Lögberg - 06.05.1926, Page 5
LÖGBEBG FIMTUDAGINN,
6. MAÍ 1926.
Bls. 6.
um ættingjum og venslafólki, og
fór strax til Nýja íslands.- Kom
þangað í ágúst-mánuði, og settist
að á Lóni (nú Lóni Beach), rétt
norðah við Gimli bæjarstæði. Þá
var Friðjón, mágur hans, kaup-
maður á Gimli. Á Lóni dvaldi
Friðsteinn í hálft annað ár. Þá,
árið 1881, var Friðjón Friðriks-
son fluttur norður að Möðruvöll-
um við íslendingafljót (þar sem
nú er Eiverton járnbrautar-stöð)
og tekin við umsjón á timbur-
höggi o. s. frv. fyrir sögunar-
mylnu er félag, sem hann var með-
■ -1 ‘ ---------------------------
limur í, var að reisa þar, og flutti
Friðsteinn sál. norður þangað það
ár, og settist fyrst að í mældu
bæjarstæði, er íslendingar alment
nefndu að “Lundi’” á austur-
bakkafljótsins, gagnvart Möðru-
völlum, en sem á mælingabréfinu
nefndist “Riverton”. Vann hann
fyrst um sinn hjá félaginu, en ár-
ið 1883 settist hann á heimilisrétt-
ar-land (nokkuð upp með fljótinu
að norðan verðu), sem nefnist
Fagranes, og bjó þar í 4 ár. Þá
flutti hann ofan að Möðruvöllum
(1887). Var Friðjón Friðriksson
þá fluttur burt þaðan til Selkirk,
en mylnan komin austur yfir vatn;
á Möðruvöllum bjó Friðsteinn sál.
búi sínu í 4 ár, eða þar til 1891,
að hann flutti suðvestur í Argyle
bygðina svo nefndu, keypti land
og bjó þar búi sínu í 8 ár. Þá
(1899) seldi hann jarðir sínar í
Argyle-bygð, keypti Möðruvelli við
íslendingafjót af Sigtryggi Jón-
assyni, sem átt hafði jörðina frá
því fyrsta, flutti þangað og bjó
þar nál. 9 ár. Hinn 29. septem-
ber 1905 misti Friðsteinn sál.
konu sína og festi ekki yndi eftir
það á Möðruvöllum, og flutti þvi’
aftur til Argyle-bygðar árið 1908,
þangað, sem foreldrar hans bjuggu.
En eftir nál. 9 ára dvöl þar í Ar-
gyle-bygð, eða árið 1917, flutti
hann enn á ný að íslendingafljóti.
Þá var járnbrautin komin þangað
fyrir nokkrum árum (1914) og
búið að mæla út bséjarstæði í
Möðruvalla landi í pánd við járn-
brautarstöðina. Þar keypti Frið-
steinn sál. og börn hans — þau er
með honum voru >— nokkrar ekr-
ur, og bjó hann þar með þeim, unz
hann lézt.
Dodds nýrnapillur eru besta
nýrnameðalið. Lækna og gigt þak-
verk, ihjartabilun, þvagteppu og
önnur vei'kindi, sem stafa frá nýr-
unun;. — DO'dd’s Kidney Pills
kosta 50c askjan eða sex öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá öllu’m lyf-
sölum eða frá The Dodd’s Medi-
cine Contpany, Toronto, Canada.
iBjuggu þau eitt ár í Gilhaga í
Vatnsdal, en fluttu hingað vestur
árið 1886 og hafa jafnan búið í
Winnipeg síðan, eða í 40 ár.
Jón Goodman dó að heimili sínu
783 McDermot Ave., Winnipeg, 2.
janúar þ. á. Var heilsa hans mjög
biluð síðustu ár íæfinnar, en rúm-
fastur var hann ekki nema fáa
síðustu dagana. .
Þrjú af börnum þeirra Jóns
Goodman sál. og konu hans? dóu
i æsku, en fimm eru á lífi: Emil
Valdimar, Stengrímur Matthías,
Margrét Anna, Marja Björg, og
Victor , Friðfinnur. #]ru þrjú af
þeim enn heima hjá móður sinni.
öll eru börn þessara hjóna nú-
fullorðin og öll eru þau vel gefin.
Fjögur hálf systkini átti Jón sál.
á lífi. Eru þau: Mrs. Rannveig
Johnson, Pembina, North Dak.;
og þrjú á íslandi: Björn, Benedikt
og Soffía.
Nálega öll árin, sem Jón Good-
man átti heima í Winnipeg, til-
heyrði hann Fyrsta lút. söfnuði
og var hann þar sem annars stað-
ar einlægur og ágætur félagsmað-
ur. Yfir þrjátíu ár tilheyrði hann
söngflokk safnaðarins og stund-
aði hann það rnieð stakri alúð og
reglusemi. Það kom varla fyrir,
að Jón Goodman væri ekki á sín-
um stað' í söngflokknum við guðs-
þjónustur safnaðarins. Sýnir það
meðal annars hans stöku reglu-
semi og trúmensku.
Með Jóni Goodman er til grafar
genginn einn af eldri íslending-
um í Winnipeg. Nýtur maður og
góður drengur, sem mannskaði
var að. Það er ekki að eins kona
og börn, sem sakna hans, heldur
líka fjöldi vina og kunningja, því
hann var að góðu einu kunnur.
H. S. B.
FriÖsteinn Sigurðsson.
Fæddur 19. ágúst 1855.
Dáinn 22. nóv. 1925.
Það var getið um lát Friðsteins
Sigurðssonar að eins með fáum
orðum í Lögbergi í desember-mán-
uði síðastl., og finst mér því rétt
og skylt að skýra nokkru nánar
frá æfiferli hans, bæði vegna þess,
að hann var merkur maður á sinn
hátt, og svo af því, að hann má
telja með frumbyggjum Nýja-
íslands.
Friðsteinn var fæddur á jörð-
inni Harðbak á Melrakkasléttu, í
Norður-Þingeyjarsýslu á íslandi,
hinn 19. ágúst 1855, en lézt að
heimili sínu í Riverton-þorpi,’ í
Fljótsbygð í Nýja íslandi, í Mani-
toba-fylki, 22. nóvember 1925. Var
því liðlega sjötugur, er hann dó.
Jarðarförin fór fram frá heimili
hins látna og kirkju Bræðrasafn-
aðar í Riverton þann 26. s. m.
(nóv. 1925). Hann var jarðaður
í grafreit bygðarinnar og jarðsöng
séra Sigurður Ólafsson á Gimli
hann.
Foreldrar Friðsteins sál. voru
þau sómahjónin Sigurður ISteins-
son, bóndi á áðurnefndri jörð,
Harðbak, Hákonarsonar bónda á
Grjótnesi á Melrakkasléttu, og
Friðný Friðriksdóttir, bónda á
Núpi í Axarfirði í N.-Þingeyjar-
sýslu. En systkini Friðsteins
voru: Guðný Sesselja, ekkja Frið-
jóns Friðrikssonar (er var fyrsti
kaupmaður í Nýja Islandi, en síð-
an kaupmaður 1 Glenboro, Man., í
meir en 20 ár), þjóðkunns manns;
Friðrika Þórhildur, kona séra
Guttorms Vigfússonar prests á
Stöð í Stöðvarfirði, í Suður-Múla-
sýslu á Islandi; Sigvaldi Jakob
(trésmiður), nú bóndi í grend við
Riverton, Man.; Vilberg, lézt ár-
ið 1885; Sigríður, kona Björns S.
Dahlmans, til héimilis í Riverton;
og Stefanía, ógift, býr með bróð-
urbörnum sínum í Riverton.
Árið 1875 giftist Friðsteinn sál.
Sesselju Guðnýju Sigurbjörns-
dóttur, bónda á Sjóarlandi í Þist-
ilfirði. Þeim varð fimm barna
auðið, og eru þau: Sigurður (ó-
giftur), til heimilis i Riverton;
IMan.; Klara, einnig til heimilis í
Riverton, Man., ('hún giftist ensku
mælandi manni, og eignaðist með
honum piltbarn, Cecil Clarence,
sem er á lífi, en mann sinn misti
hún eftir tæplega eins árs sam-
búð); Vilberg Hermann, er dó
ungbarn; Vilberg Hermann, er lézt
(fulltíða) hinn 1. sept. 1925; Árni
(ógiftur) til heimilis í Riverton.
Fyrstu árin eftir að Friðsteinn
sál. giftist bjó hann með foreldr-
um sínum að Harðbak, en árið
1879 flutti hann til Cánada með
konu sína og eitt barn, ásamt ýms-
FLINT JUNIOR BiLLINN
Bezti Six Cylinder bíllinn er nokkru sinni þektist,
Flint Junior bíllinn, er annað og meira
en “rétt annar bíll,” meira en smærri
fyrirmynd, til að fullkomna þá bíltegund.
J?að er nýr bíll, nýr að útliti, nýr að
gerð og nýr í öllum
dráttum, er miða að
því að veita full-
komna bílaþ jónustu.
The Flint Junior bíllinn, smærri og létt-
ari tegund, en Flint “Eighty” eða Flint
“Sixty”, er í öllum greinum jafn ná-.
kvæmlega og vandvirknislega smíðaður
og hinar stærri tegundir.
Flint Six Junior, er rúmgóður og þægi-
legur bíll, fallegur útlits og leysir hlut-
verk sitt fult eins vel af hendi og bílar,
sem kosta mörgum
hundruðum dollurum
meira.
Hér er tækifærið til
að kaupa Flint gæðin í bíl á því verði,
sem aldrei áður var hugsanlegt talið.
Skoðið hann—akið í honum— sann-
færist!
UNIVERSAL M0T0RS Limited
A 1995
293 Garry St.
Komið og Skoðið Hinn Nýja Flint
Imperial Oil Ltd.
TILKYNNIR
MARVELUBE MOTOR OLIU
MARVELUBE er ekki endurbœtt gömul olía, heldur stórkostlega merkileg ný teg-
und. Framleiðsla hennar felur í sér nýja aðferð í olíuhreinsjun.
MARVELUBE skarar fram úr öllum eldri tegundum, sem eiga þóttu engan sinn líka, að lubricating
gæðum, skapar nýja, fullkomna fyrirmynd, með eigin sérkennum, Meðal margra kosta
má nefna þann, hve framúrskarandi vel hún hefir reynst til að verjaát Carbon deposit*
í motor yðar.
M ARVJELUBE er búin til í sex gerðum, þar á meðal Marvelube “F“, sérstök tegund fyrir Fordbíla. Allar
tegundirnar eru góðar fyrir skemtibíl yðar eða flutningabíl,
Keyrið inn að einni af eftirgreindum Service Stations, og fyllið
“crank case“ yðar með hinni réttu tegund af Marvelube Motor
Olíu. Vérlátumyður sjálfa dæma um gildi Kennar.
Chris. Goodman’s Service Station
, Gorner Fort & Graham
Reds Service Station No. 1, G. Breckman
Corner Maryland & Sargent
Reds Service Station No. 2, T. Thordarson
Corner Notre Dame & Home
Friðsteinn sál. var góður smið-
ur, einkum á tré, og stundaði þá
iðn annað veifið. Einkum smið-
aði hann báta, þegar hann átti
heima við íslendingafljót, og voru
þeir vandaðir og vel gerðir að öllu
leyti. Einnig rak hann dálitla
verzlun í nokkur ár á Möðr'uvöll-
um. En aðal starf og atvinna
hans um dagana var samt land-
búnaður.
Hann var ekkert gefinn fyrir
að trana sér fram í neinum fé-
lagsskap, en þó var hann meðlim-
ur Bræðrasafnaðar áður hann
flutti til Argyle-bygðar í síðara
skiftið og var í safnaðarnefnd-
inni. Hann var maður stiltur og
góðlyndur, ráðvandur í öllu, eins
og hann átti kyn tfl, vinfastur og
vel metinn af öllum, er honum
kyntust.
Riverton, Man., í apríl 1926.
S. S.
Norðurlands blöðin á íslandi
eru vinsamlega beðin að geta um
þessa dánarfregn.
Varið yður á fagurgala.
Mér datt setning þessi í hug, er
|!g nýlega las tvær eftirtektarverð-
ar fréttir í blöðunum. önnur
fréttin skýrir frá því, að Bolshe-
vika stjórnin á Rússlandi hafi
gefið hátt á annað hundrað föng-
um lausn, er hún kollvarpaði
keisarastjórninni gömlu, en að nú
hafi þessi nýjá stjórn sent aftur
nálega hundrað þúsund fanga til
Síberíu, og enn fremur tekið aft-
ur upp hið alræmdasta fangelsi á
Rússlandi, sem keisarastjórnin
hafði fyrir nokkru lagt.niður, og
í þessu fangelsi sitji nú minst
þrjú þúsund manns.
Hin fréttin, sem lesa má í
“Family Herald and Weekly Star”
7. apríl þ.á., var um það, að Bol-
shevika stjórnin hafi nýlega tekið
föst þrjú hundruð börn, sem
vensluð hafi verið sakamanna
samdráttum, og sent þessi börn í
köldum járnbrautarvögnum til
Voronesh, en er þangað hafi ver-
ið komið, hafi börnin öll verið
frosin í hel.
Það fer ósjálfrátt hrollur um
mann er maður les þvílíkar frétt-
ir um ástandið í þes'sum heimi,
sem margir segja að sé að verða
svo mentaður og góður. Allir
kannast .eitthvað við fagurgalann
og feitu loforðin, sem erií beita
nýjustu pólitisku og andlegu
stefna tuttugustu aldarinnar. En
hér fer sem fyrri-daginn, að “af
ávöxtunum” má þekkja þessar
stefnur og hreyfingar. Þeir sem
frakkastir eru í að lofa jafnrétti,
mannúð, frjálsræði og kærleika,
beita mestu grimd, ójöfnuði og
þrælkun.
Þó íslenzka þjóðin sé ekki stór
á meðal þjóða heimsins, þá á þessi
viðvörun mikið erindi til hennar:
“Varið yður á fagurgala”. Því
þjóð vorri býðst nóg af honum.
Það eru bæði andlegar og póli-
tiskar stefnur á meðal hennar,
sem lofa öllu fögru. Andlegar
stefnur, sem tala mikið um frjáls-
ræði, vísindi og bróðurþel, sem
kalla alla heimskingja og bók-
stafstrúarmenn eða þræla, sem
ekki gleypa ímyndaða frelsið og
feitu loforðin athugunarlaust. En
þær þekkjast á ávöxtunum. Eng-
ir beita meiri ójöfnuði í dómum,
en einmitt sumir áhangendur
þessara stefna. Þeir ómaka sig
mikið til þess að geta snapað
saman allan hugsanlegan óhróður
um andstæðinga sína, en gera á-
trúnaðargoð sín að reglulegum
gullkálfum eða óskeikulum páfum.
Þar sézt hreinskilnin og trú
þeirra á sanngirni, samúð og jafn-
rétti. Kæmust þeir til valda, er
þeim vel trúandi til að feta í fót-
spor Bolshevika stjórnarinnar á
Rússlandi. Varið yður á fagur-',
gala.
Pétur Sigurðsson.
þess er kostur. Lala To<ld, Rabert
McKim <>g BJ’ly Butts leika J)ar
einnig. Myndin er gerS cftir sögu
1‘rank M. Clifton. Þessi leikur en
áreiðanlega nijög skemtilegur og
spennandi.
WONDERLAND
Hvar sem maður er settur í mann-
félaginu, þá ein mannlegar tilfinn-
ingar jafnan sjálfum sér líkar,
eins og sjá má af kvikmyndinni
Lady of the night,” sem sýnd verð-
ur á Wondei lantl íeikhúsinu í næstu
viku. Þar hefir hepnast að sýna í
áhrifamikilli kvikmynd þaö sem
hæst er og lægst í félagsíífinu. Þar
er sýnd stúlka, sem stertdur.á efstu
tröppu í virðirfgarstiga mannfélags-
ins og önnur, sem er svo að segja
í neðstu tröppunni. En báðar verða
þær ástfangnar af sama manni. A%
hér sé um verulega ást að ræða,
sést bezt Jægar til þess kemur að
J>ær verða að kjósa um það sem
Jæim er þægilegt og þær helzt vilja
og hitt, sem þær finna að skyldan
býður. Báðar kjósa þær að gera
skyldu sína. Þar eru sýndar and-
stæður hins fágaða samkvæmislífs
með s-inum dönsum og veizlum og
líf fátæku stulkunnar í lélegu hreysi
einhversstaðar í úthverfum stór-
borganna. Aldrei hefir Norma
Shearer betur gert heldur en Jægar
hún leikur bæði Molly, dóttur af-
brotamannsins og Florence. dóttur
dómarans. Þeir sem meS henni
leika gera einnig aðdáanlega vel
og eru Jæirra á meðal Malcolm Mc
Gregor, sem er ungur hugvitsmað-
ur, George K. Arthur. Fred Esmel-
ton. Dale Fuller og Betty Morris-
sey. Það er ekki létt hlutverk, sem
Miss Shearer hefir, Jægar hún leik-
ur þessar tvær stúlkur. Hún verður
að brevta sér algerlega, ]>ví þær eru
alveg ólikar. Sagt er að þetta sé
besta myndin af þremur, sem Miss
Shearer hefir leikið í. Hinar eru
“Broadway”, “After Dark” og
“Tbe Snob.”
Alveg óviðjafnanlegur
drykkur
Sökum þess hve efni og útbúnaður er
fullkominn.
Islenzk síld á sýningu í Prag.
Björn ólafsson skrifar Mbl. frá
Prag, að þar sé mikil Vörusýning
um þessar mundir. Fyrsta sýn-
ingardaginn voru 65 þús. sýning-
argestir.
Hefir Björn sett þar upp sýn-
ingu á íslenzkri síld. Blakta ís-
lenzkir fánar þar við hún, og vek-
ur hvorttveggja eftirtekt, ísl. fán-
arnir og ísl. síldin, því hvort-
tveggja er sjaldséð þar syðra. —
Leiðarvísir um notkun síldarlnn-
ar er útbýtt meðal gestaftna. Er
hann á tveim tungum: þýpku og
tjekkisku, því þar eru þau tvö mál
töluð jöfnum höndum.
Kaldara segir Björn vera 1
Prag en hann á að venjast i
Reykjavík um þetta leyti árs. —
Mbl.
7rmm
PROVINCE.
Fjíbrugur gnmanjeikur, míklar
hættur og hvernig tekst að bjargast
úr J>eim, snarræði og fimleiki, sem
Fred Thomson og Silver King sýna,
fljótar hreyfingar og mikið hláturs-
efni, er það sem einkennir leikinn.
“The Tough Guy” og gerir hann að
einni hinni beztu kveldskemtun, sem
kostur hefir verið á nú lengi. Þessi
leikur verður sýndur á Province
leikhúsinu næstu viku og er enginn
efi að hann vekur mikla ánægju þvi
mörgum þykir mikið til J>ess koma
að sjá Thomson, æfinlega, Jægar
Kievel Brewing Co. Limited
St. Bonlface
Phones: N1178
N1179