Lögberg - 27.11.1919, Side 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞAÐ!
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
tt 6.
Það er til myndasmiður
1 borginni
W. W. ROBSON
490 Main St.
Garry 1320
32 ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 27. NÓVEMBER 1919
NUMER 48
Helztu Viðburðir
Síðustu Viku
Canada.
Félag er myndað hér í Canada
til þess að hagnýta sér tillögur
Vilhjálms Stefánssonar að 'því er
hreindýrarækt snertir. Heitir fé-
lag þetta The North American
Reindeer Co., og er höfuðstóll þess
$750,000. Félagið hefir leigt 48
miljón ekrur af landi af Domin-
n stjórninni, eða 75,850 fermíl-
ur af heiðalandi, er liggur fyrir
norðan Churchill ána, og á félagið
að borga stjórn. tvo fimtu hluta
úr centi fyrir ekruna í leigu á ári,
og nemur það um $192,000 árlega.
. Kínverji eiinn í Montreal keypti
um daginn böggul af mönnum,
sem þóttust vera að selja ópíum.
í böglinum voru tólf stykki af
þessari fornboðu vöru, og fyrir
þetta borgaði Wog Long, svo hét
Kínverjinn, $500. pegar hann kom
\eim til sín og tók umbúðirnar ut-
an af vöru sinííi, þá s'á hann strax
að hann hafði verið vélaður, 'að í
staðinn fyrir 12 stykki af ópíum
hafði honum verið seldir 12 viðar-
kubbar. Tveir menn hafa verið
teiknir fastir í sambandi við svik
þessi.
W. Beatty, K. C., forseti Canada
Kyrrahafs brautar félagsins, sagði
nefnd járnbrautanna þannig skip-
uð, að í henni sitja umboðsmenn
eigenda, umboðsmenn stjómarinn-
ar og umboðsmenn verkamannafé-
laganna. Og svo er hugmyndin,
að önnur nefnd, sem er skipuð á
sama grundvelli, taki að sér að
ráða fram úr allri missætt, sem
verða kann á milli málsaðilja.
Jarlinn frá Stanhope hefir lagt
frumvarp til laga fram í lávarða-
deildinni í sambandi við borgara-
bréf eða ríkisréttindi útlendinga.
Er þar farið fram á, að útlend-
inguni sé ekki veitt borgarabréf
fyr en þeir eru búnir að vera 20
ár í brezka ríkinu, og hafi sannað
fyrir ríkisritara, að mannorð
þeirra sé óflekkað og að þeir geti
lesið og skrifað ensku, og líka að
þeir hafi fengið talsverða metun
innan brezka ríkisins.
Láarða málstofan á Englandi
hefir felt frumvarp til ilaga um, að
nema úr gildi ákvæði það í lögum
deildarinnar, að konur skuli ekki
eiga sæti í þeirri málstofu.
í ræðu, sem Bryce lávarður,
fyrrum sendiherra Breta í Banda-
ríkjunum, hélt nýlega í Lundún-
um, beindi hann máli sínu að
gjörðum friðarþingsins, og sagði,
að því hefðu orðið á tilfinnanleg-
ar yfirsjónir, svo sem að halda öll-
um gerðum sínuim svo mjög leynd-
um, með því að afhenda Tyrol og
Transsylvania Rúmeníu mönnum,
þó að allir vissu, að minsta kosti
einn þriðji partur fólksins í þeim
Sagt er að John D. Rockefeller
sé búinn að gefa til stofnana í
sambandi við læknisfræði og ann-
ara opinberra stofnana, $239,000,-
000. Síðasta gjöf hans er tíu milj.
dollarar, er hann hefir gefið
Rockefeller stofnaninni til vís-
indalegra rannsókna í sambandi
við læknisfræðina. Viðlagasjóður
þeirrar stofnunar er nú tuttugu
og sjö miljón dollarar.
Verkfallið í linkolanámum- í
Bandaríkjunum heldur enn áfram,
það er að segja, fjöldi af. náma-
mönnunum hafa neitað að taka til
vinnu aftur fyr en búið er að bæta
kjör þeirra. Útlitið er því alt ann- I
Frá Islandi.
Dáin er á Lækjamóti í
vatnssýslu 17. sept. merkiskonan
frú Margrét Eirífcsdóttir.
Guðmundssonar frá Gimli. Hafði því er auðvitað ekki enn kotninn í
hún verið skorin upp við innvortis
sjúkdómi fyrir tveimur vikum síð-
Húna- an* Guðbjörg heit. var ættuð úr
' Isafjarðarsýslu á íslandi. Líkið var
flutt niður að Gimli og jarðsett þar.
pað mun nú vera fullráðið, að
reist verði stórt og vandað gisti-
hús í Reykjavík, svo fljótt sem
verða má, norðan við Hverfisgötu
á horninu við Kalfcofnsveginn,
andspænis stjórnarráðshúsinu.
Er sá staður vel valinn og upp-
drættir hafa verið gerðir af bygg-
ingunni. Forstöðumaður fyrir-
tækisins mun Jónas Lárusson
eiga að verða, efnilegur maður,
sem lengi hefir fengist við veit-
ingastarfsemi í Khöfn., og var
hann hér heima um tíma í sumar.
. Gunnar Gunnarsson skáld fór
að en glæsilegt. pegar forstöðu-1 heimleiðis til Khafn. með Islandi
nýlega í viðtali vi ðblaðamenn í héruðum væri með öllu óskyldur
Toronto: “Eg hefi svo oft tekið Rúmenum. Um alþjóðasambandið
það fram, að eg álíti að þjóðeign! segir hann, að fyrirkomulag þess
járnbrauta blessist aldrei. Og eg og hugmyndin sjálf sé fólki yfir-
er á sama mláli og Mr. Vanderlip, j leitt geðþekk, en áður en sú hug-
að þjóðeignir hepnist aldrei undir mynd geti notið sín, þurfi fólkið
lýðveldis fyrirkomulagi. Hinn að skilja hana til hlítar.
gýfurlegi tekjuhalli á brautum
stjórnarinnar sannar þetta. Eg
hefði aldrei greitt atkvæði með
því að kaupa Grand Trunk braut-
ina.”
Yfirmaður trúboðsdeildar Meþ-
odista, séra Arthur Barnes, segir
að tala viltra Indíána í Canada sé
15,000.
pegar ríkiserfingi Breta var í
Hamilton, Ont., var honum haldin
veizla af bæjarráðinu. pegar
reikningurinn fyrir veizluhaldið
var lagður fram, nam hann $1,753
eða $6 fyrir hvern mann eða konu,
sem þar var. petta þykir bæjar-
búum nokkuð geist farið nú í dýr-
tíðinni og hafa sagt bæjarráðinu
hispurslaust frá því.
9. desember á að fara fram
aukakosnig til sambandsþings í
North Ontario County. Útnefn-
ing fer fram 2. des.
Sagt er að Ðominion stjórnin
sé í þann veginn að semja við
'skipasmiði í British Columbia um
smíði á 50 timburskipum.
Óskaplegt ódáðaverk var framið
í smábæ einum í Nova Scotiá.
Mæðgur tvær, Mrs. Stewart Smith
og dóttir Hennar, bjuggu saman í
húsi einu í þorpi þessu. Eitt
kveld eftir 'háttatíma heyrðu þær
að í húsinu var gengið og beint
að svefnherbergi þeirra mæðgna.
Mrs. Smith reis upp í hvílu sinni
og skipaði aðkomumanni að hafa
sig tafarlaust út. En hann sinti
því engu og réðst að Mrs. Smith
með skammbyssu og veitti henni
áverka, en ekki svo að hún misti
ráð né rænu, svo hún komst út úr
húsinu og út á götu og kallaði á
bæjarbúa til hjálpar. En enginn
þeirra hafði hug til þess að fara
inn í húsið og hjálpa stúlkunni.
Um morguninn, þegar fólk þorði
loks að fara inn í húsið, fanst
stúlkan örend, hafði verið barin í
höfuðið þar til hún dó. En mað-
urinn, sem hét Wilson Huey, fanst
inni í svefnherberginu steindauð-
ur, með tskot í gegn um höfuðið.
Mylnufélag eitt, sem nefnist
The Finger Company, og sem átti
stóra sögunarmylnui norður í Pas
héraðinu og stóra fláka af stand-
andi timbri, hefir selt þessar eign-
ir sínar til Bandarikjafélags fyrir
$1,500,000.
Um afdrif friðarsaminganna í
öldungadeild Bandaríkjanna fár-
ast Saturday Review svo að orði:
“pað er vor meining, að hinar þýð-
ingarmiklu og víðtæku skyldur,
sem alþjóða sambandið hefir í för
með sér, hefðu orðið til þess að
spilla velvildarhug á milli Bret-
lands og Badarikjanna. Pví eftir
meir en hundrað ár, sem þessar
þjóðir hafa misskilið hvor aðra,
hafa þær nú loks lært að meta
hvor'aðra. Hví þá ekki að vera á-
nægður með það sem orðið er?”
Blaðið New Statseftnan segir:
“pað sem oss finst alvarlegast í
þessu efni, er ekki framkoma öld-
ungaráðsins, heldur það, að meiri
hluti þjóðarinnar virðist líta eins
á málið.”
Lundúnafrétt segir, að ástandið
við Adriahafið sé að verða mjög
alvarlegt. Eins og mönnum er
kunnugt, þá hefir ítalska skáldið
Gabrielle D’Annunzio haldið hafn-
arborginni Fiume og menn hugðu,
að hann mundi láta þar við sitja.
En nú virðist það í augum uppi, að
hann ætli að leggja undir sig Dal-
matiu ströndina og fara með her
manns á hendur Svartfellingum.
Bretland
Járnbrautaþjónar á Bretlandi
taka boði Lloyd George um að taka
þátt í stjóm og umsjón með járn-
brautum. J. H. Thomas, aðal-
leiðtogi félags jámbrautarmanna
og þjóna, segir að Lloyd George
hafi boðið þeim þessa þátttöku og
að mennirnir ihafi samþykt að
taka boðinu. Verður þá stjómar-
Bandaríkin
Fjölskylda ein, sem heima átti
í Howell, Mich., sat morgun einn
í síðustu viku að morgunverði, sem
tilreiddur hafði verið á steinolíu-
vél, er þar stóð inni hjá þeim, þeg-
ar vélin sprakk og varð allri fjöl-
skyldunni að bana. Maðurinn hét
Henry Dickeron og var 42 ára,
kona hans vhr 35 ára og tvö börn
þeira, annað 11 ára en hitt 9.
\
Gróði Bandaríkja stjórnarinnar
á járnbrautum ríkisins fyrir sept-
embér mánuð síðastl., var $3,391,-
419, eftir að búið var að borga all-
an starfrækslu kostnað.
Erfðaskrá skáldkonunnar Ella
Wheeler Wilcox, sem nú hefir ver-
ið gerð opinber, sýnir, að eigur
hennar eru um $60,000. Fjöldi
af vinum og kunningjum hinnar
látnu er minst í erfðaskránni.
Fimm stigamenn komu inn í
Farmers Mechanics’ bankann í
Aryville, 111., um hábjartan dag,
tóku þar $20,000 og komust í
burtu með ránsféð.
Nýlega var borgaður ^inn doll-
ar fyrir pund af baðmull í Arkan-
sas; er það meira verð en nokkurn
tíma hefir verið borgað fyrir þá
vöru í Bandaríkjunum síðan borg-
arastríðið stóð yfir.
iFjárimálamenn í Bandaríkjun-
um hafa lofast til að lána stjórn-
inni á Póllandi $250,000,000.
menn félagsins létu að skipun
stjórnarinnar og kölluðu til baka
verkfallsskipun sína, þá voru það
eftir sögn tiltölulega fáir af
námamönnum, sem tóku til vinnu
aftur. En ileiðtogar verkamanna
ásamt námaeigendunum voru kall-
aðir á ráðstefnu af ritara verka-
mannamála Wilson. En þar stóð
alt við ■ það sama sem áður var.
Verkamenn héldu fram kröfum
sínum óbreyttum um styttan
vinnutíma og 60 prct. ækkun á
kaupi. En námaeigendur sátu við
sinn keip. Að síðustu buðu náma-
eigendur að hækka kaupið um
til 20 prct, sögðu að það væri öll
sú hækkun sem þeim væri mögu-
legt að Veita. En verkamenn þver-
neituðií að ganga að slíku. pannig
stendur þetta mál nú. En um-
boðsmenn málsaðilja hefir nú Dr.
Garfield, umsjónabmaður elds-
neytis í Bandaríkjunum, kallað
fyrir sig til þess að reyna að
greiða fram úr þessum vandræð-
um. Og vonandi tekst honum að
ráða einhverja bót á, því alt útlit
er til þess, að málsaðiljar séu nú
farnir að skilja, að svo búið getur
ekki staðið mikið lengur.
19. þ. m. skeðu þau tíðindi, að
friðarsamningarnir ásamt lögum
alþjóða sambandsins voru feldir í
öldungaráði Bandaríkjanna, eftir
nálega árs stríð, sem byrjaði þeg-
ar Wilson forseti fór með föru-
neyti sínu til friðarþingsins á
Frakklandi og hefir haldið svo að
segja stöðugt áfram síðan, þar til
samningarnir voru loks feldir á
miðvikudaginn 19. þ.m.
Undanfarandi vikur og jafnvel
mánuði höfðu báðar hliðar verið
að búa sig undir þessa síðustu
kollhríð. Allar breytingar, sem
bornar höfðu verið fram í sam-
bandsþinginu, var búið að fella.
En leiðtogi Republicana, Henry
Cabot Lodge, bar fram fimtán
undanþágur (reservations), en gat
ekki fengið nógu mikið atkvæða-
magn til þes að koma þeim í gegn,
sem þurfti að vera tveir-þriðju
allra atkvæða í öldungadeildinni.
Atkvæðin stóðu þannig, að 41
voru með en 51 á móti.
pegar Demókratar sáu hvað
verða vildi, bar Oskar Under-
wood frá Alabama fram tillögu
um, að friðarsamningarnir séu
samþyktir óbreyttir. En sú til-
laga var feld með 53 atkvæðum
gegn 38. pannig var þá samning-
urinn feldur sökum þess, að hvorki
var hægt að fá hinn lögákveðna
meirihluta með samningunum ó-
breyttum, né heldur með undan-
þágum Lodge. Áður en þessu
þingi öldungaráðsins var slitið,
sem var gert þetta sama kvöld, bar
Senator Lodge fram þá tillögu,
að öldungaráðið lýsti yfir því, að
stríðinu við pjóðverja væri nú
lokið. Um uppástungu þá varð
ekki gengið til atkvæða, heldur var
henni vísað til nefndar þeirar, er
fjallar um utanríkismálin.
Að svo búnu, eftir alt þetta
stríð og þrátt fyrir ógæfu þá, sem
þessi málalok geta leitt yfir menn
og málefni, héldu senatorarnir
heimleiðis.— öldungadeildin kem-
ur aftur saman 1. desember og
getur forsetinn þá aftur lagt
samningana fyrir hana, en það
verður að likindum ekki til mikils,
nema því að eins, að menn breyti
afstöðu sinni þangað til.
í igærkveldi. Hann heflri verið
með leikaraflokknum, sem kvik-
myndar Sögu Borgarættarinar, en
skildist við hann í Reykholti fyr-
ir nokkru og kom suður hingað.
Nú er og leikflokkurinn allur
kominn hingað, og síðastliðna viku
hefir verið leikið hér, í Hafnar-
firði og inn við Elliðaár. Hefir
fjöldi manna héðfcn úr bænum
verið fenginn til að vera við sýn-
ingarnar og hús hafa verið reist
hér, aem eiga að sýna kirkju og
baðstofu í sveit.
Mrs. L. J. Hallgrímsson, kona
L. J. Hallgrímson hér í bænum,
var sfcorin upp við gallsteinum og
botnlangabólgu á almenna spítal-
anum af Dr. Brandson fyrir rúmri
viku síðan. Sjúklingnum heilsast
mæta vel og er vonast eftir að hún
geti farið heim til sín í þessari
viku.
Séra Friðrik Friðriksson er ný-
kominn heim úr för sinni til út-
landa, ætlaði ásamt Pétri Hall-
dórssyni bóksala að sækja bind-
indismanna fund á Finnlandi, en
þeir náðu jþangað ekki og kom
P. H.heim seint í ágúst, en séra F.
F. dvaldi til og frá í Danmörku
fram eftir september.
Hulda skáldkona, frú Unnur
Benediktsdóttir frá Húsavík, fór
til Englands með íslandi í gær og
verður þar, og ef til vill eitthvað
í Khöfn, næstkomandi vetur. —
Lögrétta.
Or bænum.
Hér með kvittast fyrir $5.00
gjöf til Jóns Sigurðssonar félags-
ins frá kvenfélaginu Freyja, að
Geysir P.O., Man.. — Mrs. P. S.
Pálsson, féh., 666 Lipton St.
Guðmundur Jakobsson frá Ár-
borg kom til bæjarins í vikunni;
hann sagði að á föstudaginn var
hefði verið helli rigning þar norð-
ur frá í þrjár klukkustundir.
í síðastliðinni viku varð Frú
Lára Bjarnason fyrir því slysi að
detta á götu og meiða sig töluvert.
Hefir hún legið rúmföst síðan, en
þó í afturbata, og er það hinum
mörgu vinum hennar til sannrar
ánægju að eiga von á að hún verði
jafngóð af þessu áfelli innan
skamms.
Dorkas stúlkurnar í Fyrsta lút.
söfnuði hafa ákveðið að halda mik-
inn og fjölbreyttan Bazaar í
sd.skólasal kirkjunnar miðviku-
daginn þann 3. des. næstkomandi,
kl. 8 að kvöldinu. Stúlkurnar hafa
þar afar fjölbreytta deild barna-
varnings ásamt mörgum öðrum
vörudeildum, og geta menn ekki
kosið neinn hentugri stað til þess
að kaupa jólagjafir sínar, en ein-
mitt þarna. Á Bazaar þessum
verður úr feykilega miklu að
velja af heimatilbúnum brjóst-
sykri—Candy. Auk þess verður
fyrirtaks* kaffi á boðstólum. Af-
bragðs hljóðfærasláttur skemtir
öðru hvoru alt kveldið, svo menn
geta reitt sig á að þar verður
reglulega glatt á hjalla. Fjöl-
mennið og styrkið með því hina
þörfu starfsemi- Dorkas stúlkn-
anna. Munið að Bazaar þessi
hefst stundvslega kl. 8 síðd. mið-
vikudaginn 3. desember.
Alvönimál.
Jón skáld Runólfsson hefir tek-
ið að sér að innheimta fyrir Lög-
berg hér í bænúm og býst við að
byrja mjög bráðlega. Vér von-
umst eftir að viðskiftavinir blaðs-
ins greiði götu hans sem bezt þeir
geta.
Gefin saman í hjónaband'þ. 22.
nóv. 8.1., voru þau Jón porsteinn
Eyjólfsson og Misis Guðrún Ingi-
björg Johnson, bæði til heimilis
við íslendingafljót. Brúðguminn
er sonur Gunnsteins sál. Eyjólfs-
sonar og konu hans Guðfinnu Ei-
riksdóttur, en brúðurin er dóttir
Mrs. Jórunnar Johnson í River-
ton. Séra Jóhann Bjarnason fram-
kvæmdi hjónavígsluma og fór hún
fram á heimili hans í Árborg. —
Framtíðarheimili ungu hjónanna
verður við íslendingafljót.
Lesið vandlega auglýsinguna
frá Brunswick Phonograph Shop,
Ltd., sem birtist í þessu blaði.
Menn geta reitt sig á lipur og á-
reiðanleg viðskifti. iHinn góð-
kunni landi vor, Lieut. Alfred W.
Albert, stjórnar verzluninni.
Flokksþing verkamanna flokks-
ins í Bandarikjunum er verið að
halda þessa dagana í Chicago, til
þess að útnefna forsetaefni til að
sækja undir merki hans við næstu
forsetakosningar í Bandaríkjun-
um, sem fram eiga að fara 1920.
pessir eru taldir lfclegastir: —
Frank Walsh, Samuel Gompers,
Max Mayer, Lynn Frazier (ríkis-
stjóri i North Dafc.), Glenn Plumb
og Hiram Johnson frá California.
Prófessor Sveinbjörnsson er
megtur tónsnillingur, sem islenzka
þjóðin hefir nokkru sinni eignast.
Hann heldur samsöng í Fyrstu lút.
kirkjunni íþriðjudagsfcvöldið 2.
des. næstkomandi. Islendingar
hér í borg gera ekki skyldu sina
nema því að eins að kirkjan verði
þétt skipuð. Munið að útvega yð-
ur aðgöngumiða , í tæka tíð hjá
Finni Johnson bóksala. Sími:
Sher. 1470.
Eins og öllum Vestur-íslending-
um er kunnugt, þá hefir Jóns Sig-
urðssonar félagið tekið að sér að
gefa út minningarrit um íslenzka
hermenn, sem tóku þátt í striðinu,
og er það ekki að eins Iofsamlegt
verk, heldur bráðnauðsynlegt.
En eins og öllum er skiljanlegt,
eða ætti að minsta kosti að vera
ljóst, þá getur félagið þetta ekki
nema með aðstoð hermannanna
sjálfra eða aðstandenda þeirra,
því að upplýsingar, sem eru nauð-
svnlegar til þessa verks, eru hvergi
annars staðar að fá.
Og það virðist, að hlutaðeigend-
ur ættu að vera fúsir til að veita
íélaginu alla þá aðstoð í þessu
máli, sem þeir geta í té látið. Pað
virðist svo, sem þeir ættu að finna
það skyldu sína, að veita Jóns Sig-
urðssonar félaginu alla þá aðstoð
er þeir geta, til þess þetta þarfa
verk geti gengið sem greiðast og
orðið sem fullkomnast.
Nú eru það vinsamleg og einlæg
tilmæli félagsins til allra hlutað
eigenda, sem ekki hafa sent því
upplýsingar í þessu sambandi, að
gjöra það sem allra fyrst. Drátt-
ur og hugsunarleysi í þessu sam-
bandi seinkar fyrir útgáfu ritsins
og gerir útgáfunefndinni svo ó-
endanlega erfitt fyrir.
Eins og f jölda mörgum er kunn-
ugt, þá hefir útgáfunefndin látið
prenta blöð með spurningum þeim,
sem hún áleit að þyrfti að svara.
Pessi blöð hefir hún sent til manna
í bygðum tslendinga sem hún
treysti til þess að hjálpa verkinu
áfram hver í sínu bygðarlagi.
Peir af þessum mönnum, sem
enn hafa ekki sent upplýsingar
um alla, sem í herinn innrituðust,
bver í sínu bygðarlagi, eru beðnir
að gjöra það hið allra bráðasta.
Eins er áríðandi að öllum spurn-
ingunum, sem á eyðublöðunum
eru, sé svarað rétt, t. d. er ein
spurningin á þessu blaði, hvar á
íslandi foreldrar hermannsins séu
fædd. Sú spurning er sett fram
til þess, að geta ættfært hlutað-
eigandi hermann á íslandi, og er
því ekki nóg að segja, að þau séu
fædd á íslandi, heldur þarf að
taka fram fæðingarhrepp og sýslu.
En það er ekki að eins úti í ísl.
bygðunum, að fólk hefir verið
seint á sér að svara, heldur líka
hér í bænum, þar sem fólki
ætti að vera þetta innan handar,
ef að eins það hugsaði út í það.
Ef eitthvert nafnið skyldi vanta í
bókina, þegar hún kemur út, þá má
ekki kenna Jóns Sig. félaginu um
það, því það hefir gert skyldu sína
í því efni.
ljós, nema að litlu leyti, en skól-
anura borist nú þegar borist bæði
peningar og hljómþýðar raddir.
Læt eg hér birtast sum vingjarn-
legu orðin.
Frá Langruth: Eg óska skól-
anum allrar blessunar og mun
mæla með honum við hvert tæki-
færi.”
Frá kvenfél. Kristnes-safn.:
“Gjöfin er send af hlýjum hug,
sem við allar berum til skólans.”
Frá íslenzka kvenfél. í Glenboro:
“Eg sendi hér með afmælisgjöf
til Jóns Bjarnasonar skóla. Með
beztu heillaósfcum.”
Frá konu við Riverton, Man.:
“pú átt þökk skilið fyrir að
minna á fæðingardag vors látna
bróður og leiðtoga (séra Jóns. sál.
Bjarnasonar). Auðvitað ættu öll
verkin, sem eftir hann eru, að
gjöra hann ógleymanlegan líkt og
Passíusálmarnir gjöra okkur Hall-
grím Pétursson ógleymanlegan. —
Eg óska skólanum alls góðs og
drottins blesunar í Jesú nafni. Eg
vona að hann blómgist og.blessist
fyrir nafnið sem hann ber.”
Frá konu í Selkirk: “Eg legg
hér gjöf til minningar um afmæli
ofckar elskaða vinar og kenniföð-
ur, Dr. Jóns Bjarnasonar. — Með
hjartans óskum til skólans.”
Frá Lögbergi, Sask.: “Eg er
byrjaður að safna og hefir mér
orðið býsna vel til með peninga.
Eg gjöri ráð fyrir að vera búinn
að finna flesta hér í kring í
næstu viku.”
Við þetta bæti eg svo orði, sem
öldruð kona langt vestur í Sas-
katchewan sendi mér snemma í
haust ásamt gjöf til skólans. Hún
sagðist vona, að hann væri kristn-
asti skólinn í Manitoba. Aldrei
hefir komið fram fegurri ósk við-
v'íkjandi skólanum. Sannarlega
dýrðlegt takmark fyrir hann til að
fceppa að.
Fjársöfnun í Winnipeg.
Rétt um þessar rnundir er hafin
fjársöfnun í Winnipeg. Vér bú-
umst við hinum beztu undirtekt-
um. öllum getur skilist það, að
skólinn þarf peningalegan styrk á
hverju ári. Hann lifir ekki alt af
á því sem einhver hefir gefið hon-
um einhvern tíma fyrir löngu síð-
an. Hver einstaklingur þarf fæðu
sína á hverjum degi. Skólinn þarf
árlegan styrk. Allir sem unna
málefni skólans, styrkja hann af
fúsum og glöðum huga, og ef allir
gjöra það, er hann ekfci tilfinnan-
leg byrði á neinum. Takið vel
þeim sem til yðar koma og greiðið
götu þeirra fljótt og sanngjarn-
lega. Enginn gjörir það sem hann
ekki getur, en ef allir gjöra sann-
gjarnlega eftir ástæðum, fer alt
vel.
R. Marteinsson. '
Frá Gimli.
Miss Kristjana ólafsson, dóttir
Chr. Olafssonar lífsáb. umboðsm.,
er nýkomin til New York borgar
austan úr Evrópu, þar sem hún
hafði gegnt hjúkrunarstðrfum
liði Bandarífcjanna um alllangt
skeið.
20. þ.m. lézt á almenna sjúkra-
húsinu hér i bænum konan Guð-
björg Guðmundsson, kona Einars
á brugðust ekki. En svo kom þar
í húsið maður, sem mér var lítið
kunnugur, en var samt sem áður
nokkuð skrafhreifur.
Og meðal annara orða segir
hann: “pað er farið að harðna í
búi hjá ykkur þarna á Betel.” —•
“Nú, það er skrítið, það hefi eg
aldrei heyrt,” sagði eg, "eg veit
ekki betur en að hver maður fái
nóg að eta og drekka eftir hvers
eins lyst af forsvaranlegum og
góðum mat, og stöðugt er ítrekað
að segja til ef nokkuð vanti á
eitthvert borðið eða hvort nokkur
vilji meira. Kaffi og sykur á
ákveðnum tímum hefir aldrei
brostið nokkurn dag, — um það
hefir blessuð nefndin þessarar
stofnunar séð að sú ágætis-hress-
ing fyrir okkur gamla-fólkið
skuli ekki bresta meðan hægt sé.
Og að sama skapi er þjónusta og
rúmfatnaður í góðu lagi. Og
hver getur þá með sanni sagt að
farið sé að harðna í búi á Betel?
“Og nú kemur til þinna kasta að
svara,” sagði eg að endaðri tölu
minni. “ó, blessaður, þetta vissi
eg altsaman áður” sagði samgest-
ur minn. — “pað var efcki það,
sem eg var að meina að farlð væri
að harðna í búi á Betel. Eg var að
meina þig, — að það væri farið að
harðna um í þínu andlega búi. —
Nú ertu alveg hættur að skrifa
greinar frá Betel, sem margir
vildu þó að ekki hætti.” — “Er það
sem þú meinar?” Sagði eg og hló.
“pað er nú nokkuð til í því, að
farið sé harðna um góða hluti í
mínu andlega búi, — því það er.
sannleikur þó að sorglegur sé, að
eftir því, sem maður verður eldri,
ellin færist yfir, — eftir þvf
verður maður heimskari,— eða
svo finst mér stundum. Eftir því
sem árafjöldinn verður meiri og
reynzlan fjölbreyttari, er eins og
maður smátt og smátt fái kalt
| vatn í blóðið,--- hinar mörgu
næmu og góðu tilfinningar kólni
og verði út á hjarni lífsins”
pegar eg var ungur (drengur)
sagði eg oft. “ósköp ertu vænn
og elskulegur Gvendur” (einn
af vinnumönnunum), og sama
fanst mér um flesta hina. —
Ósköp er hún Gunna skemtileg og
góð og gaman að hlusta á hana
tala og segja sögur. “Ósköp er
hún falleg þessi stúlfca, sem við
mættum þarna. Væri það ekki
gama að mega ganga við hliðina á
henni dálitla stund, heyra hana
tala og sjá hana brosa og hlæja?”
En nú er engin verulega elsku-
legur Gvendip1. Og engin veru-
lega skemtileg og góð Guðrún,
og fallegri stúlku mætir maður
svo sjaldan nú. Gleraugun , sem
að ellin gefur manni skýra svo
vel alla gallana, sem oss finnast
að séu, og misfellur, sem að æsku-
sjónin tók aldrei eftir--------.
Mér dettur í hug sagan af gömlu
jómfrúnni, sem að angurvær and-
varpaði frammi fyrir speglinum.
“Mikil skelfing er að vita til þess
hvað allir hlutir eru orðnir svik-
nir nú á tímum. Nú lítur maður
aldrei í almennilegan spegil,
eins og þegar eg var ung, þá
fluttust engir speglar, sem að
gjörðu mann svona hrukkóttan
og leiðilegan.
Auðvitað er fólkið nú, sem
maður daglega kynnist, og þefckir
yfirleitt, eins gott fólk og í gamla
daga, ef ekki á margan hátt betra.
En skuggsýnið, ' sem að ellin
færir yfir lætur mann oft sjá
bæði menn og hluti í meiri skugga
samt sjást gallarnir oft furðan-.
lega skýrt, og þar er eg ekki
frekar undantekning frá öðrum.
En um leið er eg þó sleginn á
munninn með þessu sannyrði.
“Ef vér sjálfir værum gallalausir
pannig líður mér oft ósköp vel.
— Eg sat á litlum hörðum stól,
sem var nær því eintrjáningur, og
hallaði mér í honum afturábak,
þnnnig að eg aðeins .tapaði ekki
jafnvægji.— Jafnvel þó þar eingu
megi muna.—pykir mér ávalt,
frá því eg var ungur, svo undur
gott og hrífandi að sitja þannig.
— minnir mann á jafnvægið og
hið litla bil á milli lífs og dauða,
1 ve f jarska litlu að munar stundum
— ekki aðeins þverhönd heldur
hundraðasti partur úr þverhönd.
Eg sit ekki jafnaðarlega' á
hörðum litlum tréstóli, af því
að ekki séu nógir stórir,
mjúkir og þægilegir stólar til hér
á heimilinu Betel. — Nei, kvenn-
félögin blessuð og einnig Dr.
Brandsson hafa séð fyrir þvl að
allir hér geta hvílt sig í mjúkum mundum við ekki eins oft tala um
sætum, sem það kjósa. — Já, eg Kalla hjá öðrum. Bjálkin og
sat þarna í stólnum, — Lofaði flísin ’ erú einlægt á ferðinni.
hökunni að heimsækja bringuna, Getum við sagað bjálkan í sundur
og horfði á tíglana á gólfinu. brent hann UPP tn agnf’
Hvað, þeir gátu verið reglulegir, ekk' a meðan andlega hart í búi
ekki munaði hálfum þumlungi, á hía b'num sömu.
öllu gólfinu, sem eg sá yfir. “Bara
ef að mennirnir, eg og aðrir gætu
verið svona grandvarir og hár-
vissir í allri góðri reglusemi ”
j hugsaði eg með mér. pá væri
Landar góðir, látið þetta ekki ga™an af fa' en fv0 datt
i hug að það væri nu gaman að lifa
samt.— Svo fór eg að hugsa
dragast lengur. Sendið þessar
upplýsingar tafarlaust til útgáfu-
nefndarinnar.
Jóns Bjarnasonar skóli.
Bréf hafa flogið út um allar
bygðir Vestur-íslendinga til að
minna menn á hina árlegu fjár-
söfnun til skólans. Árangur af
dálítið veraldlegar,— datt í hug
gott kaffi, og glóðheitar pönnu-
kökur með hvítasykri ofaná, og
þá þurfti nú ekki meira. — Eitt
af vinahúsunum mínum kom í
huga minn.... Eg stóð upp tók
yfirhöfn mína og húfuna og gekk
af stað.
Góðgjörðirnar, sem eg átti von
Svo enda eg þennan greinar-
stúf með innilegum óskum til
allra þeirra, sem eru svo lítil-
þægir og góðlátlegir að hafa
gaman af að lesa fáein orð sögð
héðan frá Betel-------.
Nú, en ef einhverjir eru þvert á
móti, sem vel getur verið, því
hugsanalíf mansins er mjög
breytilegt, — pá má eg ekki
gleyma því að eg á að elska
náungan eins og sjálfan mig, og
segi því hér með. “Guð blessi þá
einnig, hvort, sem það er piltur
eða stúlka, maður eða kona.”
Gimli. 15. Nov. 1919.
J. Briem.