Lögberg - 26.08.1926, Blaðsíða 3

Lögberg - 26.08.1926, Blaðsíða 3
LÖGBEltG FEMTUDtAGINN, i Bls. 3. 26. AGÚST 1926. ju^jj^^i^^SHSESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESHSESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESESHSESESESESESESESESESESESESESHSESESESESESESHSESESESí:. T SOLSKIN gp i^pcr73r;?L,7iq7i[r?q7iq7i 5? 57157157357] gpgpg?535HSHS dS c^]HSHS5555HSiibH5H5H5557S?S?SHSHSHS55HSHl:iiSHSHSHStibHsHSci5H5H5H5HSHSH555E5?S?SHSHSHSHSES5SHS5SdSH5HSE555HS5S?^HSHS555SHSHSHS5.^HSi Silfurskálin hennar Úndínu. Rós n-oftkur við Hasselvíkina sagði þessa sögu: “Einu sinni var lítil stiílka, sem hét litla Lísa. Pabbi hennar og mamma voru dáin, og hún var hjá honum blinda afa sínum, í lélegum kofa úti í Engjahólmanum, fyrir utan Elgeyna hjá Eikamesþorpinu. Guð veit, af hverju þau lifðu á vetrum. Ríeyndar reið hann afi net fyrir fólk og fékk aura fyrir, og litla Lísa bjó til vendí og seldi þá í borginni, en það hrökk nú ekki mikið, og þó bjuggu þau eigi við skort, því að þau trevstu Guði, sem er faðir allra fátækra og föðurlausra á jörðinni. Þau áttu svolítinn bát og f jögur net, og með þau fóru þau út á sjó til að fiska á sumrin. En þegar berin fóru að spretta í skógarbrekkunum, þá sat gamli maðurinn í bátnum símim með net ■ stjakann sinn í hendinni, á meðan Lísa litla fór upp í skóginn til að tína ber. Einhvem dag í glaða sólskini og hita, er þau höfðu róið lengra út en þau voru vön, varð afi mjög þyrstur og sagði við Lísu litlu: “Taktu nú leirskálina og sæktu vatn handa mér í einhyern læk, því að eg get ekki dmkkið fcjó, af því að hann er svo saltur.” “Það skal eg gera,” sagði Lísa litla, því að hún var alt«af væn og góð telpa. Og svo tók hún skálina, og hoppaði með hana uppá land. Þar var ósköp eyðilegt og harðneskjulegt land, klettar einir og svo dimmur skógur á milli. Lísa litla stökk yfir kletta og klungur, hóla og hæðir, þangað til hún varð alveg kaf- rjóð af hita, en fann engan læk, því að þá var þurkasumar og vatnið hafði þomað upp. Loks- ins varð hún þreytt og fór að hægja á sér. Þegar hún var nú að ganga undir dimmu furu- trjánum, þá fór liún að hugsa svo margar und- arlegar hugsanir, sem henni höfðu aldrei dott- ið áður í hug. Henni sýndist þessi hávöxnu tré horfa svo undarlega á sig, og henni fanst hún vera svo alein og einman-a á guðs grænni jörð. Eitthvað þaut í greinunum uppi yfir benni, og hún hevrði ráma rödd, sem sagði við hana: “Hví ertu svona einmana, Lísa litla? Hvar er unnustirm þinn?” Lísa leit upp fyrir sig, en sá engan, nema fugl, sem sat uppi á grein á gamalli björk og vaggað sér þar. Þá varð hún hrædd og fór að hlaupa, en hrasaði í sama bili um tréstofn, — þar lá leirskálin hennar öll í molum. Hvað var nú til bragðs að taka? Afi sat enn í bátnum, og í hvað átti nú Lísa litla að sækja vatnið, til að svala honum með? Lísa litla settist á tréstubbinn og fór að gráta. Þá heyrði hún aftur einhverja óljósa rödd milli greinanna, sem sagði: “Hví ertu svona einmana, Lísa litla, og hvar er unnust- inp þinn?” Lísa sá engan nema íkoma, sem gægðist fram á milli tveggja greina á gömlu grenitré. Þetta gramdist henni. Hvað varðaði íkornann um það, hvort hún var ein í skóginum eða ekkif Hún sneri því að honum bakinu og gekk í aðra átt. En liún hafði ekki farið langt, áður en hún heyrði í þriðja sinn sömu spuminguna: “Hví ertu svona einstæðingsleg, Lísa litla? Hvar er unnustinn þinn?” —Nú var það fallegur ókunnur fugl, með gulllitaða vængi, sem spurði að þessu, um leið og hann flaug af stað beint upp í himinblám- ann. ' “Hvaða fugl er þetta?” sagði Lísa litla, “hann afi situr í bátnum og bíður eftir vatn- inu, og eg hefi brotið þá einu skál, sem við eigum’P “Já, en hvar er unnustinn þinn?” spurði gullfuglinn úti í himinblámanum. “En hvað hann getur verið dæmalaust hehpskur,” sagði Lísa, litla. “Veit hann ekki, að mér þykir vænna um hann afa minn, en, nokkum annan mann á jörðinni? Og samt er hann að spvrja um unnustann minn!” Lísu litlu þótti þetta óþarfar spumingar, og gekk nú aftur ofan að ströndinni til að leita að afa sínum. En fékk hún nú fremur að vera í friði fyrir það? Nei, það var öðru nær. Nú fór alt að lifna við í kringum hana: trén, runn- ar og steinar, jafnvel gamlir trjáfauskar og krækiberjalvngið undir fótunum á henni fóm að tauta og tala, og mosavöxnu klettarnir tóku undir -og andvörpuðu: “Lísa litla! Lísa litla! hvar er unnustinn þinn?” Nú var Lísu litlu nógboðið, sem von var. Hún tók til fótanna, sem mest hún mátti, og kallaði stórreið í allar áttir: “Nei, hlustið þið á, hvað skógurinn er vitlaus, sko, hvað klettamir láta kjánalega! En sá hávaði!” Loksins gomst hún til afa síns í bátnum. “Ó, livað það er leiðinlegt, afi minn, eg hefi brotið skálina, svo að þú færð ekkert vatn, afi minn.” “ Já, svona er það, þegar maður sendir böm. En hví hefir þú verið svo lengi, telpan þín?” Lísa litla sagði nú frá hvað hún hefði heyrt í skóginum. “Og kærðu þig ekki um það,” sagði afi, “það er bara þytur í trjánum, þegar grein- arnar slást saman, og það veit á það, að á morg- un fáum við regn. IJnnusti! Skárra^r það nú bullið!” “ Já það segi eg með,” sagði Lísa, “en eg á þó einn unnusta.” “Hvað ætli þú eigir unnusta!” “ Jú, því þú ert unnusti minn.” “Jæja, sleppum nú því. Taktu nú tómu smjöröskjurnar okkar, og revndu að fara aftur og sækja mér ögn af vatni, Eg er svo skrambi þyrstur. ’y Lísa litla tók smjöröskjurnar og fór aftur af stað. En nú var alt svo þögult og hljótt, nærri því of hljótt. “Eg vildi eg1 heyrði lói> kvak eða spóavell,” sagði Lísa við sjálfa sig, en fuglarnir steinþögðu. En svo kom Lísa að hundarósarunna, þar vora fyrstu rósimar að blómgast. En hvað þær ilmuðu undarlega vel. Lísa braut blómið af leggnum, til þess að færa afa það. Þá sá hún, að eitthvað var skrif- að innan í blöðin. Hún fór nú að stafa saman þessi strik og rúnir, og sjá! það var sama spum- ingin: “Hví ertu' svona einmana, Lísa litla? Hvar er unnustinn þiún?’ “Það er svo, ertu nú líka á ferðinni með vitleysuna þá araa?” sagði Lísa litla og fleygði rósinni burt. “Eg get ekki skilið, hvað gengur að s'kóginum. vEtli hann hafi ekki neitt þarf- ara að hugsa um?” Hún gekk nú enn lengra áfram, en fann enga lind eða læk. En í staðinn fann hún það, sems hún leitaði ekki að, alla kletta og ranna krotaða þessari leiðinlegu spurningu: “Hví ertu svona einmana, Lísa litla? Hvar er unnustinn þinn?” “Nei, nú er skógurinn alveg genginn af göfl- unum,” sagði hún, “eg held, að. eg verði að kreista aftur augun, til að sjá þetta ekki.” Það gerði hún líka, en hún varð að opna þau svolít- ið, til þess að hrasa ekki um þúfur og steina. Loks komst hún ofan að ströndinni, án þess að hafa fundið nokkurt vatn. En þegar hún ætl- aði að ganga ofan klöppina, niður að bátnum, þá tók hún eftir djúpri klettasprungu eða gjá. sem lá í snarbrettu ofan að sjó, og í gjánni var stöðupollur, sem ekki hafði þornað upp af því að hann lá í skugganum. * Nú varð Lísa litla fegin og klifraði ofan bergið niður í gjána, til að ná vatninu. En þeg- ar hún teygði ,sig niður með öskjurnar, til að sökkva þeim í vatnið, þá var hún nærri dottin á höfuðið niður, og þá misti hún þær úr hendinni, og þær ultu ofan í gjána og ofan í sjó. Nú var úti um þær. “'Sko til, nú er eg jafnnær og áður, í hverju skyldi eg nú eiga að sækja vatnið handa afa?” sagði Lísa litla og fór að gráta, svo að tárin hrandu eins og krækiber ofan í sjóinn. Þegar hún hafði grátið stundarkom hugsaði húnmeðsér: “Til hvers ætli það. sé, að sitja hér og skæla, og láta svo afa bíða "dauðþyrstan í bátnum eftir vatni? Eg skal búa mér til hrífu úr næfrum og sækja með henni vatn úr gjánni.” Hún ibeið ekki boðanna, heldur bjó sér til næfrahrífu og fór að klifra ofan í gjána. Þá varð henni litið ofan í sjóinn fyrir neðan, og hún sá glitra á eitthvað þar. Lísa litla varð forvitin, braut upp um sig pilsins, óð út í flæðar- málið og rétti höndina niður að þessu. Það lá nokuð djúpt, ^n bráðum náði hún því, og rétti upp höndina með þessum spegilfara lilut: Það var ljómandi silfurskál, spegilfögur. — 'Sækonungurinn sat í sígrænu höllinni sinni á mararbotni, og öll hans hirð stóð hljóð alt í kring um hann. Konungurinn var þungbúinn á svipinn; hann saknaði yngstu dóttur sinnar, hennar Undínu litlu, sem hann hafði sent burt til að tína kóralla við strendur Evjaálfunnar. Undína hafði eftir vana sínum leikið sér við hinar fjarlægu strendur og gert sér fótspor í hvíta sandinum. Sonur skógarkóngsins, sem var unnusti hennar, hafði fleygt rósum og ýms- um öðram blómum ofan í öldumar til hennar, 0g Undína hafði tekið að slá hörpuna sína. — Þannig hafði tíminn liðið. tfndína hafði fleygt til kongsonarins litla skipinu, sem hún átti að tína kórallana í, og hann hélt því fyrir henni. Þegar Undína saknaði skipsins síns, þá stakk húri sér í kaf ofan í sjóinn, til þess að sækja sér annað nýtt aftur heim í konungshöllina. En nú hafði eitt sætröllið legið í eyram kongsins og sagt við hann: “Hún Undína hef- ir vanrækt boð konungs og gleymt sér lijá unn- usta sínum, og gefið honum snekkjuna sína.” Þá varð sækongurinn reiður, því að ófriður var milli hans og skógarkongsins. En hann lét ekki á sér finna, og sagði við tröllið: * ‘ Sæktu silf- urskálina mína.” Tröllið gerði svo, en henni fylgdi sií náttúra, að hver sem drakk úr henni, gleymdi því, sem lionum var kærast í heimin- um. Undína synti nú eins og eins og silfurbjört alda heim í grænu höllina og hneigði sig fyrir föður sínum. “Hvar hefir þú verið?” svaraði kongurinn. “Eg hefi verið að leika mér í fjörunni og kast- að hörpunni í blómin. En sonur skógarkongs- ins tók snekkjuna mína, og því er eg hér komin til að fá mér aðra n#ja.” “ óhlýðna :barn, ” sagði konungurinn, “í þetta sinn verður1 það að vera, en gerðu þetta ekki aftur. Sko, taktu hérna silfurskálina mína í staðinn fyrir snekkjuna, og sæktu mér hreint og kalt Vvatn norðan úr löndum í hana, því að mér leiðist að drekka þetta salta sjóvatn.” En með sjálfum sér hugsaði kongurinn: “Hún dóttir mín skal drekka úr skálinni og gleyma unga kongssyninum, því að skálinni fylgir sii náttúra, að allir, sem drekka úr henni, gleyma því, sem þeim þykir vænst um.” Undína tók silfurskálina og synti með hana yfir hið spegilslétta haf, þangað til hún fann uppsprettu við Elgeyna; þar fylti hún skálina af köldu vatni, bar það síðan að rauðu vömnum sínum og drakk af því, því að hún hafði líka orðið þyrst í sumarhitanum. En í sama bili gleymdi hún því, sem henni var kærast í ver- öldinni, og það var kongssonurinn ungi. En hann var orðinn svo samvaxinn öllu því, er hún elskaði, að hún í sama bili gleymdi líka öllu öðru, og barst hugsunarlaust burt með þús- undum annara hugsunarlausra aldna, sem velt- st hver um aðra í hinu ómælanda hafi. En nú lá silfurskálin hennar Undínu kyr á snjóhvítum sandinum við ströndina ; Elgeynni, og þar fann Lísa litla hana, þegar hún var að sækja vatn handa honum afa sínum. Lísa litla skoðaði skálina alveg hissa í krók og kring, og skildi ekkert annað, en að hún væri undarlega falleg. “Það verður heldur skrítið, að sækja vatn handa afa í slíkri skál,” hugsaði hún með sjálfri sér. Nú fylti hún skálina undir eins af vatni úr klettagjánni. Ó, en hvað þetta vatn var tært! Það var alveg eins og spegilfagurt silfur! Lísa litla gat ekki staðist J)að að bragða á því, og drakk .... En í sama bili fanst henni blóðið frjósa í æðum sínum. H'enni varð innanbrjósts svo undarlega svalt og hljótt. Allar þessar kyn- legu hugsanir, sem nýlega höfðu sveimað í kring í litla, bamslega höfðinu hennar, mistu alveg flugið, eins og vængbpotnir fuglar. Þarna sat Lísa lftla eins og í draumi, án þess að muna eftir mglinu í skúginum eða afa sínum í bátn- um, af því að hann var það, sem henni þótti vænst um í heiminum. Hvað lengi hún sat þarna, vita menn ekki, en það hefir víst verið lengi, þ\n að á þeim tíma óx hún upp og varð að stórri stúlku. Fuglam- ir í skóginum kvökuðu eins og áður, trén töluðu ibæði bull og ekki bull, en Lísa litla heyrði það ekki. Hvað kærir maður sig líka um, hvort það, sem heyrist, er óhyggilegt eða skynsamlegt, þegar maður á engan í heiminum, sem manni þyk'ir vænt um? Margir reru fram hjá og fengu að drekka úr silfurskálinni hennar Undínu, því að eitthvað þurfti hún þó að gera. Hví skýldi hún annars sitja þarna? Einu sinni kom þangað fiskisölu- kerling, sem grátið hafði í tuttugu ár, síðan maðurinn hennar druknaði. Hún drakk drjúg- an sopa úr silfurskál Undínu og hætti þá að gráta. 1 annað skifti kom þangað hégómagjörn- stúlka, sem aldrei hugsaði um annað en kemba fallega hárið sitt, en þegar hún hafði dmkkið,, misti hún kambinn í sjóinn. Þangað kom líka einu sinni herramaður, sem veiddi fisk á færi. Honum þótti allra vænst um sjálfan sig af öll- um í heiminum, en þegar hann hafði drakkið úr skáinni, þá kom honum til hugar,, að hann hefði lifað alla æfi of góðu lífi, en móðir sín- og systir byggju við sult og seyru. ó, hversu margir þyrftu að drbkka úr silfurskálinni hennar Und- ínu alveg til botns, til þess að æra að gleyma sjálfum sér. Verst var það um liann afa, því að hann var blindur. Hann sat líka enn þá í bátnum og beið eftir vatninu, sem aldrei kom til að slökkva þorsta has. Einhvern dag kom ungur sjómaður að ströndinni í Engeynni, til þess að högg\ra sér við í árar. Hann sá litlu Lísu sitja aleina á klöpp- inni, og honum datt í liug, að henda gaman að henni, og sagði: “Hví situr þú svona einmana, Lísa litla? Hvar er unnustinn þinn?” Lísa leit við, og þekti sjómanninn vel, því að þau höfðu leikið sér saman, þegar þau Voru lít- il. Hún leit á hann, og hann leit á hana, og í sama bili fór allur skógurinn að kvaka; öll tré og greinar, blöð og runnar, klettar og þúfur, voru aftur krotuð sömu óskiljanlegu orðunum, er áður höfðn gramið Lísu litlu svo mjög, þeg- ar hún var að leita að uppsprettunni í Elg- eynni. “Nei, en nú situr afi og bíður mín í bátn- um,” sagði Lísa litla og hoppaði sýo af stað yfir stokka og steina í þvílíkum flýti, að helm- ingurinn af vatninu skvettist úr silfurskálinni. “Nei, sko hana!” sagði sjómaðurinn, og hjó með öxinni sinni í stein, svo að stórt stykki brotnaði xír egginni. Lísa litla hljóp sem fætur toguðu ofan að bátnum. Og það fór, sem hana grunaði, þar sat afi í bátnum enn þá. “Hvar hefir þvi verið allan þennan tíma?” sagði hann byrstur. Lísa litla sagði honum nú alla söguna, og hvernig hún fann silfurskálina. En um sjó- manninn sagði hún ekki eitt orð, því að honum hafði hún alveg gleymt. Og í sama bili mundi hún eftir afa sínum. “Nú skaltu fá að drekka, afi,” sagði hún, og hélt silfurskálinni upp að vörunum á gamla manninum. Afi drakk úr skálinni og gleymdi, eins og aðrir, því, sem honum var kærast í heiminum, en það var sjónin hans. Nií fanst honum það vera eðlilegt, að hann væri blindur, og mundi ekki lengur eftir því, að hann hefði nokkurn tíma getað séð sólina, tunglið, stjörn- urnar, bláa sjóinn og grænan skóginn. (Framh.) BARUR. Er gengur þii í gleðiljósi björtu og gæfan brosir hlýtt við þér, annar böli og sorgarmyrkri svörtu, á sama tíma háður er. Þegar hlærðu, annar er að gráta, og yfir honum grúfir nótt. En, ef til vill, þín lundin lét-ta og káta, er lítil bára, en hnígur skjótt, og ber þig hræddai), ofan öldudalinn; þar opnar djiipsins faðmur sig. Þinn bátur sekkur, illri ágjöf falinn, en aðrir hlæja í kring um þig. Mun, að lífið alt í öldum gengur, og upp og niður flev þitt berst. Og þó þú fljótir öðrum eitthvað lengur, á endanum þinn bátur — ferst! —Dagblaðið. Grétar 0. Fells. \ Professional Caras DR. B. J. BRANDSON S16-2Í0 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sta. Phone: A-1834 Ofítce tlmar: 2_3 Heimili: 776 Victor at. Phone: A-7122 Winnipeg, Manitoba. Vér leggjum sérstaka áherzlu & a8 selja meöul eftir forskriftum lœkna. Hin beztu lyf, sem hægt er aC fá, eru notuS eingöngu. pegar þér kómlC meö forskriftina til vor, meglö þér vera viss um, aö fá rétt þaS s»m læknirinn tekur til. \ Nótre Dame and Siierbrooke Phones: N-7658—7650 Vér seljum Giftingaleyfisbréf DR O. BJORNSON 216-220 Medical Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office tlmar: 2—3. Heimili: 764 Victor St. Phone: A-7586 Winnipeg, Manitoba. DR. B. H. OLSON 216-220 Medlcal Art-s Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office Hours: 3—5 Heimili: 921 Sherburne St. Winnipeg, Manitoba. Giftinga- og Jarðarfara- Blóm með litium fyrirvara BIRCH Blómsali 616 Portage Ave. Tals.: B-720 St. John: 2, Ring 3 A. S. BARDAL 848 Sherbrooke St. Selur |Ikkistur og annast um öt- farir. AUur útböna'Bur eá bezti. Knn fremur seiur hann allskonar mlnnisvarCa og legsteina. Skrifst. Talsiml: N-6607 Heimilis Talsími: J-8302 MRS. SWAINSON að 627 SARGENT Ave., Wlimlpeg, hefir ávalt fyrirliggjandi úrvala- bdrgðir af nýtízku kvxmliöttum. Hún er elna ísl. konan. sem sllka verzlun rekur í Wlnnipeg. fslentf- ingar, látið Mrs. Swainson njóta viðskifta yðar. THOMAS H. JOHNSON H. A. BERGMAN ísl. lögfræðlngar. Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P. O. Box 1656 Phones: A-6849 og A-6840 W. J. Lindal. J. H. Lindal B. Stefansson. fslenzkir lögfricðingar. 708-709 Grea#-West Perm. Bldg 356 Main fit. Tals.: A-4963 Peir hafa einnig skrifstofur aB Lundar, Riverton, Gimli og Piney og eru þar að hitta á eftirfylgj- and tlmum: Lundar: annan hvern mlðvlkudaf Riverton: F'yrsta fimtudag. Gimll: Fyrsta miCvikudag. Piney: priðja föstudag 1 hverjum mánuCi. A. G. EGGERTSSON ísl. lögfræðingur Hefir rétt til aC flytja mál bnCl I Manitoba og Saskatchewan. Skrifstofa: WjTiyard, Sask. Seinasta mánudag I hverjum mán- uCi staddur I Churchbridge Athygli! Komið með næstu lyfjaávísun- ina yðar til vor. Þaulæfðir sér- fræSingar annast um alla lyfja- samsetningu. INGRAM’S DRUG STORE 249 Notre Dame Ave. Gagnvart Grace kirkjunni. A. C. JOHNSON «07 Confederatlon I.lfe Bldg. WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábvrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum tyr- irspurnum svarað samstundis. Srifstofusími: A-4263 HAssiml: B-SSM J. J. SWANSON & CO. IiIMITED R e n t a 1 s Insurance Real Estate Mortgages 600 Paris Building, Winnipeg Phonee: A-6349—A-6340 STEFAN SOLVASON teacjher of PIANO Ste. 17 Emily Apts. Emily 8t. Emil Johnson SERVIOE ELECTRIO Rafmagnt Contracting — Attt- kvn» rafmagsndhöUi seld oo vtíf þau oert — Eg tel Moffat og McClary Eldavéiar og hefi þcar til sýnis d verkstæOi minu. 524 SARGENT AVE. (gamla Johneon’s byggingin t18 Toung Street, Winnlpeg) Verskat. B-1507. Helin. A-72M Verkst. Tals.: Helrna Tala.: A-8883 A-9384 G. L. STEPHENSON PDTTMBER AUskonar rafmagnsáhöld, svo mm straujám, víra, allar tegundlr af glösnm og aflvaka (liatteries) VERKSTOFA: 676 HOME 8T. Sími: A-4153. ísl. Myndastofa NewLyceum PhDto Stuitio Kristín Bjarnason eig. 290 Portage Ave, Winnipeg Næst við Lyceum leikhúsið. Islenzka bakaríið Selur heztu vörur fyrlr la-gsta verð. Pantanir afgreiddar bseM fljótt og vei. Fjölbreytt úrval. Hrein og Upnr vtðskiftl. Bjarnason Baking Co. 676 SAItGENT Ave. Wlnnlpe*. Phone: B-429S 4

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.