Lögberg - 24.01.1918, Page 1
SPIERS-PARNELL BAKING CO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞA!
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Tala. Garry 1280 Stofnsett 1887
Steele Sc Co., Ltd.
MYNDASMIÐIR
Horni Maiu og Banuatyne. WINNIPEG
Fyrstu dyr vestur af Main MAN.
31. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 24. JANÚAR 1918
NÚMER 4
úr bænum til vígstöðvanna á
mánudagskveldið. Hún fór
sem hjúkrunarkona með St.
John Ambulance Corps. Miss
Paulson vann við Almenna
bókasafnið hér í bænum, áður
en faðir hennar og stjúpa
fluttu vestur í land, en litlu
síðar fór hún til Regina og
vann þar við Bókasafn Saskat-
chewan stjórnarinnar.
Miss Paulson er með afbrigð-
um vel gefin stúlka og vel
mentuð; hún nýtur trausts og
virðingar allra, sem henni
kynnast. Nú hefir hún yfir-
gefið ágæta stöðu, til þess að
geta veitt fósturlandi sínu lið
------------------1----- í raunum þess, og þar sem það
Miss póra Paulson. dóttir þurfti hennar mest með. —
W. H. Paulson þingmanns í Lögberg óskar Miss Paulson
Leslie, Sask. fór áleiðis héðan góðrar ferðar.
MIKS ÞrtRA PAtLSOX
L.
Þjóðarhættan.
Ófriðurinn.
Tímarnir eru hættulegir. pór-
dunur stríðsins berast oss að
eyrum og neyðaróp þeirra, sem
á ýmsan hátt eiga um sárt að
binda, hljómar til vor í höf norð-
ur. Hinn blóðugi hildarleikur
liggur eins og siðferðisleg þján-
ing á huga og hjarta margra ís-
lendinga, þó þeir fái engu um
þokað, og vér fáum eigi skihð
vanmátt og sjúkdóm hinnar
kristnu siðmenningar. en jafn-
vel þó vér fáum eigi skilið þetta,
og þó að vér vitum, að dýrmæt
mannalíf séu eyðilögð í miljóna-
tali, og efnum veraldarinnar sé
rænt í miljarðatali; þó að vér
heyrum, “að konungar faldi ná-
blæjum” og landafræðin breyt-
ist — þá finst oss að þetta komi
ekki eins við oss, eins og úrlausn
vorra eigin mála. — Og meira að
segja sá ófriður, sem nú á sér
stað, meðal hinna pólitísku
flokka vors eigin ættarlands —
jafnvel þó að hann sé hvimleiður
og að ýmsu leyti ótímabær — sá
ófriður nær þó ekki til alþýðunn-
ar, sem fæðir og klæðir þessa
menn, sem alt af eru að jagast
-— nema að nokkru leyti. Fyrsta
og dýpsta spurning fyrir ís-
lenzku þjóðina í heild — einnig
þegar öll veröldin logar í ófriðar-
báli, og þeir sem völdin hafa í
landinu eiga í sífeldum áflogum
og ófriði — fyrsta og dýpsta
spumingin er það; hvemig ís-
lenzka þjóðin eigi að bjarga sér
sjálfri og þá auðvitað valdhöf-
unum um leið úr hinum hörmu-
legu afleiðingum allra styrjalda
útlendra og innlendra, sem liggja
eins og martröð á framkvæmid-
um hennar og starfsþrótti. Og
það má ekki gleymast, að eins
og það eru ekki makráðir milj-
ónaeigendur og kænir stjóm-
mála- og hermálagarpar, er lifa
óhultir í stofum sínum í nautn
og friði, er eingöngu leiða sigur-
inn heim — heldur hennennim-
ir á vígvellinum, sem fórna blóði
sínu og lífsgæfú ástvina sinna —
eins er það alþýða þessa lands,
tramleiðendur á landi og sjó, er
8fera hinn íslenzka þjóðargarð
frægan. Kyrlátir og alvörugefn-
ir berjast þeir við hættumar á
sjónum og erfiðleikana á landi.
Metnaðargjamir, hugstórir og
ramkvæmdasamir hafa þeir
ii1-5* * bvert nytsemdarfyrir-
® ið af öðru, og landið hefir
omgast, landsmönnum liðið vel
og landsjóður fitnað. —
Rýrtíðaruppbótin.
Fn á meðan framleiðendur á
andi og sjó kyrlátir og hagsýn-
]r n°tuðu sér hinar fyrstu afleið-
mgar heimsstyrjaldarinnar til
uukinnar velmegunar og fram-
takssemi, en politísku flokkamir
hnipruðu sig í bróðurlegri ein-
ingu að landssióðnum hlýjum og
eitum, komu afleiðingar styrj-
a darinnar fram sem aukin efúa-
agsleg þrengsli á þeim starfs-
monnum hins opinbera, er voru
þanmg settir, að þeir gátu ekki
hagnytt sér verðhækkun fram-
leiðslunnar, heldur þvert 4 móti
guldu hennar. úr þessari nauð-
syn bættu að sjálfsögðu þingin
1916 ’17 og 1917, og vörðu til
Þess um 1 miljón króna. Með
því skuldbatt þingið sig auðvitað
td þess að haldaáfram þessari
varðveizlu meðan þörf gerðist;
og þingið gat þetta — því það
vissi að peningana var mögulegt
að taka úr landssjóði, eins og á
stóð.
Dýrtíðarlánið.
En á þinginu sama sumar varð
mönnum það einnig ljóst, að af-
leiðingar styrjaldarinnar kreptu
svo að almenningi, að þar varð
einnig að liðsinna. Var sú hug-
mynd þingsins góð og haldkvæm
að öðru en því, að þinginu var
ekki ljóst, hversu mikið fé þurfti
til þessa, og því síður hver ætti
a& taka það, og við það mun enn
sitja — að stórmiklu leyti.
Um þá hlið á þessum fram-
kvæmdum þingsins: að gefa 1
'miljón króna úr landssjóði sterk
ríkum embættismönnum, sem
voru framleiðendur og nutu því
jafnt hagsmuna framleiðslunnar
og þeir, sem ekki voru embætt-
ismenn — um þá hlið málsins
skal ekki fjölyrt. En að eins
benda á það hógværlega og þó í
fullri alvöru, að dýrtíðarláns-
hugmyndin einnig fyrir embætt-
ismennina, sem þess þurftu,
mundi hafa reynst varlegri fyr-
ir landssjóðinn.
Ástandið.
Nú mun þá vera komið svo
högum landsjóðs og mikils þorra
þjóðarinnar, að til eindæma
vandræða horfir. Embættis-
mennimir munu þó vera saémi-
lega trygðir — en landsjóður
mikið meira en tómur af hand-
bæru fé til dýrtíðarláns — og
flestum atvinnuvegum stór-
háski búinn. Geta má þess þó,
til maklegra viðurkenningar fyr-
ir þá, sem hlut eiga að máli, að
sumir atvinnuvegir, t. d. kvik-
myndasýningar, virðast ekki
þurfa mikið að óttast í næstu
framtíð. — Alt öðru máli er að
gegna með landbúnaðinn og þó
einkum og sérstaklega sjávarút-
veginn.
Landbúnaðurinn.
Sumarið, sem leið, var á ýms-
um stöðum landsins — Norð-
Austurlandi og sumstaðar á
Suðurlandi — mjög óhagstætt.
Menn mistu víða svo mikið af
l.eyjum, að hætt er við að ein-
hver tilhæfaj muni vera í þeim
röddum, er heyst hafa, að þörf
og hagsmunavon og vogun hai'i
orðið forsjálninni yfirsterkari
hjá mörgum bóndanum. Er í
því efni vandratað meðalhófið
og vorkunn ekki lítil, þó treyst
sé á það fremsta að varðveita
nauðsynlegan bústofn, sem oft
er minni en nauðsynlegur. En
það þurfa bændur að muna —
stoðir íslenzka landbúnaðarins —
að ef þeir byrja nú á þann hátt,
að setja ógætilega á sig — þá
hrynur mikið. Og þar er verkefni
fyrir landstjórn og bændur að
vinna saman — og enn mun vera
tími til þess að gera ráðstafanir
úr að bæta, ef stjómin hefir eigi
gert það, sem vel má vera. —
pað má engin skepna á öllu land-
inu falla fyrir fóðurskort á þess-
um vetri.
Einmitt á því svæði gilda hin
alkunnu og viðurkendu orð
skáldsins: að leggja í sölurnar
hina dýrustu eign. Og nú þegar
sagan berst um landið um sárs-
aukafulla búmannsstrykið, sem
Norður-pingeyjingar eru að
framkvæma, að skera niður bú-
stofninn sinn, þá hljóta ménn að
fá samúð með þeim mönnum.
pað er aflraun eigi lítil og skilj-
anlega mörgum þungt fyrir
brjósti. Erfitt og kostnaðar-
samt sumarstarf, í baráttu við
óhagstætt tíðarfar, og endirinn
á öllu þessu: mörg hundruð hest-
ar eyðilagðir og undir snjó, fóð-
ur, sem nægja mundi til þess að
láta ganga vel fram mörg þús-
und fjár um það leyti, sem dagar
langir eru vanir að bera sól í
fangi og blóm við barm þangað
norður. En hagur lands og lýðs
og ábyrgðartilfinningin fyrir
skyldum og sæmd bændastéttar-
innar eykur þeim þrek og aflar
þeim virðingar allra góðra og
hugsandi manna.
Sjávarútvegurinn
pað virðist yfirvofandi hætta
á ferðum, og stafar af þrennu:
fyrst og fremst af hinu afskap-
lega verði, sem er á öllu, sem að
útgerð lýtur, í öðrulagi af því
hve útgerðarmöguleikarnir eru
takmarkaðir og í þriðja lagi af
óvissunni, sem er á verðmæti
s j ávaraf urðanna.
Til þess að ráða bót á þessari
þjóðarhættu, sem kyrstaða eða
gereyðing sjávarútvegsins hlýt-
ur að hafa í för með sér fyrir
þjóðina, þarf að myndast heil-
brigð og viturleg samvinna milli
stjórnarinnar og framleiðend-
anna. ófriður og sundrung má
ekki komast þar að, því að það er
staðreynt að alt slíkt tefur fyrir
framkvæmdum góðra mála.
Mönnum þarf að skiljast það að
sjávarútvegurinn er svo mikill
alfgjafi í', öllu framkvæmdarlífi
þjóðarinnar, að það tjáir ekki að
takmarka hann eða eyðileggja,
fyr en einskis annars er úrkosta.
Sala togaranna — með öllum
hennar afleiðingum fyrir þús-
undir manna — hlýtur að hvetja
alla hugsandi menn til alvarlegr-
ar íhugunar um hina stórfeldu
þýðingu þeirrar atvinnugreinar
fyrir landið.
En togararnir eru seldir — og
um það ekki frekar að ræða —
og aukinn skipastól, togara, segl
skip og báta heldur ekki um að
tala. En það er til mikill skipa-
stóll enn og það er spuming, sem
úr þarf að leysa: hvort mögulegt
sé að halda út þessum skipastól
öllum og hvort það muni borga
sig, og í samanburði við ein-
hverja nýja framkvæmanlega
atvinnugrein. Auðvitað er ekki
mögulegt að gera þetta ítarlega
í stuttri blaðagrein, en róleg um-
hugsun og staðgóð rannsókn
málsins ætti að geta leitt að við-
unandi niðurstöðu og getur hin
þarfa stofnun, Hagstofa lands-
ins, gefið miklar upplýsingar í
þessu efni. Samkvæmt fiski-
skýrslum hennar árið 1916 hafa
verið til það ár 161 fiskiskip,
samtals 11,018 tonn br. Á sama
ári stunda fiskiveiðar 391 mótor
bátur (minni en 12 tonna) og
1,121 róðrarbátur. Á fiskiskip-
unum eru 2,365 menn, á róðrar-
b&tunum 5,148 og á mótorbátun-
um 1,935 eða alls 9,448 menn.
Árangur þorskveiðarinnar (allur
fiskur) það ár er uim 23% miljón
fiska alls á þilskip og báta, og
þyngd alls aflans, miðuð við nýj-
an, flattan fisk (400 kg. í skpd.)
er 55,4 miljón kg. Vísast er ekki
of hátt áætlað verðmæti hvers
skpds., miðað við verð þetta ár,
100 kr. skpd. (80—90 kr. þorsk-
ur, smáf. og ýsa) eða um 14
miljónir króna. pað má því telja
ábyggilegt að árið 1915 hafi um
10,000 útgerðarmenn og sjómenn
veitt þjóðinni tekjur, í fiski ein-
um, er svarar 14 miljónum króna
með þessa árs verði, að ótöldu
lýsi og síld. Að vísu er nú, eins
og áður er framtekið, mikið hug-
um breytt, en ef hugisanlegt
væri að þessi atvinnugrein gæti
veitt landinu hlutfallslegar tekj-
ur á næsta ári, þá er ógætilegt
og óverjandi að stöðva þá fram-
kvæmd eða takmarka ef ekki er
önnur atvinnugrein til, sem á-
byggilega gefur slíkar tekjur í
aðra hönd.
En þó að vissa færi fyrir þess-
um eða líkum sjávarafla, gæti
cilkostnaðurinn við að reka út»
veginn orðið svo mikill að fleiri
eða færri hikuðu við að gera út
áætlanir um hana nú er sérstak-
lega erfitt, meðal annars vegna
þess, að engin vissa er f'yrir að
nægilegt sé og verði til af kolum,
olíu og salti og útgerðin því
stöðvist þegar verst gegnir. Til
þess að komast að ábyggilegri
niðurstöðu um þetta atriði þarf
stjómin annars vegar og útgerð-
armenn hins vegar' að rannsaka
og upplýsa ástandið eins og það
er nú. pað þarf að upplýsast,
hversu mikið er til áf þilskipum,
ANDLÁTSFREGN,
Frú Oddný Jónína Jakobsdóttir, kona hr. Árna Eggerts-
sonar, Iézt að heimili sínu 766 Victor stræti, hér í borginni,
klukkan hálf ellefu á mánudagskvöldið var. Banamein frú-
arinnar var nýrnabólga. — Henni hafði fæðst dóttir á sunnu-
dagsmorguninn. Dóttirin lifir og heilsast vel.
Hr. Eggertsson var staddur í New York, við störf sín,
fyrir landsstjórnina á fs/andi, er andlát konu hans bar að
höndum. Er hann á leiðinni til borgarinnar, og er væntan-
legur á föstudagsmorguninn.
mótorbátum og árabátum, er
sjó geta stundað á næsta ári. pá
þarf að upplýsa, hve mikið1 af
kolum, veiðarfærum og salti þarf
til þess að útgerðin verði rekin
með nægilegri og sjálfsagðri
framsókn. pá mundi og auðvelt
að upplýsa, hversu mikið af öllu
þessu væri til í landinu bæði í
vörzlum stjómarinnar, útgerðar-
manna og kaupmanna — og þá
jafnframt gera nokkum veginn
áætlun um, hvers vænta mætti
til viðbótar. pá er og sú hlið
málsins, er takast þyrfti til
skjótrar og rækilegrar meðferð-
ar, hversu miklu verði Englend-
ingar vilja kaupa fiskinn. Alt
þetta er virðingarvert og nauð-
synlegt samvinnustarf stjórnar
og þjóðar og ólíkt vænlegra til
góðs árangurs á þessum óham-
ingjutímum en ófriður og flokka
drættir, sem æfinlega hlýtur að
leiða til meii*a og minna úrræða
leysis og jafnvel ráðþrota.
Til skilningsauka á því hversu
afarnauðsynlegt það er að allrar
varúðar og framsýni sé gætt í
þessu máli og hve afar mikils-
varðandi það er, vil eg leyfa mér
að benda á nokkur atriði í út-
gerðarkostnaðinum, sem öllum
er svo ljós, að ekki geta orkað
tvímælis:
Togaraútgerðin er með réttu
talin lang-arðvænlegasta grein
sjávarútvegsins; e i »f tonnið af
kolunum fæst ekki íyrir minna
en 300 kr., þá kosta einungis kol-
in (c. 8 tonn) um 2400 kr. á sól-
arhring. pegar við þetta er bætt
um 50 kr. á skpd. af fiskinum í
salti (tonnið talið 280—300 kr.),
þá er hér um svo gífurlegan
kostnað að i*æða, að eðlilegt er
að varlega sé farið..
En þegar kemur til vélabát-
anna, er áhættan ekki síður lýð-
um ljós. í “Landinu” frá 30. f.
m. er sýnt fram á það, “að með
meðalafla bíður útgerðin á mótor
bátum 3,294 kr. tap á 2 mánuð-
um — beztu mánuðum ársins.
Mun með því dæmi átt við útgerð
hér nálægt. En það mun ekki
fjarri sanni, t. d. 4 Austurlandi,
að þeir vélbátar, sem ætlaðir eru
til fullrar sjósóknar þar, með alt
að 10 tíma “stími” á ystu mið,
eyði einu fati af olíu í róðrinum.
Og sé-gengið út frá 80 róðrum á
tímabilinu maí—nóvember, til
þess- að fá meðalafla, um 200
skpd., er mun láta nærri, þá er
olían ein, með um 80 kr verði á
fati..............kr. 6,400.00
Salt, um 30 tonn á
kr. 280.00 . . . . kr. 8,400.00
Veiðarfæri og beita
um.............kr. 8,000.00
Mannhald (hvort
heldur reiknað er
kaup eða hluti af
afla) um . . . . kr. 8,000.00
eða alls um kr. 30,800.00
*
Arsfundur
Fyrsta lút. safnaðar í Winnipeg,
var haldinn á þriðjudagskveldið
var, og var fjölmennur.
• Skýrslur fulltrúa safnaðarins
sína að hann stendur efnalega í
blóma.
Tekjur á árinu voru . .$5,355.82
útgjöld............. 5,346.96
í sjáði við áramótin ... .$8.86
Sunnudagsskólinn. Innritaðir alls:
Kennarar og hjálparmenn 23
Nemendur, fermdir . . . . 79
Ófermdir . 177
Alls . 279
Aðsókn:
Flest á einum sunnudegi 199
Fæst 43
Meðaltala 132
Fyrir alla sunnudaga, alls 6854
Viðstödd á hverjum sd. 14
Mistu að eins einn sd. . . 4
Inntektir og útgjöld:
f sjóði í byrjun árs .. . .$ 21.51
Samskot alls 237.94
Banka rentur 1.51
$260.96
Útborganir alls 233.09
f sjóði nú...............$27.87
Prestsverk.
Skímir..................... 27
Fermingar ................. 13
Hjónavígslur .............. 15
Greftranir .....,......... 22
Altarisgöngur............. 370
Fulltrúar fyrir næsta ár voru
kosnir:
J. J. Vopni
Kári Fredrickson
Hinrik Hinriksson
Frecl Bjamason
Jóh. G. Thorgeirsson.
Djánar voru kosnir:
Miss Theodora Hermann
Mrs. J. Júlíus
Miss Guðbj. Johnson
Arinbjörn S. Bardal
Kristján Vopnfjörð.
Samþykt var, sökum dýrtíðar,
að auka laun rrestsins um $300
á ári.
Bœjarfréttir.
Jón Halldórsson frá Lundar
var á ferð í bænum í vikunni sem
leið.
Og er þó ótalin vátrygging og
margt fleira. Og þegar svo þar
við bætist óvissan um hvað fæst
fyrir aflann — hvort þess 200
skpd. gefa í aðra hönd 20,000 eða
30,000 kr. — þá er það sýnilegt
gð hér er nauðsyn á skjótum og
góðum ráðum og framkvæmd-
um; því það er hinn mikli leynd-
ardómur sjávarútvegsins, að
jafnvel þrátt fyrir þennan feikna
kostnað, getur hann borgað sig,
ef vel gengur, allra atvinnuvega
bezt. Hann færir landinu árlega
tugi miljóna króna, fæðir og
klæðir og veitir lífþægindi, menn
ing og mentun þúsundum manna
á honum hvílir velmegun lands-
sjóðsins og framtíð íslendinga
sem siglingaþjóðar; yfir honum
blaktir íslenzki fáninn á höfnum
ættarlandsins og undir vexti
hans og viðgangi er komin vel-
megun lands og lýðs í nútíð og
framtíð. pað er því fullkomin
þjóðarhætta, ef stjórn og þjóð
bera eigi gæfu til að ráða farsæl-
lega fram úr því vandamáli. En
til þess að geta ráðið fram úr því
þarf einlægni, hleypidómalausa
og flokkadráttalausa samvinnu
stjómarinnar og landsins hæf-
ustu manna — og sú samvinna
má ekki dragast,—-J. H.
—Lögrétta.
Eins og kunnugt er þá gekst
kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðarins fyrir því að safna jóla-
gjöfum handa gamla fólkinu á
Betel. Öllum þeim, sem gjafir
sendu til kvennfélagsins í þessu
sambandi er Lögberg beðið að
færa innilegustu þakkir.
Hr. Grímur Laxdal, bóndi ná-
lægt. Kristnesi, Sask.; kom til
bæjarins í, vikunni. Hann fór
norður til Gimli að heimsækja
dóttur sína, Mrs. Dr. Sv. Björns-
son.
Sigríður Sveinsdóttir Bjarnason. .
Hinn 19. des. s.l. andaðist hér
í bænum eftir langa vanheilsu
Sigríður Sveinsdóttir Bjamason.
Hún var fædd 17. marz 1851
á Valdalæk á Vatnsnesi í Húna-
vatnssýslu; dóttir Sveins bónda
Guðmundssonar er þar bjó, og
konu hans ólafar Gísladóttur
prests frá Vesturhópshólum, en
kona Gísla og nfcðir ólafar var
Ragnheiður dóttir Vigfúsar sýslu
manns á Hlíðarenda í Fljótshlíð.
Sveinn bóndi á Valdalæk varð
ekki langlífur, bjó ekkja hans
Ólöf um nokkurra ára skeið á
Valdalæk að honum látnum, og
kom þar bömum sínum til þroska
Um 1880 fluttist Sigríður á
Suðurland og 1884 giftist hún
Gissuri Bjamasyni söðlasmið á
Eyrarbakka; ættuðum frá Steins
mýri í Skaftafellssýslu. Skömmu
síðar keyptu þau hjón jörðina
Litlahraun á Eyrarbakka og
bjuggu þar góðu búi. Vom þau
þar til 1903 að þau fluttust til
Reykjavíkur. En 1906 fluttust
þau til Hafnarfjarðar og lézt
Gissur þar 1907. Var Sigríður
eftir það í Hafnarfirði með böm-
um sínum, þar til hún fluttist
hingað til Winnipeg sumarið
1913. Með henni fóru dætur
hennar; Kristín og Ingibjörg, en
synir hennab Skúli og Sveinn
vom þá hingað komnir fvrir
tæpu «ári og hafa þau systkin
jafnan búið hér öll saman síðan,
ásamt tpóður sinni. Er Skúli
elztur þeirra systkina; kvæntur
fyrir rúmu ári síðan, Margréti
Oddgeirsdóttur prests í Vest-
manneyjum.
peim Gissuri og Sigríði varð
sex bama auðið. Auk þeirra
fjögra er hér hafa nefnd verið,
áttu þau tvo sonu, Bjama og por-
vald, sem dmknuðu báðir af
fiskiskipum úr Reykjavík, og
voru þá um tvítugs aldur. Drukn-
aði Bjarni árið 1903, en por-
valdur 1906. Voru þeir báðir
hinir vænlegustu menn, og vanda
mönnum þeirra hinn mesti harm
ur kveðinn í láti þeirra.
Kjarki og dugnaði Sigríðar
var viðbragðið og hefir lengi
verið í minnum höfð, bæði um
Húnavatnssýslu og víðar á fs-
landi, framganga hennar við bæj-
arbrunann á Sveðjustöðum í Mið-
firði. Sigríður var þá um tvít-
ugt. Eldurinn kom upp um
miðja nótt og var fátt eða ekki
karlmanna heima, þeirra er dug-
ur væri í. Hríðarveður var á,
með fannkomu mikilli og frosti.
Komst Sigríður fyrst manna út
um baðstofugluggann, og særð-
ist hún við það, svo að hún bar
sum örin eftir, alt til dauðadags.
Fólk annað, það er inni var
bjargaðist gegn um gluggann og
komst í fjósið. Nokkru af hús-
munum fékk Sigríður bjargað
með aðstoð kvenna þeirra ann-
ara er þar voru.
Skamt frá bænum stóð hest-
hús eitt og var þar inni reiðhest-
ur góður, þann tójc Sigríður og
reið í hríðinni og náttmyrkrinu,
alt hvað af tók, þar til hún kom
til Meltsaðar — en það er á
fslandi kölluo löng bæjarleið —
kom hún þai síðari hluta nætur,
fannbarin o $ fáklædd, vakti þar
upp og var iikjótt brugðið við til
hjálpar fólki því hinu nauðstadda
þar á Sveðjustöðum.
Sigríður var í hærra meðallagi
á vöxt, þéttvaxin og limuð vel,
kvenna skörulegust í framgöngu
allri, svipmikil og sviphrein. Hún
var ljósbrýn og ljóshærð og
kvenna háf%úðust. Vinföst var
hún og lundiu'OÍTi og hélt einurð
sinni fullri við hvem, sem um
var að eiga. Vandamönnum _?*>
um unni hún heitt og fór það að
skaplyndi hennar, því hún var
örlynd og tilfinningarík. fslenzk
var hún í anda, hafði hið mesta
yndi af skáldskap og mat íslend-
ingasögur mest allra bóka; svip-
aði henni og all-mjög til kvenna
þeirra sumra, er þar er um getið
og höfðingkonur þóttu.
Stefán Stefánsson.
Meðlimunt Jóns Sigurðssonar
félagsins I.O.D.E. er hér með til-
kynt að á fundi, sem haldin
verður í sunnudagsskólasal
Fyrstu lút. kirkjunnar á hominu
á Bannatyne og Sherbrooke St.
verða afhentir “Honor Pins”
(heiðurs nælur) til þeirra, sem
samkvæmt reglum félagsins eiga
tilkall til þeirra.
pann 13. þ. m. voru þau Páll
Pálson og Jónína Borgf jörð bæði
til heimilis í Iæslie, Sask. gefin
saman í hjónaband að heimili
systur brúðurinnar Mrs. H. G.
Nordal í Leslie af séra Halldóri
Jónssyni. Brúðguminn er sonur
Valdimars Pálsonar bónda ná-
lægt Leslie, en brúðurinn er dótt-
ir Jóhannesar Borgfjörðs bónda
að Leslie. Eru þeir Valdimar og
Jóhannes nágrannar og þar ná-
lægt setjast ungu hjónin að, á
eignariandi brúðgumans.-
Eimskipafélag íslands.
útnefningar og fundarboð.
Samkvæmt 24. gr. í grundvallarlögum Eimskipafélags
fslands, ber vestur-íslenzkum hluthöfum þess, að tilnefna
tvo menn í það stjómarsæti félagsins, sem herra Ámi
Eggertsson hefir skipað á því tveggja ára tímabili, sem end-
ar með ársfundi félagsins í júní næstkomandi.
Með lögum félagsins er kjörfundur Vestur-íslendinga
ákveðinn í Winnipeg í febrúar mánuði, og skulu þar kasnir
tveir menn í stjómamefndina, en ársfundur félagsins, í
Reykjavík, úrskurðar hvor þeirra skuli skipa stjómarsætjð
á næsta tveggja ára tímabili.
Vestur-íslenzkum hluthöfum tilkynnist því hérmeð að
hlutasölunefndin hér í borg hefir, samkvæmt tilmælum
beggja vestur-íslenzku stjómendanna, Áma Eggertssonar
og J. J. Bíldfells, tekið að sér að boða þennan kjörfund og
hefir ákveðið að' hann skuli haldinn kl. 8 að kveldi þess 27.
febrúar næstk., á þeim stað, sem síðar verður auglýstur.
Nú er því hérmeð hluthöfum félagsins boðið að til-
nefna í stjómarsætið hverja þá tvo menn, sem þeim þókn-
ast og að senda þær tilnefningar til undirritaðs, svo timan-
lega frá sér, að þær verði komnar í hans hendur ekki síðar
en þann 5. febrúar næstk., svo hægt sé í næstu blöðum á
eftir, að auglýsa hverjir tilnefndir hafa verið, og svo að
nægur tími veitist til að greiða atkvæði um þá og að hafa
þau hingað komin ekki síðar en þann 25. febrúar—tveimur
dögum fyrir kjörfundinn.
Herra Ámi Eggertsson hefir tilkynt nefndinni að hann
sé í kjöri til endurkosningar, ef hluthafar óska að hann
halcli stjómarstarfinu áfram. Eins skal þess getið, að það
er þýðingarlaust að tilnefna í stöðu þessa aðra menn en þá,
sem vissa er fyrir að við því séu búnir að rækja starfið, ef
þeir ná kosningu, og að borga sjálfir allan kostnað leiðandi
af ferðum þeirra til íslands, til þess þar að mæta á ársfund-
um félagsins.
í umboði hlutasölunefndarinnar, 21. Janúar, 1918.
B. L. Baldwinson. ritari.
727 Sherbrooke St., Winnipeg, Man.