Lögberg - 27.12.1917, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. DESEMBER 1917
7
Stúlkan brjóstveika
~T~
AS hætta 'sér á höf og fjöll,
er hugumstórum gott,
og þola bæöi 'þtirt og vott
og þreyta skeiöin öll.
Og viö þaö opnast veröldin
og vitnast þetta og hitt,
aö fara um lífsins langadal
og líta hvern viö sitt.
Þó endi gangan út viö mar,
er ekki aö hörfa frá;
um minninganna svalan sjá
er sólskin hér og þar.
Ef horft er niðtir i hafiö þaö
— í hugans innri sviö —
á djúpmiöunum dimmir aö
og drýgir straum og niö.
Á Hafiö þetta horfi eg nú,
og liugur víöa fer
v'iö andvökunnar undraljós,
sem Aladín gaf mér
um ekka þrungin andartök
t einrúminu því,
er 'gleymist alt sem manni er mætt,
svo minningin er ný.
Og æginiöur orra-storms,
sem alla daga hrín,
er dottinn niöur í dúnalogn,
unz dagrenningin skín.
Og dagsins önn, sem dvyiuö er
um dægurstundarskeið:
^au villa nú ei sólarsjón
af sinni kæru leið.
En stirt er mér um túngutak
og tregt um ljúfan hátt;
af Jjúsund rökum þungar brýr
um þessa hljóöu nátt.
Æ, komdu vina og hrestu hug
og hlúöu mínum þrótt,
úr djúpi insta dularheims
og dvel hjá mér í nótt.
Og mál er nú að minnast þin,
sem mér er einna bezt
af öllum þeim sem eru í mold
i endurminning fest. —
Við tíu ára stormi og strit
eg starði fram á haf,
á meðan þú í þinni sæng
í þagnarveldi svaf.
II.
Ag eiga ráö á eldi og sól
er eínstaklingum bezt;
en margur hlýtur kuldakjör
og klaka i æfinest.
— í meðalskapi er meiri snjór
og meiri is og hríö,
en Fjallkonan er orpin öll
á einni vetrartíð.
Og allur þessi ís og snjór
er ótal barna kjör;
þvi fæstum gefur sólarsýn
i sinni æskuför.
Og þaö er gróöri mesta mein
ef mai sverfur að;
en ekki er betra andans kal
ef æskan bíður þaö.
Frá vöggu þinni, unz vegi þraut,
þú varst að kaila ein,
og enginn að þér gætur gaf
né greip úr vegi stein.
Því eins og vant er innanlands:
j>ú áttir hvorki fé,
né ættingj.a með auð og völd,
sem aðstoð léti í té.
Um æsku ])innar öndverö spor
er ekki margorð sögn.
Um einyrkjann og alt hans fólk
er æ hin dýpsta þögn;
þvi skáldin kveöa sorgarsálm
og söxin henda tvenn
viö útför sérhvers efnamanns,
en ekki um snauða menn.
Og þá er ekki þar um rætt
í þjóðmenningarreit,
að gáfuö mær er alin upp
í örbirgö rétt viö sveit.
En oröa stirfinn Birkibeinn
fær boriö hennar skjöld,
sem hefir átt viö harðan kost
og hríðarélja völd.
‘K»r:
Eg veit og skil að þráin þín
var þungu oki háð.
Eg veit og hitt, að vizka þín
í vængi gat sér náð,
og lyft sér hærra en liklegt er,
um lítils bónda mey,
er vetrum prjónar sérhvert sinn
og sumrum rakar hey.
En ekki fékstu létta lund;
að líkum þetta varð,
því afskekt sál er eindregin
að eignar vörzlugarð,
og hJaða kringum sjáífa sig •
og sinnar eigu reit —
að hafa’ að námi huga sinn
og hyggja þar á leit.
Og mótdrægt alt sem mætti þér,
þú með þér geymdir ein,
og barst því fyrir brjósti þér,
frá bernsku, þungan stein.
Og þarna sötti alt af að
er árafjöldann jók
og einrúm þitt varð afhús læst,
sem opið mangi tók.
Að þjóðlegs anda þrá og siö
um þúsund strauma láö:
þú last }>að alt, sem íslenzk hönd
í afdal getur náö.
En þó að yröi þinni ment
að þessum hlutum bót,
}>ér varð það ekki aö v’opni í hönd
né verju, berklum mót.
Þvi einmitt þetta innilíf,
sem andann göfgað fær
og fóstrað liæstu og dýpstu dygö
og drengskap, fjær og nær:
það hristir vopn úr hendi manns,
að heyja snarpa vörn,
er hljóöur sækir hernám sitt
’inn harði sjúkdóms örn.
Unv rök til þess og dulin drög
að dauðinn gat þér náð,
er örlög höföu að þér krept,
er efa nokkrum háð;
en ef til vil! þín ástarþrá,
sem ávöxt neinn ei bar,
áð afdrifunum undirrót
og orsök dýpsta var.
Eg hef’ þar aö eins hugboð mitt,
því harm þinn barsíu ein.
Það mein, sem grefur aldrei út,
er oftast banavnein.
Svo djúpt er oft á duldri sorg
í dölum okkar lands,
að athyglinni yfir sést
og augum fjölda manns.
Þvi margur sá er háan hlær,
á harm í brjósti sér.
Og margur þögull sára sorg
i sinum huga ber. 1
Og harmi mörgum helzti lág
er himinlivelfing sú,
og grunt það dýpi ösku og elds,
sem á var barnatrú.
m.
Þú bygðir, mærin, háa höll,
sem hilti og fgurt skein.
Úr skýjum var sú bjarta borg;
þú bygðir hana ein.
Um sólarveldi sýni gott
af svölum hennar var;
og nægtalífi andlegs yls
var æfin helguð þar.
Og honum, sem að hjartað þitt
í hljóði bundið var,
var konung-dæmið ætlað alt
og yfirráðin þar.
Við logana, sem löngunin
þar lagði að og bjó,
— hann átti að sitja aftan hvern
i ástarsælu ró.
En konungurinn kom ei þar
og l<rýning varö ei nein.
1 hallargöngum þinnar þrár
var þitt aö ganga ein. —
1 brjósti þínu eldur óx,
sem enginn ræður viö.
Ef elnar logans undirrót,
þá eykst hans brunasvið.
IV.
Og eldur ]>essi óx því meir’
sem ástundun var beitt
og kröftum til að Jcæfa hann,
því kraftar tjóa ei neitt
aö bæla niður insta eld
og ástum vísa á bug;
það eyðileggur allan kjark
og yfirlit og dug.
En eins og gröfin þú varst þögJ.
Og þegar nóttin lá
á eggi sínu okkar jörð
með yfirrjáfrin blá,
þú áttir tal viö mána mög,
sem mjöllum yfir skein,
og ilæddist inn um lítinn glugg,
er lástu og vaktir ein.
Og baðst hann um: að bera þig
í bláinn — eitthvað langt,
í líknarhendur lausnarans,
sem læknar hjarta krankt.
En fyrir mána flóka dró
og faldi þinni sýn,
— og lét í órækt Ijóra þinn —
og lokuð sundin þín.
En þó varð stundum þér* í vild
hin þögla, dimma nótt,
er augu gaf þér undra skygn,
og ærin vængja þrótt. —
í vöku-leiöslu og drauma-dul
þú dvaldir fyrir þér,
er digurbarki drjúgum hraut
og draumlaus velti sér.
Á sumarkvöldin saztu oft
við sjáv'armáliö ein
og augum leiddir öldusog
viö ægi-l>arinn stein. —
Og jörð og himinn urðu eitt
hjá endimörkum dags,
er rökkvi kvöldsins vestur vék
að viðum sólarlags.
Á haustnóttum þú horfðir enn
á hafiö kvöldin öll.
Og sjóinn baðst að sækja þig
í sina kristalshöll. —
En enginn kom, og ein þú sazt
viö Ægismeyja gráð.
og fjöllin uröu fönnum rend
og foldin mjölium stráð. -■
V.
Þaö vildi til á vxtrartíð,
i veðra skyndi-gjóst,
að veiki þín kom loks í ljós
og leið þér fyrir brjóst;
ér setiö haföi sína tíð
við sinn hinn dula keip.
i einni svipan á þér vann
og yfirtökin greip.
Og vetrarnepjan fór um fold
að færa sanninn heirn,
og bláan fölva bar til þín
og býtti höndum tveim.
En merkin þau á magri liönd
og munniun kringum sá,
og ennþá mest á enni og hlýr
og undir dökkri brá.
%
Og þessi merki sástu sjálf,
þú sást ’inn harða leik:
að lff þitt v'arð sem litiö skar
—sem litið skar á kveik.
Og hryglan varð þér hörð og sár
og hörð þin andartök.
Og hjartað átti vörn í vök,
og vonin: gömul tár.
Þó flýgi bylur fjalla leið
og færi um dalsins lönd,
í hugskotinu lifði ljós
og lýsti þinni önd,
er andvakan var örðug þér,
sem ein í myrkri lást.
Og Iítið var það ljós á vöxt,
en lifði og eigi brást.
Um þúsund ára þrautatið
við þinna mæðra barm
var blysið þetta ljósa ljós
i lýðsins gleði’ og harm:
Við ömmu þinnar kreptu kné
þú kendir lióssins yl
og erfðir það úr hennar hönd
er hún fór sinna til.
Á augnablikum leiðslu-lifs
er lengst og næmast séð,
i.myrkrið dýpst, í ljósiö lengst
írá lægsta kramarbeð. f
Og geisla-merlað gerist þá
hið grimuskygða torg,
og þá er margt í koti karls,
sem kongs er ekki í borg.
A draumavængjum dáleidd sál
í dularheiminn fer.
Og sælan hennar er þar öll,
sem augað neitt ei sér;
þar lifir von hins veika manns,
á vængjum flögrar hún
ur dauðans-myrkvu dala þröng
— úr dimmu morgunbrún.
VI.
Sá 'langi vetur liðin er.
Eg lít þig hverja stund
í þinni frónsku sjúkdómssæng
í svefni og dvala blund.
Og vökudægrin v'erða mér,
að vonum, minnisstæð,
og augna þinna eintal hvert
frá efstu sjónarhæð.
En vorið kom með vinda hreim
og vatnastrengja fjöld,
og árnar kváðu indæl lög,
frá óttu, fram á kvöld.
Um allar nætur ymur dátt
í eyrum niður sá
og hrifur hvern, sem hlusta vill,
og heyrnarskynju á.
Og fjöllin urðu geira-græn,
og gróin hlíðin öll.
Og lóan æfði sönginn sinn
í. sólarljóssins liöll.
I>á langar þann, sem liggur, út
] í lífsins morgundögg,
| þó dauðinn berji að dyrum lians
sín drungalegu högg.
Er sunna tók að gera gull
úr gráum jökulham,
hún sendi, beint frá sólargrunn,
úr suðri: bláa ull.
Og unnin vóru úr efni þvi
af allra handa þrám
hin vænstu klæði, er verða sén
með vefjartyglum blám.
í ljósmóðunni landið hló,
í lofti tvíbrá kvik,
og hillingarnar hófu sig
um haísins spegilblik.
Um alla dali elfur rann,
við elda sumardags
að ægi blám, frá óttu stund,
og alt til sólarlags.
En þú varst sjúk á þínum beð,
og þreyttir Iangvint strið,
er blómin gréru og sv'anur' söng
og sólin skein í hlíð.
Og áin rann og elfur kvað,
og eyna hilti úr sæ.
En þú varst nærri liðið lik
í lágum moldarbæ.
%
í þúsund greinum lífið lék
í ljósi, er vermdi og skein.
í þrætu bendu þjóðin sat,
en þú varst svo sem ein.
Og alt varð loft í aftanglóð,
og eyna hilti úr sæ.
En þú varst alveg liðið lík
i litlum moldarbæ.
Á sólmánuði sá eg þig
i svefni, fölva rós,
þá glóði við þér geisli sá,
er gefur “meira ljós”, —
er gefur von um lengra ljés,
en lífið getur veitt,
í þokubygðum þrætuheims
og þýðir varla neitt.
Þú varst að deyja árið alt
— nei, ár að lifna við!
og auka’ að göfgi anda þinn
og innra lífsins frið.
Eg græt það ei, né gremst af því
að gröfin heimti sitt,
þvi orðin varstu öll að sál
við endadægur þitt.
VII.
Þú minnir á hinn særðan svan,
er syngur ekki neitt.
En tiguleiknum er þó ei
né íturvexti breytt.
Ef banasending hefir hitt
’inn hvíta fugl sem snjá,
’ann beygir fram sinn hvíta háls
og hnígur svo í dá.
Með breidda vængi’ á báruflöt
hann bíður dauða sinn
og kvakar að eins klökkri rödd
að kæra skotvarginn.
En engi veit hvort hefir heyrst
til himins ykkar neyð,
þvi upp til guðs er örðug för
og engin simaleið.
Þú mæltir varla æðru orð,
er itm þig feigðin bjó,
og hélzt þér fram að hinztu stund
sem hrísla undir snjó,
en næfra sina á þó enn
og alt isitt greinafax,
en skortir stöðu, brum og bar
og blóma sitmardags.
í voru landi verður það,
sem vonin þevgi kýs:
að vorgróðurinn visnar oft
í veðra gjósti’ og ís;
þvi ónærgætin er að sjá
vor allra hæsta stjórn,
og tekur því hinn mæta mann
og margra dýra fórn.
VIII.
Með þöglum v’örum, hcitum hug
eg hugsa oft til þin —
uni æsku þína, örbirgð, neyð,
og andlát, v’kia mín!
En liðin er sú þunga þraut,
er þig til grafar bjó,
cg voðalegan veg þú barst
nteð veikum kröftum þó.
t þinni fátækt þú varst rík;
í þyngstu sjúkdómssönn
hver hugsun þín var heit og skir
og há og djúp og sönn.
Af Bragaguili og sagnaseint
var sál þín efnuð vel;
i æfintýra undra sæ
TAROLEMA lœknar EGZEMA
GylliniæS, geitur, útbrot, Kring-
orm. kláða ög aðra húðsjúkdóma
Læknar hösuðskóf og varnar hár-
fallii. 50c. hjá ölium lyfsölum.
GLARK CHEMICAL GO.,
309 Somerset Block, Wlnnipeg
Umboðsmenn Lögbergs.
Jón Pétursson, Gimli Man.
Albert Oliver, Grund, Man.
F. S. Fridreckson, Glenboro, Man.
S. Maxon, Selkirk, Man.
S. Einarson, Lundar, Man.
D. Valdimarson, Wild Oak, Man.
Th. Gíslason, Brown. Man. '
Kr. Páturson, Haylánd, Man.
Oliver Johnson, Winnipegosis, Man
A. J. Skagfeld, Hove, Man.
Joseph Davidson, Baldur, Man.
J. A. Vopni, Swan Rive, Man.
Björn Lindal, Markland, Man.
Sv. Loptson, Churchbridge, Sask.
A. A. Johnson, Mozart, Sask.
T. Steinson, Kandahar, Sask.
Stefán Jónsosn, Wynyard, Sask.
G. F. Gíslason, Elfros, Sask.
Jón Ólafson, Leslie, Sask.
Jónas Samson, Kristnes, Sask.
Guðm. Johnson, Foam Lake, Sask.
C. Pálson, Gerald, Sask.
Guðbr. Erlendson, Hallson, N -Dak.
Jónas S. Bergman, Gardar, N.-Dak.
Sigurður Jónsson. Bantry, N.-Dak.
Olafr Einarson, Milton, N.-Dak.
G. Leifur, Pembina, N.-Dak.
K. S. Askdal, Minneota, Minn.
F. X. Frederickson, Edmonton, Alta
’O. Sigurðson, Red Deer, Alta
H. Thorlakson, Seattle, Wash.
Thorgeir Simonarson, Blaine, Wash.
S. J. Mýrdal, Pt. Roberts, Wash.
J. Ásgeir J. Lindal, Victoria, B.C.
Silvur PLATE-O fágun
Silfurpekur um leið.
Lætur silfur 4 muni, í stað þess að
nudda það af. paC lagfærir alla núna
blettl.
Notaðu það 4 nikkel hlutina 4
bifreiB þinni.
Litlir 4 50 cent Stórir 4 80 cent
Winnipeg Silver Plate Oo., Ltd.
136 Rupert Street.
þú áttir perlu skel.
Þú áttir lífsins æðstu þrár
í innilegri sál.
Og sjón og heyrr. var þannig þín,
að þýddir huliðs mál.
Þú áttir vin — sem aldrei fékk
af ástum þínum blæ,
þó veðrin kendi ýms og ill
af úfnum tímans sæ.
En svo fór það: að sástu djúpt
í sorga undirheim.
Og útsýn þín var oftast nær
um okkhr hulda geim.
í harma þinna djúpadal
þú dvaldir marga stund,
og sár þitt varð, ef sé eg rétt,
að sjávardjúpri und.
Eg fylgdi þér á fremstu nöf
i fjaðralausum hjúp,
cg fótum stakk í fjörumál
við fal'ins tima djúp.
Og eilíf þögnin að þér laut
við aftanroða glóð,
og byrgði þig í barmi sér.
Hún ber þig nú í sjóð.
IX.
Þö vöngurn sínum vtelti jörð
og verði stundum dimt
og birti aftur, brosi sól
og blási siðan grimt,
þó ýmsu viðri út í frá
og ýmsu blási ’um mig:
úr mínum huga máist ei
hið minsta orð um þig.
Við sáumst, þegar sólin gekk
úr súðri út í haf,
og aftanroði eldi brá
í yzta skýjatraf.
og þú varst eins og sólin sjálf
um sumars dýrðar kveld,
en undir gömlum héluham
eg huldi sjálfs mín eld.
4fr
Og önnum var eg orpinn þá,
með eirulausan fót,
að elta skugga alla leið
í yztu dægra mót.
A morgunbjarma mændi’ eg þó;
en mér var gangan treg
um aftanroða og óttu lönd
og áfram sólarveg.
Á krossgötum eg kyntist þér;
eg kom og leit á þig;
úr þínum augum þagnarmál
eS þýddi, fyrir mig.
En ástin þín var eins og guð:
sem andi dulin svn.
Og eg var þöguU alveg eins;
eri yrki nú til þín.
Þú horfðir á mig dul og djúp,
og drógst þig svo í hlé,
og byrgðir hjartans þrá með þögn,
unz þú í valinn hné.
Og árutn saman einn var eg
með ærið veilum móð,
en kem nú loks með krans til þín
og kveð þér — erfiljóð.
Og andblær mjúkur einmitt nú
í andlit kemur mér,
sem að mér lúti einhver sál,
sem ástúð til mín ber.
Á götur þær sem liggja lengst V
í ljósið vorri sál,
eg hofi nú um hljóða nótt,
og hlusta, — en brestur mál.
X.
í dái liggur vilji vor,
en v'aknar stundum skjótt;
i viðburðunum viðrar sig
og vakir dag og nótt.
V’ið tíu ára drauma djúp
eg dvel nú fyrir mér.
Með veikum burðum stend á strönd
og stari — eftir þér.
1906—10.
Guðm. Friðjónsson.
—Skirnir
The Seymour House
John Baird, Eigandi
Heitt og kalt vaín í öllum herbergjum
Fæði $2 og S2.50 i dag. Americ-
an Plan.
Tals. G. 2242.
Winnipeg
ALVEG NÝ og
UNDRAVERÐ
UPPFUNDING
Eftir 10 4ra erfitSi og tilraunir
hefir Próf. D. Motturas fundiS upp
meðal búitS til sem 4bur8, sem hann
4byrgist aS lækni allra verstu tilfelli
af hinni .ægilegu.
Dr. R. L. HURST,
Member of Royal Coll. of Surgeons,
Eng., útskrlfaSur af Royal College of
Physicians, London. SérfrætSlngur 1
brjóst- tauga- og kven-sjúkdómum.
—Skrifst. 305 Kennedy Bldg, Portage
Ave. (4 móti Baton’s). Tals. M. 814.
Helmili M. 2696. Ttmi til viStals:
kl. 2—5 og 7—8 e.h.
G I G T
og svo ódýrt aS allir geta keypt.
Hvers vegna skyldu menn vera aS
borga Iæknishj41p og ferSir i sérstakt
loftslag, þegar þeir geta fengiS lækn-
ingu heima hj4 sér. þaS bregst al-
drei og læknar tafarlaust.
Verð Sl.00 giasið.
Póstgjald og herskattur 15 cent
þess utan.
Einkaútsólumenn
M0TTURAS LINIMENT Co.
WINNIPEG
P.O. Box 1424
Dept. 9
JOSIE & McLEOD
Gera við vatns og hitavélar
í|húsum. Fljót afgreiðsla.
353 Notre Dame ' Tais. G. 4921
Meiri þörf fyrir
Hraðritara og Bókhaldara
J?að er alt of lítið af vel
færu skrifstofufólki hér í
Winnipeg. — peir sem hafa
útskrifast frá The Success
Business College eru ætíð
látnir setja fyrir. •— Suc-
cess er sá stærsti og áreið-
anlegasti; hann æfir fleira
námsfólk en allir aðrir skól-
ar af því tagi til samans,
hefir tíu útibú og kennir
yfir 5,000 stúdentum ár-
lega, hefir aðeins vel færa.
og kurteisa kennara. Kom-
,ið hvenær sem er. Skrifið
eftir upplýsingum
SUCCfSS BUSINESS COLLEGE
LIMITED
WINNIPEG, MAN.
Tals. M. 1738 Skrifstofutími:
Heimasimi Sh. 3037 9f.h. tilóe.h
CHARLE6 KREGER
FÓTA-SÉlRFRÆÐINGUR(Eftirm.Lennox)
Tafartaus lækning á hornum, keppum ^og
innvaxandi nöglum. Hraðnudd og fleira.
Suits 2 StobartBI 190 Portaga ^ve., Wimjipag
Whaleyi blóðbyggjandi
lyf
Voríö er komið; um það leyti er
altaf áríðandi að vernda og styrkja
líkamann svo hann geti staðið gegn
sjúkdómum. Það verður bezt gert
með því að byggja upp blóðið.
Whaleys blóðbyggjándi meöal gérir
það.
Whaleys lyfjabúð
Horni Sargent Ave. og Agnes St.
HVAÐ sem þér kynnuð' að kaupa
af húsbúnaði, þá er hægt að
semja við okkur, hvort heldur
fyrir PENINGA OT 1 HÖND eða að
LANI. Vér höfum ALT sem til
húshúnaðar þarf. Komið og skoðið
0VER-LAND
HOUSE FURNISHING Co. Ltd.
580 Main St., hotni Alexander Ave.
Williams & Lee
Reiðhjól og bifhjóla stykki og á-
höld. Allskonar viðgeröir.
Bifreiðar skoðaðar og endurnýjað-
ar. Skautar skerptir og búnir til
eftir máli. Alt verk gert með sann
gjömu verði.
764 Sherbrooke St. Hopoi Notre Oame
Wm. H. McPherson,
Uppboðshaldari og
Virðingamaður . .
Selur viðuppboð Landbúnaðaráhöld. a.s-
konar verzlunarvörur, húsbúnað og fleira.
26* Smith St Tals. M.1781
Dr. B. J. BRANDSON Office: Cor. Sherbrooke & Wiliiam ' TKI.KPHONK GARSV 8*0 ! OrricB-Tf-MAit: a—3 H«lmili: 776 Victor St. Tklbphokk oarrv 8*1 Winnipeg, Man.
Vér leggjutr. sérstaka áherzlu 4 aS j selja meðöl eftir forskriftum lækna. i Hin beztu lyf, sem hægt er aS fé. eru notuB eingöngu. þegar þér komiS meS forskriftina tíl vor, megiS þér j vera viss um aS f4 rétt þaS sem j læknirinn tekur tll. COLCLECGU A CO. Notre Datne Ave. og Sherbrooke St. I Phones Garry 2690 og 2691 Gtftingaleyfilbref seld. |
’ »r. O. BJORNSON j Office: Cor, Sherbrooke & William tKI.BraONR, GARRT 3S* 1 Office tímar: 2—3 HKHMILI: 76« Victor 8t. «et I'BI.KPUONK, OARRV T83 Winnipeg, Man.
Dr J. Stefánsson ♦01 Boyd Building COR. P0RT/\CE ATE. & EDMOfHOþ IT.> Stundar eingöngu augna. eyina. nef og kverka sjúkdóma. — Er að hitta frákl. 10-12 f. h. og 2-5 e. h.— Talsimi: Main 3088. Heimili 105 Olivia St. Talsími: Garry 2815.
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Buildlng Cor. Portage Ave. og Edmonton Stundar sérstaklega berklaaýki l og aSra lungnasjúkdóma. Er aB ) finna 4 skrifstofunni kl. 11— 12 f.m. og kl. 2—4 c.m. Skrif- | stofu tals. M. 3088, Heimili: 46 i Alloway Ave. Talsimi: Sher- brook 3158
jyjARKET ffOTEL
ViC sölutorgiö og City Hall $1.00 tíl $1.50 á dag EÁgandi: P. O’CONNELL.
J. G. SNÆDAL, TANNLŒKNIR 614 Somerset Block Cor. Portage Ave. og Donald Streot Talt. main 5362.
The Belgium Tailors Gera við loSföt kvenna og karlmanna. Föt búin til eftir máli. Hreinsa, pressa og gera við. Föt sótt heim og afhent. Alt verh ábyrgst. Verð sanngjarnt. 329 William Ave. Tnls. G.2449 WINNIPEG
JOSEPH TAYLOR, LÖGTAKSMAÐUR lleimills-Tnls.: St. John 1644 Skrifstofn-Tals.: Main 7»7« Tekur lögtaki bæSi húsaleiguskuldlr, veSskuidir. vlxlaskuldlr. AfgreiSlr alt sem aS lögum lýttðr. Itoom 1 Corbett Blk. — «15 Moln SL
Talsímið Main 5331 hopps a Co. BAILIFF* Tökum Iögtaki, innbeimtum skuldir og tilkynnum stefnur. Room 10 Thomson BL, 499 Main
Fred Hilson l'ppboðslialdari og virðlngaAtaður HúsbúnaSur seldur, grlpir, JarSir, fast- eignir og margt fleira. Hefir 100,000 feta gólf pláss. UppboBssölur vorar 4 miövikudögum og laugardögum eru orSnar vinsælar. — Granite Gallerles, milli Hargrave, Donald og Ell'ice Str. Talsimar: G. 455, 2434, 288»
Lightfoot Transfer Co. Húsbúnaður og Piano flutt af mönnum sem vanir eru því verki. Tals. Garry 5071 544 Elgin Ave.
Dagtals. St.J. 474. Næturt. St.J.í 866.
Kalll sint 4 nótt og degi.
DR. B. GERZABEK.
M.R.C.S. ír4 Englandi, L.R.C.P. frú
London, M.R.C.P. og M.R.C.8. fr4
Manitoba. Fyrverandi aSstoSariæknlr /
viS hospítal í Vínarborg, Prag, og
Berlin og fleiri hospítöl.
Skrifstofa í eigin hospltali, 415—417
Pritchard Ave., Winnipeg, Man.
Skrifstofutími fr4 9—12 f. h.; »—6
og 7—9 e. h.
Dr. B. Gerzabeks elgið hospítal
415—417 Pritchard Ave.
Stundun og lækning valdra sjúk-
THOS. H. JOHNSON og
HJÁLMAR A. BERGMAN,
íslentkir logfræBiagar.
Skmfstofa:— Room 8n McArtbur
Building, Portage Avenoe
Ákitcn: P. o. Box tðAb.
Telefónar: 4503 og 4504. Winntpes
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
Hornt Toronio og Notre Dame
Phone tleimllU
irry 2088 Garry 899
J. J. Swanson & Co.
Verzla með fasteignir. Sjá uro
leigu á húsum. Annast lán og
eldsábyrgðir o. fl.
504 Hle K rnsingt ,m, Pon. AHrn I tl,
Pbone Main 2597
A. S. Bardal
8*S Sherbrooke St.
Selur likkistur og annast um útfarir.
Allur úthúnaður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann alskonar minnisvarða
og legsteina.
Heimilia Tala. - Oarry 1161
Skrifatofu Tale. - Garry 300, 37B
Giftinga og , ,,
Jarðarfara- blom
með litlum fyrirvara
Birch blómsali
616 Portage Ave. Tals. 720
ST. JOHN 2 RING 3
Canadian Art Gallary
585 MAIN 8T. WINNIPEG
Sérstök kjörkaup & myndastæklmn
Hver sem lætur taka af sér mynd
hJ4 oss, fær sérstaka mynd geflns.
S4 er lætur stækka mynd fær
gefins myndlr af sj41fum sér.
Margra ára íslenzk viðsklftl.
Vér 4byrgjumst verkiB.
KomiB fyrst til okkar.
CANADA AHT GAIiLEHY.
N. Donner, per M. Malitoskl.
Brown & McNab
Selja i heildsölu og smésölu myndir,
myndaratnma. Skrifið eftir verCi á
stækkuðum myndum 14x20
17S Carlton St. Talt. Kfaln 1S67
Fyrir hátíð góðviljans
Ef jóla- og nýárs-hátióimar
Art Craft Studios
Montgomery Bldg. 215^ PortageAv
i gamla Queens Hotel
G. F. PKNNY, Artist
Skrifstofu talsimi ..Main 2065
Heimilis talsimi ... Garr / 2821
pú getur reitt
1. paó vamat-
mörgum öðrum. Verð 75 cent
Fæst hjá Jos. Triner,Mgf, Chem
ist, 1333—1343 S. Ashtend Av»f.
Chicago, 111.