Lögberg - 21.06.1917, Page 8
»
LÖGBERG, FIMTUDAGINíJ 21. JÚNÍ 1917
Sérstök kjörkaup
Laugard. 23. Júní
20 pd. Sykur - ............ $1.86
Blue Fibbon Te pd. ............ O-45
Red Rose Te pd.......... ....... 0.4 5
Quaker Korn Flakes 3 pakkar.... 0.25
Jel’y duft 3 pnkkar ............ 0.25
4 pd. Jam fata vanalega 60c... 0.50
Rústnu pk. vanalega löt....... 0.12
4 pd. Hrfsgrjón.............. • 0.25
Ný Kgg, tylftir................. 0.32
Bænda smjör ................. 0.3?
Rjómabús smjór ................ 0.43
2 pd. Kassí Soda Bisciut....... 0.2'/
10 pd. hveitipoki............. 0.75
10 pd. Robin Hood hveitl...... 0.80
Kxcelsior Macaroni, pk......... 0.10
Oranges tylftin.... 23c. 25c. 30c. 40c.
Kpli 3 pd fyrir................. 0.25
Rhubarb 10 pd.................. 0.25
Tomatoes 1 pd.................. 0.15
BAUM & Co.
Matvörusalar
Talsfmi G. 3314
493 Notre Dame Ave., Wlnmpeg
Or bœnum og grend.
Stúlka óskast í vist þar sem 6 eru
í heimili. Gott kaup borgað og gott
heimili fyrir kventnann, sem þykir
vænt um börn. — Upplýsingar hjá
Mrs. C. E. Harvey, 706 McMillan
Ave., Winnipeg.
Jón Þóröarson frá Langruth, Frí-
mann og Albert synir hans og Magn-
ús Johnson komu allir hingaö til bæj-
arins fyrra þriöjudag á bifreið. Er
þaö um 100 mílur og voru þeir 5
klukkustundir á feröinni. Þeir létu
v’el af öllu þar út frá; 9Ögöu engar
skemdir orönar af þurkum og alt líta
fremur vel út.
Jónas Björnsson frá Baldur fór
noröur til Gimli fyrra þriöjudag til
þess aö heimsækja fööur sinn Björn
Magnússon. Hann kom þaöan aftur
á fimtudaginn og fór heim á laugar-
daginn.
Snæbjörn Einarsson kaupmaöur
frá Lundar var á ferö í bænum i
vikunni sem leiö.
Oddur Jónsson frá Lundar og Ottó
sonur hans komu hingaö til bæjarins
fyrir helgina. Oddur hefir selt bu-
jörö sina og brugöið búi. Er hann
nú aö flytja norður til Gimli og ætlar
aö dvelja á Gamalmenna heimilinu
í bráðina að minsta kosti. Bætist þar
ræöinn maöur og skemtilegur i höp-
inn.
Magnús Pétursson frá Langru,th
var hér á ferð í vikunni sem leið.
Hann var í vmsum verzlunarútrétt
ingum; þar á meðal að finna búnað-
arstjórnina hér í sambandi viö rjóma-
bú, sem verið er aö stofna í Lang-
ruth-bygðinni og kvaö hann það er-
indi hafa gengið vel.
Séra Siguröur Chrictoptreson var
hér á ferö í vikunni sem leiö; haföi
hann fengiö skeyti aö koma þangaö
til þess aö jaröa aldraða konu, sem
þar er nýlátin.
Þorgrimur Pétursson kom hingað
til bæjarins á fimtudaginn, norðan
frá Framnes-bvgö; hefir hann verið
þar í vetur. en var nú að fara út til
Morden-bygðar og býst við að vinna
þar i sumar. Með haustinu kvaö
Þorgrímur það hafa komið til oröa
að hann flytti til Riverton.
Látin er að Langruth ekkja Friö-
finns Þorkelssonar, háöldruö kona,
sem veik hefir veriö um langan tíma.
Maöur hennar lézt fvrir tveimur ár-
um.
í bréfi frá Árna Eggertssyni er
þess getið aö Gullfoss muni koma
heim til fslands á sunnudaginn (17.
þ. m.).
Steián Johnson frá Brú, sem hér
var á ferö í bænum nýlega sagöi þá
frétt aö Kornyrkjumanna félagiö
heföi kevpt kornhlööu í Cypress
River, og yröi fenginn bóndasonur
þar úr bygöinni til þess aö stjórna
henni. Deild þeirri af þessu fél, sem
Argyle-búar hafa stofnaö, er aö
vaxa fiskur um hrygg ár frá ári, eins
og annarsstaðar. Eru bændur nú í
undirbúningi meö aö panta kol og
fleira fyrir milligöngu félagsins.
7. júní voru þau Harry Heidman
og Mabel J. O. Johnson gefin saman
í hjónaband aö heimili fósturforeldra
brúöarinnar Mr. og Mrs. B. Joseph-
son aö Skálholti. Brúöguminn er
bóndi fyrir noröan Glenboro. Ensk-
«r prestur gifti þau.
Glenboro blaöið getur þess 14. þ. m.
að Mrs. J. S. Frederickson, sem hér
var veik á sjúkrahúsinu, en komin
heim, hafi verið flutt til Winnipeg
aftur tFsvert veik.
Alt eyöist, sem af er tekið, og svo
er meö legsteinana, er til sölu hafa
veriö síðan í fyrra. Eg var sá eini,
sem auglýsti veröhækkun og margir
viðskiftav’ina minna hafa notaö þetta
tækifæri.
Þiö ættuö aö senda eftir veröskrá
eöa koma og sjá mig, sem fyrst. Nú
veröur hvert tækifæriö siöasta, en
þiö sparið mikiö meö þvi aö nota þaö.
Eitt er víst, aö þaö getur oröiö
nokkur tími þangaö til aö þiö getið
keypt Aberdeen Granite aftar.
A. S. Bardol.
Hannes Lindal, Pétur Anderson og
Johann Johnson fóru vestur ti! Glen-
boro fyrra föstudag.
0. júní gaf séra Friðrik J. Berg-
mann saman í hjónaband þau herra
Kjartan Stefánsson og ungfrú J. S.
Johnson frá Cypress River. Brúöur-
in er dóttir þeirra Mr. og Mrs. J.
S. Johnson á Brú í Argyle-bygð. —
Brúðhjónin fóru í skemtiferð til
Kandahar og setjast svo aö i Cypress
River.
Sama blað getur þess að Mrs. Arni
Sveinsson óg Anna dóttir henn-
ar hafi farið fyrra laugardag til
Winnipeg á leiö til Edmonton aö
heimsækja Mrs. Hallgrímsson dóttur
þeirra Sveinsson hjóna. Segir blaðiö
að Mrs. Sveinsson muni dvelja þar
vestra í mánuö, en Miss Sveinsson
veröi þar i sumar og hafi tekið þai
stööu sem “piano” leikari á Ieikhúsi.
“Minneota Mascot” getur þess aö
Martin Johnson frá Eidsvold og
Chrictine Westdal frá Swede Prairie
hafi verið gefin saman í hjónaband
6. þ. m. Vér getum þess til samkvæmt
nöfnununt aö þessi hjón séu íslenzk.
Tómas Björnsson frá Geysi og
Vilberg sonur hans komu til bæjarins
á mánudaginn og fóru heim samdæg-
urs. Þeir feðgar sögöu allar beztu
fréttir; mönnum líður vel yfirleitt.
Rjómabú þeirra bygðarbúa gengur
ágæflega og er bænum til ntikils
hagrraðar.
Nú er prentuð hin nýja mynd Þ.
Þ. Þorsteinssonar af Vilhjálmi
Stefánssyni og fæst seld eða í skift,
um hjá útsölumönnum og höfundi.
Þiö muniö eftir því aö hann á heima
aö 732 McGee St., Winnipeg
Þrír landar eru særðir í stríðinu:
Siguröur Finnbogason og O. Finn-
bogason, bróöir og bróðursonur
Guttorms Finnbogasonar kaupmanns
S. Stephenson frá Piney, Man. og
Þóröur sonur Jóns Þórðarsonar frá
Langruth er sagöur fallinn.
Yfirgefur Bordenstjórnina.
Ríkisritarinn í Canada E. L.
Pantenaude hefir sagt sig úr ráöa-
neyti Bordens sökum þess aö hann er
á móti herskyldufrumvarpinu.
RJ0MI
SŒTUR 0G SÖR
KEYPTUR
Vér borgum undantekning-
arlauat hæsta verð. Flutninga-
brúsar lagðir til fyrir heildsölu-
verð.
Fljót afgreiðsla, góð skil og
kurteis framkoma er trygð með
því að verzla við
D0MINI0N CREAMERY C0MPANY,
ASHERN, MAN. og BRAND0N, MAN.
SJÓÐIÐ MATINN VIÐ GAS
Ef gaspípur er í strætinu þar sem þér búið
þá léggjum vér pípur inn að landeigninni,
án endurgjalds. Frá gangstéttinni og inn
í kjallarann setjum vér 25c fyrir fetið. Lát-
ið oss hafa pantanir yðar snemma,
GAS STOVE DEPARTMENT, Winnipeg Electric Railway Co.,
322 Main Street, - Tals. Main 2522
“Baldur Gazettie” getur þess 14.
þ. m. að Mrs. Walter Fredeirckson
sá nýkomin heim þangað frá Winni-
peg, þar sem hún hafi verið skorin
upp, og' liði henni vel.
Rósa Magnússon héðan úr bænum
for út til Baldur í vikunni sem leiö
aö finna kunningja sina.
J. Jóhannesson frá Baldur hefir
fengið lausn úr 223. herdeildinnl og
11 kominn heim, eftir því sem Baldur
Gazette segir.
“Wynyard Advance” segir frá því
aö þau V. B. Hallgrímsson og Lára
kona hans, nýgiftu hjónin, sem getið
var um i síðasta blaði, hafi fariö
giftingarferö til stórbæjanna í fylk-
inu. Blaðiö segir að þau J. P.
Eyjólfsson og kona hans, Rúna
Eyjólfsson, Sigfús Hallgrímsson og
Gísli Benediktsson hafi fariö í bif-
reið til Sastkatoon og mætt þar ungu
hjónunum.
Sama blað getur þess að Johann
Reykdal, 74 ára gamalmenni, hafi
látist aö Kandahar 12. þ. m. af
lungnabólgu. Hann lætur eftir sig
einn son, Jón A. Reykdal, sem heima
á í Kandahar-bygðinni. Séra Jakob
Kristinsson jarðsöng hinn látna þann
14. þ. m.
Eins og auglýst var í síðasta blaöi,
heldur Miss Friðrikson samkomu
með nemendum sínum. Fimtudags-
kvöld, 21. júní, í Ý.W.C.A., Ellice Av.
Aðstoöendur veröa Miss Morrison
meö framsögn, Miss E. Thorvaldson
og Mr. A. T. Dahl meö einsöngva.
Fólk er beðið að athuga að samkom-
an byrjar kl. 8.15. Samskot tekin
viö dyrnar til að standa kostnað af
samkomunni.
“Tvær gamlar sögur” eftir Jón
Trausta, eru. nýjar sögur, sem aldrei
hafa komiö vestur fyr. Fást hjá H.
Gíslasyn', 506 Newton St., Elmwood.
ísrjómasala og kaffisala fer fram
í Tjaldbúðarkirkjunni á fimtudags-
kveldiö (\ kveld) 21. þ. m. Þar verö-
ur einnig dregiö um vandaöa sessu.
Þangaö ættu sem flestir að koma.
Mrs. N. Snæ'dal og Valgerður Er-
lendsson, báöar frá Reykjavíkur-
bygö, komu hingaö til bæjarins fyrra
miövikudag og fórtt heim aftur á
laugardaginn.
Afskapa kuldar vortt hér fyrri
hluta síðustu viku. Einn daginn var
svo kalt aö snjór kom úr lofti, þó
hann þiönaöi jafnótt og niður kom.
Páll Guðnason frá Baldur fór
noröur til Gimli fyrra þriðjudag og
kom þaðan aftur á fimtudaginn.
Sama blað getur þess 14. þ. m. aö
íslendingur i Wynyard hafi verið
tekinn fastur fyrir vínsölu; veröi
hann sannur aö sök bíöur hans bæöi
sekt og fangelsi, því lögin í Saskat-
chewan gera sig ekki ánægö meö
sekt einungis fyrir vínbannsbrot.
Mrs. Eyv’ör Sigurðsson frá Reykja-
víkur-bvgö, ekkja Guðmundar sál.
Siguiðssonar, kom hingað til bæjar-
ins fyrra miðvikudag ásamt Margréti
dóttur sinni. Þær fóru norður til
Selkirk á mánudaginn, komu þaöan
aftur á föstudaginn og fóru heim á
laugardaginn.
Jóhanna Jónasson og Kristín Jóel-
son héöan úr bænum fóru vestur til
Vatnabygöa á föstudaginn og dvelja
þar um tima.
SUMAR-FERÐALAG YÐAR
ÆTTI AÐ VERA MEÐ CANADIAN NORTHERN
VESTUR AD HAFI
Sérstakar sumarferðir til
VANCOUVER, VICTORIA, NEW WESTMINSTER, SEATTUE,
PORTDAND, SAN FRANCISCO, LOS ANGEUES, SAN DIEGO
Til sölu frá $5. júní til 30. september.
G6S til afturkomu til 31. okt. Leyft a8 standa viS á leiðinni.
Sérstakar ferCir
North Pacific Coast Points
25., 27., og 30. JúnlFl. og 6. Júll.
Til A U S T U R
Sérstakar feríir
Jasper Park og Mt. Robson
15. maí til 30. september.
C A N A D A
Fram og til baka 60 (laga. — Suniarferðir.
FerCir frá 1. júnl til 30. September.
Lestir lýstar meS rafmagni — ásamt meS útsjönarvögnum
þegar fariö er I gegn um fjöllin og frá Winnipeg til Toronto.
Svefnvagnar og feríamanna vagnar.
B6k sem gefur nákvæmar upplýsingar fæst hjá C.N.R. íarbréfa-
sala, eSa hjá
R. Greelman, G.P.A. W. Stapleton, D.P.A. J. Madill, D.P.A.
Winnipeg, Man. Saskatoon, Sask. Edmonton, Alta
The Manitoba Farm Loans
Association
borgar
4%
Sunnudagaskóli TjaldMðar heldur
sitt árlega “Picnic” á Laugardaginn
23. Júní n.k. i Kildonan Park. Fariö
verður frá kirkjunni kl. 1.30 og
veröa allir þeir aö vera komnir fyrir
þann tíma sem ætla sér að ná í sér-
stakan sporvagn sem flytur fólkið
alla leiö.
Mrs. S. Jóelson fór vestur ti!
Churchbridge í vikunni sem leiö með
börnum sínum og dvelur þar um
tíma.
Fulltrúar til kirkjuþings frá Winni-
peg voru þessir: J. J. Vopni, Halldór
Metusalemsson, Guöjón Ingimundar-
son, J. J. Bildfell, Mrs. Thorst. Odd-
son og Mrs. J. Johnson.
Séra Rúnólfur Marteinsson kom
hingað af kirkjuþinginu á þriöjudag-
inn; kom á undan hinum vegna skóla-
prófanna.
ísl. Únítara sofnuðurinn hér í bæn-
um hefir nýlega kosiö nefnd til að
standa fyrir samskotum til hjálpar
nauölíöandi börnum í Litlu Asíu—
Armeníu, Sýrlandi og Grikklandi. 1
nefndinni eru: Björn Pétursson, Mrs.
Ingibjörg Goodman. Sæmundur Borg-
fjörö, Mrs. Elizabet Seymour, Miss
Hlaðgerðtir Kristjánson, Miss Guö-
rún Goodman, Miss Maria Johnson.
Samanburður.
Blööin segja Jón Jónsson frá ís-
landi særöan í stríöinu; vér vitum
ekki hver hann er.
Björn Walterson frá Argyle kom
hingað fyrir helgina; v'ar hann aö
mæta Joseph bróöur sinum frá Edin-
borg, sem kom hingað noröur fyrra
miðvikudag ásamt konu sinni. Hún
fór vestur til Argyle, en þeir bræöur
lögöu af staö vestur til Vatnabygöa
á laugardaginn og dvelja þar nokkra
daga hjá vinum og frændfólki.»
Skemtisamkomu f'picinicj á að
halda í Riverton 2. júlí næstkomandi
til arös fyrir Rattöa kross félagið.
Fara þar ffam alls konar skemtanir
og Riverton lúðraflokkurinn leikur.
Skuldir vesturfylkjanna fjögra á
hvert höfuö eru eins og hér segir:
Saskatchewan .'.$30.00
Manitoba
Alberta . . 44.00
British Columhia
Langlægst í Saskatchewan.
Séra W. MacDonald látinn.
Stjórnari Montrealbankans Sir
WiIIiam Christopher MacDonald,
ráðsmaður McGiIl háskólans andaö-
ist 9. júní í Montreal 86 ára aö aldri.
Hann var bæði einn hinna mestu
fjárrfiálamanna í Canada og frábær
mentamaöur.
Tvö góö herbergi á fyrsta gólfi
meö eldavél og borði. stóhim o. fl.
og aðgang að borðstofu, fæst leigu-
laust gegn því aö litiö sé eftir húsinu.
Ný saumavél til notkunar, ef ábyrgst
er aö hún skemmist ekki. Sömuleiö-
is hús til leigu.
KENNARA VANTAR
viö geysir skóla nr. 776, fyrir átta
mánuöi. Kenslutímabil frá 1. sept.
1917 til 31. des., og frá 1. marz 1918
til 30. júní.
Nú hefir Hjálmar Gíslason aö 506
Newton Ave. í Elmwood fengið ljóða-
bók Hannesar Hafsteins, sögur Jóns
Trausta og nýjustu bók Einars Hiör-
leifssonar til útsölu.
T. E. Thorsteinsson, ráösmaöur
viö útibú Northern Crown bankans á
horninu á WiIIiam Ave. og Sher-
brooke St., Winnipeg, biöur þess
getið aö hann veröi aö ölltt forfalla-
lausu staddur á Lundar, Man. miö-
vikudaginn 27. júnt, og geti menn séð
hann þar bæöi viövíkjandi peninga-
lánum og til aö byrja verzlunar- eöa
sparispóös reikninga við þaö útibú
bankans, sem hann er fyrir.
/ RauSa kross sjóð.
Sig. Gíslason, 640 Agnes St. . .$5.00
/ Belgxu sjóðurinn.
Aröur af samkomu, sem kv’en-
félagiö “Tilraun” hélt í Þing-
vallanýlendunni .. ... .. ..$140.00
Tilboðum sem óskaö er eftir og til
greini kaup, mentastig og æfingu
verður veitt móttaka af undirrituöum
til 14. júlí 1917.
Th. J. Pálsson, Sec.-Treas.
Árborg, Man.
ATHUGIÐ!
Smáauglýslngar i blaðið verða
alls ekki teknar framvegis nema
því aðeins að borgun fylgj. Vepð
er 35 cent fyrir hvern þumlung
dálkslengdar > hvert sklftl. Engin
auglýsing tekin fyrir minna en 25
cents í hvert sklfti sem hún birtist,
Rn'fum meS smáauglýsingrum, scm
borgun fylgir ekki verður alls ekkl
sint.
Andlátsfregnir eru blrtar án end-
urgjalds undir elns og þær berast
blaðinu, en æfiminnlngar og erfi-
ljóð verða alls ekkl birt nema borg-
un fylgi með, sem svarar 15 œnt-
um fyrir hvern þumhmg dálks-
lengdar.
Hvcrt sem þú hefir peninga þína á vöxtum einn daga eða
heilt ár. Og bjóða þessutan
5%
” FO O D“ BONDS
í stærri og smærri upphæðum og eins lengi og hverjum
einum hentar.
Er undir ábyrgð MANITOBA FYLKIS
Skri.ið eftir bækling sem gefur nákvæmar upplýsingar
The Manitoba Farm Loans Association
Skrifstofa: Scott Block, 274 Main Street, Winnipeg
John — Thorarinn — Joseph
Manitoba Dairy Lunch
Cor. Main og Market St.
Á hvetrjum degi er hægt aö fá
máltíðir hjá oss eins og hér segir:
Special Lunch frá kl. 12 til kl. 2 e,h.
og Special Dinner frá kl. 5 til kl.
7.30 e.h. Þetta eru máltíöir af
beztu tegund og seldar sanngjörnu
veröi. Komiö Landar.
I. Einarsson
Járnbrautir, bankar, fjármála
stofnanir brúka vel æfða að-
stoðarmenn, sem ætíð má fá hjá
DOMINION BUSINESS COLLEGE
352)4 Portase Ave.—Eatons megin
Heimilis þvottur
8c. pnndið
Allur sléttur þvottur [er járndreg-
inn._Ann»S er þurkaðog búið und-
ir járndregningu. Þér finnið það út
að þetta er mjög heppileg aðferð til
þesa að þvo það sem þarf frá heim-
ilinu.
Tals Garry 400
Rumford Laundry
ú___________________________j
J. F. Maclennan & Co.
333 William Ave. Winnipeg
Sendið oss smjör og egg yðar
Hæsta verð borgað. Vérkaup-
um svínskrokka, fugla, jarðepli
Tals. G. 3786
Lightfoot Transfer Co.
Húsbúnaður og Piano
flutt af mönnum sem
vanir eru því verki.
Tals. Garry 5071 544 Elgin Ave.
William Avenue Garage
AllskoBar aðgarðir á Ðifreiðum
Dominion Tires, Goodyear, Dun-
löp og Maltease Cross og Tubes.
Alt verk ábyrgst og væntum eftir
verkiyðar.
363 William Ave., Wpeg, Ph. G. 3441
KRABBI LÆKNAÐUR
TRYGGING
Storage & Warehouse Co., Ltd.
Flytja og geyma húsbúnað. Vér búum
utan um Pianos, húsmuni ef æskt er.
Talsími Sherbr. 3620
R. D. EVANS
sá er fann upp hið fræga Ev-
ans krabbalækningalyf, óskar
eftir að allir sem þjástaf krabba
skrifi honum. Lækningin eyð-
ir innvortis og útvortis krabba.
R. D. EVANS, Brandon, Man.
ÞesSi mynd er af þreinur ungum
og efnilegum mönnum, sem innrit-
nöust i 184. herdeildina héöan úr
Browne-bygðinni í marz 1916 og fórt.
með þeirri deild yfir hafiö. Nöfn
þeirra eru: Joseph og John Nicklin
bræður, og Þórarinn Hjaltdal, allir
sérlega vel kyntir.
Fallinn.
Sú sorglega frétt hefir borist aö
Joseph Nicklin heföi falliÖ 9. apríl
i stóra slagnum v’iö Vimy hæðina.
Joseph sál. er fæddur 29. nóv. 1894
í Norður Dakota, en flutti ásamt for-
elclrum sínum barn til Manitoba og
hefir dvalið þar síöan. Foreldrar
Lhans eru þau hjónin Andrew Nicklin,
maöur af skozkum ættum og Vilhelm-
ina Jónatansdóttir Jónatanssonar Lin-
dal frá Miöhópi í Húnavatnssýslu,
sem býr t íslenzku bygöinni, nálægt
Morden, Man.
Joseph sál. var elztur af 11 syst-
kinum og er nú sárt saknað af for-
eldrum og systkynum, sem eru til
heimilis í bænum Morden. Joseph sál.
átti margt frændfólk í þessari bygö,
sem alt saknar hans; líka hafði hann
unnið sér vináttu allra Islendinga hér,
sem kyntust honum, því hann var
í alla staöi vandaður og góöur piltur.
Innilega hluttekningu vottum viö
foreldrunum og hinum mörgu syst-
kinum oé biöjum guö aö gefa þeim
hinn soninn heim aftur heilan heilsu.
Vintr.
G0FINE & Co.
Tais. M. 3208. — 322-332 ElUoe Ave.
Horninu & Hargrave.
Verzla meS og virSa brúkaSa hús-
muni, eldstór og ofna. — Vér kaup-
um, seljum og skiftum á öllu sem er
nokkurs virBi.
BIFREIÐAR “TIRES”
Goodyear og Dominion Tires ætlS
& reiSum höndum: Getum út-
vegaS hvaSa tegu*d sem þér
Þarfnist.
ASgerðir og “Vulcanizlng” sér-
stakur gaumur gefiun.
Battery aSgerSir og bifreiSar til-
búnar til reynslu, geimdar
og þvegnar.
AUTO TIRE VUUCANIZING CO.
309 Cuinberland Ave.
Tals. Garry 2767. OpiS dag og nótt
Verkstoíu Tals.: Heim. Tnis :
Garry 2154 Garry 294»
G. L. Stephenson
Plumber
AUskonar rafmagnsáhöld, svo sem
straujáma víra, allar tegnndir aí
glösum og aflvaka (batteris).
VINNUSTDFA: 676 HDME STREET
VEDECO '>Siles*ur
—------------------- kvikindi, selt á
50o, l.OO, 1.50, 2.50 gallonan
VLDECO ROACH FOOD I5c, 25cog 60ckanna
Góður árangur ábyrgstur
Vermin Destroying & Chemical Co.
836 Ingersol St. Tais. Si\erbr. 1285
Mrs, Wardale
643] Logan Ave. - Winnipeg
Brúkuð föt keypt og seld eða
þeim skift.
Talsími G. 2355
Geriö vo vel að nefna þessa augl.
CASKIES
285 Edmonton St. Tals. M. 2015
Látið líta eftir loðskinna
fötum yðar tafarlaust áður
en þér leggið þau afsíði*
til geymslu. Látið það
ekki bregðast, -það sparar
yður dollara.
Nefnið þessa auglýsing
Þúsundföld þægindi
KOL og VIDUR
Thos. Jackson & Sons
Skrifstofa .. . . 370 Colony St.
Talsími Sherb. 62 og 64
Vestur Yards.....Wall St.
Tals. Sbr. 63
Fort Rouge Yard . . í Ft. Rouge
Tals. Ft. R. 1615
Elmwood Yartl .. . . í Elmwood
Tals. St. John 498
HÚÐIR, LOÐSKINN
BEZTA VERÐ BORGAR
W. B0URKE & C0.
Pacific Ave., Brandon
Garfar ikinn Gerir við loðskinn
Býr til feldi
Sanol
Eina áreiöanlega lækningin við syk-
ursýki, nýrnaveiki, gallsteinuni, nýrna
steinum í blöörunni.
Komið og sjáiö viöurkenningar frá
samborgurum yöar.
Selt í öllum lyfjabúðum.
SANOL CO.
614 Portage Ave.
Talsími Sher. 6029.
J. H. M. CARSON
Býr til
Ailskonar limi fyrir fatlaða menn,
cinnig kviðsiltsumbúðlr o. fl.
Talsími: Sh. 2048.
338 COUONY ST. — WINNIPEG.
/■"'............... *
H. W. C0LQUH0UN
Kjöt og Fisksalar
Nýr fiskurá reiðum höndum
beint sendur til vor frá
ströndinni.
741 Ellice Ave. Tal.S. 2090
-
VÉR KAtrPUM OG SEUJUM,
lelgjum og skiftum ft. myndavélum.
Myndir stækkaSar og alt, sem
tll mynda þarf, höfum vér. SendiS
efUr verSlista.
Manitoba Photo Supply Co., Utd.
336 Smith St., Winnipeg, Man.