Lögberg - 06.03.1924, Síða 6

Lögberg - 06.03.1924, Síða 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. MARZ 1924 Eg held því sem eg hef Hún lét sandinn renna gegn um greipar sínar hægt og hægt. “pú veizt, að eg vildi Iþað ekki,” svar- aði hún. “Ekki þó eg ætti að deyja í nótt. En að- eins—” Hún sneri sér frá mér og leit út á hafið. Eg gat ekki séð andlit heijnar, heldur aðeins hárið og brjóst hennar, sem bærðist upp og niður. “Hendur þínar litast ef til vill )í 'blóði mínu; en dauði þinn mun hvíla á sálu minni,” mælti hún. Hún sneri sér enn meira undan og bar hendina fyrir augun. Eg stóð upp og 'beygði mig niður yfir hana, iþar til eg hefði getað snert höfuð hennar með j ~Vörum mínum. “Jocelyn,” mælti eg. Grein af tré, hlaðin með gulum ávöxtu'm, féll niður við hlið okkar og Carnal lávarður kom út úr skóginum með fangið fult af marglitum blómum. “Eg kom aftur, til þess að leggja fyrstu ávexti okk- ar við fætur þínar,” mælti hann og Íhíorfði á okkur bæði. “pað er gjöf eins vesalings fanga til annars.” Hann lét blómin falla niður í kjöltu hennar. “Viltu skreyta þig með þeim? pau eru næstum því eins fögur og eg get óskað mér að þau væru.” Hún snerti blómin, eins og henni stæði á sama nm þau, og sagði að þau væru falleg. Svo stóð hún ■upp og lét þau falla niður í sandinn. “Eg skreyti mig ekki með öðrum blómum en þeim, sem maðurinn minn safnar,” sagði hún. Rödd hennar var þreytuleg og raunaleg og tár stóðu í augurn hennar. Hún hataði hann; en hún elskaði mig ekki; en samt varð hún stöðugt að leita minnar hjálpar. Vikujn saman hafði hún staðið andspænis dauðanum og horft óhrædd ofan í djúp- ið, sem gein við fætur hennar. “Þér vitið, lávarður góður,” mælti eg, “í hvaða átt séra Sparrow fór með mennina. Viljið þér fara á eftir þeim og segja þeim að koma? Sólin er óðum að lækka og bráðu’m kemur myrkrið.” Hann leit af henni á mig ygldur á brún og njeð sa’manbitnum munni. Hann beygði sig niður, tók blómin upp og reitti þau sundur ögn fyrir ögn með hægð, Iþar til krónublöð þeirra lágu um allan sand- inn. “Eg er orðinn þreyttur á bænum, sem eru ekk- ert annað en þægilega orðaðar skipanir,” sagði hann með hásum rómi. “Farðu og sæktu menn þína sjálfur, ef þú vilt. Hér hefir þú ekkert vald yfir 'mér og eg hreyfi mig ekki. Eg verð þar, sem kon- ungurinn myndi vilja að eg væri, við ihlið hinnar ó- gæfufiömu konu, sem þú hefir gert að fanga á ræn- ingjaskipi." “Þér hafið ekkert sverð, Iherra lávarður,” mælti eg eftir langa þögn, “og þess vegna getið þér logið, án þess að taka um leið við afleiðingunum.” “Þú getur útvegað mér sverð,” sagði hann og átti erfitt með að hylja ákafa sinn. Eg hló. “Eg er ekki fús til að aðstoða óvin minn,” sagði eg. “Og eg mun ekki svifta séra Sparrow sverði sínn.” Fyr en mig varði, var hann kominn að mér og bú- inn að slá mig í andlitið. “Gerir þetta þig viljugri til þess?” spurði hann og beit saman tönnunum. Eg greip um /handlegg hans og við stóðum þann- ig báðir kyrrir, náfölir af reiði og drógum þungt andann. Að lokum hratt eg honum frá mér og færði mig aftur á bak. “Eg berst ekki við bandingja minn,” sagði eg. “Og meðan kona þessi er á skip- inu með þeim manni, sem á meiri sök á því að hún er þar heldur en eg, stofna eg ekki lífi mínu í hættu að óþörfu. Eg mun þola sársauka þenna, sem bezt eg get, lávarður, þangað til betur stendur á, en þá mun eg hefna hans vel.” Eg sneri mér til konu minnar, rétti henni hend- ina og leiddi hana niður að bátunum, því eg heyrði að mennirnir, sem voru að safna ávöxtunum, voru að koma í gegn um skóginn, og þeir sem fóru að safna eggjunum, sáust álengdar bera við rautt kvöldloftið, þar sem þeir komu eftir ströndinni. Við vorum komnir út úr læginu áður en myrkrið var komið og iþegar tunglið var komið upp leit eyjan út, eins og silfurhvítt segl undir alstirndum himninum. 24. KAPITULI. Af! tvennu illu kjósum við það skárra. Lánið, sem hafði verið með okkur, varaði eklci lengi; þegar um skifti, varð breytingin mikil. Veðrið breyttist. Hvert ofviðrið rak annað og það komu að eins einn eða tveir góðviðrisdagar á milli. Margoft héldum við, að skipið myndi farast. Við unnum allir eins og galeiðuþrælar; og skap ræn- ingjanna versnaði eftir því, sem veðrið versnaði. Við eltum barkskip í grend við Cuba. pað var sólskin og sæmilega sléttur sjór, þegar það hóf flóttann undan okkur. Okkur gekk betur, og það var ekki míla milli skipanna, þegar ský dró fyrir sólu. En á næstu mínútu höfðum við nóg að gera við seglin á okkar skipi.*- Fellibylurinn sigraði bark- skipið í okkar stað; það sökk og við heyrðum skelf- ingaróp skipverjanna, þrátt fyrir stormgnýinn. Tveimur dögu'm seinna börðumst við við stærra skip. Það var nógu 'heppið til þess að skjóta niður fram- sigluna á okkar skipí og sigldi svo burt, án þess að hafa orðið fyrir nokkrum verulegum skaða. Allan þann dag og næstu nótt var stormur og okkur hrakti út af réttri leið; í dögun veltumst við á milli stór- sjóanna. Við komumst af, en þegar vindinn lægði, lagðist hræðileg þögn, sem ekki ‘boðaði neitt gott, yfir ulla á skipinu. Eg skaut á ráðstefnu í stórlyftingunni. Kon- an mín sat við hlið mér, lagði handlegginn á borðið og hélt annari ihendinni fyrir augun. Beint á *móti henni sat lávarðurinn og hafði ekki af benni aug- un, þótt hann hlustaði á staðhæfingar séra Spar- rows um það, að þessi hættulegi leikur, sem við ihefð- um verið að leika, hlyti að taka enda. Diccon, sem stóð fyrir aftan Ihann, nagaði á sér neglurnar og horfði á gólfið. “Hvað sjálfum mér viðvíkur, stendur mér á sama”, sagði presturinn að lokum. “Eg fyrirlít þetta líf, en skoða það þó vel þess vert, að það sé lifað, jafnvel þegar það gengur sem verst, samt sem áður þegar Guði mínum þóknast, að kalla mig burt héðan, mun eg fara eins og eg væri að ganga til hátíða halds. Þú ert hermaður kafteinn Percy bæði þú og Diccon, og Iþið vitið hvernig þið eigið að deyja. Þér, herra lávarður eruð og hugrakkur maður, þótt þér séuð vondur maður. Við fjórir getum drukkið bikarinn, án mikils kvíða, þótt hann sé beiskur. En hér með okkur er—” Hin djúpa og hreina rödd hans brast og varð klökk og hann horfði ofan á borðið. Skjólstæðingur konungsins tók hendina frá augum sínum. “Þótt eg sé ekki karlmaður og her- maður, séra Sparrow,” mælti faún “ er eg sa'mt af- komandi margra djarfra manna. Eg skal deyja eins og þeir faafa dáið á undan mér. Og mér sæmir að- eins einn dauðdagi eins og ykkur.” Hún leit á ’mig og forosti tígulega. . “Aðeins einn,” sagði eg. Lávarðurinn spratt upp úr sæti sínu og gekk yfir að glugganum, þar stóð hann og sló fingrunum á gluggaumgerðina. Eg sneri mér til hans. “Herra lávarður,” mælti eg, “í gærkveldi voru 'menn heyrn- arvottar að því að þú og Spánverjinn tókuð saman ráð ykkar með að svíkja okkur.” Hann Ihrökk við og þreif ósjálfrátt með hend- inni þangað, sem sverð faans átti að vera, en fann það ekki. Eg sá, að hann rendi augunum fram og áftur um lyftinguna, sem hann væri að leita að ein- hverju, sem hann gæti notað, sem vopn. “Eg er enn foringi á þessu skipi,” mælti eg. “Hvers vegna eg læt ekki fleygja yður í sjóinn og verða hákörlum að bráð, þótt það væri það síðasta bað, sem eg gæti gefið, er 'meira en eg skil sjálfur.” Hann keyrði höfuðið aftur á bak og öll faans gamla ósvífni stóð afmáluð í svip hans. “Eg er ekki í neinni faættu.” mælti faann drembilega, “og eg vil minna þig á það, að þú ert óvinur minn og eg er ekki skyldugur að sýna þér neina hollustu.” “Eg er ánægður með það að vera óvinur yðar,” mælti eg. “Pú skalt ekki voga þér að ráðast á mig,” hélt hann áfram með sömu ósvífninni. “Ef eg kalla og gef visst merki, þá koma þeir >á* augnablikinu og 'brjótast inn.” “Merki!” endurtók eg. “Tundurkúlan hefir þá ver- ið lögð, og það er aðeins beðið eftir því að hún springi. Það er þá tími til þess kominn að við förum. En þegar eg kveð þennan heim, .................... Kveðja til Sigvalda G. Nordals undir nafni nokkurra vina hans í Selkirk. Nú fagna þér með hlýjum hug í kvöld. sem heiðursgesti og kærum, félagsbróðir, og endurkalla ótal minja fjöld frá ykkar fyrri dögum vinir góðir. pér ga'mlir vinir höndum taka tveim og telja happ að kominn ert til baka; þú leitaðir í hreiðrið gamla heim er hafðir aftur fundið kæran maka. Pú hefir tekið trygð við þenna bæ og traustum höndum unnið margt til þarfa, þar sem brýnust þörfin reyndist æ, þú varst jafnan fúsastur til starfa. Við þökkum fyrir fagran tekinn þátt í félagsstarfi okkar mörgu sinni; þig vantaði hvorki vilja eða mátt og vékst ei heldur undan skyldu þinni. Þín hagsæld ei á arfafé var bygð og aldrei láns þú skreyttir þig með fjöðrum, en hefir unnið alla tíð með dygð, til arðs hjá foæði isjálfum þér og öðrum. Að skylda sé að launa góðu gott, við gjarnan vildum hafa reynt að Jsýna og vonu'm að þú þiggir þenna vott, sem þóknun upp í starfsemina þína. J. Schram. í dögun. (Eftir “J” í Lögréttu.) í Vökulok, er ljósið slökt og leggur föli dagsins spor; í liðna tímans sæ er sökt hans söng og stríði,—en “faðir-vor” er þulið hljó tt við faúmið dökt, uns heimi dvínar vökuþor. Svo ríkir nótt, en sefur sveit við sortans foarm, en til er það, . að stöku náttbæn, hljóð og faeit, í himináttir brýzt á stað. Sá leysi úr, sem lausn þess veit: á lífið nokkra miskunn að? Þögn.—Bíðum hægan, vonin veit hvar veröld ljómar kærleiks glæst, þótt mörg sé röst og löng sé leit að landi því, sem blánar fjærst; en gætu allir eygt þá sveit, þá óðar mundi á vígin sæzt. Sú bygð er guðs, þótt göfgi hans menn gjarnan efi, þá er vist, að sérhver tegund “syndugs manns”' án sundurdráttar þar er hýst. Að sjálfu hjarta sólgjafans, mun sorgarbarni hverju þrýst. Um flókin próf og drýldinn dóm, þeir drtni helga ræðu og sálm, hann folessi dygga, en reiðum róm faann reki foreyzka í vos og hálm. í nót jeg heyrt hef annan óm, hef æðstan fundið kærleiks málm. Sá mikli valdur lífs og ljóss að líkn og mildi’ er öllumí jafn, og hverju sýli syndar-óss hinn sama ætlar skut og stafn. Hann les ei vottorð hnjóðs né hróss, og fairðir ei um flokk né nafn. Nú dagar. — Guð eg þakka þér, að þesisi nótt í landisýn gaf þá óskafold, sem fegurst er, því fært mun aftur sama haf. Og hjartafriðinn færði mér fain fyrsta nótt, sem efinn isvaf. Hjá— HOLLINS WOR TH Einsdæma kjörkaup á nýjustu fötum kvenna Svo sem Yfirhöfnum, Alfatnaði og Kjólum o. fl. Allra nýjustu gerðir, við ótrúlega lágu verði, svo þarna getur hver einasta móðir, kona og meyja, valið úr þeim fínustu vorfötum, sem hugsanlegt er. Nýjar Vor-Yfirhafnir Fagurt snið og fyrirmynd- ar efni, verð frá $12.95 til $29.50 Nýir Vor-Alfatnaðir kvenna úr alull, >Tricotine Poiret Twills og Sport Materials, verð frái $25.00 til $39.50 Nýir Vorkjóiar úr Canton Crepe, Flat Crepe, Poiret Twill og al- ullar Crepes, verð frá $16.75 til $35.00 Lítil niðurborgun tryggir yður fötin Vor Tricotine Fatnaðurbar lil bér takið bau‘ á $25.00 HOLLINS W ORTH6C O, LIMITED Eitt af vorum Tricotine Yfirhöfnum á $29.50. WHsrNIF*EGr LADIES AND CHILDRENS READY-TO-WEAR AND FURS 386 and 390 Portage Avenue BOYD BUILDING SVONA MEÐMÆLI ERU GEFIN TANLAC “Hefði það ekki verið Tanlac að þakka, væri eg enn veik og hug- sjúk kona, því ekkert annað sýndist gera mér gott,” segir Mrs. Edward Gibbs. Allar auglýsingar í heimi og tiL raunir til sölu, mundu ekki hafg rutt TANLAC þá braut, sem nú er raun orðin á , hefði það ekki verið fyrir Ihina miklu lækninga yfirburði þess. Meira en 40 mil- jón flöskur seldar af Tanlac. Eft- irspurnin meiri en nokkru sinni fyr. Gæði TANLAC sem meðals, sannast foezt af vitnisfourðum þeiirra 'mörgu þúsunda, sem hlotið hafa heilsu sína við notkun þess. Yfir 100,GOO vitnisburðir Iþafa verið gefnir, er sanna yfirburði þá, sem TANLAC hefir. Hér eru nokkur dæmi af þessum 100,000 vitnisburðum: Mrs. Edward Gibbe, Lancaster, Pa.: >— “í tvö ár þjáðist eg aí stíflu meltingarleysi, er eyðilagði lífsgleði mína. Tanlac á eg það að þakka, að vera nú\ komin til heilsu, því öll önnur meðul brugð- ust mér.” Mrs. Mary A. Benson, Seattle, Wash.: >— “Eftir uppskurð fékk eg magaveiíki, sem alveg virtist ætla að gera út af við mig. Loks- ins tók eg að nota TANLAC, og fór 'mér þá strax að batna og eg þyngdist um 29 pund.” O. E. Moore, Kansas City, Mo.: “Eg þjáðist í maganum, gat litlu haldið niðri og þembdist upp af gasi, ihvað lítillar fæðu, sem eg neytti. Tanlae kom mér innan skamms tíma til hinnar beztu iheilsu.” Thomas Lucas, Petereboro, Ont- ario: “Herrar mfnir, þegar eg byrjaði að kaupa Tanlac, gerði eg þau beztu kaup, ,sem eg hefi nokkru sinni gert á æfi minni. Það gersamlega foygði upp heilsu mína.” Mr. og Mrs. Joseph E. Kaake, Detroit, Mich.: “í meira en ár voru þrjú foörnin okkar, 2, 4 og 6 ára, svo heilsuveil og máttfarin, að við vorum orðin sárhrædd um líf þeirra. pau ihöfðu öll maga- veiki og saffla sem enga matár- lyst og voru föl og veikluleg. Og ekkert gaman sýndust þau hafa af að leika sér. Undir eins og við fórum að gefa þeim Tanlac, fór þeim að -batna, og nú eru þau heil- brigðustu börnin í Detroit.” Tanlac fæst hjá öllum ábyggi- legum lyfsölum. M-eira en 40 mil- jón flöskur seldar. Varist eftir- stælingar. Notið -Tanlac V-egetafole Pills. BLUE MBBON TEA Því að greiða hátt verð, þegar BLUE RIBBON, bezta te sem til er í þessulandi eða nokkru öðru fæst fyrir . 75 hvert pund Meira Brauð Betra Brauð Ódýrasla og heilnæmasta fœðan er brauð- ið, ef það er réttilega tilbúið. Það sem vér höfum kappkostað, hefir ávaft verið það, að láta vörugæðin ganga á undan öllu öðru; þessvegna hafa brauð vor hlotið þá einróma viðurkenningu, sem raun er á. Efnisgœðin á undan nafninu, hefir ávalt verið kjörorð vort Canada Bread Company Limited PORTAGE 4 BURNELL, WINNIPEG, MAN. Talsími B 2017 RJÓMI * 1 ■1 - Styðjið b.eimaiðnað með því að styrkja yðar eigið félag og fá fult verð fyrir framleiðsl- una. Hafið hugfast, að samvinnu markaðurinn er eini framfaravegurinn að því er landúnaðinn snertir. Látið ekki glepja yður sjónir, farið að fordæmi annara þjóða, sem hafa sannað, að samvinnumarkaðs aðferðin er sú eina, er skapar gott verð á mjólkurafurðum. SENDIÐ RJÓMANN TIL The Manitoba Go-operative Dairies LIMITKD

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.