Lögberg - 21.11.1918, Blaðsíða 4

Lögberg - 21.11.1918, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. NÓVEMBER 1918 pgbccg Gefið út hvem Fimtudag af The Col- umbia Prest, Ltd.^Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALSIMI: GAKRY 416 og 417 Jón J. Bíldfell, Editor J. J. Vopni, Business Manager Otan&akrift til blaðuns: THE 60LUMBIA PRESS, Ltd., Box 3172. Winnipog. M»n- Utanáakrift ritatjórana: EOITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipog, Ran. VERÐ BLAÐSINS : $2.00 um 4ri8. Að stríðinu loknu. IV. # Oss þykir senniregt, að allur þorri Vestur- Islendinga sé oss samdóma um það, að ef hin- ir íslenzku eiginleikar, ef hin íslenzka lífs- reynsla, að ef hin íslenzka sál, sem hreinsast hef- ir, myndast og mótast við frost og funa í meira en þúsund ár, og gengið hefir í erfðir frá einni kynslóð til annarar, — tapast hér og sekkur áð- ur en hún hefir að einhverju leyti sett mót sitt á þjóðlíf þetta hið nýja, þá sé illa farið. Skaði orðinn fyrir þjóðlífið og skömm og skaði fyrir sjálfa oss. Oss dylst ekki að þorri Vestur-íslendinga vildi heldur að hið (þjóðernislega líf vort þrosk- aðist hér og blómgaðist, heldur en að það færi þverrandi og dæi. Vér erum sannfærðir um, að meiri hluti þeirra séu samdóma Dr. Jóni Bjarna- svni, þar sem hann segir: “Vér ætlumst til að skóli vor, sem nú í hauts á að byrja, kenni þeim, er Iiann sa:kja, ekki að eins, að það sé þjóðernis- leg skylda þeirra að leggja kostgæfilega rækt við íslenzku af því þér eru Islendingar, heldur einn- ig að það sé bein kristindómsskylda þeirra allra, sem af íslenzku bergi eru brotnir. Og það með, . að nema því að eins, að það sé gjört, fái Vestur- tslendingar ekki verulega rækt skynldu sína við þetta land. ” En það eru erfiðleikarnir og vand- kvæðin á því að geta þetta, sem þeir vita að er rétt og nauðsynlegt, sem fyrir þeim stendur. Þessir erfiðleikar eru sameiginlegir þjóða- brotunum. Þau þurfa öll að ganga í gegnum sömu mylnuna — sama stríðið, stríðið við efna- skorf, stríð við viljaleysi og sundurleitar skoð- anir. En þó er aðstaða þeirra ólík í baráttunni. Frændur vorir, Norðmenn, Svíar og jafnvel Danir, hafa notið hlunninda í sinni baráttu, sem vér íslendingar höfum ekki orðið aðnjótandi. Þeir hafa verið, og eru enn, þrátt fyrir það að þeir eru eldri og fjölmennari hér í landi heldur eu vér, börn sinnar þjóðar, að því leyti að heima- þjóðirnar hafa aldrei slept hendi sinni af þeim, s-í og æ borið umhyggju fyrir útfluttum bræðrum sínum systrum. Þeir hafa sent menn til að tala í þá kjark og til þess að halda þeim saman, styrkt fyrirtæki þeirra meðan þeir voru fátæk- ir og í mestum erfiðleikunum. 1 einu orði, látið sér hugarhaldið um þá, og er slíkt og hefir verið ómetanieg hjálp í þjóðerniis- og menningarbar- áttu þeirra hér. Slíka aðstoð höfum vér Vestur-lslendingar aldrei haft frá ættbræðrum vorum á íslandi. Frá því fyrsta að útflutningar hófust til Vestur- heims frá Islandi, og til þessa dags, hefir andinn frá eyjunni austur í Atlantsál verið napur og kaldur í vom garð. Frameftir öllu tðluðu þeir þar heima um oss Vestur-Islendinga með níst- andi fyrirlitningu, sem úrhrak íslenzku þjóðar- innar, er ekkert væri lappandi upp á, og í raun- inni væri landhreinsun að, og því lítill skaði þó þeir týndust og hyrfu í ihafrót útlends þjóðlífs. En það varð nú ekki, vér ultvrm ekki út af hér þjóðernislega eins og horgemlingar á vordegi. Oss lagðist líkn með þraut. Hér á meðal vor reis upp ágætismaður, sem offraði lífi sínu til þess að sameina Vestur-lslendinga um sinn þjóð' emislega arf; og það er honum að þakka, en ekki þeim þar heima, að vér ekki týndumst og tvístruðumst hér í dreifingunni. Að vísu höfum vér notið þjóðernislegs styrks af bókum og blöðum landa vorra á ætt- jörðinni. En fyrir það höfum vér borgað fult verð, og getur því naumast talist sem tillag lijnda vorra þar heima^oss til stvrktar í þjóðera- isbaráttu vorri hér/ f*ví þó maður leiti í þeim bókmentum landa vorra, er ekki mikið að finna, sem getur talist til uppörfunar eða styrktar í þjóðemisbaráttu vorri, sem þó hefði mátt ög átt að vera, ef þeim hefði ekki verið með öllu sama hvernig um oss færi í þeim sökum. Verkleg sambönd höfum vér haft nokkur við bræður vora á Islandi. Fjöldi manna hafa sent vinum og vandamönnum peninga héðan að vest- an. Þegar að almennra samskota var leitað í sambandi við myndastyttu Jóns Sigurðssonar á ættlandi voru, voru Vestur-lslendingar með í því. Þegar slys og mannskaðar hafa orðið á sjó, hafa Vestur-fslendingar sýnt lit á því að l»jálpa fátækum og syrgjandi hlutaðeigendum. <>g þegar að landar vorir stofnuðu Eimskipafé- lag Islands, og leituðu til vor, reyndum vér að hjálpa eftir megni, lögðum fúslega fram skerf, ættjörðu vorri til styrktar; og jafnfúsir fyrir Jiað, þótt óvíst væri hvort vér sæjum nokkum eyri af þeim peningum aftur. j Og vakti þá tvent fyrir Vestur-Islendingum, fyrst að verða Is- landi að Hði með þessu ef unt væri. 1 öðra lagi gæti þetta orðið þjóðemislegur styrkur — hjálp- . arméðal öflugt í þjóðernisbaráttu vorri hér. En hvað skeðurt Þegar að félagið er ef til vill bú- ið að frelsa líf þjóðarinnar — þegar það er efna- lega komið meir en á fastan fót — þegar út séð I cr um það, að stofnfénu sé hætta búin — þegar félagið er farið að græða á tá og fingri og þegar bygðir Vestur-íslendinga eru flakandi í sáram— þegar sorgin, blýþung og dimm, grúfir yfir hverjum manni og konu í bygðum vorum, — þá senda þessir Islendingar umboðsmenn til bygða vorra, til þess að kaupa upp Eimskipafélags- hlutabréf vor, eins ódýrt og þeim var unt, fyrir minna en sannvirði. Skera með hrottaglott á vörum á öll bönd. Vér segjum ekki að hér eigi öll íslenzka þjóðin hlut að máli. Vér vitum ekki hvað margir þeir íslendingar era, sem fyrir þessu tiltæki standa. Vér vitum aðeins, að þenna dragsúg leggur til vor úr höfuðstað ís- lands, og það, að hann er alt annað en hlýr. Vér Vestur-lslendingar höfum oft átt erf- itt uppdráttar, með ýmsar þjóðræknistilraunir vorar, svo sem kirkjubyggingar og fleira. Og nú síðast höfum vér ráðist í með miklum erfið- leikum að stofna íslenzkan skóla, í þeirri von að hann mætti verða gróðrarstöð íslenzkrar tungu og íslenzkrar meninngar vor á meðal. Oss vit- anlega hefir enginn einasti maður ótilkvaddur þar heima á ættjörðinni, látið neitt af hendi rakna þessum mentamálum vorum til stuðnings, hvorki í peningum, mannhjálp né ráðum, að und- anskildum einum manni, sem bar í brjósti hlýrri hug til vor Vestur-lslendinga en aðrir menn, er vér höfum kynst þar uppi á Islandi. En það er Þórhallur biskup Bjaraarson. Hann sendi þessari ungu og veiku mentastofnun vorri álit- lega peningaupphæð. — En nú er hann dáinn. Það, sem hér að ofan hefir sagt verið, er eklri sagt beinlínis til þess að mælast til skófna frá bræðrum vorum á Islandi, heldur er það gert til þess að draga fram í dagsbirtuna ólag á hugs- unarhætti og afstöðu stofnþjóðarinnar íslenzku, og brotsins hér vestra. Bræður góðir! eigum vér ekki að lóta hin stórkostlegu tímamót í sögu þjóðanna, verða til þess að þíða kuldan og klakann úr hugum vor- um, svo vér getum unnið saman og stutt hver annan á hinin komandi tíð. (Framlh.) Að vernda minningu her- mannanna. “Halur lifaíS heflr nóg hver, sá föSurlandi d6, minning hans hjá mönnum lifir, þá mold er komin bein hans yfir.” Bjami Thorarensen. Það er ekki alt af árafjöldinn, sem gefur æf- inni gildi, heldur hitt, hvemig áranum er varið. Að lifa, hugsa og starfa fyrir föðurland sitt, er dásamlegt hlutverk. En að deyja fyrir frelsi þjóðar og lands, þegar hættan er mest, er þó margfalt veglegra. Og þetta er einmitt það, sem þeir hafa ver- ið að gjöra, vestur-íslenzku drengirnir — sjálf- boðamir hugprúðu — í stríðinu mikla, er nii hef- ir verið til lykta leitt á svo glæsilegan hátt. — Era nokkur líkindi á því, að minning slíkra manna, er svo miklu hafa fómað, muni ryðga, eða þá jafnvöl falla alveg í gleymsku í framtíð- inni? Engin hætta getur verið á slíku, því svo helg an völl hafa hinar föllnu ferlsishetjur haslað sér í sögunni, að um minning þeirra hlýtur jafnan að verða bjart og hlýtt. Sagan tengir saman og skrásetur merkustu viðburðina í lífi þjóðanna. Fegurstu og mestu nöfnin hafa álíka mikið gildi fyrir sögu siðmenn- ingarinnar, og vitarnir fyrir siglingamanninn. Sagan heldur aðallega uppi um ókomnar aldir einkennum hinna stærstu atburða, þótt hljótt verði að miklu um nöfn hinna mörgu ein- staklinga, er með starfi sínu, lífi og dauða, gáfu atburðunum sjálfum eilíft tilverugildi. Sú þjóðin er auðugust, er skilað getur kom- andi kynslóð stærstu nafnaskránni yfir merka menn. Ef vér, sem nú lifum, eram sjálfum oss trú- ir, og leggjum verðskuldaða rækt við kaflann þann, er verið hefir að gjörast í sögu þjóðflokks vors í álfu þessari, síðustu fjögur árin, þá ætt- um vér að geta afhent eftirkomendum vomm glæsilega nafnaskrá, er verða mætti óskeikull áttaviti fyrir menningar- og manndómshugsjón- ir vestur-ísienzks þjóðlífs í framtíðinni. Fordæmi það, er vestur-íslenzku hermenn- irnir hafa skapað, að því er snertir skyldurækni og frelsisást, hlýtur að bera fyr eða síðar dýr- mæta ávöxtu, til blessunar öllu vora framtíðar- starfi. Eins og lesendum voram er kunnugt, þá var fyrir nokkra vakið máls á því, að safna fé í þeim tilgangi að reisa minnisvrarða yfir hina föllnu, vestur-íslenzku hermenn. — Raddir komu fram um það að málið væri eigi tímabært, með því að stríðið væri þá enn eigi á enda. Þó var homsteinninn lagftur að sjóðstofnun í þessu augnamiði með hundrað dala gjöf frá síra Birni B. Jónssyni. Nú er vopnahlé komið á — blóðsúthellingun- um skelfilegu lokið —, og nú virðist oss eimnitt hin rétta stund runnin upp, til þess að taka þetta sjálfsagða mál til alvarlegrar íhugunar og flýta fyrir framkvæmd þess. Hér er bæði um menningar- og metnaðarmál að ræða. Hér er mál fyrir alla Vestur-lslendinga til J>ess að sameinast um. Væntanleg forgöngunefnd þessa fyrirtækis verður að vera kosin eða skipuð hlutdrægnis- lanst, af körlum og konum úr öllum flokkum. Þetta mál er jafn nákomið öllu fólki voru. — Ekki þurfum vér að leita listamannsins, til þess að gjöra minnismerkið, út fyrir þjóðflokk vora. — Vér eigum snillinginn innan vorra eigin vébanda, þar sem er Einar Jónsson frá Galta- felli, sem dvelur um þessar mundir í Bandaríkj- unum. Engum manni er betur trúandi til þess en honum, að leysa verkið af hendi í þeim anda, sem samboðin sé frelsisást og fórnardauða vorra föllnu kappa. Vér væntum þess að allir taki máli þessu vel, greiði fyrir framgangi þess á allan hátt, bæði í orði og verki. Verum samtaka! Verum fyrstir allra þjóð- flokka í landi þessu, til þess að reisa minnis- varða yfir hinar drenglunduðu hetjur, er létu líf sitt fyrir frelsi vort og heimila vorra, með sigurpálmann í höndum! Nokkur orð um Influenzu Eftir Dr. B. J. Brandson. Hin skæða landfarsótt, sem nú geysar yfir alla þessa heimsálfu, er eflaust ein sú mann- skæðasta veiki sem sögur fara af í þessu landi. Ekki síðan á miðöldunum þegar ýmsar drepsótt- ir æddu yfir lönd, svo að segja hindrunarlaust, hafa menn átt slíkum vogesti að verjast. Eitt af því sem gjörir þessa veiki ægilega, er að flest- ir af þeim sem deyja er fólk á bezta aldri, lang flest frá 18 til 35 ára. Böm og gamalmenni sýn- ast frekar koma létt niður þótt þau taki veikina, og á meðal þeirra era dauðsföllin tiltölulega fá. Veikin líkist að mörgu leyti sóttnæmri kvef- sótt, lík þeim kvefsóttum sem geysað hafa með rnargra ára millibili um þessa heimsálfu, síðan slík veiki gjörði fyrst vart við sig og sögur fara af árið 1647. Arið 1889 og 1890 var veikin mjög almenn um alt þetta land og elnnig um alla Norðurálfuna. Hvort sú veiki, sem .nú geysar sé hin sama og svo almenn var árið 1889—1890 er ekki algerlega víst. Margir læknar álíta veikina hina sömu, aftur eru aðrir, sem álíta að sóttkveikjan sé önnur þótt einkenni veikinnar séu líkþví, sem menn hafa áður þekt. Þótt veikin sé oft kölluð “spánska veikin”, er engin ástæða til þess að ímynda sér að hún hafi fyrst komið upp á Spáni. Meiri ástæða er til að balda að hún hafi komið upp á Austurlöndum, Evrópu eða Asíu. Fyrir ári síðan geysaði veikin í her Þjóðverja á Austur-vígstöðvunum og breiddist svo út þaðan um vesturlönd Evrópu og til Ameríku. Þótt enn hafi ekki tekist að einangra sótt- kveikjuna, sem orsaka rveikina, þá er samt það víst að veikin er mjög sóttnæm og berst frá þeim sem veikina hefir til þeirra, sem í kring um hann era, í gegn um loftið. Sérstaklega er það hrák- inn, sem hættan stafar af. 1 hrákanum er mesti f jöldi af sóttkveikjum, og ef sjúklingurinn hræk- ir á gólfið eða annarsstaðar þar, sem svo hrák- inn þornar upp og verður að ryki, sem svo kemst í loftið þegar sópað er; eitrast loftið í herberg- inu, þar til öllum, sem þar eru inni, stendur stór hætta af. Einnig þyrlast sóttkveikjan út í loft- ið með hósta og hnerra þess veika; þess vegna ætti hann ætíð að J?afa klút við höndina til að hósta og hnerra í. Sóttkveikjan er aðallega í hrákanum eins og á sér stað um sjúkling, sem þjáist af lungnatæringn. Sömu varúðar ber að gæta í báðum þessum sjúkdómum. Hver eru aðaleinkenni veikinnar? Hvem- ig veit maður að um þenna sjúkdóm er að ræða, ef ekki er læknir við hendina til að ráðfæra sig við? Vanalega byrjar veikin snögglega. Sjúkl- ingurinn kvartar um máttleysi, höfuðverk, bak- verk, beinverki, og sárindi um allan líkamann. Margir kvarta um köldu, og er þetta alment ein- kenni þegar veikin er á háu stigi. Hitinn er mis- jafnlega hár, vanalega frá 100 til 104 stig F. Hósti og sárindi fyrir brjóetinu era ekki mikil í þeim tilfellum, þar sem lungnabólga ekki fylgir veikinni. Útlit þess veika bendir oft sterklega til þess að hann er í rauninni veikari en hvað honum finst sjálfum hann vera. Augun era oft þrútin og allur svipur hans ber vott um að hann er alvarlega veikur. Ef ekkert kemur fyrir var- ir veikin ekki nema þrjá til fjóra daga, og batnar sjúklingnum þá fljótt. Það, sem mest er að ótt- ast, er lungnabólga, sem svo oft slæst inn með, oft þegar sjúklingnum sýnist vera að batna. I- gerð í eyrunum og heiláhimnubólgu kemur einn- ig fyrir, en mikið sjaldnar en lungnabólga. Það, sem mest er um að gjöra fyrir þann, sem veikist af influenzu, er að fara strax í rúm- ið og hann kennir veikinnar; þótt honum finnist hann ekki vera mikið veikur, þá stofnar hann lífi sínu í voða með því að streytast við að vera á ílakki, einu sinni að hann er ekki frískur. Lang- flestir þeir, sem fá lungnabólgu, era þeir sem ekki fóru nægilega varlega í byrjun veikinnar. Auðvitað hafa margir fengið lungnabólgu þótt allrar varúðar væri gætt, en það era frekar und- antekningar en hitt. Æskilegt er að gefa sjúkl- ingnum inn til hreinsunar í byrjun veikinnar, og á meðan veikin stendur sem hæst, næra hann að- allega á mjólk, súpum eða annari vökvun, og um leið láta hann hafa eins mikið af köldu vatni óg hann vill drekka. Ef hann kvartar um köldu, þá gefa honum heita drykki í staðinn fyrir kalda. Kaldir dúkar við höfuðið ef höfuðverk- urinn er þvingandi. Enginn ætti með réttu lagi að fara á flakk fyr en hann hefir verið álgjör- lí;ga hitalaus í þrjá» daga, og ekki fara út úr húsi í aðar þrjá daga til, hvað vel sem honum finst honum líða. Mikið er um að gjöra að loft- ið sé eins hreint og mögulegt er í herbergi sjúkl- ingsins, sérstaklega þar sem um lungnabólgu er að ræða. Líka er þess vert að geta, að hreint ioft í híbýlum manna er eflaust hið traustasta og áreiðanlegasta varnarmeðal gegn veikinni. Að spara Smáar upphæðir lagíar inn í banka reglulega geta gert stærri upphæð en stór innlög, sem lögð eru inn óreglulega. Sá sem gerir sér að vana að leggja inn peninga, hann fær löngun til að sjá upp- hæðina stækka. Rentur gefnar að upphæð 3% á ári, lagt tvisvar við höfuðstólinn. Walters Ljósmyndastofa Vér skörum fram úr í því að stækka myndir og gerum það ótrúlega ódýrt. Myndir teknar fyrir $1.50 og hækkandi. Komið til vor með þessa auglýsingu, og þá fáið þér $1.00 afslátt frá voru vanaverði. Walters Ljósmyndastofa, 290 Portage Ave. Talsími: Main 4725 NDRTH-WE5T GRAIN COMPANY íslenzkir hveitikaupmenn Látið íslenzkan hveitikaupmann sitja fyrir hveitikaupum. H. J. L.INDAL, RáSstnaður. 24S Grain Exchange - WINNIPEG Sunnudaga-hugvekjur Eftir séra Björn B. Jónsson. III. 26. sunnudag eftir trínitatis, 24. nóv. 1918. KOLLEKTAN. Mildiríki himneski faðir! pú, sem ekki vilt dauða syndugs manns, heldur að hann snúi sér og lifi, og sem fyrir Jesúm Krist hefir stofnað hjá oss ríki náðar þinnar, fyrirgef oss af miskunn þinni allar syndir vorar og yfirsjónir, og láttu oss finna hvíld og hugsvölun fyrir þínn elskulegan son, Drottin vom Jesúm Krist, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, einn sannur Guð, frá eilífð til eilífðar. Amen. Guðspjallið: Matt. 11, 25—30. Á þeim tíma tók Jesús til máls og sagði: Eg vegsama þlg, faðir, herra ’himins og jarðar, að þú hefir hulið Iþetta fyrir speking- um og hyggindamönnum, og opinberað það smælingjum. Já, fað- ir, þannig varð það, sean iþé rer þóknanlegt. Alt er mér falið af föður mánum, og enginn gjörþekkir soninn nema faðirinn, og eigi heldur gjörþekkir nokkur föðurinn nema sonurinn, og sá er sonur- inn vill opinbera hann. Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð ihlaðnir, og eg mun veita yður hvíld.. Takið á yður mitt ok og lærið af mér, þvá eg er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá skuluð þér finna sálum yðar hvíld; því mitt ok er indælt og byrði mín létt. Vér erum komnir að árslokum. þetta er hinn síðasti sunmu- dagur kirkjuársins. J7eir, sem lifa til næstu helgar (1. des), fá að byrja nýtt náðarár í kristni Guðs á jörðu. Kirkjan tehir ár sitt þannig, að það er einum mánuði ávalt á undan almanaksárinu venjutega. J?að á að minna oss alla á það, að andlegt M vort á jafnan að vera á undan hversdagslegu veraldarlífi. Vér eigum fyrst að leita Guðsríkis. Láka er það oss ölhim heilög vísbending um það, að vér eigum í hug og ihjarta að vera komnir inn í dýrðar- ríki Guðs, áður en hið stutta æfiár vort hér á jörðu er liðið. End- ;rínn er nálægur, endir lífsins. Með dauðanum kemur gamlárs- kvöld yfir oss alla inman skams. Kærleiksrákur faðir vor á himn- um, yi'll ekki að það koma að óvöru nokkru bami sínu. Hann vill að vér í trú á frelsara vorn, Jesúm Krist, höfum vátrygt oss gegn dauðanum áður en hann kemur. Kristnir menn eru komnir frá dauðanum til lífsins, svo að þó hinm lákamlegi dauði komi þegar minst varir, þá nær ihanm emgu valdi yfir þeim. peir eru þegar búm- ir að búa um sig í faðmi Guðs. f trúmmi eru þeir löngu fyrir gaml- árskvöld lífsins búnir að halda nýársdag eilífs Ms. Andinn er kom- inn heim — heim í lífið, sem aldrei þver, Jífið í Guði og hjá Guði. Á þetta minna oss áramótin kirkjulegu. Og með orðum frels- arans í guðspjalli dagsins vegsömum vér föður vorn, herra himins og jarðar, að hamn hefir hulið þetta spekingum og hyggindamönn- um, en opinbearð það oss smælingjunum. pegar kirkjuárið endar, byrjar aðventan, jólafastan, og með henni koma ljósin og birtan, sem vaxandi fer alt til sjálfra jólanna, hátíð ljósanna þannig er og farið andlegu lífi kristins manns. Hann hugsar ekki einungis um endirinn, heldur miklu fremur um upphaf hins nýja og eilíft áframhald þess. Honum þykir það ekki miður, þótt hann viti endirinn nærri. “Bak við Alpafjöllin ligg- ur ítaláa,” sagði maðurinn á fomöld — vissi vera hið sólfbjarta land hinsvegar við fjöllin háu, þótt þar yrði staðar að nema í bráð. Hinsvegar við Iandamerki dauðans veit trúaður maður jólálöndin eiláfu. Á þeim löndum á hann heima. Hlann sér í anda þangað heim. Við landamærin sér hann istanda som Guðs og frelsara sinn. Frelsarinn breiðir þar út armana og segir: “Komið til mín”. Endir láfsins hér er kristnum manni upphaf eilífra jóla. Kirkjuárið endar með því að skila kristnum manni inn í að- ventuna, afhenda hann jólatíðinni. pað er hugsjónin. Sé það þá líka veruleikinn. J7að væri hverjum manni synd, að stíga nú yfir íþessi kirkju- tegu áramót án þess að minnast með þakklæti Guðs mikhi mildi við sig, syndugann mannirm, á náðarárinu liðna. Nem staðar, vinur, og hugleiddu náð Drottins. Hvað hefir verið þér æðst og dýrmæt- ust blessun á liðnu ári ? Eru það hin veraldlegu gæði ? J?au eru góð og fyrir þau ber að þakka. En hvað hefðurðu sízt af öllu vilj- að missa og alls ekki getað verið án. Var það ekki frelsandi náð Guðs í Jesú Kristi? Var ekki fyrirgefning synda þinna meira vert en lífið sjálft? Jú, Guðs náð og náðarmeðul Drottins, það er æðst og bezt. Rfkutega hefir Drottinn látið oss náð sína í té. Notre Dame Branch—W. M. IIAMIL/TON, Manager. Selklrk Branch—F. J. MANNING, Manager. THE DOMINION BANK HöfuCstóll löggiltur $25.000,000 HöfuCstöil greiddur $14.000,000 Varasjóður............$15,000,000 Forseti........................Sir HLJBERT S. HOI/T Vara-forseti .... E. L, PEASE ASal-r&ðsmaSnr - - C. E NEIULi Allskon&r bankastörf afgreidd. Vér byrjum relkninga vi8 elnstakllnga eBa félög og sanngjarnlr skilmð.lar velttlr. Avlsanir seldar tll hvaða staCar iem er & Islandl. Sérstakur gaumur gefinn spar1r16B«lnnlögum, sem byrja m& meC 1 dollar. Rentur lagCar vlC & hverjum • m&nuCum. T' E. THORSTEIN9SON, R&8«maSur Co Williaa* Ave. og SKerbrooke St„ - Winnipeg, Man. THE ROYAL BANK OF CANADA

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.