Lögberg - 22.03.1917, Blaðsíða 5

Lögberg - 22.03.1917, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22. MARZ 1917 o Dr. Robinson Sérfræðingur í tannsjúkdómum BETRI TANNLÆKNING FYRIR MINNI BORGUN Ef þú ert í vafa um hvcrt tennur þínar séu heilbrigðar eða ekki þá þarft þú að fá ráðleggingu tannlæknis. Sá tannlæknir ætti að vera maður sem hefir gott álit á sér sem lœknir og sömuleiðis er það áríðandi að hann sé *eins vel að sér í list sinni og nokkur getur verið. Nú á dögum eru þeir fáir sem ekki viðurkenna þýðingu sérfræðinganna, hvort heldur er í al- ménnum lækningum eða tannlækningum. Minnist þess að ef þér kom- ið til vor þá verður traust yðar ekki ódrengilega notað, því allar vorar að- ferðir eru reyndar og sannaðar og fólk veit um áreiðanleik vorn. Fyrir tíu árum voru það margir af borgurum Manitoba sem trúðu mér fyrir því að lagfæra tennur þeirra. Þessa fyrstu sjúklinga tel eg byrjun hinnar miklu aðsóknar sem eg hefi haft síðan eg fór að stunda tannlækningar. Svo vel hefir mér gengið að tugir tannlækna hafa sest að í nágienni mínu Látið því ekki blekkjast þegar um það er að ræða að velja stað. Permanent Crown og 7 Bridge Work, hver tönn . . H'' Og það var áÖur $10.00 BIRKS BUILDING, WINNIPEG, MAN. 1 2 Stólar Whalebone Vulcan ite Plates. Settið . Opið til kl. 8 á kveldin :. $io Dr. Robinson TANNLÆKNIR Meðlimur Tannlækna Skólans í Manitoba. 10 Sérfræðingar 5 Kvenmenn oka oss og land vort, hefir guði þóknast að senda Rússlandi nýj-, ar hörmungar og raunir. Inn- byrðis óeyrðir ógna oss og hljóta að hafa áhrif á stríðslokin ef ekki er að gert. Forlög Rúss- lands og heiður vorrar kæru fósturjarðar krefst þess að stríðinu verði haldið áfram hvað sem það kostar, þangað til sig- ur er hlotinn. Hinn grimmi ó- vinur er að gera sínar síðustu tilraunir og sá tími er í nánd þegar vor harðsnúni her, í fé- lagi við lið vorra ágætu sam- herja, vinnur algerðan bug á ó- vinum vorum. Á þessum þýðingarmiklu tímum í sögu Rússlands er það skoðun vor að fólkið þurfi að vera sem samheldnast og hlið- stæðast þangað til sigur er unn- inn. Af þessum ástæðum og í samræmi við þing þióðhrinnar höfum vér ákveðið og teljum það heillavænlegast að segja af oss stjórnarvaldinu á Rússlandi og yfirgefa keisarastólinn. Vér viljum ekki skilja við vorn ást- kæra son og fáum því ríkið í hendur bróður vorum, stórher- toganum Michael Alexandro- vitch. Vér biðjum guð að blessa * þá stund þegar hann tekuð við völdum á Rússlandi. Vér fáum stjóm Rússlands bróður vorum í hendur í fullu samræmi við þingið og fulltrúa þjóðarinnar og gjprum vér þetta með órjúf- anlegum eiði í nafni vors elsk- ;aða fósturlands. Vér heitum á alla sanna syni Rússlands og trúa þegna að uppfylla trúlega allar ættjarðar skyldur og að- stoða bróður vorn og fulltrúa þjóðarinnar til þess að hefja Rússland til framfara og hag- sældar og gengis. Megi almáttugur guð halda verndarhendi sinni yfir Rúss- landi.” 1 Stjórnarbyltingin á Rússlandi þóttu mikil gleðitíðindi í flestum löndum bandamanna. pykjast þeir hafa það fyrir satt að gamla stjórnin hafi ekki verið sem holl- ust eða ákveðnust í stríðinu og búast við að það breytist nú alt til batnaðar. í blaðinu “Free Press” á laug- ardaginn er það beint og blátt áfram sagt að þeir, sem bezt viti í Montreal og öðrum bæjum Canada dragi engar dulur á að Rússastjórn hafi verið að undir- búa sérstakan frið við pjóðverja og hafi þess vegna setib hindr- anir í veg fyrir vopna og vista- flutning. Er því haldið fram að hergagna félögin í Canada hafi átt mjög erfitt með að fá rúss- nesku eftirlitsmennina til þess að samþykkja hervörurnar eða taka þær gildar, og muni það vera að undirlagi stjórnarinnar rússensku. Segja menn að hún hafi orðið að senda hingað pant- anir til þess að láta svo líta út, sem verið væri að gera sitt bezta í stríðinu með bandamönnum. Nicholas II. Rússakeisari var fséddur 8. maí 1868 í Pétursborg á Rússlandi, og var hann elzti sonur Alexanders ITI. Árið 1890—9U ferðaðist hann um Indland, Kína og Japan og var reynt að myrða hann í Japan, átti hann þá líf sitt að launa frænda sínum, heljarmenninu George Grikkjakonungi. Á þeim ferðum sínum kyntist hann mik- ið Austur Rússlandi, Manchuriu og Síberíu. Keisarinn var ment- aður vel í æsku og lærði meðal annars ensku, frakknesku og þýzku. Hann var gæfur, góð- lyndur og atkvæðalítill. pegar hann zok við ríkinu eft- ir lát Alexander III. föður síns 1894 virtist hann ætla að verða atkvæðamikill stjómari. Sama ár gekk hann að eiga Alix dótt- ur stórhertogans af Hessen og tók hún sér síðar nafnið Alex- andra Feodoroyna. peim hjón- um hefir orðið fimm barna auð- ið; fjögra dætra og eins sonar. Dætur þeirra heita Olga, Tatjana, María og Anastasía; er sú elzta 31 árs en sú yngsta 15. Sonur þeirra er yngstur bamanna og heitir Alexis. — Samfarir þeirra keisarans og konu hans hafa ávalt verið hin- 40 Lagasafn Alþýðu þeim við í sérstökum skrifuðum samningi, er báðir samningsaðilar undirrita, og skal það þar greini- lega tekið fram að hin önnur atriði hins upphaf- lega samnings haldi gildi sínu og þar á meðal sektarákvæðið. 55. ógilding samninga. pegar einhver hef- ir með svikum eða táldrætti verið flæktur inn í það að gera samning eða einhverju hefir verið lýst rangt eða blekkingar hafðar í frammi og um kaup á fasteign eða munum er að ræða, þá getur hann sagt upp samningnum. Og hafi hann borg- að peninga í sambandi við slíkan samning getur hann krafist þess að þeir séu endurborgaðir. En hann verður að gera þetta tafarlaust þegar hann kemst að því að svik hafa verið höfð í frammi, og skila aftur eða bjóðast til að skila aftur eign þeirri eða hlut, sem hann þannig keypti, í eins góðu ásigkomulagi og hann tók við því. Blekkingin eða svikin verða að vera þannig að þau hafi verulega þýðingu og séu villandi í raun réttri. Sá sem ónýta vill samning á þessum grund- velli verður að geta skilað aftur því sem hann keypti. Ef hann fer með hlutinn eða eignina eins og sitt eigið (framyfir það sem til þess þarf að geyma það vel) eftir að hann hefir orðið svikanna var, þá getur hann ekki skilað því aftur og krafist þess sem hann borgaði fyrir það. Ef nokkur hluti þess sem keypt var hefir verið notaður áður en svikin urðu kunn, þá verða dómstólar að skera úr því hversu mikils virði sá hluti hafi verið, ef í Lagasafn Alþýðu 37 ingurinn má ekki vera sviksamlegur og (7) Sumir samningar geta verið munnlegir, aðrir verða að vera skriflegir og enn aðrir innsiglaðir. 52. Hvað samningur þýðir. prátt fyrir það þótt ætlast mætti til að þeir, sem samninga gera skilji hvað þau orð þýða, sem þeir viðhafa í slík- um samningum og noti þau orð, sem glögglega gefa til kynna það, sem þeir ætlast til, þá kemur það samt oft fyrir að út af því ber. pess vegna hafa verið ákveðnar vissar reglur til þess að skera úr því hvaða þýðingu sérstök orð eða orða- tiltæki hafa ef þau þykja óljós eða mismunandi álit rís upp. Hér fara fáein slíkra orða á eftir og eru þau tíðust og þýðingarmest. 1. Tilgangur semjenda þegar samningamir voru gerðir, er tekinn til greina, fremur en bók- stafleg þýðing orðanna; en tilgangurinn er feng- inn með því að taka tillit til orðalagsins eins mikið og hægt er. 2. Venjur og siðir í viðkomandi atriðum og á viðkomandi stöðum eru tekin til greina þegar orða- lag samningsins er vafasamt. 3. Vísindalegum orðum og setningum er gef- in sú þýðing, sem þau hafa í því sérstaka atriði, sem um er að ræða. 4. Mismunur á því sem skrifað er og prentað: þegar nokkur hluti samningsins er skrifaður, en annar prentaður og þeim ber ekki saman, þá er það talið gilt sem skrifað er. Sama máli er að gegna með víxil eða ávísun. 5. Sanngjarn skilningur. pegar orðalag í ar beztu, hefir hann dvalið öll- um stundum heima hjá konu sinni og börnum, þegar hann gat komið því við. Hann hefir ver- ið fyrirmyndar heimilisfaðir og eiginmaður, en andstæður öllum umbótum og frelsishreyfingum. Hefir hann kent syni sínum að hata siðbætur og trúa eindregið á guðlegan rétt konunga og keis- ara. Keisarinn vildi auka verzlun- artækifæri Rússlands bæði með því að fá aðgang að Kyrrahaf- inu ogv byggja jámbrautir. Hann Ijjt taká bæði Port Arthur og Dolly og byggja Síberíubraut- ina í gegnum Manchuriu. Leiddi þetta til afbrýðissemi af hálfu Japana og varð stríð milli þeirra þjóða,í sem Rússar biðu ósigur í eins og kunnugt er. pess má geta að keisarinn | hefir verið ( einn af aðal tals-! mönnum heimsfriðar, og var | hann frumkvöðull fyrsta friðar-1 þingsins í Hague' á Hollandi i 1898. Sagt er að keisarinn sé hjá- trúarfullur fra n úr hófi og sem dæmi þess á hann að hafa borið á sér gamlan pening í mörg ár með þeirri trú að hann yrði ekki myrtur á meðan hann hefði hann á sér. Keisarinn er maðal auðugustu manna heimsins; hann á 100 hallir og notar ekk nema fjórar; laun hans voru $5,000,000 á ári og tekjur af eignum hans $10,- 000,000; haf ði hann 30,000 manns í þjónustu sinni, sem hann borgaði kaup sjálfur. Drotning keisarans var að nokkru leyti alin upp hjá Victoriu drotningu eftir að hún misti móður sína. Svo glöð og léttlynd var hún þegar hún var bam, að hún var altaf kölluð “Sólskinið”. En eftir að hún giftist keisaranum varð hún þunglvnd mjög. Var það bæði fyrir þá sök að hún var í nokk- urs konar varðhaldi vegna þess aö sífeld hræðsla vaf um það að keisarinn yrði myrtur, og í öðru lagi vegna þess, að hún eignaðist ekki son, sem ríkis- •jn;æp amupjup. anpiaq ‘ufSuijja pangað til 1904. En eklii birti yfir æfi hennar við sonar fæð- inguna. Hvert samsærið á fæt- ur öðru komst upp, til þess að myrða bæði mann hennar og son og varð hún loksins vitskert með öllu; hefir hún verið brjál- uð altaf síðan 1907, en þegar stríðið hófst hefir henni batnað til muna; hefir hún fundið frið í því að stunda særða menn og veika. Michael stórhertogi. sem nú tekur við völdum til bráða- birgða, er einkabróðir keisarans og yngri en hann; fæddur 22. nóv. 1878. Hafa þeir engir vinir verið um langan tíma. pangað til Alexis fæddist 1904 var Michael ríkiserfingi eftir bróður sinn og var ekki búist við að keisarahjónin mundu eignast neinn erfingja, því kon- ur eru ekki til ríkis fæddar á Rússlandi. Hann er uppáhalds- sonur Mariu Feodrovora drotn- ingar systur Alexöndru Breta- drotningar. Hann hefir verið mjög á móti þýzkum áhrifum í Rússlandi. Altaf hafði verið grunt á því góða með þeim bræðrum, en þó fór það fyrst gersamlega út um þúfur þegar Michael gekk að eiga Mme. Shermetlevakaia. sem var lifandi manns ekkja. Lýsti hann því yfir um leið að hann slepti tilkalli til ríkiserfða á Rússlandi, en árið 1913 rak keisarinn hann í útlegð og var hann sviftur* öllum embættum; var það alt vegna hjónabandsins. pegar Evrópustríðið hófst var hann kallaður heim aftur og gerður hershöfðingi. pjóðin hefir haft mikið dá- læti á Michael og borið til hans traust, má því vel vera að hann verði við stjórn framvegis með takmörkuðu valdi. Orpheum. MAIN’S sem er ein af betri hatta verzl- unum W innipeg-borgar Yður er boðið að koma og skoða vorar byrgðir af NÝJUSTU NÝTÍZKU HÖTTUM Main’s Hattabúð SLfÍTS Búðin er skamt frá SKerbrooke St. Vikuna sem bvrjar tnánudaginn 26. marz, verbur mikib um dýrSir á Or- pheum. Herminc Shone kemur þar þá frant í “Mary Ann" undir for- ustu Ralph Dunhar. í þessum sýninga- íeik sjást öll helztu atribi í æfiferli stúlku frá vöggunni til grafarinnar. Ipeir sent muna eftir “The Last of the Quakers” ættu ekki aS efast uni, að hér verði skemtun á ferSum, sem borgar sig aö sjá. Herbert Ashley og Kack Allman koma þar fram í “The Dawn of the new day”. Ethel MacDonough leikur á gýgj,u alla- vikuna og er hún nafn- fræg fyrir list sína. • IðLSEIN En á heiðarbýlinu, eina heiðarbýlinu á allri heið- inni, ríkti heimilisylurinn, hjarta-ylurinn og gleðin. (Á.H.B. þýddi). —Iðunn. HESTURINN TALAR VIÐ HÚSBÓNDA SINN. Mundu það, vinur minn, að eg er með holdi og blóði og finp til eins og þú. Vertu góður við mig og þolinmóður, ef eg skil ekki strax hvað þú vilt eg gjöri, því eg vil gera alt, sem þú segir mér, en hefi ekki eins mikið vit og þú. Gáðu að því að aktýgin meiði mig ekki, því eg get ekki sagt þér það. Láttu mig ekki hlaupa langt eða hart í sprotti því eg mæðist og verð þreyttur eins og þú. Mundu það að þó eg verði fjörugur og herði á mér þegar þú slærð í inig með svipunni, er það engin sönnun þess að eg sé ekki þreyttur, heldur aðeins að eg hefi tilfinningu eins og þú og hræðist svipuna. Bittu mig ekki úti á vetrardag við staur, m,ér get- ur orðið kalt eins og þér; svo er það mjög ómann- úðlegt að láta mig bíða úti bundinn við staur, sem flutti þig með trú og dygð, á meðan þú ert inni að hita þér og máske að hressa þig á heitum drykk. Pegar þú lætur mig inn í ókunnugt fjós, þá breiddu á mig hlýtt teppi, ef kalt er, svo ekki setji kulda að mér, og gefðu mér tuggu af heyi; þá líður mér betur og er rólegri að bíða eftir þér, þangað til þú ferð heim. Berðu mikið af þurrum hálmi eða strái í básinn minn svo eg hvílist betur. Láttu ekki vera neinn súg á mér, því hann er mér skaðlegur eins og þér, en nóg af hreinu lofti þarf eg. Lofaðu mér að velta mér að kveldi dags, einkanlega ef eg hafi unnið erfiða vinnu og orðið sveittur; það liðkar mig og mér líður betur yfir nóttina. Láttu mig aldrei vinna svo mikið að eg verði mjög magur, það veiklar mig og svo er það þér til minkunar að láta sjá mig svoleiðis. Láttu börnin þín aldrei sjá að þú farir illa með mig eða misbjóðir mér á nokkurn hátt, heldur láttu þau sjá og skilja að þér þyki vænt um mig og að þú viljir fara eins vel með mig og þyr er framast unt. pað mun gera þau að betri mönnum og kon- um. Kendu þeim að elska og virða mállausu skepnuna, sem erfiðar fyrir því að þú og þínir geti lifað og liðið sem bezt, og mundu það að eg er mállaus og get ekki kvartað þó eitthvað sé að mér, og treysti því á manngæzku þína, að þú s.iáir um að ekkert ami að mér, sem þú getur að gert. Láttu ekki það traust mitt á þér bregðast, því mundu það að eg á sama guð uppi yfir mér °g þú, sem verða mun dómari milli mín og þín. Vertu góður við allar mállausar skepnur og farðu vel með þær, og misbrúkaðu ekki það vald, sem þér hefir verið gefið, svo ekki fari fyrir þér eins og hinum rangláta ráðsmanni. Jack Frost, dýravinur. Hensel, N. D., 19. marz 1917. Dr. Sig. Júl. Jóhannesson. Kæri herra:— Mig hefir oft langað til að skrifa þér og þakka þér fyrir Sólskin. pað er svo gaman að taka vikublaðið og lesa þann part af því, sem er prent- aður sérstaklega handa börnunum. Eg er 10 ára gamall og er fæddur á Hofi á Höfðaströnd í Skagafirði á íslandi og kom til Ameríku 25 júlí 1914. Eg hefi gengið á skóla síðan eg kom og þarf að ganga tvær mílur. Eg hefi oftast farið á skíðum í vetur. Eg býst við að komast í þriðja bekk í vor. — Hér með sendi eg þér dálitla sögu, sem mér þætti gaman að sjá í næsta Sólskins- blaðinu. Vinsamlegast. Magnús Hjálmarson. SAMSÖNGUR. Helga gamla átti eina kú. pað var innangengt úr bænum í fjósið og kom það sér vel, einkum að vetrinum. Eg verð að geta þess, þó að saga þessi gerist að áliðnu sumri. Gamla konan skrapp einn morg- un út fyrir tún að sækja ærnar sínar. Hún ætlaði að mjólka þær fyrst og kusu svo á eftir. Hún þorði ekki annað en loka mig inni í kotinu, svo að eg færi mér ekki að voða. Hún lokaði líka Skoppu og kisu inni, þær áttu að vera mér til skemtunar. Mér fór nú að leiðast, svo eg hljóp fram í bæjardyrnar. Eg gat ekki opnað dyrnar og varð að hýma þarna í göngunum. Ekki kemur Helga, og nú fer eg að hágráta. pá komu þær Skoppa og kisa og tóku undir með mér. í sama vetfangi fer kusa að baula. Henni mun hafa þótt mál til komið að komast út í góða veðrið. Söngur- inn var nú orðinn fjórraddaður. Eg grenjaði “diskantinn”, kisa mjálmaði millirödd, Skoppa spangólaði “tenór” og kusa öskraði bassann með drynjandi röddu. pegar Helga gamla opnaði bæj- ardymar var söngurinn á enda. Skoppa hljóp út á hlað og dinglaði rófunni, kisa fór að mala af ánægju. Kusa þapaði, þegar Helga fór að mjólka hana; en eg brosti gegn um tárin meðan eg þamb- aði spenvolga nýmjólkinu. SÓLSKIN Barnablað Lögbergs. II. ÁR. WINNIPEG, MAN. 22. MARZ 1917 NR. 25 Jólin hans Vöggs litla Eftir Viktor Rydberg. Vöggur varð nú að vera eftir í sleðanum, á meðan Skröggur fór inn, og ekki sagði hann Vögg litla á eftir neitt um það, sem hann hafði séð. En eg veit það og því get eg sagt frá því. Hann sá pilt á aldur við Vögg; hann var kvikur á fæti og fríður drengur, og það sá Vöggur fyrir af for- vísi sinni, að hann mundi verða fóstbróðir og tryggasti samherji Vöggs litla á lífsleiðinni í bar- áttunni fyrir því, sem væri satt, fagurt og gott. En í vöggu leit hann lítið stúlkubam, og var munn- ur þess eins og ofurlítill útsprunginn róshnappur. Um telpuna vissi Skröggur það, að%* hún væri gift og manni gefin, mundi hún nefna Vögg ástina sína. Nú óku þeir til konungshallarinnar, sem var miklu stæirri en höfuðból herramannsins. “Hér á eg nú að gefa konungssyninum gjafir nokkrar,” sagði Skröggur; “en ekki verð eg lengi að því, enda eigum við nú eftir að aka til fjallasjólans, yfirboðara míns, og síðan heim til ömmu þinnar, hennar Geirþrúðar gömlu.” Aftur lauk Skröggur upp kistu sinni, og það sem Vöggur hafði áður séð, komst ekki í hálfkvisti við það, sem hann nú sá. Á silfurskildi einum miklum mátti sjá fjölda ríðandi og fótgangandi hermanna, og er sveif var snúið, hófu hermenn- irnir sverðin og héldu sumir til hægri og sumir til vinstri handar; en 'hestarnir prjónuðu og um leið brugðu riddararnir sverðum sínum. Á öðr- um skildi, er átti að tákna hafið, sáust herskip með fallbyssum, og er sveifinni var snúið, riðu skotin af byssunum á vígi eitt í landi, en frá víg- inu var aftur skotið á skipin. pó var þriðji skjöld- urinn aðdáunarverðastur. par mátti sjá óteljandi býli, stór og smá, akra og engi og fjölda fólks bæði úti og inni, en alt var þetta svo smátt, að það sást ekki almennilega nema í stækkunargleri. En þá mjunaði lika um það, sem maður sá. parna mátti sjá fólk að slætti og allskonar útivinnu, smiði og múrara, vefara, skraddara og skóara og marga aðra iðnaðarmenn við marga aðra sýslu. Svo mátti sjá konur, sem voru að dunda hitt og þetta, breiða dúka á borð og kalla á börn sín til máltíða. En þar gaf líka að líta hungruð börn og sjúk og hryggar mæður, er naumast áttu málungi matar. Skröggur fór nú inn í höllina á fund konungs- sonar með þessi einkennilegu barnagull. “Prinz!” sagði hann, “hugsaðu ekki eingöngu um hermenn- ina og herskipin, heldur líka um alþýðuna og henn- ar súra sveita. Bið þú guð að blessa hana, og er þú verður konungur, þá láttu það verða helzta áhugamál þitt að bera hag hennar fyrir brjósti þér og bæta kjör hennar. pá mun hinn mikli dómari geta sagt við þig á efsta degi: — “pað sem þú hefir gert þeim sem minstur var brseðra minna, það hefir þú og mér gert.” Að svo mæltu kvaddi skröggur og fór. En nú fóru farskjótarnir að frísa og hneggja. Skrögg- ur tók nú aftur við taumunum og settist hjá Vögg, og svo þutu þeir af stað eftir dimmum skógi. “Hvert er ferðinni nú heitið?” spurði Vöggur. “Til fjallajsólans,” svaraði Skröggur. Vöggur litli var nú orðinn hálf-stúrinn á svip- inn. Stundarkorn sat hann þegjandi, en spurði síðan: “Er nú kistan tóm ?” “pví sem næst,” sagði Skröggur og brá pípunni í munn sér. “Allir hafa nú fengið jólagjafir nema eg,” sagði Vöggur. “Og ekki hefi eg nú gleymt þér; jólagjöfin þín liggur á kistubotni.” “Lof mér að sjá hana, þá ertu vænn.” “pú getur nú beðið, þangað til við komum heim til ömmu gömlu.” “Nei, góði Skröggur minn, lof mér að sjá hana strax,” sagði Vöggur litli með töluverðri ákefð. “Nú, hana þá!” sagði Skröggur um leið og hann sneri sér í sæti sínu, lauk upp kistunni og tók upp

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.