Lögberg - 11.05.1922, Page 6
bls. 6
LOGBBRG, F.IMTUDAGINN
11. MAl 1922
Stolna ley ndarmálið.
Flestir menn, sem hafa sjálfstraust og
sjálfsstjóm, geta flntt ræóur opinberlega. 0g
Fen'ton fékk bráðlega það álit, að vera góður
ræðumaður, Hann gat stundum talað heila
klukkustund hvíldarlaus og vakið húrraóp og
hlátur.
En mjög fáir af þeim, sem Ihrópuðu húrra
fyrir honum, spurðu sjálfa sig hvort þeir hróp-
uðu húrra fyrir tilfinningum hans og skoðun-
uim, eða eingöngu fyrir mælsku hans og gam-
ansömu orðupi. Einstöku sinnum fanst þeim,
sem voru íhugunarsamari, að orð 'hans væri
sem klingjandi málmur og hringjandi bjöllur.
Kosningarnar áttu fram að fara í lok
októbermánaðar, og þó að ýms mót hefðu átt
sér stað, var aðalfundinum frestað þangað til
greifinn sá sér fært að vera til staðar.
Fenton hafði nefnilega mint greifann á
loforð sitt og ákveðið, að hann skyldi tala á
þessum stóra fundi.
“Eg verð líklega neyddur «til að fara”,
sagði greifinn, þegar hann las bréf, sem minti
hann á loforðið.
Þau voru þá stödd í salnum, þar sem Con-
stance sat við píanóið og framleiddi nokkura
lága tóna.
“Hvers vegna ætti þú ekki að fara, og
hvers vegna ættir þú að kvíða fyrir því?”
spurði gamla konan brosandi.
Hann vpti öxlum hlægjandi og sagði: “ó,
eg hefi enga löngun til þessa. Að flytja ræður,
er imér ekki geðfelt”.
“Eg er viss um að þú munir tala mjög
vel”, sagði greifainnan.
“Nú jæja — eg skal fara á fundinn”,
sagði hann. “En mér finst að þið ættuð báð-
ar að koma með mér og ’auka kjark minn”.
Constance hélt áfram hljóðfæraslættinum
en snéri ekki höfðinu við.
“Við — Oonstánce og eg?” spurði greifa-
innan. !
“Já, hr. Fenton skrifar, að áheyrenda-
pallurinn verði búinn út fyrir kvenfóíkið, og
að margar þeirra ætli að vera til staðar.
Hann sendir með bréfinu aðgöngumiða handa
þér og Constance. Vilt þú fara elskan mín?”
bætti hann við um leið og hann gekk til henn-
ar og studdi höndunum á axlir hennar.
Hún svaraði ekki.
“Þér liíkar máske ekki pólitískar ræður”,
sagði hann hlæjandi. “Eg get nú raunar ekki
ásakað þig fyrir það, en þar er eg ætla nú að
tala og verða mér til minkunar — ”
“Einmitt iþá vil eg vera sú einasta til að
fara”, sagði hún brosandi. “En eg skal samt
gera það, ef að þú og Iafði Brakespeare viljið
það”.
“Ó—já, eg held að við ættum að fara”,
sagð gamla konan. “Mér þykir líka gaman að
heyra Wolfe tala”.
“Þetta réði úrslitunum. Greifinn skrifaði
Fenton, að þau þrjú ætluðu að koma.
Fundurinn átti að eiga sér stað í bæjar-
ráðssalnum, og þegar þau óku eftir götunum í
þessum kyrláta bæ, sáu þau alstaðar afar-
mikinn mannfjölda, sem hrópaði “velkominn”,
þegar hann þekti vagninn.
ý ‘ Mér þvkir vænt um að eg þekki ekki
stjórnfræði ”, sagði greifinn, þegar hann laut
áfram og horfði á mannfjöldann.
“Það hlýtur að vera mjög kveljandi að
hafa svo mikið við hana að gera. Eg býst
við að troðfult sé af fólki við innganginn að
salnum”.
Það tók dálítinn tíma að komast að dyr-
unum, en þegar þangað kom, sá Constance há-
an mann standa á pallinum.
“Þarna er hr. Fenton í allri sinni dýrð”,
sagði greifinn brosandi.
Þau gengu inn. Koma þeirra orsakaði
hávær húrraóp.
“Eg veit ekki hvað eg hefi gert, til að
verðskulda slíka hvlli”, sagði greifinn, meðan
hann leiddi þær að sætunum, sem þeim voru
adluð. “Það fer vel um ykkur hér’?, sagði
hann. “Eg skal koma til ykkar aftur undir
eins og eg get”.
Hann þrýsti hendi Constance um leið og
hann fór, og gekk svo upp á ræðupallinn.
t kringum ræðupallinn sátu helstu menn
greifadæmisins, þar á meðal hertoginn, sem
virtist áhugalaus.
Constance sá að Wolfe stóð á bak við háa
manninn. Hann leit upp til hennar brosandi,
en um leið og hún endurgalt brosið, gekk
Fenton líka að ræðupállinum og leit upp.
Hertoginn stóð nú upp og sagði eitthvað
sem enginn heyrði, en allir klöppuðu lof í lófa
samt sem áður.
Þegar hann hætti, gekk greifinn upp á
pallinn.
Honum var heilsað með húrraópi og svo
varð bögn.
Constanoe fekk hraðan hjartslátt þegar
hún skildi, hve mikið vald nafn hans og hin
göfuffa persóna Ihafði.
Hann ibrosti fyrst, eins og hann væri und-
randi, og flutti svo stutta ræðu. Þegar hann
settist aftur, var hrópað hringinn um kring í
sainum: “Þrjú húrra fyrir greifann!”
Litlu siíðar heyrði Constance há óp, blönd-
uð mögli og háværum mótsögnum. Það var
Fenton, sem bessa móttöku fekk.
Hann gekk að rönd ræðupallsins og horfði
rólegur niður á manngrúann með litlu brosi,
en hávaðinn fór alt af vaxandi og breyttist
á endanum í grimt org.
Hann var fölur en augun leiftruðu og var-
irnar pressaðar fast saman, á meðan bann
beið eftir þögninni.
“Þú ert líklega ekki hrædd eða kvíðandi,
kæra Constance?” sagði greifainnan.
“Nei, alls ekki”, svaraði hún. En hún
gat ekki litið af Fenton.
Hertoginn stóð upp og skipaði fólkinu
með hárri rödd að þegja, en hávaðinn hélt
samt áfram eins og áður. Þá stóð greifinn
upp, gekk niður af áheyrenda pallinum og
tróð sér í gegnum manngrúann til dyragangs-
ins.
“ó, hvað skal hann nú ætla að gera?”
spurði Constance náföl í andliti.
Greifainnan, sem sjálf var óróleg, lagði
samt hendina á öxl Constance og hvíslaði:
“Vertu ekki hrædd, góða bamið mitt. Enginn
gerir Wolfe neitt ilt og hann amar aldrei
neinum manni”.
Og hún sagði satt.
Constance sá hann grípa í kraftalegan
mann við dyrnar. Á næsta augnabliki var
maðurinn úti, og greifinn lagaði hálslínið sitt
og klútinn, gekk svo aftur á milli þessara
æstu manna til sætis síns.
Hann var naumast sestur jþegar Fenton
bvrjaði að tala svo hátt, að heyrðist um al'lan
salinn, og nú var hlustað á hann með aðdáun.
Constance fanst ræða hans fölsk og urr-
andi, og eftir litla stund fanst henni, að hann
talaði eingöngu til sín.
Hún áleit þetta vera að eins ímyndun, en
þegar hún leit upp og horfði á hann, sá hún
að hann horfði á sig.
Hún veitti tþví torðum hans eftirtekt og
heyrði hann segja: “Vinir mínir! sá sem
bíður, fær að síðuistu vilja sínum framgengt
v — sá sem Uíður og vinnur fyrir takmarki sínu.
“Eg ætla ekki að tala* um sjálfan mig, eg
álít mig ekki duglegri en menn eru alment.
En það get eg sagt ykkur, að þegar eg hefi á-
formað eitthvað og beðið og unnið fyrir því,
hefi eg að siíðustu sigrað.
“Stundum hefir biðtíminn verið langur,
og vinnan erfið og kveljandi — en alt af hefi
eg náð takmarkinu”.
Nú gullu við húrraóp.
Hann bætti svo við — og Constance fanst
hann horfa á sig ertandi og háðskum augum:
“Eg ætla ekki að sgja ykkur alt, sem býr
í huga mínum á iþessiari stundu. Það eina
er. að eg verði kjörinn í Berrington, og eg
held að ósk mín rætist. Hinu get eg ekki
sagt ykkur frá, en svo mikið skal eg segja
ýkkur, að það er hin æðsta ósk lífs míns. Og
eg kalla ykkur til vitnis um, að hún skal verða
uppfýlt”.
Constanoe vissi nú að hann talaði til henn-
ar, en ekki til almennings. Hún hlustaði
ekki lengur á ræðu hans, en féll í einhverskon-
ar dreymandi ásigkomulag, sem hún vaknað;
af þegar snert var við handlegg hennar.
Það var greifinn, sem snerti hana og sagði
“Ertu þreytt, elskan mín?”
Hún sneri sér þakklát að honum og svar-
aði: “Já, eg er mjög þreytt”.
“Við skulum þá fara”, sagði hann. “Það
var ágæt ræða, sem Fenton flutti. Hafði hún
ekki góð áhrif á þig?”
Áður en hún gat svarað, stóð Fenton fyr-
ir framan þau.
“Eg er hræddur um að þér séuð orðnar
þreyttar, lafði Brakespeare,” sagði hann en
horfði á Constance.
“Eg get ekki þakkað yður eins og vera
ber, fyrir komu yðar”, sagði haun. “ Og eg
verð að segja, að nái eg kosningunni, þá á eg
lávarði Brakespeare það að þakka”.
“Bugl!” ympraði greifinn.
“Jú, það er hreinn sannleikur,” sagði
Fenton.
“Nei, alls ekki” svaraði greifinn brosandi
“En eg vona að ósk vðar rætist. Ræða yðar
var góð, þó að kvenfólldnu þætti hún ekki
fullnæjandi”.
Greifinn hló og bætti við: “Hún vakti
forvitni þeirra, en gaf engar skýringar. Eg
er nærri viss um að þær hugsa allar um hver
hin óskin ér, sem þér viljjð að rætist. Er
það ekki Constance?” i '
Fenton leit fljótlega til hennar og sagði:
“Ungfrú Graham getur máske getið þess”.
“Eg er ekki hið minsta forvitin, hr. Fn-
ton”, sagði hún.
“Það er líklega of frekjulegt af mér að
halda það”, sagði Fenton. “En ef yður
nokkuru sinni dytti í huig að vita það — sem
ekki er sennilegt — þá skal eg segja yður það”.
27. KapítvM.
“Þá gerðir Constanoe 'hrædda í kvöld,
Wolfe,” sagði greifainnan.
“Já, eg hefi líklega gert það”, svaraði
hann með iðrunarróm. “En mér fanst að
eg yrði að koma í veg fyrir þenna hávaða.
Mér þykir mjög leitt að hún sfcyldi verða
hrædd um mig. Mér sýndist hún líka vera
föl í andliti, þegar eg kom aftur.
“Það hefir hún verið núna undanfarið.
Það lítur út fvrir að eitthvað ami að henni.”
“Mamma”. sagði hann lafhræddur, “Þetta
er aðeins ímyndun þín. Hvað ætti að ama
henni? ’ ’
Gamla konan studdi hendi sinni á hand-
legg hans og sagði: “Það er máske satt sem
þú segir, að þetta sé aðeins ímyndun mín.
En eg vildi óská þess að þið værnð gift”.
Wolfe leit undrandi til hennar og sagði:
“Hins sama óska eg”.
“En hvers vegna stingnr þú þá ekki upp
á því við hana, að þið giftist?” spurði hún.
Hann ihrökk við og roðnaði.
“Stinga upp á því. Heldur þú að hún
vilji giftast mér svo stuttum tíma eftir trú-
lofanina?” spurði hann.
Hún brostí.
“Eg veit það ekki”, sagði hún, “en eg
mundi spyrja hana, ef eg væri þú, Wolfe”.
Fáum augnablikum síðar fór hún út.
Wolfe gekk aftur og fram um gólfið, hálf-
rug'l'aður.
Gat það verið hugsanlegt að Oonstance
vildi giftast honum — t. d. að tveim vikum
liðnum? Efiisvo væri — en þetta var of gott
að gera sér von um.
Þegar hún kom ofan fáum mínútum síð-
ar, langaði hann til að taka hana í faðm sinn,
en hætti við 'það og settist á stól við hlið 'hennar
‘ ‘ Þér þykir líklega vænt um að þetta er af-
staðið, kæra Constance mín, og að þú ert heima
aftur”, sagði hann. 1
“Já, mér þykir vænt um það”, svaraði
hún. “En það er ekki alt búið — atkvæða-
greiðslan og máske fleiri fundir”.
“Já”.
“Eg fyrirlít það alt saman”, yfpraði hún.
“En þú flytur ekki fleiri ræður Wolfe?”
“Nei”, svaraði hann og hló. “En eg
býst við að þufa meira að gera í þessu efni,
nema eg taki mér ferð á hendur frá því öllu”.
“Ert þú jið hugsa um að ferðast?” spurði
hún með skjálfandi róní og náföl.
“Já, mér hefir dottið það í hug. Með
því losnaði eg við öll hin leiðinlegu afskifti af
kosningunum”, sagði hann.
“Já, það gerðir þú”, sagði hún hrygg.
“Það eina sem tefur mig er, að eg vil
ekki fara aleinn”, sagði ihann með látalætis
kæruleysi.
“Er þá enginn til, sem getur farið með
þér?” . ^
“Jú, það er ein persóna, isem mér þætti
væntum að hafa með mér, en eg veit ekki — ”
“Veist þú ekki hvort hún vill fara með
þér Hefir þú spurt hana? — Ekki? — þvj
gerir þú það ekki?”
“Eg skal gera það”, svaraði hann lágt.
“Nafn hennar er Constance Graham”.
“Mig — Wolfe?”
“Já. Hvers vegna ekki?”
“En — ”
“En — hvað?” spurði hann. “Hvað
ætti að hindra það? Getum við efcki gift
okkur í október?”
“Gift okkur! Ó, Wolfe”! sagði hún
og roðnaði.
“Já”, sagði hann, “hvers vegna ekki?
Hvers vegna eigum við að bíða? Að tveim
vikum liðnum getum við ferðast til suðurlanda.
Við getum farið til Rómaborgar og verið þar
í vetur. Seigðu nú ökki nei. Hugsaðu um
það, að við tvö getum verið saman”.
Hann sá að varir hennar skulfu.
“Og þá losnum við frá Fenton og þessum
leiðinlegu kosningum, sem þér líka svo illa”,
sagði hann brosandi.
Hún hrökk við. A
“En — en”, mótmælti hún með hægð.
“Það er svo stuttur frestur! Hvernig get eg
fengið klæðnað minn tilbúinn á þessum tíma?”
Hann hló glaðlega og sagði: “Eg teþ -ekki
tillit til þeirrar hindrunar, Constance. og eg
hélt að þú ihugsaðir lítið um klæðnað og þess
konar”.
“Já”, sagði hún hvíslandi, “og — og það
verður mjög kyrlátt brúðkaup, Wolfe?”
Hann sá að hún ætlaði að samþykkja og
tók hana í faðm sirtn. “Elsfcu brúðurin ip:n”,
hvfelaði hann, “við getum, ef þú vilt, tekið
okkur skemtigöngu einhvern morgun, og hagað
okkur eins og ungu hjónaefnin í einni af skáld-
sögum Dickens, þar sem hetjan er látin segja:
“Nei, svo sannarlega er þetta fcirkja. Komdu
við skulum ná í prest og láta gefa okkur sam-
an”.
Hún brosti og leit niður, meðan hún með
skjálfandi fingrum þuklaði á kniplingum kjóls-
ins síns.
“Nei, það má ekki gerast á þann hátt”,
sagði hún lágt. “Eg veit hvað eg skulda þér
Wolfe”,
“Jæja, borgaðu hana þá að lokum, og á
hvem hátt sem þú sjálf vilt”, sagði hann. “Því
fyr sem við eram gift, þess glaðari ver eg.”
Hún lagði handleggi sína um háls hans og
horfði beint í augu hans. Þetta var eitt af
þeim augnablikum, sem voru Oonstance svo
sjaldgæf. |
“Eg iskal gera hvað sem þú vilt”, sagði
hún blátt áfram.
Svo losaði hún sig úr faðmii hans og yfir
gaf hann. ! ' ' *'
Hyr greifainnunnar voru opnar, og þegar
Constanoe gekk út, kallaði gamla konan til
hennar.
Oonstance gekk inn til hennar og þné nið-
ur á stóru Ijónshúðina við ofninn. Hún fól
andlit sitt í keltu lafðinnar, og sagði henni
hvað átt hefði sér stað.
Móðir Wolfes kýsti hann innilega: “Þetta
gleður mig Constance; þið elsfcið hvort ann-
að svo heitt, og eg þrái þá stund, þegar þið
komið heim úr brúðkaupsferð ykkar. Að
tveimnr vifcum — ”
“Þremur vikum”, sagði Constance.
“Jæja, látum það vera svo. Við fáum
mikið að gera, að undirbúa brúðkaupið — ”
“Það á að vera kyrlátt brúðkaup”, sagði
Oonstanoe óg leit upp.
“Það læt eg ykfcur um. En nú verður
þú að segja mér hverja brúðkaupsgesti þú vilt
hafa?”
Unga stúlkan hrökk við og roðnaði.
“Eg gleymdi alveg — ”, sagði hún lágt.
“Eg get líklega ekki haldið brúðkaup hér.
Þar er þetta er ekki mitt heimili”.
Greifainnan brosti og strau'k hárið frá
enni hennar um leið og hún svaraði: “Það
er auðvitað ekki siður; en egheld að það hafi
alls enga þýðingu, góða baraið mitt. Þetta
hús er heimili þitt núna”.
Constance hrisiti höfuðið og sagði. “Má
ekki gifta okkur í London?”
\T/> .. | • v* tnnbur, fialviður af öllum
Nyjar vorubirgðir tegundum, geirettur og al.-
korvar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar.
Komið og sjáið vörur vorar. Vér crumætíð glaðii
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co.
—. — — Limltvd--------------
HENRY 4VE. EAST - WlNNIPEtí
Winnipeg Brick Company Limited
Verksmiðjueigendur og kaupmenn
— verzla með —
SKKAUT-GRJÓT og ALGENGT GRJÓT
Sandsteypulím, Möl, Lím, Cement og Liti
í steypulím o. s. frv.
Utanbæjar sem innan pantanir afgreiddar tafarlaust.
Phones F.R. 700—701
The Dowse Sash & Door Co. Ltd.
—Búa til og Verzla með —
Hurðir, Glugga, Geirettur og Strykaða Tigla.
Úrval af hörðu og mjúku timbri
— Hringið N 1156 —
“Nei, það má ekki eiga sér stað. Allir
tilheyrandi Brakespeare fjölskyldunni hafa ver-
ið giftir í sinni eigin kirkju. Og eg vil helst
að þú og Wolfe gefið hjónabandsloforð ykkar
við sama altarið og forfeður hans”.
“Hvað á eg að gera?” sagði Constance
með hægð. “Eg á enga vini — ”.
“'Seigðu það ekki, góða bamið mitt”,
greip gamla konan fram í fyrir henni. “Þú
átt svo marga. En nú veit eg hvað gera skal!”
sagði hún og varð glöð á svip. “Hertogainn-
an vill auðvitað halda brúðkaupið með mestu
ánægju”.
“Hertogainnan?” endurtók Constance
undrandi.
“Já”, svaraði greifainnan og klappaði
hendi hennar aláðlega. “Það verður undur á-
næju’legt, að brúðkaup ykkar verði haldið í
The Towers. Ekkert gleður hertogainnuna
eins mikið og að halda brúðkaup. Hún mun
líka gera hvað sem vera skal, fyrir þig og Wolfe
Það var heppilegt að mér daitt þetta í 'hug. Þú
getur farið þangað og dvalið þar tvo eða þrjá
daga á undan brúðkaupinu, en Wolfe getur ver-
ið hér. Eg vona að þið jþolið þenna aðskiln-
að”, sagði hún brosandi.
“En það verður þá stórt og skrautlegt
brúðkaup”, ympraði Constance mótmælandi.
“Það er ekki alveg víst. Nökkuð stórt
og líklega skrputlegt verður það. Við meig-
um ekki neita hertogainnunni um þá ánægju,
að bjóða nokkrum gestum að vera til staðar
og að koma öllu sem best fyrir. Eg skal fara
og finna hana á morgun. En farðu nú að hátta,
góða barnið miitt”.
Constance kysti hana um leið og hún fór.
Báðar voru tárfellandi.
Hún gat naumast trúað því, að hún yrði
kona Wolfes að þrem vikum liðnum, og að
hún færi alein með honum til Róm, og slyppi
við nærveru Fentous.
Hertogafrúin varð himinglöð, þegar greifa-
innan sagði henni frá uppástungu sinni.
“Það er einmitt það, sem eg hefði sjálf
viljað stinga upp á, góða vina mín”, sagði hún.
Þegar greifainnan bað afsökunar á ómakinu,
sem hún gerði henni, svaraði hertogafrúin:
“’Þö að þetta valdi mér ofurlítillar fvrirhafnar
ef til vill, er eg fús til að gera alt, sem eg get,
fyrir Wolfe og elskulega konuefnið hans, og
hið sama segir maðurinn minn, sem er næstum
ásitfanginn af henni.”
Constance afréð að kaupa sér skrautlítinn
brúðarbúuing, fyrir sína eigin peninga, og
neitaði að þiggja annan skrautlegan, sem
greifainnan vildi kaupa hauda henni.
Til brúðarmeyja voru valdar, Ruth og
frænka hertogafrúarinnar, og Constance réði
Arol sem einskonar riddarasvein.
Briiðkaupið átti að verða mjög stórt, en
það var þó óiunflýjanlegt að margir gestir
yrðu í The Towers, og að biskup nokkur, sem
var fjarskvldur greifanum skyldi gifta þau.
Dagarair liðu of fljótt fyrir Constance,
sem átti annríkt með búning sinn, en of seint
fyrir Wolfe, sem þráði að þau yrði gift sem
fyrsit. •'
Fenton átti annríkt við undirbúning kosn-
inganna, og haifði ekki heyrt neitt um brúðkaup-
ið , fyr en viku áður en það átti fram að fara.
Eitt kvöldið kom Femton kl. tíu í heimiboð
til hertogans. Þegar þann var búinn að heilsa
hertogafrúnni, leit bann í kring um sig í saln-
um, þar sem fáeinir gestir voru saman komn-
ir. Meðal þeirra sá hann lafði Ruth, og gekk
strax til hennnr og heilsaði.
“Nafn yðar er alstaðar sjáanlegit, hr.
Fenton, en gerið svo ved að tala ekki um kosn-
ingar í kvöld”, sagði hún.
“Það ætla eg ekki að gera; eg ætlaði að-
eins að segja hve skemitilegt mér finst að sjá
ur aftur, lafði RutJh”.