Lögberg - 11.12.1924, Blaðsíða 1

Lögberg - 11.12.1924, Blaðsíða 1
pað eru ekki tveir ínáuuðir tij jóla, svo þér œttuð vissulega að fara að hugsa uin að láta taka mynd af yður til að senda lieiin. W. W. KOBSON fEKHR GÓÐAR MYNDIR AÐ 317 PORTAGE AVE. PROVINC 17 * THEATRE 1 pessa viku Tom Mix in “Oli, YouTony” Næstu vlku: “Daughters of the Night“ 35. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 11. DESEMBE.R 1924 NÚMER 50 Helztu heims-fréttir Canada. Þótt kosningar til sambandsþings séu enn eigi sýnilega í nánd, þá hefir frjálslyndi flokkurinn í Al- berta þegar útnefnt þingmannaefni í tveim kjördæmum, sem sé þá Mr. Cross í Athabaska og Mr. W. J. Rae fyrir hiS nýja Peace River kjördæmi. Þá er og fullyrt, aS innanríkisráSgjafinn, Hon. Charles Stewart, nruni leita kosningar í West Edmonton. * * * Fjármála frumvarp Oliverstjórn- arinnar í British Columbia, hefir veriS afgreitt meS 12 atkvæSa meiri hluta. Greiddu þvi atkæði. auk stjórnar eSa frjálslynda flokks- ins, þingmenn bænda og verka- manna. Stjórnin er, sem kunnugt er, í minni hluta á þingi, en fregn- ir frá Victoria telja hana tryggfe í sessi, meS því að enginn andstæS- inga flokkanna, sem í raun og veru eru þrir, kæri sig um nýjar kosn- ingar fyrst um sinn. * * • BlaSiS Moose Jaw Times, er þeirrar skoSunar, aS Dunning, stjórnarformaSur í Saskatchewan, muni áSur en langt um líSur tak- ast á hendurl ráSgjafaembætti í Sambandsstjórninni. Óskar blaSiS þess, jafnframt, aS Saskatchewan fylki fái aS njóta hans góSu og miklu hæfileika sem allra lengst. • ♦ • E. Clarence Settell, fyrrum einkaritari Sir Adams Beck, for- seta raforkunefndarinnar 4 Ont- ario, hefir veriS dæmdur í þriggja ára fangelsi, fyrir tilraun er hann gerSi til aS stela $29.925 af Com- merce bankanum. * * EylkisþingiS í Quebec kemur saman hinn 7. janúar næstkomandi. AfstaSa flokkanna er sem hér seg- ir: frjálslyndir 64; íhaldsmenn 20 og 1 verkam. — Áttatíu og fimm þingmenn alls eiga sæti á fylkis- þinginu. • • • Fjórir vopnaSir þorparar réSust hinn 4. þ.m. inn í eitt af útibúum Hochelaga bankans í Montreal, miSuSu skambyssu á bankastjór- ann, meSan þeir létu greipar sópa um fjárhirzluna. Fengurinn nam nokkuS á áttunda hundraS dala. HypjuSu bófarnir sig síSan á brott hiS bráSasta og hefir ekki til þeirra spurst fram aS þessu. • * * Hon.George S. Henry, samgöngu- málaráSgjafi Fergusons stjórnar- innar í Ontario, hefir lýst yfir þvi, aS hann hafi ákveSiS aS leggja fyrir næsta þing frumvarp til laga um skatt á gasolíu. • • • Ræningjar brutust inn í póst- húsiS í Moose Jaw hinn 1. þ.m. og námu á brott $38.000 í peningum og verSbréfum. • * * Nefnd manna frá Sléttufylkjun- um þremur og British Columbia, er stödd í Ottawa um þessar mundir, í þeim tilgangi aS krefjast af stjórnarinnar, aS úrskurSur meiri- hluta' járnbrautarráSsins í Crow’s Nest málinu, verSi ógiltur og vöru- flutningataxtinn, sá er gekk i gildi 7. júlí síSastliSinn, skuli innleidd- ur tafarlaust af nýju. LögmaSur sléttufylkjanna, er H. J. Syming- ton frá Winnipeg. Byggir hann kröfu sína aSallega á því, aS meiri- hluti járnbrautarráSsins hafi virt aS vettugi skýlausan vilja sam- bandsþingsins, hvaS flutningsgjalda taxtanum viSvíkur. Á meSal þeirra er þátt taka í sendiför þessari, auk Mr. Symingtons, má nefna Brack- en stjómarformann Manitobafylk- is, Greenfield yfirráSgjafa í Al- berta, og S. J. Farmer, borgar- stjóra í Winnipeg. • • • J. P. Balharie hefir veriS kosinn borgarstjóri í Ottawa. Hann hafSi áSur gegnt bæjarfulltrúa sýslan. • • /* Laugardaginn hinn 29. f.m., bauS W. S. Dunlop lyfsáli, 180 vinnu- lausum mönnum inn í búS sína aS 293 Portage Ave., Wpeg, og gaf þeim öllum máltíS. KvaS Mr. Dunlop sér vera þaS ofraun, aS horfa upp á hungraS fólk. • • * Fregnir frá Ottawa hinn 8. þ. m. láta þess getið, að samkomulag hafi náðst milli allra aðilja í Nor-t mán orkustöðva deilunni og timb- urtekjuleyfi því, er McArthur fór fram á að fá til að stofnsetja og starfrækja pappírsmylnu í Win- nipeg. Þeir Bracken stjórnarfor- maður eg Farmer iborgarstjóri, eru nú komnir heim úr Ottawa-för í samhandi við þessi mikilvægu mál og láta hið besta yfir árangrinum. * * ♦ W. W. Davidson, hefir verð end- unkosinn borgarstjóri í Moose Jaw Sask. ------o------- Bandaríkin. Látinn er nýlega að heimili sínu í Benedict Canyon í Californía-ríki Thomas H. Ince, einn af frægustu kvikmyndakóngum Bandaríkjanna, fjörutíu og tveggja ára að aldri. * * * Hinn 21. nóvember síðastliðinn lést að heimili sínu í Columbus, Ohio, Mrs. Harry M. Daugherty, kona hins fyrverandi dómsmála- ráðgjafa Harding — Coolidge stórnarinnar. Hafði ihún átt við langvarandi heisuleysi að stríða. * * * Á nýafstöðnu jþingi hinna sam- einuðu verkamannafélaga — Am- erican Federation of Labor, höldnu að E1 Paso í Texas, var uppá- stunga um að stofna nýjan stjórn- málaflokk, feld með feykilegu afli atkvæða. * * * Nýllega var Addison Proctor, að Fremont, Midh., haldið (heiðurs- samkvæmi í tilefni af því, að hann er eini núlifandi maðurinn, er þátt tók í hinu fræga Wigwam þingi er útnefndi Abraham Lin- coln til forseta, árið 1860. Var Mr. PrOctor þá tuttugu og eins árs að aldri. * * * Skýrslur frá landbúnaðarráðu- neyti Bandaríkjanna, sýna að þjóð- in hefir á fyrstu níu mánuðum yfirstandandi ár,s notað sér til við- urværis rúmlega fimtíu miljónir punda af smjöri umfram það, er hún neytti á sama tímibili í fyrra. * * * Sagt er að svo sé mikið um glæpl í Boston um þessar mundir, að lögreglan standi uppi því nær ráð- þrota. Ríkisstjórinn í Massachu- setts, Mr. Cox, hefir boðist til að senda þangað herlið til aðstoðar borgarstjóranum og lögreglunnl. Meginið af glæpum þessum og glæpatilraunum, er sagt að standi í sambandi við brot á vínbannslög- unum. • • • Maður að nafni S. W. Thornton einn af auðugustu og áhrifamestu bændum Texas-ríkisins, skaut ný- lega til dauðs, nágranna sinn, er Osear Norris hét, út af níu dala skuld. * * * Fregnir frá Atlantic City, N. J. hinn 6. þ. m. segja að verið sé í þann veginn að hefja smíði á hót- eli þar í íborginni er kosta muni tlu miljónir dala. Hótel þetta skal bera nafn Benjamíns Frnklin. * * • Ríkisstjórinn í Illinois, Len Small og sonur hans, lentu í bif- reiðarslysi hinn 5. þ. m. og sættu talsverðum meiðslum. * * * Coolidge forseti hefir vikið frá embættl Röberí 0. Harris, stjórn- arlögmanni í Boston, Mass., fyrlr lélega embættisfærslu, að því er viðkom framkvæmd vínbannslag- anna. --------o--------- Bretland. Robert Cecil lávarði, hafa verið veitt fyrstu friðarverðlaun Wood- row W/?lson’s stofnunarinnar, að upphæð $25,cxx>. Var lávarðurinn einn þeirra manna, er hvað vask- ast vann að stofnun Þjóðbandalags- ins—League of Nations—, ásamt Wilson heitnum forseta. * * * Herforinginn nafnfrægi, Allenby greifi, fulltrúi Bretastjómar á Egyptalandi, er sagður að hafa komist áb samsæri í þá átt að myrða ýmsa af núverandi ráðgjöf- um Baldwinstjórnarinnar. Að feng- inni þessari yfirlýsingu, hefir inn- anríkisráðgjafinn skipað svo fyrir, að hlutaðeigandi ráðgjafar skuli hafa um sig strangan vörð dag og nótt. Austen Chamberlain, utanríkis- ráðgjafi Bretastjórnar, hefir setið á ráðstefnu í París undanfarandi, að sögn í þeim tilgangi, að leita hófanna við Herriot stjórnir.a um greiðslu á skuldum Frakka við Breta. * * * Látin er nýlega í Lundúnum Mrs. Smith-Wilkinson, miðaldra kona, sú er fræg varð út um allan heim fyrir það, að hafa á einu ári eytt $300,000 í kjóla og annan skraut- klæðnað. * * * David Lloyd George hefir verið kjörinn leiðtogi frjálslynda flokks- ins í brezka þinginu. Sagt er að val hans hafi valdið talsverðri óá- nægju innan vébanda flokksins. Leiðtogi frjálslyndu stefnunnar í heild sinni, verður Herbert H. Asquith þó eftir sem áður. Eins og kunnugt er, beið hann ósigur i síð- ustu kosningum, og þess vegna hef- ir þessi bráðabirgðar ráðstöfun ver- ið gerð. • * * Hin nýja stjóm Breta, hefir á- kveðið að fullgera herskipakvína í Singapore. Verður fé veitt til fyr- irtækisins nú þegar á yfirstand- andi þingi. ------o------ Hvaðanœfa. 'Sex hundruð manna hafa látið líf sitt í landskjálfta, er geysaði á eyjunni Java 'í vikunni ®em leið. * * # Efri málstofa franska þingsins hefir með 176 atkvæðum gegn 104 veitt Joseph Calliaux, fyrrum yf- irráðgjafa uppgjöf saka ásamt irráðgjafa uppgjöf saka og veitt honum full borgararéttindi. Var ihann fundinn -sekur, sem kunnugt var, fyrir óleyfileg mök við Þjóð- verja, meðan á stríðinu stóð. Er búist við að hann verði tekinn i Herriot ráðuneytið, þá og þegar. • * • Dr. Rudolph Ramek hefir mynd- að nýtt ráðuneyti í Austurríki í stað Ignas1 Seipel, er nýlega fór frá völdum. * * * Frá fyrsta janúar næstkomand:, skal ihöfuðborg Noregs, Kristjaia, nefnast Osló. * * * Peter Hutghes þingmaður Dail Eireann, hefir verið skipaður sendiherra fríríkisins írska í Washington. * * * Hin nýja stjórn Portugalsmanna undir forystu Domingenez Sanbos, hefir fengið traustsyfirlýsingu 1 þinginu með miklu afli atkvæða. * * * Fullyrt er að Ðe Rivera, sá er undanfarin ár hefir stjórnað Spáni með alræðisvaldi, muni inn- an skamms takast þar á hendur forsætisráðgjafaembætti sam- kvæmt venjulegum þingræðisregl- um. • • • • Nýlátinn er að San Juan í Porto Rico, General Cipriano Castro, sá er um eitt skeið var einvalds- drotnari í Venezuela, 66 ára að aldri. * * • Almennar þingkosningar fóru fram á Þýskalandi síðastliðinn sunnudag og lauk þeim með sigri fyrir Marx-stjórnina 0g þá aðra, er fylgja vildu fram tillögum Dawes- nefndarinnar í skaðafoótamálinu. Jafnaðarmönnum og Demokrötum jókst allmikið fylgi, en Nationalist arnir, eða keisarasinnar, svo að segja stóðu í stað. Oommunistum og öðrum gerbyltingamönnum fækkaði til muna. Vafasamt þyklr hvort Marx muni framvegis ihalda ríkiskanzlarembætti. Að honum fráförnum er Stresemann núver andi utanríkisráðgjafi, talinn lík- legastuir til stjórnarforystu. * * * Oommunistar hafa verið ærið uppvöðslusamir í París undanfar- andi og það svo mjðg, að lögregl- m Ihefir átt í vök að verjast. Hófust óeirðir þessar fyrir alvöru, er hinn nýdujbbaði sendiherra sovietstjórn arinnar, Krassin tók við embætti. ------o------ Eimskipafélag tslands. Ræða Sveins Björnssonar í gær á aukafundi félagsins. Á þessum aukafundi er aðeins eitt mál á dagskár, lagabreyting. sem ekki varð löglega afgreidd á síðasta aðálfundi. Eg vil þó nota tækifærið , utan dagskrár, til þess að gefa félagsmönnum stutta skýrslu um 'hag og starfsemi fé- lagsins! Batnandi hagur. Reikningar félagsins (áætlun) fyrir liðna 3 ársf jórðungana 1923. j 30. septeniber 1923 var hagnaður- inn kr. 74.774.63 30. sept. 1924. var hagnaðurinn kr. 229,480.52, mun- urinn verður kr. 154,705.89. Eftir útlitinu að dæma má og vænta hagnaðar af síðasta ársfjórðungn- um, sem nú er hálfnaður. Vöruflutningarnir frá Englandi (Hull), sem félagið hóf siglingar til á fyrra ári, virðast smá aukast. Og á þessu ári hafa flutningarnir til Húll aukist mikið (fiskur). Hve mikið má þakka það, að út- koman er þetta skárri en í fyrra, góðærinu, sem hefir verið hér í ár, er erfitt að segja. En líklegt má telja, að það eigi hér nokkurn þátt í*. Hinsvegar má segja að innflutn- ingshöftin, sem lögð voru á síðast- liðið vor, hafi dregið^nokkuð ýr fJutningnum með skipunum, að minsta kosti í vor og sumar. Það hefir verið haft talsvert á orði, að hagur Eimskipafélagsins væri ekki góður, því væri ekki vel stjórnað, kvartað undan, að það gæti ekki greitt hlutlhöfum sínum arð 0. s. frv. Eg, sem kom í stjórn félagsins á þessu ári, hefi ekki átt þátt I stjóm félagsins undanfarin ár, og á því ekki sjálfur um neitt sárt að binda um stjórn á félaginu síð- ustu 4 árin, lít svo á, eftir að eg hefi nú aftuir kynst högum félags- ins, að félaginu hafi verið vel stjórnað, svo vel að vér megum vera þakklátir fyrir. Erfiðleikar allra. Félagið býr að gömlum fjár- hagskvillum. Það hefir orðið fyrir sama barðinu, sem öll önnur skipa- félög í heiminum. Það varð að auka skipakost sinn einnig á þelm tima, sem alt kostaði miklum mun meira en nú og verður því að þola verðfall á eignum sínum. Þau fáu félög, sem áttu nóg fyrir til að jafna Ihallann, hafa komist vel af. Hin munu fleiri, sení ekki þoldu hallann, mörg farið á höfuðið. Okkair unga félag er eitt þeirra fé- lag, sem hefir lifað af» en verður að reyna að koma undir sig enn fastari fótum. Mörg félög hafa thaft beinan reksturshalla eða aðeins vegið salt síðustu árin, aðeins fá þeirra haft verulegan hagnað. En okkar félag hefiir á hverju þessara vandræða- ára haft nokkurn hagnað, þótt ekkl hafi það greitt hluthöfum arð. Því tel eg því hafa verið vel stjórnað, er það hefir synt svo vel fram úr iðunni, þrátt fyrir alt það, sem það hefir orðið að gæta, sem ekki mið- ar í hagnaðaráttina. Hlutverk Eimskipafélagsins fyrir þjóðina. marka, þeirra, sem forsvaranleg verður að telja. E,g skal í því efnl nefna nokkur atriði. Spamaðarráðstafanir, Á síðasta ári hefir skrifstofu- fólki verið fækkað um 5, daglegur vinnutími jafnframt lengdur. Með samkomulagi við stjóm vélstjórafélagsins (hiefiir1 véla-að- stoðarmönnum, á skipunum verið kipt burtu. Starfsmenn félagsins hafa bætt við sig vinnu þeirra, sem fækkað hefir verið um. Bankarnir hafa góðfúislega lækk að vextina á láni því, sem hvílir á húsi félagsins, að talsverðum mun. Vátryggingargjald á skipum fé- Iagsins hefir femgist lækkað. Stjórnin ihefir nú leitað samn- inga við ríkisstjórnina um aukna borgun fyrir útgerðarstjórn ríkis- j sjóðisskipanna, en því máli ekki lokið. Framkvæmdarstjóri og stjórn I hafa fleira á prjónunum í þessu 1 efni. Og eg hygg, að eg megi full- ! yrða, að framkvæmdarstjóri og stjórn muni halda sleitulaust áfram að reyna að finna leiðir til að bæta hag félagsins í smáu sem stóru. En vér eigum jafnframt þá ósk, að á móti komi áhugi hjá þjóðinni um að styðja félagið,. Þess er þörf af fleiri ástæðum en einni. Samkepnin við félagið er að aukast. Slík samkepni er góð að ýmsu leyti, hvetur til umibóta og á að geta orðið til að bæta samgöngur vorar. en í sanxkepninni verðum við að eiga styrk hjá okkar mönn- um; getum ekki vænst hans frá keppinautunum. Þeir fá sinn istyrk hjá sinnar þjóðar mönnum. Björgvinarfé’lgið Ihefir á þessu ári aukið ferðir sínar afarmikið. Það keppir við okkur um flutn- inga bæði við Noreg, Bretland, Þýskaland, Miðgarðanhafslöndin i og Ameríku (með umhleðslu). Það mun fá mjög ríflegan styrk til þessara ferða úir sjóði Noregs — og frá norskum kaupýslumönnum, um notkun skipanna . Það mun mega nefna dæmi þess, að norskur seljandi vöru hafi ekki sint ósk íslensks kaupanda um að senda vörur með skipum vorum, heldur sent þær með skipum Bjögrvinai- félagsins — til þess að styrkja sitt félag. Nýlega hefir verið iborin fram í ríkisþingi Dana uppástunga um að styrkja Smeinaðafélagið ríf- lega úr ríkissjóði Dana, til að | auka siglingar milli Danmerkur og íslands. Þann styrk, Ibeinan og óbeinan, j sem erlend félög fá frá sinni þjóð, i þarf Eimskipafélagið að fá hér a landi. 1 Á því hefir hvílt, að halda niðri farmgjöldum og fargjöldum, og það hefir gert það, til mikils hagn- aðar fyrir landslýð. Þessi hagnað- ur nemuir saman talinn sjálfsagt. miljónum. Á félaginu hefir hvílt að sjá þeim landshlutum, sem örðugast eiga að fá skipaferðir til sín, fyrir siglingum, og það hefir gert það eftir mætti, til mikils Ihagnaðar fyrir þessa landshluta. Á því hefir hvílt að reyna nýjar siglingaleiðir og hagkvæmari markaðsleiðir; það hefir knýtt samband við England (Hull), væntanlega til hagnaðar fyrir landsmenn í nútíð og framtíð. Því þarf að vaxa fiskur um hrygg. En betur má, ef duga skal. Fé- lagið þarf að auka svo bagnað sinn, að það geti komið undir sig enn fastari fótum, aukið flota sinn og greitt mönnum sparisjóðsvexti, að minsta kosti af fé því, er þeir liafa lagt í félagið — og haft bol- magn til að standast samkeppni. Félagið þarf að verða svo, að það verði því vaxið að fást við þau við- fangsefni, sem bíða þess, og altaf munu vakna ný, eftir því sem fram- þróun vex hér í landi. Þetta er fé- laginu nauðsyn; og eg tel þjóðina eiga svo mikið undir velgengni þessa félags, að eg fullyrði, að það sé þjóðinni nauðsyn. Til þess að auka hagnðinn eru tvær leiðir: Að minka gjöldin og auka tekjurnar. Félagsstjórninni er fjarri skapi áð vilja reyna að auka tekjurnar með hækkun faúmgjalda og far- gjalda, fyr en í ítrustu neyð. Hins vegar hefir framkvæmdarstjóri og stjórn látið sér mjög um það hugað að draga úr útgjöldum fé- lagsins, auðvitað' innan vissra Brestur á samúð, sem er óafsakanlegur. Á því vill stundum verða brest- ur; má jafnvel nefn dæmi um, að einstaka íslendingur vinni heldur í öfuga átt. Skal eg aðeins nefna tvö dæmi: Verslun utan Reykjavíkur fær í sumar sem leið annað skipa Sam- einaða félagsins til að koma við á höfn sinni utan áætlunar. Með þessu skipi Sameinaða félagsins flytur verslunin mikið, en með skipi voru ekkert. Verslunin gefur þá ástæðu fyrir þessu tiltæki að Eimskipfélagið hafi fleiri áætlun- arferðir á aðra höfn nærlendis en þessa höfn. Ástæða, sem alls ekki átti við, einmitt í þetta skifti, því bæði skipin, Sameinaða fél. og vort, voru á ferðinni um sama leyti. Maður hér í bænum hefir ný- lega þrá-auglýst í fjóllesnu blaði í Khðfn með áberandi fyrirsögn þetta: ‘Eimskipafélag íslands. Hlutir seldir ódýrt gegn vörum. Bréf merkt 469 afhendist Politiken.” Þetta lítur út eins og gert sé til að kasta rýrð á félagið. Vér vitum hver maðurinn er. Hvorugt þetta Iber vott um þann stuðning og vinarþel sem félagið þarf að eiga Ihjá landsmönnum. Stuðnjngur þjóðarinnar nauðsynlegur. Hins vegar á félagið auðvitað mairga góða stuðningsmenn hér á landi. Margt bendir á ,að mikið sé úndir því komið fyrir framtíð þessa lands, að vér komumst vel fram úr þrautum þeim, sem þessi fjárhagslegu byltingarár, sem nú standa yfir, hafa á oss lagt. Hvort vér höfum þá þrautseigju, sem þarf til að halda út; hvort vér vilj- um og getum nokkuð að okkur lagt til að standast raunirnar. Og óvarlegt mundi vera, og bera vott um, að vér hefðum lítið lært af reynslunni, ef vér létum góð- ærið í ár stinga oss svefnþorn á þessu sviði; teldum oss sjálfir trú um, að með því sé komið yfir erf- iðleikana. Ein raunin er, að halda við vexti og viðgangi þessa félags. Félags- stjórnin vill eiga von á því, að þing og stjórn, viðskiftamenn fé- lagsins, starfsmenn félagsins, alllr fslendingar, vilji standa sem fast- ast saman um félagið á þessum reynsluárum, sýna því vinarþel, sanngirni og góðan stuðning. Slíkt á að gefa hagsvon, fjár- hagslega, menningarlega, og um sjálfstæði íslenska ríkisins. iMorgunblaðið 16. nóv. -------o------ Samsæti. var sr. Jóhanni Þorkelssyni hald- ið 12. þ. m. í Iðnó, til minningar um að iþá voru 35 ár Hiðin frá því að hann var kosinn dómkirkju- prestur hér í Ibænum. Sóknarnefndin gekst fyrir sam- sætinu. Oddviti Ihennar S. Á. Gísla- son, hélt aðalræðuna fyrir minni j heiðursgestsinls og flutti honum jafnframt 3000 kr. minningar- og! heiðursgjöf frá ýmsum safnaðar-1 mönnum í prýðilegu skríni, sem ungfrú Soffía Stefánsdóttir Eiríks- sonar hafði skorið. Þá var sungið kvæði er sr. Friðrik Friðriksson hafði ort. Síðan fluttu ræður: Sr. Árni Björnsson prófastur í Görð um, isr. Krstinn Daníelssion fyrv.! prófastur, séra Bjarni Jónsson | dómkirkjuprestur, ungfrú Laufey Valdimarsdóttir Sigmundur Sveins son umsjónarmaður og fiú Guð- rún Lárusdóttir. Mintust þau öll vel og innilega á heiðursgestinn. En hann svaraði með tveim ræð- um. Hefði nokkur efast um að sr. Jó- hann Þorkelsson ætti vini víðsveg- ar um þennan bæ, þá mundi sá efi hafa horfið við Iþetta tækifæri. , Gestirnir voru 148, voru úr öll- um stéttum og stefnum, þessa bæj- ar, ósammála um ótal margt,' en sammálla og samtaka um að gleðja og heiðra gamla sóknarprestinn sinn og þakka honum sannkristi- lega framkomu hans fyr og síðar hér í bæ. Var ánægjulegt að sjá alt þetta ólíka fólk sitja saman eins og stór- an vinahóp í svo góðum tilgangi. Og þegar gestirnir sungu að skiln- aði nokkur fögur lög, vhr sem hlý- samúðaralda færi um þá, þelr fundu að aflið, sem tengdi þá við heiðursgestinn, gat lyft hug þeirra yfir alt dægur|þras ti.1 æðri heima; þeim fanst þeir hafa varið þessarl kvöfldstund vel, og báðu að lyktum séra Jóihanni allrar blessunar. Viðstaddur. Séra Jóhann Þorkelsson. fyrverandi dómkirkjuprestur Sungið í samsæti í Iðnó 12. nóv. ’24 Grandvar í lífi, geyminn Drottins orða, Gnótt á til varnar sér 0g nægan forða, Þarf hann ei jarðnesk vopn né beittan vigur, Vinnur 'þó sigur. Vopnlauisan munu’ hann vættir allar flýja, Vei.t hann sér óhætt stigu’ kanna nýja, Hvort sem hann reikar einn á auðnum víðum Eða með lýðum. Glaður og rór með gleðibros á vörum Gengur hann jafnt í neyð og sæld- arkjörum, Prúðmenskan jöfn í hreysum og í höllum, Hugljúfur öllum. , I Lausnarorð kröftugt kraftinn honum veitir, Kjöixvrði því mót allri hættu’ hann heitir; Þaðan er afl og óhúltleikinn sprottinn, Orð það er; Drottinn! Kirkjunni gefi Guð æ marga slíka Göfuga menn af trú og kærleik ríka Grandvara’ í lífi, andans orku fylta, Auðmjúka og stilta. Þannig við reyndum þig á löngum vegi, Þjónn Guðs íhins æðsta, sem á heilladegi Kjörinn ihér varst og vannst hér meðal þjóða. Verkið þitt góða. Þjónustu góða þökkum vér af fojarta. Þér veiti Drottinn elli rika’ og bjarta. Lengi oss trú og bæn þín tblessun færi, Bróðir vor kæri. Fr. Fr. Á sunnudagskvöldið brann tíl kaldra koía hús Jóns Guðmunds- sonar gestgjafa í iStykkisfoólml. Um það leyti, sem eldurinn kom upp í húsinu, stóð yfir hlutavelta í samkomuhúsi bæjarins, og voru á henni flestir bæjarbúar, og með- al þeirra allir íbúarnir í húsi þvi, er brann. Um klukkan 8.30 var komið með þau tíðindi á hlutavelt- una, að kviknað væri í ihúsi Jóns og þustu allir þangað. En þá var alt efsta loft hússins alelda, svo engin tök voru á því að slökkva, með því líka að brunatæki reynd- ust ófullnægjandi, og erfitt er að ná til vatns, því þarna eru aðeins litlir brunnar er þrjóta strax. Af efsta Hoftinu var engu bjargað, en mest öllu úr veitingastofu óg íbúð Jóns, sem er á fyrsta lofti, og eins varð 'bjargað öllu úr kjallara, svo sem matvælum og öðru, er þar var geymt. Á efra loftinu voru gesta- rúm, og brunnu þau öll og rúm- fatnaður, og einnig mikið af fðt- um heimafólks, er þar voru geymd. Vafasamt er talið, lhvort% kvikn- að hafi út frá múrpípu uppi undir þekju, eða i einhverju gestaher- berginu. En þau höfðu verið notuð rétt áður, því allmargt var af gest- um i kauptúninu um þessar mundlr Húsið var vátrygt fyrir 12,000 krónur og innantokksmunir fyrir 8000 þúsund, en þeir náðust mest alllir. Tap húseiganda er því ekki mjög tilfinnanlegt. En verri er sá atvinnumissir er hann verður fyr- ir, iþví atvinna hans var eins og gefur að skilja, bundin við foúsið, þar sem það var gisti- og greiða- sðluhús. Bæjarfógetaembættið hér I Reykjavík mun nú vera lang-anna- mesta embætti landsins. Eru dag- lega á döfinni vínsmyglaramál, togarasektir og f jöldi annara mála Má nokkuð marka, hve embættið er umfangsmikið, á því, að síðasta laugardag voru kveðnir upp 16 dómar 1 gestarétti Reykjavíkur. í norskum blöðum stóð fyrir stuttu, að símað hefði verið til þeirra frá Khöfn, að á Laugalandi hefði verið fyrir stuttu lokið við að grafa upp 2 hús frá steinaldar- tímunum. Eru þau öíl í heilu lagl, og talin að vera 4000 ára gömul. í fyrra va.r manni nokkrum í Nor- egi stefnt fyrir rétt, af þeim or- sökum, að hann hafði selt berkla- veikum manni stofublómaáburð og sagt það vera hið nýfundna danska berklalyf. Maðurinn var dæmdur í. 10C' daga fangelsi. ------o------ í Noregi hefir vínsmyglun um langan tíma vaxið yfirvöldunum algerlega, yfir hðfuð. Hafa það eins og venja er til, altaf verið karlmennirnir, sem fengust við ,þá atvinnu. En svo mögnuð er smygl- unin orðin, að kvenfólkið er farið að stunda Ihana. Hafa margar konur í Larvík verið teknar og settar í varðhald vegna smyglun- ar. En sjálfsagt eru þær ekki verrl en annarstaðar, þó ekki hafi orðið uppvíst enn um aðrar. ------o------ danska blaðinu “Köbenhavn.” ir verið stungið upp á því, að isk, norsk og sænsk blöð beittu fyrir þvi, að safna fé, er nægði þess að bj.arga Roald Amund- í úr þeim skuldum, sem hann er - en hann hefir, eins og kunnugt nýlega orðið gjadþrota — og ifremur til þess að foann gætl dið áfram hinni fyrirhuguðu ferð sinni. Er það tekið fram, að ta eigi ekki að vera nein ölm- ,, heldur endurtborgun á þvl, 1 Amundsen foafi lagt fram til indalegra rannsókna. urðsson, foreppstóri í Stóra-Lamfo- haga í Skilmannahreppi, kunnur sædmarmaður, fullra sjötíu og tveggja ár, fæddur 7. febrúar 1852. j Hann verður jarðsunginn að Leirá næstkomandi miðvikudag. Morgunblaðið 26. okt.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.