Lögberg - 27.09.1923, Síða 3
L.OGBERG, FIMTUDAGINN 37. SEPTEMBER 1933
Bls. 3
Sérstök deild í Ut tinu
SSSSSSSS2SSSS83S3SSSSSSSSS2SSSSSSSSSSSSSS5áSSSSSSS28
SOLSKIN
SSSSSSSSSSSSSSSS2SSSSS8SSSSSSS2S2SSSSSS8SSSS8SSSS888
Fyrir börn og unglioga
ssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss
Fanny Chaumont.
Fa’nny var fædd í Canton Bern í Sviss, kotbær
foreldra hennar var upp til fjalla langt fyrir ofan
bygð, en fyrir ofan kotið gnæfðu snjóþaktir tind-
ar Alpafjallanna, öllu megin var jafnan að heyra
suðuna úr ám og lækjuvn, sem fossuðu ofan úr
jöklunum, en á nóttunni hvein stórviður og snjó-
fok, í lágum viðarrunnum, sem stóðu á stangli í
fjallbrekkunum, og 'braut þá og fleygði þeim ofan
á láglendið. Snjófokið hafði sem oftast í för með
sér feykileg snjóflóð, sem rótuðu upp öllu sem fyr-
ir varð, skógarrunnum, grassverði og klettum, svo
þá kyrð og tryggleiki drottnaði meðal innbúanna á
láglendinu, máttu kotbændurnir upp í fjöllunum, a>
tið vænta að verða fyrir eigna og máske líftjóni, og
hlutu því að verja allri athygli til að gætá sín seni
bezt..
Undir þessum kjorum og kringumstæðum óx
Fanny upp hjá foreldrum ^num, hún var af náttúr-
unni auðsveip, ogí á allan hátt elskulegt barn, fögur
eins og blóm á vordegi, augun voru himinblá, ennið
hátt og lítið eitt hvelft fram á við, kinnarnar rósrauð-
ar, munnurinn smár og varirnar hæfilega þykkar,
hakan baugmynduð að neðan með litlu spori í miðju,
svipur hennar og viðmót var alt hreinskilnis og
sakleysislegt;, röddin var mjúk og fögur; ávann því
þessi unaðsfu'lla mær sér elsku hvers er henni kynt-
ist, meðal þeirra var greifafrú er bjó á sloti niður á
láglendinu ekki langt frá kotbæ þeim er Fanny átti
heima á, var það jafnan vandi mærinnar að heim-
sækja greifafrúna, áttu þau greifinn -og frú hans
son, einan barna á viðlíkum aldri og mærin, og léku
þau savnan barnaleikum, og varð brátt allkært með
þeim.
Einhvern tillidag var Fanny eftir vanda komin
á slotinu, fyrri h'luta dagsins var fagurt vorveður;
en seinni hluta dags skall á mesti öskubylur, var því
ekki annars kostur en að Fanny væri þar um nóttina.
Saínt gat hún enga ró á sér haft af löngun eftir að
komast heim til foreldra sinna, og eftir því sem ð-
veðrið harðnaði eftir þv, varð henni skapþyngra, og
þess heitara bað, hún að sér væri fylgt heim að kot-
inu, en enginn tók fylgdina í mál, svo óalegt var út
að sjá. Fanny sat alt af höggdofa og horfði tár-
votum augum út u'm gluggann í áttina, 'þangað sem
kotið vár; þessi nótt var henni hin fyrsta harmkvæ'la
nótt sem hún hafði lifað. Á milli b^djanna var ekki
annað heyra en hvininn í fossunum, ng dýnki í snjb-
flóðunum sem steyptust ofan af hömrunum ofan á
láglendið, alt þetta táknaði óttalegustu eyðilegging,
og fordjörfun, enda urðu , foreldrar og vandamenn
Fannyar offur ógnanna þessa nótt, því enginn þeirra
sem í kotinu voru, ko'must af til að segja frá tíðindum.
Á blettinum þar sem kotið stóð, — um hvert að var
ofur fagur eplagarður, og þar út frá fáein engjapetti
— var nú ekki annað að 'líta en klettabrot og jökul-
stykki, sem snjóskriðurnar höfðu skilið þar eftir, en
engin merki eður leyfar sáust þar af nokkru lifandi
kvikindi. Alt frá' þessari óttalegu nótt var Fanny
í slotinu, og þótt hún væri ung, vakti þó sífelt í huga
hennar sorg og söknuður, eftir foreldra og vanda-
menn hennar, ásetti hún sér nú að helga fósturfor-
eldrum sínum, er nú voru orðin, alt'líf sitt og láta
al'la breytni sína og hegðun miða þeim til heilla og
yndis.
pannig óx Fanny og þroskaðist, bæði útvortis að
fríðleik, og innvortis að dygðum og kurteisi. Henrik
greifasonur leikbróðir hennar þroskaðist einnig,
bæði að fríðleik og karlvnensku, var hann #nú, sem
siður var til, settur til menta, og þá hann í skólafrí-
tmunum kom heim til föðurhúsanna, fann hann Fanny
ætíð fríðari og elskuverðari en næst áður, af þessu
spratt heimugleg ást í brjósti hans til meyjarinnar,
móðir hans sem vakti yfir hverju atviki og tilliti son-
ar síns, sem var augasteinn hennar, varð þess skjótt
vör, hvað í hjarta hans gjörðist. Og þó hún þættist
vita að Fanny mundi ekki enn þá hafa tekið eftir því,
fann hún ti'l megnrar órósettni af því, hvernig komið
var, og það þess heldur, sem nú var lokið skólanámi
Henriks, en það bætti þó úr skák- að hún hafði komist
að því, að Fanny hafði fest ástaraugu á ungum her-
manni, Louis Coumont, var hann nokkuð eldri en
hún. Œtt hans var af ríku bændafólki, og var
hann því jafnborinn henni, en ýms ógæfutilfelli höfðu
svift Louis gjörvöllum eignum hans^ er voru í fyrstu
stórmiklar í löndum og lausu'm aurum, og að lyktum
var hann hrakinn burt af þáverandi eignarmanni
gózanna, sem einmitt var greifinn fósturfaðir
Fannyar.
Móðir Louis var af góðum ættum, hafði frá barn-
dómi vanist makindum og sællífi, varð nú að grípa
til þeirra óyndi^úrræða að betla um ölmusu. pessi
ógeðfelda breyting á lífskjöru'm hennar féll henni svo
þungt að hún sýktist og deyði. Faðir hans, sem
var skapharður, sór nú greifanum æfinlegt hatur í
hjarta sínu, og fyrir syni sínum prédikaði hann dag-
lega að “sæt væri sjálfshefnd.”
Louis var hraustari og fríðari öllum jafnöldrum
sínum, og var ætíð oddviti þeirra hvað sem reyna
þurfti. Reyndar brá honum til stóhlyndis og kapps,
líkt föðurfrændum hans, en hafði þó þess utan trúfast
og gott hjarta, sem átti ekki lítinn þátt í að létt mundi
að heilla hann til ásta.
Fanny var jafnan fálát, og lét lítið á sér bera,
en þrátt fyrir það hafði fríðleiki hennar og háttprýði
mikil áhrif á Louis. Sö'muleiðis fanst henni mikið
til um manndóm og hegðun hans, leið og ekki á löngu
áður þau bundu órjúfanlegan vinskap með sér, se'm
loksins varð að innilegri ást. Þetta sá og vissi
greifafrúin, og studdi hún af alefli að samgöngum
þeirra, því þanki sá, að sonur sinn máske kynni að
auðvirða ætt sína með því að þíðast hana, hvatti
frúna til að hafa Fanny sem fyrst úr vegi, og með
þessu ’móti sá hún áformi sínu bezt framgengt. pví
hversu skynsöm sem blessuð greifafrúin var, gat hún
þó ekki komið því í sitt höfuð, að syni sínum mundi
hollara, að giftast duglegri yngismeyju af lágum
stigum, heldur en aða'lbornu kvennskassi- Það jók
nú enn fremur á ásf Fannyar til Louis, að í hvert skifti
er fóstra hennar mintist hans, hrósaði hún sem
mest hún mátti mannkostum og atgjörfi hans, en orð
hennar mat Fanny jafnt og beztu móður.
Ekki leið á löngu áður Henrik komst að öllum.
áður töldum leyndarmálum. En þar maðurinn var
skapbráður og stoltur af ættgöfgi sinni, þoldi hann
ómögulega að kotkarlssonur — er hann. svo nefndi
Louis, — tæki veiðina úr höndum sér. Fann hann
því upp á étal vélum til að hefta savngöngur þeirra,
og fór nú að hafa orð á því, að Louis væri alstaðar út-
flæmdur öreigi, en árangurinn af róg þessum varð
sá, að Louis frekar en áður lagði allar árar út að
hefna svívirðu þessarar. ....
Um þessar mundir var stjórnarbylting Frakka að
brjótast út, það var því enginn háski stærri en sá að
sýna maktarmönnum nokkurn mótþróa. Svo greifa-
frúin, sem í rauninni var valkvendi, hafði fult í fangi
að hindra vandræði þau er áhorfðist að brytist út á
milli þeirra.
Nú var að ráði gjört, að Henrik skyldi fara til
Parísar og Ijúka þar bóknámi sínu. Yfir þeirri ráð-
stöfun foreldra sinna varð Henrik stúrinn, og fanst
að skipán þessi væri nokkurskonar útlegðardómur
sinn, því þótt hann í aðra röndina væri góður drengur,
þá var hann í hina fullur ásta-ofstækjú og öfundar, og
um kvöldið næsta fyrir burtför sína, egndi hann
Louis til reiði, sem lyktaði með handalögmáli og blóðs-
úthellingu, og þótt misklíð þessi jafnaðist mil'li þeirra
án stórra meiðsla, flaut þar af að greifafrúin slepti
fremur en áður hendi sinni af honum. Var honum
nú í nafni greifans boðuð útlegð, en greifafrúin kost-
aði þó kapps um, að hamla ofríki greifans í þessu
efni. En Fanny bað hún í millitíð að ráða ekkert af
í tilliti um hafi sína í fra'mtíðinni, og dvelja á slotinu
undir gæslu sinni þangað til að sonur sinn að ári Hðnu
kæmi heim aftur- pessu hlýddi iFánny, þrátt fyrir
það, iþó Louis krefðist þess, að hún færi þá þegar burt,
úr híbýlum fjandmanna sinna, þar sem hann vildi for-
smá velgjörðir þær, sem henni voru veittar þar, og hann
þar hjá gengi að því vísu, að meðbiðill sinn fengi tæki-
færi til að ræna sig ást og trúnaði hennar, ef hún
dveldi þar framvegis. Árangurslaust setti Fanny
honum fyrir sjónir, þakklætisskyldu sína við fóstur-
foreldra sína, fjærveru Henriks, og trúnað sinn við
hann, hún áleit það skyldurof ef hún að tilefnislausu
flýði burt frá þeivn. En þegar hún vildr ekki laga
sig að óskum Louis, fékk bráðlyndi hans lausan taum.
Hann sór þá greifanum dýrt æfinlegt hatur og öllum
hans vandamönnum, er hann skyldi ofsækja og ekki
hætta fyrri en hann gæti rétt hluta sinn á þeim með
blóðugri hefnd. En Fanny hótaði hann að útskúfa
úr huga sinun\ og aldrei líta hana framar.
Fanny hugsaði meðvsér að ske kynni að tíðin og
tilfellin máske lægðu geðs’muna storm Louis, og að
unnusti sinn mundi, þá frá liði, sækja á fund sinn
aftur, og þegar hann þá reyndi trúskap og ástúð
sína, mundi hún þá vinna sigur á öllum mótþróa og
sundurlyndi þeirra. Hún leitaðist því við að sefa
söknuð sinn og stundaði sem áður öll sín störf með
blíðlyndi og kostgæfni; en þó hvarflaði í huga hennar
þráfalt sorglegur þvíði fyrir því, að Louis enti heit
sín, og útrýmdi elskunni til sín úr brjósti sér. Það
var því hennar einasta traust og huggun er hún gat
fundið í huggunargreinum heilagrar ritningar, og í
bæninni til guðs, er mundi leiða vandræði þessi til
farSælla lykta.
Á meðan þannig stóðu hagir hennar gjörðust
margir efnilegir yngismenn til þess að biðja hennar,
en hún þverneitaði þeim öllum. Útlitsfegurð hennar og
æskublómi fölnaði og glaðlyndi hennar var horfið.
Um þenna tíma hafði stjórnarbyltingin náð full-
um þroska, og hvervetna geysaði stríð og blóðsút-
helling, og nú hafði landplága þessi náð talsvert út
yfir landamæri Frankaríkis, og nálgaðist Sviss. Allur
bændalýðurinn hljóp undir vopn, og úr öllum áttum
voru hinar jroðalegustu fregnir. í fystunni voru
umbrot þessi fjarlæg bygðarlagi því, sem saga vor
gjörðist í, en sífelt nálgaðist hættan 'meir og meir,
unz frjálsræðiseikin um (síðir var gróðursett í ná-
bústöðunum. Greifinn var ótrauðasti einveldis-
•vinur, og því ámintu vinir hans hann um að gæta sín
í tíma, einkum þar þegnar ha,ns — bændurnir er
bjuggu á jörðum hans — væru alls óhæfir til varnar,
en varúð þeirra var árangurslaus. Að sönnu vopn-
aði hann leiguliða sína sem föng vou til, og byrjaði
með þeim áhlaup á nágranna sína, þá er hann meinti
helzta hafa hallast að hinu nýja stjórnarformi. Honum
tókst líka nokkuð að dreifa hóp fjandmanna sinna, og
snéri svo heim hrósandi fögrum sigri. En ti'lvik
þetta ávann honum almenningshatur. Flleiri og
íleiri herflokkar streymdu inn í lendur hans. Akur-
yrkjan hætti með öllu, en flokkadrættir og samsæri
jókst dag frá degi; bændurnir æfðu sig í vopnaburði,
og einn ókendur maður gaf sig fram til flokksforingja.
Maður þessi hafði áður tekið töluverðan iþ^tt í óeyrð-
unum í Genf, og þessi 'maður vár reyndar Louis Cou-
mont, fjandmaður greifans. Þess var þvi títki langt
að bíða, að slotið væri u’mkringt og umsetið á allar
h'liðar- Foringinn krafðist þess að innbúar bæjar-
ins gæfu sig tafarlaust á vald sitt. . Nú hafði
Fanny við þungan harm að búa. Hún vildi naumast
trúa nokkru misjöfnu um Louis en heyrði þó að fóstur-
foreldrar sínir tölúðu hlífðarlaust um hann, sem arg-
asta fjandmann sinn, sftn hefði stolist að yfirráðum
bygðarlýðsins. Hættan sem nú vofði yfir höfðura
.þeirra, ásamt því, að hann var álitinn hvatamaður
alls þess ofrikis, er'greifinn taldi sér veitt, kveikti
megnasta hatur í brjósti hans. Ástandið á slotinu
varð dag frá degi ískyggi'legra, hungur og ánauð fór
dagvaxandi; hótanir óvinanna urðu æ voðalegri.
Loksins var afráðið með óvinunum, að brenna slotið
Professional Cards
upp til kaldra kola; þó var öllum öðrum en greifanum
veitt leyfi til að víkja óhindrað burt frá slotinu, en
greifinn átti tafarlaust að afhendast foringjanum
sjálfum. Var nú ekki um kosti að velja. Greifinn
sem hafði vænst eftir varnarliði, sá þá von bregðast,
hann ‘lét því tilleiðast fyrir bænarstað konu sinnar, að
flýja í dularbúningi um nóttina upp til fjalla, og
dyljast í kothreysi et þ&r var, að vitund fárra manna,
og þar áttu hjónin að hittast næsta dag. " Greifa-
frúin fékk ekki dúr á augu sín alla þá nótt; hún sat
uppi í hallarturninum og hlustaði eftir öllu sem fyrir
bar, hvert einasta atvik skefldi hana og henni heyrð-
ist sífelt vopnabrak og morðhróp; þetta var árla í
september. Föl og skjálfandi leit hún loks morgun-
ljósið- Á meðan á þessu stóð, hafði Fanny haft fult
í fangi með að búa alt út til fararinnar. pjónustu-
fólk greifans var alt flúið, én hún ein eftir ásamt ein-
um fjörgömium og höltum garðyrkjumanni á slotinu
hjá frúnni, hún sá þvi um alt er á þurfti að halda, og
að lyktum leiddi hún fra mmúldýr og tengdi það fyr-
ir litla kerru, að því búnu lét hún fóstlu sína vita að
alt væri til reiðu. En af sorg og hugarvíli hafði
frúin tapað öllu megni, hún ætlaði að standa á fætur,
en hneig máttvana á gólfið. Fanny kallaði á hjálp,
en hver átti að hjálpa þar allir voru flúnir? En í því
bili heyrði hún fótatak á turntröppunum, henni varð
hverft við, því hver gat það verið? Máske upphafsmað-
urinn til allrar óhamingjunnar er nú vofði yfir höfð-
um þeirar- — En svo var þó ekki. — pví við fyrsta
viðlit á gestinn, dró allan dul af hver hann var, því
maðurinn var Henrik; en heimkoma hans í það skifti
var langt síður en kærkomin. Spurði hún Henrik
um alla tilburði; líf hans í París; var sökum stjórnar-
byltingarinnar í sífeldum háska. Hann hafði því
flúið þaðan og gjört sér í hugarlund, ^að hann findi ó-
huitan griðastað í föðurhúsu’m sínum. En það
fyrsta sem hann heyrði var hróp Fgnnyar um hjálp,
og það fyrsta er hann sá var móðir hans liggjndi á
gólfiu í ómegin, nær dauða en lífi.
Fyrsta áforms hans var því, samstundis að þjóta
út úr slotinu og hefna á fjandmanni sinum, en þá móð-
ir hans raknaði við aftur, kraup hún að fótum hans
og bað hann, sakir alls þess er heilagt væri, að sleppa
fávizku þeirri, og yfirgefa sig ekki. Og með sam-
einuðum' bænum þeirra Fannyar tókst þeim um síðír
að sefa æði hans, en í sömu svipan benti herstjórinn
að byrja áhlaupið. Var því enginn frestur til úr-
ræða. Henrik mátti nauðugur leggja sig á botninn
á kerrunni og var hálmur breiddur ofan á hann og
ýmislegt hrasl á ofan. Frúin og Fanny settusl í
kerruna, en gamli garðyrkjumaðurinn setti«st í ak-
sætið og stýrði múldýrinu, var svo s’otið yfirgefið í
hendur óvinanna. Frúin grét sáran, en Fanny grðt
ekki; en útlit hennar lýsti því, að hún bar bitra sorg
í hjarta sínu bæði vegna þess að þurfa nú að yfirgefa
heimili, er hún hafði sem munaðarlaust barn, notið
föðurlegrar forsorgunar og ástúðar í, og sá þar hjá,
að hann sem hún unni svot einlægt yg heitt, var nú
pottur og panna” til allrar ógæfu hennar og þeirra
er höfðu fóstrað hana.
Á leiðinni mættu þau nokkrum bændum, er bölvuðu
þeim ofan fyrir allar hellur, og svo fleirum og fleir-
um og offruðu þeir nógum hótunum. Vegurinn varð
æ torsóttari, loksins mættu þau stórum bændaflokki,
og'foringi flokksins er var Louis stóð í brjósti fylk-
ingar. —
“Óttist ékki frú,” — sagði hann — “eg skal láta
fylgja yður yfir 'landamærin,” — en greifafrúin hljóð-
aði yfir sig og kastaði sér í faðminn á Fanny, og
sagði: “Hann er þá kominn hér, hann myrðir
okkur.”
“Nei, verið óhræddar, hann vogar ekki að krenkja
okkur,” 'mælti Fanny. “En þú Louis víkur burtu
frá okkur starx.”
m
Þessi brð sagði hún í einhverju fáti, • því hún
meinti að hann æskti helzt eftir að ráðast á fjand-
menn sína, en ofboð og ótti nvatti hana til að mæla
þessi orð, en þó með tilliti því, sem elskendum er tam-
ast að skilja-
“Það er langt frá,” anzaði Louis, “að eg hefði S
huga að styggja yður á nokkurn hátt, eg er þvert á
móti reiðubúinn til að frelsa yður. Eg hata alls
ekki greifafrúna; en harðstjórarnir einir skulu læra
að óttast mig. Þér eruð ekki óhultar fyrir utan
léiðsögn mína, mótsegið henni því ekki. En þú svik-
ula mær! nú ert þiá valdi •mínu.” Við þessi orð hans,
kippitist sá við sem í kerrunni iá, og mátti Fanny
sig alla við að hamla honum að þjóta á fætur. Hún
hún sagði því með byrstri röddu: “Svo tak þú mig þá
og tortýndu mér, en dirfst þú ekki að snerta eitt hár á
höfði hinna saklausu: Far þú leiðar þinnar og láttu
þá aldrei sjá þig framar.”
“Svo skal vera,” svaraði Louis; “en gættu þess,
að, ábyrgðin hvílir nú öll á þér sjálfri.”
Fanny hafði áður en tilfelli þetta bar að höndum,
ætlað sér að sæta tækifæri og ná Louis til viðtals, og I
reyna þá að mýkja skap hans, með vottun trúskapar,
og blíðlætis síns, en þar eð meðbiðill hans nú rétt sem l
kom þeim í opna skjöldu, flaut af sjálfu sér, að slíkt!
hlaut að farast fyrir.
DR. B. J. BRANDSON
216-220 MF.DICAI; ARTS BU)G.
Oor. Graham and Kennedy Sts.
Phone: A-7067
Office tlmar: 2—3 .
Heimili: 776 Victor St.
Phone: A-7122
Winntpeg, MnBitoba
DR. O. BJORNSON
216-220 MEDIOAL ARTS BIiDG.
Cor. Graham and Kennedy Sts.
Phone: A-7067
Office tímar: 2—3
Heimili: 764 Victor St.
Phone: A-7586
Winnipeg, Manitoba
THOMAS H. JOHNSON
og
H. A. BERGMANN
ísl. lögfræðingar
Skrifstofa: Room 811 MoAitlrar
Building, Portage Ave.
P. O. Box 1656
Phones: A-6849 og A-6846
DR. B. H. OLSON 216-220 MEDICAL ARTS BLDG. Cor. Graharn and Kennedy Sts. Phone: A-7067 ViCtalstmi: 11—12 og 1—5.30 Hehnili: 723 Alverstone St. Winnipog, Manitoba
DR J. STEFANSSON 216-220 MEDICAL ARTS BLDG. Cor. Graham and Kennedy Sts. Stundar augna, e-yrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er aC hltta kl. 19-12 f.h. og 2-6 e.h. Talsíml: A-3521. Helmill: 627 McMUlan Ave. Tals. P-2691
DR. B. M. HALLDORSSON 401 Boyd Building Cor. Portage Ave. og Edmonton Stundar sérstaklega berklaaýkl og aCra lungnasjúkdrfhia. Er aC finna á skrifstofunni kl. 11—12 f.h. og ?—4 e.h. Simi: A-3521. Heimili: 46 Alloway Ave. Tal- eimi: B-3158.
DR. A BLONDAL 818 Somerset Bld*. Stundar aérstaklega kvenna eg barna sjúkdóma. Er að hitta frá kl. 10—12 f. h. 3 til 6 e. h. Office Phone N-6410 Heimili 806 Victor 8%r. Sfmi A 8180.
DR. Kr. J. AUSTMANN 848 Somerset Blk. Viðtalstími 7—8 e. h- Heimili 469 Simcoe, Office A-2737. res. B-7288-
DR. J. OLSON Tannlæknir 216-220 MEDICAL ARTS BLDG. Cor. Graham and Kennedy Sts. Talsími A 8521 Heimili: TaLs. Sh. 8217
J. G. SNÆDAL Tannlæknir 614 Somerset Block Cor. Portage Ave. og Donnld St. Talsiml: A-8889 f
Vér leggjum sérstaka álrerzlu á að selja meðul eftir forskriftum lækna. Hln lie/.tu lyf, scm hægt er að fá eru notuð eingöngu. . pegar þér komið með forslcrliftum til vor megið þjer vera viss um að fá rétt það seni lækp- trinn tekur tU. COI/CLECGII & CO., Notre Dame and Sherbrooke Pliones: N-7659—7650 Giftiiigaleyfisbréf seld
W. J. MNDAL, J. II. I.IND.VL
B. STEPANSSON
Islenzkir lögfræðingar
3 Hom^ Inveetment Bullding
468 Main Street. Tals.: A 4966
Pelr hafa einnig skrifsrtofur aC
Lundar, Riverton, Qimll og Piney
og eru þar aC hitta á eftirfylgj-
andi tlmum:
Lundar: annan hvern mltvlkudag
Riverton: Pyrsta flmtudag.
Gimllá Fyrsta miSvikudag
Piney: þrlðja föstudag
I hverjum m&nuCl
Munið Símanúmerið A 6483
og pantiö metSöi ytSar hjá oss. —
SenditS pantanir samstundis. Vér
afgreitSum forskriftir metS sam-
vizkusemi og vörugæöi eru öyggj-
andi, enda höfum vér magrra ára
lærdémsrlka reynslu atS baki. —
Allar tegundir lyfja, vindlar, ls-
rjómi, sætindi, ritföng, tóbak o. fi.
McBURNEY’S Drug Store
Cor Arlington og Notre Dame Ave
J. J. SYVANSON & CO.
Verzla með fasteignir. Sjá
um leigu á húsum. Annast
lán, eldsábyrgð o. fl.
' 808 Paris Bldg.
Phones. A-6349—A-6310
ARNI ANDERSON
ísl.4ögmaður
í félagi við E. P. Garland
Skrifst.: 801 Electric Rail-
way öhambers
Talsíml: A-2197
A- G. EGGERTSSON LL.B.
t
ísl. lögfræð^ngur
Hefir rétt til að flytja mál
bæði í MÁn. og Sask.
Skrifatofa: Wynyard, Sask.
s—
Phon
Phon«: Garry 8616
JenkinsShoeCo.
689 Notra DanM
Avenue
A. S. Bardal
84S Sherbrooke St.
S.Iut líkkistui og annast um útfhrir.
AUur útbúnaSur sá bezti. Ennfrcm-
ur selur Kann alskonar minnisvarfta
og Iegsteina.
Skrifst. talsimi N 6«68
HeimUls talsími N f 507
EINA ÍSLENZKA
Bifreiða-aðgerðarstöðin
í borginni
Hér þarf ekki aC biCa von úr vitl.
viti. Vinna öll ábyrgst og leyst af
hendi fljótt og vel.
J. A. Jóhannsson.
644 Burnell Street
P. B-5'660. Aö baki Sarg. Pire-HaU
ralsímar:
Skrifstofa:
HeimUi: ....
N-6225
A-7996
HALLDÓR SIGURDSSON
General Contractor
808 Great West. Perm. Loan
Bldg. 356 Main St.
JOSEPH TAVLOR
LÖGTAKSMAÐTJR
Heimllistala.: St. Joiin 1M4
Skrlfstofu-Tala.: A 6657
Tekur lögtaki bæCi húsaleiguskuldh
ve'ðskuldir, vtxlaskuldir. AfgrelCtr »4
sem aC lögum lytur.
Skrllstofa 256 Main Sfreet
Giftinga og , , ,
Jarðarfara- plom
með litlum fyrirvara
Birch blómsali
616 Portage Ave. Tals. B726
ST IOHN 2 RiNG 3
Verkstofu Tals.: Heima T&ls.:
A-8383 A-9384
G. L. STEPHENSON
Plumber
Allskonar rafmimnsáhöld, svo sem
siraujárn víra, ailar tejnindir &f
glösuni og afivaka (hatteries)
Verkstofa: 676 Home St.
Plione B-4558 Til taks á
öUum tínium.
Exchange Auto Iransfer Co.
Flytja Húsgögn og Pianos
Annast flótt og vel um allar teg-
undir flutninga; jafnt á nótt sem
nýtum degi
A. PRUDEN, Eigandi
~57í> Vherbrooke St. Winnipe*