Lögberg - 20.12.1928, Page 3
LÖGBERG FIMTUDAGINN 20. DESEMBER, 1928.
Bls. 3.
Fréttabréf.
TANTALLON, Sask.
11. des 1928.
Herra ritstjóri:
Það er ekki oft, sem þessir fáu
landa, er hér búa í grend við Tan-
tallon, hafa miklar fréttir að
birta, en nú langar okkur að biðja
um ofurlítið pláss í þínu heiðraða
blaði
Þann 3. þ.m. skeði það, sem oss
finst vert um að geta. Það kvöld
^öfnuðust allir landar vorir hér
úr bygðinni, sem komið gátu, —
því miður voru nokkrir, sem ekki
gátu komið sökum veikinda—, á
eitt heimilið hér í bygð, þar sem
Jón Júlíus Jónsson og kona hans
Anna Jónsdóttir, búa. Þá er all-
ir voru þangað komnir, var þeim
hjónum skýrt frá því, að þessi
heimsókn væri gerð í tilefni af
tuttugu og fimm ára giftingaraf-
mæli þeirra, sem var þann dag, og
að drekka ætti með þeim kaffi-
sopa.
Meðan nokkrar af konunum til-
reiddu kaffið, voru sungin nokk-
ur íslenzk lög. Svo var sezt að
borðum -og brúðhjónunum þá af-
hent að gjöf silfur “Tea Service”
og stór 0g mikil brúðarkaka, sem
vott vinarhugs og þakklætis, er
bygðarbúar bæru í brjósti gagn-
vart þeim fyrir langa og góða við-
kynning.
Mr. Jónsson þakkaði fyrir vin-
arþelið og gjafirnar, með nokkr-
um velvöldum orðum. Yar svo
drukkið kaffi og borðaðar pönnu-
kökur og margt annað 'gott.
Þegar veitingar voru afstaðn-
ar, skemtu sumir sér við spil, en
aðrir ræddu saman, «og var farið
að líða á nóttina, er allir fóru
heimleiðis, hver í sínum bíl.
Einn af þeim viðstöddu.
Fréttabréf frá Islandi.
S.-Þingeyjarsýslu 5. nóv.
Forsjónin gerði búkonubragð
núna: að gera sumarauka ofan á
dæmalaust gott missiri. Veður-
gæði vors og hausts og sumars
verða hér lengi í minnum höfð.
Ein úrkomugusa á haustinu, eng-
in á vori né sumri. Þess vegna
varð jörðin fyrst svo þurbrjósta,
að lækir þornuðu og lindir urðu
að seitlum. Eini anmmarki tíðar-
farsins, svo teljandi sé, var júní-
kuldinn, sem var ótrúlegur. Næt-
urfrost stigu í afdölum svo hátt,
að þau komust í 12 stig eða 15.
En ekki veit eg hvaða mælir sagði
til, líklega Celcius. í þeim svala
dóu jarðeplaplöntur og grösin
veiktust. Þó varð grasspretta að
lokum vonum meiri, svo að nálg-
aðist meðallag. En nýtingin var
afbragð.
Fiskafli hefir verið góður úr
Skjálfanda, og er enn. Útfluttar
vörur frá Húsavík í okt. námu
miljón kr. — fremur en úr sýsl
unni allri. Það köllum við gott
hérna og björgulegt.
— Mannalát:
Mætir menn ýmsir 0g dugandi
hafa látist á þessu s. 1. sumri:
Guðni bóndi að Grænavatni, há
aldraður búhöldur, bjóí í Vogum
framan af æfi sinni. Kristín hét
kona hans, systir Benedikts lækn-
is Einarssonar í Chicago, og áttu
þau mörg börn og mannvænleg.
Jóhannes Þorkelsson hrepps
stjóri að Syðrafjalli varð bráð-
kvaddur, búhöldur og maður vel
viti borinn, skáld á yngri árum,
sem sjá má í gamalli Eimreið. —
Hans son er Þorkell meistari í
Reykjavík. Jóhannes var bróðir
Indriða á Fjalli, skálds, 0g voru
þeir Sands-bræður systkina synir.
Guðmundur á iSandi mælti yfir
moldum frænda síns langt erindi
og rakti ætttina upp til Jóns Mar-
íuskálds, er stórmenni var á sinni
tíð og skáld mikið. Jóhannes var
hálf-sjötugur 0g mentaðist ungur
að Möðruvöllum. Benedikt Grön-
dal mintist á hann lofsamlega í
Dægradvöl, var þar kennari hans.
Um 200 manna fylgdu Jóhannesi
til grafar og þykir þá líkfylgd í
sveit fjölmenn, er svo gengur.
Snorri hreppstjóri Jónsson að
Þverá andaðist viku síðar en Jó-
hannes. Aldurhniginn úrvals-
bóndi, bróðir Bened. frá Auðnum.
Snorri var minna nafnkunnur en
Benedikt En þó var hann merki-
legur maður, vitur og hugsandi,
gefinn fyrir stjörnufræði og
grasafræði, fróður um fugla og í
sögunni vegvís. Þeim var hann
minnisstæður, er kyntust honum.
Sigurður Guðmundson í Skörð-
um andaðist í sumar, á tíræðis-
aldri; blindur og karlægur síðast,
mikill þrekmaður, ramur að afli.
Hann tók fjögur 100 punda lóð
þannig, að hann hvoldi saman
höldunum og bar umhverfis búð,
lágur maður og þrekinn. Konráð
Vilhjálmsson að Hafralæk mælti
yfir honum langt erindi og snjalt
og heimfærði til hans að hálfu
leyti ummæli E. B. um Egil Skalla-
grímsson í gvæði skáldsins; jafn-
framt skýrði hann kvæðið, er var
hátíðamatur áheyrendum. Meðal
barna iSigurðar er Páll símastjóri
á Húsavík og Þuríður húsfreyja í
Skörðum.
Síðastl. vetur andaðist Guðni
Jónsson í Grímshúsum, á tíræðis-
aldri; Indriði á Fjalli mælti yfir
honm snildarlegt erindi, langt og
valið að orðfæri.
Rósa Árnadóttir, er andaðist í
haust, á níræðisaldri, var lengi
ráðskona, af mikilli snild, hjá
Benedikt sýslum. 'Sveinsyni, at-
gerfiskona í sjón og raun.
Loks má nefna Kristbjörgu
móður Helgu í Múla og Kristjáns
pósts að Jódísartöðum í Eyjafirði
og Ingibjargar húsfr. í Keldunesi.
Kristbjörg var á tíræðisaldri,
mikil dugnaðarkona og ábyggileg.
Nú fyrir fáum dögum var gull-
brúðkaup að Finnsstöðum í Kinn
— Árna Kristjánssonar og Bót-
hildar Einarsdóttur. Foreldrar
Árna áttu og héldu gullbrúðkaup
fyrir 30—40 árum og er þetta
samanlagt allmerkilegt. Árni of
Bóthildur hafa búið annan búskap
sinn 50 ára langan að Finnsstöð-
um og bætt jörðina að túni og hús-
um. Þetta hóf var fjölment, eftir
því sem getur verið á sveitabæ:
100 manna eða fleira. Þar töl-
uðu þessir: Guðmundur á Sandi
fyrst, þá Grímur að Rauðá—hálf-
br. J. J. ráðherra — Jón í Yzta-
felli og Konráð kennari við Lauga-
skóla. Árni er enn teinréttur á
fæti og gengur á engi. Bóthild-
ur er ern og sér um búið á sinn
hátt Það er á við meðal skóla-
göingu að skygnast í barm slíkra
hjóna, sem þessi eru og læra af
þéim lífspeki falslausa. Því að
þessi hjón hafa þjónað góðum hí-
býlaguði alla æfi og engan eyri
tekið frá öðrum, en jörðinni. En
marga krónu hafa þau goldið “til
allar stétta.”
Óvenjulega mikil viðleitni er
nú hér í sýslu að rífa sundur
móa og tún hrjónur með plógum
og dráttarvél. vStórar spildur
blasa við augum út við sjó og inn
til dala. Þetta haust hefir lejrft
áhuganum að neyta áhalda meira
en venja er til. En þu er nú frost-
ið búið að taka þar fyrir vinnu.
Engir spádómar iheyrast um
vetrarfar. En mikil músamergð
í högum og húsum bendir í þá átt
að eigi muni blíutíð haldast. í
allan vetur. Man eg að þær voru
forðum góða sumarið undan
frostavetrinum mikla, viðlíka ó-
teljandi og álíka umsýslumiklar
að grafa sér holur djúpt í jörð,
sem nú hafa þær verið í sumar
og haust. En undanfarnir mildir
vetrar kunna að hafa fóstrað þær
og framfleytt þeim venju fremur.
Eg, sem fþessar línur rita,
þori naumast að minnast á þjóð-
málin, eða þá menn, sem fara nú
með þau. En það þori eg þó að
segja, að kjósendur — háttvirtir
hérna í “mentaðasta kjördæmi
landsins” — eru vel ánægðir með
stjórnina. Henni er þakkað ár-
gæzka til sjávarins, aflasældin og
þær allsnægtir, sem allir hrafnar
landsins hafa nú í fjörunum, og
er þess vænst, að stjórnin verði
langlíf í landinu. Hvort hún ger-
ir alt góðréttilega — það skiftir
nú minna máli, því enn er tóm til
að iðrast — þá á banasænginni.
Reyndar segir meistari Jón, að sú
iðrun sé til þess eins, að vakna
upp með enn meiri andfælni “í
helvíti og kvölunum”. En öll sú
landafræði er nú orðin gjörbreytt
0g orð meistara Jóns höfð í flimt-
an, ef á þau er minst. En þorri
manna veit nú ekki meira um
þenna emistara, en kötturinn um
sjöstjörnuna.—Vörður.
dætur kunningja sinna, þannig, j ingja frá skrifborði sínu og ekki
að eg fékk unnustu útnefnda þeg-|hefir komið fyrir almenningssjón-
ar eg var þriggja ára, Gunnar j ir> en sem var þó margt þess vert.
Eg vil ekki fara að
Óprentuð rit og kvœði
séra Matth. Jochumssonar.
Eins og mörgum er kunnugt,
hefi eg síðustu þrjú ár verið að
hóa saman bréfum og öðru óprent-
uðu eftir föður minn sáluga. —
Fyrsta árið barst mér ýmislegt,
einkum bréf, næsta árið minna og
nú orðið kemur varla fyrir, að
nokkuð sendist. Ræður þar auð-
vitað mestu, að margt hefir glat-
ast með árunum, en þar næst
veldur gleymska. Eg er sannfærð-
ur um, að margir eiga í fórum
sínum sitthvað óprentað í bundnu
og óbundnu máli eftir föður minn
og þeir hinir sömu mundu finna
það, ef þeir vildu gera svo vel og
rumska og fara að leita. Það er
máske til mikils mælst af mér, að
vera að ónáða menn, en þakklát-
ur verð eg hverjum, sem vill gera
sér ómak og forða frá glötun og
gleymsku þó ekki sé nema lítilli
stöku eða stuttu þréfi. Mér er á-
hugamál að geta farið að láta
eitthvað birtast af því, sem þegar
er komið, og þá líka að geta nokk-
urn veginn áttað mig á, hve rit-
safnið í heild á að vera stórt.
Hér um daginn gladdi það mig
mjög, að kona í Fnjóskadal var
svo væn að senda mér vísur, sem
hún hafði lært af móður sinni og
eg lærði sem barn í Odda og allir
á heimilinu lærðu og rauluðu um
stund, en sem eg var búinn að
gleyma að mestu leyti.
Faðir minn hafði það til, að
orða okkur bræðurna saman við
bróðir minn aftur aðra, þegar
hann var á svipðu reki o. s. frv.
Og svo orti faðir minn undir okk-
ar nafni ljóðabréf eða ástavísur
til litlu stúlknanna. Þessar vísur,
sem eg gat um, voru stílaðar til
Viggu á Selalæk frá Gunnari, en
Vigdís þessi er nú valinkunn hús-
freyja í Hafnarfirði.
Skal eg leyfa mér að setja hér
vísurnar til gamans og vona eg,
að hvorki Vigdís þykkist við mig,
né Gunnar.
Gunnar var í þá daga ætíð kall-
aður Gaui, en hann er nú lyfsali
vestur við Kyrrahaf.
Vænsta, bezta Vigga mín,
vandi er nú að lifa.
Mætti ég vera að vitja þín,
væri ég ekki að skrifa. *
Eg á að geyma bæ og bú,
bæði slá og róa.
Hirða lambið, kálf og kú,
kríu, hrafn og spóa.
Svo er hún litla systir mín,
sem er kölluð Ela.
Hún er mesta hljóðaskrín,
hafi hún ei fullan pela.
Efnið var það, Vigga mín:
—vantar þig ekki kodda?—
að biðja nú um blíðu þín
og bjóða þér heim að Odda.
■Sykurmola sendi eg þér
— svona rétt í spaugi, —
innan í honum Kástin er,
unnusti þinn, Gaui.
Eg get ekki neitað því, að mér
hafa orðið vonbrigði að því. hve
dræmt hefir gengið að innheimta
það litla, sem komið er af því
mikla, sem eg veit að faðir minn
sendi sitt í hverja áttina til kunn-
0111
Henrp ^erbert
|3tanoö
MADE BY
MASON & RISCH
A Piano built with skill and care, the tradition of the
MASON & RISCH which has made them the favorite
of music lovers for over half a century.
Priced $485, with Bench
THE NEW
Ortlioplionic Victrola
Priced from $115
THE NEW
VICTOR ELECTRIC RADIO
EASY TERMS ARHANGFI)
Victor Records Sheet Music
Musical Instruments
nHMr
111
JNt
Gleðileg Jól og nýtt ár!
Þökk fyrir viðskiftin.
njsæsa*
Tlie West EndFootl Market
JAK0BSS0N og ÓLAFSS0N, eigendur.
lýsa mínu
vaxandi svartsýni á ódauðleika
mannanna, jafnvel skáldanna af
guðs náð — og á eg þar að vísu
aðeins við ódauðleikann í minni
manna og þjóða (því um ódauð-
leikann bak við tjaldið er eg —
viti menn — talsvert bjartsýnni).
Eg vil aðeins með línum þessum
ýta við einum og öðrum, sem ætti
vald á því að forða frá tímanlegri
glötun einhverjum andans neista
föður míns i línu eða ljóði.
Akureyri, 28. okt. 1928.
Steingrímur Matthíasson.
—Morgbl.
Rannsóknir á lífinu.
Sagan segir, að í vísindafélagi
einu með mörgum félagsmönnum
frá ýmsum þjóðum, hafi menn tek-
ið sig samah um að rannsaka líf-
erni fílanna, og hafi verið gefinn
frestur í eitt ár til rannsóknanna.
Að ári liðnu lögðu menn fram
verk sín.
Englendingurinn kom með litla
bók í vönduðu bandi er hét: ‘‘Fíl-
ar þeir, sem eg hefi lagt að velli.”
Rússinn kom með bók, sem hét:
“Eru fílar til?”
Bók franska mannsins var í há-
rauðu bandi og hét: “Ástaræfin-
týri fílanna.”
En þegar íjóðverjinn átti að
leggja fram vinnu sína, kallaði
hann fram tvo þjóna, og komu
þeir með 16 þykk bindi. er hétu:
“Stuttur inngangur hð rannsókn
um á líferni fíla.”
Pólverjinn var hreykinn af bók
sinni er hét: “Fílar og stjórnmál
Póllands.”
En loks kom Ameríkumaðurinn
með stóra myndabók um kynbæt-
ur fíla. — Lesb Mbl.
Elzta Eimskipa-samband Canada.
1840—19X8
Skrifið til:
THE CUNARD EINE
270 MAIN STREET,
WINNIPEG, MAN.
Cunard eimskipafélagið hýður fyrirtaks fðlks-
flutninga sambönd við Noreg, Danmörk,
Finnland og Island bæði til og frá canadlsk-
um höfnum, (Quebec í sumar).
Cunard eimskipafélagið hefir stofnsett ný-
lendu- og innflutningsmála skrifstofu I Win-
nipeg og getur n<l útvegað bændum skandi-
navískt vinnufólk, bæði konur og karla.
Skrifið á yðar eigin tungumáli til undirritaðs
félags, er veita mun allar upplýsingar ð-
keypis.
pað er sérstaklega hentugt fyrir fðlk, sem
heimsækja vill skandinavísku löndin, að ferð-
ast með Cunard skipunum.
Eitt meðal hínna mörgu hlunninda, er Cun-
ard félagið býður, er það að veita gestum
tækifæri á að svipast um I London, heimsins
stærstu borg.
eOa til
10,053 Jasper
Ave.
EDMONTON
eöa
209 Eight Ave.
CALGART
eSa
100 Pinder
Block
Gleðileg jól og
fjarsœlt nýár
Talandi myndir, er skýra frá öllum
atburðum heims, nú sýndar á
jRetropolítan
Wbtaivt
i
1
i
l
i
i
r
£
ihihöiiits Lhttj (Lumpitnn.
I NCORPORATE D 2NOMAY 1670.
GEFID SKRAUTMUNI
þessum jólum
✓
a
—Silfraðir Vases ................ $1.75 til $4.50
—Silfraðir kökudiskar, E.P.N.S. teg. $3.50 til $7.00
—Silfraðir bakkar, grafnir, frá .. $10.00 og upp.
—Ljómandi eftirlíking af Topaz, amber litur, í rúss-
neskri gullumgerð, (sem myndin) .......... $15.00
—Aðrir..........i................. $2.50 til $10.00
—Fyrirtaks fagrir hringar. Klasi af demöntum.
Hvítt gull ............................. $50.00
—Hringar með einum demant....... $25.00 til $500.00
—Falleg og sjaldséð armbönd, með fallega litum
steinum ............................. ■■ $2.50
•—Karlmanna úr, 15 steinar, ábyrgst $20.00
—Kvenfólks úlnliðaúr, hvít eða græn .... $15.00
—Smeklegar Boudoir klukkur, Viennese Enamel.
Seldar með ábyrgð .................... $10.00
—Karlmanna úlnliða úr ......... $10.00 til $50.00
—Petit Point Aftern. or Evening Bags $40.00 og upp
—Kvenfólks leður Handbags, sjáið úrval vort,
fyrir ........................... —•— $5.00
Jewelry Shop, neðsta gólfi, H B C