Lögberg - 04.09.1924, Page 2

Lögberg - 04.09.1924, Page 2
*ls. 2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 4. SEPTEiMJBER. 1924. Trsyiti mjög á þetta áraxtalyf. MRS. LAURA ALFORD Þúsundir fólks hafa gersamlega læknast viö að nota ávaxtalyfiö fræga, “Fruit-a-tives”, og mæla meö því viÖ hvern sem er. Mrs. Laura Alford, aö 28 Flor- ele Street, Ottawa, segir: “Ár- um saman þjáÖist eg af stýflu og Dyspepsia. Hafði reynt fjölda af meöölum árangurslaust. AÖ lok- um tók eg að nota “Fruit-a-tives”. Nú hefi eg notað “Fruit-atfves” ööru hvoru í sjö ár og er aröin al- heil. Kenni ekki framar stýflu né nokkurrar annarar magaveiki. — Maður minn og börn nota einnig “Fruit-a-tives.” “Fruit-a-tives eru unnar úr jurtasafa. 25c °S 5°° askjan, hjá öllum lyfsölum eöa Fruit-a-tives, Lim- ited, Ottawa. Minni Nýja-Islands, Eftir Bjarna Marteinsson. Haldið að Hnausum, Manitoba, 2. ágúst 1924. Herra forseti! Nýja ísland. Þaö er efniö, sem hin háttvirta nefnd, er stendur fyr- ir þessti hátíðarhaldi, hefir falið mér til meðferðar hér í dag. Eins vel og eg man, hefir þetta verið umhugsunarefni við öll þjóðhá- tíöarsamkvæmi, er haldin hafa ver- við í Nýja Islandi. Þess minst í Ijóöi eða ræöu eða hvorttveggju þann dag, samhliða og ættjaröar- innar, móðurinnar og nöfnunnar var minst. Þaö gæti því verið freisting fyrir einhverja aö hugsa, aö þetta efni væri tæmt, alt, sem unt væri að segja um N. Isl., væri búið að segja. En það er ekki svo. I stað þess að tala eingöngu um Nýja ísland, ætla eg í dag mejra að láta N. ísl. tala til vor. Eg ætla aö draga fram i örfáum dráttum nokkuö, sem nafnið sjálft getur og á að mmna oss öll á. Það er víst mjög mikiö sann- mæli, að ætíð sé eitthvað i hverju nafni. I einu nafni getur oft veriö heill heimur hugsana. Löng keöja söguríkra viðburða verið við það tengd, viðburða, sem ýmist hafa haft heillaríkar afleiðingar fyrir heilar þjóðir, eöa þá í smærri stíl, bygðarlög og mannflokka, eöa þá hið gagnstæöa. Þegar eg fór að hugleiða þetta nafn, sem nú er umtalsefnið, verö- ur strax fyrir mér lýsingar-partur nafnsins, orðið “Nýja”. Það bend- ir oss út yfir hauður og haf, til annars lands, miklu eldra, sem hið nýja er heitið eftir. Það bendir oss á eyjuna “hvítfölduöu út viö íshaf “í svalköldum sævi”; hólm- ann gamla, “þar sem að vöggur vor- ar áður stóöu, og vinarorðið fyrst á tungu lá” — ísland, ættjörð vora. Hinir íslenzku frumherjar, sem fyrstir hvítra manna tóku sér ból- festu á bökkum þessa Winnipeg- vants, fluttu nafnið meö sér, skráöu það á merki sitt og drógu að hún, strax og þeir stigu hér á land. Þar skyldi það blakta fyrir allra aug- um, jafnt i stormum sem blíðviðri minnandi landnemann sjálfan sitt eigið föðurland og afkomend ur hans og aðra, eins langt fram hinn ókomna tíma og nafniö lifði á hinn þjóðernislega upprurúa frumbyggjanna. Og þá var sú von sterk og er vafalaust enn, að nafnið Nýjg lsland lifði jafn-lengi og nafnið ísland. Þetta er þá hiö fyrsta, er nafn- iö Nýja ísland minnir oss á. Það minnir oss á ættjörðina. Oft hefir þess verið minst, að islenzku landnemarnir hafi komið frá ættjörðinni allslausir. Þegar litið er að eins á þá hliö málsins, að hinn almáttugi dollar—afl þeirra hluta, er gjöra skal—var af mjög skornum skamti, þá er víst ekki ofsagt að segja, bláfátækir. Land- neminn kom ekki aö eins peninga- laus. Hann kom hingað einnig I I W M| Hvt aP hjast af U I I L synlegur. f>vT T5r. » - «■ blæöandi ogr bölg- I I BM inm g-ylllniæS? UppskurSur ónatiB- Cha»» s Ointment hjálpar þér strax. tO cent hylkiS hjá lyfsölum eSa frá Bdmaneon, Bates & Co., Ijmited, Toronto. Reynsluskerfur sendur 6- kev~ls, ef nafn pessa blaBs er tiltek oent frimerk'-----------* þekkingarlaus. Eitt góðskáld Is- lands, fyrir löngu undir grænni torfu, sagði einu sinni í ljóöi, er eftir hann liggur, meðal annars þetta: Þú kant þegi’ aö spinna þráð né hör á rokk og ekki’ að semja sokk og ekkert verk að vinna. Eg held að þetta sé ekki mjög fjarri að eiga hér viö í líkingar- máli, bæði að því leyti sem hið raunverulega var, en einnig aö þvi leyti, sem á oss var litið af hinum enskumælandi vinum, sem vér hugðumst að taka oss bólfestu hjá. Landneminn var framandi í tungu- máli, háttum og venjum hins ráö- andi þjóðflokks, atvinnuvegir lands þessa honum algjörlega ókunnir, jarörækt og akuryrkja nýtt. Svo að á þessuin svæðum má vel segja að vér sigldum aö landi á segla- !ausu fari. Þó komum vér ekki allslausir. Vér komum með staf í höndum. En stafur sá var allur sá andlegi auður, sem vér fluttum með oss og í oss. Hún móðir vor fyrir handan hafiö, Fjallkonan, átti og á forna, fræga, auðuga, göfuga tungu. Einhver rödd var talandi í brjósti landnámsmannsins strax og hann var hingað kominn, já fyr, óðar en hann var kominn úr ausýn fjall- anna snævi krýndu. Hver getur kallaö þessa rödd það, er honum er geöfeldast. Rödd ættjarðarástar- innar. Rödd samvizkunnar, eða þá rödd móðurinnar. En hvað svo sem sú rödd skal nefnast, þá talaöi hún hátt og snjalt og skorinort eitthvað á þessa leið: Gleymið ekki tungunni fögru. Hún móðir okkar átti fornar og nýjar bókmentir, sem margir hinir mestu andans og mentamenn stór- þjóða heimsins sækjast eftir að þekkja, rannsaka og ausa andlegri auðlegö úr, sér til uppbyggingar og nautnar. Röddin sagði: lesiö, út- breiöið og leggið rækt við. Móðirin átti meira en þúsund ára viðburðaríka sögu. Og röddin talaði viö ‘börn Fjallkonunnar: Lítið yfir þá sögu og reynið að hagnýta ykkur mína reynslu i bar- áttunni í hinum vestræna nýja heimi. Hún móðir arfleiddi oss einnig að ýmsum fögrum lyndiseinkunn-j um og dygðum, sem voru hennar eigin. Meöal þeirra er islenzkt drenglyndi, íslenzk sannsögli, “æðsti aðall íslenzkrar sálar” eins og eitt góöskáldið okkar kemst svo fallega að orði. Móöirin sagði: Þessu megið þið, börnin min, ekki týna. Og síðast, en ekki sízt, höfðum vér með oss, í brjóstvasanum, Kverið okkar. Marga góða lexíu úr því lærðu íslenzk börn við kné móður sinnar á kvöldin áöur en gengiö var til hvílu, og hennar minst að morgni endurnærð af svefni næturinnar. Og röddin tal- aöi hér hátt og skýrt: Innihaldi þess megið þið um fram alt ekki glata, það er hinn sterki partur stafsins. I innihaldi þess er frjó- inagn og kraftur til lífs alls þess, sem bezt er og göfugast í ykkar ís- lenzka eðli, ykkar íslenzku sál. Þetta er þá annað, sem nafnið Nýja ísland minnir oss alla á. Fá- tæk, en auðug mitt í fátæktinni. Líkt og ísraelsmenn til forna ráf- uöu um eyðimörkina álieðis til hins fyrirheitna lands, þannig voru fólkshóparnir íslenzku, sem smátt óg smátt voru að koma frá ættjörð- inni, að ráfa um þetta mikla land, leifandi aö stað, girnilegum og lík- legum til framtíðar búsetu. Vestur, ! vestur var alt af horft. Einhvers staðar langt úti í hinum víðáttu- mikla landgeimi í vestrinu var hugsunin aö hlyti að vera hið fyrir- heitna land niðja Leifs. Og áfram vestur héldu þeir, þar til hér var numið staðar. Hér, á vatnsbakk- anum hælaöi Islendingurinn fyrst tjöld sín til varanlegrar búsetu og hér h^fir hann síðan sétið. Var- anlegt landnám hafiö. Það er ekki ætíð, né af öllum litið á landnám íslendinga fyrir vestan hafið sem neinn þýðingarmikinn né stóran viöburö i íslenzku þjóðlifi. En þó er það svo, þegar hlutdrægnislaust og vandlega er ihugað. Landnámið er því hið þriðja, er nafnið Nýja tsland minnir á. Naumlega verður sagt, aö við tökurnar væru mjög aölaðandi. \returinn i garð genginn. Hvorki brauð né gull handa á milli. Dimm og harðneskjuleg ský huldu him- inn, sem ekki spáðu neinu góðu. Spáðu að eins þvi, er þau höföu að innihaldi: kuldum, snjóum og grimd um fleiri komandi mánuði. Fáir hafa orðið til þess að bregða upp mynd af hugarástandi þessa nýkomna hóps þarna i fjörunni viö vatnið. Engin fjarstæða er að hugsa, að kjarkurinn hafi hallast að mun hjá mörgum. Og ekkert hefði það verið ónáttúrlegt, þó hann hefði þrotið alveg. En íslenzka eðlið “aldrei að vikja” kom til sög- unnar og bjargaði. Skáldið okkar eitt segir svo fallega frá þeim bjargráðum svona: Verum hugprúðir, vinir, vér erum hingaö fluttir til þess vakandi’ að vera, vinna, ryðja merkur, tilreiða ættingjum tryggan stað — þeim trúir verum!” “Og þó oss endist ei aldur að uppskera það sem vér sáum, sérhvert verk, sem vér vinnum, skal verða niðjunum launaö.” — Fögur og sönn lýsing á hugar- fari landnemans. Þetta hugarfar er ofar almennri hversdagshugsun. Þaö er engin kotungshugsun þetta. Það er husun þrungin af framsýni, djúpum skilningi á lífinu, heil- brigðu viti og kærleika. Ein kyn- slóð er ætíö, vitandi eða óafvitandi, viljandi eöa óviljandi, aö einhverju leyti að ryðja brautir fyrir hina komandi. Þessi sannleikur var svo ljós, bráðvakandi og upphleypt- ur í huga landnemans. Við mun- um aö sönnu, hugsuðu þeir og sögðu, uppskera af verkum vorra handa nægilegt til aö mæta vel öll- um þörfum vorum, en þungamiðj- an í verki voru er sú, að vér erum aö ryðja veg fyrir börn vor og af- komendur. I þessum anda voru þeir vakandi, vinnandi, hugrakk- ir, þolinmóðir, bjartsýnir, alls hins bezta vonandi. Viðtökurnar í fjörunni, voru inngangur aö fyrsta kapjtulanum í landnámssögu Nýja íslands. Það er hið fjóröa, er nafnið minnir oss á. Hvað var svo gjört? Þeir sett- ust ekki að og tóku á sig náðir. Landneminn tók strax til starfa og vann og vann. I byrjun Var ekki nema einu afli á að skipa. Hans eigin stæltu vöðvum og treystu taugum. Hann ruddi skóg og rækt- aði tún og engi. Hann bygði vegi og þurkaöi fen. Aö þessu vann hann meðan sól sást og dagur lýsti. Hann vann með ósigrandi starfsþreki og viljaafli; meÖ fastá- kveðinni stefnu að ákveönu tak- marki; því: að skapa fallegt heim- ili fyrir sig og börn sín i ókomna liði hér í þessu nýja landi. Heim- ilin voru bygð. Jarðirnar urðu smátt og smátt lífvænlegri og meir arðberandi. Og yfir dyrum húss- ins oftast nær stóð spjald með stóru letri, berandi bæjarnafnið hans í dalnum heima. Og ef nafn- ið ekki' stóö þar, þá var hvert heim- ili þekt vítt og breitt með einu slíku nafni. En landneminn lét ekki staðar numið við að ryðja skóga, byggja vegi og rista fram flóa, að byggja heimili einstaklingsins. Hann tók sér annað starf fyrir hendur enn undraverðara. Hann tók strax til starfa að byggja sameiginlegt and- legt heimili. Sameiginlegan ís- lenzkan þjóðernis jurtagarð, þar sem þjóðararfurinn skyldi verða gróðursettur og móðurkirkjan þeirra grundvöjlluð. Þeir fmynd- uðu söfnuði, komu á hjá sér sveit- arstjórn og settu á stofn íslenzkt blaö. Blaöfyrirtækiö varð. ekki langlíft. Það stóð ekki til. Tæki og krafta skorti. — Allir hafa tek- ið eftir því, að á vorin, þegar nátt- úran er öll að leysast úr klakabönd- um og dróma vetrarins, aö upp úr jörðinni gægist ofurlítill broddur af strái. Líf strásins er í jörðinni. Rótin er hulin í moldinni. Þessi fyrsti broddur er afar viökvæmur og þolir oft og tíðum ekki vornæt- urfrostin. Hann deyr, en rótin lif- ir. Hún safnar kröftum til nýrrar atlögu fyrir Rfi sinu og tilverú og svo koma upp ný strá, sem vaxa og siðar bera blóm. Þannig var líf hinnar fyrstu tilraunar að gefa út blað ritaö á móðurmáli frum- byggjans. Það varö úti í vor- frosti allsleysis landnemalifsins. —Hið fyrsta strá. En rótin lifði og upp af henni uxu þau rit og blöð, sem þér daglega sjáið og lesið. Þetta andlega og þjóðernislega starf á hinum fyrstu landnámsár- um er undravert. Að hugsa sér að mitt í hinni dýpstu líkamlegu eymd heyjandi hina grimmustu, bitrustu baráttu fyrir hinni líkamlegu til- veru sinni, aö byrja strax á að sameina sig í kirkjulegan og þjóð- erníslegan félagsskap án nokkurr- ar hvatningar eða hjálpar annarar en ijeirrar, er guð og samvizka þeirra sjálfra bauð. Og að upp risu menn meðal þeirra sjálfra, er bók- staflega fórnfæröu sinu eigin lifi og lifsþægindum til þess eins að leiðbeina þeim og hughreysta i bar- áttunni. Þaö er sannarlega ástæða til að dást að og undrast þann kjark, dugnað, fórnfýsi og hetju- skap, sem skín í gegn um alt það stárf. Það minnir oss áþreifanlega og sterklega á, að víkingslundin í íslendingnum er enn bráðlifandi og lætur til sin taka, þegar tilefni gefst. Við þetta vil eg nú bæta' enn einu, sem ef til vill fáir hafa tekið eftir og enn færri vita, að á fyrstu fjórum landnámsárunum ^1876—80) varð til hér í Nýja Is- landi frumritið aö hinu fyrsta stór- skáldverki, sem út hefir komið hér vestra. Starfiö þetta, hiö líkamlega og andlega, er þá hið fimta, sem eg læt nafnið Nýja ísland minna okk- Vor elskaða ættjörð, ísland, lifði einu sinni sína gullöld. Það liföi í gegnum langa, erfiða eymda- öld. Jarðskjálftar, eldgos, hall- æri, mannfellir, skepnufellir, land- farsóttir, ófrelsi, haröstjórn og ó- stjórn hótuöu henni oft og tiðum dauða. En út úr öllum þeim hörm- ungum, eins og gulliö úr eldinum, kom ísland bjart, skýrt og bráðlif- andi “farsældar frón”. Island er nú að lifa sina upprisuöld. Island er sigurælt land. Dóttirin i vestrinu erföi sigur- sæld móðurinnar. Nýja Island er sigursins land. Það átti aldrei sína gullöld. Það hóf tilveru sina í umkomuleysi og allsleysi. Eymda- öld. En þaö kemur sigri hrósandi út úr allri hinni hörðu og löngu landnámsbaráttu. Sigurmerkin eru ljós og ótvíræð fyrir allra augum hér í dag. Orðið sigur er þá hið sjötta, er eg læt nafnið Nýja ísland minna á. Og svo að endingu : Röddin, sem talaöi i landnámsmanninum, er enn talandi, áminnandi og biðjandi. Hún hrópar hátt og snjalt til þin, Nýja ísland: Glcym mér ei! Varö- veit vel og lengi, i anda islenzks drengskapar, íslenzka óðalið, ís- lenzka arfinn. Með honum hef- iröu sigrað og með honum geturðu haldiö áfram að sigra margar þrautir á ókomnum tíma. Lát ekki slikt óðal af hendi fyrir alls- konar skjaldarskrifli og bauga- brot. Margt er það í þjóðlífi þessa lands, sem er gott og göfugt og vert að hagnýta sér og gjöra aö sinni eign. Nemið það. Bræðið alt það fagra og góöa saman við hiö bezta í ykkar eigin islenzka eðli og arf- leiðið börn ykkar að slíkum málmi. Þá þurfum vér ekki aö bera kvíö- boga fyrir komandi tíð. —-----0------ Sleggiudómnr. I blaðinu Heimskringla 20. ágúst siðastl. er einhver O. T. Johnson að setja fram dálitla frásögu um þá menn, sem hafa verið, og eru nú að enda við það hreysti og hug- rekkis starf, aö sigla í loftinu um- hverfis jöröina. Grein þessi viröist rituð af grunnhygni og ber andi hennar með sér, að þessi O. T. Johnson álítur sig svo fjölhæfan, að þessir flug- menn hefðu átt aö fá sig til að semja ferðaáætlun þeirra og því ekki að landfesta sig annars stað- ar en þar sem Johnson hefði fyrir lagt. Eg held þú, Mr. Johnson, hafir skrifað þessa grein þína i hugsun- arleysi, fyrst og fremst af því, aö hún ber ljóst með sér, aö þú ert illa heima í landafræði, , og svo finst þér, að þessir menn, sem sem flogið hafa í kringum jörðina, séu aular fyrir það, að taka land festu í Hornafirði heldur en Reykjavík. Þú þykist hafa orðið undrunarfullur yfir þessu og nærri skolfið á beinunum. Eg get fullvissað þig, Mr. John- son, um, að Hornfirðingar hafa ekki tekið á móti þfssum gestum sínum meö neinum aulaskap — og eg held aö þú sért eini maðurinn á hnettinum, sem hefir látið þér detta í hug að nefna þessa menn aula,- líklegast fyrir að hafa ekki mátt takmarka þeim fyrst lendingarstað í Reykjavík. Eg skal fullvissa alla þá Islend- inga, sem ekki hafa séö Horna- fjörð, en vita, að hann er til, um það, að þessir flugmenn og aörir, sem um það pláss háfa farið, vildu ekki íneð nokkru móti hafa mist af að sjá þá tign og fegurð, sem Hornafjörður hefir að bjóöa, sam- fara prúðmensku og kurteisi íbú- anna.e Þú, Mr. Johnson, þurftir alls ekki aö vera á nálum um, hvernig Hornfirðingar tækju á móti þessum miklu hetjum, eða hvar annars- staðar, sem þá hefði borið að garði á íslandi. En eg veit, að íslend- inar yfirleitt, bæöi hér og heima á gamla landinu, hryggjast yfir því, að enn skuli vera á meðal þeirra svo lágt hugsandi menn, að halda aö vit og kurteisi og smekk sé hvergi að finna nema í stórborg- um eöa bæjum. Eg teldi það skemtilegt lesmál, ef annað hvort íslenzka blaöið hér vildi safna saman ferðasögu þess- ara flugmanna, sem þreytt hafa hugrekki sitt og dugnað við að fljúga í kringum jörðina, og láta það koma eins nákvæmt og mögu- legt er fyrir lesendur, til gam- ans, en án þess aö setja nokkur furðumerki um lendingarstaði þeirra. Það hefir oft komiö til tals manna á milli, að blöðin flyttu of mikið af óþarfa rusli, og finst mér á því bera meira í Heimskringlu. Þótt nú sé út á þetta sett, tel eg samt hag fyrir íslenzka þjóðarbrot- ið aö vita hvar og hvað margt hún á af mönnum, sem skrafa og skrifa án þess að vita um hvað þeir eru að tala. t»»ntiiiiiii»»iiiiiiiiiiiiH»»»»»t»»Kt»»n»»»»»t»n»»t»nmKmmtmmmm«tmmmKt:) Islendingadags-kvæði 2. ág. flutt að Hnausum. Manitoba. t 9 Minni Nýja Islands. ’24 Skógdís við öldu skvaldur, skartklædd, á vatnsins strönd Roðnaði um óraaldur Ægis viö handabönd; þar spruttu þroska hlynir, þar ólst upp Stefáns bur, þar uxu Þorvaldssynir, þar fæddist Guttormur. Þar, sem aö Orphus’s andi ómfagra strenginn snart yfir á Unalandi — enn er um stað þann bjart. Þaðan, sem enn þá óma út yfir hrjóstur lands harpslættir helgra dóma í hjáverkum listamanns. Á ég að kveða’ um kosti, kýr þínar, smjör og mjólk, auglýsa sneið af osti, áir og mör og tólk? Þá skal eg jafnfús játa, ég er á röngum stað. —Bezt mun þaö Bandvinsku láta.- Biddu mig ekki’ um það. Þó hafa flest þér fagnað fósturbörn vegamóö, fram yfir höpp og hágnaö hefir þeim verið góð;— skjólshönd í frosta fári fátækt þú raungóð varst, ráðholl í örþrifsári, alt þegar nögl við skarst. Þegar aö þrengdi högum, þá gafstu nýja von, örfaðir öllum dögum íslenzkan fósturson; svo fram úr súld og vetri senn fór aö rofa til, brosti við framtíð betri blikandi’ í ljósi’ og yl. Hvort að sú hilling hafi hnigíö í kaldan sjá, eða hún enn þá stafi unaði’ í fólksins spá; hvort aö óráöið rættist reikulla drauma-ór? Eitt er þó bezt: að bættist búiö og vaxa fór.' Eg hefi’ þig eins að biðja —að gengur nóttin dökk—: Nærgættu þína niðja, nemi þeir ást og þökk til þeira’, er beinin báru brjóst þitt og hjarta við; oft lítið upp þeir skáru, ávöxtinn tókuð þiö. Til hvers var öll sú elja? Eg spyr þig, frændi kær,— arfan, sem átt að velja , ungur, um ttefnur tvær: önnur er: öllu að týna ofan í blindni lands; hin er: í sæmd að sýna sjálfstæði íslenzks manns. Öll var hans gangan grimma gagntroðin fyrir þig; öll hans örlaga vinna umbarst í von á þig: Að þú hans óðul verðir, —alt, sem að lund hans bast, ____ þó aö þig þreyti MerÖir þar, áttu’ að standa fast. Þegar í þungum straumi þagnar vort feðra -mál; hefi eg í hulins-draumi hlúð þeirri von í sál: Þó að um þrotni hinna þolgæði ættarbands, að Skuld muni skjól þér finna í skógum Nýja-íslands. Jón Jónatansson. Z Minni íslands. i. íslendingar allsstaðar Einum rómi’ og hjarta Senda þér of svalan mar Sona kveöju bjarta. Um þig bezta, móðir, mér Minning flesta’ eg geymi, Island, lestu’ í lófa þér Ljóð frá Vesturheimi. Þín er tungan helg og há, Hjartans málið sanna, Hún er ljósbrot lífsins frá Landi minninganna. Hljómsins strengur helgri rún Hugann lotning fyllir, Eins og sól við Ægis brún Allan fjörðinn gyllir. Kæra, góða, gamla land, Greind í óöi’ og fræöum Munarblóm viö sævarsand Með söngvaglóð í æðum. I oss togar æskuhlíð, Útnes, vogar, grundir, Þegar loga fjöllin fríð Friöarboga undir. II. Kæra, snjalla Snorra þjóö, Snjór þó falli’ í gjörvöll sporin Gleymist varla í þrautum þorin Þinna halla töfraljóö. Hvar er fegra’ í heimi land? Himinfjöll í tignar skrúða , Dvalins ljóð í daggarúða, Dalakyrð við Ægisband. Kynjasögn í koti’ og hól, Kvæðabrot i dalalæðum, Dóttir ljóss i dularklæðum, Dögg mins hugar líf og skjól. Lif þú strengur bylgjubarms, Bros þú rós í þagnar heiöi, Vak þú blóm á lágu leiöi, Lifsins bros til grátins hvarms. Lít eg háa heiðarbrún Hátt í fjallaloftsins angan Teiga eg drjúgan daginn langan, Drengur heim við fööurtún. Lit eg eldskær unnarlog Eins og vafin töfraslæðum Ofar dögg og dalalæöum Dags viö hinzta áratog. Heiöalandsins hörpuslag, Húmljóð íslands fjalladala, Eyjaloftið salta, svala, Sál min teygar nótt og dag. Þú ert fögur, fóstra mín, Frægðarsögum þínum ann eg, Yndi’ í þínum faðmi fann eg Fyrst við móöurbrjóstin þin. III. Elfarfall, i frjálsu kvæöi Forna minning íslands geym; Tæra lind, á töfra kvæöi Tóna þinna ber mig heim. Sýn mér öll þin kynjakynni, Kot og sel og höfuðból, Andartak á ættjörðinni Undir ljúfri fjallasól. Tigni foss í dimmum dröngum, Drekkur hylur allan þig? Drynur þú svo dægrum löngum? Dalajöfur heyr þú mig. Ert þú svalkalt safnið tára, Suðu þulur bergs í skál Landsins dimmu eymdar ára? Átt þú lífsins huliðs mál? • Leyf mér teiga af læknum tæra Lifsins dögg viö fætur þér, Gef eg kunni’ að lesa’ og læra Ljóöin fögru’, er söngst þú mér. Elfarfall, í frjálsu kvæði Forna minning Islands geym, Tæra lind, á töfra klæði Tóna þinna >ber mig heim. IV. Elskum, geymum mál og minning, Mannvit heilt og feðra leið, Þá mun öll vor ættarkynning Endurskína’ á Vínlands meið. Lifi í stafni ljósið bjarta, Ljós hins forna ræktarbands, Látum bæra hug og harta Hljómastrengi Isalands. Beri hver í sálu sinni Sifjarækt og drengja lund, Hver og einn sé íslands minni íslendinga’ á Vínlands grund. S. B. Björnsson. mœtnmœititttttmttttttuMUttœtætæittæittiiœiMUMmmmitumumvni t: Keewatin, Ont., 23. ág. 1924. B. Sveinsson■ “Fagurt er fram undan, sjáum! ur öll á. Eijtt og annað. Eikki mun frítt við að sumum hafi fundist Lögberg nokkuð ein- hæft um kirkjujþings leytið, að innihaldi og margir voru stans hissa á því hvað litla kirkjutolað- ið Heimskringla gat verið nákvæm eftirstæling af Lögbergi að iþví er svo nefnd kirkjumál álhrærði; því læra börn málið að þau heyra það fyrir sér haft, segir málsháttur- inn. Lögberg hefir nú fyrir nokkru verið að flytja greinar eða pistla eftir einhvern Arna lækni að heiman, og féll mér það yfirleitt fremur vel í geð en eitt atriði er þar |j?ó, sem; eg held að verði m.iög misskilið, hann isegir að kirkjan kenni að allir menn séu guðs ibörn. Þetta held eg að kirkjan ;hafi aldr- ei kent, því ef svo væri að það meinti sama að vera guðs börn og að vera guðs skepnur, þá væru djöflarnir einnig guðs börn. Eg toendi ekki á þetta til að deila a höfund greinanna, heldur itil að leiðrétta rangan skilning. M. I.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.