Lögberg - 25.10.1928, Síða 1
41. ARGANGUR |
Helztu heims-fréttir
Canada.
Ku Klus Klan félagið virðist nú
vera eitthvað í þann veginn að
láta til sín taka í Winnipeg. Hinn
16. þ.m. var fundur haldinn í Nor-
man Hall, nokkurs konar leyni-
fundur, þar sem maður nokkur,
Daniel C. Grant að nafni, talaði
um tilgang félagsins og sérstak-
lega um fyrirætlanir þess hvað
Winnipeg snertir. Eftir því sem
haft er eftir Grant þessum, ætlar
K. K. K. nú að taka það alvarlega
fyrir sig, að “hreinsa til” í Win-
nipeg, og það kvað nú ekki veita
af, eftir því sem hann sagði, því
hér héldust i hendur allskonar ó-
dygðir og ilt framferði, sem gengi
ljósum logum, en lögreglan léti af-
skiftalaust, og væri þess því sér-
staklega þörf, að ‘‘hreinsa til”,
þar sem yfirmenn lögreglunnar
væru. —i Þegar fréttir af þessum
fundi komu í blöðunum næsta
dag, þótti Grant þessum mjög
undarlegt, að þau skyldu hafa
komist að því sem þar fór fram,
því þetta átti að vera leynifund-
ur. Vildi hann þá ekki heldur
kannast við ýmislegt af því, sem
eftir honum var haft. Hvort
heldur hefir verið, að fréttirnar
af fundinum hafi verið eitthvað
ýktar, eða hann hefir ekki viljað
Mta þær berast út, er ekki gott að
segja. Hitt er nokkurn veginn
víst, að K . K. K. hefir það í huga,
að hefja starfsemi sína i Winni-
peg. Munu flestir kannast við
starfsaðferðina, og hefir áður
verið að henni vikið hér í blaðinu.
Virðast margir 'þeirrar skoðunar,
að Winnipeg borg sé á flestu
fremur þörf, en þessum K. K. K.
félagsskap, og er það sízt að
undra.
* * *
Aukakosningar til sambands-
þingsins fara fram í Victoria, B.
C. , hinn 6. desember næstkomandi.
Er það þingsæti autt síðan í sum-
ar, að Dr. S. F. Tolmie, sem nú er
stjórnarformaður í British Col-
umbia, sagði af sér sem sam-
bandsþingmaður til að gerast leið-
togi íhaldsmanna þar í fylkinu.
Hverjir þar verði í kjöri, er enn
óvíst, en það er haldið, að Hon.
J. D. McLeanj, fyrrum stjórnar-
formaður í British Columbia, muni
verða þingmannsefni frjálslynda
flokksins.
* * *
Manitoba símakerfið hefir end-
urbætt víðvarpstæki sín í Winni-
peg svo, að þau eru nú hin full-
komnustu, sem nokkurs staðar^ er
að finna í Canada. Er þar alt af
allra nýjustu og fullkomnustu
gerð. Víðvarpið heyrist um alla
Norður-Ameríku, þvera og endi-
langa.
* * *
Tveir útnefningarfundir voru á
laugardaginn haldnir í Lansdown
kjördæminu til að útnefna þing-
xnannsefni til að sækja þar um
þingmensku við aukakosningar til
fylkisþingsins, sem þar fara fr^m
nú bráðlega. Annan fundinn hélt
stjórnarflokkurinn í Alexander og
var D. G. McKenzie útnefndur
þar í einu 'hljóði. Hinn fundinn
héldu liberalar í Griswold og náði
D. G. McKenzie líka þar útnefn-
ingu, en ekki með öllum atkvæð-
um. Á þeim fundi voru einir 50
fulltrúar, og voru sex þeirra því
mótfallnir að útnefna McKenzie.
Líklega verður þó ekkert af því,
að þeir útnefni annað þingmanns-
efni. Kosningar fara fram á
laugardaginn, hinn 10. nóvember.
Mr. McKenzie var á mánudaginn
tekinn inn í Bracken ráðuneytið
og er nú fylkisritari og ráðherra
náma- og náttúruauðæfa, og sér
ejnnig um rafleiðslu fylkisins, svo
hann sýnist hafa nóg að gera.
* * *
Á miðvikudaginn í vikunni sem
leið Iagði maður nokkur, H. C.
MacDonald að nafni, af stað í lít-
illi flugvél, frá Nýfundnalandi og
ætlaði að fljúga til Englands.
Til hans hefir ekkert spurst síð-
an og er nú talið nokkurn veginn
vafalaust, að hann hafi farist.
Eldsneytið, sem hann hafði með
sér, var að eins nægilegt til 35
klukkustunda flugs. Mun hann
vera sá nítjándi, sem farist hefir
við tilraunir að fljúga yfir At-
lantshafið..
* * *
í síðustu viku brann stór korn-
hlaða í Calgary, tilheyrandi Al-
berta Pacific Grain Co., og eyði-
lögðust þar sjötíu þúsund mælar
af korni. Er skaðinn allur metinn
-100,000.
* * *
Viðskiftaráðið í Winnipeg, bæði
eldri og yngri deildin, gerir ráð
fyrir, að vinna öfluglegar að við-
gangi og framförum borgarinnar,
heldur en nokkru sinni fyr. Tel-
ur ráðið þess mikla þörf, ef Win-
nipeg eigi ekki að dragast aftur
úr öðrum borgum í VesturnCan-
ada, og ef hún eigi að halda virð-
ingu sinni og áliti. Það sem við-
skiftaráðið hugsar sér að hrinda
í framkvæmd, er meðal annars að
stuðla að því, að iðnaður aukist,
sem mest í borginni, árlegri iðn-
sýningu verði komið á og haldið
uppi; staður verði valinn fyrir
nýjar háskólabyggingar og þeim
komið upp; borgin prýdd með
ýmsu móti; hlynt að námaiðnað-
inum og búskapnum, loftferðum,
vegabótum og ýmsu fleiru. Vill
viðskiftaráðið hvetja borgarbúa
til að taka höndum saman um að
vinna að framförum og heiðri
borgarinnar af fremsta megni.
Bandaríkin.
í ríkinu South Carolina er smá-
bær einn, sem Hodges heitir. Eru
- íbúarnir þar að eins um 350 tals-
ins. Þar er enginn talsími, eng-
inn lögreglumaður og ekkert fang-
elsi, og svo lítill drykkjuskapur,
að þar er bara efrm maður, sem
fær sér dálítið í staupinu, en ekki
nema þrisvar sinnum á ári. Þetta
hefir gengið svona í síðastliðin
tólf ár. Áður hafði bærinn tal-
síma, en það gekk eitthvað illa,
svo það var Ihætt við þá. Bærinn
hafði líka einu sinni lögreglu og
fangelsi og mikinn drykkjuskap,
en þetta hefir alt lagst niður, og
nú er bærinn svo friðsamur, að
það er ekkert, sem raskar ró íbú-
anna, ekki einu sinni síminn. Bæj-
arbúar komast vel af án símans,
og stendur hann að öðru leyti
ekkert að baki öðrum bæjum af
sömu stærð.
* * «■
Fundist hafa nokkrir partar úr
loftfari, sem álitið er að séu úr
loftfari því, sem Amundsen og fé-
lagar hans fimm notuðu, þegar
þeir í júní í sumar lögðu af stað
norður í höf til að leita að þeim,
sem voru i loftfarinu Italia. Nú
rétt nýlega hefir fundist gasolín-
geymir, einar 200 mílur fyrir
norðan Christiansand í Noregi, og
er haldið að hann sé úr loftfari
Amundsens. Er það miklu sunn-
ar heldur en aðrir hlutar, seni
fundist hafa og álitið er að séu úr
sama loftfari. Talið er víst, að
málmhylki þetta hafi dottið of-
an í sjóinn, en ekki ofan á ís, því
það var hvorki dalað eða brotið og
meira að segja töluvert af gasolíu
í því.
* * #
Frétt frá Detroit segir, að Ford
félagið sé að flytja verksmiðjur
sínar, þar sem dráttarvélar (trac-
tors) eru tilbúnar, frá Detroit til
Cork á írlandi, og á verksmiðjan
að verða tilbúin að taka til starfa
um áramótin. Ástæðan fyrir þessu
er sögð að vera sú, að eftirspurn-
in, eftir þessum vélum hafi vaxið
stórkostlega á Englandi, írlandi,
Þýzkalandi og Rússlandi.
* * *
Lærðir menn í hinum miklu
mentaskólum, Cambridge og New
Haven, þar sem háskólarnir miklu,
Harvard og Yale eru, hafa komist
að því, eftir því sem sagan segir,
WINNIPEG, MAN.. FIMTUDAGINN 25. OKTÓBER 1928
NÚMER 43
að jörðin snúist nú hraðara held-
ur en hún hefir gert. Heitir sá
Ernest W. Brown iSterling, og er
prófessor í stærðfræði við Yale
háskólann, sem sýnt hefir fram á
þetta. Haldið er, að þetta komi á
einhvern hátt af jarðskjálftum, en
ekki hitti, að dagurinn sé í raun
og veru að styttast.
* * *
Blaðið Literary Digest, hinn 20.
iþ.m., skýrir frá því, hversu mikið
safnaðarfólkinu í 23 kirkjudeild-
um í Bandaríkjunum hefir fjölg-
að, eða fækkað í einstöku tilfell-
um, á árunum 1916—1926. Sam-
kvæmt þeirri skýrslu er síður en
svo, að kirkjufólkinu sé að fækka,
því á þessum árum fjölgaði fólk-
inu í landinu um 17—18 per cent,
en kirkjufólkinu fjölgaði um
meir en 30 per cent. Alls hefir
safnaðarfólkinu í Bandaríkjunum,
á þessum 10 árum, fjölgað um
12,698,122. Árið 1916 voru út-
gjöld kirknanna $328,809,999, en
1926 voru þau orðin $814,371,529.
Af öllum kirkjudeildum er róm-
versk-kaþólska kirkjan lang fjöl-
mennust, þá Baptistar, þá Method-
istah og þar næst lúterskir. Lút-
erskt safnaðarfólk í Bandaríkjun-
um 1926 telst að vera 5,258,623, og
hefir fjölgað á þeim árum, sem
hér er um að ræða, um 2,798,085,
eða meira en 100 per cent.— Fækk-
að hefir fólkinu í einstaka kirkju-
deildum og er það eftirtetarvert,
i að það eru hinar svo nefndu
j “frjálslyndu” kirkjudeildir, svo
sem Unitarar og Universalistar.
Á umræddum 10 árum hefir Unit-
örum fækkað um 22,363, og eru
1926 ekki nema 60,162.
* * *
Á fyrra helmingi ársins 1928
urðu 390 loftför, þau er einstökum
mönnum eða félögum tilheyra,
fyrir slysum. Af þessum slysum
mistu 153 manneskjur lífið, 276
meiddust meira og minna, en 399
sluppu ómeiddar.
» * *
Peningar í fjárhirzlum Banda-
ríkjástjórnarinnar voru 30. sept-
ember síðastl. $8,213,615,127, eða
$40.82 á hvert mannsbarn þar i
landi sé fólksfjöldinn talinn
118,720,000.
Iivaðanœfa.
Mikið hefir nú að undanförnu
verið talað um samninga, sem
sagt er að stjórnir Bretlands og
Frakklands hafi gert sín á milli
viðvíkjandi hervörnum á sjó. Er
samningur þessi að einhverju
leyti leynilegur og að eins milli
þessara tveggja stjórna, eða
tveggja þjóða, því í raun og veru
bera þjóðirnar ábyrgð á því, sem
stjórnirnar gera. Þykir hér mjög
stefnt í sama horf eins og átti sér
stað fyrir stríðið mikla og óttast
margir, að afleiðingar verði svip-
aðar, þegar stundir líða. Hafa
veir stjórnmálaleiðtoganna á Bret-
landi, þeir Lloyd, George og Mac-
Donald, farið um þessa samninga
afar hörðum orðum, einkum Lloyd
George. Þá er þessu einnig mjög
illa tekið af ýmsum öðrum þjóð-
um, sérstaklega ítölum og einnig
Bandarík j amönnum.
* * *
Chiang Kai iShek, sem var yfir-
hershöfðingi Nationalista í borg-
arastríðinu mikla í Kína, hefir nú
verið kosinn forseti kínverska lýð-
veldisins
* * *
Richard E. Byrd lagði af stað
hinn 10. þ.m. frá San Pedor, Cali-
fornia á hvalaveiðaskipinu “C. A.
Larsen”, áleiðis til suður heim-
skautsins. Fara þeir félagar fyrst
til Nýja Sjálands og búast við að
verða þar um 5. nóvember. Þar
eiga þeir að mæta hinum tveimur
skipunum, sem þátt taka í leið-
angri þessum, “iCity of New York”
og “Eleanor Bolling”. Þaðan ætl-
ar svo Byrd að sigla einar þús-
und mílur suður í hðf og hefja
þaðan rannsóknir sínar. Það sem
þeir ætla þar sérstaklega að gera,
er að athuga lofslag og vinda og
þeir ætla að búa til kort af þess-
um “hala veraldar”, sem enn er
að mestu leyti órannsakaður. Bú-
ast þeir félagar við að verða þar
suður í heimi í tvö ár eða lengur.
Er leiðangur þessi stærri og bet-
ur útbúinn heldur en nokkur ann-
ar heimskauta leiðangur, sem
gerður hefir verið. Hafa meðal
annars þrjú loftför.
* * *
Eitt af því, sem Mussolini hef-
ir gert til að efla framfarir föð-
urlandsins, er að leggja skatt á
alla ógifta menn í landinu, sem
komnir eru yfir vissan aldur.
Ekki var það aðal tilgangurinn,
að iauka tekjur ríkisins með
þessum skatti, heldur að reyna að
fá þessa menn til að hætta einlíf-
inu og gifta sig, því það taldi
hann heppilegra fyrir vðxt og
viðgang þjóðfélagsins. En þessi
skattur kom ekki að tilætluðum
notum. Ógiftu mennirnirf, “basl-
ararnir”, sem vér Vestur-íslend-
ingar nefnum svo, giftu sig ekki
að heldur. Þeir vildu ekki láta,
jafnvel Mussolini, ráða fyrir sér
í þeim efnum. En Mussolini vill
ekki gefast upp fyr en i fulla
hnefana, og nú hefir hann tekið
það ráð, að tvöfalda skattinn, og
ef hann heldur þessu áfram, þá
hefir hann máske sitt mál fram
og kemur því til leiðar, að “bösl-
urunum” fækki, að minsta kosti
töluvert.
Breytingin
Sumarið leið sem sæll draumur.
Eitt hið yndislegasta sumar um
langan tíma. Hugglaður horfði
búandinn á þéttskipað akurlendi.
Sællegur búpeningur rambaði
drembilega um og valdi sér hið
kostulegasta af því, em á borð var
borið, því margir voru réttirnir
og nóg skamtað.
Hautið gekk í garð — hver dag-
urinn öðrum betri. Stöðuvötn
björt og hrein spegluðust af geisl-
um haustsólarinnar. Góðviðris-
blærinn lék um lönd og strendur.
á brjóstum vauianna vögguðu sér
þúsundlitar myndir af greinum
trjánna. —
Vegurinn lá inn í þéttan skóg-
inn. Nú þarf að vaka, — margt
er að athuga. Brautin er í fang-
ið, en grýtt — það mun flestra
leið. Draumþrungin værð fyllir
loftið og heiðríkjan hyllir alla
hluti. Mófuglinn hrekkur frá göt-
unni, en þó hávaðalítið. Hann
skirrist við að raska rósemi þessa
sólríka landslags. Trén standa
bein og hreyfingarlaus. Þau eru
að drekka með nautn hinn verm-
andi yl sólarinnar. Þau virðast
þess áskynjai, að nú sé komið að
síðasta tækifæri að njóta hinna
ylblíðu geisla áður en þau verða
gagntekin af heljargrimd vetrar-
ins.
Fast við veginn standa þrjú
espitré. Ekki eru tré þessi jafn-
há. Hæsta tréð hefir mist mest
af skrauti sínu, og lægsta tréð
minst. Þannig er jöfnuður.inn
meðal trjánna. Þessir æskuvinir
njóta unaðar og samfagnaðar
lífsins — framtíðin er þeim hulin.
Visin laufblöð þekja jörðina.
Móðirin mikla er nýtin á fatnað
barna sinna. Laufblöðin notar
hún til klæðnaðar fyrir yngri
börnin. Smári og smágert græn-
gresi gægist undan laufblöðun-
um. iSeinna verður breitt ofan á
þau mjúkri og mjallhvítri “yfir-
sæng” og þau gjörð óhult til sum-
ardags næsta.
Landslagið breytist; Nú sést
lágur og kræklóttur pílviður.
Viða eru feyskjur. En á milli býr
mikið skraut. Hvergi er meiri
fegurð, ef að er gætt. iSmákvistir
og nýgræðingur standa þar með
fullu laufi. Þeir bera marga og
greinilega liti. Mest ber á rauða
litnum og þeim bMa, og nokkuð á
þeim gula. Það er eins og náttúr-
an hafi viljað gjöra pílviðnum
jafnt undir höfði með þessum lit-
fríðu fyrirbrigðum.— Meðal þessa
litarskrauts er gott að láta sig
dreyma.
Á láglendinu sést tákn þess líð-
andi og ókomna. Starkynjað há-
gresið er gult í toppinn. Því fer
hnignandi með degi hverjum, en
nær rótinni felst nýgræðingurinn,
sem á að taka við, þegar það
eldra er fallið frá.
Friður Guðs hvílir yfir landinu
eftir erf-iði sumarsins.
Sig. S. Christopherson.
“ Dauðahald,>
Svo er það kallað, þegar fast er
haldið í eitthvað, og af öllum
kröftum.
Heimfararmálið hefir haldið
vakandi hugsun Vestur-lslendinga
um nokkra mánuði undanfarna.
Það hefir skift þeim í tvær and-
stæðar fylkingar, eins og öll önn-
ur mál gera. Nú eru þáttaskifti í
þeim leik.
Báðar nefndirnar hafa nú á-
kveðið viss flutningafélög og
byrjað á auglýsingum. Héðan af
er því ekki um neitt fullkomið
samkomulag að ræða; héðan af
hlýtur hvor nefndin um sig að
sigla sinn eiginn sjó; væri því
ekki úr vegi, að fara stuttlega yf-
ir fáein atriði málsins.
Deiluefnið í byrjun var einung-
is eitt; heimfararnefndin hafði
beðið um opinberan styrk til und-
irbúnings fararinnar; fjöldi ís-
lendinga var því mótfallinn;
nefndarmönnum var gert aðvart
um þetta í kyrþey, til þess að það
þyrfti ekki að verða að deilumáli.
í stað þess að taka hógværum
leiðbeiningum og ráðfæra sig við
íólkið, skeltu nefndarmenn skoll-
eyrum við og voru of hrokafullir
til þess að taka nokkrum bend-
ingum; þeir biðja um það og fá
því framgengt, að þeir séu sjálfir
endurkosnir og þeim fengin völd
fram yfir 1930. Þeir berjast á
móti því, að jafnvel Þjóðræknis-
félagið sjálft, hvað þá heldur ís-
lendingar alment, ráði nokkru um
það, hverjum bætt sé í nefndina;
þeir berjast gegn því, með hnúum
og hnefum, að ritstjórum blaðanna
sé bætt í nefndina. — Alt bendir
til þess, að þeir ætli að halda á-
fram með styrkbeiðnina þvert of-
an í vilja almennings — þeir halda
í styrkinn dauðahaldi.
Sjálfboðanefndin myndast;
hún heldur því fram, að allur
fjöldi íslendinga sé styrknum and-
stæður. Hin nefndin heimtar
sönnun fyrir 'þeirri staðhæfingu.
Sönnun var að eins möguleg með
tvennu móti: annað hvort varð
að ferðast um bygðir íslend-
inga, halda þar fundi og láta
greiða atkvæði um málið, eða
prenta skjöl til undirskrifta.
Fyrri leiðin var bæði kostnaðar-
söm og likleg til þess að valda ó-
þarfa biturleik eða jafnvel fjand-
skap; síðari leiðin kostaði mjög
lítið og var friðsamleg að öllu
leyti; þar sem hver skrifaði nafn
sitt sem vildi, án nokkurra æs-
inga, sem oft eru samfara fundar-
höldum.
Þúsundir manna skrifuðu undir
mótmæli gegn styrknum. Samt
heldur heimferðarnefndin dauða-
haldi í styrkinn, þvert ofan í mót-
mælin frá almenningi og þvert of-
an í sannanirnar, sem hún þóttist
æskja eftir — nú var henni orðið
það ljóst, að hún vann í óþökk
Vestur-íslendinga í þessu atriði;
eða mikils meiri hluta þeirra.
Nú tekur nefndin sig til og ferð-
ast um flestar bygðir íslendinga,
heldur þar fundi og biður um
traustsyfirlýsingar. Svo lélegar
eru undirtektir fólksins undir þá
beiðnis að ekkert mál hefir nokkru
sinni fengið hlutfallslega verri út-
reið hér vestan hafs, en styrk-
beiðni. Hér skal ekki taMð út í
bláinn; tökum t. d. Selkirk, þar
sem málið hefir fengið meiri
stuðning en víðast annars staðar.
Þar eru mörg hundruð íslending-
ar; þar er einn nefndarmaðurinn,
vinsæll og vel metinn prestur og
áhrifamikill, þar sem hann beitir
sér. 'Samt gat nefndin ekki feng-
ið fleiri af heimamönnum til þess
að koma á fund sinn. en 53, og að-
eins 26 atkvæði til þess að lýsa
trausti á nefndinni — jafnvel
nokkrir af þessum 26 eru þó á móti
styrknum. Tuttugu og sex af
mörgum hundruðum. Hvernig
getur nokkurt mál fengið lakari
útreið? — í Churchbridge er sama
máli að gegna, í Langruth, í Glen-
boro, í Baldur, á Brú, á Lundar
er það ekki betra, að eg ekki
minnist á allar Dakotabygðirnar,
sem svo að segja eru einhuga
gegn styrknum.
Samanlögð tala allra þeirra, sem
með nefndinni hafa greitt at-
kvæði, er ekki hærri en svo, að
hundrað mæti þúsundi þeirra,
sem á móti styrknum hafa mælt
með sjálfkrafa undirskriftum. —
Skulu hér færð til nokkur dæmi,
og sýnd tala undirs'krifenda og
mótmælenda á nokkrum stöðum;
Churchbridge 108, Riverton 83,
Langruth 83, Seattle 109, Elfros
og Mozart 64, Árborg 73, Cypress
River 43, Árnes 60, Hnausa 47,
Hecla 41, Gardar 74, Hensel 50
Þetta eru aðeins nokkur dæmi,
valin sérstaklega með tilliti til
þess, að suma þessara staða hef-
ir styrkliðið talið sér’ Annars
getur hver sem er séð allar undir-
skriftirnar hjá skrifara nefndar-
innar, E. P. Jónssyni, ritstjóra
'Lögbergs, eða hjá Gunnlaugi
kaupmanni Jóhannssyni.
Þegar deilurnar hófust, var að
eins um eitt atriði að ræða —
styrkinn. En inn í það var bland-
að öðrum málumi, áður en langt
leið. Þegar Dr. Brandson skrif-
aði sína fyrstu, hógværu grein,
hefði matt ætla, að nefndarmenn
svöruðu blátt áfram og mannlega.
En því fór fjarri, að svo yrði.
Sumir þeirra hvísluðu því á br.k
við tjöldin, að D?. Brandson skrif-
aði ekki af sínu eigin, heldur léti
hann stjórnast af áhrifum annara
manna, sem það markmið hefðu,
að drepa Þjóðræknisfélagið og
lama Únítarakirkjuna. Þannig var
trúmálum laumað inn í deilurnar
og var það auðvitað sama sem að
hella olíu í eldinn.
Þá var einnig öðru máli bland-
að í deilurnar, sem þar átti alls
ekki heima; manna á meðal og í
Heimskringlu var reynt að rýra
gildi þeirra áhrifa, sem H. A.
Bergman hafði á styrkmálið, með
því að rægja hann í sambandi við
hið svo kallaða Ingólfsmál; af því
kviknaði annar eldur, sem erfitt
er að segja hvenær slöktur verð-
ur.
Yfir höfuð hefir heimfarar-
nefndin reynt að forðast umræð-
ur um styrkinn — forðast að ræða
málið sjálft — en slegið út í alla
aðra sálma.
Mér dettur í hug í þessu sam-
bandi, saga sem E. H. Kvaran
sagði einu sinni á bindindisfundi
í R.vík; hún var svona: “Maður
var á gangi á götum í Kaupmanna-
höfn; hann var dálítið slompaður
og steig öðrum fætinum ofan í
rennu. Hann varð allur útataður
og svo var óþefurinn megn, sem
af honum lagði, að allir sem ná-
lægt honum gengu, tóku höndinni
fyrir vitin. Aumingja manninum
þótti þetta leiðinlegt; hann tók
því það ráð, til þess að draga at-
hygli fólks frá óhreina fætinum,
að hann batt rauðum klút um höf-
uðið, til þess að allir skyldu
gleyma fætinum. En þótt augu
fólksins staðnæmdust á rauða
klútnum, þá var lyktin sú sama,
og menn héldu fyrir vitin eftir
sem áður.”
iHeimfararnefndinni og fylgj-
endum hennar ferst eins og mann-
inum í þessari sögu; reyndi á all-
ar lundir að leiða athygli frá aðal-
málinu, til þess að geta haldið
dauðahaldi í stjrrkinn. Fyrst er
á bak við tjöldin komið með trú-
málin, og síðan með Ingólfsmálið,
en þrátt fyrir þetta alt eru þau
styrkbeiðni nefndarinnar og ó-
lyktin af fæti mannsins í sögunni
hans 'Einars, skilgetin systkini.
lEkki get eg gengið fram hjá
einu atriði, sem fyrir kom nýlega
hér í Winnipeg í sambandi við
■þetta mál:
W. H. Paulson þingmaður gerði
það að þungamiðju ræðu sinnar á
fundi, að Th. H. Johnson hefði
vérið eindreginn með styrkbeiðn-
inni; taldi hann það sönnun þess,
að ekkert gæti verið athugavert
við hana. En allir Winnipeg-
nefndarmennirnir vissu, að hér
var vísvitandi farið með rangt
mál. Má vera, að Johnson hafi í
upphafi ekki athugað, hvað styrk-
beiðnin þýddi eða hvað af henni
kynni að leiða og því verið henni
samþykur þá; en að athuguðu máli
hefir hann skift um skoðun, og
það vissi nefndin. Hér skal ekki
einungis bygt á vitnisburði Dr.
Brandsons, H. A. Bergmans og E.
P. Jónssonar, þótt engum detti í
hug að efast um orð þeirra, held-
ur skulu notaðar játningar fjög-
urra manna úr heimfararnefnd-
inni sjálfri. ISéra R. Pétursson
skrifaði grein fyrir hönd nefndar-
innar, þar sem hann lýsti þvi yfir,
að Th. H. Johnson hefði átt tal
heima hjá sér við einn nefndar-
manninn og tjáð honum, að hann
væri andstæður styrkþágunni. J.
J. Bildfell sagði þetta rétt vera,
þegar greinin var lesin á fundi
nokkurra nefndarmanna.
Th. H. Johnson átti langt tal á
heimili sínu við A. P. Jóhanns-
son um heimferðarmálið og and-
mælti eindregið styrkþágunni.
Þetta hefir Jóihannsson sjálfur
viðurkent og mun alls ekki bera á
móti. Th. H. Johnson átti einnig
símatal við Árna Eggertsson um
þetta efni og skýrði honum frá
því, að hann væri styrknum mót-
fallinn.
Margt hefi eg heyrt og séð
einkennilegt í þessu styrkmáli,
en fátt eins ógeðslegt og
það, að hlusta á W. H. Paulson
tala um Th. H. Johnson í þessu
sambandi og horfa á hina nefnd-
armennina fjóra sitja þegjandi,
án þess að leiðrétta ranghermið,
sem þeim öllum var svo kunnugt
um — líklega í því trausti og með
þeirri vissu, að dánir menn geta
ekki borið hönd fyrir höfuð sér.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Eru Bretar að verða
bindindisþjóð?
Ekki liggur nú eiginlega nærri,
að svo sé enn þá, en eftir því sem
blaðið “London Sunday Express”
skýrir frá, hefir áfengisnautnin
stórkostlega minkað þar í landi
síðari árin.
Um aldamótin drukku Englend-
ingar 32,239,525 gallónur af sterk-
um, áfengum drykkjum, en nú ekki
nema 10,412,921 gall. Á Skotlandi,
heimalandi brennivínsins, er mun-
urinn ekki minni, Árið 1900
drukku Skotar 8,623,092 gallónur
af brennivíni og öðrum slíkum
drykkjum, en árið sem leið að eins
2,456,283 gall.
Nokkurn veginn sama er að
segja um bjórinn. Árið 1902
drukku Englendingar bjór úr
31,810,877 tunnum, en 1927 var
bjórdrykkjan komin ofan í 23,148,-
640 tunnur. Skotar drukku 1962
úr 2,260,759 tunnum, en 1927 ekki
nema úr 1,673,576 tn.
ölgerðarmönnunum lizt ekki á
þetta, sem ekki er von, og þeir
gera sér sameiginlega far um að
auglýsa bjórinn og koma almenn-
ingi í skilning um, að bjórinn sé
hollasti drykkur, sem til sé, en
það sýnist koma fyrir heldur lítið.
Blaðið reynir að gera grein fyr-
ir, hvernig á þessu muni standa,
*
og verður niðurstaðan ’helzt sú,
að nú hafi menn svo margt annað
sér til skemtunar, en að fá sér í
staupinu, að þeir þurfi þess síður
með. Annað hitt, að nú gangi alt
með svo miklum hraða, að mönn-
um veiti áreiðanlega ekki af að
vera ófullir, ef þeir eigi ekki að
dragast aftur úr eða troðast und-
ir. Líka sé það, að þegar menn
keyrðu hesta, hafi hesturinn oft-
ast ratað heim, þó eigandinn rat-
aði ekki, en bíllinn sé viss með að
fara afvega, ef keyrarinn sé ekki
algáður.
í síðasta blaði er stutt grein með
fyrirsögninni “Þakkarorð”. Nafn
konunnar, sem er undirskrifuð,
hefir því miður misprentast. Á
að vera Jónasina Jóhannesson,
en ekki Jónína, eins og þar
stendur.
Fjögur herbergi til leigu fyrir
$25 um mánuðinn, eða tvö fyrir
$15 frá 1. nóvember að telja. —
Upplýsingar að 676 Sargent Ave.,
Sími 34 298.
Messur 28. okt. — Mozart kl. 11
(ferming og altarisganga); Wyn-
yard kl. 3 (altarisganga); Kada-
har kl. 7.30 (altarisganga). —
Samskot fyrir heimatrúboð kirkju-
félagsins á öllum stöðunum. —
Allir hjartanlega velkomnir. —
“Allir æfinlega.” C. J. O.