Lögberg - 11.05.1922, Síða 4
I
bls. 4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. MAÍ 1922
Jögberg
Gefið út hvem Fimtudag af Tlie Col-
umbia Pre*», Ltd.^Cor. William Ave. &
Sherbrook Str.. Winnipeg, Man.
Talaimari N-6327 o£ N-6328
Jón J. Bíldfell, Editor
Otanáskrift til biaftsins:
THE COLUMIBIA PRESS, Itd., Box 3)72, Winnipog, M»n-
Utanáskrift ritstjórans:
EDiTOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Man.
The “Lögberg” is printed and published by The
Columbla Preas, Limiited, in the Columbia Block,
8B3 to 887 Sherbrooke Street, Wlnnipeg, Manitoba
Mistök.
i.
pau eru alt af að henda oss mennina þessi
mistök. Mistök, sem að eins skilja eftir lítið ör
í lífi voru. hverfa svo og gleymast, og mistök,
sem valda stórum sárum, sem mörg ár og jafnvel
marga mannsaldra tekur að græða.
Mistökin eru eins mörg og margvísleg eins
og viðfangsefni mannanna.
par sem um einhverjar framkvæmdir er að
ræSa, þar eru mistökin æfinlega á vaðbergi, og
þegar þau komast að og ná til að villa mönnum
sjónar, þá eru afleiðingarnar ávalt þær sömu —
tjón og eyðilegging.
Dæmi höfum vér fyrir oss í þessli efni, sem
er alveg nýtt. Fjármálastofnun ein hér í Can-
ada , sem notið hefir hylli manna og álits, óx
og þroskaðist ár ofurlitlum vísi, þar tií hún varð
stór og voldug og breiddi sig út æ meir og meir,
unz starfsviS hennar náði frá hafi til hafs. Ein-
ing, samtök og framsýni starfsmannanna var
sigur-afiið, sem á bak við velgengni fyrirtækis-
ins stóð. Mistökin áttu sér ekki stað á starfs-
svæði hennar, eða voru svo smávægileg, að
þeirra gætti ekki.
En svo breytist þetta. Samtökin og ein-
ingin til heilla stofnuninni og framtíðarvelferðar
hennar hverfa, en í staS þeirra koma mistökin
—mistök, sem eigin hagsvonir einstakra manna
stýrðu að miklu leyti, og stofnunin eyðileggst,
til stórskaða fyrir fjölda manns og eyðilegging-
ar á mannorði svo eða svo margra manna.
pannig mætti halda áfram að sýna ógæfu,
sem mistökin hafa leitt yfir fjölda af iðnaðar-
stofnunum og einstaklingum, en þess gerist ekki
þörf, því þetta eina dæmi, sem á hefir verið
minst og nú er ferskt í minnum manna, nægir
til þess að færa mönnum heim sanninn um óhjá-
kvæmileg afdrif mistakanna.
En mistökin eru víðar en í verzlunarheim-
inum. pau eru líka í félagsmálunum, trúmál-
unum og stjórnmálunum, og á þeim sviðum, eins
og á hinu verzlunarlega, eru það einmitt þau,
sem há framgangi málanna meir en nokkuð
annað.
Er það ekki á vitorði allra manna, að það
hefir átt sér stað ósamræmi í hugsun manna í
Austur og Vestur-Canada nú í meira en hálfa
Öld? Menn Austurfylkjanna hafa jlitið |á sig
sem þann hluta þjóðarinnar, sem réttborinn væri
til að ráða í landsmálum og þá líka til sérréttinda
þeirra, sem ráðunum oft fylgja, eða geta fylgt.
Gegn þessum hugsunarhætti 'hafa menn
Vesturfylkjanna risið, og í stöðugu stímabraki
hefir staðið á milli þessara tveggja parta þjóð-
arinnar, út af þessu, og stendur enn.
Getur nokkur maður metið þann skaða,
er þessi mistök hafa valdið Canadaþjóðinni sem
heildar? Og þó vér bendum á þetta atriði sér-
staklegá, þá er ekki eins og það séu einu mistök-
in á svæði stjómmálanna hjá oss Canadamönn-
um. pau eiga sér stað allsstaðar: í sveitamál-
um, í sýslumálum og í fylkismálum.
pað hefir aldrei í sögu landsins átt sér stað
eins mikið af mistökum í stjómmálum vor á
meðal eins og nú á síðustu þremur til fjórum
árum. pví það er nú varla orðin stétt til í land-
inu, sem ekki er farin að stríða á stjórnmálavell-
inum fyrir sínum sérstöku réttindum og fyrir
því að fá þeim framgengt með valdi löggjafar-
þinganna, hvort sem þeim hefir tekist að sann-
færa almenningi um réttmæti þeira eða ekki.
Hvað er þetta annað en mistök? Og hvað er
þetta annað en innbyrðis-stríð, þótt menn berist
ekki á banaspjótum?
En eins og hver maður getur skilið, þá
stendur slíkt í vegi fyrir öllum sameiginlegum
framförum.
Menn segja, að það sé vottUr vaknandi á-
huga. Vér segjum, að það sé vottur um eigin-
girni og skammsýni á hinum víðtækari verka-
hring hins sameiginlega borgarafélags.
Vér segjum ekki, að hinar ýmsu stéttir þjóð-
félagsins hafi ekki rétt ,til þess að bæta kjör
sín. pað er fjarri oss. En vér segjum, að það
séu mistök, sem ekki geti valdið öðru en ófar-
sæld, þegar hinar ýmsu stéttir krefjast þessara
réttinda, án þess að meta velferð heildarinnar
meira en sínar eiginhags kröfur.
Sameiginlegar framkvasmdir verða að vera
bygðar á sameiginlegum grundvelli, til þess að
þær geti náð því fullkomnunar takmarki, er hið
sameiginlega afl, sem á bak við þær stendur,
getur veitt, og það er þess vegna, að fram-
kvæmdarvald heilla þjóða, eða fylkja, getur
aldrei notið sín í höndum sérstakra stétta.
Hér í Manitoba eru nú kosningar fyrir dyr-
um. Um völdin sækja fjórir flokkar. sem til
greina geta komið: Frjálslyndi flokkurinn,
íhaldsflokkulrinn, bæmdaflokkurinn og flokkur
verkamanna.
Allir þessir flokkar segjast bera hag al-
mennings fyrir brjósti. pó eru ekki nema tveir
þeirra,’ frjálslyndi flokkurinn og íhaldsflokkur-
inn, sem hægt er að segja um, að séu málsvarar
allra stétta í þjóðfélaginu jafnt. Hinir tveir,
bænda og verkamanna flokkarnir, hvað vel sem
þeir vildu gera, hlytu að vekja meiri og minni
óánægju á meðal annara stétta mannfélagsins,
því hvorki eru þeir sjálfir þeim mun sterkari á
svellinu en menn gerast yfirleitt, og hagsmunir
þeirra sjálfra og sétta þeirra, sem þeir tilheyra
og legði völdin í hendur þeirra, sýni sig ekki að
meira eða minna -leyti í stjórnmálaframkvæmd-
um þeirra, né heldur geta aðrar stéttir þjóðfé-
lagsins gjört sig ánægðar með að framkvæmd-
arvaldið sé í höndum sérstakrar stéttar, hversu
vel sem hún færi með það.
Óánægt þjóðfélag er ófarsæilt, ósamtaka
þjóðfélag.
II.
Samtök.
Vér höfum tekið fram hér að framan, að
samjeiginlegar framkvæmdir verði lað byggjast
á sameiginlegum grundvelli. Ef það er satt, þá
eru það að eins tvö spursmál, sem hver einasti
maður og hver einasta kona, sem ann framtíð-
arvelferð þessa fylkis,—og það hyggjum vér að
allir geri—, verða að svara og þau eru: “Eigum
við að ihalda áfram stéttapólitíkinni, eða eigum
við aftur að hallast að hinum sameiginlega
grundvelli í stjórnmálunum ?”
Og þegar vér tölum um sameiginlegan
grundvöll, þá eigum vér við þær stefnur eða þá
flokka í stjómmálunum, sem ekkert tillit taka
til sérstakra stétta, heldur eru málsvarar allra
jafnt, — stjómmálastefnu, sem ber hag heildar-
innar jafnt fyrir brjósti og þess vegna getur
snotið óskoraðs styrks heildarinnar, — stefnu,
sem byggist á sameiginlegri þrá allra manna til
meiri þroskunar, til einlægari samheldni og sam-
vinnu, og til frjálsari og fegurri framtíðar-
hugsjóna í stjómmálunum.
Oss er engin launung á þeirri skoðun vorri,
að þann grundvöll sé að finna í undirstöðuatrið-
um þeim, er frjálslyndi flokkurinn byggir kenn-
ing sína á, bæði hér í landi og annars st^ðar, því
hann byggir hana ekki á neinni hverfandi hug-
sjón, ekki á neinum eiginhags vonum, ekki á
neinum sérréttindum, sem hann berst fyrir,
heldur á hinni sameiginlegu þrá allra manna til
meiri þj;oska, víðtækari skilnings, meiri mann-
úðar og framþróandi frelsis, til meiri fullkomn-
unar og mannréttinda, — þrá, sem aldrei deyr,
sem aldrei getur dáið í brjósti nokkurs manns,
af því hún er þáttur af lífsafli því, sem ein kyn-
slóðin tekur að erfðum frá annari, leiðarljós
mannanna á öllum tímum og undir öllum kring-
umstæðum, áfram og upp á við til hinna fegurri
sjónarhæða lífsins.
Náttúrlega gengur mönnum misjafnlega vel
að færa þessa hugsjón frjálslyndra manna út í
lífið, en það er takmark þeirra allra, sem frjáls-
lyndu stefnunni fylgja, og það er takrnarkið, sem
allir vilja ná og sem verðugt er fylgis, — tak-
mark, sem allar frjálslyndar stjómir eru að
keppa að á einhvem hátt, en sem erfitt er að
ná og ómögulegt án samtaka.
Á þeim sjö árum, sem frjálslynda stjórnin
í Manitoba hefir setið að völdum og notið fylgis
fylkisbúa, hefir hún gjört meira með löggjöf
sinni til þess að bæta hag almennings í fylkinu,
en nokkur önnur stjórn hefir gjört i Canada, og
því í raun og sannleika verið trú frelsishugsjón-
um frjálslyndra manna. parf ekki annað í því
sambandi en að minnast á löggjöf stjórnarinnar
í sambandi við sveitalánin. Sú löggjöf hefir
vakið eftirtekt, ekki að eins um þvert og endi-
langt þetta land, heldur hefir eitt af merkustu
tímaritum Bandaríkjanna, \ “Liteirary Digest”,
talað um þá löggjöf stjórnarinnar í Manitoba
sem úrlausn á því vandasamasta spursmáli, sem
stjórnimar í Norður Ameríku eigi fram úr að
ráða, spursmálinu um hagkvæm bráðabyrgðar-
lán til landbúnaðar.
öllum fylkisbúum er nú líka orðið kunnugt
um Bændalánfélag það, sem stjórnin stofnaði og
með því braut einveldi það, sem lánfélög lands-
ins höfðu hér í fylkinu áður og bændur og aðr-
ir urðu að lúta og sætta sig við, hvaða grimdar-
kjör, sem þeim þóknaðist að setja.
pá er og alkunnugt, að til þess að tryggja
þessi ofangreindu fyrirtæki, stofnaði stjómin
sparisjóðsbanka, þrátt fyrir mótmæli og megn-
an andróður frá peningastofnunum fylkisins og
landsins, til þess að fé væri fyrir hendi svo 'hún
gæti fullnægt sem bezt kröfum fylkisbúa í sam-
bandi við sveita og bænda lánin,
Með þessu var fylkisbúum trygt tvent, sem
hvorttveggja miðar til sjálfstæðis almennings:
Fyrst, að bændurnir, sem eru bústólpar
þessa fylkis, eiga aðgang að starfsfé með góð-
um kjörum, án þess að þurfa að sæta afarkost-
um, og jafnvel beinu afsvari ef trygging sú, er
þejr höfðu að bjóða bönkunum, var ekki eftir
geðþótta fjáreigenda. #
f öðru lagi sparast fylkisbúum vextir þeir,
sem þeir verða að borga af lánum þeim sem
stjórnin hefði orðið að taka á útlendum peninga-
markaði til þess að geta fullnægt þörfum þeim,
sem sparibankinn sér nú um.
Fleiri lög, er stefna í frelsis og mannúðar-
áttina og sem frjálslynda stjórnin í Manitoba
hefir leitt í gildi, má nefna, svo sem lögin um
eftirlaun ekkna, er kosta nú fylkisbúa fjögur
hundruð og fimtíu þúsund dollara á ári; og lög-
in um skaðabætur verkamanna, þegar þeir meið-
ast við vinnu sína. pá eru lögin um hreinlæti
og vinnutakmörkun karla og kvenna í verksmiðj-
um fylkisins, og mörg fleiri, sem alt sýnir, að
Norrisstjómin í Manitoba hefir í öllum þessum
tilfellum haft grundva'llarhugsjón frjálslyndu
stefnunnar fyrir augum í löggjöfinni.
Spursmálið er nú, hvort að vér, frjáls hugs-
andi menn í Manitoba, eigum að skipa oss undir
merki frjálslyndu stefnunnar við kosningamar,
sem í hönd fara, og sjá urn að hún verði sigur-
sæl í atkvæðagreiðslunni og áframhaldandi í
löggjöf fylkisins, eða oss eiga að henda mistök
þau að klofna—skiftast á milli hennar og bænda-
flokksins, sem samkvæmt yfirlýsingu sumra af
leiðtogum hans, hefir það fyrir aðal-ástæðu fyr-
ir sókn sinni í þessum kosningum, að hann verði
fjölmennastur, þegar á þing komi. pað er ekk-
ert í stefnuskrá þess flokks, sem bændastéttinni
er ekki veitt í stefnuskrá frjálslynda flokksins,
og meira að segja gengur stefnuskrá frjáls-
lyndra manna í Manitoba lengra í sumum atrið-
um bændastéttinni í vil, en þeirra eigin.
Hví skyldu frjálslyndir menn þá vera að
berjast hvorir á móti öðrum í þessum kosning-
um? Hví skyldu þeir ekki taka saman höndum
á þeim eina sameiginlega framtíðar grundvelli í
stjórnmálum, sem til er—á grulndvelli sann-
frjálslyndra manna, og vera þar allir eitt?
Eimreiðin.
Fyrsta hefti 28. árgangs Eimreiðarinnar er
nýkomið vestur og flytur ýmsan fróðleik að
vanda, enda leggja sumir af ritfærustu mönnum
þjóðarinnar hönd á þetta hefti.
Fyrsta ritgerðin í þessu hefti er eftir Guð-
mund Hannesson prófessor og er um húsabygg-
ingar á íslandi. Sýiiir læknirinn fram á, hvern-
ig hægt sé að byggja landið upp eða hýsa svo að
viðunanlegt sé á 25 árum. Er það þörf hug-
vekja heima á Fróni, því eitt af hinum erfiðustu
spursmálum íslenzku þjóðiarinnar err og jheflr
verið að afla sér nægilega hlýrra og hreinlegra
húsakynna.
pá er “Hugljómun”, eftir Jakob Jóh. Smára.
pað er lýsing á hugnæmri en undraverðri hrifn-
ing, sem höfundurinn verður fyrir undir vissum
kringumstæðum.
Um málaralist nútímans ritar dr. Alexand-
er Jóhannesson langt, snjalt og fróðlegt erindi.
“Andlegleiki”, ritgerð eftir Professor J.
Brierley, þýdd af Sigurði Gunnarssyni, er næst.
par er því haldið fram, að andlegleiki sé í því
fólginn, að sjá guð allsstaðar í sköpunarverkinu:
í geislablikum kveldsins, í töfrandi tónum söngs-
ins, í stærðfræðilegum viðfangsefnum manna, í
söguviðburðum /rá fyrstu tíð, í brosi barnsins,
í þrá og rödd sálarinnar—í öllu mögulegu milli
himins og jarðar, en gleyma því eina sanna, að
andlegliekinn birtist í náðarríku samfélagi við
guð fyrir endurlausnarkraft mannkynsfrelsar-
ans Jesú.
Vinur vor, Dr. Guðmundur Finnbogason,
ritar um veðurspár dýranna, fróðlega og skemti-
lega grein. Er það vel gert af prófessornum að
minna oss á þenna sannleika, sem menn mæta
svo að segja á hverjum degi lifsins, en sem menn
ganga fram hjá og veita litla eftirtekt, meðfram
af því, að viðburðir þeir eru svo tíðir.
“Ljósmyndir,” ofur-stutt grein um mynda-
vélina byrjun á sögu eftir G. H. Wells: “Tíma-
vélin”, og síðustu ritsjá eftir G. F., M. . og Kr.
Eimreiðin ér að þessu sinni, eins og oftar,
bæði fróðleg og skemtileg og frágangur allur
hinn bezti. Hún er til sölu hjá hr. bóksala Finni
Jónssyni í Winnipeg.
Skrásetning.
Eins og mönnum er nú ljóst, þá eiga kosn-
ingar til fylkisþings að fara fram í sumar. En
áður en það getur orðið, verður skrásetning kjós-
enda að fara fram samkvæmt lögum fylkisins
og aílir þeir, sem vilja takft þátt í kosningunum,
eða neyta atkvæðisréttar síns við kosi^ingamar,
verða að láta skrásetjíist. Kosningarrétt hafa
allir menn og allar konur, sem eru tuttugu og
eins árs að aldri, hafa verið eitt ár í fylkinu og
tvo mánuðina næstu á undan skráseaningunni
innan kjördeildarinar, er þeir skrásetjast í.
Bæði karlar og konur verða að vera brezkir
borgarar, annaðhvort innfæddir eða lagt af hendi
borgaraeið, og eiga konur og börn þau, sem fædd
eru annarsstaðar en í Canada, en voru ekki búin
að ná lögaldri, þegar þau fluttust til landsins,
rétt til skrásetningar og kosninga sem innfædd
. Skrásetningar í aðaLbygðum íslendinga í
• Manitoba fara fram á eftirfylgjandi tíma og
stöðum:
1 Fairford kjöixlirminu:
Mánud. 8. mai—I Hilbro skólahúsl, Reg. D. No. 8.
priðjud. 9. mal—I búS H. Einarsonar, Fairford, R. D. 9.
Mlftv.d. lO.maí—í Comm. Hall, St. Martin; R. D. 12.
Fimtud. 11. mal—I Club House, Gypsumville; R. D. 11..
Laugard. 13. maí—I búS G. Fosteris, Davis Pont; R.D. 13.
priSjud. 16. Maí—I Riidley skólahúsi; R. D. 10.
priSjud. 23. maí—I Pósthúsinu aS Water Hen; R.D. 14.
Skrásetjari er John Favel, Gypsumville.
Mánud. 8. mal—I húsi P. D. Watson, 23-26-6; R. D. No. 1.
priSjud. 9. maí—I Sigurdson’s Haii, Ashern; R. D. 2.
MiSvikud. 10. mal—I Sigurdson’s Hall, Ashern; R. D. 2.
Fimtud. 11. mal—I Boarding House, Mooeehorn; R. D. 3.
Föstud. 12. mal—I Boarding House, Moo«eho.rn; R. D. 3.
Laugard. 13. mal—I húsi A. R. Jone®, 3226-8; R. D. 4.
Mánud. 15. mal—I búS ayne’s, Faulkner; R. D. 4.
priSJud. 16. mal—I búS Snidal og Longs, Steep Rock; 6.
MiSvd. 17. mal—I húsi Mrs. Ward’s, Grahamdale; R.D. 7.
Skrásetjari er B. Methusalemsson, Ashern.
í Mountain kjöiila-minu (Argyle)
MiSvikudag 17. maí—1 Baldur Hotel, Baldur; R. D. 11.
priSjud. 23. mal—I húsi A. Sveinssonar, 23-6-14; R.D. 12.
MiSvd. 24. mal—I Brú Hall, Bru; R. D. No. 10.
1 St. George kjördæminu.
Mánud. 8. mal—1 húsi J. C. Henry, Harperville; R. D. 1.
priSjud. 9 mal—I Municipal Hall, St. Laurent; R D 2
MiSv.d. 10. mal—I Municipal Hall, St. Laurent; R. D. 2.
Flmtud. 11. mal—1 hús4 G. Stevensons, Oak Point; R.D. 3
Föstud. 12. maí—I húsi V. Thordarson, Hove P.O., R.D. 4
Laugard. 13. mal—aS Clarkleigh P. O.; R. D. 5.
Mánud. 15. maí—1 Con. Farmers’ Hall, Lundar; R. D. 6.
priSjud. 16. maí—I Con. Farmers' Hall, Lundar; R. D. 6.
MiSv.d. 17. mal—I Con. Farm. Hall, Lundar; R. D. 6.
Fimtud. 18. mal—I húsi H. Danielsson, Otto; R.D. 7.
Mentun barnanna yðar
Hefirðu peningana, sem til þess þaxf?
Byrjaðu að spara, meðan þau eru ung —
láttu þau byrja lífið í þeirri vissu, að þú
standir þeim að baki.
Sparisjóðsreikningar eru sérkenni
9
THE ROYAL BANK
OFGANAöA
Borgaður höfuðstóll og viðlagasj...... $40,000,000
Allar eignir .................... $483,000,000
Föstud. 19. maí—I húsi J. Chartrand, Deer H. Stat.; D. 8.
Laugd. 20. mal—I húsi J. Chartrand, Deer H. Stat.; D. 8.
Mánud. 22. mal—I húsi H. H. Preston, Lllly Bay; R. D. 9.
Skrásetjari er J. A. Hjalvardson', Lundar.
Mánud. 8. mal—I Macross skólahúsi; R. D. No. 10.
piriöjud. 9. mal—I T. Hall, Ericksdale; R. D. 11.
MiSv.d. 10. mal— I T. Hall, Ericksdale; R. D. 11
Fimtud. 11. mal—I Eastland skólahúsi; R. D. 12.
Föstud. 12. mal—1 Ealavala pósthúsi; R. D. 13.
Laug.dag 13 mal—I Lundar Boarding >House; R D. 14.
Mánud. 15. maí—I Lundar Boarding House: R. D. 14.
priSjud. 16. maí—1 húsi A. Mason. 6-23-7W; R. D. 15.
MiSv.dag 17. maí—1 húsi A. IMudge, 20-23-7W; R. D. 16.
Fimtud. 18. maí—i skðlahúsinu; R. D. 17.
Föstud. 19. mai—I Municipal Hall, Camper; R. D. 18.
Laugard. 20. mal—I Mun. Hall, Camper; R. D. 18.
Mánud. 22. maí—I húsl H. Baker, 5 24 8W; R. D. 19.
priSjud. 23. maí—I húsi P. Kjernested, Narrows; R.D. 20
Miðv.d. 24. maí—I húsi J. R. Johnson, 18 24-10; R.D. 21.
priftjud. 25. mal—I húsi S. Stephenson, Vogar; R. D. 22.
Skrásetjari er Peter Irwin, Camper P. O.
Karla-kapp.
Réttnefndur vígahugur virð-
ist kominn í alla íslenzka karla
hér vestan hafs, af blöðunum
að dæma. Líklega er það eitt-
hvert merki-tákn tímanna! Eða
getur verið, að ungu mennirnir
séu svo önnum kafnir — við
“radio”-tæki og aðrar stórmerk-
ar verklegar framfarir nútím-
ans—, að að eins gömlu menn-
irnir hafi tíma til að tala?
En hvað um það. Svo hátt
hafa nú þeir gömlu, að allir —
ungir og aldnir — eru nauð-
beygðir til að hlusta. Og það
eru engin smámenni, sem nú
brýna raustina. Séra Jónas A.
Sigurðsson, hærugrár og háaldr-
aður, yrkir nú hvert kvæðið af
öðru — stillir forn - íslenzka
strengi, og gerist “skáld skálda”i
í ellinni.
Sigurbjörn Sigurjónsson, ald-
urhniginn og ellibeygður, ritar
sannfærandi og sláandi ritdóm
um “þjóðræknisritið”. Hreim-
sterkari íslenzku kunna fáir, og
þokar hann sér nú í tölu rit-
færustu vestur-íslenzkra al-
þýðumanna—í ellinni.
Lárus Guðmundsson, aldraður
maður, snarast einnig fram á
ritvöllinn með ritgerð og rit-
dóma. Hreinskilinn að vanda,
segir hann mönnum til syndanna
svo gamanið gránar. Hræðist
hvorki tröll né drauga, þótt tek-
inn sé að eldast.
Stephan G. Stephansson,
þrunginn af ofurkappi ellinnar,
treður út “þjóðræknisritið” áð-
urnefnda þeih heljar drápum,
sem fáir af fjöldanum skilja.
Stórvirkur er hann, karl sá, og
ekki öllum fært að fara í kruml-
ur hans. Torskilinn í æskunni,
er hann oft og einatt óskiljan-
legur í ellinni.-----
En svo kemur hvatlegur ís-
lenzkur karl til sögunnar, öld-
unfeurinn Dr. Sig. Júl. Jóhann-
esson, og þýðir af íslenzku á ís-
lenzku eitt af ofannefndum
kvæðum Stephans — til ómet-
anlegs skilningsauka íslenzkri
alþýðu.
þýðing sú er sannnefnt
meistarastykki. Allir vissu
“Sigga gamla” pennafiman vera
og orðsnjallan; en flestir hefðu
þó svarið fyrir, að hann fengi
afkastað jafn veigamiklu snild-
arverki—líkl. á stuttum tíma.
Áreiðanlega hefir hann með
verki þessu ritað nýjan þátt í
bókmentasögu íslenzkrar þjóð-
ar. Vonandi á hann eftir, ef
honum endist aldur, að þýða
þannig á íslenzku öll kvæði
Stephans.
Vissulega er okkur öllum
gleðiefni, bæði ungum og göml-
um, að sjá blessaða íslenzku
karlana elskast. Engir munu
því setja fyrir sig, þó ofanrætt
k Eru Kjörkaup Yðar Áhugamál?
X
T
T
♦♦♦
T
T
♦;♦
Ef svo er
Ý Þá Athugið þesti Einsdœma Kjörkaup á *£
CDNGOLEUM RIIGS
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
1
AÐEINS EIN STŒRÐ.
AÐEINS 4 TEGUNDIR
Reglulegt úrvalsefni
Stærð 9x 10-6 ....
*il
.95
COGDA DYRAMOTTUR
69
Aðeins seldar þeim, er koma
með þessa auglýsing
Engar Síma
Pantanir
The Reliatble Home Furnisher
492 MAIN STREET PHON
“A Mighty Friendly Store to Deal With”
N6667
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
T
♦>
ABricl
I .íi m li
S I
Brick Tile o£
Lumber Co. Ltd.
P
Brick og Hollow Tile framleiðendur
Timbur og annað Byggingarefni.
Afgreiðum pantanir utan af landi fljótt og vel.
BRIGK MANTELS
200 Tribune Bldg. WINNIPEG Talsími A5893