Lögberg - 21.06.1917, Síða 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. JÚNÍ 1917
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
umbia Pre**, Ltd.,'Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
TALSIMI: CARRY 2156
SIG. JUL. JÓHANNESSON, Editor
J. J. VOPNI, Business Manager
Utanáakrift til blaðnns:
THE OOLUMBIH PRES*, Ltd., Box 3172. Winnipog, H'ú-
Utanáakrift ritstjórans:
EOITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipag, ^an.
VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um áriB.
■«►27
Eins og það á að vera.
Oft er um það kvartað, hversu fáir bændur
séu á þingi, bæði hér í landi og annarsstaðar.
Búnaðurinn er undirstaða að velvegnan flestra
landa; og sé þvi þannig farið um nokkurt land, þá
eru það vesturfylki Canada.
í Manitoba, Saskatchewan og Alberta er afar
mikill partur þjóðarinnar bændur; ef til vill hlut-
fallslega fleiri en í nokkrum öðrum hluta þessa
lands.
Af þessu leiðir það að bændur ættu að hafa
fleiri fulltrúa á þingi., en nokkur önnur stétt;
þeir ættu svo að segja að stjórna landinu. pví
afar mikið ríður á því að stjórnin í hvaða landi
sem er þekki og skilji þau málefni til hlítar, sem
hún semur lög um.
í Saskatchewan er eins og þjóðin hafi haft
þetta hugfast; miklu meira en helmingur allra
þingmanna þar er bændur og er það trygging fyrir
góðri stjórn.
Sumstaðar er því þannig komið fyrir að þótt
bændur hafi marga fulltrúa á þingi, þá eru þeir
ekki teknir í stjómina; þeim er ekki sýnd sú til-
trú og það traust, sem þeim ber, og af því að þeir
eru einhvemveginn útilokaðir frá ráðherrastörf-
um og þess gætt að þeir séu aðeins óbreyttir þing-
fulltrúar, þá koma þeir auðvitað litlu til leiðar.
Meira að segja, svo langt er oft farið, þegar
ráðherravalið fer fram að búnaðarráðherrann er
jafnvel ekki bóndi, 3em þó ætti undir öllum kring-
umstæðum að vera sjálfsagt.
peir hafa þetta öðruvísi í Saskatchewan; þar
má svo að orði kveða að sé blátt áfram bænda-
stjóm, og mun það ekki ofsögum sagt að allmikið
af þeim miklu og dæmafáu framfömm, sem þar
hafa átt sér stað í búnaði, stafi af því hversu
samvizkusamlega og vel valið hefir verið í stjóm-
ina. Af átta mönnum sem stjómina skipa, em
fjórir bændur; allir menn, sem frábæran dugnað
hafa sýnt í búnaði og sérlega látið sér ant um að
fræða bændur og bæta kjör þeirra.
peir hafa allir verið þátttakendur í frumbýl-
ingsbaráttunni og skilja því þarfir og ástæður
bændanna öðrum betur, auk þess, sem þeir hafa
praktiska búnaðarþekkingu.
Af 44 þingmönnum í fylkinu alls em 30 bænd-
ur, sem allir stunduðu búnað og flestir gera það
enn, bæði sem hveitiræktarmenn og kvikfjár.
pað er algengt þegar bændur þurfa á einhverri
hjáíp eða upplýsingum að halda frá stjóminni,
þá verða þeir að koma til viðkomandi ráðherra,
sem nokkurs konar hærri og æðri vem, sem tæp-
lega sé hægt að tala við nema í fjarlægð.
Hér er um ekkert slíkt að ræða; hér fer aðeins
bóndi til bónda, stéttarbróðir til stéttarbróður og
talar við hann um vankvæði sín þannig að báðir
skilja málefnið og báðir skilja hvor annan.
petta er ef til vill leyndardómurinn að því
hversu vel Saskatchewanfylkiði hefir þrifist og
hversu miklum og fljótum framförum búnaður-
inn hefir tekið þar.
pessir fjórir ráðherrar í Saskatchewan, sem
bændumir hafa úr sínum flokki eru: hinn alkunni
og góðkunni W. R. Motherwell, George Langley,
A. P. McNab og C. A. Dunning. pessara manna
er minst annarsstaðar í blaðinu. Jafnvel sterk-
ustu afturhaldsmenn, sem nokkra sannleiks-
tilfinning hafa dirfast ekki að bera það fram, að
hér sé ekki um færa, fróða, reynda og æfða, ráð-
vanda og samvizkusama menn að ræða.
Jafnvel rógburðartennur afturhaldsins hafa
veigrað sér við að snerta þessa menn, þrátt fyrir
góðan vilja.
Fjögur stórmál.
pegar um stjómmál alment er að ræða, kemur
þar margt til greina. En venjulega em einhver
atriði sérstaklega, sem mest er um vert.
Saskatchewan er umfram alt landbúnaðar-
fylki. pað er því meira áriðandi en alt annað
þegar kosin er stjóm að þar sé hagur bænda og
framfarir landbúnaðarins borinn fyrir brjósti.
Stjómin þarf í mörg hom að líta í ungum land-
búnaðarfylkjum, eins og Saskatchewan. Landið
þarf að byggjast upp, því strjálbygð er niður-
drep allra landa; bændur þurfa að fá þægileg
lánskjör, því á því ríður að landið sé ræktað og
auðæfi þess framleidd, en flestir bændur verða
að fá lán til þess, og framtíð þeirra er að miklu
leyti undir lánkjömm komin.
Verzlunin þarf að vera frjáls; bændur þurfa
að hafa sem óbundnastar hendar til þess að koma
þeim vömm sem þeir framleiða á þann markað,
sem bezt borgar fyrir þær, án þess að sæta fjár-
sekt eða hegningu.
Og síðast en ekki sízt þurfa bændur á því að
halda að heldur sé greitt fyrir þeim en fótur sett-
ur í veg þeirra, þegar þeir em að kaupa þau verk-
færi, sem þeir þurfa til þess að vinna jörðina.
pað er ekki nóg að fylkið hafi óþrjótandi land,
nema því aðeins að fólk fáist til þess að flytja
þangað; annars er landið einskis virði; það er ekki
nóg að fólkið fáist ef það er með tvær hendur
tómar og getur ekki fengið lán með bærilegum
kjörum til þess að kaupa áhöld fyrir.
pað er ekki nóg að hafa peninga, jafnvel þó
þeir fáist með góðum kjörum, nema því aðeins að
verkfæri faist fyrir þá með sanngjömu verði og
það er ekki nóg að menn hafi verkfæri og fram-
leiðslu tækifæri, ef okurtollar hamla mönnum arð-
samrar verzlunar með eigin vörur.
pessi fjögur atriði eru það, sem kjósendur í
Saskatchewon verða að láta sér ant um við næstu
kcsningar, og það eru þau atriði, sem núverandi
stjóm hefir látið og lætur sér annara um en
i ( kkuð annað, því þau eru fmmskilyrði almennra
framfara. Hér skal farið nokkrum orðum um
þau hvert fyrir sig.
I.
Landið.
í Saskatchewan fylki eru 650,000 manns;
fylkið er aðeins tólf ára gamalt og má því
þessi fólksfjöldi teljast mikill, þegar tillit er tekið
til þess hve fáir voru þar þegar fylkið var stofnað.
En nóg land er í fylkinu til þess að bera miljón
manna. Landið er enn óbygt svo mörgum miljón-
um ekra skiftir, ágætlega fallið til akuryrkju og
alls konar búnaðar.
En hinir og aðrir prangarar og ýms auðfélög
eiga stórar spildur af þessu góða landi, sem látið
er liggja ár eftir ár ónotað í stað þess að fátækir
og dugandi menn geti fengið það til afnota og
framleiðslu sjálfum sér og þjóðinni til blessunar.
petta er málefni, sem sambandsstjómin hefir
átt að annast um og hefir hún verið margkrafin
til framkvæmda, en ávalt daufheyrst.
Saskatchewan stjómin vill ekki láta við svo
búið standa og hefir hún því samþykt að semja
skýrslu með greinilegum upplýsingum um hverja
einustu jörð í fylkinu, og er það áform stjómar-
innar, ef þjóðin sé þvi samþykk, að kaupa alt autt
land sem fáist með sæmilegum kjörum og selja
það síðan áreiðanlegum frumbýlingum með svo
vægum kjörum og lágum vöxtum að þeim sé ekki
ofvaxið að standa í skilum með verðið.
Vegna þess að sambandsstjómin hefir
umráð yfir löndum og innflutningi, hefir verið
búist við að hún héldi áfram því verki, sem fram-
sóknarflokkurinn hafði byrjað á. Innflutningur
í landið hófst meiri en nokkru sinni áður þegar
hann kom til valda 1896, en þótt einkennilegt sé
brá svo við þegar afturhaldið kom til valda 1911
að svo að segja tók fyrir innflutninga. Afturhaldið
hefir eytt miljónum dala til innflutninga, en á-
rangurinn hefir orðið sára lítill.
Landið er einskis virði ef fólkið er ekki til að
hyggja það. Áður en innflutningar hófust var
ekran í Saskatchewan ekki nema $1.00 virði, en
er Laurierstjómin hóf innflutningastarf sitt og
fólkið fór að streyma inn í landið, þá hækkaði
verðið og fór á örstuttum tíma upp í $15—$30
ekran.
pað er því lífsskilyrði fyrir framfarir lands
og lýðs að fólkinu f jölgi. ÖII störf verða þar hæg-
ari, sem samvinnan getur orðið meiri, en til þess
er það nauðsynlegt að sveitimar séu fjölbygðar.
Framsóknarstjómin hefir þetta í huga og hefir
því krafist þess að fólkið fái umráð yfir öllum
íandsnytjum; ætlar hún að heimta það fyrir hönd
fólksins, ef það er því samþykt, eins og atkvæðin
26. þ. m. munu sýna að það er.
pað að kaupa landið af auðfélögum og selja
bændum það með sanngjömu verði og lágum
vöxtum er þannig lagað spor að það hlýtur að efla
sérstaklega búnaðinn.
petta lætur afturhaldsflokkurinn sér ekki
koma til hugar; mál fólksins og fjöldans eru ekki
mál hans; það em auðfélögin og afturhaldið, sem
sá flokkur hefir tekið sér fyrir hendur að verja.
II.
Bændalán.
En það er ekki nóg að fólkið flytji inn í landið;
aðal atriðið í huga allra samvizkusamra stjóma
er það, að fólkinu líði vel, þegar það er komið og
að það geti bjargast áfram bæði efnalega og á
annan hátt.
Bóndi úti á landi, með tvær hendur tómar,
sem ekki hefir efni til þess að kaupa sér nauð-
synlegustu'áhöld, er eins og sjómaður úti á regin
hafi á áralausum bát.
Hversu frjó og auðug sem jörðin er, verður
hún ekki að neinum notum, ef ekki eru efni til að
vinna hana.
Sama er að segja um þá, sem griptrækt stunda,
þeir þurfa einnig að fá aðstoð til þess að geta
keypt sér stofn og áhöld.
í Saskatchewan, eins og annarsstaðar hafa
auðfélögin þrengt að kostum bænda í þessum
efnum og ekki lánað fé né verkfæri nema með afar
kjörum og okur vöxtum. Árið 1913 sá stjórnin
að svo búið mátti ekki standa; hún bar hag bænda
fyrir brjósti og samþykti því lög um það að veitt
yrðu lán til bænda í fylkinu til jarðabóta, gripa-
kaupa, verkfærakaupa o. s. frv. með lágum vöxt-
um og lágum borgunarskilmálum. Vegna stríðs-
ins var ekki hægt að framfylgja þessum lögum
þá þegar.
En nýlega voru samin lög af stjóminni og
samþykt af þinginu, mjög lík hinum fyrri frá
1913, þar sem stjóminni veítist heimild til þess
að hlaupa undir bagga með bændum með beinum
lánum með vægum kjörum.
pessum lögum stjóraar þriggja manna nefnd;
þeir taka á móti peningaumsóknum og lætur
stjómin þá hafa til úílána það fé, er þeir mæla
með að veitt sé. Lánin eru veitt aðeins bændum
gegn jarðaveði og eru vextir hafðir eins lágir og
mögulegt er.
Lánið er veitt til 30 ára, en endurborga má það
hvenær sem er. petta er til þess að allir bændur
fylkisins, sem þess þurfa, geti fengið lán, sem
eins auðvelt sé fyrir þá að höndla og mögulegt sé.
pað er eftirlátið kjósendum sjálfum til úr-
skurðar, hvort þeir vilji ekki láta frjálslyndu
stjómina halda þessu verki áfram, sem svo vel
hefir berjað.
Bændumir vita það að þeir eiga ekkert skjól
öruggara, en hjá þeim, sem þá stjóm skipa;
bændakomhlöðumar, sem stjómin kom í fram-
kvæmd er eitt af hinum stóru sporum þeirrar
stjómar.
pá er annað atriði í sambandi við þetta. Bank-
amir hafa veitt bændum bráðabyrgðalán, en kjör-
in eru ekki sem aðgengilegust og vextimir afar-
háir.
Vegna bankalaganna, sem ákveða að þau séu
öll í höndum sambandsstjómarinnar, hefir stjóm-
in ekki vald til að hafa á hendi þess konar Ián.
Hún hefir því krafist þess að bankalögunum verði
þannig breytt að fylkisstjórinnni veitist heimild
til þess að hjálpa bændum í þessu atriði. Ætlar
stjómin að gangast fyrir stofnun bæmdabanka,
sem sint geti kröfum fylkisbúa eftir því sem við
á í hvert skifti og í hverju héraði.
pað er ekki líklegt að bændur fylkisins greiði
atkvæði á móti þeim, sem þessi mál hafa með
höndum fyrir hag þeirra.
III.
Toll-Iækkun.
Hér hefir verið talað um það að fá góða inn-
flytjendur og gera þeim það mögulegt að rækta
landið og hafa blómleg bú.
En þao er ekki nóg. Eins lengi og auðfélögin
í austur Canada hafa höndina í vasa bóndans í
vesturlandinu með vernd sambandsstjóraarinnar,
og ræna þaðan miklum hluta ágóðans af erfiðis-
laununum með ranglátum og óforsvaranlegum
tollum, eins lengi og bændur fá ekki að verzla
sektalaust með sínar eigin vörur, getur þeim ekki
liðið vel og geta þeir ekki verið ánægðir.
Árum saman hafa bændur vesturlandsins bar-
ist fyrir verzlunarfrelsi; árum saman hafa þeir
sent nefndir til Ottawa og krafist umbóta í því
máli; ár eftir ár hafa bændafélögin lýst yfir
gremju sinni og vanþóknun gegn tollakúguninni,
en allar þessar raddir hafa mætt daufum eyrum
þar eystra.
Framsóknarflokkurinn hefir stöðugt fylgt
bændum í þessari baráttu, og hann gerir það enn.
pað sem hann beitir sér fyrir og krefst fyrir hönd
bænda er.
1. Alfrjáls kornverzlun fyrir Saskatchewan
við Bandaríkin og öll önnur lönd, sem slíkir
samningar fást við.
2. Algert afnám tolla af öllum akuryrkju-
verkfærum og öllum þeim tækjum, sem til búskap-
ar eru nauðsynleg.
3. Lækkun tolla á öllum lífsnauðsynjum.
4. Enn þá meiri lækkun tolla á vörum flutt-
um hingað frá Bretlandi, og afnám slíkra tolla
með öllu innan skamms.
pað sem framsóknar- og afturhaldsmönnum
ber á milli er of kunnugt til þess að þörf sé á að
skýra það. Afturhaldsliðið er eindregið á móti
öllum tolllækkunum; það er verndarflokkur auð-
valdsins o gverksmiðjueigandanna í Austur Can-
ada; það er flokkur sem daufheyrist við bænum
og kröfum bændanna; það er flokkur, sem ekki
ber fyrir brjósti hag landsins heldur sinn eiginn.
Pessu til sönnunar er nóg að benda á aðfarimar
1911, þegar gagnskiftasamningurinn var feldur.
Afturhaldsfolkkurinn neitar bændum um rétt
til frjálsrar verzlunar; afturhaldsflokkurinn telur
það landráð að leyta verzlunar við Bandaríkin;
afturhaldsflokkurinn kallaði framsóknarmenn
föðurlandssvikara 1911 fyrir það að vilja leyfa
bændum að verzla með eigin vöm án sekta. Um
þetta geta engin deiluefni verið, það er skrifað
svart á hvítu í sögu þjóðarinnar.
Tollbaráttan er ekki enduð; hún er rétt að
byrja; hún endar aldrei fyr en bændur, hinir
sönnu synir landsins, fá sínum sanngjömu kröf-
um framgengt.
Æsingar geta afturhaldsmenn nefnt allar til-
raunir til frjálsrar verzlunar; æsingar hafa verið
nefndar allar umbóta tilraunir í byrjun; æsingar
kallar afturhaldið og hnefarétturinn alt það, sem
ekki segir já og amen og hallelúja við öllum höft-
um og þrælatökum einokunarinnar. pannig var
það á dögum Neros; þannig var það í Rússlandi,
þannig er það í pýzkalandi og þannig er það í
Canada.
En það er ef til vill ekki rétt að taka hart á
afturhaldsflökknum fyrir þetta. Hann hefir til-
veru sína fyrir náð auðvaldsins; auðvaldið segir
við hann, ef þú leyfir okkur að sjúga út hús ekkna
og föðurleysingja hindrunarlaust, ef þú leyfir
okkur að ræna nokkmm tugum þúsunda úr vasa
hvers bónda í Vesturlandinu í hvert skifti sem
hann kaupir akuryrkjuáhöld; ef þú sérð um að
við getum náð í meiri hluta af öllum árangri
starfsamra handa og frjósams lands þama vestur
frá, þá skulum við aftur á móti stinga upp í þig
bragðgóðri dúsu. petta varð að samningum sér-
staklega 1911 og þeir samningar standa enn ó-
haggaðir og trúlega haldnir.
Haultain-svikin eru ógleymd enn — og gleym-
ast aldrei. Afturhaldsflokkurinn í Saskatchewan
hlýðir og verður að hlýða afturhaldsvaldboðunum
austur í Ottawa. peir verði að fara eftir skipun-
um hins alþekta Rogers; þeir eru ekki sínir eigin
herrar; það hefir sagan sýnt. Samningamir 1911
sýndu það og sönnuðu óhrekjanlega að þeir eru
aðeins verkfæri í hendi stærri óaldarflokks á móti
þjöðarheill og frelsi.
Hver einn og einasti afturhaldsþingmaður
sveik bænduma í Vestur Canada árið 1911, og
það verður ekki reiknað hversu mikið tjón af því
leiddi; tapið í öll þessi ár síðan nemur miljónum
dala úr vasa bænda. peir sem sviku þá, eru ekki
síður vísir til að svíkja nú; þeir stjómast allir af
sömu höndinni í Ottawa nú eins og þeir gerðu þá.
IV.
Bænda verkfæri.
Eitt það, sem bændum ríður á frekar en flestu
öðru, er það að þeir eigi kost á að kaupa verkfæri
með viðunanlegum kjömm.
Saskatchewanbúar em framleiðslufólk. Aðal
framleiðslan er af akuryrkju og henni fleygir fram
ár frá ári, ef ekki em settir steinar í veg fram-
leiðandans.
>m... ................. ,,
SÓNHÆTTIR
(Sonnets).
IV. Duldraumar.
Hún gaf sig þér með allri sinni ást
og allri von og trú. En mannleg sál,
— þótt sameign verði’ um sérhvert einkamál —
á sérrétt þann, er hyggju margoft brást. —
Hún gaf þér alt? Nei, aldrei öfl þau nást,
sem inst og dýpst í vitund tendra bál.
pví verður stundum reyndin reynzlutál
og rökin hulin skyggja’ á þau sem sjást. —
Hún gaf þér alt sitt þekta — óþekt ei,
pað enginn getur. Lífið fram það ber
sem ámar gullsand. Neminn í hann nær. —
pú stóðst þar næst, en verður fjársins fjær
ef fanstu’ ei meira’ en gjöf, sem veittist þér.
pá getur ást þér orðið brottsiglt fley.
P• P- P.
X
4-
•f
•f
X
♦
T*
!
X
♦-
-♦
THE DOMINION BANK
STOFJÍSETTUR 1871
Cppborgaður höfuðstóU og varasjóður $13,000,000
Allar eignlr - 87,000,000
Beiðni bœnda um lán
tii búskapar og gripakaupa sérstakur gaumur gefinn.
Spyrjist fyrir.
Notre Dame Branch—W. M. HAMII/TON, Manager.
Selklrk Branch—M. 8. BOROER, Msoafer.
I
f
X
■ t
♦
•f
♦
t
♦
♦
♦
X
♦
t
4-
NORTHERN CROWN BANK
Hofuðxtóll löggiltur $6,000,000
Varasjóðu..
HöfuSstóll graiddur $1,431,200
...$ 715,600
Vara-formaður..................... - Capt. WM. ROBINSON
Slr D. C. CAMERON, K.C.M.G. J. H. ASHDOWN, W. R. BAWLF
& F. HCTCHINGS, A. McTAVISH CAMPBELL, JOHN STOVELi
Allskonar bankastörf afgreldd. Vér byrjum relkninga vi8 einstaklinga
eSa félög og sanngjarnir skilmálar veittlr. Avtsanir seldar tll hvaSa
staSar sem er á Islandi. Sérstakur gaumur gefinn sparlsjóSslnnlögum,
sem byrja má meS 1 dollar. Rentur lagSar vlS á hverjum 6 mánuSum.
T- E. THORSTEINSSON, Ráðamaður
Cor. William Ave. og SKerbrooke St., - Winnipeg, Man.
/éÝir^éÝÝéÝr^aÝÝéST^iéVfaÝÝéVoýéÝýéV'Ýé^ýéS'MýéÝýéV'ýáÝýéNTCéWéÝýéST/éAT^éSaÝéSiýéÝtiillýiÝýéS'ýéÝýéÝ'.ÝéÝ.ýéSiÝéÝr;
Læknaðist án meðala
eða uppskurðar . . .
Um langan tíma höfum vér veriS að lækna hundruö
manna, sem þjáSst hafa af ýmaum efnislegum sjúkdómum
— ekki fáa, sem taldir hafa veriS ólæknandi af frægum
læknum og sérfræSingum á sjúkrahúsum.
Vér höfum hina einföldu og eSlilegu lækninga-
aSferÖ, sem kallast
“CHIROPRACTIC”
Og vér tökum ekkert fyrir ráðleggingar og ekki einn
einasta dollar fyrir verk, nema því aS eins aS oss hepnlst
þannig aö sjúklingar vorir séu algerlpga ánægSir.
1930 Elgin Ave., Winnipeg
2. febr. 1916.
Dr. Munroe:—
Eg tel þaS skyldu mlna að senda þér noklcrar línur
til þess að þakka þér fyrir aS þú veittir mér sjónina aítur,
eins fullkomlega og eg hefi hana 1 dag. SíSan I aprll 1909
hefl eg þjáSst af þvl, sem augnalæknar kalla “diplopia”,
og haföi sjún minni stöSugt fariS hnignandi. Mér var
sagt aS fá mér gleraugu og hnýddi eg þvl. Stundum sá
eg svo llla aS eg varö áð láta le’iða mig. Eg þektl stund-
um ekki skil dags og nætur og varð að hætta aS vinna og
vera heima, stundum nokkra daga, stundum svo vlkum
skifti. pessu fór fram I þriggja ára tlma. Loksins var
mér sagt aS eg væri læknuS, en þrátt fyrir þaS fékk eg
köstin enn þá tlSari, þangaS til áriS sem leiS aS mér var
sklpaS aS hafa tvenn gleraugu á sama tlma. Eg gekk
meS þau I alt fyrra sumar þangaS tll í september, þá varS
eg aS hætta aS vinna aftur. Vinir mlnir eggjuSu mig á
áS fara og finna Dr. Munroe. Loksins gerSi eg þaS. Nú
eg er orSinn svo frlskur aS eg get stundáS atvinnu mlna og
unniS fyrlr heimilt mlnu. Eg sé betur nú en eg hefl gert
I mörg ár. Nú hefl eg sjaldan gleraugu -— þökk sé
“Chiropractic”. Fólk sem þekklr mig er hissa á þvl aS
sjá mig gleraugnalausan, og öllum ber saman um aS eg
hafi aldrei veriS eins hraustur til augnanna. Eg á engin
orS til þess aS þakka þér eins og vert er, fyrir þolinmæSl
þína og staSfestu og mun eg vissulega mæla eindregiS
meS lækinngaaöferS þinni viö alla, sem þjást af sömu
veiki og eg geröi. pér er fullkomlega heimilt aö nota
þetta bréf til vitnisburðar eða á hvaöa hátt, sem þér
sýnist. Hver sem efast kynni. þarf ekki annaö en aö
skrifa eða koma og tala viö mig á þeim stað, sem til rr
tekinn hér aÖ ofan. Meö beztu þökkum fyrir þaö hvemig
þér læknuðuð mig, er eg þinn einlægur, William Harford.
Skrifið eftir upplýslngum.
Drs. MUNR0 & McPHAIL,
204 CARLTON BUILDING, WINNIPEG. — Talmími: M. 234.
En aðal skilyrðið fyrir óhindr
aðri framleiðslu er afnám tolla á
búnaðaráhöldum: Plógar, herfi,
sáðvélar, þreskivélar, sláttuvél-
ar, hrífur o. s. frv. petta er það
sem bóndinn þarf á að halda.
Verðið á öllum þessum áhöld-
um er óþolandi vegna þeirra
tolla, sem á þeim hvíla. í hvert
skifti sem bóndinn kaupir vél,
ræna auðfélögin hann stórri
fjárupphæð.
Framsóknarflokkurinn krefst
þess fyrir hönd bænda að þeim
leyfist að kaupa verkfæri sín
þar sem þau fáist ódýrust og
það er í Bandaríkjunum.
Framsóknarstjómin í Saskat-
chewan hefir byrjað á að rann-
saka athæfi auðfélaganna í
Austur Canada, sem hafa sam-
bandsstjómina í höndum sér í
sambandi við hið mikla ránsverð
á vélum sem seldar eru þangað
vestur. pessari rannsókn held-
ur stjómin áfram hlífðarlaust
og má nærri geta hversu ant aft-
urhaldsstjóminni í Ottawa og
auðvaldinu í Austur Canada er
um að koma þeirri stjóm fyrir
kattamef, sem slíkt verk hefir
með höndum.
Lesið þessa grein vel og íhug-
ið hana þangað til 26. þ. m.
Manitobastjórnin og Alþýðumáladeildin
Greinarkafli eftir itarfsmann alþýðumáladeildarinnar.
MEÐFERÐ RJÓMA HEIMA FYRIR
Fyrlr skömmu birti búnaöardeildin í þessu blaöi nokkrar leiöbeiningar
um þaö, hvernig halda mætti hreinni og ðskemdri mjólk heima fyrir. Svo
gæti þó viljað til að öll hreinindi væru viðhöfð þegar mjólkaö er, en rjóminn
skemdist á eftir. Hér fylgja fáeinar reglur fyrir þá að fylgja, sem mjólk
hafa meöferöis, og sérstaklega fyrir þá, sem selja rjóma á smjörgerðarhús.
1. Far tafariaust með mjólkina úr fjósinu, þegar búið er að mjólka,
sla hana og skilvinda hana ef skilvinda er á heimilinu, og ger þaö eins vel
og hægt er á meðan mjólkin er ný og volg, því þannig skilst hún bezt.
2. Geym skilvinduna þar sem hreint er og hreinsið hana vel í hvert
skifti sem hún er notuð. Gætið þess að skilvindunni sé snúið mátulega hart
og aö hún snúist stööugt. Sé þáð gert skilst mjólkin betur og vélin endist
lengur og vinnur betur.
3. Takið nokkuð þykkan rjóma; rjóma með 35%—ekki minna en 30%
—af smjörfitu, sem gerir fjögur pund af smjöri úr fjórum pottum (gallon).
Til þess þarf venjulega 100 pund af mjólk I 10—12 pund af rjóma. Slíkur
rjómi helzt lengur óskemdur, strokkast betur, ef hann er mátulega volgur
og úr honum kemur gott smjör.
4. pegar búið er að skilja þarf aö kæla rjómann tafarlaust svo hann
verði 50 gráður eða minna og þárf að hafa hann I sérstakri könnu þangaö til
það er búið. Haf lok yfir könnunni.
5. pá má láta rjómann saman við, annan rjóma. Rjómlnn ætti aS
vera hafður kaldur þangað til hann er fluttur til smjörgerðarhússins. Hrær
altaf I rjómanum, þegar nýjum rjóma er bætt I.
6. Bezta aðferðin til þess að kæla rjóma og haida honum köldum er
sú að láta hann I kassa með köldu vatni; helzt með Is I.
Kælikassi með verjum á milli brunns og vatnsrennu. Byrgja ætti yfir kassann.
I.ýsing kassans.
Hliðar og botn kassans, sem hér er sýndur, eru búin til úr 2x4 þuml.
plönkum, en látinn pappi og einfaldur viður, sem fellur1 vel, bæði innan á og
utan, slðan er 4 þumlunga bilið fylt með þurum hefiispæpum eða sagf. • pá
er kassinn fóðraður með galvaniseruðu járni. % plpa ætti að vera I botnin-
um á kassanum, með krana til þess að tæma kassann þegar þörf er a. Dýpt
kassans og krana hæðin þarf að vera eftir stærð kannanna. Lokið á kassan-
um er búið til úr tvöföldum viði, með rakaheldum pappír á milli og málað
með límkvoðu (shellac) að neðan. Efra lagið I lokinu á að vera langsum,