Lögberg - 04.03.1926, Blaðsíða 3

Lögberg - 04.03.1926, Blaðsíða 3
LÖGBElvG FIMTUDAGINN, 4. MARZ 1926. Bls. S. gWag—BBBBaBBiaaB«aaagBaaBWMBBaBBBB»ayBBBBmBBHi Sérstök deiid í b'aðinu SOLSKIN Fyrir börn og unglinga a>oaaia«iMHia8igKragm»siiag!a»^gta^gwaa«B Jörundur. Saga eftir Jóhönnu Spyri. (Æskan.) FYRISTI KAPÍTULI. Það var ráðið. Hátt uppi í Alpafjöllunum, drjúgan spöl fyrir utan hin eiginlegu landamæri sóknarinnar, lá lítið kot, alveg eitt sér. Lítill og fjörugur Alpalækur hoppaði fossandi fram hjá kofanum og flýtti sér ofan í dalinn. Gamall maður, Lúkas að nafni, sat á trébekk úti fyrir kofadvrunum á heiðbjörtu sumar- kvöldi og horfði á tunglið í fyllingu, þar sem það var að renna upp fyrir fjallatindana og breiddi smám- saman mildan bjarma yfir fjöll og dal. Hann var víða þektur, gamli maðurinn, því hann hafði langa æfi verið fylgdarmaður ferðamanna yfir fjöllin, og þótti bráðduglegur á yngri árum. En nú voru liðin nokkur ár frá því að hann varð að láta yngri mönnum eftir þann starfa. Hann var þá bú- inn að hafa hann á hendi fullan mannsaldur, og hafði fylgt miklum fjölda manna. Það kom þó fyrir stöku sinnum enn, að hann lét tilleiðast að fylgja, ef skamt átti að fara, gæti hann að eins sloppið hjá að bera bagga; þeir gerðu hann svo miklu mæðnari, en hann átti að sér að vera. ‘Tíomdu hingað, Jörundur, og lofaðu mér að tala dálítið við þig!” hrópaði Lúkas til drengs, sem lá á hnjánum við lækinn og var þar að bisa við eitthvað og sýndist taka mikið á. “Já, afi minn, eg skal nú koma!” svaraði Jör- undur, og flýtti sér að ljúka því, sem hann var að gera. Síðan stóð hann upp og kom á harða spretti til afa sins. Kafrjóður var hann í kinnum, þó að kvöldgolan væri svöl, og af stóru, bláu augunum hans skein langa leið. “Afi minn, eg get ekki fengið mylnuhjólið til að snúast eins og í öðrum mylnum,” sagði hann og straulfl ljósa lokkinn frá enni sér. “Komdu og settu' þig niður, drengur minn! Þér er svo heitt. Eg verð að tala dálítið við þig,” mælti afi. Jörundur settist niður á trébekkinn hjá afa sínum. “Sjáðu nú, Jörundur, hve tunglið er fagurt þarna uppi. Svona var það og leit niður til okkar kvöldið minnilega fyrir 8 árum, þegar eg bar þig hingað heim á bakinu' eftir að er hann pabbi þinn dó. Eg gleymi því aldrei, þegar þú komst í fyrsta sinni inn í stofuna mína. En nú hefi eg nokkuð, sem eg verð að segja þér, en eg tek það svo ósköp nærri mér; það snertir okkur báða. En fyrst skulum við syngja einn af gömlu sálmunum okkar, þú veizt eg hefi svo miklar mætur á þeim.” “Á eg ekki að sækja gígjuna mína, afi minn?” spurði Jörundur. “Mér finst söngurinn láta þá svo miklu betur í eyrum, þegar eg slæ gígjuna samtímis.” “Jú, sæktu hana bara, en'komdu fljótt aftur,” svaraði gamli maðurinn. Drengurinn hljóp af stað og kom aftur að vörmu spori og settist við hliðina á afa sínum. Gígjan var annars fágætt hljóðfæri þar í sveit; hún hlaut að vera flutt þangað frá öðrum löndum. Jörundur sló hana dável, enda þótt sláttur hans væri ekki eftir öllum listarinnar reglum. Afi söng undir með djúpri og sterkri bassarödd og var auðvitað dálítið skjálf- raddaður orðinn, og Jörundur söng líka með hljóm- skærri röddu og sló strengina. Og svona sungu þeir tvo sálma frá upphafi til enda. “En hvers vegna erum við að syngja þessa sálma, afi minn?” spurði Jöfundur. “Þú sagðir áð- an, að þú ætlaðir að segja mér eitthvað sem snerti okkur báða.” “Það á svo að vera,” svaraði Lúkas. “Það er einmitt svo áríðandi, þegar dugur og djörfung ætl- ar að rýma fyrir sorginni, að fylla hjartað fögnuði og trúnað^rtrausti með því að syngja. Þú mátt trúa mér til þess, að söngurinn hefir hjálpað mér í gegnum margar þrautir. Við skulum syngja meira.” ÍOg það gerðu þeir. Þegar söngnum var lokið, þá var Jörundur ekki seinn á sér að spyrja: “Viltu segja mér, afi minn, hvernig á því stend- ur, að þú syngur við svo mörg tækifæri? Það er svo skemtilegt að heyra þig segja frá.” “Það var nú eiginlega dálítið annað, sem eg ætlaðj að tala um. En fyrst þér er svo ant um að vita það, þá skal eg segja þér það.” Það var auðfundið á öllu, að gamli maðurinn vildi draga það sem mest á langinn að segja frá því, sem honum lá nú eiginlega rikast á hjarta. “Það var víst eitthvað fyrir 9 árum, eða ári fyr en eg bar þig hingað heim,” tók hann loks til máls. “Eg var á heimleið ofan úr fjöllunum og átti leið yfir skriðjökul og bjóst ekki við neinni hættu; á jöklinum lá nýfallinn snjór; hann hafði fallið daginn áður, og þegar nýfallinn snjór liggur á skriðjökli, þá er betra að fara varlega, því þar sannast hið fornkveðna, að “hægra er að tala um tólf jökla, en gang einn”.— Þegar minst varði brast fönnin undan fótum mér og eg steyptist niður í jök- ulsprungu svo djúpa, að mér var ómögulegt að kom- ast upp af eigin ramleik. Hvað átti eg til bragðs að taka? Fyrst kallaði eg hvað eftir annað í þeirri von, að einhver kynni að heyra til mín, en það kom fyrir ekki. Þá sagði eg við sjálfan mig: “Þú átt að syngja; það verður hár og óslitinn hljómur. Komi þá einhver í grend við þig, þá fer hann að grenslast eftir, hvaðan þessi söngur komi.” Og svo fór eg að syngja einn af þessum mörgu, gömlu sálmum, sem eg kann. Við þetta óx mér svo hugur, að mig fór að langa til að syngja enn meira; og nú söng eg hærra en áður, því að fyrst var eg svo hug- deigur, að eg gat ekki tekið á þeim hljóðum, sem eg hafði til, 'en nú söng eg af öilu' megni og fullri djörfung. Þá heyri eg mannamál, uppi yfir mér, sem færist nær og nær, og loks var kaðli kastað niður til mín og einhver kallaði: “Hnýttu kaðlin- um yfir brjóstið undir höndunum!” Eg svaraði: “Já, eg veit, hvernig eg á að að fara. Takið þið bara í!” Og þeir tóku rösklega i og drógu mig upp. Þá segir annar af björgunar- rnönnunum við mig — það voru tveir fylgdarmenn, sem eg þekti svo vel: “Varstu orðinn örvita af ótta, fyrst þú fórst að syngja þarna niðri í gjánni, því að þú máttir þó vera við því búinn, að bráðum væri úti um þig?” “Nei, því fer fjarri. Eg var að syngja sálma og það ætla eg að gera framvegis við mörg önnur tækifæri meðan mér verður lífs auðið, því að söngurinn veitti mér þann kraft og djörfung, sem eg þekti eigi áður, og það var hann, sem dró ykkur hingað og það varð mér til bjargar.” Eg söng einn sálminn til og. mennirnir tóku undir með mér. Þú getur nú víst ekki hugsað þér, hvernig tilfinningarl mínar voru, þegar eg hélt aft- ur áfram ferð minni undir himninum heiðum og víðum og hafði nú traustan grundvöll undir fótum mér. Og við það að minnast nú þessarar dásam- legu' björgunar, hefi eg öðlast að nýju fult traust til föðurhandleiðslu Guðs, og nú hefi eg nóg þrek til að segja þér það, sem þér er brýn þörf að vita. Þegar eg bar þig heim til mín, þá hafði eg nóg þrek til að ferðast um fjöllin og afla mér töluverðs fjár á sumri hverju. Hún Lena gamla, sem’ á hús- ið, gætti þín á meðan eg var fjarverandi, til þess að lækurinn, beljandi og fossandi, hefði' ^ig ekki á burt með sér, því að þú toldir hvergi nema við læk- inn og það var engin leið að halda þér frá honum.” “Eg s'míðaði áðan mylnuhjól, en eg gat ekki fengið það til að snúast eins og þau eiga að snú- ast.,” greip Jöundur fram í. “Já, það er alveg rétt, en það skal snúast. En heyrðu nú hvað eg hefi að segja þér,” sagði þá Lúk- as gamli. “Þegar nokkur ár voru liðin frá þ essu, þá gat eg ekki farið nema hinar styttri ferðir; lang- ferðirnar urðu mér ofvaxnar, og síðustu árin hefi eg varla þolað að fara hinar allra styztu. Og það • hið litla, sem eg hefi dregið saman, er nú á förum; við urðum líka að lifa þá dagana, sem mér innhent- ist ekkert. Lena gamla er líka komin á efri árin og í dag sagði hún mér, að hún gæti nú ekki komist af hjálp- arlaust og þess vegna hefði hún í hyggju að bjóða ungum frænda sínum og konu hans, sem búa niðri í dalnum, upp hingað til sín. Þau taka því bæði feginsamlega; en þá er ekki rúm fyrir okkur í kot- inu og þá sérðu víst, að við megum til að fara. Væri eg nú eins fleygur og fær og í fyrri daga, þá gerði það ekki svo mikið til. En hver vill nú veita mér, gömlum manninum, vinnu? Eg þori ekki einu sinni að fullyrða, við nein'n, að eg geti int nokkurt starf ^ af hendi, svo að við megi una. Eg vonaði með sjálf- um mér, að eg gæti hjálpað gömlu Lenu til að hirða geiturnar og yrkja blettinn í kringum húsið og fengið svo að búa leigulaust í húsinu, þangað til þú værir orðinn svo stálpaður, að þú gætir séð um þig sjálfur. Eg endist ekki lengi úr þessu, svo gam- all sem eg er orðinn.” “Já, en eg get víst þegar unnið fyrir mér sjálf ur, afi minn! Sjáðu bara, eg er næstum því .eins stór og þú,” sagði Jörundur og tylti sér á tá og gerði sig svo langan sem hann gat. “Eg get unnið bæði fyrir mér og þér. Eg ætla að fara undir eins í fyrra málið og leita mér atvinnu. Lena gamla lofar þér víst að búa hérna, þangað til eg er búinn að vinna mér fyrir einhverju kaupi og get komið heim með dálítið af skildfngum. Eg skal víst borga henni fyrir það að lofa þér að vera. Eg er viss um að eg get unnið fyrir kaupi, já, það er eg, afi minn!” Gamli maðurinn lifnaði allur við þessar björtu vonir drengsins litla. “Já, það er rétt. Vertu alt af hughraustur, mistu aldrei trúna og traustið á því, að það geti tekist með Guðs hjálp. Gleymdu.því ekki. Það er ' satt, að þú ert talsvert farinn að togna, enda ertu bráðum orðinn 12 ára. En þegar eg bar þig hing- að, varstu, ofur lítill hnokki á 4. ári. Legðu bara af stað. Lena lofar mér víst að vera hérna fyrst um sinn. Ef þú færð ekkert að gera, þá kemurðu heim, aftur og þá skal eg fara með þér.” “Þegar fólk, sem þekkir mig, veit að eg á ekki annars úrkosti en að ganga svona 'milli manna,” bætti Lúkas gamli við, “þá kennir það í brjósti um mig og lætur mig eitthvað fá að gera, svo að eg geti unnið fyrir því, sem mér er brýnust þörf á að fá.” “Má eg hafa gígjuna mína með mér?” spurði Jörundur. “Þú átt gígjuna, drengur minn, og ef þú vilt hafa hana með þér, þá geturðu það bara”, svaraði afi hans, “en gættu þess, að ‘löng leið gerir litla byrði þunga’; hún er þung að bera hana til lengd- ar, og það gæti farið svo, að þú iðraðist þess, að þú hefðir haft hana með þér.” “Nei, ekki er eg vitund hræddur um það; hún gerir mér engin óþægindi, því að ‘létt er ljúft að bera.’ Og hafi eg hana ekki með mér, þá er eg hræddur um, að mér verði óbærilegt að vera fjarri þér, afi minn.” “Taktu hana þá — hafðu hana um fram alt með þér”, mælti afi og hafði engin orð um það framar. — Hann hugsaði með sjálfum sér, að drengnum kynni að verða huggun að því, að hafa hana með. “Það, er fáránlegt hljóðfæri þetta,” sagði gamli maðurinn og skoðaði gömlu gígjuna í krók og kring. Jörundur var seztur með hana og sló hana hægt og hljóðlega. “Ekkert botna eg í því, hvernig þú get- ur náð þessum hljóðum úr henni. Þú hlýtur að vera fæddur með þeirri list, því að ekkert hefi eg getað kent þér í þá átt. En þegar eg var að syngja og þú varst ekki nema 6 ára, þá var þér hægðarleik- ur að hitta lagið og svo slóst þú gígjuna og söngst sjálfur. Og með hverju árinu, sem leið, tókstu svo skjótum framförum, að mér er það alveg óskilj- anlegt.” “Mér þykir svo vænt um gígjuna, afi minn. Að þér fráteknum, er ekkert, sem eg hefi meiri mætur á”, sagði Jörundur. Nú var tunglið, rautt og tignarlegt, komið hátt á loft; það hlaut að vera komið langt fram yfir venjulegan háttatíma. Afi stóð þá upp. “KomdU| nú, Jörundur; þú getur ekki lagt af stað á morgun, heldur hinn daginn. Það verður tómlegt og einmanalegt hérna, þegar þú ert farinn burt.” “Þú verður að syngja, afi minn, þá glaðnar víst yfir þér aftur,” sagði Jörundur, um leið og hann gekk inn á eftir afa sínum. )Frh.) STÍNA LITLA OG KRUMMI. Stínu litlu þótti vænt um allar skepnur, en eink- um fuglana. Á sumrin, þegar hún var að reka kýrn- ar, fann hún oft fuglshreiður með eggjum í, en hún gætti þess, að snerta þau aldrei, svo að fugl- arnir þyrftu ekki að yfirgefa bústaði sína þess vegna. Skamt þar frá, sem Stína gekk á hverjum morgni þegar hún rak kýrnar, hafði krummi bú- stað sinn í háum hömrum. Þaðan heyrði hún oft í honum krunkið, og stundum sá hún hann koma fljúgandi frá hreiðri sínu og hlamma sér niður á eitthvert holtið rétt hjá sér og krunka mikið, líkast því sem hann væri að biðja hana að gefa sér eitt- hvað handa ungunum sínum. Hún hafði líka oft hugsað um það, en vissi ekki, hvað það ætti helzt að vera, þangað til einu sinni að henni datt snjall- ræði í hug. Pabbi hennar hafði mist hest um sumarið og hausinn af honum lá úti á skemmuvegg. Nú ætlaði hún að biðja pabba sinn að gefa sér hausinn til að færa krumma. Næsta morgun bað hún pabba sinn um haus- inn og varð hann strax við bón hennar. íSvo labbaði Stína af stað á eftir kúnum með feng sinn undir hendinni, en 'hann var svo þungur, að hún varð oft að hvíla sig. — Þegar hún kom í nánd við aðsetur krumma, lagði hún hausinn á eitt holtið og fór svo heim. Hún bjóst við, að næst þegar hún kæmi, yrði krummi búinn að færa ung- um sínum hausinn. En hversu hissa varð hún ekki, þegar hún sá hausinn liggja kyrran á sama stað og alveg ósnertan. Þatmig var hann í marga daga, en alt af aðgætti Stína hann, þegnr hún rak kýrnar. Svo var það einn morgun, að hún var að reka kýrnar að vanda, vondauf um að krummi vildi þiggja krás hennar. En hvað skeður þá^ Þegar hún nálgast holtið, sér hún 'sex hrafna heldur káta, vera að hoppa kringum hausinn. Þar var þá krummi kominn með alla ungana sína. Þá sá Stína ekki eftir, að hún hafði fært þeim hausinn, þó hann hefði verið nokkuð þungur að bera hann. —lÆþkan. Þrándur. LABBAÐI EG UM LYNGMÓ. Labbaði eg um lyngmó, Labbaði eg um lyngmó, litla sté á grastó, aðeins hafði eg ilskó, inn í rist mér flís smó. ISjálf eg um það sár bjó, sviðann, mesta úr dró; hrepti eg verri þraut þó, þótti mér um þau slys nóg, eg steptist o’ní steinþró, á stöllunum mig til blóðs hjó; rekkja var þar mæld mjó mér í þeirri nákró. Hált er oft í haustsjó, hretið yfir mig fönn spjó, sálarvitund varð sljó, vonin mín um lif dó, mun eg hljóta helfró hér I vænni svefnró. Dimma grímu dýr vóg dagur á björtum ský-jó, srauk um loftið ljós plóg, lýsti fögur eygló. Gall við smalans hvelt hó, hvattur rakki snjalt gó. Inst við fjallsins eldstó ill vættur kalt hló. Heyrði eg kveina heiðló hremda valsins ránskló. En stalla hennar á stað fló og stefndi út á rúmsjó. VARÐHUNDURINN. Einu sinni var varðhundur. Hann var bund- inn með hlekkjafesti bak við húsið þar sem hús- bóndi hans átti heima. Þangað komu menn mjög sjaldan.- Nú höfðu menn gleymt aumingja hund- inum alveg svo að hann hafði hvorki fengið þurt né vott í marga daga. “Voff voff!” sagði hann við sjálfan sig. “Það er þungt að þola sult, einkum fyrir mig, sem er hund- inn með hlekkjafesti og get ekki hlaupið um og leit- að mér að beinum eins og margir aðrir hundar. Ef eg hefði ekki snjóinn hérna til| þess að sleikja, þá hlytf eg að vera dauðu úr þorsta. Uppi í húsinu ér nú líklega veizla; það er svo mikill ljósagangur þar. Þeir hafa það notalegt, borð og drekk, en eg verð að svelta, 1 hel. Er þetta fallegt af mönnunum? — Voff, voff! Þetta eru launin fyrir það, að eg hélt þjófum og bófum í burtu frá húsinu. Haldið þlð að eg sé tilfinningarlaus, þó að eg sé hundur? Nei, eg álít, að margur maður gæti lært mikið af góðum hundi. — Eg vildi, að eg hefði nú brauðbita eða þá nokkrar gamlar hnútur. En þarna kémur hann hús- bóndi minn góður. Hann er líklega með eitthvert góðgætið handa< mér.” Hundurinn dinglaði rófunni, ýldi af gleði og flaðraði með mestu ákefð upp um húsbónda sinn. En hann lúbarði hann með staf fyrir það, að hann skyldi hafa veri að gelta og góla svona mikið. Hund- greyið skreið lúpulegur og sorgbitinn inn í tunnu- ræfii, sem hann átti að hafa fyrir skýli. Næsta morgun mundu menn af tilviljun eftir því, að hundurinn hafði ekkert fengið að éta í marga daga. Leifum eftir veizluna daginn áður var safn- að saman í flýti, og húsbóndinn átaldi sjálfan sig fyrir meðferðina á hundinum daginn áður og fór nú sjálfur með matinn, handa honum. ÍHundurinn leit þakklátum augum á húsbónda sinn, sleikti á honum höndina og féll svo að fótum hans. Hann var dauður — dauður af sulti. Þórey Kr. ól. Böðvarsdóttir sendi. I —Æskan. Professional Cards DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medlcal Arts Bldg. Cor, Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Oíflce tlmar: 2_3 Heimili: 776 Victor St. Phone: A-7122 Winnipeg, Manitoba. Vér leggjum sérstaka áherzlu & atS selja metSul eftir forskriftum lækna. Hin bezrtu lyf, sem hægt er aS f&, eru notuS eingöngu. Pegar þér komiS meS forskriftina til vor, megiS þér vera viss um, aS f& rétt þaS sem læknirinn tekur til. COLCLEUGH & CO. Nótre Ilaine and Sherbrooke Phones: N-7658—7650 Vér seljum Giftingaleyfisbréf DR 0. BJORNSON 216-220 Medlcal Arts Bkig Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office timar: 2—3. Heimili: 764 Victor St. Phone: A-7586 Winnipeg, Manitoba. DR. B. H. OLSON 210-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office Hours: 3—5 HeiipUi: 921 Sherburne St. Winnipeg, Manitoba. DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bidg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Stundar augna, eyrna nef og ' kverka sjúkdóma.—Er aS hitta kl. 10-12 f.h. og 2-6 e. h. Heimili: 373 River Ave. Tals.: F-2691 DR. A. BLONDAL 818 Somerset Bldg. Btundar sérstaklega Kvenna og Barna sjúkddma. Er a!5 hiíta fr& kl. 10-12 f. h. og 3—5 e. h. Office Phone: N-6410 Heimiii: 80'6 Victor St. Stmi: A-8180 DR. Kr. J. AUSTMANN 724)4 Sargent Ave. ViStalstlmi: 4.30—6 e.h. Tals. B-6006 Heimlli: 1338 Wolsley Ave. Simi: B-7288. DR. J. OLSON Taimlæknlr 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-3521 Heimili: Tals. Sh. 3217 DR. G. J. SNÆDAL Tannla'knir 614 Somerset Block Cor. Portage Ave og Donald St. Talsími: A-8889 DR. K. J. BACKMAN. Skin Specialist. 404 Avenue Blk., 265 Portage Ave. Office phone A-1091. Hours: 2—6 Munið símanúmerið A 6483 og pantiS meSöl yCar hj& oss.— SendiC pantanir samstundis. Vér afgreiCum íorskriftir meC sam- vizkuseml og vörugæCi eru öyggj- andi, enda höfum vér margra &ra lærdömsrika reynslu aC baki. — Allar tegundir lyfja, vindlar, ís- rjómi, sætindi, ritföng, tóbak o.fl. McBurney’s Drug Store Cor. Arlington og Notre Dame Giftinga- og Jarðarfara- Blóm með litlum fyrirvara BIRCH Blómsaíi 616 Portage Ave. Tals.: B-720 St. John: 2, Ring 3 A. S. BARDAL 848 Sherbrooke St. Selur likkistur og annast um út- farir. AJ’.ur útbúnaCur sá bezti. Enn fremur seíur hann allskonar minnisvarCa og legsteina. Skriíst. Talsími: N-6807 Heimilis Talsíini: J-8302 JOSEPH TAYLOR Ijögtaksmaður Heimatalsfmi: St. John 1844 Skrifstofu-talsími: A-6557 Tekur lögtaki bceði húsaleiguskuldir, veðskuidir og vfxlaskuldir. Afgreiðir alt, sem að lögum lýtur. SKRIFSTOFA 252% MAIN ST. THOMAS H. JOHNSON H. A. BERGMAN ísl. lögfræðtngar. Skrifstofa: Room 811 McArthur Bullding, Portage Ave. P. O. Box 1656 Phones: A-6849 og A-6840 W. J. Lindal. J. H. Lindal B. Stefansson. Islenzkir lögfræðingar. 708-709 Great-West Perm. Bldg. 356 Main St. Tals.: A-4963 Peir hafa einnig skrifstofur aC Lundar, Riverton, Gimli og Piney og eru þar aC hitta & eftirfylgj- and tlmum: Lundar: annan hvern miCvikudag Riverton: Eyrsta fimtudag. Gimll: Fyrsta miCvikudag. Piney: |>riCja föstudag 1 hverjum mánuCi. A. G. EGGERTSSON ísl. lögfræðingur Hefir rétt til að flytja m&l bæCl i Manitoba o* Saskatchewan. Skrlfstofa: Wynyard, Sask. Seinasta m&nudag 1 hverjum m&n- uCi staddur I Churchbridge DR. ELSIE THAYER Foot Specialist Allar tegundir af fótaBjúkdómum, •vo sem likþornum, lœknaðar fljótt og vel. Margra ára æfing. ^lslenzka töluð á lœkningastofunni. Room 27 Steel Block Cor. Carlton & Portage Tals. A%88 A. C. JOHNSON 007 Confederation Llfe Bldg. «, WINNIPEG Annast um fasteigmr minna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyr- irspurnum svarað samstundi*. Srifstofusiml: A-426S Hússfmi: B-SSM J. J. SWANSON & CO. Selur bújarðir. Látið það félag selja fyrir yður. 611 Paris Buildlng, Winnipeg. Phones: A-6349—A-6310 STEFAN SOLVASON TEACHEK of PI.YNO Ste. 17 Emllv Apts. Emily St. Emil Johnson SERVIOE Ki.ixrruic Rafmagns Contractlng — Allt- kyns rafmagsndhöld seld og við þau gert — Bg sel Moffat og McClary Eldavélar og hefi þœr til sýnis d verkstceOi minu. 524 SARGENT AVE. (gamla Johnson’s byggingin viC Young Street, Winnipeg) Verskst. B-1507. Helm. A-7286 Verkst. Tals.: A-8383 Heima Tals.: A-0384 G. L. STEPHENSON PLUMBER Allskonar rafmagnsóhöld, svo straujám, vira, allar tegundlr af glösum og aflvaka (batteries) VERKSTOFA: 676 IIOME ST. Simi: A-4153. fsl. Mynda-stofa. Walter’s Photo Studio Kristín Bjamason, eigandl. 290 PORTAGE Ave., Winnlpeg. Næst blC Lyceum leikhúsiC. Islenzka bakaríið Selur beztu vörur fyrir lægsta verð. Pautanlr afgreiddar bæði fljótt og veL Fjöibreytt úrval. Hrein og lipur viðskiftl. Bjamason Baking Co. 676 SARGENT Ave. Winnipeg. Phone: B-4298 MRS. SWAINSON að 627 SARGENT Ave., Winnlpeg, hefir ávalt fyrirliggjandi úrvals- hirgðir af nýtfzku kMeiihöttum. Hún er cina ísl. konan. sem slfka verzlun rekur f Winnlpeg. lslcnd- ingar, látið Mrs. Swainson njóta vlðsklfta yðar.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.