Lögberg


Lögberg - 30.07.1925, Qupperneq 3

Lögberg - 30.07.1925, Qupperneq 3
LÖGBERG FIMTUDAGINN, 30. JÚLÍ, 1925. Hættulegír tímar. Eftir Winston ChurchilL "Hann fékk líka að kenna á því,” sagði Step- hen, ‘‘því sonarsonur hans var andstæðingur han® í stjórnmálum, og það virðist, sem hann ihafi gifst konu, sem var engin liðleskja.” “Nei, hún var enginn aumingi,” sagði Virginía, “og eg er viss um, að hún hefir ekki látið manninn sinn kyssa isig nema _þenni sýndist svo.” Hún leit upp til hans með brosi á vörunum og töfrandi. “En eftir því sem eg hefi heyrt um hann,” sagði Stephen,” þá var hann nú karl í krapinu, og hefir ef til vill gert það í leyfisleysi.” “Það er eina hótin að Marlborough stræti er ekki mjög fjölfarið,” sagði Virginía. Þegar þau voru búin að skoða borðstofuna með útskornu arinhillunni og silfurhúnana á hurðunum, og danssalinn, sem var í annari hliðarálmu hússins, gengu' þau út og Stephen lokaði hurðinni aftur. Þau gengu umhverfis húsið og stóðu og horfðu niður grashjallana, sem einu sinni höfðu verið sléttir og vel upp gerðir, en voru nú sígnir niður. Þarna hafði Dorothy dansað á sléttri flötinni á af- mælisdag Richards. Þar fyrir neðan var brunnhús- ið, þar sem lækurinn hvarf á einum stað undir hálf fallinn vegginn. Þar hafði Dorothy fléttað liljur í hár.isitt áður en ihún sigldi til Lundúna. Það sást marka fyrir vegg þar sem verið höfðu takmörk garðsins sjálfs. Limgirðingarnar, höfSu verið óhirtar i sjötíu ár, voru vaxnar upp. Garðurinn sjálfur var fullur af viltum gróðri sem teygði sig upp úr brúnni laufbreiðunni ,frá síðasta haustið, sem þakti jörðina. En innan um grasið spruttu fjólur, og Virginía'sleit upp nokkrar þeirra og festi þær í frakikaibarm Stephens. “Þú verður að geyma þær ávalt,” sagði hún, “af því að við fundum þær hér.” Þau sáu sæti undir gömlum trjábol, þar hafði Lionel Caryel setið margan vordag og lesið “The Gazette’.’ Þau hvíldu sig þar. Sólin var farin að síga og átti skamt eftir niður að gamaldags húsa- göflunum hinum megin við garðinn. Og í geislum kvlödsólarinnar stóð alblómgaða eplatréð eins og hvítklædd brúður. Loftið var fult af ilm, sem dag- urinn dregur úr skauti jarðarinnar. Virginia rauf þögnina. Manstu eftir deginum íStephen, þegar við vor- um öll ihrædd í St. Louis og þú komst yfir um frá Önnu Brinsmade til þess að hughreysta mig?” “Já, góða mín,” svaraði hann. En hversvegna datt þér hann í hug nú?” Hún svaraði honum ekki beinlínis. “Eg trúði þvi, isem þú sagðir, Stephen. En þú varst svo rólegur svo styrkur og svo öruggur. Eg » held að það hafi gert mig reiða, þegar eg hugsaði til þess hvað kjánaleg eg hlýt að hafa verið.” Hann þrýsti hönd hennar. “Þú varst ekki kjánaleg, Jinny.” Hún ihló. “Eg var ekki eins kjánaleg og Clume með klukkuna sína. En veistu hvað eg hafði uhdir hendinni — hvað það var, sem eg var að bjarga af öllum eigum mínum?” ^ “Néi,” svaraði hann, “en eg hefi oft hugsað um það.” t Hún roðnaði. “Þetta hús minti mig á það. Það var kjóll Dorothy Manners og kniplingarnir sem hún hafði átt. Eg gat ekki skilið þá eftir. Það var það eina, sem eg hafði til þess að minna mig á kvöldið hjá Brinsmade, þegar við vorum saman við hliðið þar.” “Virginía,” sagði hann, “einhver kraftur, sem við skiljum ekki, hefir fært okkur hvort að öðru, éinhver kraftur, sem við getum ekki staðið á móti. Það er heimskulegt af mér nð segja það„ en daginn sem þrælauppiboðið ivar haldið, þegar eg sá þig fyrst, hafði eg hugboð um þig, sem eg hefi aldrei kannast við, jafnvel ékki fyrir sjálfum mér, fyr en nú.” Hún hrökk við. “Nei, og það var það sama ipeð mig, Stephen.” “Og svo,” hélt hann fljótt .áfram, “var það undarlegt, að eg skyldi fara til Whipples dómara, sem var náinn vinur föður þíns. — Undarleg vin- átta! Síðan kom heimlboðið hjá þér í Glencoe og hið undarlega atvik á sýningunni.” “Þegar eg var að tala við prinsinn og leit upp og sá þig innan um allan mannf jöldann.” Hann hló. “Það var nú óþægilegt fyrir mig.” “Stephen,” sagðihún og rótaði laufunum með fætinum, “þú ihefðir getað tekið mig í faðm þinn , nóttiría, sem Whipple dómari dó, ef þú Ihefðir viljað. En þú hafðir nógu mikið viljaþrek til þess að gera það ekki. Eg elska þig enn meira þess- vegná.” Og svo ibætti hún við eftir stutta þögn: “En það var þó móður þinnar vegna, sem við hneigðumst mest hvort að öðru.* Eg tilbað hana frá þeim degi, er eg sá hana á spítalanum. Eg held að það hafi þá byrjað að votta fyrir velvild hjá mér til Norðanmanna.” “Móðir mín hefði tekið þig fram yfir allar konur, Virginía,” svaraði hann. t Næsta morgun fréttu þau lát Abrahams Lin- colns. Þau höfðu haft nánari kynni af honum en flestir aðrir og þeim flaug báðum það sama í hug: hvernig hann hefði lifað í sorg og dájð sem píslar- vottur, einmitt á þeim degi, sem helgaður er minn- ingunni um krossdauða Krists. Og þau trúðu því. að Abrahan^Lincoln hefði dáið fyrir land sitt, eins og Kristur dó fyrir heiminn. Og þannig líka verðum v$ að trúa því að Guð hafi ætlað þessari þjóð mikið hlutverk á þessari jörð. » , Miörgum árum isíðar las Stephen Brice fyrir konu sína þessi gullfögru niðurlagsorð úr annari innsetningarræðu Lincolns: “Án haturs til nokkurs manns, með kærleik til allra og með trausti á því sem rétt er, eins og' oss er af Guði gefið að sjá það, látum ass reyna að fullgjora það verk, sem við höfum með höndum, sem er að græða sár þjóðarinnar, að annast þá, sem hafa staðið í stríðinu, og ekkjur þeirra og hörn — að gjöra alt, sem miðar til þess að koma á og halda ^ið réttlátum og I varanlegum friði, meðal vor sjálfra og við allar aðrar þjóðir.” ' ENDIR. PEG. « ■ Eftir J. Hartley Manners. 1. KAPÍTULI. írski æsingamaðurinn. “Eg hefi aldrei kynst nokkrum manni, sem hefir talað meira og vitað minna en þér.” “Um írland eigið þér við, faðir Cahill?” “Og um alt annað, hr. O’Corínell.” “Já, þér hljótið eflaust að vera góður dómari um fávisku, faðir Cahill.” “Við hvað eigið þér með þessu?” “Þér búið að jafnaði í samvistum við hana.” “Eg ®é og heyri hana nú að minsta kosti, Frank O'ConneM.” “Þá hefir kraftavei’k átt sér stað, hr. prestur.” “Kraftaverk?” “Já, að sjá og heyra sjálfan sig á sömu stundu, er sannarlegt kraftaverk, hr. prestur.” Síra Cahill hélt fastara um stafinn sinn, og beindi neðri enda hans upp undir ríefið á O'Corínell. “Móðgið þér ekki þjón guðs.” “Hvað isem í boði væri, vil eg ekki gera það,” svaraði 0‘Connell alúðlega. “’Svjálfur er eg barn djöfulsins.” “Já, það er ejnmitt það sem þér eruð. Og þér vijljið helst fá aðra til að vera eins og þér eruð sjálfur; en það skal yður ekki takast á meðan eg hefi tungu í munninum og prik í hendinni.” 0‘Connell leit á prestinn með egnandi svip í blágráu augunum. “Það lítur út fyrir að presturinn þurfi ennþá eitthvað meira til að snúa ,sér að, finst mér.” Síra Cahill var ágæt ímynd hinna írsku presta með gömlu skoðanirnar. Hann var yfiríburða mælsk- um sem prédikari, og til allra fátækra og þjáðra bar hann jafn þýtt hugarþel og kvenmaður, svo það var engin furða þó hann væri í miklu afhaldi hjá söfnuði sínum í sveitaþorpinu M. í sveitinni < Clare. Samt var upp á það síðasta farið að bera á óánægju hjá hinum yngri í söfnuðinum.. Þá skorti þá virðingu, sem hinir eldri létu svo fúslega í té. Þeir spurðu í stað þess að svara spurningum, og þeir byrjuðu alveg gagnstætt vilja og skipunum síra Cahills að taka þát í baráttunni fyrir sjálfstjórn, undir hinni ágætu leiðslu Charles Stuart Parnells. Nokkurir af hinum málsmetandi ræðumönnum höfðu nú þegar heinlsótt þorpið, og vakið stund- legan og andlegan óróa. Síra ’ Cahill vann á móti þessum mönnum af öllu megni. Hann, einis og margir aðrir framsýnir prestar sá fyrirfram eymd- ina og blóðsúthellinguna sem yrði afleiðing mót- þróa íranna gegn bresku stjórninni. Og þó að síra Cahill væri eldheitur föðurlandsvinur, var—ÍTonum fyrst og fremst ant um, að því fólki, sem hann hafði ilifað samvistum við alla æfina, liði sem * best. Hann v.ar presturinn þeirra, og hann þoldi ekki að hugsa um það, að þær manneskjur, sem hann hafði þekt frá bernsku, skyldu verða barðar og misþyrmt af lögreglunni, og eftir á látnar í fangelsi, af því þær ihefðu íekið þátt í gagnslausri , baráttu .fyrir sjálfstjórn. Honum kom því illa, að mæta þesisum ákaf- asta af öllum hinum yngri æsingamönnum, á aðal- götu þorpsins. Stefnuskifti 0‘Connells vbru síra Cahill mjög beisk voríbrigði. Hann hafði lokað augum föður hans, þegar hann dó, og hlynt að syninum eftir bestu getu. En þegar Tunn ungi O'Connell var fimtán ára, flutti hann úr smábæ þessum til Dublin, og það líðu mörg ár áður en síra Cahill heyrði hans getið. Á meðan þessi ár liðu, hafði hann æft sig í að verða einn hinna mælskustu úfcbreiðsluv manna frelsismálefnisins. Það bárust út ótal margar sögur um það, hvernig hann oft og tíðum islapp -Vlð að verða deyddur eða látinn í fangelsi. Hann ihafði alt af fylgd fólksins, og í hvert skifti sem hann slapp, fól hann sig í fjöllunum eða í jarð- holum, þangað til óróinn minkaði, til þess að koma i ljós á nýjum stað og tala þar með mtWefni frels- isins. 1 \ Og það var einmitt þetta, sem átti sér stað í dag. ’Hann kom alveg óvænt í ljós í bænum, sem hann var fæddur í, og hafði boðað til fundar á St. Kernaus hæðiniý þetta sama kvöld. Það var þessi fundu^, sem síra Cahill vildi um fram alt fyrir- byggja. * Hann gat nauipast trúað því, að þessi hái sterk- bygði, sólbrendi maður, væri isá Frank O’Connell, sem hann hafði séð hlaupa um götur þorpsins sem fölann og hnugginn dreng, án þess að nokkur kjark- ur sæist hjá honum. Þar sem hann stóð nú fyrir framan síra Cahill, og horfði á hann með rann- sakandi augum, háleitur og beinvaxinn, leit hann ' út fyrir að vera skapaður til að vera leiðtogi fólks- ihs. Og eitt augnablik hopaði faðir Cahill á hæl. En aðeins líka eitt augnaJblik. “Ekkert af mínum sóknarbörnum sækir fund yðar í dag. Þar verða ekki aðrir áheyrendur 4n lögregluþjónarnir og fáeinir menn af ruslaralýðn- um, sem eru áhangendur yðar. Enginn skikkanleg- ur maður vill stofna lífi sínu og frelsi í hættu, til að hlusta á yður.” 0 Connell leit til hans með undarlegu augna- raði, pg voru tár í augum hans er hann svaraði: “Það er ekki miklu að stofna í hættu, síra Cahill. Þeir hafa ekkert frelsi og lífið hefir ekki mikla þýðingu fyrir þá.!’ O’Connell stundi þungan, þegar hann hugsaði um þau gleðilausu fimtán ár, sem hann hafði dvalið í þessum litla, fátæka bæ. “Látið þér sóknarbörn mín í friði, segi eg yður,” hrópaði presturinn. “Þau hafa verið ánægð með hlutskifti sitt, þangað til menn af yðar tagi komu hingað til og vöktu óróa hjá þeim.” “Þau hljóta þá að hafa verið mjög lítilþæg, ef dæma má eftir fátæklegu heimilum þeirra og aumk unarverðu tilveru,” svaraði O’ConneM. “Kofi er jafngóður og höll, ef guðsorð á heima í honum,” sagðP presturinn. “Já, það eru þessar kenningar, sem gera írland að athlægi allra manna. Guðsorð á að koma með ljós en hér finn eg aðeins myrkur,” sagði O’Connell. “Eg hefi víarið lífi mínu til að breiða út ljós!” sagði presturinn. Bros lék á vörum O’Connells, um leið og hann tautaði: “Það lítur helst út fyrir að það aé skriðbytta, sem þér notið, hr. prestur,” “Er það sonur Michael O’Connells, sem talar þannig til mín?” Brosið hvarf undir eins af vörum O’Connells og sömuleiðis háðshreimurinn í rödd hans. Með þeim ákafa, sem varð hvítglóandi áður en hann hætti, þrumaði hann: | “Já það er hann! Það er sonur Michfef O’Conn- ell sem dó í þjóðbrautarskurðinum og var jarðsqtt- ur á kostnað fátækra styrktarsjóðsins. Michael O’Connell, fæddur í mynd guðs, sem lifði í fimtíu og átta ár við svengd, neyð, veikindi og hörmungar! Midhael 'O’Connell, er samkvæmt skipun húsbónda síns var fleygt út úr rúminu, sem hann lá veikur í, til þess að deyja fyrir utan dyrnar á heimilinu, þar sem hann var fæddur. Það er sonur hans sem talar, faðir Cahill, og það er sonur hans, sem ætlar að tala eins lengi og hann getur hreyft tungu sína! Það er ómælilegt haf af hatri, sem Michael O’Conn- ell hefir skilið eftir handa syni sínum, og hvorki prestar, stjórn, lögregla eða hervald getur ihindrað son hans frá að ausa úr því!” O’Connell skalf frá hvirfli til ilja af geðshrær- ingu. Ak sem hann hafði þjáðst af á æfi sinni, stóð nú fyrir hugskotssjónum hans. Meðan síra Cahill athugaði hann með ná- kvæmni, fór hann, að skilja hvílíkt vald þessi maður gat haft yfir þeim fátæku og þjáðu. Og eitt augna- blik fann presturinn til samhygðar með O’Connell, þrátt fyrir æsingastarf hans. “Faðir yðar fékk alla þá huggun, sem kirkjan gat veitt,” sagðí presturinn alúðlega og lagði hönd sína á öxl unga mannsins. “Huggun kirkjunnar!” endurtók O’Connell og hló háðslega. ^ “Þkð var nú svo sem þákkarvert. Það vantar ekki að vel jsé séð um írska fólkið. Steinar og mold er nógu góður matur fyrir það, segir breska* stjórnin. Við gefum þeim huggun kirkjunnar, segja prestarnir og svo deyja þefr eins og flugur hingað og þangað á þjóðbrautunum--------- en með huggun og blessun kirkjunnar!” Rödd sírá Cahills skalf af reiði þegar hann svaraði: “Eg vil ekki heyra yður tala þannig, Frank O’Connell.” “Nei — eg hefi oft tekið eftir því, að þeir, sem eru ákafastir að prédika sannleikann, vilja síst af öllum heyra hann,” sagði O’Connell. “Hvernig mundi írlandi hafa liðið án prest- anna? Segðu mér það. ’Hvernig hefir mitt líf verið? Eg tók að mér hið erfiða starf kirkjunnar, þegúr eg var ekki eldri en þér eruð nú, og eg hefi varið æfi minni í hennar þarfir. Til að hjálpa þeim fátæku og halda við trúnni og trauStinu á guði í hugum þeirra. Til að kenna ungu börnunum orð guðs. Eg hefi skírt þau í hans nafni, eg hefi vígt þas, eg hefi lokað augum þeirra^ þegar ,‘þau voru dáin, lesið hina síðustu messu yfir þeim og beðið fyrir sálum þeirra. Og það eru þúsundir manna einis og eg, sem varið hafa æfi sinni til fyess, sem reyna að halda hugs- unum og breytni mannanna hreinum og flekklaus- um, svo að sálir þeirra fái að koma til guðs, þegar veru þeirra hér á jörðinni er lokið.” Faðir Cahil.1 stundi þungan, þégar hann þagn- aði. Hann hafði í raun og veru lýst æfi sinni. Hann hafði af fúsum vilja varið henni í þarfir síns litla, jfátæka safnaðar, aðal ánægja hans fólst í því að hjálpa og hugga. Og svo varð hann að verða þess var, að einn þeirra, aem hann h'afði kent að biðja ‘Faðir vor’, sem hann hafði fermt og tekið til alt- aris, talaði háðslega um starf hans, særði og móðg- ( aði hann með orðum sínum, meir en nokkuð ann- að gat sært og móðgað hann. Orð hans voru ekki gagnslaus fyrir O’Connell. Því í raun og veru elskaði hann föður Cahill fyrir sjálfsafneitun hans, og störf hans í þessum litla bæ, sem lærisveinn Krists. En að öðru leyti kendi hann í brjósti um gamla manninn, að hafa eytt öllum þessum árum í því fáviskunnar myrkri, er svo margir af lrla»ds bæjum virtust huldir í. Þreytt og Tauqaveiklað Fólk Læknast Við að Nota 4 Nuga-Tone. pað jilcðal Vinmir BæSi Fljótt og vel BlóSiC þarfnast járns og twugarn- ar fosfór. Nuga-Tdne eykur járniS f blóPinu og fosfór f taugunum. pa8 er vísindalegt tauga- cig blðömeSal. pa8 gengur undrum næst, hve Nuga- Tone eykur skjótt starfsmáttinn og gerir -gamalt og þreytt fólk lffaglatt og áhugasamt. BlðSið fær nýtt lífs- magn og taugarnar, nýjan styrk. MeCal þetta veitir væran svefn, góSa matarlyst, beztu meltingu oig kem_ ur yfir höfuS aS tala öllum líffærun- um í eSlilegt horf. paS er einkar ijóft aSgöngu og veitir skjótan batifr Hafi læknirinn ekki ráSlagt y&ur , þaS, skuluS þér fara beint til lyfsal- áns og fír ySur glas af Nuga-Tone.— Varist eftirstœilin|gar. ReyniS meS- aliS f nokkra daga og bati}i ySur ekkf, skuluS þór skila þvf aftur og i endurgrefSir lyfsalinn þá andvirSiS. FramleiSendur Nuga _ Tone leggja rfkt á viS lyfsala, aS ábyrgjast ÞaB, .éSa skila peningunum aS öSrum kosti. Fæst hjá öllum ábyggilegum lyf- sölum. DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Offlcs tfmar: 2—3 Heimili: 776 Victor St. Phone: A-7122 Winnipeg, Manitoba. Vér leggjum sérstaka áherzlu á aS selja meSul eftir forskriftum lækna. Hin beztu lyf, sem hægt er aS fá, eru notuS eingöngu. þegar þér komiS meS forskrifti'na til voe, megiS þér vera viss ur», aS fá rétt þaS sem læknirinn tekur til. COLCLEUGH & CO. Notre Dame and Slierbrooke Phones: N-7659—7650 Vér seljum Giftingaleyfisbréf DR O. BJORNSON 216-220 Medical Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office tfmar: 2—3. Heimili: 764 Victor St. Phone: A-7586 Winnipeg, Manitoba. DR. B. H. OLSON 216-220 Medlcal Arts Ðldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office Hours: 3i—5 Heimili: 921 Sherbume St. Winnipeg, Manitoba. ------P----------- ------- DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Stundar augna, eyrna, nef og kverka sjúkdóma.—Er aS hitta kl. 10-12 f.h. og 2-5 e. h. Heimili: 3t3 River Ave. Tals.: F-2691 DR. A. BLONDAL 818 Somerset Bldg. Stundar sérstaklega Kvenna og Barna sjúkdóma. Er aS hitta frá kl. 10-12 f. h. og 3—5 e. h. Office Phone: N-6410 Heimili: 806 Victor St. Sfmi: A-8180 DR. Kr. J. AUSTMANN ViCtalstfmi: 7—8 e. h. Heimili: 1338 Wolsley Ave. Sími: B-7288. DR. J. OLSON Tannlæknir 216-220 Medica! Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-3521 Helmili: Tals. "§h. 3217 DR. G. J. SNÆDAL Tannlæknir 614 Somerset Block Cor. Portage Ave og Donald St. Talsfmi: A-8889 Dr. H. F. THORLAKSON Phone 8 CHRYSTAIi, N. DAK. Staddur ai5 Mountain á mánud. kl. 10—11 f. h. AS Gardar fimtud. kl. 10-11 f. h. Munið símanúmerið A 6483 og pantiC meCöl yCar hjá oss.— SendiS pantanir samstundis. Vér afgreiCum forskrittir meS sam- vizkusemi og’ vörugæCi eru óyggj- andi, ænda höfum vér margra ára lærdómsríka réfnslu aS baki. — Allar tegundir lyfja, vindlan, fs- rjómi, sætindi, ritföng, tóbak o.fl. Mc Burncy’s Drug Store Cor. Arlington og Notre Dame THOMAS H. JOHNSON Og H. A. BERGMAN ísl. lögfræðingar. Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P. O. Box 1656 Phones: A-6849 og A-6840 W. J. Lindal. J. H. Lindal B. Stefansson. íslenzkir lögfræðingar. 708-709 Great-Westi Perm. Bldg. 356 Main St. Tals.: A-4963 I>eir hafa einnig skrifstofur afi Lundar, Riverton, Gimli og Piney og eru þar aS hitta á eftirfylgj- and tfmurn: Lundar: annan hvern miSvikudag Riverton: Fyrsta fimtudag. Gimli: Fyrsta miðvikudag. Piney: þriðja föstudag 1 hverjum mánuSi. A. G. EGGERTSSON ísl. lögfræðingur Hefir rétt til aS flytja mál bæSi f Manitoba og Saskatchewan. Skrifstofa: Wynyard, Sask. Seinasta mánudag I hverjum mán- uBi staddur I Churchbridge- J. J. SWANSON & CO. Verala meS fasteignir. Sjá um leigu á húsum. Annast lán, eldsábyrgS o. fl. 611 Paris Bldg. Phones: A-6349—A-6310 STEFAN SOLVASON TEACHER of PIANO Ste. 17 Emily Apts. Emily St. KING GEORGE HOTEL (Cor. King og Alexander) Vér höfnm tckið þetta ágæta Hotel á leigu og veitum við- skiftavlnum öll nýtízku |>wg- indi. Skemtileg hcrbergt tU leigu, fyrlr lengri eða skenvri tíma, fyrir mjög sanngjamt verð. petta er eina hótelið í Wlnnij>eg-borg, sem Islending- ar stjóma. TII. BJARNASON Giftinga- og Jarðarfara- Blóm mcð litlum fyrirvara BIRCH Blómsali 616 Portagc* Ave. Tals.: B-720 St. John: 2, Ring 3 Emil Johnson. A. Thomas SERVICE ELECTRIC Rafmagns Contracting — AUs- kyns rafmagnsáhöld seld og við þau gert — Seljum Moffat og McClary Eldavélar og höfum þær til sýnls á verksfæði vom. 524 SARGENT ÁVE. (gamla .Tohnson’s byggingin við Young Street., Winnipeg. Verskst. H-1507. Heim. A-7286 VTerkst. Tals.: A-8383 Hcima Tals.: - A-9384 G. L. STEPHENSON PI.VMBER AUskonar rafmagnsáhöld, svo sem straujám, víra, allar tcgundir af glösum og aflvaka (batteries) VERKSTOFA: 676 IIOME ST. Sími: A-4153. fsl. Mjmdastofa. Walter’s Photo Studio Kristin Bjamason, eigandi. 290 PORTAGE Ave., Winnlpog. Næst biS Lyceum leikhúsiS. A. S. BARDAL 848 Sherbrooke St. Selur lfkkistur og annast um út- farir. Ailur útbúnaBur sá bezti. Enn fremur selur hann allskonar minnisvarSa og legsteina. Skrifst. Talsíml: Heintilis Talsími: N-6607 J-8302 Islenzka bakaríið Selur beztu vömr fyrir lægsta verð. Pantanir afgreiddar b-.cði fljótt og vel. Fjölbreytt árval. Hrein og lipur viðsklftl. Bjarnason Baking Co. 676 SARGENT Ave. Winnipeg. Phoue: B-42^8 MRS. SWAINSON að 627 SARGENT Ave., Winnipeg, lvefir ávalt fyririiggjandl nrvals- hlrgðir af nýtízkvt kvcnhóttunv. Hún er eina ísl. konan. sena slíka verzlun rekur í Winnipeg. íslcnd- ingar, látlð-Mrs. Swainson njóta viðskifta yðar. JOSEPH TAYLOR Lögtaksmaður Heimatalsfmi: St. John 1844 Skrifstofu-Tals.: A-6557 Tekur lögtnki bæSi húsaleiguskuld- ir, veðskuldir og vixlaskuldir. — Aí- greiSir alt, sem að lögum lýtur. Skrifstofa 255 Main St. LINGERIE YERZLUNIN 625 Sargent Ave. þegar þér þurfiS aS láta gera HEM- STITCHING, þá gleyn*i» ekki aS koma I nýju búðina á Sargent. Alt verk gert fljótt og vél. Allskenar saumar gerSir og Þar fæst ýmislegt, sem kvenfólk þarfnast. MRS. S. GTJNNLAUGSSON, Eigandl Tals. Ð-7327. Wlnnipeg

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.