Lögberg - 05.01.1922, Síða 8

Lögberg - 05.01.1922, Síða 8
Bls. 8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. JANÚAR 1922 Or Bænum. | *W"H"H‘WH‘H'+'H'+'H'í"H.'H"Mí Stefán Pétursson bóndi frá Cy- press Riyer og kona hans, foreldr- ar Dr' Jóns Stefánssonar ogþeirra systkina korou til bæjarins fyrir hátííjarnar. Miss S. Axford, kom til bæjarins frá St. Paul í síðustu viku, og dvel- ur hjá frændfólki sinu framyfir hátíðarnar, Miss Axford stundar hjúkrunarfræði þar isyðra. Fundur verður haldinn í deild- inni Frón mánud. 9. janúar í neðri sal <3oodtemplara hússins. Á eft- ir nauðsynlegum fundarsköpum hefir séra Rögnv. Pétursson fyr- irlestur. Allir velkomnir á fund þenna. Á gamlársdag andaðist á heim- ili tengdasonar síns Jóns Straum- fjörð að Lundar, öldungurinn Jón Bjarnason, hátt á áttræðisaldri. Hans verður nánar minst síðar. Síðastliðið gamlárskvöld voru af séra H. J. Leó gefin saman í hjónaband, Clarence Nelson Wil- son og Hanna Goodman, bæði til heimilis hér í Winnipeg. Hjóna- vígslan fór fram á heimili for- eldra brúðurinnar, Mr. og Mrs. K. Goodman að 648 Home St. hér í borginni að viðstöddum nánustu skyldmennum brúðhjónanna. pau ihjónin, H.jálmar bóksali Gíslason og kona hans, urðu fyrir þeirri sorg að missa yngsta barn sitt, 22. desember síðastliðinn. Pað var jarðsungið á þriðja í jól- um af séra Rögnv. Péturssyni. Miðvikudaginn, 21. des. voru þau Wilhelm Pálsson og Ásta Schram bæði frá Geysirbygð í Nýja íslandi gefin saman í hjóna- band af séra Runólfi Marteins- s.vni að 493 Lipton Str. Við guðsþjónustu á sunnudag- | inn þann 11. des., afhenti séra | Sig. Ólafsson skírnarfont úr ! silfri Mikleyjar söfnuði, var það I gjöf frá nokkrum ungmennum í j söfnuðinum. — Guð gefi að þetta | verði til að hvetja fleiri ungmenni j til að starfa í víngarði drottins og j gefi þessum unglingum óþreytandi j vilja og yndi að starfa svo þeir ■ verði í náð og þekkingu drottins vors og frelsara Jesú Krists. petta eru nöfn þeirra sem gáfu: j Sigurbjörn Thóréarson, Helgi K. j Thórdarson, Undina Doll, Eyvind- ur Doll, Brynjólfur Doll, Mar- í grét Pétursson, Finnur Pétursson, Andrés Kelly, Daníel Daníelsson, j Kristinn Doll, Thorsteinn Thor- j leifsson, Víglundur Guðmundson, j Kristín Eggertsson, Helgi Egg- :eitsson, Sigfríður Eggertsson, K. Johnson, Ágúst Sigurgeirsson, Bogi Sigurgeirsson, Sigurgeir Sigurgeirsson, Steingrímur Sigur- geirsson, Helgi Sigurgeirsson, Theódís Sigurgeirsson, Steinunn Grímólfsson, Kristjana Grímólfs- son, Sólveig Grímólfsson. Jóhannes Jónasson læknir frá Mountain, N.D, kom snöggva frð til bæjarins í vikuuni sem leið. Jónas Jónasson B. A., sem að undanförnu hefir verið skóla- stjóri í Brandon, Man., kom til bæjarins í gærmorgun. Tekur hann að sér kenslu á Jóns Bjarna- sonar skóla um tíma í stað séra Rúnólfs Marteinssonar, sem hef- ii’ verið mjög lasinn mestan part- ir.n sem af er þessu skólaári og liggur nú rúmfastur og verður að líkindum ekki vinnufær um tíma. Má það heita sérstakt lán, að skólastjórninni skyldi auðnast að fá Mr. Jónasson til þess að hjálpa upp á sakirnar meðan séra Rún- ólfur getur ekki aðstaðið. Hinn 3. dag jóla andaðist á sjúkrahúsi borgarinnar Stefanía Ólafía Birgitta Sigurðardóttir, kona Helga pórðarsonar Johnson, frá Keewatin, Ont. — Jarðarfðrin fór fram frá útfararstofu A .S. Bardals föstudaginn þann 30. s. m. Séra Rögnv. Pétursson jarð- söng. Mr. Árni Sigurðsson, hinn al- kunni leikari, er nýkominn til bæj- arins frá Springwater, Sask., þar sem hann hefir verið undanfarin ár. Hann býst við að dvelja hér til vorsins og hverfur svo á land vestur við Wynyard, Sask. Kona hans kom með honum. Mr. Guðmundur Thórðarson frá Keewatin, Ont., kom til borgar- innar á þriðjudaginn í vikunni sem leið, til þess að vera við útför tengdasystur sinnar, frú Stefaníu Johnson, konu Helga pórðarsonar Johnson, er lézt á Almenna sjúk- rahúsinu hér í borg eftir upp- skurð. Guðmundur kom með þrjú yngstu börn hinnar látnu, sem fylgdu hinni ungu móður til graf- ar. — Guðmundur hélt heimleiðis daginn eftir. Meðtekið frá Miss Eiríksson, rit- ara og féhirðir Hóla Club Soci- tíes, Tantallon, Sask., $40.00 í styrktarsjóð heimkominna her- manna. — Fyrir hönd Jóns Sig- urðssonar félagsins, — með þakk- læti: Mrs. P. S. Pálsson, Ste. 4 Acadia Block, Winnipeg. Fundur Jóns Sigurðssonar fé- lagsins, sem haldast átti þ. 4. þ. m., hefir verið fluttur til mið- vikudagskvelds þann 11. janúar. Meðlimir eru sérstaklega ámint- ir um, að koma á þennan fund, því áríðandi málefni liggja fyr- ir fundi. Miss Lára Sigurjónsson, sem síðastliðið ár kendi við barnaskóla austur í Brokenhead héraði, hefir nú tekið að sér skóla skamt frá Tyndall, Man. Hún fór þanggð út á mánudagskvöldið. Miss Kristín Skúlason, er einnig kendi við Brokenhead skólann, veitir nú forstöðu skóla í heimabygð sinni rálægt Geysir, Man. Séra Hjörtur J. Leo kom til bæj- arins fyrir nýárið og dvaldi h|r fram á mánudag. Miss María Thorlaksson frá Calder, Sask., kom til bæjarins á mánudaginn var. Hún hefir stundað kenslustörf þar vestra, en ætlar nú að byrja að læra hjúkrunarfræði á Almenna spít- alanum hér í bæ. Uppreisn í Portúgal. Hermanna uppreisn varð í Lissa- bon miðvikudaginn 19. október, svo sem frá hefir verið skýrt í símskeytum, og lauk henni svo, að stjórnin var svift völdum, en Granjo, myrtur og flestir ráðherr- ar hans, og var einn þeirra flota- foringinn Machado Dos Santos, sem stofnaði til lýðveldisins í Portogal fyrir 11 árum. Foringi hermanna eða konungssinna var Coelho offursti, og tók 'hann við stjórnarformensku, og er talinn nýtur maður. Uppreisn þessi, hefir verið vel undirbúin og “hepnast vel”, eins og það var orðað í skeytinu hing- að. Mr. Friðrik P. Sigurðsson frá Geysir P.O., Man., ko'm til borgar- ir.nar snögga ferð í vikunni sem leið. Ungfrú Fjóla Johnson, sem vinnur á skrifstofu Columbia Press, Ltd., skrapp suður til Da- kota fyrir hátíðirnar, í kynnis- för til fólks síns og dvaldi þar fram yfir nýárið. Leiðrétting. pessar helztu prentvillur hafa slæðist inn i söguna “íslendingar, er birtist í jólabl. Lögbergs: í 1. dálki, 5. málsgrein: “í skírnar- nafni þeirra’; lesist: fyrri nöfn þeirra.” Síðasta lína 1. dálks hefir alveg fallið burt; les: “íslendingar áreiðanlega voru’. — í 2. dálki, 10. málsgrein: “hann ekki hafa gert”; lesist: “hafði hann ekki gert.” 1 3. dálki, 2. málsgrein: “hann auðugri og stærri”; lesist: “hann auðugri og stærri andlega”. í 4. dálki, 3. málsgrein: “sjálfri sér söm’; les: “sjálfri sér sönn”. — ótal- aðrar villur, stafvillur og fleira, verður vonandi lesið í mál- ið. O. T. J. Fjallkonu minni. ort íslendingadaginn 1920. (Lag.: ‘'Brosandi land”.) Norður í sjá, Norðri hvar strengina stillir og stálvarinn jökulinn hillir norður í sjá. Eina eg veit, — frjálsborna, göfuga, glæsta, geðþekka, auðuga næsta. Eina eg veit! Drifin í mjöll, földuð með fannhvítum tröfum, fótstra mín norður í höfum drifin í mjöll. Móðir vor kær, helgast þér sál vor og sinni, þú Sökkvabekks frægasta inni, móðir vor kær. Pín minnumst í dag, — hjörtum og hug meður klökkum heiður og táp vort þér þökkum.) pín minnumst í dag. Fjallkonan fríð — eflist þér hagsældaræfi, auður af landi og sævi. Fjallkonan fríð! — Magnús Einarsson, 10V2 Sutherland Ave., Winnipeg'. Hemstiching og Picoting verk- færi á saumavélar, 2.50, auk lOc. á cheks. Bridgeman Sales Agency, Box 42 St. Cathari les, Ont. pakkliöti. Fyrir eina jólagjöf, sem eg fékk um þessi jól, veit eg tæpast hvern- ig eg á að þakka nema með því að nota blöðin. pað var yndislega fögur húsjurt alþakin blómum, frá fyrverandi og núverandi nemend- um Jóns Bjarnasonar skóla, því þó eg geti skilað þakklæti í skól- ann til þeirra sem þar eru nú, gæti eg ekki gjört það með þá sem þaðan eru farnir. Eg er vinum þessum þakklátur. Mér hitnaði um hjartaræturnar er eg sá gjöfina og frá hverjum hún var. Fyrir utan nánustu ástvini mína þykir mér ekki eins vænt um vina-merki frá neinum eins og skólanum. pökk fyrir unaðinn sem blómið hefir veitt mér í herberginu, þar sem eg 'hefi orðið að liggja þessa dagana. — Eg hugsa um blómin sem eg vildi rækta. Við getum hlúð að blómum á ýmsan hátt en það er guð einn sem lætur ‘blóm- in vaxa. — með hjartans þakklæti. Runólfur Marteinsson. Landar! Eg finn mér skylt að birta eftir- irfarandi bréf, því, þrátt fyrir það að bréfið er séstaklega stílað til | okkar, sem unnum að framkvæmd-1 um þjóðmyndunar sýningarinnar | og hátíðahaldanna, sem henni | voru samfara, hér í New York, j þá eigið þið sem í orði eða verki studduð starfið, engu síður þakk-1 irnar skilið. Bréf þetta getum við því öll, sem á einhvern hátt j studdum að þátttöku íslendinga í sýningunni, tekið sem istílað til okkar. Hólmfríður Árnadóttir. “Americas Making Festival and Exposition, 22. nóvember 1921. Miss H. Árnadóttir, 106 Morningside Drive, New York. Kæra Miss Árnadóttir: “Á fundi, sem framkvæmdar- nefnd sýningarinnar hélt fimtu- daginn 16. nóvember s. 1., var svo-! hljóðandi yfirlýsing samþykt: “Meira en miljón af borgurum: landsins, yngri sem eldri, tilheyr- j andi ýmsum félögum víðsvegar í Bandaríkjunum, hafa á árinu, sem nú er bráðum liðið, stutt með ráði og dáð að varanlegu samkomulagi á meðal hinna ýmsu þjóðflokka í landinu og verðskulda fyrir það sérstakt þakklæti. Og þrátt fyrir það, að hver einn þátttakandi í sýningu þessari vildi segja hið sama um alla aðra samverkamenn sína, þá vonum vér nefndarmenn- irnir, sem ritum nöfn okkar hér undir, að oss leyfist að taka upp á okkur þessa ánægju og skyldu. j Vér þökkum yður og öllum þeim, j sem með yður tóku þátt í þessari sýningu, innilega fyrir þátttök- una. Samþykt 18. nóvember 1921. Framkvæmdarnefnd Americas Making. John Findley, forseti. Allir eru á fleygiferð með farangur og krakka mergð. pví er bezt að fóna Fúsa ef flytja þarftu milli húsa, honum er í flestu fært því fáir hafa betur lært. Siqfús Paulson. 488 Toronto Str., Tals. Sh. 2958. Fyrstu merki til atlögu gegn | stjórninni, voru gefin út í herskip- j um, sem lágu á höfninni í Lissa- bon, og náðu uppreisnarmenn við- stöðulaust öllum helstu hernaðar- stöðvum í borginni. Engir menn voru drepnir, nema ráðherrarnir, og kyrð og ró’ ríkti í höfuðborg- inni eftir sem áður. Nýja stjórn- in lætur svo, sem hún hafi ekki ætlað að láta drepa ráðherrana og morðingjar þeirra hafa verið hneptir í fangelsi. Orð lék á því í | fyrstu, að Emanúel uppgjafa-kon- ungur frá Portugal, hefði róið að þessari uppreisn, en síðar hefir því verið þverlega neitað. Ekki 'hefir bylting þessi kom- ið neinum á óvart. Síðan Carlos konungur og elsti sonur hans voru myrtir, 1. febrúar 1908, hefir ekki gengið á öðru en ráðherra-morð- um í Lissabon. pau ellefu ár, sem liðin erus íðan Emanúel var rek- inn frá ríkjuim, og líðveldið stofn- að, hafa þrjátíu stjórnir farið með völd í Portugal, og mun engin þeirra hafa til muna aukið tiltrú landsins út á við, eða eflt hag þess heima fyrir. Portugölskum stjórn málamönnum, þykir annað betur gefið en að hugsa um hag þjóðar- innar, þó að ekki hafi skort fögur loforð. pessi yngsta stjórn hefir heitið mörgu fögru um sparsemi, en fjárhag Portugals er komið í svo mikið óefni, að engin stjórn mundi geta ráðið bót á honum, en það er margra manna spá, að enn muni finnastmenn í Lissabon, er fúsir verði að búa þessari stjórn banaráð, fyr eða síðar.—Vísir. GJAFIR til Jóns Pjarnasonar skóla: Mrs. Fred Johnson, Hensel, N. Dakota, ............... $10,00 Fár Vini — Winnipeg, Miss Salína Halldórsson Winnipeg, Mrs. Guðrún Freeman, Wpg, Rev. Mrs. H. Sigmar, Wyn- yard, Sask., ......... Með innilegasta þakklæti og beztu nýársóskum, S. W. Melsted, Gjaldkeri skólans. 5,00 5,00 5,00 5,00 Gleðilegt nýár! pökk fyrir hiB liðna! pannig hljóða ávörp og kveðjur manna ávalt um áramótin. Sjálfsagt eru þessi orð stundum sögð svona beint út í loftið, i 'hugs- unarleysi, en órétt mundi þó að véfengjaþá góðu meiningu, sem allur f jöldi manna leggur í þessi orð: Gleðilegt nýár. Síðan eg komst til víts og ára, hefir mér ávalt fundist áramótin mjög merkilegur viðburður. pað er endir og byrjun, endir gamla árs- ir.s og byrjun Ihins nýja, margs góðs höfum vér að minnast, og mikils að sakna, er fram við oss kom á gamla árinu, en lítum aftur, eins og hálffeimnir yfir suma kafla þess, með blygðunar -tilfinn- ingu fyrir sjálfum oss, einstak- lingunum, jafnt sem heildinni, vegna þess, hve víða stutt varð komist í því að rækja 'helgustu skýldur vorar, og yfirstíga erfið- leikana og hina truflandi, villandi smámuni. Aftur mænum vér vonarbjörtum augum fram á ný- árið, með miklu trausti til hinnar æðstu stjórnar, allra undirstjórna, eimstaklinga sem heildar, til o'kk- ar sjálfra og náungans, að nú tak- ist betur til, að frægri sigrar verði unnir, hólminum betur hald- ið, 'hærri takmörkum frekar náð. Mikið má góður vilji, segir mál- tækið. pað væri þess vegna ekkert sem frekar ætti við, en að við ein- mitt á þessum tíma, er við óskum þektum næstum jafnt sem óþekt- um gleðilegs nýárs, tækjum vilja- eterka ákvörðun um að gera öllum ári ðsem gleðilegast og blessunar- ríkast. Áramótin eru einskonar lagfær- ingar tímabil í öllum viðskiftum manna, og ætti það ekki að vera bara í tímanlegum Mutum beldur andiegum líka. Menn gera upp reikninga sína og yfirlíta bækur sínar, hreinsa til, færa í lag og taka nýjar ákvarðanir. Væri ekki gott að menn gerðu upp alla reikn- inga sína, og tæki ekki með inn á nýja árið óþægindi liðna tímans er að eins vanblessun hefir valdið, hreinsuðu til og færðu í lag, alt í betri áttina, að því er afskifti hvers og eins af öðrum snertir. Nýtt tímá'bil er að renna upp, og því ekki að byrja á nýjum leik, með nýjum ákvörðunum, nýjum vonum, með hinu nýja fyrir auga: Nýju viðfangsefnunum, nýju tæki- færunum, nýju möguleikunum, r.ýju blessunina og nýja þroskann er nýja árið færir. Hve afar stutt er ekki síðan vér um síðustu áramót óskuðum hver öðrum gleðilegs nýárs, tím- inn fer isvo fljótt, að jafnvel heimur sá, sem á fleygingi er, festir varla auga á. Ógn finst oss árið hafa verið stutt, það' er farið, búið og kemur aldrei aftur, Canadian National Railuiaiis FARSEÐLAR FYRIR FERÐAF0LK TIL AUSTUR CANADA Frá Stöðum 1* •, 1 Winnipeg Manitoba vestur Saskatchewan og Alberta Beggja-leiða Farseðlar Verða Seldir fyrir Eins Farsedla-verd °i?r|j"n 4- + + Til 4 4 AUSTUR CANADA Frá I.Des. 1921 til I5.jan. 1922 Gilda til h-imfarar i þrjá mánuði frá útgefningu. Þessi “heimkynni ævarandi sumars ’’ Bjóða yður velkominn í VETUR og alla tíma Ánægja og hamin ?ja bíður yður á sér- hverjum dvalastað þessa fögru vetrarstaða Látið umboðsmann vorn fræða yður um þess^ staði. Talið við hvaða um- boðsmann vorn sem er.eða skrifið til W. J. Quinlan, Oist Pass.Agent, Winnípeg,Man PACIFIC COAST CALIFORNIA FLORIDA WEST INDIES MERKILEGT TILBOÐ Til þess að sýna Winnipegt úum, hve mikið af vinnu og peningum sparast með því að kaupa Nýjustu Gas Eídavélina Þá bjóðumst vér til að selja bana til ókeypis 30 daga reynslu og gefa vður sæmilegt verð fyrir bina gömlu. Komið og skoðið THE LORAIN RANGE Hún er alveg ný á markaðnum Applyauce Department. \rinnipeg ElectricRailway Co. Notre Dame oá Albert St., Winnipeé ~5 en hve mikið fór ekki líka með því, Stórir eru viðburðirnir og margt hefir áfram farið á þessu stutta tímaíbili, miljónir manna, er til voru um 'SÍðustu áramót, eru ekki á meðal vor lengur, og er þar ekki um að kenna að eins hinni nátt- úrlegu og jöfnu rás viðburðanna, héldur stórfeldlegum iskelfingum ar síðasta árið fól í skauti sínu; drepsóttir, stríð og stórkostleg hungurneyð 'hefir herjað heiminn og fylt huga vorn hrylling, stjórn- ir 'hafa hrunið, aðrar risið upp, bogir og landflæmi hafa lagst í eyði vegna ýmsra orsaka, vanda- m'ál hafa verið til lykta leidd, önnur hafa myndast. Alt þetta fór í fleygingi fram hjá ass og annað mikið meira. Síðasta ár- ið færði oss líka ýmislegt alveg nýtt af hinu taginu, af því betra. Aldrei áður befir slíkur fundur verið haldin, sem fulltrúar margra þjóða hafa nú haldið í Washing- ton seint á liðna árinu, þar sem eitt allra stærsta velferðarmál mannkynsins hefir verið rætt skynsamlega og ákvarðanir tekn- ar í réttuistu áttina, þar sem tal- að hefir verið um afvopnun her- valdanna, um að létta drápsklyfj- unum af þjökuðu mannkyninu. Og hver sem niður staðan kann að verða á því, og hvað sem fram- tíðin kann að leiða í ljós, hlýtur þó þessi góða viðleitni að njóta vors innilegasta samþykkis allra og fyrirbæna vorra. Guð blessi viðieitni þjóðhöfðingjanna í þessa átt, og veiti þeim fylgi, og sendi með nýja árinu, ný og stórfeld framfaraspor í réttu áttina. Síðasta árið hefir verið eitt a£. erfiðari árum íslenzku þjóðarinn- ar. Eg óska henni af hjarta leðilegs nýárs, er bæti upp hið liðna, að auðsuppsprettur 'himins og jarðar opnist henni og bægi frá stóru hættunum, en blessi allan þroska hennar. Ðeztu óiskir um blessunarríkt nýár, sendi eg hér með öllum kunnigjum og vinum. P. Sigurðsson. Þess fyr sem þú notar það þess meir spararðu Reg. Trade-Mark Varist eftirlíkingar. Mjmdin að ofan er vörumerk vort. A-SUR-SHOT BOT og ORMA- eyðir. púsundir bænda hafa kunnað að meta “A-Sur-Shot” og notkun þess eins fljótt eftir að fer að kólna, er mjög nauðsynleg, þó örðugt sé um þetta leyti að sanna ágæti þessa meðals, af því að “The Bots” eru svo miklu smærri held- ur en þeir eru eftir að hafa lifað og vaxið í mánuði á hinni safa- miklu næringu í maga þessara ó- gæfusömu gistivina. — Hví að iáta skepnurnar kveljast og fóður þeirra verða að engu, þegar “A- Sur-Shot” læknar á svipstundu og steindrepur ormana? Kaupið frá kaupmanni yðar, eða $5.00 og $3.00 stærðirnar ásamt í'orskriftum, sent póstfrítt við móttöku andvirðisins frá FAIRVIEW CHEMICAL CO. Ltd. REGINA, SASK. Óekta, nema á því standi hið rétta vörumerki. Ókeypis bæklingur sendur þeim, er þes.s æskja. REGAL KOL HIÐ 6ALLALAUSA ELDSNEYTI MEÐ NIÐURSETTU VERÐI Til þess að gera mönnum Regal kol sem kunnugust, höfum vér fært þau niður í sama verð og Drumheller. LUMP $13.75 ST0VE $12.00 Engin óhreinindi — Ekkert gjall — mikill hiti — Ekkert gas — enginn reykur. Vér seljum einnig ekta DRUMHELLER og HARD KOL. Vor ágæti útbúnaður gerir það að verkum, að vér getum afgreitt pantanir á sama klukku- tímanum og oss berast þær í hendur. D. D. WOOD&Sons Limited Yard og Ofíice: R0SS og ARLINGTON STREET Tals. N 7308 Þrjú símasambönd KOL LEHIGH Valley Anthracite DRUMHELLER LUMP — DEEP SEAM Smælkið tekið úr hverju tonni. Hér halda^st í hendur vörugæði og lipur afgreiðsla. Mestu þægindi með minstri fyrrhöfn. — Látð vora Black Diamonds fylla heimilin með sumarsólskini. Halliday Bros. Limited 280 Hargrave St. Phones A5337-8 N6885 w ONDERL ANj THEATRE Mánu og priðjudag “The Nut” Föstu og Laugardag ELINE HAMMERSTEIN í “The Miracle of Manhattan” Miðviku og Fimtudag “RIP VAN WINKIE” Kaupið oglesiðLögberg Verkstofc Tals.: A «38S Heinu Tai». A 3384 G. L Stephenson PLUMBER AUsLonAr ratmagpMböld, ivo «em Ktranjárn TÍra, allar tegrundir af glösoin off aflTAka íbatteHi). VERKSTOFA: E7S HDME STREET Inniheldur enga fitu, olíu, litunarefni, ellegar vínanda. Notað að kveldi. Koreen vinnur hægt, en ábyggilega og sigrar ára vanrœkslu.það ér ekki venjulegt hármeðal. Það er óbrigðultvið kvillum í hársverðinum. Verð $2.00, eða sent með pósti $2.25. Durðargjald borgað e 5 flöskureru pantaðar í einu. Koreen Sales Co., 2140 Bi oad St., Regina Einkasalar fyrir Canada MRS SI MRS. SWAINSON, að 696 Sar- gent ave. hefir ávalt fyrirliggj-í andi úrvalsbirgðir af nýtízkuj kvenhöttum.— Hún er eina 1*1. konan sem slíka verzlun rekur I j Canada. íslendingar látið Mra. Swainson njóta viðskifta yðar. Taisími Sher. 1407. Sigla með fárra daga millibili TIL EYROPU Empress of Britain 15,857 smál. Empress of France 18,500 smál. Minnedosa, 14,000 smálestir Corsican, 11,500 smálestir Scandinavian 12,100 smálestir Sicilian, 7,350 smálestir. Victorian, 11,000 smálestir Melita, 14,000 smálestir Metagama, 12,600 smálestir Scotian, 10,500 smálestir Tunisian 10,600 smálestir Pretorian, 7,000 smálestir Empr. of Scotland, 25,000 smál. Upplýsingar veitir H. S. BARDAL 894 Sherbrooke Street W. C. CASEY, General Agent Allan, Killam and McKay Bldg. 364 Main St., Winnipeg Can. Pac, Traffic Agents YOUNG’S SERVICE On Batteries er langábyggileg- ust—Reynið hana. Umboðsmenn f Manitoba fyrir EXIDE BATT- ERIES og TIRES. petta er stærsta og fullkomnasta aðgerð- arverkstofa í Vesturlandiu.—Á- byrgð vor fylgir öllu sem vér gerum við og seljum. F. C. Young, Limited 309 Cumiberland Ave. Winnipeg Phones: Office: N 6225. Heim.: A7996 Halldór Sigurðsson General Contractor 808 Great West Perm«n«nt Loan Bldg., 856 Main St Þessa viku hreyfimyncl Ihe í Horssmen

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.