Lögberg - 07.02.1924, Page 4

Lögberg - 07.02.1924, Page 4
Bls. 4 ó LöGBERG, FIMTUDAGINN 7. FEBRÚAR, 1924. [ ITögberg Gefið út hvern Fimtudag af The Col- utabia Pre*s, Ltd., (Cor. Sargent Ave. & Toronto Str.. Winnipeg,' Man. TnlMÍmnrt >'-0327 og N-0328 JÓN J. BILDFELL, f ditor LtanMkrift til b!a5sin»: fi|f COlUIHBIá fRtSS, Ltd., Boi 3)7Í, Wirmipeg, »(an. Utanáilrrif) ritatjórana: EDilOR LOCUERC, Bo* 317S Wlnnipeg, Man- í i The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, in the Columbia Building, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. — Vantar menn. Það er naumast, að maður taki svo upp nokk- urt blað, sem gefið er út hér í i’.andinu, að maður reki sig ekki á þessa auglýsingiu: ”Men Wanted” ('það vantar menn), Og 'maður hugsar lítið meira út í það, nema ef maður skyldi yera að leita sér að atvinnu. pá fara mann vanalega að leita sér upp- lýsinga um hana. ' þó hefir tilfínningin fyrir þessari sömu hugsun vakað í sálum allra hugsandi manna frá alda öðli, Og þörfin á mönnum ai’.t af verið söm. pað hefir yí“t ekki þáð tiffiábíl komið yfir heiminn, að menn hafi ekki ihrópað af allri hjartans einlægni: “Pað vantar menn”. Og aldrei hefir hróp mannanna í þá átt verið eins ákveðið og nú og aldrei ihefir að Líkind- um verið meiri þörf 4 mönnum en einmitt nú. Starfsvið vor mannanna eru fjölbreyttari á vorri tíð, en þau hafa áður verið, og þau eru líka mörg í meira ólagi. Vér lítum til þjóðanna, sem í æðiskendum tryll- ingi ofsækja hverjar aðra á margvíslegan hátt, og þessi orð ko‘.na ósjál’frátt fram á varir vorar: pað vantar menn. Vér hugsum um stjórr.málin, :þar sem hver hönd- in og hver hugsun er upp á móti annari, og sar.na röddin kveður við í hugum vorum: Það vantar menn. Vér hugsum um ske'.ntana fýsnina og hinn trylta hugsunarhátt fólksins, sem hefir sökt .því og félög- um borga og bygða niður í skuldir og erfiðleika þá, sem þeim fylgja, og segju‘,n: “pað vantar menn.” Vér reikum víðsvegar um bygðir manna og ból, og alstaðar vantar menn. V’ið plóginn á akrinum, á heimilin, í skólana, kirkjurnar; og þegar vér reik- um um fátæfcraþorpin í stórborgum, og sjáum fólk þúsundu'.n saman sokkið í eyimd og eyðileggingu, hve sárt finnur maður þá ekki til þess, að það vántar menn. • Aldrei hefir verið’meiri þörf á mönnum í hei'm- inum heldur en einmitt nú. Vér eruVn að hugsa um þúsundirnar af ungum sveinum og meyjum, sem eru að vaxa upp og þrosk- ast. Hvað margir af þeim ætli að verði sannir menn og sannar konur; Skyt’di það verða úr þeirra hópi, sem leiðtogarir, er heimurinn er að leita að, koma? Ekki er gott að svara þeirri spurningu. Þó er það óefað mikið undir þeim sjálfum komið. Vér erum sannfærðii* um, að hæfileikarnir til þess eru nógir. Aðal spursáliQ er, er nokku.r á meðal hinn- ar uppvaxandi kynslóðar, sem ber gæfu til þess að leggja þá rækt, st’.n nauðsynleg er, við 'hæfileika sína og temja þá svo «ð hann, eða hún, geti orðið hæf til þess? Það getur ekki komið af handa hófi, eða af til- viljun. Það verður að koma í gegnum áreynslu, sikilning og fórnfýsi. Er sá prís of hár fyrir fóf.k, til þess að gjalda á þessari nautnatíð? Nei, hann er aldrei of hár til þess að gjalda hann. Því án hans er enginn signr til. Marge.r fagrar fyrirmyndir er að finna í sögu manrsanna þesru máli til skýringar. En ein sú allra fegursta, er forsetinn ógleymanlegi, Abraham Lin- coln. Á lífsleiðinni var sá maður þjóð sinni bjart ljós. Síðan að har.n lézt, hefir hann ekki að eins verið þjóð sinni fyrirmynd, heldur öi’Ium heimi. pað geta sjálfsagt ekki allir ungir menn náð þroskastigi því, sem Abraham Lincoln náði, en vér erum sannfærðir um, að þeir eru til á meðal vor, sem ekki skortir hæfileika til þess að ná því, ef þeir að eins vilja beita þeim rétt. Síðan að Abraham Lincoln fæddist, eru 115 ár, 12. þ.m. Síðan að hann dó, eru 59 ár í Apríl n. k. Og það er eins og allar þjóðir heims séu nú að leita að manni eins og Abráham Linccfn. Svo var Hf hans þróttmikið — svo er myndin hans fögur þann dag í dag. Enginn maður skyldi samt hugsa, að sigurljómi sá, er hvílir yfir starfi og minningu þess mæta •manns, hafi verið auðunninn, því hann varð að ganga í gegn um eldraun þá, sem enginn maður fær kann- að, ne.ma sá, sem elskar u'mkomuleysingjann og rétt- lætið, eirs og hann gerði. ‘pað er ekki víst, að eg beri sigur úr býtum, en trúr verð eg að reynast. pað er ekki víst, að mér hepnist öll áform mín, en eg verð að fylgja leiðar- Ijósi því, sem mér er lánað. Eg verð að ljá hverjum þeim fy.Igi mitt, sem heldur fast við það sem rétt er.” petta var stefnrskrá. Lincolns, og frá henni veik hann aldrei, Ivort het’dur að menn fóru að honum mcð cróðu eða illu. En til þess þurfti mikið þrek þá og það þarf milldð þrek til þess enn, að standa við það, sem maður er sannfærður um að er rétt og sa'tt. En það verður enginn maður að manni, sem ekki gerir það. Abraham Lincoln þurfti líka að gera meira held- ur.en að standa við það, sem hann áleit rétt að vera. Hann þurfti líka að taka á móti ihinu bitrasta háði og svæsnustu árásum sinnar eigin þjóðar, og ann- ara þjóða, fyrir að gjöra það, sem eftir hans sann- færingu var það eina rétta. En hann lét það heldur ekki hrekja sig eitt hænufet af leið, þó hann hafi án efa fundið sárt til út af því napra níði, sem hon- um var þá rist, sem merkja má á orðum þeim, sem til hans heyrðust, þegar að hann eitt sinn var að ganga um gólf í Hvítahúsinu: “Abraham Lincoln, ertu maður, eða ertu hundur?” í kosninga baráttunni, þegar að hann var kosinn forseti, átti hann eitt sinn tal við vin sinn einn á þessa f.eið: “Eg finn til skyldunnar, sem er að leggjast mér á herðar. Eg hefi með lotningu lesið söguna um son guðs í grasgarðinum, iþegar hann á- rangurslaust bað um, að sorgabikarinn mætti fram hjá sér fara. Eg er staddur í Getsemane nú — og það flóir út af beiskjubikar mínum.” petta var skóli Abrahams Lincolns—hinn mikli skóli reynslunnar, og hann hafði lært hinar þyngstu og erfiðustu lexíur hans, og það verður hver sá að gera, se'.n, vill’ þekkja lífið elns og það er og gjöra skyldu sína í því eins og Abraham Lincoln gerði. Hver veit, nema einhver Abraham Lincolln sé að vaxa upp hér á meðal vor—einhver afburðamaður, sem verði eins sterkur vottur réttlætis og kær- leika, eins og hann var. En hvað sem um það er, þá er eitt víst, og það er það, að heimuirinn þarfnast einskis eins mikið eins og manna, slíkra sem hann var. Sjúkdómar og Sólskin. pví hefir lengi verið haldið fram af læknum, að sólarbirtan væri hinn versti óvinur sjúkdómanna og einnig er það kunnugt að villimannaflokkar, sem búa i sólarríkum löndum, eru hraustari heldur en hvítir menn, sem í sólan’itlum húsum búa. En þvi hefir ekki verið haldið fram svo vér vit- um, að sólarljósið sé lækning við öllum hinum mörgu meinum mannanna. En Sir Herbert Barker skurði’æknirinn nafnkendi heldur því nú samt fram. Hann heldur því samt ekki fra'm, að eftir að maður- inn sé orðinn sjúkur, að þá sé hægt að lækna hann með sólarbaði undir öllum, -eða flestum kringum- stæðum. Heldur ihinu, að sjúkdómarnir eigi upptök sín og iþrífist best í sólari’.itlum húsum og þröngum götum stórborganna. Frá sinni eigin reynslu í þessu efni segir Sir Barker á þessa leið: “Til þess að reyna hver áhrif sólbað éða sólarhitinn hefir á mig, þá fór eg til Madeira eyjunnar sólkystu í Atlandshafinu. Á 'meðan eg dváldi á eynni, tók eg sólböð stöðugt, — annað hvort lá eg á ströndinni við sjóinn, eða var úti í sjónum. Hörund mitt varð brátt dökkbrúnt, lík- amsþyngsli mín hurfu og eg varð svo léttur á mér að eg gat hlaupið eða synt mílu vegar án þess að finna tifl hinnar minstu þreytu." Sir Herbert Barker hefir látið í ljósi að hann ætli í nálægri framtíð að kaupa eina slíka eyju, þar sem sólarhitinn sé sterkur alt árið um kring og reyna þar þessa sólböðunar aðferð til fullnustu. En hann mun ekki ætla að ibinda þessa hugsun við þá eyju eingöngu heldur hecfir hann gefið stutta lýsingu á því hvernig að hann hefði hugsað sér að gjöra fólki mögulegt að nota þetta nokkuð alment: Eg hefi hugsað mér borg, þar sem göturnar eru mjög breiðar, og beggja megin við þær standa rað- ir af húsum, sem veggir al’lir og þök væru bygð úr gleri, og fter varmi sólarinnar og Ihrein dagsbirta að njóta sín í slíkum bæ, og fólkið, sem þar byggi yrði hraust, andríkt og fjörmikið. Almanak Ólafs Þorgeirssonar. Almanak ólafs Þorgeirssonar fyrir árið 1924 er nýkomið út og hefir verið sent Lögbergi til um- sagna. Er það fjölbreytilegt að vanda, flytur auk mánaðardaga ártöl nokkurra merkisviðburða. Rit- gerð u'm Winnipeg fyrir fimtíu árum með mynd- um. Ritgerð um Kristján Jónsson og konu hans í Duluth Minn., eftir P.H. Luther Burbank með mynd, eftir séra J. A. Sigurðsson, fróðleg ritgerð um þann einkennilega afbragðsmann. Saga bómullarinnar þýdd af G. A. Fyrsta hvíta konan í Vestur-Canada þýtt af Valdimar J. Eydal. Jmndnám íslendinga í Big Point ibygð eftir Halldór Daníelsson fyrrum alþingismann, nákvæm og prýðisgóð ritgerð. Stutt ritgerð um Magnús bóksala Bjarnason á Mountain N. D. með mynd. Fyrstu vesturfarar frá íslandi með myndum. Manntal íslendinga í Canada, sem þó er auðsjáanlega ónákvæ'mt. Skrítlur og helztu viðburðir á meðal Vestur-íslendinga á árinu liðna og mannalát á meðal þeirra. Af þe.«ari efnisskrá sést að almanakið er eigulegt og líka gagnlegt sök- um fróðleiks þess, sem það hefir að flytja nú sem fyr. Það kostar fimmtíu cents og fæst hjá útgef- andanum Ólafi Þorgeirssyni að 674 Sargent ave. og hjá íslenskum hóksölum. Þess verður getið sem gert er. Lögberg hefir ávalt viljað halda á lofti og leggja alt sitt lið einlægri viðleitni fslendinga í framsókn þeirra og samkepni á hinum ýmsu starf- sviðum lífsins, því fyrst er nú það, að það vill sjá að íslendingar sæki fram, séu heJzt fre<mstir í flokki, þegar um framsókn og framfarir er að ræða og á hinn bóginn er því ljóst, að allar framfarir, andlegar og verki'egar eru undir því komnar að menn brjótist áfram, ryðji nýjar brautir og beiti allri orku, til þess að komast ofun’ítið framar, þó ekki sé nema nokkur skref, heldur en þeir stóðu eða standa, sem lo-kið hafa dagsverkimu, eða eru að því komnir að ljúka við það. Margt ’mætti teljl* sem íslendingar hér í þessu framfaralandi Ameríku hafa vel gert, og væri ekki óþarft verk, að ‘minnast margra þeirra, sem hér hafa strítt og starfað og rutt sér braut eða eru að því, sér og þjóð sinni til sóma og þjóðum þessa mikla lands til uppbyggingar. En til þess er 'hvorki rúm né tími að þessu sinni. En á eitt viiljum vér samt minnast í þessu sain- bandi, sem tveir landar vorir hafa nú nýlega hrint í framkvæmd hér í Winnipeg, sem er all'mikill myndarbragur að. Eins og menn vita eru vetrarskemtanir fólks, sem býr í stórbæjum, ekkert smáræðis spursmál, pær eru ungdóminum jafnnauðsynlegar og loftið, sem hann andar að sér og það er eins nauðsynlegt að þær séu hreinar og hollar eins og fæðán, seni ungdómurinn nærist af. Úti skemtanir eru ihér vnarg víslegar, svo se'm skautaferðir, göngutúrar á þrúgum og að renna sér á sleðum. En sökum þess að land er hér slétt þá 'hefir verið lítið um þessar s'Leðaferðir að undaförnu, að vísu lét bærinn ibyggja rennUr hér utan til í bænum og seldu fólki aðgang að henni á undanförnum árum, en 'hún var ófullkomin og frem- ur lítil rækt lögð við hana, þó hún væri. nauðsyn- leg því fólki, sem þá skemtun kýs. Og þannig höf- um vér Winnipegmenn hólkast áfra'm í fimtíu ár, að enginn 'hefir tekið sér fram um að bæta úr þessu þar til nú að tveir íslendingar hafa tekið sér fyrir ihendur að ráöa bót á því, fólki því, sem sleðaferðum ann til heilbrigðrar skemtunar og sjálfum sér til arðs. Mennirnir, sem þetta hafa gert eru þeir feðg- ar Nikulas Ottenson og sonur hans Snæbjörn, þeir tveir eða öllu heldur Snæbjörn, sem er rúmlega tvítugur að aldri er maðurinn, sem kom auga á þetta af öllum þeim tugum þúsunda, sem í bæ þess- um búa, og Ihefðu fegnir viljað gera það, og þeir hafa gjört meira en að koma auga á það, þeir hafa bygt rennu, sem er lengri og fullkomnari en nokk- uð af því tagi, sem til er í landinu. Renna þessi er á fimta þúsund fet á Iengd, og er svo úr garði gjörð, að ihelmingur hennar liggur til suðurs, en hinn til norðurs, Við enda hverrar ál'mu 'hafa þeir bygt iháa pai’la, sem gefa sleðunum nægilegan hraða, svo þeir . fara með ^reysiferð til enda á annari álmunni í senn, þegar þangað er kom- ið er maður annað hvort kominn að stað þeim, sem 'maður fór frá, eða þá að palli þeim, sem er við suð- ur enda rennunnair og þá gengur maður upp á pall- inn eftir stórum tröppum sest aftur á sleðán og fer í hendingskasti aftur á norður enda rennunnar, eða á stað þann, sem maður fór frá í fyrstu. All tilkomiumikið er að koma á þennan skemti- stað að kve’di dags. Rennan er öll lýst með rafljós- um, rauðum, bláum og hvítum, meðfram henni og á ipöllunu'm eru meira en átta hundruð 'ljós og 'hefir Ijósadýrð sú einkennileg áhrif á mann, þegar kveld- skuggarnir eru búnir að breiða vængi sína yfir láð og lög, og þúsundir broshýrra unglinga þjóta í gegn um hið breytlega ljósahaf. Á Rauðárbakkanum við norðurenda rennunnar, hafa þeir félagar bygt skála mikinn úr timbri með miðstöðvarhitun og öllum þægindum, eru í honum borðsalur, sölubúð, skrifstofa, fatageymsl’uklefi og danssalur með glæsilega gjörðu eldstæði. Utan á skála þeim eru níutíu rauð, blá, og hvít rafljós. Inn í skálamum geta menn setið, er menn vilja og skemt sér þar við samræður og dans. Stórvirki iþetta hefir kostað þá félaga stórfé, alt að tuttugu og þrem ur þúsundum dollara, og hafa þeir feðgar lagt það alt fram ása'mt einum enskum manni, isem dálítið fé hefir llagt í fyrirtækið, og er þetta fyrirtæk; þeirra þeim til stórsóma og væntanlega til arðs, því aðsóknin er geysimikil. Scandinavia. Annað hefti af Scandinavia fyrsta árgangi ei* til vor komið, prýðisfallega og ved úr garði gert að öllu leyti. Framan á kápu þess heftis er litmynd af Brúarhlaðdranga í Hvítá á íslandi, ;skýr og vel prentuð. Tveir ísi’endingar hafa lagt efni til þessa heftis, þeir séra Hans B. Thorgrímsen, se'm skrif- ar um fsland, og fylgja þeirri ritgerð myndir, og prófessor Skúli Johnson við Wesley Colle&e, þýðir kvæðið “Brúðarskórnir”, eftir Davíð Stefánsson. Efni þessa heftis er fróðlegt og skemtilegt og frá- gangur allur útgefendunum til sóma. Ryð \ hveiti Um þessar mundir rekur hver fundurnn. annan i Ottawa, er það viðfangsefni hefir til 'með- ferðar,- með hverjum hætti að helzt muni verða kleift að ráða bót á hættu þeirri, sem bændum Vesturlandsrns stafar af ryði í hveiti. Þetta 'meiga í raun og sannlelka kallast g’eðifregnir, 'því hveitiryð er einn hinn skæð- asti óvinur bóndans. Akrarnir geta staðið í blóma og gefið fög- ur fyrirheit um arðvænlega upp- 'Skeru, en á hverri stundu getur veðráttan breyzt þannig, að ryð iheltaki hveitið, svo lítið sé ann- að eftir en stráið tómt, þegar til uppskerunnar kemur. Á síðastliðnu su'mri biðu bænd- ur Manitoba fylkis margra milj- óna dala tap af völdum plágu þessarar, og geta vafalaust því miður átt hið sama á hættunni á komandi árum, nema því aðeins að v:ð sé gert í tíma. pað sem akuryrkjusérfræðingar telja væn- legast til úrlausnar þessa vanda- mái’s er það, að strangt eftirlit skuli með því haft, að þær teg- undir einar verði ræktaðar, er mest hafi mótstöðuaflið gegn ryðplágunni. Hér er um hið mesta va^da'mál að ræða, með þvi að ryðtegundir þær, sem nú bekkjast eru þenar yfir þrjátíu og má vera að fle'ri séu. Þarf því auðsvnílega e^ga smáræðis vísindahí'kkinen. til þess að geta hrint má’inu í viðunanlegt horf. Landbúnaðarráðuneyti sain- ba^disstjórnarinnar hefir kvatt +il /Hessara fnnda og á bað skilið þjóðarþökk fvirir. Á fundunum hafa s°tið nmboðsmenn frá stjórnum á’lra Sléttufvlkianna, professor- ar og aðrir ví^indamenn. Er von- andi að áranwurinn af starfi þeirra verði mikill og góður. CANAIMAN ItUIII IC STEAMSHIPS BEINAK FERÐIR MILLI BRETLANDS OG CANADA Ef t>ér ætlið að flytja fjölskyldu yðar, frændur eða vini til Canada, þá skul- uð þér gæta þess vandlega að á eimskipafarseðlinum standi C4NADIAN PACIFIC STEAMSIIIPS Það nafn tryggir yður beztu afgreiðslu, sem hugsast getur. Eimskip vor sigla meö fárra daga millibili frá Glasgow og Liveipool beint til Canada U nboðsmenn vorirmæta íslenzkum farþegjum í Leith og fylgja þeim til Glas- gów, þarsem fullnaðarráðstafanir verða gerðar. Skrifiðtil H. S. BARDAL, 894 Sherhrook Street, eða W. C. CASKY, Gcnernl Ageiit Canadian Pacific Steamships, 364 Main St., Winnipeg, Manitoba Ungmeonafundurinn. Ungmennafundur sá, sem boð- aður hafði verið og auglýstur op- inberlega, kom saman lí kirkju Fyrsta lúterska Safnaðar í Winni peg 30. jan. s. 1. kl. 2. e. h. Mættir voru erindrekar frá 12 Ungmennafélögum og en fremur fimm af prestum kirkjufélagsins. Forseti þeirrar nefndar, sem stóð fyrir, að undirbúa fundinn, séra Har. Sig'mar, gat ekki setið fund- inn. Stjórnaði séra Fr. Hall- grímsson fundinum eftir beiðni nefndarinnar. Starfsfundirnir voru tveir, nfl. dagana 30. og 31 jan og hóf- ust kl. 2—2.30 éh Fjögur mismunandi erindi voru flutt, .af ungmennu'm, sem til þess höfðu verið fengin af nefndinni. Voru þau erindi um ungmeuastarfsemina og isamband 'milli fð’aganna og starfsfyrir- komulag, þeir, sem erindin fluttu voru: Miss Aðalbjörg Johnson, Winnipeg, Miss Jónassína Jónas- son, Selk., Miss Aðalheiöur John- ison, 'Gimli, Mr. Lárus Scheving, Gimli. Að i’oknum þessum erind- um fóru fram umiræður um sam- vinnu og fyrirkomulag félaganna Eftir nokkrar umræður var kos- in níu manna nefnd til þess að í- huga málið. Lagði nefndin síðar fram svo- hljóðandi tillögur, sem allar voru samþyktar: 1. Nefndin leggur til að haldið verði ungmennaþing að ári með líku fyrirkomulagi og að þessu sinni. 2. Að fimm manna nefnd sé kos- in til þess að ihafa undirbúning þingsins með höndum. 3. Skilningur nefndarinnar er sá, að tilgangur ungmennastarf- seminnar sé að glæða kristileg- ann áhuga meðal unga fólksins, og-vinna í orði og verki að áhuga málum safnaða sinna og kirkju- félagsins. 4. Nefndin telur heppilegt að leiðtogar safnaðanna hvarvetna stuðli að stofnun ungmennafélaga innan vébanda sinna. Tvær samkomur voru haldnar meðan þingið stóð yfiir. Að kvöldi ins 30. jan. fór fram guðsþjón- usta í Fyrstu ’útersku kirkjunni er Dr. Björn B. Jónsson stýrði. Þar töluðu þeir ,séra Fr. Hall- grímrson pg Sig. Ólafsson. Yngri söngflokkur safnaðarins söng við þá samkomu. Seinna kvöldið var gleðisamkoma Bandalaganna, fyr- sta lút. 'safnaðar og frá Sel- kirk. Var fynst breytileg og góð skemtiskrá undir stjórn Winni- peg Bandalegsins. Síðan fóru fram veitingar i -sal kirkjunnar. og þar næst leikir, sem nænri allir tóku þátt í og nutu ágætlega samveru- stundarinnar. Erindrekarnir voru gestir Fyrsta (lúterska Safnaðarins með- an á fundunum stóð, eru þeir þakklátir fyrir ágætar viðtökur, sem þeir nutu meðan þeir dvöldu í bænum. Óihætt 'mun að fullyrða, að langt isé síðan jafn ákveðin við- leitni til isamvinnu ihafi átt sér stað hjá unga fólkinu, eins og kom fram á þessum fundi. Áfram til istarfs og sigurs, Unga fóllc! Sig. Ólafsson. “■ - «.’»* ísland farsœldarfrón. Framh. frá 1. bls. Sumir voru farnir að halda, að landið væri alt að blása upp og væri á leiðinni að verða óbyggi- legt, og vildu þá sumir eggja sem flesta að forða sér. En aðrir vitrir menn sáu, að svo var ekki. Og þeir vissu, aö með dugnaði og góðum vilja, mætti enn bggja landið og bæta iþað, sem hafði niður níðist. En margir eldri mennirnir, sem höfðu séð hann svartan fyrri, trúðu því, að landið væri gott, þrátt fyrir marga örðugleika, og þeir trúðu því, að, mest væri und- ir landsbúum sjálfum komið. Veldur hver á heldur. pað var öli’um kunnugt, að útlendingar fjölmentu á hverju ári upp að landinu og jusu upp auðœfum úr sjónum, meðan landsmenn horfðu á þáð aðgjörðalitlir í landi. Á- reiðanlega var fátæktin að miklu leyti aðgjörðaieysi landsmanna sjálfra að kenna. Skáldin sáu þetta og komu vel orðum að am- lóðahættinum í snjölllum kvæðum eða bitrum eggjunarorðum. Bæði gjörðu það eldri skáldin, og seinna þau yngri, eins og t. d. Hannes Hafstein og Einar Benediktsson. Út úr kvæðunum skein jafnframt bjartsýn trú á að hægt væri að bæta ráð sitt og gjöra betur. “Sé eg í 'huga 'hátt við storð, — hundrað skip með frónskum drengjum, þrek er í höndum, íslenzk orð, —eru það sem skipa að herða’ á strengjum”. Þannig orti Hafstein, er ihann ungur sigldi “fram hjá Skotlands fögru ströndum” og diáðist að dugnaði Skotanna í að bjarga sér. Og Einar Benediktsson' sagði við sjávarbóndann: pú býr við lagarband, bjargar- laus við frægu fiskimiðin, fangas'már þótt komist verði á miðin, en gefv.r eigi á góðum degi, gjálfi ®ær við land. Vissirðu hvað Frakkinn fékk til ihlutar? Fleytan er of smá; sá grái er utar. Hve skal lengi dorga drengir dáðlaus upp við sand?” Og við landbóndann sagði hann: “Og horfðu heim á bú. Upp til heiða, endalausar beitir, en til bygða níddar, eyddar sveitir, sinumýrar, rotnar, rýrar, reita svöruí! hjú. Og isvo túnið. Sérðu í blásnu barði, bóndi sæll, það mótar fyrir garði? Svona bjó hann, hingað hjó hann, hann, en ekki þú.” Smám saman var hafist ihanda og hver dugnaðarmaðurinn á fæt- ur öðrum rak af okkur sliðruorð- ið með famkvæmdum til lands og og sjávar og sýndu það, að “Táp og fjör og frískir menn finnast ihér á landi enn.” Hafskip voru keypt til að halda til fiskjar, síðan vélbátar, og gufuskip og sömu aðferðir notað- ar til að grafa eftir guilli í sjón- um og þær, er útlendingar kunnu. Og þetta hreif til að gefa góðan arð og gott traust á sjálfum sér. Og með iðni og dugnaði tókst bændum og búfræðingum að hag- nýta sér útlendar aðferðir til að sýna og sanna, að landið okkar má líka græða upp og rækta engxi síður en önnur lönd. Við efna rannsókn kom í ljós, að grasið af íslenzfcu túnunum er •svo efnaríkt og mikils virði, að töðufengurinn af vel ræktaðri túndagsláttu getur gefið jafn- mikinn arð og góð hveitiuppskera af samskonar akurspildu í Vest- uriheimi. Smám saman sann- -AMERICAN ÍSLAND. ftil CANADA ^ um Kristjaníu eða K. höfn til Halifax, N.S. 6. mar., ‘Frederik III’ 20. mar., 3. apr., 15. og 29. maí, 3. júl. Næsta dag frá Kristj. Er þér sendið ættingju'm yðar á íslandi fyrirfram greidda farseðla, þá verið vissir um að þeir hljóði upp á Scandinavian American Eimskipafélagið —eða Canada siglinngasambönd þess. Stór skip, með allra fullkomnasta útbúnaði. Yfir 40 ára æfing í fólksflutningum. Úrvals fæði, búið til af reglulegum séfrræðingum. Leitið upplýsinga hjá járnbrautar eða eimskipa umboðs- mönnum, eða skrifið til aðal skrifstofu vorrar. Scandinavian-American Lir.e, 123 S. Tihird St., Minneapolis

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.