FINEST THEATKS Alla næstu viku áframhaldandi sýning frá kl. 12.30 til 5 og 6.30 t)l 11. Byrjar kl. 12,30, 2, 3,20, 6,30, 8 og 9.30. „War As It Really is“ í ajO þártum Myndin er tekin undir stjórn Capt. D. C. Thomson, myndasmiðs Leslie Weekly. Sýnir stríðið eins og það er í raua og veru Verð á öllum tímum 25c og lOc BðLSKIN Vísan hans Nonna. Kraftalítill er eg enn þá, unnið get eg varla neitt. Pabbi minn er altaf úti; oft eg sé hún mamma er þreytt. Eg er enn þá ósköp stuttur, eins og kútur — rengla mjór. Einhverntíma, ef eg tóri, ætla eg samt að verða stór. til að borða, en við erum svo hungruð og mamma á ekkert til handa okkur. Kæri drottinn, þú ert mjög ríkur, ó, sendu oss nú eitthvað til að borða í dag, því þú hefir lofað að hjálpa ef við biðjum þig fyrir Jesú sakir, amen.” þegar svo litla stúlkan kom heim aftur, var borðið alsett vistum og allskonar dýrum réttum. Svona bænheyrði guð litlu stúlkuna, sem kallaði til hans í trausti til elsku hans og trúfesti. Með beztu óskum til Sólskins um góða og langa lífdaga. Með vinsamd. Sigurður Leó Björnsson, 14 ára. Œskan. Hið saklausa bam er sem sólgeisli skær, er sveimar í titrandi hrönnum. Pað hreinan og óblandinn fögnuð oss fær, — oss fróar í lífsins önnum. — Hér tveggja heima við ljósbros lítum, og ljóss þess fjendur með réttu vítum! Við horfum á ærslafull bamanna brek, og blessum þau “ólæti” — í hljóði! Pau láta’ okkur sjá það, að lífsafl og þrek eru’ lifandi í bamanna sjóði. Við vitum að héma er lífið að leika sinn ljúfasta þátt — milli blóma að reika! - P6 satt er það eflaust, að æskan hún spann ei all-lítið stundum af táli. En hver er sá, aldrei er ylstreymi fann frá æskunnar röðulbáli. — sem verður ei angurvær og leiður, þá vorið hverfur og bliknar meiður? Grétar ófeigsson. Baldur P. O., Man. tseri ritstjóri Sólskins. Eg þakka þér fyrir Sólskinsblaðið, sem mér Jykir svo gaman að lesa, og hér með sendi eg sögu rm ek ætla að biðja þig að gjöra svo vel að setja ] Sólskin, og byrjar hún þannig. Ekkja nokkur fátæk sagði við börnin sín á ^ladaginn: “Eg hefi alls ekkert í eigu minni til - &efa ykkur að borða.” En undir eins og ein |tlu stúlknanna heyrði þetta, gekk hún út í bæna- |psið, féll á kné og bað til guðs á þessa leið: ^seri faðir á himnum, við bömin höfum ekkert Lauga og Fríða. Hún Lauga settist við símann og sagði: “Halló! halló!” En Fríða við annan endann í ákafa hló og hló: “Hvað sagðirðu?” sagði hún Lauga, “Er senn komin skólatíð? þú hleypur í hendings kasti, á horninu þin eg bíð.” “í símanum”, sagði hún Fríða, “það suðar og blæs og hvín; þú verður að hafa hærra, eg heyri’ ekki neitt til þín.” “í símanum”, sagði hún Lauga, , “það sogar og urgar hátt; eg skil ekki hvað þú skrafar; þú skírara tala mátt.” Við símann þær sátu lengi, ogsögðu: “Halló! halló!” pær aldrei skildu hvor aðra, og alt að þeim fólkið hló. SOLSKIN Barnablað Lögbergs. II. ÁR. WINNIPEG, MAN. 25. JANÚAR 1917 NR. 17 “En ef vér sjáum sólskinsblett í heiði, þá setjumst allir þar og gleðjum oss.” Jónas Hallgrímsson. Ljósmærin og Skuggabaldur Eg var eitt sinn úti á gangi kveldstund eina í glaða tunglskini. Hvergi sást ský á lofti. Hlýr andvari lék sér við litlu, grænu stráin beggja vegna við veginn, og virtust þau hneigja sig til jarðar með dýrkun til tunglskinsins. Mér fanst líka að eg, eins og stráin, vera knúð til að bera lotningu fyrir fegurðinni, sem lýsti sér í hinni þögulu næturkyrð; þessari sérstöku ró, sem grúfðj yfir öllu útsýni, bæði fjær og nær; þeirri friðhelgu sýn, sem maður naut við að horfa á hið silfur- litaða klæði, er tunglið breiddi yfir alla náttúmna, og það hulda lífsafl sem nærir tilveruna með Jivíldinni. Alt sem bar fyrir augað orsakaði ogleymanlega undrun. En er eg hélt leiðar minnar, bar eitt fyrir mig, sem vakti eftirtekt mína að nýju. Mér varð litið upp, og sá eg þá framundan mér tvær stórbygg- ingar öðru meginn við veginn, og íram af efra lofti á báðum þessum stórhýsum var bygður stór pallur úr óhefluðum fjölum. pað undarlegasta við þetta þotti mér, að á öðrum þessum palli var hálf dimt, og tunglsbirtan gat ekki notið sín þar, til þess að lýsa hann upp, en á hinum var svo bjart að meir líktist birtu sólar en tungls. Alt í einu sá eg koma fram á bjartari pallinn svo undur fagra veru að eg hugði það vera engil. En við nánari athugun þekti eg þar ljósmeyna, sem eg hafði lesið um í æsku. Hún kom dansandi á tán- um og sveiflaði drifhvítri blæju í kringum sig, sem ótal ljósgeislar stöfuðu út frá. Hún skimaði í allar áttir, og var auðséð að hún var að líta eftir einhverju, sem hún átti von á að sjá. Alt í einu stanzaði hún og kallaði: “Kom þú sæll, Skuggabaldur! Ertu ekki enn kominn úr svarta kuflinum þínum?” Varð mér þá forvitni á að vita hvern hún væri að ávarpa. Sé eg þá að fram á dimma pallinn kemur drengur, á að gizka tíu ára gamall. Hann var í svartri kápu skósíðri, mjög dökkur yfirlit- um, og í hvert skifti sem hann hreyfði sig, sýndist bregða fyrir ótal skuggum alt í kring um hann. Heyrði eg hann þá segja með dimmri rödd: “Kom þú sæl, Ljósmær! Nei; eg ætla ekki að fara úr kuflinum mínum. Mér veitir ekki af honum til þess að útiloka þessa hvimleiðu birtu, sem leggur af þér. pú ert svo björt að eg fæ ofbirtu í augun af að horfa á þig. En ef þú værir í svörtu, þá þætti mér þú falleg og þá skyldi eg leika mér við þig; en af því þú klæðir þig svo glannalega, þá get eg ekki komið til þín, og svo hefi eg líka mikið fleiri leiksystkini en þú og mikið fleiri gull. Viltu að eg kalli á svartfuglana mína??” “J4”, segir Ljósmærin, “ef þeir eru fallegir, þá sýndu mér þá.” pá blés Skuggabaldur í hljóðpípu, og sé eg þá hvar kemur hópur af litlum hrafnsvörtum fugk um, og sýndust mér þeir allir myndast í loftinu umhverfis hann. peir flögruðu á víð og dreif með lágu hljóði, sem var líkast suðu eða vatnsnið. Smátt og smátt drógu þeir sig saman í þéttan hóp, og geyðu þeir þá svo mikinn hávaða að undir tók í öllu, og líktist það helzt skrölti í vél, sem verið er að setja í hreyfingu í fyrsta sinni og ekki er komin í sitt rétta ástand. Varð þá litla Ljósmær- in hrædd, kallaði til hans og sagði honum að hasta á fuglana og láta þá hætta, svo þeir gerðu ekki alla veröldina ringlaða. Tók hann þá hvern fugl út af fyrir sig í hvora hendi og sleit af þeim eina f jöður svo þeir dofnuðu og dreifðu sér aftur út í geim- inn. Heyrðist henni þó vængjaþytur þeirra lengi haldast við, þó þeir væru horfnir. Segir þá Ljósmærin við Skuggabald: “Ef þetta eru leiksystkini þín, þá þykjá mér þau mjög leiðinleg. En sýndu mér nú gullin þín. pau eru

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.