Lögberg - 04.12.1924, Síða 7
LÖGBERG. FIMTUDAGINN. 4. DESEMBER. 1924.
BIb. 7
Frá Californíu.
Exeter Cal. nóv. 20. ’24.
Heiðraði ritstj. Löglbergs!
Nú er eg þá hér í sólskinslandinu
enn á ný, ekki kominn alla fyrir-
huguðu leiðina, en þó svo langt, að
eg er farinn að hægja á ferðinni,
hvíla mig og horfa til baka. Það
sem allra fyrst kemur í ljós er eg
horfi til ibaka er fjarlægðin mikla
yfir fjöll og dali, hóia gil og slétt-
ur, sem nú er orðið á milli mín og
þeirra alira, sem voru mér svO
innilega veiviljaðir og góðir aust-
urfrá. Það er ekki laust við sökn-
uður læðist inn í Ihugann, og það
þó að eg reyni að réttlæta sjálfan
mig og mitt ferðalag, og fevOrt sem
það er rétt eða rangt reyni eg það
af alefli. En við hugann ræð eg
ekki, hann hvarflar austur, sveim-
ar þar fram og til baka upp aftur
og aftur, hvað sem hver seglr.
Þetta er nú alt eðliiegt og mér ekki
ógeðfelt enn frá því kemur sú
hugsun að á engann hátt geti eg í
anda dvalið hjá þesisum vinum og
kunningjum eystra sem svo marg-
ir af beiddust eftir að fá sem öft-
ast að heyra frá okkur héðan úr
fjarlægðinni en að fá dálks rúm
í Lðgbergi af og til. Auðvitað er
þetta töluverð ásælni, þar sem eg
héfi ekki upp á neitt það að bjóða
sem talhst getur alment Iblaðamál
lesendum til uppbyggingar og fróð-
leiks, öll þannig mál eru ofurefli
mitt, og eg verð því að biðjast af-
sökunar, en lesa skal eg þau samt
flest með ánægju en 'sum með
leiðindum, ein;s Og gjörist. Eg fel
því Páli stjórnmálin séra Kristni
kristindómsmálin K. N. skáldskap-
inn, eg gæti nefnt fleiri sem eg
álít hæfa menn til að halda á lofti
því sem gott er og uppbyggilegt,
en ef ti«l vill yrði það tekið illa upp,
og óvild annara vil eg forðast eft-
ir mætti. Mitt mái eð aðeins hjal
kunningja við kunningja yfir kaffi
á kvöldin. Samibland af gamni og
alvöru, áreitnislaust við alt og við
alla, eða «svo er til ætlast, og þvl
meinlaust og um 'leið gagnslaust.
Á bara að flytja ofurlítinn yl yflr
fjarlægðina á milli vina, og á þann
hátt mun því stinga algjörlega í
stúf við fle,st annað í blaðinu, og
vil eg leyfa mér að gefa því fyrir-
sögnina: “«Dagbók flakkarans”
nema ef þú Iherra ritstjóri vi'lt gefa
því annað nafn, þá er það þér að
sjálfsögðu guðvelkomið, en «í dag-
bókarformi verður það, fæðist
smátt og smátt án dagsetningar
eða annara harmkvæla, kemur í
smápörtum af og til alt frá þeim
degi er eg fór frá N. Dak. í haust
og |þar til allar mínar burðarhríð-
ir eru hjá liðnar, sem ómögulegt
er að segja ihvenær verður, máské
áður nokkurn varir, eða ekki fyr
en allir eru löngu steinleiðir, um
það þoiri eg ekki að segja, en biðjl
einbver mig að hætta á einbverj-
um vissum tíma, þá 'lofa eg að
taka þá bón til greina með hæ-
versku og kurteisi eins og einum
“gentleman” ber að gjöra. Svo í
von um bænbeyrslu frá þér byrja
eg hér með “dagbók flakkarans”.
Nú var nóvember mánuður byrjað-
ur og farið að kólna í veðri fyrir
alvöru í N. Dak. tíðarfar þar hafði
verið ágætt til þessa tíma. IJpp-
slkera hafði yfirleitt verið góð bæði
að vöxtum og gæðum og ánægja
virtist því ríkja í hugum flestra.
Ekki allfáir voru þó^ þeir sem undu
illa falli LáFollette’s þessa nú-
tíðar Mósesar, sem þeir hðfðu
treyst á að mundi leiða sig og
aðra að “kjötkötlum” ,sem væru á
bák við pólitísku tjöldin, •— en
sem seint munu finnast þó lengi
verði leitað. Nú var sú von úti, því
yfirgnæfandi atkvæðafjöldi hafði
lýst yfir vantrausti á öllu því dá
læti við kosningarnar nýafstöðnu,
og var sumum því súrt í augum
eins og Skarpbéðni.
Og nú var dagurinn kominn,
sem eg bafði ákveðið að leggja &
stað í fjórða skiftið vestur í sól-
skinið á Kyrrahafsströnd. Dagur-
inn þessi, sem eg lagði á stað var
einn sá allra leiðinlegasti sem
komið hafði á haustinu. Hrákaldur
öskrandi suð-austan stonnur var
á, geysandi marga tugi mílna á
kl. stund rífandi með sér mold og
sand og alt lauslegt, rykkjandi
manni á allar hliðar og látandl
ekkert böfuðfat í friði nökkra
stund. Stálbúfur einar hefðu þá
tollað á höfðum manna með að
halda þeim báðum höndum eða
negla þær við hausinn með fjórum
sterkum nöglum. Þetta kallið þið
máské að ýkja en margfalt meira
ýkja þó skáldin oft og fá fyrir það
lof og prís svo þið ættuð ekki aö
dæma mig hart þó eg ”kríti lið-
ugt.” Allir þekkja snígilinn, þenn-
an ógeðslega skriðorm jarðar. Oft
reyndi eg á unglingsárum mínum
að hafa stundarstytting af að
kynna mér hann, er eg sat einn
yfir ám á sumrin. Þá var hann í
sínum rétta bam, ef veðrið var
gott ,en dróg sig inn í skelina, ef
álhrifin að utan voru ekki góð, og
hornin hans voru mér algjörlega
leyndarmál og eru enn í dag. Eg
hafði oft af glettni skilið snigilinn
frá skelinni til að sjá hvað hánn
gerði þá, og bann iskreið þá samt,
en var auðsjáanlega utan við eðli
sitt í því áistandi. Nú var eg sjálf-
ur í því ástandi, var ski'linn frá
skelinni minni, búsum, skjólinu, en
skreið samt í storminum, en eg
kendi til, veðrið meiddi mig
IMeð mér var til ferðar ráðinn
kunningi og nágranni minn S. A.
Anderlson frá Hallson aldraður
sem eg, en meiri víkingur að ætt
og eðli, var nú á leið til Blain
Wash. til að dvelja þar veturinn.
Sigurður, eins og eg sagði er líkur
víking, þrátt fyrir aldur., en eg
mun líkari aldraðri piparmey, sem
hefir hjartað eitt í réttum stað
æfinlega, þó alt annað sé í ólagl,
eða svo virtipt mér þetta þarna.
Sigurður hefir verið hraustmenni
og er enn, návist han«s tekur all-
an kuldahroll burt úr manni, fyllir
mann nýju fjöri, og eg gæti trúað
að hún læknaði smákvilla, svo sem
bausverk, hósta, harð'lífi ög fleira,
að min(sta kosti leið mér betur
eftir að við fundumst á «stöðinni í
Cavalier, en auðvitað eru mínir
kvillar aðrir en eg nefndi. Án
spaugs er Sigurður besti samferða
maður og okkur leið vel á ferðinni
saman á meðan hún entist. Okkur
kom saman um það að við báðir
eins hefðum gildar á'stæður til að
verja því af efnum okkar, isem til
þess þarf að losast við kuldann 1
N. Dak. yfir vetrarmánuðina, og
við létum báðir í Ijósi, að við
mundum halda þeirri aðferð áfram
framvegis. Meira síðar.
Stjórnarbót.
Guðmundar Finnbogasonar.
Engum manni er Dr Guðmund-
ur líkur! Hann hefir nú^skrifað 11
arka bók um draum sinn, en að
vísu er hún um endurbætur á
stjórnarfari allra þjóða, svo ekki
verður annað isagt, en að viðfangs-
efnið sé mikið og merkilegt, þó til-
drög bókarinnar séu llítill og óljós
draumur.
En er þá ekki bók þessi draum-
órakend og lítið á benni að græða?
Þessari spurningu er fljótsvarað
á þann veg, að svo er ekki. Bókin
er skýr og skemtileg og flytur svo
mðrg eftirtektarverð nýmæli, að
allir geta eittbvað af benni lært,
jafnvel þó þeir litu mikið öðruvísi
á málin en höfundurinn.
Einn áf fyrstu köflum bókarinn-
ar heitir “ógöngur”. Þar er rætt
um hversu þingræðis- og flokka-
stjórnin hafi gefist illa í öllum
löndum, og það svo að til vand-
ræða horfi. Allur síðari hluti bók-
arinnar lýtur svo að því mikla máli,
hversu úr þessu megi bæta.. Flyt-
ur höf. þar ýms frumleg og eftir-
tektaverð nýmæli. Um þingræðis-
ógöngurnar hafa margir ritað, en
undarlega fáir reynt að benda á
leiðir út úr þeim. Það er eins og
öllum fallist hendur í því efni. Það
á því ihver maður þakkir skilið, sem
reynir með góðum rökum að leysa
þennan Gordíonshnút.
Eg ibýst við að flestir geti verið
sammála Dr. G. F. um ógöngurnar
og skal eg því ekki fara frekar út I
lýsingu han,s á þeim. Eg skal að
eins taka það fram, að mörgum
mundi bregða í brún, ef þeir vissu
hve þungan dóm þingræðið fær
hjá öllum fjölda viturra manna.
Má néfna sem dæmi, að fyrir
nokkrum árum var þetta mál rætt
á fundi frakkneskra beimspekinga
og voru þar margir af bestu mönn-
um Frakka saman komnir. Enginn
tók svari þingræðisins, allir báru
því herfilega söguna, sögðu það
’bæði “ópraktiiskt” og siðspillandi.
—í Englandi er svipað hljóð 1
ptrokknum. Lord Röseberg skrifaði
eitt sinn: “Flokkstjórnin er böl, •—
ef til vill óumflýjanlegt, en eigi að
síður bðl. Það er ógæfa vor, að
svo margir skuli tigna það skipu-
lag og trúa á það eins og guð. Það
rekur bestu mennina burtu og set-
ur í stað þeirra þá, sem auðveldast
er að koma að.” — í Ameríku seg-
ir próf. Saibine: “Vér höfum mist
traustið á fulltrúaþing.----Það
er langt síðan, að miklir hæfileika-
menn töldu það heiður að vera
kosnir á þing.” — Jafnvel í forn-
öld kvað við sama tón í lýðstjórnar-
ríkjunum. Heimspekingurinn Plato
segir, að það sé verst í Aþenu, “að
allir blandi «sér í alt, og alt sé
undir öllum komið.” Svo kva“
Gestur:.
Já það er ekkert undarlegt
þó illa gangi þjóðin mín;
því allir bafa á öllu vit
og enginn kann að skammast sín.
Alþingi vill höf. halda, en kjósa
til þess á annan veg en nú. Helstu
nýmæli hans um a'lþingiskosning-
ar eru þessi:
1. Allir sem kosningarrétt hafa
eru skyldir að kjósa, en mega gera
það bréflega.
2. Allir kjörgengir skulu skyldir
að taka móti þingkosningu.
3. Hver kýs einn mann (kjör-
gengan), þann sem hann treyistir
best, ihvar sem hann er á landinu,
því alt landið er eitt kjördæmi.
Með þessum ráðum vill höf.
kveða niður hreppapólitík, kjðs-
endadekur og Ihrossakaupin á
þingi, en jafnframt tryggja þing-
inu Ibetri menn. Enginn getur dreg-
ið sig í hlé og enginn neyðist til
að kjóisa annan en þann, sem hann
treystir best.
Vafasamt tel eg, að þessi ráð
komi að fullu haldi. Til að byrja
með myndu mar.gir reyna að
kjósa besta manninn í sínum
hreppi, en hinsvegar kæmu ‘listar’
bélstu stjórnmálaflokkanna, sem
flokksblöð þeirra styddu af alefli.
Atkvæði samviiskusðmu mannanna
yrðu dreifð og féllu ógild, svo eft-
ir nokkrar tilraunir hættu menn
að hugsa um annað en listana, og
flokkarnir réðu lögum og lofum
eftir sem áður. Kostur væri það
þó, að geta kosið eftir sínu höfði
og vera ekki ibundinn við lélega
frambjóðendur. Hreppapólitík og
hroissakaupum yrði viissulega gert
erfiðara fyrir með þessum hættl,
en hæpið að betri menn yrðu kosn-
ir á þing eða flokksveldið rýrnaði.
Þá væri það viðbúið, að fámennar
stéttir og héruð fengju enga full-
trúa á þingi, en úr því mætti að
noWcru Ibæta eins og böf.»drepur á.
Böf. gerir hér kosningaréttinn
að undirstöðu allis, líkt og nú er,
ER N0 í GILDI
EXCURSIONS
Austur
Canada
TIL SÖLU
Daglega allan Desember og
þar til 5. jan. 1925.
3 mánaða dvalartími.
Vestnr ad
Kyrrahafi
TIL SÖLU
Sérstaka daga í Desember
Janúar og Febrúar
Dvalartími til 15. Arpíl 1925.
Til 'Gamla
Landsins
TIL SÖLU
Daglega allan Desember og
þar til 5. Jan. 1925 til strand-
siglingastaða.
(St.Johns, Halifax, Portland)
SJERSTAKAR LESTIR og Svefnvagnar
LÁTIÐ
Til skipshliðar í St. Johns fyrir þá sem fara í Desember.
CANADIAN PACIFIC
Haga ferð yðar
og ætlar kjósendum að greina
gullið frá isoranum, meta það sem
menn rita um landsins gagn og
nauðsynjar o. þvíl. En er hér ekkl
til of mikils ætlast? Próf. Terman
telur, að um 70% af kjóiíendum
Bandaríkjanna (hvítir menn) hafi
ekki öllu meiri andlegan þroska en
12—13 ára börn, og bætir því við
“að sem kjósendur fái þeir aldrei
neina 'skímu af þeim grundvallar-
atriðum, sem snerta skatta, tolla,
ríkisrekstur, notkun lánstrausts,
uppeldismál, afstöðu verkamanna
og vinnuveitenda. Skifti þeir sér
nokkuð af stjórnmálum, verða þeir
aðeins trúir flokksmenn og berg-
mála öll vígorð flokksins.” Ef gert
er ráð fyrir því, að kjósendur séu
svipðir hér, þá nær sjóndeildar-
hringur fæstra út fýrir hreppinn,
og lægi þá næst, að kjósendur kysu
aðeins sýslunefndarmann í bverj-
um hreppi, en sýslunefndin og
bæjanstjórnin aftur þingmenn,
eins og Sig. heitinn á ISelalæk lagði
til. Altaf verður kosningaréttur-
inn vandræðamál, því hann metur
fróða og fáfróða, illa menn og
góða að jöfnu. Auðveldast ætt það
þó að vera, að benda á álitlegasta
manninn í sínum ihreppi. Frh.
Guðm. Hannesson.
Lögrétta.
—:----o-------
Einokun og höft.
Svo sem kunnugt eir, hafa risið
upp hér í landinu harðsnúnir,
pólitíiskir flokkar, sem telja það,
meðal annas, ætlunarverk sitt, að
koma verslunarstétt landsins á
kné.
Þess var látið getið á prenti, um
þær mundir, sem annar þessara
flokka var að komast á laggirnar,
að takmarkið væri það, að uppræta
kaupmannastétt landsinis með öllu,
en síðar var þó gengið frá þeim
ummælum, er sýnt var að þjóðln
tók þeim fálega.
En ennþá er andinn þó hinn
sami undir niðri, og kaupmenn
bornir brigslum og illmælum, er
hentugt þykir. — Mun það eiga
að bæta hinn pólitíiska jarðveg
flokkanna og ryðja braut bugsjón-
um þeirra manna, sem öll viðskifti
þjóðarinnar vilja hneppa undir ok
einkasölu og harðra félagsbanda.
Til skamms tíma hefir Islending
um verið tamt að trúa sérhverri
aðdróttun og ámæli á hendur
kaupmannastétt landsinis, og er
það að vísu skiljanlegt, því að enn
þá lifa með þjóðinni endurminn-
ingarnar um verslunar-einokunina
á borfnum öldum og þungar bú-
sifjar í langan aldur af hálfu
danskra seltsöðukaupmanna.
En vitanlega er það fjarri öll-
um sanni að láta nútíðarkaup-
menn vora, hina ungu islensku
verslunarstétt, sem á undanförn-
um áratugum befir verið að taka
verslun lansins í sínar 'hendur, af
útlendingum, gjalda gamalla
isynda frá löngu horfinni tíð. —
Þetta hefir þó verið reynt, og
munu þeir menn, sem að því stóðu
hafa litið svo á, sem ekki væri ó-
hugsandi, að með þessum gömlu
vopnum mætti takast að vinna kaup
mannastéttinni nokkurt tjón, en
upp|skera (jafnframt að launum
vinsældir þjóðarinnar og valda-
traust.
Þetta hefir ekki orðið árangurs-
laust. Óvinir kaupmanna og
frjálsra viðskifta hafa komið þvl
til vegar •— að líkindum fyrst og
fremst í því skyni, að lama starf-
semi verslunarstéttarinnar •— að
lagðar 'hafa verið víðtækar hömlur
á frjáls verslunarviðskifti í land-
inu, einokunarverslun isett á lagg-
irnar, og höftum og bönnum
slöngvað yfir þjóðina. — Alt hefiir
þetta verið gert að forspurðri
verslunarstétt landsins, og í óþökk
mikils hluta þjóðarinnar. Ofur-
kapp sumra mann, að halda þessu
ófrelsi við og efla það, befir verið
undarlega mikið, og heilbrigð
skynsemi hefir þrásinnig orðið að
lúta í lægra haldi í þessum efnum
á undanförnum árum — En þetta
getur þó ekki staðið til lengdar
bér eftir. Endnrminningar þjóðar-
innar um viðiskiftakúgun á horf-
inni tíð, eru svo óglæsilegar, að
þes,s er ekki að vænta, að bún
selji sig undir þvílíka ánauð öðru!
sinni, meðan hún er athafnafrjáls.
Hún lætur áreiðanllega ekki blekkj-
ast af því til lengdar, þó að ein-
okunin breyti um svip, taki sér nýtt
nafn og reyni að gera mönnum
sjónhverfingar, með því að kalla
sig landsverslun.
öll landseinkasala er einokun —
ekkert annað en einokun. Hún lok-
ar úti alla samkeppni og vöru-
vöndun. Menn verða að sætta sig
við það, sem að þeim er rétt, eða
vera án vörunnar að öðrum kosti,
því að þeim er óheimilt að afla sér
bennar annarsstaðar, alveg eins og
á gömlu einokunartímunum.
Óvildarmenn verslunairfrelsis-1
ins í landinu, einokunarmennirnir, I
•hafa á undanförnum árum og enn
í dag, haft landstjórnina á sínu
bandi að nokkru levti. Hún hefir,
að því er séð verður, fálmað í
blindni og hrakist stefnulaus fyrir
ofríki þessara manna, enda löng-
um þurft að hallast í allar áttlr
eftir stuðningi og notast við alt
:sem fáanlegt var. —En svo fer
jafnan hverri þeirri stjórn, sem
þráir það heitt að hanga í völdum,
en skortir ihugkvæmd og áhugamál
sjálfa.
Það dylst engum manni, sem
líta vill hlutlaust og alvarlega á
viðskiftamála-ráðstafanir stjórn-
arinnar á undanfarinni tíð, að þær
hafa engum til heilla orðið né
hagsbóta, hvarki þjóð eða einstak-
lingum. Hitt mun sönnú nær, að
þær hafi orðig mörgum manni til
varanlegs ófarnaðar og þjóðinni í
heild sinni til skapraunar og tjóns. I
Meðal annars bafa menn goldið
þessara ráðstafana í hærra vöru-
verði, en þeir hefðu þurft að sæta
í frálsri samkeppni.
Núverandi landsstjórn, að at-
vinnumálaráðherranum undan-
teknum, er ekki sekari um einok-
unahbraskið en aðrar stjórnir síð-
ustu ára. En í haftamálunum beflr
hún lent í sárasta basli og ógöng-
um. — Reglugerð hennar um inn-
flutningsbann, dags. 7. maí í vor,
er sett gegn vilja meiri ihluta Al-
þingis, eins og hann lýsti sér við
atkvæðagreiðslu í neðri deild, og
í óþökk flestra landsmanna. Hún
er svo víðtæk og nær til svo
margra vörutegunda, að það var
þegar í upphafi augljóst mál, að
hún yrði óframkvæmanleg, nema
með stórkostlegum undanþágum.
— Hér skulu ekki bornar brigður
á það, að stjórnin vilji láta undan-
þágur frá ákvæðum reglugerðar-
innar, ganga jafnt yfir alla, er á
þeim þurfa að halda, en við því er
þó ekki að dýljast, að henni þykir
fara það mjð.g misjafnt úr hendi.
Það er nú haft fyrir satt, að
stjórnin sé loksins farin að sjá og
kannast við gagnleysi baftanna
og muni ætla sér að gefa eintoverj-
ar 'bannvörur frjálsar innan
skamms. En það er ekki nóg. Hún
á að fella alla reglugerðina úr
gildi þegar í stað.—
Stjórninni er áreiðanlega fyrir
bestu að það skjal detti úr sög-
unni, sem allra fyrst, þegjandi og
hljóðalaust.
Vísir 4. okt.
Dr hagskýrslunum.
Mannfjöldi í árslok 1923.
í nýútkomnum hagtíðindum er
birt yfirlit yfir mannfjölda á land-
inu i árslok 1923. Samkvæmt þvl
hefir fólkinu fjöigað um 1325 árið
1923, eða um 1,4%, en um 1207
manns 1922. Aftur á móti hefir
fjölgunin 1921 ekki verið nema
536 manns.
Alla fjölgunina sem orðið ‘hefir
á þessum árum, hafa kaupstaðirn-
ir gleypt, og heldur meira, þvl
fólkinu hefir smáfækkað í sýslun-
um, ihér um bil um 200 manns á
ári síðustu árin. 1 kaupstöðunum
hefir aftur á móti fjölgunin verið
fram undír 5% hin síðustu ár.
Mannfjöldi á öllu landinu var 1
árSlOk 1923, 97,758. Af þeim voru
47,438 karlar en 50,320 konur.
Mannadauði, hjónavígslur og
fæðingar.
Hjónavígslur voru 1921, 562,
1922 564 og 1923 477. Fæddlr voru
umfram dána 1921 1121, 1922 1250
og 1923 1344.
Hjónavígslum hefir farið mjög
fækkandi á síðustu árum, og síð-
asta ár hafa ’þær verið tiltölulega
færri en nokkru sinni áður. Fæð-
ingum hefir líka fækkað mjög
mikið.
Mannadauði hefir þó minkað
miklu meir, svo að hann er nú
nær helmingi minni en fyrir 50
árum. Jafnvel inflúensuárið, 1918,
varð manndauðinn ekki meiri en
rúmlega 16 af þúsundi. En árið
eftir varð manndauðinn minni en
hann (hefir nokkru sinni orðið
annars, aðeins 11,2 af þúsundi.
Árið 1921 varð manndauði með
meira móti og slagar upp í inflú-
enzuárið, en tvö síðustu árin hafa
verið ólík að þegsu leyti, þrátt
fyrir mikla mannskaða á sjó árið
1922.
Af hinni miklu minkun mann-
dauðans leiðir það, að hin eðli-
lega manfjölgun eða mismunurinn
á fæddum og dánum fer vaxandi
þrátt fyrir fækkandi fæðingar, og
síðastliðið ár befir hann verið
meiri en nokkru sinni fyr.
Árið 1922 fæddust fleiri meyjar
en sveinar. Af lifandi fæddum
börnum það ár voru 1250' pveinar
en 1263 meyjar. Annars eru svein-
arnir nær ætíð fleiri.
Af ö'llum fæddum börnum, lif-
andi og andvana, voru óskilgetin
344 ibörn árið 1921, 349 árið 1922
og 353 árið 1923. Saman'borið við
mannfjölda er það svipað hlutfall
og verið hefir uml langa ihríð. En
um og eftir aldamótin fækkaði ó-
skilgetnum börnum mjðg mikið
frá því sem áður var.
Af þeim er dóu árið 1921 voru
‘‘Augnalok barnsins voru bólgin
og loddu saman og úr þeim blæddi’
Mr. E. P. Kimball, Entwhistle, Alta, skrifar:
“Litla stúlkan okkar þjáðist af bólgu í augnalokunum, og þrátt
fyrir ýmiskonar meðul, versnaði henni svo, að þegar hún var
sextán mánaða, gat hún meS engu móti opnað augun án þess að
úr þeim blæddi. Ráðgast var bréf-
lega við ömmur barnsins um hvað
gera skyldi og báðar sendu þær
litla öskju af Dr. Chase’s Oint-
ment. Notuðum við úr þeim þar
til við gátum fengið stærri öskjur
frá Edmonton. Brátt tók barninu
að batna af meðali þessu, bólgan
hvarf og innan skamms tíma var
stúlkan alheil.”
r r. Chases Ointment
60c. askjan, hjá lyfsölum eða Edmansoii Bates & Co., Ltd. Toronto.
- ...............................................•
T
761 karlar og 699 konur, árið 1922
veru karlar 682 á móts við 581
konur pg árið 1923 voru þeir 638
á mótg við 612 konur. Kemur það
heim við reynslu undanfarinna ára
að manndauði isé meiri meðal karla
en kvenna. En þó hefir einkum ár-
ið 1922 verið óvenju óhagstætt
körlum að þessu leyti, enda fóru
það ár óvenjulega margir menn I
sjóinn.
Hve manndauðinn er lítiH l
heild sinni hér á landi á síðustu
árum stafar að miklu leyti af þvl,
hve barnadauðinn er orðinn lítill
bér á landi. Árig 1921 dóu hér 136
börn á 1. ári, 137 árið 1922 og 123
árið 1923. Af hverju þúsundi lif-
andi fæddra barna hafa þá dáið á
1. ári 52,7 árið 1921, 54,5 árið 1922
og 47,4 árið 1923. Árin 1916—^20
var ti!,svarandi tala 68,0 og 1911—
’15, 72,1. Finst nú vart nokkurt
land nema Nýja Sjáland með minni
barnadauða en hér hefir verið síð-
ustu árin, en auðvitað getur þetta
ibreyst allmikið þau ár 'sem barna-
sjúkdómar ganga hér um land, og
að líkindum er yfirstandandi ár
miklu óhagstæðara að þessu leytl,
þar sem ibæði mænusótt og mis-
lingar bafa verið á ferðinni. En
mikið er þó breytt frá því sem áð-
ur var. Árin 1871—*80 dóu á fyrsta
ári 188,8 af hverju þúsundi lifandl
fæddra barna, og ef farið er
lengra aftur í tímann verða þessar
tölur ennþá hæriri.
rannsóknir sýnishornanna eða á-
form nein um námugröft þarna.
Síðan þeiir fóru héðan hefir ver-
ið kyrt um þetta mál, og margir
baldið ,að hér færi sem fyrri, að
staðar yrði numið við ráðagerðir
einar.
En nú fyrir skömmu kom enn
Þjóðverji einn hingað, er fór rak-
leitt upp í Miðdal. Heitir hann
Wierig, og er talinn verkstjóri. Er
nú talið, af þeim, sem ibest þykjast
vita, að þeir hugsi til að vinna þar
járn. Áður var helst talað um að
gull væri þar 1 jörð. Verkstjóri
þessi verst allra fregna, eins og
fyrirrennarair hans, og kunnum vér
því ekki þessa sögu lengri. — En
víst er um það, að mikla ástund-
un hafa þeir sýnt, Þjóðverjarnir,
að grafast fyrir, hvað gera mætti
í Miðdal, hvað sem úr fram-
kvæmdum kann að verða.
Morgunlblaðið 8. okt.
--------o---------
Eg hefi gefiS heimimim' hjarta mitt
Framh. frá bls. 2.
Heink kom inn, unglegur á svlp,
þó hann sé ekki yngstur sona
hennar (þrjátíu ára gamall).
Hann fylgir móður sinni á ðll-
um ferðum hennar og er eftir-
Morgunblaðið 8. okt.
Frá Islandi.
Orðasveimur hefir sífelt verið
á lofti um það í sumar, að menn
hugsuðu til einhverra aðgerða við
námu þá í Miðdal, sem Einar Bene-
diktsson skáld hefir um mörg ár
haft eignarhald á.
1 vor kom hingað þýskur maður,
Schelle að nafni, og var hér all-
lengi. Var hann á vegum þeirra
manna, sem yfirráð hafa yfir hinni
fyririhuguðu námu. Var hann um
tíma þar efra við ýmsar trannsókn-
ir og tók þar sýnislhorn, er námu
n'okkrum tonnum.
Seinna kom annar Þjóðverji
ihingað, prófessor Keilach, og voru
þeir Schelle og bann hér samtímis
um hríð. Auk Miðdalsnámunnar
rannsökuðu þeir hér ýmsa staði;1
fóru vestur á Vestfirði og austur
yfir Fjall. Var talið víst að aðal-
erindi þeirra hingað hafi þó verið
að athuga námuskilyrði í Miðdal.
Eigi var með nokkru móti hægt
að fá þá eða aðra, sem einhvern
kunnugleik hafa á rannsóknum
þessum, til að segja neitt um efna-
mynd móður sinnar þegar hún var
seytján ára, með ofurlítið yfir-
varaskegg, sem snúið er upp á til
endanna. Ferdinand lét í ljósi við
mig að eg mundi ekki meta að verð
leikum heiður þann er mér veitt-
ist við heimsókn þá er mér hafði
veist og bar áhyggjur út af því að
móðiir sin liði aldrei talsíma í her-
bergjum sínum né heldur þjónustu-
stúlkur. Honum fanst að hann
mundi ihafa ánægju af að heyra
látlaust hringt í símann og taka
á móti heillaóskum til móður sinn-
ar frá hinum mörgu vinum hennar
og hann mundi kjósa að heyra
fregnritarana í gegnum hann,
biðja náðarsamlegast um leyfi til
þess að ibreiða hróður hennar út í
blöðum sínum.
‘Má, ef Ferdinand fengi að
ráða------!”
En til þess 'kemur nú ekki, en
hann verður mér lengi minnistæð-
ur, því þar er drengur, sem ann
móður sinni heitt, og er það ekki
eftir alt saman hið mesta, sem
heimurinn hefir að bjóða.”
Nuáa-Tone
Árangur á 20
dögum eða pen-
ingunum fkiíað.
pegar heilsa ySar er biluS, og þér er-
uð þreyttir á aS taka meðöl, sem ekkert
gagn gera, Þá skuluS þér reyna Nuga-
Tone, meSaliW, sem styrkir líffærin og
hjálpar náttflrunni til aS láta þau
starfa eins og vera ber.
Nuga-Tono hefir þau áhrif á inn-
yflin, aS hægSirnar ganga fyrir sér á
eSlilegan háth hilóSrásm örvast og
matarlystin efkst. Gasólga I magan-
um hverfur meS öllu, tungan hreins-
astog andardi-átturinn léttist. Lœkn-
ar einnig höfuSverk og húSsjúkdómá,
sem stafa af slæmri meltingiu. Keyn-
iS pnð í nokkra daga og finnið ltinn stór-
kostlega niismm
Nnga-Tone inniheldur sérstök sambönd
af járni, er styrkja iblóSiS til muna. I>aS eru
járnefnin, sem skapa fagran litarhátt og
veita vö-Svunum mátt. Nuga-Tone innihalda
einnig PHOSPHOTtUS—efni, sem hefir stóra
þýSingu fyrir taugakerfiS og allan likamann.
AS auki hefir Nugo-Tone inni að lialda se-x önnur lækningaefni, sem notuS
hafa veriS af beztu Jæknum um víSa veröld til þessa aS aSstoSa náttúruna
viS starf hennar mannsllkamanum til víShalds.
Nuga-Tone er óyggjandi læknis forskrift, sem hann hefir noitaS I 35 ár.
púsundir karla og kvenna hæla Nuga-Tone, og ekki meira en ein manneskja
af 300 hefir beSiS um peninga sína til baka. Hví? Vegna þess, aS meiSaliS
hefir veitt þeim heilsu og hamingju. Nngst-Tone innilteliur beztu læknislyf
og verSur aS sanna ySur gildi sitt, eSa þaS kostar ySur ekki neitt
Vor endurgreiðslusamningur! '1'“^ ronMTorn pósm.
Sérhver flaska inniheldur 90 töflur—mánaBar lækningaskerf. þér getiS
fenglS 6 flöskur fyrir $5.00. TakiS Nuga-Tone I 20> daga, og ef þér eruS ekki
ánægSir, þá sendiS þér pakkann aftur meS þvl, sem eiftir er, og peningunum
verSur skilaS. Nuga-Tone fæst einnig hjá lyfsölum gegn sömu skilyrSum-
LesiS samningana á pakkanum.
20-DAGA ENDURGREIÐSLU ÁBYRGÐARSEÐILL.
NATIONAL LABORATORY, Dept. M-l, 1018 S. Wabash Ave„ Ohicago, XII.
H0RBAR:—<Hér fylgja meS $......, er nota skal fyrir ... flösk-
ur af Nuga-Tone, póstfritt ogtollfrftt. Eg ætla aS nota Nuga-Tone I 20 daga
og ef eg er ekki ánægSur, sendi eg afganginn, en þér skiliS aftur peningunum.
Nafn............................................................
I Utanáskrift
Bær.........
i
Fylki