Lögberg - 17.07.1924, Page 5
LötrUERG, FIMTUDAGINN 17. JÚLÍ. 1924,
Þér getið losnað við
Dyspepsia.
Með Því að Nota Ávaxta-Lyfið
Nefnt ,rFruit-a-Tives.”
Þér getið losnaö við sársauka,
höfuðverk, þreytu og stíflu.
Þetta fræga ávaxtameðal, sem
unnið er úr epla-, appelsínu-, fíkju-
og sveskju safa, — læknar ávait
Dyspepsía.
Mrs. Thomas Evans, Everett,
Ont., segir:
“Eg hafði þjáöst.árum saman af
Dyspepsia, og nýrna og lifrarsjúk-
dómum. Engin meðul dugðu, fyr
en “Fruit-a-Tives” komu til sög-
unnar. Þeim á eg heilsu mína að
þakka.”
Þetta er vitnisburður, sem ekki
verður hrakinn. — Munið, að á-
vaxta-lyfið “Fruit-a-tives” er selt
hjá öllum lyfsölum, eða p>óstfrítt
frá Fruita-tives Limited, Ottawa,
Ont.
gott. Þegar fólkið hættir að sækja
kirkjur, en leitar sér andlegrar
fæðu í blöðunum, þá er eðlilegt að
. farið sé þangað með trúmálin. Og
gott er það m. a. að því leyti, að
þáð vekur umhugsun. I umræðun-
um um þessi mál undanfarandi ber
annarsvegar mikið á árásum á
kirkjuna, þjóna kirkjunnar og ýms-
ar kenningar hennar, en hins
vegar kveða nýjar andlegar stefn-
ur sér hljóðs og er talað hátt um
ágæti þeirra. Eg skil það, að prest-
arnir kynoki sér við að fara með
þær kenningar sínar í blöðin, sem
þeir eru jafnan að flytja í kirkj-
unum og á kristilegum samkom-
um, og að þeir vilja komast hjá
þráttunum um þessi efni á þeim
vettvangi. Þótt eg sé ekki kirkj-
unnar þjónn, langar mig til að
reyna að skýra frá afstöðu krist-
indóms og kirkju til aldarfars og
þekkingar vorra tíma, eins og hún
kemur fyrir sjónir kristnum leik-
manni, sem hefir fengið nokkra
þékkingu á náttúruvísindunum.
Jafnframt verður minst á hinar
nýju stefnur, spiritisma og guð-
speki í því sambandi.
Það er von, að alvarlega hugs-
andi mönnum blöskri andlega á-
standið í hinum svo nefnda ment-
aða heimi, einnig hér á landi, og
vonandi koma nýir, gagnverkandi
andlegir straumar fram, þjóðlífinu
til viðreisnar. Spiritisminn eða
andahyggjan og guðspekin hafa
vakið marga til umhugsunar um
eilífðarmálin, en það sannar auð-
vitað ekki, hve hollar þær séu. Til
þess að vekja menn úr dái er stund-
um gott að ibera ammoniakvatn að
vitum þeirra, en það er ekki þess-
vegna ráðlegt að fara að nota
ammoniak til innöndunar í stað
lífsloftsins. Ekki hefi eg í hyggju
að deila á þá menn persónulega,
sem veitt hafa kirkjunni ákúrur.
Eg kem hér ekki fram sem full-
trúi hennar, og flest slikra um-
mæla hafa lika sinn dóm með sér”
þau benda sanngjörnum og ójil-
höllum lesendum á líkinguna um
flísina og bjálkann.
Það heyrist oft, að mentun og
lærdómur eigi ekki samleið með
trúnni, þau séu andstæð. Margir
trúaðir ungir menn hafa liðið skip-
brot á trú sinni á námsárunum og
ekki rétt við aftur. Ástæðan er sú.
að þegar þeir fara að kynnast nátt-
úruvísindunum og öðrum fræði-
greinum, sjá þeir, að ekki iber sam-
an kenningum biblíunnar og þeirri
þekkingu, ' sem skólarnir veita.
Með'því að þeim virðast skoðanir
fræðiritanna sennilegri, í betra
NOTIÐ
HANA 1
HVERT
SINN OG
YÐUR ER
SAGT AÐ
NOTA
MJÓLK.
samræmi við skynsemina, þá kasta
þeir frá sér því, sem þeim hefir
verið kent í trúaréfnum, fyrst og
fremst skoðunum biblíunnar á eðli
og uppruna heimsins og síðan
trúnni sjálfri, trúnni á Krist,
á annað líf og jafnvel trúnni á
guð. Auðvitað ganga menn mis-
langt í þessu. En eftir því sém
þekkingin á náttúrunni, á verkum
guðs, vex, eftir því verður auðveld-
ara að samrýma hana trúnni. Þótt
^rúarbrögðin séu ekki orðin til
vegna umhugsunar og ályktunar,
þá er það ekki að eins gott og gagn-
legt, heldur nauðsynlegt, að líta á
trúna frá skynseminnar sjónar-
miði, athuga samræmið milli henn-
ar og skynsemi og þekkingar vorr-
ar. Það, sem vér vitum um heim-
inn, þarf ekki að koma i bága við
trú vora . í þessum greinum verð-
ur fyrst litið á kristindóminn frá
sjónarmiði þekkingarinnar, því-
næst minst á afstöðu spiritisma og
guðspeki /gagnvart 'kirkjunni, og
loks drepið á, hvers kirkjan þarfn-
ast á þessum tímum, til þess að
áhrif hennar verði sem mest og
víðtækust.
2- Guðstrú og vísindi.
Alvarlegustu spurningar manns-
andans eru og hafa ávalt verið
þessar: IH]ver er uppruni heims-
ins og af hverju stjórnast hann?
Hvert er eðli og uppruni manns-
ins? Hvert er takmatk jarðlífsins
og hver verða örlög vor, þegar það
hættir? — Trúarbrögðin, iheims-
skoðanirnar og lífsskoðanirnar eru
svörin við þessum og þvilíkum
spurningum. Guðstrú vor krist-
inna manna er svarið, sem vér
höfum fengið við fyrstu spurning-
unni. Eg ætla nú að reyna að at-
huga lítið eitt sambandið á milli
guðstrúarinnar og þekkingarinnar
á heiminum, og verð þá fyrst að
draga upp örlitla mynd af honum.
Stjörnur himins, hinn mikli fjöldi,
eru langflestar nefndar fasta-
stjörnur. Þær eru sólir eins og sól
vor. Sólin er hnöttur, sem er iýá
miljón sinnum stærri en jörðin.
Utan um hana snúast 8 dimmir
hnettir, plánetur. Jörðin er ein
þeirra. Um pláneturnar snúast
tunglin og fylgir eitt jörðinni sem
kunnugt er. Halastjörnurnar snú-
ast lika um sólina. Fjarðlægð
þeirra fastastjarna, sem oss eru
næstar, er svo geysimikil, að vér
eigum erfitt með að skilja hana.
Hún er ekki mæld í mílum né
miljónum mílna, heldur er notað-
ur annar mælikvarði. Ljósið fer
40 þús. mílur á sekúndu. Á einu
ári fer það því því i biljón og 260
þús. miljónir mílna. Fjarlægð
fastastjarnanna er talin i ljósárum,
en ljósár er ferð ljóssins á einu ári.
Næsta fastastjarnan er þó ekki
svo nálæg, heldur 4 ljósár frá oss.
Sirius hátt i 9 ljósár, og ljósið frá
pólstjörnunni þarf 46^2 ár til þess
að komast til vor. Þessár stjörnur
sjáum vér vel. Þó eru þær í vetr-
arbrautinni, sem að áliti stjörnu-
fræðinga er geysimikil sólna-
kringla, sem sólkerfi vort er einn
Iiður í. En svo eru til aðrar sólna-
kringlur, “vetrarbrautir”, sem
nefndar eru stjörnuþokur. Þær
sjást í sjónaukum eins og þoku-
hnoðrar. Ef vér hugleiðum, að
þetta eru alt sólnakerfi og að hver
veit, hvað mörg eru til, sem vér
ekki sjáum grilla í, en stjörnurnar
í hverju sólkerfi eru mörg ljósár
hver frá annari, þá fer oss að
skiljast, að alheimurinn er rúm-
góður, og huga vom sundlar, er
hann horfir út í hyldýpi ómælis-
geimsins. Sól vor er ein hinna ó-
tölulegu sólna í geimnum. Kring
um hana snýst hnöttur, sem er ijá
miljón sinnum minni, og þessi agn-
arögn er jörð vor. Ef vér nú
virðum fyrir oss jörðina, þá hlýða
allir náttúruviðburðir þar ákveðn-
um lögum. Þessi lög köllum vér
náttúrulögin. Hlutir falla til jarð-
ar, af því að hún dregur þá að sér,
en það er eftir vissum lögum. En
þyngdarlögmálið gildir víðar.
Vegna þyngdaraflsins snýst tungl-
ið kring um jörðina og hún og hin-
ar pláneturnar kring Um sólina.
Menn ætla, að þyngdarlögmálið
gildi i alheiminum. Vér þekkjum
fleiri öfl. Rafmagnið og segul-
magnið fylgja sérstökum lögum,
er menn nota eins og kunnugt er.
Ljósið og hljóðið fylgja ákveðnum
lögum og lengur má telja. Auk
þessara og annara laga eðlisfræð-
innar, eru svo öll lög efnafræðinn-
ar. Alstaðar verður fyrir oss fuþ-
komið samræmi og niðurröðun í
náttúrunni, hvort sem vér lítum út
í geiminn eða á það, sem næst oss
er. Ef vér svo snúum oss frá hinni
dauðu náttúru, sem kölluð er, og
litum á lífið á jörðinni, þá finnum
vér þar einnig samræmi og niður-
röðun. Lægstu dýrin í dýraríkinu
heita frumdýr. Hvert þeirra er ör-
lítið korn eða kökkur úr efni, sem
kallað er lífslím eða lifkvoða, og
eru ósýnileg með iberum augum.
Þau ihreyfast, taka i sig fæðu, og
þeim fjölgar þannig, að þau skift-
ast í sundur. Frumhlutar lægri og
æðri dýra, og þá einnig manns-
líkamans, eru likir þessu, og eru
þessar lifandi agnir nefndar frum-
ur eða cellur. Þetta á í aðalatrið-
urium einnig við um líkamsgerð
jurtanna. Frumurnar eru hinir
lifandi og starfandi hlutar líkam-
ans, en á milli þeirra er tengiefni.
Frumurnar starfa saman í hópum,
margar miljónir í hverjum. Það
eru nefnd líffæri. Frumur ein-
stakra líffæra eru misfunandi, eins
og ráða má af mismun líffæranna.
Starf hvers líffæris er summan af
starfi frumanna í liffærinu Þess-
ir örsmáu lifandi frumhlutar lik-
amans, sem sjálfir eru líkamir,
eru sameinaðir svo miljörðum
skiftir og-verður þá lifandi vera
á hærra stigi. Þær JfrumurnarJ
starfa allar í samræmi í hverju líf-
færi og líffærin starfa í samræmi
undir aðalstjórn. Boð aðalstjórn-
arinnar berast með taugunum frá
aðalstöðvum taugakerfisins og
með ýmsum efnum, sem berast
frumunum með blóðinu. Þannig
starfar heildin í aðdáanlegu sam-
ræmi, eins og frumurnar væru
skynsemi gæddar verur, er lifðu
saman í þjóðfélögum, margar mil-
jónir í hverju. Tökum svo þess-
ar óendanlega samsettu heildir, til
dæmis mennina. Þeir eru að ytra
útliti allir likir, margir mjög líkir,
ekki að eins líffærin og hin sýni-
lega likamsgerð • í aðalatriðunum,
heldur líka í aukaatriðum. Þegar
kemur hærra í dýraríkið, frá frum-
um og lægri dýrum, bætist við ný
lífsstarfsemi, meðvitundarstarfsem-
in, sem sérstakar frumur líkamans,
frúmur í tatigakerfinu, virðast hafa
á hendi. Og röðin nær lengra.
Hjá mönnunum, æðstu verunni,
kemur fram ný mynd meðvitundar-
starfseminnar, andinn, mannsand-
inn. Fyrir ofan þá meðvitundar-
starfsemi, sem skynjanírnar bein-
linis valda, stendur æðri lífsstarf-
semi, sem lyftir sér upp fyrir tak-
mörk skynjana heimsins. í með:
vitundarstarfi dýranna er samræmi
og skyldleiki. En hvernig er þá
mannsandanum farið, sem ekki
unir innan takmarka þess heims,
sem er nefndur hinn raunverulegi
heimur ? Er þar nokkurt samræmi ?
Já, andi hinna mörgu miljóna, á
öllum öldum, hefir starfað svo líkt,
að furðu gegnir. Þegar manns-
andinn hefir verið að reyna að svara
spurningunum um upphaf sitt og
alheimsins, um eðli hlutanna, um
æðstu hugsjónir og æðsta gildi
mannlifsins, þá er samræitiið al-
staðar auðséð við nánari athugun.
Vitrustu og beztu menn þjóðanna
hafa verið þar sammála í aðalat-
riðunum. Mörg fleiri atriði mætti
nefna, en eg ætla að láta mér
naégja eitt í viðbót. Mannsandinn
hefir skoðað heiminn, hinn lifandi
og liflausa, og reynt að þreifa fyr-
ir sér leiðina að leyndardómum
náttúrunnar. Til þess að reisa
musteri vísindanna hefir hann bú-
i5; sér til byggingarpalla. Þeir
'heita rannsóknaraðferðir og tilgát-
ur. Ein slík smíði er stærðfræðin.
Hún er í eðli sínu óháð efnisheim-
inum, en mælingarnar og tilraun-
irnar sýna gildi hennar. Þessi að-
dáanlegi byggingarpallur, sem sjálf-
ur er’sérstök bygging, hefir með-
al annars verið notaður til þess að
reisa einhvern tignarlegasta turn-
inn á musteri vísindanna, stjörnu-
fræðina. Stærðfræðin er hugar-
smíði manna og mannsandinn hef-
ir oftar komist til þekkingar á
heiminum, með því að byggja á
þvi, sem var hans eigin smíði.
Að þessu leyti hefir alheimurinn
legið opinberaður í .mannsandan-
um, ef svo má að orði kveða.
Mannsandinn er í samræmi við al-
heiminn. Eigum vér þá að álíta,
að í hugmyndinni um guð komi
fram eina ósamræmið, þar og ein-
ungis þar sé mannsandinn ósam-
kvæmur sjálfum sér og alheimin-
um? Brestur hið aðdáanlega sam-
einmitt í iháleitustu atriðun-
? Nei, mannsandinn getur ekki
sætt sig við þá hugsun. Guðstru-
in er í samræmi við eðli hans og
það er honum sönnun, ekki bein
vísindasönnun, heldur óbein sönn-
un. Hugsum oss eina frumu
mannslikamans, t. d. lifrarfrum-
una. Hún er starfandi lífsvera í
einu líffæri líkamans, starfar eftir
áhrifum frá stjórnarstöðvum lík-
amans. Myndi hún vita, hvaðan
boðin koma og hvers eðlis þau eru ?
Myndi hún vita, að líkamanum er
að miklu leyti stjórnað af frumun-
um i taugakerfinu og hver feikna
áhrif andinn hefir á gengi líkam-
ans og alt jarðlífið? Myndi hún
vita, að vilji vor ræður ’svo mörg-
um störfum likamans og enda lifi
hans, að því leyti, að hann getur
svift hann lífinu með beinu ofbeldi
eða næringarskorti ? Nei, j/ér bú-
umst ekki við því, enda þótt hún
hefði meðvitund á sama hátt sem
hin lægri dýr, stm vér ekki einu
sinni vitum til að frumur hafi.
Hugsum oss, að fruman gæti sagt,
að hún vissi ekkert annað, en að
hún nærðist til þess að lifa, og
lifði til þess að vinna sitt ákveðna
starf í lifrinni, að hún skildi ekkert
af því, sem vér nefndum, og tryði
þess vegna engu af því. Myndi oss
þykja það skynsamlegt? Sumum
pf til vill, en enginn myndi álíta
hana hafa á réttu að standa. E11
eg er þess fullviss, að þeim ferst
ekki réttar, sem neita guði og
leyndardómum hans.
3. Eilíf ðartrú og vísindi.
í kaflanum á undan var reynt
að benda á ósamræmið á milli guðs-
trúar og heimsþekkingar vorrar, i
nokkrum orðum. Þessu næst ætla
eg, einnig í fáum orðum, að at-
huga eilífðartrúna frá sama sjón-
armiði.
Vísindin viðurkenna tvent i
heiminum, afl og efni. Vér verð-
um varir við aflið að því leyti sem
það verkar á efni. Eg ætla ekki
að rekja hinar ýmsu myndir afls-
ins, en að-eins nefna þyngdaraflið,
rafmagnið, segulmagnið og afl
það, sem kemur fram við efna-
breytingar (t. d. dynamítspreng-
ingarj). Vísindin segja, að aflið
sé ævarandi, eilíft. Það verður
ekki til af engu og það verður ald-
rei að engu, eða að minsta kosti
sjáum vér ekki upphaf þess né
endi. Hér komum vér þá að mark-
verðu atriði, eilífðarkenningu vís-
indanna. En þessi kenning virðist
koma i bága við daglega reynslu.
Ef eg slæ hamri á steðja, þá virð-
ist aflið hverfa, er hamarinn nem-
ur staðar á steðjanum. En kraft-
urinn í högginu hefir klofnað í
tvent. Nokkuð fór til þess að
hrista steðjann, en steðjinn hristi
aftur jörðina og loftið í kring.
Hinn hlutinn af kraftinum breytti
mynd, breyttist í hita. Við höggið
hitnaði steðjinn, ef til vill ómælilega
litið, og sá hiti fór út i loffið og
jörðina ; hann dreifðist þar út þang-
að til hvorttveggja var komfð í
jafnvægi. Þá erum vér komnir að
einni mynd aflsins enn; hitinn er
mynd, sem aflið tekur á sig. Áð-
ur en vér skýrum þetta nánar fyr-
ir oss, skulum vér athuga, hvernig
menn hugsa sér efnin í eðli sínu.
Vísindamenn hafa gizkað á, að öll
efni séu sett saman úr ómælilega
smáum ögnum, ódeilisögnum, en
hver ódeilisögn úr enn minni ögn-
um, frumögnum. Ekki hafa menn
séð þessar agnir. Á síðustu timum
hefir verið gizkað á, að þessar agn-
ir væru samsettar úr enn smærri
ögnuin, frumeindum svo nefndum,
og að, þær séu allar eitt og sama
efni, sem taki á sig ýmsar myndir.
Ef til vill sé þetta frumefni, æter-
inn eða iljósvakinn. Ljósvakinn er
efnið, sem fyllir allan geiminn, en
hann hefir enginn getað rannsak-
að. Eins og ryk þyrlast eða hafið
þyrlast upp í skýstrokka, þannig
þyrlast þá frumagnir ætersins í
sveipi og þessir sveipir eru frum-
agnir allra efna.
Snúum nú aftur að aflinu og
hitanum. Að hlutur hitnar, hugsa
menn sér þá að verði þannig, að
frumagnirnar fari hraðar á hring-
rás, en sá hraði felur í sér meira
afl, en hinn minni hraði kaldara
ræmi
um?
efnisins. En hvaða afl sveiflar
frumeindunum í hring og heldur
þeim saman ? Eru þær þá ekki lika
aflsveipir? Veröur niðurstaðan þá
ekki sú, að alt sé afl, en ekkert efni
sé til, að alt efni sé missýningar?
Inn á þessa braut eru vísindin að
komast. En lítum nú á efnin al-
ment. Frumefnin svo nefnd, sem
menn geta ekki klofið^ sundur í
önnur efni, eru talin einföldust að
samsetningu, en önnur efni sam-
bönd af þeim. Efnunum'er skift í
ólífræn efni, t.d. málma og steina,
og lífræn e.fni, en þau koma fyrir
í hkömum dýra og jurta auk ann-
ars. Aftur er annað lífrænt efni
og lifandi efni. Sykur er t. d. líf-
rænt efni. Lifandi efni er hlutur
af lifandi veru og taka þátt í lífs-
starfi hennar. Ólífrænu efnin eru
einfaldari að samsetningu en líf-
rænu efnin. Þau lífrænu efnin,
sem hingað til hefir verið álitið að
lífið sé bundið við, sum eggjahvítu
efnin, eru þeirra allra flóknust að
samsetningu. Á vissu stigi í efnis-
heiminum verður þá fyrir oss þetta
merkilega atriði, lífið. Vér vitum
ekki hvað það er, en það starfar
með þeim öflum og eftir þeim lög-
um, sem eðlisfræðin og efnafræð-
in fjalla um. Ef vér athugum líf-
ið eins og efnið, þá verður fyrir
oss mismunandi margbreytni og
fullkomnun, röð af stigum lifsins.
Á lægsta stiginu er lif án meðvit-
undar, eins og vér skiljum það orð.
Þegar komið er upp fyrir jurtir
og hin lægstu dýr, kemur næsta
stigið, verur með meðvitund. Tak-
mörkin eru óglögg og vísindamenn
greinir á um, ihvar eigi að telja með-
vitund eða ekki og hvar hugsun eða
ekki. Líklegt er, að meðvitund og
taugakerfi fari saman. Það er ó-
líklegt, að hjá lægri dýrunum sé
sé um hugsun að ræða, heldur
svara þau utan að komandi áhrif-
um eftir eðlishvöt, án þess að á-
hrifin risti dýpra. Hjá æðri dýr-
unum ber á “ hugsunar starfsemi.
Áhrifin frá umheiminum geymast,
reynslunni er “safnað í sarpinn”,
það verða til hugarmyndir. Æðri
dýrin virðast hafa meðvitund, sam-
setta úr skynjunum, tilfinningum
og vilja, í líkingu við vora, og hún
er bundin við heilafrumurnar.
Meðvitundarstarfið gengur jafn-
hliða starfi heilafrumanna. En
þetta er ekki æðsta stigið. Dýrin
eru nefnd skynlausar skepnur, og
þótt það sé sjálfsagt rangt, að þau
séu bugsunarlaus, þá dylst engum
hinn mikli munur á þeim og mönn-
um. Þau eru ekki gædd hinu
æðsta þroskastigi sálarlífsins, þau
geta ekki látið hugann starfa ó-
háðan umheimsáhrifunum, finna
ekki nautnir, sem ekki standa beint
í sambandi við líkamsþarfimar,
þau þekkja ekki hugsjónir, ekki hin
æðstu andans gæði, þau lyfta ekki
huganum útfyrir tíma og rúm til
guðs og eilífðarinnar. í stuttu
máli, þau hafa ekki anda. Það er
að minsta kosti ekki hægt að kom-
ast eftir honum né kenna þeim
andleg fræði. Það sannar ekkert i
þvi efni, að þau eru mállaus, því
blindum, heyrnarlausum og mál-
lausum unglingum má kenna ver-
aldleg og andleg fræði. Meðvit-
undarlíf manna og dýra er að sumu
leyti líkt, svo sem vænta má, þar
sem líkaminn er svo líkur. En
mannsandinn, sem skygnist inn í
leyndardóma náttúrunnar, leggur
náttúruöflin undir sig, kemur auga
á æðstu hugsjónir og gerir sér þær
að lífsreynslu, þótt þær komi í bág
við “dýrið í manninum”, hann
virðist standa jafnhátt fyrir ofan
meðvitundarlíf dýranna, eins og
meðvitundin er miklu hærri en
stigið fyrir neðan.
, Þá er loks að minnast á það,
hvernig vér þekkjum umheiminn.
Vér þekkjum hann að eins svo, sem
hann birtist meðvitund vorri gegn
um skilningarvitin. Áhrifin frá
umheiminum berast til skilningar-
vitanna, þaðan til heilans. Heila-
frumurnar taka til starfa og vér
verðum áhrifanna varir í meðvit-
undinni. Vér getum rannsakað
þessar myndir, sem skilningarvit
vor bregða upp fyrir meðvitund
vorri, en enginn maður getur á
annan hátt rannsakað, hvernig
jarðneskir hlutir eru, né hvað þeir
eru í eðli sínu. Vér sjáum þannig
alla hluti fyrir líkamsaugum vor-
um eins og í spegilmynd. Aldrei
getum vér þreifað á spegilmynd né
rannsakað hana efnafræðilega.
Því er eins farið með heilann, aðset-
ur sálarinnar, eins og aHa aðra
hluti. Það má skoða hann *á likum
og gera tilraunir með hann á lif-
andi dýrum, en aldrei sjáum vér
annað en spegilmynd, og 'hún er í
vorum eigin heila. Að álíta efnið
hið eina verulega, er því á sinn
hátt sama og að álíta spegilmyndir
hina emu verulegu hluti, og jafn-
fjarstætt er að álita, að vér getum
komist að hinn^ sönnu niðurstöðu
um sálina með því að kryfja lík-
amann! Sumir vilja ekki trúa á
annað lif eftir þetta, af því að þeir
get ekki hugsað sér efnislausa sál,
þ. e. sál, sem ekki starfar í neinu
efni er vér þekkjum. Allir sjáandi
nmn játa því þó, að ljósið sé til,
en það er efnislaust í orðsins venju-
legu merkingu. Ljósið er álitið
ölduhreyfing í ætemum, ljósvakan-
um, sem nefndur er hér að framan,
en það efni hefir enginn fundið
né rannsakað, það er.tilgáta.
Þegar litið er á
hefir verið drepið á, þá verður oss
að spyrja: Er það einungis aflið
Á umheiminum, sem er ódauðlegt?
Er efnisheimurinn gæddur eðli, sem
mannsandann skortir ? Hefir
mannsandinn fundið eiginleika í
spegilmyndinni, efnisheiminum, sem
hann sjálfur hefir ekki til að bera?
Vísindin álíta, að meðvitundarstarf-
ið sé bundið við starf heilafrum-
anna. En hvað kemur þeim til að
starfa? Er það ekki afl eða afla-
samböndi Hvað er á móti því að
Magic
baking
POWDER
Magic bökunarduft,
er ávalt það bezta í
kökur og annað kaífi-
brauð. það inniheldur
ekkert alum.né nokk-
ur önnur efni, sem
valdið gætu skemd.
álíta, að þótt frumurnar hætti að
starfa, haldi það áfram, breyti um
mynd og starfssvið? Þótt vér lít-
um á lífið sömu augum og umheim-
inn, lítum á sálina eins og aflið, þá
er samræmi í því að hún sé ódauð-
leg. Ef vér lítum á sálina frá and-
legu Ihliðinni, þá er likaminn mynd,
sem birtist sál vorri. Þegar hann
deyr, þá hættir sálin að starfa í
þeirri mynd, en heldur áfram að
starfa i annari, æðri mynd, Breyt-
ingin verður úr líkamlega sýnilegri
mynd í ósýnilega, á sinn hétt eins
og þegar hamarshögg breytist í
hita.. Frá hvorri hliðinni, sem
skoðað er, þá er eilífðartrúin í sam-
ræmi við anda vorn og þekkingu á
heiminum. Vér höfum óbeina
sönnun fyrir eilífðinni eins og guði.
Sumum kann að virðast hún Utils
vera. En hvernig fer heiniurinn að
þekkja gott frá illu, rétt frá röngu,
fagurt frá ljótu? Þekkist það ekki
það, sem hér ►einmitt á þvi, að hið góða, rétta og
fagra er i samræmi við líf vort og
eðli, en hið illa, ranga og ljóta er
í samræmi við anda vorn, er hon-
um andstætt, hnekkir honum og
veldur illri líðan? Vér dæmum
hér ósjálfrátt, en þeim dómi vill
mannkynið þó með réttu hlíta. En
sé þessi dómur um æðstu gæði og
æðstu gildi jarðlífsins sannur, þá
mun einnig vera ástæða til að taka
mark á honum, þegar um æðstu
sannindin er að ræða.
fMeira).
'*$^í^t^t^t^t^t^t^t^t^t^t^t^t^t^t^:^í^t^í^t~t~t^t^t^t^t^t^t^í^4í^t^t^^t^t^t^t^t^t~t^^t^t^t^íM^íM:<M:<M:,M,:M>t4
f
f
f
f
♦!♦
f
f
❖
f
f
V
f
f
f
f
f
V
HOLLINS WOR TH
i
MIDSUMAR-SALA
\
Sala, sem veitir Winnipeg-konum kost á að kaupa
föt, við óheyrilega lágu verði.
sumar-
Sumar Dresses, Vanaverð
er 7.50 til 9.75 Útsöluverð
$5.00
Sumar Dresses, Vanav. 12.75 ÍJQ 7C
til 16.75. Útsöluverð • • • . ^
Sumar Dresses, Vanav. 25
til 35.00. Útsöluverð . .
$18.75
Ermalausar Suits, Vanaverð
12.95 til 15*00. Útsöluv.
Tau Suits, Vanaverð 39-5°
til 49,5°* Utsöluverð .
Peysur, vanaverð 7,95 til
12.50. Útsöluverð . .
$9.75
$25.00
$5.00
Pils, Vanaverð 6,95 til 10,00
Seljast nú á .
$5.00
HOLUNSWORTHSCQ,
LIMITED WHsTISrEPEGr
LADIES AND CHILDRENS READY-TO WEAR AND FURS
:
f
:í
t
f
f
f
f
f
f
f
♦>
♦♦♦
♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦♦♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦♦♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^