Lögberg - 27.01.1921, Síða 2
Blss. 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN,
27. JANÚAR 1921
Jólablaðið.
Allir sjá Iþað, að miklu er til
kostað frá ihlutaðeigendum blaða,
að gefa út í tvöfaldri stærð blaðið
og vanda allan ytri frágang sem
hægt er, og að inniihaldi máske
ííka kostað töluverðu til að vera
sér úti um skemtandi og fræðandi ^
ritgerðir og kvæði frá færustu
mðnnum, sem hægt er að ná til.
Er það þá ekki þess virði, að ■
þessara jólagjafa, er eg ímynda
mér að sé verðmætari og fagrari/
en flestar aðrar, sem gefnar eru
á þessari helgu hátíð, jólunum, sé
að einhverju leyti hlýlega minst?|
Og í öðru lagi, þar sem þessi gjöú
aðallega inniheldur andlegt ljós
og líf kærleika og fagrar hugsjón-|
ir, þá er það í mínum augum ófyr-
irgefanlegur amlóðaskapur og
hugsunardeyfð í andlegri mynd,
að enginn lætur til sín 'heyra op-
intbert þakkarorð.
Eg er ekki manna íærastur til
að ganga í gegn um allan fróðleik
og hugnæmar sögur og kvæðin,’
sem jólablað Lögbergs nú flutti
og gaf kaupendum sínum, enda er
það ekki tilgangur minn með þess-
um línum. En svo mikill amlóði
og vesalingur er eg tþó ekki, að eg
fyrir minn part ekki viiji færa út-
gefendum blaðsin8 kæra þökk
fyrir þetta síðasta jólablað eins
og öll önnur jólablöð, sem ætíð
ihafa verið myndarlega af höndum
leyst.
pað væri máske bezt, að eg léti!
hér staðar nema, en mér þykir það
©f snubbótt, úr því eg á annað
borð tók mér penna í hönd, þari
eru sumir menn og verk þeirra,;
sem eg get ekki gengið fram hjá
þegjandi
pá er fyrsta síðan. Jólin eru1
allatið gleðiihátíð, en þau geta líka1
oft og einatt verið sár sorgarhátíð'
í þeirri merkingu, þar sem alls-j
leysið og .hrygðin hafa bólfestu,i
og því sárari verða tilfinningar fá- j
tæklinganna, sem lí kuldanum og
hálfrökkrinu hýrast, að vita aðra
baöa sig í sólarljósi jólagleðinnar!
og alls sællífisins, en eiga ekki
annað en eymdina við að búa sjálf.1
í annari merkingu er það, aðí
fyrsta síða þessá 'blaðs færði öll- j
um kaupendum sínum gleði og
sorg með Iiáti og minningarorðum
um séra Matthías. Ekkert skáld
efir verið elskað jafn einlæglega
sem hann. En hann var á svo há-j
um aldri, að engum kom á óvart
að f'rétta lát þes mikla skáldmær-
ings. Og því varð mér að orðij
þegar eg leit á fyrstu síðu blaðs-j
ins: parna or bæði sorg og gleði.1
Sorg að missa það skáldið, sem eg1
aila mí»a daga hefi unnað mest. j
Og gleði, úr því hann er látinn, að^
hann skipar öndvegissætið á
vönduðustu útgáfu blað'sins, með
mynd af honum hálf níræðum.
pað var sú sérstaka list, sem
hélt séra Matthíasi í huga mínum
hærra uppi en öllum öðrum skáld-1
um, að hann var skálld fyrir alla,1
Og til sannindamerkis í þá átt skal
eg benda á — svo enginn geti í-
myndað sér, að eg sé nú að honum
látnum að leggja þetta ofan á alt’
annað, sem um hann er sagt — að'
eg fyrir mörgum árum ritaði grein, i
þar sem eg tók höfuðskáldið á ís- j
landi, séra Matthías, og höfuð-1
skáldið okkar Vestur-fslendinga,
St. G. -Stephansson, og Kkti báðum
við gæðinga. pað var sinn háttur:
a hvorum, en báðir voru afburða-
gæðingar, og báða þekti eg vel.
Feti var afskaplega skapstór, og
fjörið svo að að eins sárfáir menn
gátu með hann höndlað. Aldrei
hægt að teyma á honum hest eða!
að hsi'a nokkura skemtun í -sam-,
ferð, því ef hann fór hraðara en1
hægan gang — fet fyrir fet — þá
var hann rokinn. En aldrei hefirj
trausteri gæðingur stigið fæti ái
íslenzka mold en -hann, og aldreij
misti hann fót, hvort heldur hel-'
urðin var fyrir eða ófær fen, og
aldrei þraut hann, í hvaða raun
sem hann var lagður, þó þing-j
mannaleiðum skifti; vöðvar han-s'
voru sem stál og allur vöxtur'
Ijómandi fagur. petta var stór-
skáldið St. G., og mig minnir eg
fengi skammavísu fyrir þá rétt- \
ustu lýsing ef til vill, sem nokkur!
maður hefir honum gefið. — Grani
var allra gæðinga mestur og fríð-
astur, sem eg hefi séð, og var
nærri því eins og hann vissi af
því sjálfur, því hvar sem hann
stóð í ihóp annara, þá bar hann sitt
ftíða höfuð ýfir alla og eg held
hann hafi hugsað sem svo: Hér
er enginn, sem gatur í listum jafn-
ast á við mig. Ef barn eða ung-
lingur sat á honum, þá fór 'hann
ekki feti framar en þar sem hann
átti að vera, hversu stór sem sam-
reiðin vaú Og aldrei hefi eg
séð fagrari sjón, en þegar fríð og
fönguleg kona sat á Grana, þá
reglulega dansaði hann á hreinu
skeiði svo yndislega, að enginn
gæðingur getur gert betur. En
ef karlmaður lagði hann í soll og
kappreið, þá var því líkast, að eld-
ur brynni úr augum hans, og þá
gat hann eki unt neinum rúm hon-
um framar. Hann var þessi óvið-
jafnanlegi gæðingur fyrir alla,
sjúkan mann, barnið, konuna og
berserkinn í jötunmóði. petta var
séra Matíhías hjá mér þá, — þessi
óviðjafnanlegi skáldagæðingur
fyrir alla. Nú er sá elskulegi mað-
ur liðinn og þökk sé drptni fyrir
æfi hans meðal vor og alt þaðj
mikla, sem eftir hann liggur; en;
trauðla skapast slíkir menn nokk-j
urri þjóð nema á margra alda'
fresti.
í sambandi við þetta vil eg einn-
ig færa ritstjóra Heimskr. kæra ■
þökk • fyrir minningarorð hans í:
því blaði, þau voru ljómandi góð,
og þar skipar séra Matthías
sama^öndvegið.
pá verða fyrst fyrir mér sög-
umar. pær eru allar góðar, hver á
sinn hátt, og eiga göfgandi, kær-
leiksyl. En einna mest þykir mér
varið í söguna Guðs gjöf eftir O.
T. Johnson; hún er svo átakan-
lega sönn mannlífsmynd á -þessari
friðarins og gleðinnar hátíð. par
er stórlætið og hégómaskapur og
tilhlakkan fyrir eigin hagsæld og
fylling allra vona hjá ríku frúnni,
sm að eins talar um annara breisk-
Jeika til að -sýnast dánukvendi
sjálf, en gerir enga tilraun til að
bæta úr mannlífsneyðinni. Og
því er ver og miður, alt of mikið er
af þeim falska málmi til einnig í
okkar eigin íslenzka þjóðfélagi, að
sýnast, en vera einskis virði, ef á
reynir. Sýnast einungis fyrir
augu mannanna.
KaldJbrynjaði lögregluþjónninn,
nefbrotni, með úfna hárið og
skeggið, hann átti hreint og ógall-
að 'hjarta og hann vi-ssi hvað frið-
ar og fagnaðar boðskapur jólanna
meinti; hann gaf ekki grænan
eyrir fyrir heimsálit eða augu
mannanna; hann gerði sitt fagra
jólanæturstarf fyrir gleði guðs,
s-em allsstaðar átti þá að skína, og
fyrir sitt eigið hjartalag og kær-
leikshvöt. pað eru ekki allar
ástir í andliti fólgnar, mátti segja
hér um; svo vill það oft reynast.
pað‘ er hjartalagið en ekki glysið
á yfirborðinu, sem vigtar mest. —
petta minnir mig á það, sem kona
heima á íslandi sagði við mig fyr-
ir æfa-löngu. Hún var ófríð sjálf
en bráðskynsöm sem bræður henn-
ar, Dr. Guðbr. Vigfússon og Sig-
fornfræðingur. Hún sagði: —
“Miklir fjandans aular eruð þið,
karlmennirnir; þið spyrjið aldrei
um neitt viðkomandi stúlkunum,
annað en 'hún hafi fallegt andlit.
En aldrei um sálina eða 'hjartalag-
ið. En það megið þið þó reiða ykk-
ur á, að andlitinu getið þið vanist,
ef sál og hjarta er gott inni fyrir.
Og andlitsfegurðin varir skamt,
ef sál og hjarta- vantar.”
petta eru spakmæli, sem hver
ógiftur maður ætti að athuga.
Eg fer fljótt yfir sögu, þar sem
kvæðin koma; þau eru að eg hygg
svo jafngóð og laglega kveðin, að
þar er mjórra muna vant. par er
skáldið Jón Runólfsson með lista-
verkið sitt, sem hann ætlar áreið-
anlega að Ijúka við, áður en drott-
inn tekur hann til sín heim. En-
ok Arden eftir Tennyson er stór-
virki og Jón verður frægur af að
kveða það í íslenka þýðing pví
ekki er að efa djúpan skilning|
hans á skáldskap, og allra manna
vandvirkastur er hann. — Með
allra beztu kvæðum K. N. er þetta
í blaðinu: \’“Með Sankti Kláusi”.
par er hlý tilfinning og laglega
frá gengið. pað -hefði verið prýði
í bók hans. Hin kvæðin eru öll
góð, en langmestur tilþrifa skáld-
skapur er hjá Guttormi J. Gutt-
ormssyni og þarf ekki nema benda
á síðasta erindið:
Ritar á nftallir og svellin sól
Sólgeisla fjaðurpenna:
Komin sé niður af stjörnustól,
-Stigin ofan frá Guði jól,
Húmkolum heims að brenna
pá kemur það, sem eg kalla fróð-
leik, eða máske bæði skemtun og
fróðleik: “Nokkrir alþýðu fræði-
menn og mentavinir í Borgarfirði”
crftir Halldór Daníelsson Eg hefi
engar athugsemdir þar við að
gera. Halldór er svo skýr mað-
ur og fróður, að hann á fáa sína
líka hér meðal vor vestra. Mér
þykir vænt um‘þann mann og alt
sem hann ritar. pessir gömlu,
skýru fróðleiksmenn sem hann og
hans líkar eru oss bæði til gagns
og sæmdar og enginn getur um
það sagt í framtíðinni, hversu
mikils virði -gæti orðið að byggja
á orðum þeirra og frásögn. Vér
erum bráðum fallnir úr sögunni,
gömlu íslendingarnir, og allir
peir sem enn uppi standa og eiga
fögur sagnagull í fórum sínum,
ættu að leggja þau fram sem fyrst.
Enginn veit hvenær kallið kemur,
og því bezt að geyma það ekki
morgundeginum, sem hægt er að
gera í dag. Svo þakka eg Hall-
dóri mínum fyrir allan fróðleik
hans.
pá kemur skáldið J. Magnús
Bjarason. Maðurinn, sem ávalt
er fremstur og fyrstur í huga mín-
um. Maðurinn, sem eg ann meira
en nokkrum öðrum Vestur-íslend-
ingi, og líklega allur fjöldi af
oss hér vestra segði þaíj sama, ef
ekki skorti djörfung og hrein-
skilni þar til. “peim var eg verst,
er eg unni mest”, sagði Guðrún ó-
svífursdóttir. Sama er með Vest-
ur-fslendi-nga í garð J.M.B. En eg
bið 'hann að taka ekki orð mín í of
þröngum skilningi. Eg á ekkert
við greiðasemi og peninga'hjálp,
sem er gott og blessað og þakkar-
vert fyrir fátækt skáld og ágætis-
mann að þiggja, þegar göfugt og
gott hjarta stendur á bak við.
Mínar kröfur kröfur ti'l Vestur-
íslendinga gagnvart skáldinu eru
þar langt fyrir ofan. Eg hefi ald-
rei mælt J.M.B. á spannarkvarða.
Hæð hans og dýpt er þar öll ofar í
andlegum skilningi. pað er -heið-
ur ©g virðing, sem vér skuldum
honum, hann á ítök í huga og
hjarta allra góðra Vestur-íslend-
inga, og hefir aldrei k-omið fram
á sinni löngu skáldskapar og
mentabraut öðru vísi en sjálfum
sér og öðrum til sæmdar og gleði.
Og sannfærður er eg um það, að
enginn Vestur-íslendingur yrði
oss jafn harmdauða og hann, ef
hann félli frá á nálægri framtíð.
pví þá ekki -að auka veg hans og
virðing á meðan da-gur er á lofti?
Ekkert verður gert, sem gagn er
að, þegar nótt og myrkur er á
dottið — myrkur dauðans; hví
eki að auka gleði hans og heiður
með#því að gefa út öll hans miklu
og góðu skáldskapar verk? Eftir
hverju eru Vestur-fslendigar að
Magnús Bjarnason langt á undan |
hæfileikum, -standi skáldið J.j
bíða, sem eru þó svo stórlátir, að j
varla má í mitt hóf við þá mæla. -
Eru þeir að bíða eftir því, að elsku'
iegasta skáldið og gæðamaðurinn,
sem þeir nokurn .t'íma hefðu getað
eignast, og allrei verður í flokki
vorum hér vestra hans jafningi á
íslenzka tungu. Eru þeir að bíða
eftir því, segi eg, að skáldið velti
út af áður en þeir eru búnir að|
nugga stýrurnar úr augunum, áð-l
| ur en -þeir sýna honum verðskuld-
aðan sóma? Ætli sá verði ekki!
endirinn? Skáldið skrifar mér í
j síðasta bréfi meðal annars þessar
línur:- “Misjafna dóma hafa
greinar þær fengið, sem eg sendi í
! j-ólablað Lögbergs. Nokkrir hafa
! þó talað vel um þær.” Mér er sem
; sagt ómögulegt að skilja í því, að
nokkur skuli geta sett út á þær-
greinar. peir eru valdir en ek-kij
taldir meðal vor vestra, sem hafa!
svo víðtæka þekking og djúpan
I skilning á skáldum yfirstandandi
! og liðíns tíma, að þeir með fullum
rökum geti út á þær greinar sett.
I Eg skal ekkert um það deila, það
j er langt fyrir ofan iriína þekkingu.
j En gaman hefði eg af að sjá frá
j þeim sömu mönnu-m listfengari og
j betri frásögn. Eg hugsaði og
i hugsa enn, að á þessu svæði, sem
j um er að ræða, og öllum sviðu-m
; skáldsagna íþróttar og ritsnildar
Taugarnar
allar í ólagi.
Taugarnar allar í ólagi.
“FRUIT-A-TIVáS” UNNU SIGUR
Á TAUGAVEIKLUNINNI.
R. R. No. 4, Gilbert Plains, Man.
Árið 1910 þjáðist eg af tauga-
veiklun verstu tegundar og léttist
úr 1 0 pundum ofan 1115 pund.
Læknar hö.fðu mist alla von um
bata mér til hand-a, eg reyndi
árangurlaust fjölda meðala, þar til
eg fékk “Fruit-ai-tives”.
Mér fór þá undár eins að batna
og er nú hrautari en nokkru sinni
áður. Eg hefi “Fruit-a-tives
ávailt á heimilinu. J. S. Delgaty.
50e. hylkið, 6 fyrir $2,50,
reynsluskerfur 25c. Fæst í öllum
búðum eða beinf -frá Fruit-a-tives
Limited, Ottawa.
HEIMSINS BEZTA
MUNNTÓBAK
COPENHAGEN
Hefir góðan
keim
Munntóbak sem
endist vel
Hjá öllum tóbakssölum
öllum hér í vorum íslenzka þjóð-
flokki.
í þakklætisskyni fyrir jólablað-
ið sendi eg Lögbergi línur þessar,
sem eg vona að ekki þurfi að valda
stórri ádeilu og vanvirðulaust sé
fyrir hvert blað að flytja.
Lárus Guðmundsson.
Islenzku hermennirnir og þeir
sem níddu þá.
Eg -þekki marga’ er mæla hátt
og mikla eigin kosti,
en annars er það furðu fátt,
sem fegrar þeirra rosti.
Og aðra menn þeir ofur skjaldan skilja
og sköpin iþeirra sáru yfir hylja.
Og oft þeir þessum ódrengsorðum inna:
Á eg að gæta systra, bræðra minna ?
Eg þek-ki marga’ er mæla djarft
og miklast feðra hreysti af.
Þeir lofa þá, sem hjuggu hart
svo helsár lag hvert gaf.
Því sá, er hefndi sárra svívirðinga
—4 sögum vorum meðal íslendinga,
er settur hátt og sæti veglegt á,
á sögubekknum, andans köppum hjá.
Og það er vel. Þeir voru menn
og víst má kappa tigna,
en víkinga á Island' enn,
sem ei í raunum digna.
Þeir hefndu marga sárra svívirðigna
og saga strjðsins man þá íslendinga.
En þegar Stefán pappír bleki bleytti
þeir iblóð sitt gáfu; frið þeim drottinn veitti.
En einmitt þá eg ávalt man,
sem áttu þrek í stríði
og þeirra minnir sál á svan,
er syngur heims mót níði.
Þeir litu í annars barm og skildu skjótt
hve skelfileg var mörgum stríðsins nótt,
þeTrn, sem að voru sviftir friði og frelsi,
frjálsbornir menn, sem þrælsmund óf á helsi.
Þeir áttu einnig íslenzkt blóð,
þótt annað land þá fengi,
en betri æsku á engin þjóð
en einmitt þessa drengi.
Þeir litu Belgi og Frakka heillum horfna.
Þeir hétu að sjá þá frjálsa, endurboma.
Sú hugsjón fögur þeirra sál var sól,
þótt sæu þeir ei framar heimaland-s jól.
Og þeirra nafn í heiðri haft
-skal hér um alla daga
og tengja við það kyngikraft
in kanadiska saga;
hver Aióður hugsun minning þeirra geymir;
hver móðir ávalt skilur, aldrei gleymir.
Þær líf þeim gáfu; gáfu þá i dauðann,
en Guð var hjá þeim, fylti bekkinn auðan.
Þótt Stefán yrki og stuðning fái
og stundarhrósið íslendinga
og þótt þeir lasti, þótt þeir lái,
eg lofa þessa drengi slinga.
Eg tel þá meðal íslands mætu manna,
mætustu og beztu, ’er lutu því sanna.
Fjallkonan gamla! “Minning þeirra málar
morgunsins roða himin þinnar sálar.
A. Th.
Bæn.
Lífsins faðir: Lát mig finna
ljóss þíns magn í sál og hjarta,
finna hita handa þinna,
hingað — gegnum skugga svarta.
Lát mig finna lífsins gleði
Ijúfa og sanna í trú og verki;
auktu von í veiku geði,
vertu hjá mér, þú, hinn sterki.
1 Lifsins herra; lát mig deyða
lágar hvatir sálar minnar,
láttu trú í sál mér seiða
sólskin, b’íðu ástar þinnar.
Gef mér kraft að kremja ið lága
kross þíns sonar helgan við;
gef mér styrk að steypa og fága
-stoðir 1-ífs míns. Véit mér lið.
Veit mér lið og ljóss þíns bjarma
láttu signa hverja þrá,
svo eg fái huggað harma
livers og eins, er sorgir þjá;
svo eg bræðrum mínum megi
ntildi þinni segja frá.
Faðir: Þeim að vera á vegi
varða lítil er mín þrá.
1921.
A. Th.
Til hvers.
Til hvers er alt vort strit og stríð
og starf í þessum heimi,
ef þjá’r oss Erill alla tíð
með Óánægju á sveimi?
Ef seðja munn og maga
er mark þitt — hundsnafn ber.
Hve mun þá sögð þín saga,
ef sál þín Mammons er?
Til hvers er alt vort strit og stríð:
Að stefna að háu marki,
að líkjast Illuga’ alla tíð,
en aldrei þrælnum Karki.
Að seðja hugans hungur
og hjartans hlýða raust,
að vera alt af “ungur”,
þó ára komi haust.
Til hvers er alt vort strit og strið?
er strengur -bogans hrekkur
og einhver Langbrók, lymsk en fríð
er lokkánísk? Þinn bekkur
er inst í sögu-salnum
og sál þína ísland man. -—
Lif ei sem valska í valnum,
ó, vinur, líkstu svan.
Til hvers er alt vort strit og stríð?
Að “stækka" unz hjartað brestur. —
Að vera íslands alla tíð
og íslands sonur beztur
sé okkar fegurst mark og mið
og mátt vorn stæli og ylji,
því íslenzkt blóð á íslenzkt lið,
þó Atlanzhafið skilji.
Lciðrctting í kvæðinu “Til stúlku”
mýkri; eldfold, les: eldflóð.
A. Th..
myrkri, les:
Frá Islandi.
Séra Eiríikur Gíslason lézt að
heimili sínu, Stað í Hrútafirði þ. j
19. des. snemma morguns eftir j
stutta legu í inflúenzu. - Séra Ei- J
ríkur heitinn var fæddur 14. marz!
1857 að Reynivöllum í Kjós. Varðj
hann stúdent árið 1878 og candí-!
dat frá prestaskólanum árið 1880.!
Hann vígðist að Lundum í Borgar-,
firði og var þar prestur í nokur ár, |
en fluttist þaðan að Staðarstað, en j
síðar varð hann prestur á Stað í ;
Hrútafirði og þar dvaldi hann til j
æfiloka. Prófastur var hann í all- j
mörg ár og póstafgreiðslum'aður.
Séra Eiríkur var hinn mesti fyrir-
myndarmaður og vel virtur af
söfnuðum sínum. Kvæntur var
hann Vilborgu Jónsdóttur frá
Auðkúlu og lifir hún mann sinn
ásamt þremur -börnum þeirra
hjóna.
Að norðan er þetta skrifað —
“Haustið ihefir verið óvenjugott,
samanhangandi blíðviðri út allan
októbermánuð, þar til í byrjun
nóvember. Síðan hefir hálfgerð,
kuldatíð verið og snjóað öðru j
hverju lítilsháttar, en ekkert aðj
mun. í Skagafirði befir tíðin ver-j
ið betri, að eins snjóað lítið eitt í
fjöllin. Töluvert brim hefir verið
fyrir utan upp á síðkstið. Komið
hefir til mála að Goðafoss yrði j
virkjaður, og Akureyringar fengju j
rafmagn þaðan, en líklega munu
þeir heldur taka Glerá. Bárdæl-1
ingar hafa mikinn á’huga á því að
Goðafoss verði virkjaður. Hafa
þeir ihaft málið til umræðu á
sveitafundi og gert sam-þyktir þar
að lútandi.”
Bæjarfógeti kvað upp dóm í gær
yfir þeim mönnum, sem ákærðir
voru fyrir að Ihafa ætlað að sökkva
mótotbátnum Leó, eða hafa ábata
af því verki. Voru þeir allir dæmd-
ir sekir, svo sem hér segir: Hall-
grímur Finnsson skipstjóri báts-
ins var dæmdur í 'þriggja ára betr-
unarhússvinnu. Geir Pálsson
trésmiður var dæmdur í betrunar-
hússvinnu í tvö ár og ser mánuði,
og Elías F. Hólm cfæmdur í betr-
unafhús vinnu til tveggja ára. —
Eigi höfum vér frétt -hvort málinu
verður áfríjað.
KOL!
• •
KOL!
Vér seljum beztu tegund af Drumheller kolum,
sem fæst á markaðinum. KAUPIÐ EITT TONN
OG SANNFÆRIST.
Thos. Jackson & Sons
Skrifstofa, 370 Colony St. Símar: Sher. 62-63-64
KILLS
CTANPARD
ESRMaldeHYPI
Veitið útsœðinu samvinnu.
með
Útsæðið viíl vinna yður gagn — vinna yður penigna
framleiðslu mikilllar uppskeru.
Vei-tið því samvinnu yðar. Stuðlið að því að verja það gegn
öllum þeim agnúum, -sem hindrað geta vöxt iþes-s o-g viðgang.
The Standard Formaldeihyde aðferðin, áður en plantað er,
snardrepur myglu í útsæðinu, svo það fæil ólhindrað tækifæri til
þess að vaxa og verða hreint og hraust.
Pantið 2 punda, 5 punda eða 10 punda krukkur frá kaup-
nrtanni yðar strax í dag. *
Standard Chemical Co., Limited
WINNIPEG
MONTREAL
TORONTO
bUivGl-AK-PKOOF
Mr. GOPHER þykir hveiti vætt í “Gophercide” ljúffengt;
hann gleypir það í sig og því nær bráðdrepst.
ophercide
Drepur Gophers Altaf
Leysa skal upp pakka af “GOPH-ERCIDE” í hálfri -gallónu
heits vatns (enginn þarf edik eða sýru), vætið gallónu af
hveiti í blöndunni og fylgið fyrirsögninrii utan á pakkanum.
Fáið “GOPHERCIDE” hið ekta—1hjá
lyfsalanum eða kaupmanninum yðar.
—Fundið upp af
NATIONAL DRUG AND CHEMICAL COMPANY
OF CANADA, LIMITED
Montreal, Winnipeg, Regina, Saskatoon, Calgary, Ed-monton,
Nólson, Vancouver, Victoria og í Austurfylkjunum.
BLUE ribbon
te
Góðar húsmæður gæta þess vandiega, að tiltaka
BLUE RIBBON þegar þær panta sér TE. Pað gjöra
þær vegna þess þær vita, að þá fá þær bezta Teið,
sem til er á markaðinum á lægsta verði sem hægt er
aö selja gott Te fyrir.
Ekkert Te er til í Canada jafri gott og drjúgt eins
og BLUE RIBBON TE.