Lögberg - 28.08.1924, Side 5

Lögberg - 28.08.1924, Side 5
LöOaSEEG, FIMTUDAGINN 28. ÁGÚST 1924. 6 landlbúnaðinum á hærra stig og að afstýra allri Ihætbu við þessar skuldir, þegar hún snýr sér að því af alefli. Hún hefir iþegar unn. ið miklu meira afreksverk en það. Og þegar eg skil það á mönnum að þeir halda, að “gamli tíminn’' hafi verið talsvert betri en sá nýi og “gömlu mennirnir” töluvert meiri menn en isamtíðarmenn vor- ir? þá kemur mér í hug gamla spakmælið: “Góður er hver geng- inn.’’ Og þegar eg heyri menn óska þess, að vistarlband'stímarnir og þeirra Ihlunnindi 'væru komin aft- ur, þá finst mér eiga við þá þessi orð Hallgríms Péturssonar: ‘Vér vitum ei hvers ibiðja ber.’ ---------------o--------- Opið bréf til sveitarstjórnarinnar í Loðmund- arfirði í N-orðurmúlasýslu á aust- anvcrðu íslandi. Kæru herrar! Sökum þess, að eg er nú seztur í helgan stein og því hættur við allar svaðilfarir, þá veitist mér tíð og tími til þess að láta hugann hvarfla heim á æskustöðvar mínar —heim á ÁrnastaÖi, sem þiö mun- uS kannast við. ÞaS er mín bjargföst sannfær- ing, að þar sé um að ræða merki- legar fornleifar og sem mig grun- ar sterklega aí5 aldrei hafi verið rannsakaðar til hlitar, þó þær séu vissulega þess virði að það sé gert. Kippkorn fyrir norðan túnið er móabarð, sem Hggur frá austri til vesturs. Undir þvi er klöpp, að líkindum víðáttumikil. Vestarlega á þeirri klöpp stendur stór steinn stakur, að líkindum sezt þar að um lok isaldarinnarí og var í minu ungdæmi kallaður Gullsteinn. Ut- an um stein þenna hefir verið hlað- inn hringmyndaður garður og er allmikið bil á milli steinsins og garðsins; og þó tímans tönn hafi verið þar að verki eins og annars- staðar, þá voru vegsummerki garðs þessa auðsæ í ungdæmi minu og sjást að líkindum enn, og mun það klöppinni að þakka, sem undir liggur, að hann var ekki sokkinn í jörðu. Það sést glögt móta fyrir hliði á garðhring þessum, og snýr það gegnt vestri. Austan vert við steininn var klöppin ber. Var ekki annað að sjá en þar hefði verið klöppuð þró í hana og sáust 'barmar hennar glögt. Þró þessi var um þrjár álnir á lengd og ein alin á breidd, og minnir mig að faðir minn hefði sagt, að dýptin væri upp fyrir hné á meðalmanni. Man eg eftir því, að faðir rninn gróf einu sinni holu niður með steininum að vestan verðu, ásamt öðrum manni, niður á hellu. Var hola sú lítil og ekki djúp, og man eg eftir, að við krakkarnir fórum að róta til i leirnum, sem upp kom, og fundum dökkrauðan stein hnöllóttan, hér urn bil þumlung að þvermáli. Var hann sléttur sem byssukúla, með gljáhúð og gati í gegn urn miðjuna, sem reka mátti prjón í gegn um, og var steinn sá í fórum föður míns, þegar eg vissi síðast. Annan stein fundum við. Var hann í lögun og að stærð áþekkur stóru seláhagli. Hann var hvít- blár að lit, gljáandi og utan á hon- um var blei'krauður kross. Gat var í miðjum steininum svo lítið, að i það varð að eins stungið litlum tituprjóni. Þeim steini týndum við strákarnir. Líklegast hefir steinn sá verið steinasörvi, sem kallað var, og kvenfólk bar um hálsinn til skrauts á þeirri tíð Áreiðanlegt er, að sú hefir verið tíðin, að meira eða minna hefir ver- ið um að véra á þessum stað—í kring um þennan einstaka stein, það sýnir garðurinn, sem um hann hefir verið hlaðinn, og steinar þeir hinir gljáandi og fögru, sem í leirnum fundust og minst hefir verið á, auk þróarinnar, sem áður er getið. Er ekki liklegt, að steinn þessi hafi í fyrndinni verið blótsteinn og ýmsum munum hafi J>ar verið fórnað, sem vel hafa geymst og geymast enn í leirnum kring um hinn helga stein? Fyrst eg á annað borð fór að tala um þessa hluti, þá vil eg minnast á annað atriði. Fast við túnfótinn á Árnastöðum að austan, er pyttur, eða fen. Það er ekki stórt um sig, en að líkindum nokk- uð djúpt, og man eg eftir, að móð- ir mín tók þar upp sortu til þess að lita í voðir. í sambandi við þann pytt lang- ar mig til þess að segja frá dálitlu, sem fyrir mig bar á unlingsárum minurn. Það var einn sólskins- bjartan blíðviðrisdag, milli hádeg- is og nóns, að eg var að tína kræki- ber á lyngholti fyrir austan túnið, og sá eg þá glögt, að í miðju fen- inu, sem var nálægt mér, stóð mað- ur. Hann horfði til norðurs og sneri að mér baki. Mikill maður virtist mér hann vera og herða- breiður. Hár hans var svart eða dökt á lit, það var þykt og klipt neðan af því, svo röndin að neðan sást glögt; á höfði hafði hann barðastóran hatt. Eg stóð all- langa stund og horfði á hann, þar sem hann stóð hreifinarlaus. Svo hljóp eg heirn, því eg hefi víst orð- ið hálf-hræddur, og á leiðinni heim að bænum leit eg hvað eftir annað um öxl mér og sá manninn standa í sama stað. Þegar eg kom heim að bænum, hljóp eg strax inn og kallaði á móður mína og sagði henni | frá því sem eg hafði séð. Við fór- um bæði út tafarlaust, en þá var maðurinn horfinp. En siðan hef- ir það verið fast í huga minum, að pyttur þessi eða fen, eigi líka sína sögu. Það eru nú tilmæli mín til ykk- ar, gömlu sveitunga minna, að þið látið kanna svæðið i kring um steininn innan garðsins og þróna, þvi þar tel eg líklegt að enn sé að finna fornleifar, máske merkileg- ar; og látið einnig kanna pyttinn, því ekki er óhugsandi, að einhver af fornmönnum hafi sökt þar nið- ur dýrgripum sínum. Lifið heilir og sælir. Pétur Pálsson. Gimli, í Manitoba, Canada. Dánarfregnir frá Norð- ur DakoU. Þórleif Ingiríður Jónasson. Á Deaconess spítalanum í Grand Forks í Norður Dakota andaðist þann 26. maí isíðastl- Þórleif Ingi- ríður Jónaslson úr Hallsonbygð, eftir þriggja mánaða veikinda- stríð. Hafði ekki fram að þeim tíma kent sér nokkurs meins, en veiktist pá hastarlega af botn- langabólgu og gekk undir hol-l skurð, en varð ekki bjálpað, ogj var )hún upp frá því rúmföst. Hún var að stunda hjúkrunarfræðis- nám við Deaconess spítalann er hún veiktist. Hefði útskrifast það- an síðastl. vor, ef henni hefði enst heilsa og líf. En í stað þess var þessi unga oig myndarlega stúlka kv'ödd héðan einmitt þegar hún var að Ijúka við undirbúning í fagra og göfuga lífstöðu- Vegir forsjónar guðs eru huldir, en t slíkum vonbrigðum og sorg vill hann láta lýsa von hins eilífa lífs. Þórleif Ingiríður var dóttir Jó- hanns Jónassonar í Hallsonbygð, sem kendur er við Grænumörk og konu hans Ingilbjargar Þorleifs- dóttur. Munu þau vera foæði úr Skagafirði. Inga, eins og hin látna var oftast nefnd, var fædd 26. ágúst 1897_ Hún ólst upp í for- eldra húsum, og kom snemma í ljós atgjörvi til líkama og sálar- Eftir að hafa lokið barnaskóla- námi, stundaði hún um hríð nám við kennaraskólann í Mayville í Norður Dakota. Kendi svo á barna skóla í tvö ár og gekk það starf vel. Kaus þó heldur hjúkrunar- konustarf og var eins og þegar er sagt,. langt komin með þriggja ára undirbúning í þá stöðu, er hún veiktist. Enginn, sem Ihana þekti, efast víst um það að hún hefði getið sér góðan orðstýr í þeirri stöðu, ef líf ihefði enst. Hún naut mlikilla vinsælda á spítalanum, þar sem Ihún var viðí nám eins og al- ment Ihjá þeim, ®em hana þektu. Veikindin foar hún með frábærri þolinmæði, og horfði mót dauðan- um með öruggu trausti til Guðs- Líkið var flutt til Hallson og fór útförin þar fram á uppstign- ingardag. Auk foreldranna syrgja Ihana fimm systkini, fjórar systur og einn bróðir. Vornirnar, sem Þau höfðu gert sér um framtíð hinnar látnu, hafa brugðiist. En von frá Guði á þó að upplýsa dimmu sorgarinnar_ Kristjana Björnson. Þann 20. maí síðastl. andaðist að heimili sínu í Hallsonbygð í Norður Dakota húsfreyjan Krist- jana Jófeeflsdóttir, kona Jóns CSveinfojörnssonar) Björnson. Dó hún af fearnsförum Hún var dótt- ir Jósefs Jónslsonar, er dó í Pemfo. ina fyrir nokkrum árum, og konu hans Guðrúnar Kristjánsdóttur, sem enn er á lífi- Kristján Hailson faðir Guðrúnar, hefir orðið elstur maður Ihér í sveit. Var hann 102 ára, er hann lést. En Rósa móðir Guðrúnar, var systir Hólmfríðar, ömmu Guðmundar skálds Frið- jónssonar á Sandi og þeirra syst- kina. Tvö systkini Kirstjönu sál. eru á lífi; Eiður, bóndi í Pine Valley, Man., og Guðný (Mrs. Brims) gift innlendum manni I Grafton, N. Dak. Tvö foörn hinnar látnu eru á lífi, Teódór, nýlega fermdur og Guðrún^ nokkrum ár- umj yngri. Það er svipiegt, þegar dauðinn svo skjótlega tekur frá eigin- manni og börnum unga heimilis. móður. Kristjana sál. var fædd 30- ágúlst 1892. Hún giftist ung eftir- lifandi manni sínum, og Ihafa þau altaf verið til| Iheimilis í Hallsön- foyigð. Hún var táp og dugnaðar- kona, og bjuggu þafl hjón góðu búi. Það er þung sorg eiginmanns. ins og barnanna, eins og líka hinnar aldurhnignu móður. útför- in fór fram þann 23. maí- Alménn hluttekning er í hinni miklu sorg ástvinanna Aðalbj. Bjarnadóttir Kristjánsson. Á síðastliðnum vetri var mikið hrun eldra fólks í, mörgum byigð- um íslendinga hér vestra. Leið isvo varla noíkkur vika, að sá, er þetta ritar ekki stæði yfir moldum ein- hvers aldurhniginis manns eða konu- Á eitt af þeim dauðsföllum, sem enn þá hefir ekki verið getið um í folöðunum, skal hér minst. Þann 20 janúar þ á. andaðist að heimili sínu á Garðar 1 Norður Dakota, Aðalbjörg Bjarnadóttir Kristjánsson, eiginkona Tryggva Kriistjánssonar- Höfðu þau hjón lengi verið búsebt þar í sveit, fyrst all-lengi við ibú, en seldu fyrir mörgum árum jörð sína, og voru j upp frá því til heimilis í þorpinu j á Garðar. j Aðalfojörg sál. var fædd 1. júlí, 1854. Var hún ættuð ,úr Vopna. firði- Árið 1880 giftist hún eftir- lifandi manni sínum. Varð þeim fjögra barna auðið. D-óu tveir ! drengir í barnæsku Iheima á fs- j landi. Kristján son sinn mistu þau I 19 ára í Garðarbygð- Ein dóttir 1 er á lífi, Rósa ekkja Þorláks Dal- ! mann, sem var einn af þeim er ; féllu í heimsstyrjöldinni miklu. j Þau hjón Aðalbjörg og Tryggvi i voru samtaka í því með dugnaði, ráðvendni og sparsemi að sjá sér og sínum borgið. Samfoúð þeirra i var góð og voru þau vel metin í sinu ná'grenni- Aðalfojörg var glaðlynd og léttlynd, barnelsk og ung í anda til hins síðasta Dóttir hennar geymir minningu hennar sem ástríkrar móður sem alt hafi viljað fyrir sig gera. Dóttursynir hennar, föðurlausir fóru heldur ekki varhluta af móður.umhyggju hennar.. Hún lét ekki mikið á sér bera, en rækti sinn verkahring með alúð og trúmensku. Allir, er henni kyntust, munu hafa borið til hennar ihlýlhug. — Hún var jarð- sungin þriðjudaginn 22- janúar, og heiðruðu margir minningu ihennar með návist' .sinni. Margrét Rjörnsdótjir Johnson. Það hefir láðst að geta um fra- fall þessarar konu, þó nú sé liðið á annað ár síðan hún lést. Hún andaðist þann 25. maí 1923 í iþorpinu Uplham í Norður Dakota, þar sem hún .síðustu árin hafði áét heimili með dætrum sínum tveimur, Þórunni og Margréti (Mrs. Smitfo)- Er hin síðarnefnda ekkja, og voru tveir ungir synir hennar einnig ihjá þeim mæðgum. Stunduðu þær systur kennarastört þar í Upfoam og héldu svo foeim- ili með móður sinni. Hafði Mar- grét sál. verið mj'ötg lasfourða um lengri tíma áður en hún lést. ’Hún var fædd 20 marz 1848- Hún var dóttir Björns bónda á Bóndastöðum í iHjalitastaðaþing- há, Björnsonar, Skúlasonar, og konu Ihans önnu Jónsdóttur, prests á Hjaltastað, Guðmundis- sonar. Hún fluttist til Ameríku árið 1876 og settist að í Nýja ís- landi. Þar giftist ihún 1878 Pétrl Jónssyni frá Bót í Hróarstungu, sem andaðist í Winnipeg 1918. At börnum þeirra eru einungis & lífi þær itvær dætur, sem áður eru nefndar, 'Tvo syni stálpaða mistu þau í Norður Dakota, foáoa mjög efnilega. Eitt foarn ungt munu þau foafa miist í Nýja ís- landi- Þau fluttu frá Nýja íslandi þegar á landnámsárunum, og tóku sér foólfestu á Pembfnafjölluin I Norður Dakota. Þar bjuggu þau þar til þau forugðu búi nokkrum árum áður en Pétur lést. Hanu var upp á það síðasta hjá Margréti dóttur þeirra, er þá var búseitt með manni isínum í Winnipeg. En Margrét fylgdist með Þórunni dóttur þeirra, sem þá og isíðar fékst við kenslu. Margrét sál. var góðum hæfi- leikum gædd- Hún var ötul við starf, en líka bókhneigð. Hún var glaðleg í viðmóti, hreinlynd og djarfileg í framkomu, en átti við- kvæma lund, og hafði því fundið sárt til Út af sorgum og von- brigðum lífsins. Hún naut foinnar nákvæmuktu umhyggju dætra isinna í veikindum sínum og létu þær flytja lík hennar austur i grafreitinn íslenzka á Pembina- fjöllum. Þær stöðvar vissu þær að höfðu verið henni kærastar Flutti sá er þetta ritar Ihúskveðju á heimilinu í Upam. og svo fór útförin fram þann 29- maí frá kirkju Fjallasafnaðar. K. K. O. Stórstúkuþingið. Störfum þinsins var lokið á föstu- daginn, eins og gert var ráð fyrir í síðasta blaði, — segir Dagur 17. júlí. — Á föstudagskvöldið höfðu fulltrúarnir sameiginlega kaffi- drykkju og síðan dansleik á eftir. Margir fulltrúarnir héldu síðan heimleiðis með Botníu, sem fór á laugardaginn vestur og suður um land. Nokkrir fara landveg, aðrir biða eftir Goðafossi. Sú mikla breyting varð á, að Stór- stúkan var flutt frá Reykjavík til Akureyrar, og skipa nú fram- kvæmdarnefndina þessir menn: St.-Templar: Brynj. Tobíasson, kennari, Akureyri. St.-Kanslari: Þorst. M. Jónsson, bóksali, Ak. St. V. T.: frú Álfheiður Einars- dóttir, Ak. St. Gæzl. K.: Árni Jóhannsson, verzlm. Ak. St. Gæzl. U.T.: Steinþ. Guðm. skólastj. Ak. St. Rit.: Halldór Friðjónsson, ritstj. Ak. St. gjaldk.: Guðbj. Björnsson, kaupm. Ak. St. Frengrit.: Sig. Kristjánsson kaupm. Sigluf. St. Fræðslustj.: Jón Þ. Björns- son, skólastj. Skrók. St. Kap.: Sr Gunnar Benedikts- son, Saurbæ. Fyrv. Stórt.: Einar H. Kvaran. Umboðsm. Alþjóða Hátemplars: Indriði Einarsson Rvík. Ein af fyrstu gerðum nýju fram- kvæmdarnefndarinnar er sú, að senda U .A. H. Indriða Einarsson á þing bindindismanna Norður- landa, sem verður i Noregi nú í sumar. Framkvæmdarnefndin óskar að af gerðum þingsins verði birtar eft- irfarandi ályktanir: 1. “Stórstúkuþingið mótmælir fastlega aðgerðum landsstjórnar- innar, að því er snertir áfengis- verzlun ríkisins á Siglufirði, og krefst þess, að landsstjórnin láti birta samningana við Spánverja um innflutning og sölu áfengra drykkja ásamt skráðum skýringum á þeim, og felur framkvæmdarnefnd sinni að fylgja þessari kröfu af alefli.” 2. “Stórstúkuþingið lýsir megnri óánægju yfir þvi, að landsstjórnin hefir þvert ofan í yfirlýstan vilja mikils meiri hluta Alþingiskjósenda á Siglufirði, sent þangað nú nýlega stærri vínbirgðir en nokkru sinni fyr ,og skorar á stjórnina að flytja meginhluta þeirra burtu af Siglu- firði nú þegar. Sömuleiðis skorar þingið á stjórn- ina, að gefa nú þegar út skýlaus- ar reglur um útsölu áfengis frá ríkisverzluninni þar, sem takmarki sem allra mest söluna og þar af leiðandi drykkjuskap.” 3. “Stórstúkuþingið krefst þess, að ítarlegar rannsóknir fari fram á hneyksli því, er komst á loft við áfengisverzlunina á síðastliðnum vetri og á rekstri verzlunarinnar yfirleitt.” 4. “Stórstúkuþingið mótmælir fastlega þeim ósóma, að áfengis- verzlun ríkisins sé gerð að gróða- lind fyrir ríkissjóð, og felur fram- kvæmdarnefnd sinni að beita áhrif- um sínuin á þing og stjórn til þess að áfengið. sé hið bráðasta gert landrækt aftur, enda verði ágóða af áfengisverzluninni varið til þess að flýta fyrir útrýmingu áfengis.” * Ákveðið var, að næsta þing yrði háð í Reykjavík. Um störf þingsins viðkomandi einkamálum stúkunnar er blaðinu ekki kunnugt, en birtir það eitt, er framkvæmdarnefndin telur rétt að blirta. Flutningur .Stórstúkunnar til Akureyrar er vafalaust einkum gerður til þess áð kalla meiri krafta o gnýja krafta til hinna vanda- sömu starfá.. Vilji framkvæmdar nefndin fá eitthvað það birt, sem ekki er tekið fram hér, er blaðið boðið og búið til þess að veita henni rúm og hvers 'konar stuðning. Að svo mæltu vill Dagur árna hinni nýju framkvæmdarnefnd og Stórstúkunni yfir höfuð allra heilla í framtíðinni. < * * Bannlögin, eins og þau cru nú framkvæmd, og einkum Spánar- samningarnir, hafa lagt ógurlegar tálmanir á leið bindindismálsins og bannhreyfingarinnar í landinu. Er framkvæmd bannlaganna nú orðin svo örðug, síðan við vorum svín- beygðir til þess að opna vínsölu- búðir í bannlandinu, að sumir hin- ir fremstu bindindis- og bannmenn telja það sem eftir er af bannlög- unum einskis nýtt eða verra en einskis virði. Sú skoðun er því farin að gera vart við sig til muna, innan hreyf- ingarinnar, að réttast muni að kann- ast við það fyrir sjálfum sér og öðrum, að ósigur sé beðinn í mál- inu, vopnin að mestu fallin niður og að nýtt viðhorf til málsins sé nauðsynlegt, til þess að taka vopn- in upp að nýju og beita þeim til verulegs árangurs. Jafnvel sumir fremstu bindindis og bannmenn eru komnir á þá skoðun, að vegna málsins sjálfs sé nú ráðlegast að kasta þvi ræksni, sem eftir er af bannlögunum, og hefja baráttuna aftur frá rótum. En það skal tekið skýrt fram að þessi skoðun er bundin jæim skil- yrðum, að við slíka ráðstöfun vinn- ist að minsta kosti tvö stórvægileg atriði: 1. Að við losnum úr taki Spán- verja og getum lokað öllum vín- sölubúðum í landinu, en leyft pönt- un á vínum eftir ákveðnum reglum gegnum ríkisverzlun. 2. Að við breytinguna komi nýtt rót á málið í landinu og bæði regl- an og bindindísfélög í sveitunum, sem hvorttveggja lamaðist og hætti víða störfum við bannlögin,—fær- ist á ný í aukana, til þess að und- >rbyggja nýjan og sterkari grund- völl undir ný bannlög. Að svo stöddu vill Dagur engan dóm leggja á þessar skoðanir, en telur nauðsynlegt, eins og þessum málum er nú komið, að þau verði skoðuð með gætni og að þau verði rædd frá öllum hliðum, en með vin- semd og skilningi á aðalmarkmiði allra bindindis- og bannmanna. Er blaðinu ljúft að veita rúm fyrir slíkar umræður, innan slikrar um- gerðar. En hafa verða menn hug- fast, að rúmið hlýtur að takmark- ast af stærð blaðsins. Helge Petersen. framkvæmdarstjóri Scandinavian- American eimskipafél. í Winnipeg GERIÐ HREINT FYRIR YÐAR DYRUM ^JÚ er farið að líða á seinni hluta ársins, og Lögberg, eins og önnur blöð, þarf að fá sitt, ef það á að geta haldið áfram aðkoma á heimili yðar. Það eru því vinsamleg tilmœli vor, að þér úr þessu farið að gera hreint fyrir yðar dyrum með því nú þegar að borga fyrir blaðið og að þér takið innköllunarmönnum vorum vel þegar þeir koma að finna yður, eða senda borgunina beint til skrifstofunnar. The Columbia Press, Limited Cor. Sargent og Toronto St. - Winnipeg ,M a g i c tökunarduft, er ávalt það bezta í kökur og annað kaifi- brauð. það inniheldur ekkert alum, né nokk- ur önnur efni, sem valdið gætu skemd. Gjafir til Betel. Mrs. G. Anderson Pikes Peak, Sask.........$5-00 Ónefnd kona aS Milton. . . . 2.00 Kærar þakkir, J. Jóhannesson. 675 McDermot Ave., Wpg. Til landa minna á Kyrrahafs- strönd. Þakklæti mitt og alúíiarkveSju vil eg undirrituÖ hér meS senda öllum þeim þar vestra, er gerfou mér dvöl mína meðal þeirra frá- bærlega ánægjurika meiripart úr síSastliðnum tveim árum. Veru- staÖur minn var aðallega i Belling- ham, þar sem dóttir mín og maður hennar þá bjuggu. En í feröalög litilsháttar fór eg þó um leið til ná- lægra íslenzkra heimkynna, þar á meSal til Marietta, Blaine, Point Roberts og Seattle. Mætti eg al- staðar frábærri gestrisni, ásamt hlýleik og vinsemd, er gerði mér, hálf-lasinni og Íítt ferSafærri, heimsóknir þessar hreint makalaust ánægjulegar. Nöfn allra þeirra, er þannig sýndu mér hlýleik og ágæta vinsemd, get eg ekki fcaliS. Færi eg til þess, yrSi nafna upptalning sú svo löng, að oflangt mál yrSi það vafalaust, og þó um leið gleymdust, ef til vill, einhver nöfn góðs fólks, er eg sízt hefSi viljað ótalin látin. Sleppi eg því nöfnum öllum. Þrátt fyrir það eru þau hjá sjálfri mér geymd í huga mín- um og hjarta. Þakka eg nú einum og öllum viðtökurnar hinar ágætu og óska fólki öllu á Kyrrahafs- strönd ríkulegrar blessunar drott- ins. í Árborg, Man., 23. ágúst 1924. Ólína Erlendsson. -------o------ Hæð íslendinga. I Almanaki Þjóövinafélagsins 1925 er grein eftir hr. GuSniund Hannesson, prófessor, um hæð ís- lendinga. Hefir höfundurinn at- hugað þetta efni aS undanförnu. Mun margan stórfurða á niður- stööinni, sem er sú, að íslending- ar séu öllum mönnum hærri, svo sem hér skal talið: íslendingar...........173.55 cm. Engilsaxar............172.5 — Svíar...................1715 — NorSmenn .. 171.5 — Danir...................169.1 — Hollendingar.............169. — ÞjóSverjar (BadenJ 169.0 — Svisslendingar..........167.0 — Frakkar.......... ..... 166.0 — Italir.. ‘..............166.0 — Japanar.................159.3 — Prófessorinn segir rannsókn sína ekki svo almenna, að óhætt sé að treysta henni til fulls, enda er ekki langt siðan hann hóf þetta starf. Hann bendir og á, aS rannsókn yrSi að gera eftir landshlutum, sem vart mun kostur á meS athugun í Reykjavík einni, þótt aS visu margt sé hér aðkomumanna á hverju ári. Nú væri fróðlegt og skemtilegt, að þetta yrði rannsakað til hlítar og ætti það aö mega meS þvi, að mæling landsmanna færi fram um leið og manntal er tekið, og sér- stakur dálkur haföur á eyðublöS- unum, þar sem hæS allra ("aS minsta kosti fullorðinna) væri skrá- sett. Nokkurn veginn áreiðanlegt manntal fer fram á hverju ári, og alveg áreiðanlegt 10. hvert ár, svo að no’kkur trygging er fyrir því, að þessi skýrsla yrði rétt, að minsta kosti meS æfingunni.—Vísir.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.