Lögberg - 02.06.1921, Blaðsíða 3

Lögberg - 02.06.1921, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 2. JúNf, 1921. S lllllllllllllillllllliliþ Sérstök deild í blaðinu iniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiw^ HMinHi:M!i!iaii:i!Mi!!i:«i'>i»':'iM-:iiiMii«iiKi SOLSKIN Fyrir börn og unglioga ■ •iiiiiBiii iuiiuiiiiiiiiiiniiiii k: ■iM'.HlK Egill. Eftir John Lie. « Soga frá Þelamörk. AÖ liálfum mánuði liÖnum verður verðlauna- lilaup. Læknirinn veitir há verðlaun drengjum fyrir skíÖalilaup. Eg þar ekki að hugsa mér að niá í verðhmnin ef Larfi verður 'þar. 1‘aÖ þyrfti að gera Honum^rikk, svo að hann saeti heima hugsaði hann. Egili rendi sér öðru sinni. Níels stóð skamt fyrir ofan hengjuna. líann lézt missa annað rfkíðið, og það rann á ská niður brekkuna. Hann hafði reiknað ferð Egils og vegalengdina svo nákvæmlega, að skíðið og Egill mættust á hengju brnninni. Það var of seint fyrir Egil að víkja til ldið- ar, og ómögulegt að stöðva sig á svona mikilli ferð. Skíöið rann á milli fóta honum. Hann hringsnérist í loftinu, og stakst á endum ]>egar niður kom. Þeir heyrðu skerandi liljóð, og svo lá hann hrevfingarlaus. “Meiddurðu þig,” 'köHuðu drengirnir, til hans. Hann svaraði ekki, og lireyfði sig ekki. Niíels iglotti við. “Laibba tetuf Labba skinn skyldi hann hafa brotið spóafæturnar sínar í snjónum. Ólafur í. Asi lrljóp niður til Egils, og ætlaði að reisa hann á fætur. Egill æpti hástöfum. “Hvemig líður þér? Meiddurðu þig mikið L” sagði Óláfur. “Æ, fóturinn, fóturinn-------hann er 'brot- inn af,” stundi Egill upp. “Bíddu við eg skal jáilpa þér, eg held það geti ekki verið,” sagði Ólafur hughreystandi. Ilægri fóturinn var brotirm. “Ó! veslings litli drengurinn! Komið þið! Komið þið hérna,” kallaði hann með grótstafinn í kverkunum. “Hvað eigum við til brgðs að taka? Hann er fótbrotinn, sagði Ólaft^r. Þegar Níels sá hvað um var að vera, tók hann strax skíði Ólafs, og lagði af stað á skóginn. Það var mest framtak í Ólafi í Ási. “Sækið þið Gunnar undir eins,” sagði hann við hina drengina. “Ilann er ekki heima,” sögðu þeir. “Drengurinn getur ekki legið hér; við verð- um að reyna að koma honum einhverstaðar inn, en hann 'þölir ekki að Mta bera sig langt,” sagði Ólafur. — Hann, hugsaði sig um nokkra stund. “Komið þið með mér, Knútur og Áslákur,” mælti hann síðan. Þeir hlupu allir þrír lieim að bæ Gunnars, sóttu þangað skíðasleða, og komu með hann að vörmu spori. Þeir lögðu hann upp á sleðann með méstu varkárni og óku hohum heim á leið. Hann vein- aði, þegár þeir tóku hann af sleðanum og bám hann inn í rúmið sitt, og þó reyndi hann að liarka aif sér eins og hann gat. Hann var með tárin í f augpnum-------Þakka ylkkur fyrir! Getið þið gert orð eftir föðurbróðir mínum?” “Já, já! Hvar er liann?” “Hann ætiaði fram að Ásheimi.” “Hlaupið þið af stað, Knútur og ‘Ástókur, eins og fætur toga,” sagði Ólafur. “Við hinir bíðum hjá Aigli þangað til Gunnar kemur.” Þeir blupu af stað. “Eg er nær því viss það, að Níels hefir slept skíðinu viljandi,” sagði einnþeirra, sem eftir var; “ eg sá það á augunum í honum þau vorp svo ljót.” “ Það er eg hræddur um líka,” sagði Ólafur. “Það var hraklega gert.” “Hann hefir nú ekki ætlast til að svona færi’, sagði einn þeirra. “Það getur nú verið,” sagði Ólafur. “Hvar eru skíðín mín,” sagði Egill. “Þau eru upp í brekkunni; hlaupið þið eft- ir þeim, einhver ykkar, eg held þau séu alveg óskemd,” svaraði Ólafur. Egill brosti veiklulega. “Þakka 'þér fyrir,” sagði hann. Það leið ekki á löngu þar til Gunnar kæmi. “Þú ert of fífldjarfur EgiH; eg. hefi oft verið hræddur um að svona myn'fli fara fyrir ]>ér,” sagði hann þegar hann kom inn. Ila&in leit á drengina. “ Það er liðj ykkur, drengir mínir — það var alveg rétt gert af ykk- ur að sækja sleðann. Fallega gert að bjálpa leikibróður sínum. Þið verðið góðir vinir hans, vona eg, Egill er allrá bezti piltur, því megið þið trúa. Eg Iþakka ykkur fyrir hann!” Drengirnir glöddust við orð hans. Þeir kendu í brjóst um Égil — nú gat liann, að líkindumi ekki komið framar á skíði alhui vefurinn. “ Lærðu nú af þessu, Egill, og vertu varkár- ari næsta sinn,” sagði Gunnar. “Það hefði ald- rei svona farið, ef Niíels hefði ekki verið, hugsaði Ólafur með sjálfum sér, en hann sagði það ekki upphátt. Gunnar lét speli við fótinn og batt um. “Þarf ,ekki að sækja læikni,” spurði Ólafur. “ónei, þetta er vanalegt beinbrot; ef ekki ftír ilt (í fótinn, þarf ekki á neinum lækni að halda.” Drengirnir fóni að ása'ka Níels sín á milli: Ávalt vill hann mestur heita. — — Hann þarf jafnan að hafa einhvern til þess að níðast á eða draga dár að honum.--------En aldrei hefði eg trúað því, að hann væri svona vondur. Það var reglulegt níðingsverk þetta við hann Egil. / * # #) Eftir þetta hlógu þeir aldrei að fyndni Ní- elsar eða digurmælura, og vildu hafa sein minst saman við hann að sælda. Stundum voru þeir í fliratingi að tala við hann um “mannýg skíð” og “hrotna spóafaúur”. Niels lét sér ekki brcgða. Það skyldi eng- inn sjá, að hann kveldist af samvizkubiti. En þó var því þanpig farið. Hann gat aldrei gleymt augnatiHiti Egils, þegar Ólfu'r var að reyna að reisa hann á fætur. Þáu leiftruðu af kvöl og ótta. Þessi slræru sak- Jeysislegu augu fylgdu honum hvar sem hann fór, nætur og daga. En hann reyndi að hrinda ^‘ró sér minningunni um þetta óliappa atvik, og vera kátur. Verðlaunalilaupið var haldið góðan veður- dag í ibezta skíðafæri. , ^iiaa Professional Cards Svanirnir sex. Vesalings litla stúlkan hugsaði, hér get eg okki verið lengur. “Eg verð að 'fara og leita að bræðrnm mínnm” Og þegar dimma tók um kvöldið, læddi'st hún út úr kastalanum og út í skóginn. Alla nóttina liélt hún áfram og næsta dag án þess að hvíla sig, en þá var hún orðin svo þreytt að hún komst ekki lengra áfram. ' Hún fór að líta í ’kringum sig eftir skýli og sá hún þá lít- inn kofa sem þar stóð í kkóginum. Hún staulað- ist að kofanum og þegar hún bom inn í hann, s*á hún að þar voru sex lítil rúm nppbúin. Ekki l>orði hún að leggjast í neitt af ‘þeim, heldur skreið hún undir eitt þeirrá'og faldi sig þar, og ætlaði að láta þar fyrirberast um nóttina. Rétt fyrir sólarlagið, heyrði hún vængjalþyt og sá hvar sex svanir komu fljúgandi og flugu þeir allir inn um opinn glugga sem var á kofanum. Þeir settust á kofagólfið og hlésu hver á annan og féllu þá svanahamimir af þeim, og þokti stúlkan að þar voru J>ræður hennar komnir, og skreið fram úr fylgsni sínu og varð þar fagnaðarfundur. En hann stóð ekki lengi; því eftir að þau höfðu lieils- ast mæltu bræður liennar: “Hér getur þú ekki verið,” sögðu þeir, þetta er ræningja heimili og 'þeir munu ráða þig af dögum, ef þú verður hér þegar þeir koma.” “Getið tþið ekki passað mig?” spurði systir þeirra. “Nei,” svöruðu þeir. “Við getum lagt til síðu álftahami okkar í fjórðung stundar að eins dag hyem. svo verðum við aftur að svönum.” iSystir þeirra fór að gráta og spurði: “Er ekki hægt að frelsa ykkur?” “Því er vert ” svör- uðu þeir. “S’kilyrðin eru of ströng! Ef þú átt að geta frelsað okkur úr álögunum þá mátt þú hvorki tala né hlægja í sex ár og þú verður að saUma sex skvrtur úr “ Alsine” blöðum handa •okkur, en ef þér verður á að tala, eitt einasta orð verður alt Iþitt vrerk ónýtt.” Þegar bræðurnir höfðu lokið máli sínu, var griðatími þeirra úti, svo þeir tóku aftur á sig álfta hami sína og flugu burt út um sama glugg- ann og þeir komu. ( (Systir 'þeirra ásetti sér fastlega, að reyna að lev'sa br<æður sína úr álögunum, jafnvel þótt það vrði að kosta hana lífið. Hún fór út úr kofanum og út í miðjan 'skóginu, þar settist hún niðué á tré, til þess að Mta fyrirherast þar um nóttina. Morguninn eftir fór hún log aflaði sér Alsine- laufa, og fór að sauma. Hún hafði engan til þess að tala við og henni var ekki hlátur í huga; hún sat og saumaði og hugsaði um eikkert nema það sem hún var að gjöra. Þegar hún hafði verið langan tíma þarna í skóginum, var það dag einn, að konungurinn sem réði yífir þeim parti landsins sem hún var í, var á veiðum í þessum sam'a skógi og menu hans komu að trénu þar sem stúlkan sat og saumaði. Þeir ávörpuðu hana og spurðu hver hún væri. Eh hún svaraði engu. ‘ ‘ Komdu niður úr trénu og til okkar, við skul- um ekki gera ‘þér neitt miein,” sögðu þeir. Eu stúlkan hristi hara höfuðið og þegar þeir héldu áfram að leggja að hcnni, tók liún af sér hálsfesti úr gulli og henti til þeirra og hélt íþeir mundu gera sig ánægða með það, en þegar þtíir gjörðu það ckki, tók hún af sér beltið, sokkadvöiídin og alt sem hún gat við sig losað. nema fötin sora hún stóð ií og kastaði til 'þeirra. Veiðimennirnir gerðu sig<ekki heldur ánægða með það, lieldur klifruðu þeir upp í tréS þar sem stúlkan sat og tóku hana með sér á konungs fund, sem þar var í skóginum skamt í burtu. “Hvað heitir þú, og hvað ertþú að gera hér í skóginum?” spurði kon- ungurinn. En stúlkan svaraði engu. Konung- urinn ávarpði hana á öllum tungumálum sem hann kunni, en alt kom fyrir ekkert, hún þagði eins og steinn við öHnm lians spurningum. Konungur- inn kendi í brjóst um stúlkuna, sem var mjög fríð, tók af sér skikkju sína og sveipaði henni um liana og reiddi hana síðan Tyrir framan sig heim í höll sína, Iþar sem liann lét gjöra henni skrautklæði og eftir að hún hafði verið (færð í Iþau var hún svo tíguleg og indæl í allri framgöngu að hann feldi ásta>hug til hennar og valdi sér hana fyrir drotningu, þótt lmnn gæti með engu móti komið henni til að mæla eitt einasta orð og voru þau vígð saman eftir lítinn tíma. Framh. ------o----- TrumbuslagarinnJ! A meðan eg skar í gegnum hlold lians, stundi hann ^kki, en þegar eg tók sögina til þess að saga beinið í sundur, tók hann hornið á koddanum sín- um og tróð upp í sig, og alt sem eg gat heyrt hann segja var: “Ó Jesús, vertu nú hjá mér”. Hann efndi orð sín og stundi aldrei eða 'kveinkaði sér á meðan á skurðinum stóð. Um nóttina gait eg ekki sofið; á hvern veg sem efe velti mér voru þessi bMu blíðu augn fyrir mér og í eyrum mínum hringdu sífelt orðin: “Ó Jesús, blessaði Jesús vrertu nú hjá mér.” Á milli tólf og eitt fór eg á fætur og til sjúkrahússins. NokkuÖ sem eg hafði aldrei gert áður, en svo mjög þráði eg að sjá þenna dreng. Þegar eg kom, sagði umsjónarmaðne- minn mér að sextán af þeim sem sjúkastir voru, væru dánir og búið að koma þeim í líkhiísið. “Hvernig líður CharJie Coulsioii. er hans ú meöal þeirra dánu?” spurði eg. “Nei, haun sefur eins \rært og nýfætt þarn,” s-varaði hann. Þegar eg'kom að rúmi drengsins, sagði hjúkr- unarkonan mér, að tveir kristniboðar hefðu kom- ið með séra R. til þess að lesa og syngja fyrir her- mönnunum. Presturinn kraup við rúm drengs- ins g boiddi hjartnæmrar bænar, ásamt komumönn- um. Og áður en þeir stóðu npp sungu þeir sálm, sem Charlie ítók undir mtíð þeiin. Eg gat ekki skilið hvernig að drengur sem hafði favið í gegnum slíkar ómæJanlegar þjáningar, gæti sungið. Tveim dögum eftir að eg hafði teldð af lionum limina, sendi hann eftir mér og það \rar til hans að eg Iieyrði liið fyrsta guðspjíþl prédikað. ‘ ‘ Lækn- ir,” sagði hann. “minn tími er nú kominn. Eg býs't ekki við að sjá sólina koma upp framar, en þökk sé guði að eg er reiðubúinn að fara. Áður en eg dey vil eg þakka yður af öJlu mínu hjarta næmleik yðar og góðmensku í minn garð. Þér eruð Gyðingur, læknir, ]>ér trúið ekki á Jesúm. Viljið þér gera svo vol og standa hérna hjá mér og sjá mig deyja í traustinu á frelsara minn?” Eg reyndi að gera þetta, en eg áltti ekki sálarþrek til þess að iJnorfa á kristinn dreng taka dauða sínum með gleði í tvausti á þann Jesúm sem mér hafði verið kenlt að hata. Eg settist inn í prí- vat skrifstofu mína og lét höfuð falla í hendur mér. Hér um bil tuttugu mínútum síðar var sent eftir mér að koma til Charlie, samkvæmt ósk hans. Eg kvaðst hafa séð hann fyrir stuttu og ekld geta séð Jiann aftur. “En læknir,” bætti sendi- maðm’ vi§. “Hann segist mega til að sjá yður binu sinni áðnr en hann deyi.” Eg herti upp liugann og lofaði að koma. Hugsaði mér að segja vingjarnleg orð til hans áður en hann dæi, en á- kveðinn var eg í því að ekkert orð af hans vörum skyldi hafa áhrif á mig, viðvíkjandi átrúnaði hans. Þegar eg kom í sjúkralierbergið, sá eg að hann var á förum. Eg setti&t á rúmið hjá hon- um. Hann rétti mér höndina og sagði: “Eg elska yður læknir, af því þér eruð Gyðingur. Minn bezíti vinur í þessum heimi var Gyðingur.” Eg spurði hann hver það væri, “Jesús Krist- ur,” svaraði hann, “hverjum eg vil nú kynna yð- ur áður en eg dtey; læknir minn góður, viljið þér lofa mér því að gleyma ekki því sem eg ætla að segja yður ? ’ ’ Eg lofaði því og hann 'hélt áfram: “Fyrir fimm dögum síðan, á meðan þér vor- uð að taka* af mér handlegginn og fótinn beiddi eg drottinn Jesúm Krist, að snúa sál yðar”. Orð drengsins skáru mig djúpt í hjarta. Eg gat ekki skilið hvernig hann gat gleymt sjálfum sér og Hngsað um ekkert, nema frelsara sinn og mína ó- umventu eál, á mbðan eg var að kvelja hann heil- um kvölum. Alt sem eg gat sagt við hann var: “Jæja drengur minn, þú verður nú bróðum al- bata.” Með þessum orðum skildr eg við hann og tólf mínúitum síðar var hann kominn í arma frels- ara síns. Hundruð af hermönnum dóu á mínu sjúkrahúsi, en eg fylgdi að eins einum til grafar og það var Charlie Coulson, trumlhuslagarinn. Eg lót klæða líkið í nýjan einkennislbúning og láta hann í yfirmanna kistu, með Bandaríkja flagginu yfir — Orð þessa mæta drengs höfðu mikil áhrif á mig. Eg var auðugur af fé þá, en eg hefði viljað gefa hveút einasta cent af eigum mínum til Iþess að geta öðlast þá tilfinningu gagnvart Kri.sti, sem að drengurinn átti; en sú tilfinning fæst éigi fyrir peninga. Og vei mér, fljótlega glejnndi eg prédikunum litla, kristna, hennannsins míns, en drengnum sjálfum gat eg ekki gleymit. Eg veit nú að þá var eg sekur syndari; en eg barðist á móti Kristi með öllu Iþví hatri sem rétttrúaður Gyðingur á yfir að ráða, í uærfelt tíu ár, þá var l>æn vinar míns svarað og guð snér sál minni. Hér um bil átta mánuðum eftir afturhvarf mitt, var eg istaddur á bænasamkomu að kvöldi dags í Brooklyn. Þaðivar ein af þeim samkotn- um sem krisitnir menn vitna um kærleika frelsar- ans. Eftir að nokkrir liöfðu talað, stóð upp öldruð kona og mælti: “Kæru vinir, það má vera að þefta verði síðasta sinni, sem eg verð þeirrar náðar aðnjótandi að fá að vitna um frelsarann. En, mér er það svo mikil gleði að vita, að eg muni m^eta drengtium mínum hjá .Tesú á himnum. Son- ur minn vat ekki einungis hermáður fyrir land sitt, en liann var líka liermaður fyrir Jesúm Krist. Hann særðist í orustunni við Gettysburgh og félk í hendur hebreskum lækni, sem tók af honum fót- inn og handlegginn. En drengurinn minn dó fimm dögum eftir umbúning sáranna. Her- presturinn skrifaði mér og sendi mér biblíuna hans í þessu bréfi var mér sagt að Charlie hefði á dauða stund sinni sent eftir lækninum og'sagt honum “Læknir áður en eg dey ætla eg að segja yður, að þegar fyrir fimm dögum síðau, þegar þér voruð að saga gf mér limina,beiddi eg herrann Jesúm Krist að snúa ®ál yðar.” Þegar eg heyrði um- mæli konunnar, gat eg ekki haldið kyrru ^yrir, en stóð upp og gekk yfir salinn og til hennar. Eg tók í hönd henni og sagði: “Guð blessi yður , kæra systir; bæn drengsins yðar hefir verið lieyrð. Eg er hebreski læknirinn sem drengurinn yðar beiddi fyrir og frelsari hans er nú frelsari minn. — Rannveig K. G. Sigbjömson, þýddi. DR.B J.BRANDSON 701 I.indsay BuiUUng Phone A 7067 Office tlmar: 2—3 Heimill: 776 Victor St. Phone: A 7122 Winnipeg, Man. Dr. O. BJORNSON 701 Linðsay Building Office Phone: A 7076 Offfice itlmar: 2—3 Heimili: 764 Victor St. Telephone: A 7586 Wlnnipeg, Man. Vér leggjum sérstaka áherzlu á aS selja mefiöl eftir forskrlftum lækna. Hin beztu lyf, sem hægrt er a8 fá. eru notu8 eingöngu. pegar þér komi8 meS forskriftina til vor, megiS þér rera viss um fá rétt þa8 sem læknir- inn tekur til. COIiCIiECGH & CO. Notre Dame Ave. og Sherbrooke St. Phones N 7659—7650 Giftingalyfisbréf seld DR. B. H. OLSON 701 Lindsajr Bldg. Office: A 7067. Vi&UUttmi: 11—12 og 4.—b.SO 10 Tlielma Apts., Home Street. Phone: Sheb. 563». WINNIPBQ, MAN. Dr. J. StefánssoD 401 Bayd Bulldlng em. PMT4GI »«. & IDMð)ITOfl IT. Stuadar einpongu augoa, eytaa. na( •* k.erka »;iiWÍAma. — Er afl hitta frákl. 10-12 l.k. •* 2 - 5 e. h.— Talatmi: 3521. Heimlli: 627 McMillan Ave. Tals. F 2691 Dr. M.B. Halldorson 461 Boyd Buildlng Cor. Pertage Ava. og Bdmonten Stundar aérataklaga berklaafkl og aflre tungnaajdkdéma. Br afl flnna A nkrlfetefunnl kL 11— 1* tm. og kl. 1—4 e.m. Bkrif- stofu tals. A 3521. Heimill 46 AUoway Ar. Talatml: Bhar- hrook 1111 Dr. Sig. Júl. Jóhannes- soBj BiA.j M.D. Lundar, - Manitoba J. G. SNÆDAL, TANNLŒKNIR 614 Someraet Ðlock Cor. Portage Ave. eg Donald Street Talsíml:. A 8889 Sf^aMnssaaeKaaMnMUBM HRS. SWAINSON. afl «96 Sar- gent ire. hefir Aww.lt fyrlrllfgj- mndi únralsbirgCir af nýtlsku I kvenhöttum.— Hún «r »ina fil. ikonan sem alfka rerxlun rakur i jCanada. íalondinfar látifl Mra. (Swainaon njóta viflakifta jrflat. Talaimi Sher. 14*7. Verkstofo Tala.: A 8383 Heon. Tala: A f 384 G. L. Stephenson PLUMBER Allakonar rafmagnsAböld, evo wsm ■traoj&ni vim, allar tegnndtr af glöeum og aflvak* •batterls). VERKSTOFk: 67E HOME STRtíT MORRIS, EAKINS, FINKBEIN ER and RICHARpSOíf Barristers og fleira. Sérstök rækt lögð viö múl út af óskilum á korni, kröfur á hend- ur járnbrautarfél. einnig sér- fræðingar i meðferð sakamála. 240 Grain Exchange, Winnipeg Phone A 2669 (jiítinga og b,6 Jaröartara- með litlum fyrirvnra Rirch blómsali 616 Portage Ave. Tals. 720 ST JOHN 2 RING 3 Dagatals. St. J 474 Nætur.: St. J. 866 Ralli sint á nött og degi DR. B. GERZABEK M.R.C.S. frá Englandi, L.R.C.P. fri London, M.R.C.P. og M.R.C.S. fri Manitoba. Fyrverandi a8sto8arlækntr vi8 hospital 1 Vinarborg, Prag og Beriin og fleiri hospitöl. Skrlfstofa á elgln hosptal 416—417 Prlchard Ave., Winnipeg. Skrifstofu tlml frá 9-12 f.h.; 3-6 og 7-9 e. h. Dr. B. Gerzabeks elgið hospital 415—417 Prichard Ave. Stundun og lækning valdra sjúk- llnga, se mjást af brjöstveiki, hjarta- bllun, magasjökdómurrL innýflavetki, kvensjúkdömum, karjmannasjúkdóm- um, taugaveiklun. Thos. H. Johnson og Hjalmar A. Bergman Islenzkir iögfræðingar Skrifstofa: Room IX McArthur Building, Portage Ave. P. O. Bot 1656 Phones: A 6849 og 6840 W.J. LINDAL, B.A.,L.L.B. isienzknr iögfræðlngur liefir heimiid til að taka að sér mál bœði 1 Manitoba .og . Saskatchewan fylkfum... Skrlfstofa að 1267 Vnion Trust Building, Winnipeg. Talsimi A4963 — Mr. Lindal heflr og skrif- stofu að Lundar, Man. og er þar á hverjum miðvikttdegl JOSEPH T. THORSON lslenzkur lögfrecðingur Heimaf. Sher. 4725 Heimlli: Alloway Courrt Ailoway Ave. MESSRS. PHHiLIPS * SCARTH Barriaters. Etc. 201 Montreal Trust Bidg., Winnipeg Phons: A 1336—1»7 * Phon«: G»rry 2616 JenkinsShoeCo. 639 Notre D&me Avenue Vér geymum reiðhjól yfir vet- urinn og gerum þau eins og nfr, ef þess er óskað. Allar tegund- ir af skautum 'búnar til sam. kvæmt pöntun. Áreiðanlegt verk. Lipur afgreiðala. EMPIRE CYCLE, CO. 641Notre Dame Ave. A. S. Bardal B4I Shorbrooke St. Selur IfkkUtur og ennaet um útierír. Allur útbúnaflur .4 bezti. Enafrem- ur selur hann elekoner minnuverBe o* legHeine. Skrtfst. talsími N 6608 Heimitis talsími N 660T Phones: N6225 A7996 Halldór Sigurðsson General Coittraetor 808 Great Woot Permanent Bldg., 856 Main Bt Sími: A4168. loL Myndaotofs WALTER’S PHOTO STUDIO Kristín Bjaraaaon eigandl Næat við Lyceum leikhútlð 290 Portage Ave. Winoipog JOSEPH TAVLOR LÖQTAK8MAÐUK Helmllto-TUls.t SL John 184» Skrif stofn-Tato.: Main 7978 Tekur lögtakl bæBl húaalelguakuldlr. veBekuldir, vfxlaskuldlr. Afgretötr alt aem a8 lögum ljtur. Skrttetofa. #55 Mivtn ROBINSON’S BLOMA-DEILD Ný blóm koma inn daglega. Gift- ingar og hátiíðablóm aértaklega. Útfararblóm búin með atuttum fyrirvara. Alls kon^r blóm og fræ á viasum tíma. —íslenzka töluð 1 búðinni. Mrs. Rovatzos ráðskona. Sunnud. tals. A6236 J. J. Swanson & Co. I Verzle mefl taeteignir. Sjá ur> leton & húeum. Annaet Un o* •ImkrrtKi o. fl. lynM A 034«—A 631«

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.