Lögberg - 21.05.1925, Síða 1
flííief 4» f
38. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 21. MAÍ 1925 | 1 NÚMER 21
•lons Bjarnasonar Skóli
H. O. Sijrmond, B. A.,
kennari 1 sögu.
Hann var stofnaður af Hinu ev. lút. kirkjufélagi Islendinga í Vesturheimi, á kirkju-
þingi þess sem haldið var að Mountain, N. D., sumarið 1913.
Hann hóf göngu sína að hausti það sama ár, í samkomuhúsinu Skjaldborg í Winni-
peg, með 7 nemendum, og stýrði séra Jón heit. Bjarnason, D.D. fyrstu bœnagerðinni,
í tólf ár varð skólinn að haldast við í leigðum húsum, sem að mörgu leyti voru ó-
hentug til kenslu. En um haustið 1923 flutti hann í sitt eigið hús á Home stræti í
Winnipeg, vandað, hlýtt, og vel til kenslu fallið, og það haust var líka bætt við skól-
ann fyrsta háskólabekk, (fyrstu “College’ -deild); áður var hann aðeins miðskóli. En árið
1924 var öðrum bekk háskólans bætt við og skólinn gerður að “Junior College”. Skólinn var
löggiltur af þingi Manitobafylkis árið 1915.
Þörf og tilgangur.
Þörfin á þessum skóla, eða mentastofnun, á meðal Vestur-lslendinga, byggist á
þeim raunverulega sannleika, að staða þeirra í þjóðfélögum þessarar heimsálfu krefst
miðstöðvar, þar sem fortíð þeirra og framtíð getur mætst, þar sem hið Iiðna í lífi þjóð-
ar þeirra getur vakið hin skyldu öfl sálna þeirra, til meiri þroska og þróttmeira lífs. Miðstöð
er geti tengt saman þá eldri og yngri í þessari heimsálfu og tengt þá ungu við uppsprettu
þjóðmenningar þeirra, og líka við framtíðarmenning þjóða þeirra, er þeir eru búsettir hjá. Mið-
stöð, þar sem í einingu þróast hin djarfa og þrótt mikla menning feðranna, og hin víðtækari
vestræna menning, til þess að þeir sem báðum eru háðir, eins og við íslendingar^erum og
hljótum að verða í lengri tíð, þurfum í engu að vera hálfir.
Til þessarar þarfar hafa allir hinir svonefndu útlendu þjóðflokka fundið svo ákveðið, að
þeir hafa allir, að minsta kosti allir þeir skandinavisku, komið slíkum stofnunum upp hjá sér
og halda þeim við ár frá ári.
Hjá þeirri sömu þörf og þeim sömu skyldum getum við Islendingar ekki komist, nema ef
við viljum vera ættlerar og öllum öðrum aumari.
Verksvið skólans.
Það má segja að verksviðin séu þrjú:
1. Að innræta hinni ungu, uppvaxandi kynslóð vorri, lotningu fyrir guði og hlýðni við
hans boð. Uppeldi það sem ekki er grundvallað á kærleika til guÖ3 og manna getur ekki
veitt ungmennum hinn æðsta andlega þroska, Kristin hugsjón, barnsleg trú og ákveðin þekk-
ing á grundvallaratriðum opinberunar guðs, er aðalskilyrði sannrar menningar; þetta eitt veit-
ir skólanum tilveru rétt. >
2. Kensla námsgreina þeirra, er mentamáladeildir þessa fylkis krefjast að séu kendar
því fólki, er mentaveginn vill ganga, og með þyí leiða fram fyrir sjónir æskulýðsins það, sem
heilbrigðast er og nothæfast í menning þessarar heimsálfu. Þetta atriði verða allir skólar að
leggja áherzlu á, og það hefir Jóns Bjarnasonar skóli gert ekki síður en aðrir skólar Manitoba-
fylkis.
3. Að kenna eftir föngum íslenzkt mál og íslenzkar bókmentir, svo að hið nothæfasta í
íslenzkri menningu fái fest rætur hjá skólalýðnum íslenzka hér vestra, honum sjálfum tilþrosk-
unar, og nái í gegnum hann að festa rætur, að einhverju leyti, í þjóðfélögum þeim, er Vestur-
íslendingar eru búsettir í, og sé það festarfé það er hið útflutta íslenzka fólk greiðir fóstur-
landinu nýja.
Það sem skólinn hefir afrekað,
Skólinn hefir afkastað allmiklu siðan að hann hóf göngu sína.
1. Mentað 488 nemendur í fræðum þeim, er slíkum skólum eru fyrirsett af þeim er fyrir
mentamálum fylkisins standa og auk þess kent þeim íslenzku, sögu íslands, bókmentir og bók-
mentasögu og veitt þeim tilsögn í kristnum fræðum.
2. Sýnt enn á ný að íslendingar standa ekki aðeins öðru1, námsfólki fylkiains á sporði,
heldur stendur því framar. Það er viðurkent að fleiri standist próf frá Jóns Bjarnasonar skóla
en frá nokkrum öðrum miðskóla í Manitoba, og sýnir meðaltal þeirra er útskrifast frá miðskól-
um fylkisins að þetta eru engar ýkjur. Jafnaðartala þeirra er frá miðskólum fylkisins útskrif-
uðust árið 1924 var 51.1 af hundraði, en frá Jóns Ðjarnasonar skóla var hún 75 af hundraði.
Sama hlutfall hefir verið öll hin árin, og eitt árið útskrifaðist 100% af námsfólki Jóns Bjarna-
sonar skóla.
3. Það er Jóns Bjarnasonar skóla að þakka, að kenzla í íslenzku hefir ekki verið lögð nið-
ur við háskóla fylkisins.
4. Skólinn hefir unnið íslenzku þjóðerni meira gagn en nokkur önnur stofnun, 'þar hann
er sú eina stofnun er nær til unga mentafólksins íslenzka.
. 1 .
5. Nemendur Jóns Bjarnasonar skóla hafa orðið fyrir meiri persónulegum áhrifum frá
kennurum skólans en nemendur annara skóla hafa notið eða geta notið.
6. Skólinn hefir aukið virðingu íslendinga í hvívetna síðan að hann var stofnaður.
Séra Hjörtur J. Ixx'), M. A„
kennari I stæríSfræfii, efnafræSi
og eðlisfræði.
Miss Salóinc Hiilldórs.son. B. A.,
tungumálakennari.
Kennnrar ojr nemendnr Jóns Bjarnasonar skóln. 1925.
Kennari og nemendur í 10. bekk, 1925.
Scra Rúnólfur Marteinsson, B.A. B.D.
Kennari í íslenzku og enskum
bókmentum.
Kennari og nemeiulur í 11. bekk. 1925.