Lögberg - 03.01.1929, Side 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 27. DESEMBER 1928.
Robinllood
FLOUR
Þœr sem bezt kunna að gera 7
brauð, fá altaf verðlaun á sýn-
ingum í Vestur-Canada og hér-
aðssýningum ef þœr nota Rob-
in Hood hveiti.
Mr. John Thorsteinsson, Wyn-
yard, Sask., sýnir kvikmyndina
Ben Hur á eftirfylgjandi stöðum
og tíma: Lundar, föstudag og
laugardag, 11. og 12. janúar; Riv-
erton, mánudag 14., Hnausa þriðju
dag 15., Arnesi, miðvikudag 16.,
Gimli, fimtudag 17. og Árborg,
föstudag og laugardag, 18. og 19.
janúar. — Þetta verður nánara
auglýst í næsta blaði.
Mr. Stefán Johnson frá Hallson,
N. Dak., kom til borgarinnar fyrir
jólin og dvaldi hér fram yfir há-
tíðina. Á föstudaginn í vikunni
sem leið, brá Mr. Johnson sér
norður til Lundar í kynnisför til
bræðra sinna, er þar eiga heima.
Þau Mr. og Mrs. W. Jóhanns-
son, komu til borgarinnar seinni
part vikunnar sem leið, úr brúð-
kaupsför sinni suður um Banda-
ríki. Höfðu þau ferðast í alt nokk-
uð á sjöunda þúsund mílna. Heim-
ili ungu hjónanna er að Ste. 20
Cavell Apts.
Mrs. P. B. Guttormsson, lagði af
'.að síðastliðinn föstudag, ásamt
syni þeirra hjóna norður til Flin
Flon námuhéraðanna í Manitoba.
þar sem maður hennar stundai
lækningar.
Á aðfangadag jóla, andaðist að
heimili sínu í Winnipeg, Mrs. Sus-
an Ashdown, ekkja James H.
Ahdowns, hins alþekta og auðuga
kaupmanns og fyrrum borgar-
stjóra í Winnipeg. Hún var fædd
í Ontario fylki árið 1860, en kom
til Winnipeg 1868 og átti því hér
heima í full 60 ár. Mrs. Ashdown
þótti góð kona og yfirlætislaus,
þrátt fyrir sinn mikla auð. Hún
var mikil trúkona og studdi jafn-
an örugglega kirkju sína og auk
þess ýmsar líknarstofnanir.
GJAFIR
til Jóns Bjarnasonar skóla.
0. Anderson, Baldur .... $ 5.00
Sig. Antóníusson, Baldur .... 10.00
S. A. Sigvaldason, Ivanhoe
Minn.................. 5.00
Vinsamlega þakkað fyrir þessar
gjafir.
S. W. Melsted, gjaldk.
Þeir hér vestra, sem unna sögu-
legum og óbrjáluðum kristindómi,
ættu að gerast kaupendur að hinu
ágæta og stefnufasta blaði S. Á.
Gíslasonar í Reykjavík, “Bjarma.”
Verðið er $1.50 um árið, 32 blöð,
og einn eldri árgangur eða tvö
kristileg smárit gefin nýjum kaup-
endum. S. Sigurjónsson að 724
Beverley St., Winnipeg, hefir út-
sölu í Winnipeg og annars staðar
hér í landi, þar sem engir aðrir
umboðsmenn blaðsins eru.
Herra Jón H. Johnson, frá Los
Angeles, Cal., er hér í borginni
um þessar mundir. Hann flytur
erindi í efri Good Templara saln-
um, Sargent og McGee st., á fimtu-
dagskveldið í þessari viku (þann
3. þ.m.), um sálræn efni og annars
heims líf. Aðgangur ókeypis. All-
ir velkomnir. B. L. Baldwinson
stýrir fundinum.
Þann 21. desember síðastlið-
inn, andaðist Mrs. Solveig Han-
nesson, kona John M. Hannesson-
ar í Selkirk, Man., því nær sextíu
og eins árs að aldri. Jarðarförin
fór fram í Brookside grafreitnum
þann 26. s. m. Séra Jónas A. Sig-
urðon jarðöng. Hin framliða var
mesta sæmdar og gáfukona. Hún
lætur eftir sig eiginmann og börn
á lífi, og þeirra meðal Dr. Hann-
esson, sem nú er búsettur í Lund-
únum á Englandi.
General Motors of Canada, Ltd.,
er stöðugt að umbæta sína afar
vinsælu Chevrolet bíla, og verða
þessa árs bílar bæði rúmbetri og
enn fallegri og að ýmsu öðru leyti
fullkomnari, heldur en þeir hafa
nokkru sinni áður verið. Þessir
nýju bílar, sem nú eru að koma á
markaðinn, eru enn fallegri og
fullkomnari á ýmsan hátt, heldur
en hinir ágætu “Bigger and Bett-
er” Chevrolet bílar 1928, og er þá
mikið sagt.
ROYAL BANK OF CANADA
Á öðrum stað í blaðinu birtir
bankinn ársskýrslu sína. Sýnir
hún meðal annars, að eignir bank-
ans hafa stórkostelga aukist á ár-
inu og meira en dæmi eru tíl um
nokkurn annan banka í landinu,
alt til þessa. Eru nú allar eignir
bankans virtar á $909,395,884. —
'Bankinn hefir á þessu síðasta
fjárhagsári, sem endaði 30. nóv-
ember, 1928, gert miklu meiri við-
skifti heldur en nokkru sinni fyr,
og hefir ágóðinn því eðlilega orð-
ið miklu meiri. Royal bankinn er
ein af voldugustu og tryggustu
peningastofnunum í landinu, og
þeim fer stöðugt stórkostlega
fjölgandi, sem viðskifti eiga við
þann banka.
‘Geysir”, íslenzka bakaríið, 724
Sargent Ave., talsími 37 476. —
Tvíbökur seldar nú á 20c. pundið
þegar tekin eru 20 pund eða meira
Kringlur á 16 cent. Pantanir frá
löndum mínum úti á landi fá
fljóta og góða afgreiðslu.
G. P. Thordarson.
Rose Leikhúsið.
“The Branded Man’, kvikmynd-
in, sem Rose leikhúsið hefir að
sýna síðustu þrjá dagana af þess-
ari viku, er sérstaklega skemtileg
og mun þeim, sem leikhúsið sækja
þykja gaman af að sjá hana. Að-
al leikendurnir eru Charles De-
laney og June Marlowe, og einnig
Gordon Griffith, George Riley,
Andy Clyde, Erin LaBissoniere og
Lucy Beaumon o. fl.
Fyrstu þrjá dagana af næstu
viku hefir leikhúsið einnig á-
gætar myndir að sýna, eins og
sjá má af auglýsingunni á öðrum
stað í blaðinu.
TIL HALLGRÍMSKIRKJU.
Mrs. E. Stefánsson, Wpg... $1.00
Sig. Ingimundarson, Wpg—.. 2.00
Mrs. V. Thorsteinsson, Lund-
ar, Man................. 5.00
Áður auglýst........ 511.10
Alls nú $519.10
E. P. J.
“COURT ISAFOLD” I.O.F.
heldur ársfund sinn næsta föstu-
dagskvöld 4. jan., í Jóns Bjarna-
sonar skóla. Þar fara fram kosn-
ingar embættismanna og ársreikn-
ingar verða lagðir fram. Skorað
er á meðlimi að sækja fundinn.
Mr. F. iStephenson, framkvæmd-
arstjóri Columbia Press félagsins,
og frú hans, fóru rétt fyrir jólin
til New York til að heimsækja son
sinn, Mr. Harold Stephenson, B.A.,
sem þar á heima. Þau eru vænt-
anleg heim um næstu helgi.
Mr. og Mrs. Sveinn Johnson frá
iSaskatoon, og börn þeirra, hafa
verið stödd í borginni nokkra und-
anfarna daga, að ehimsækja vini
og frændur.
Magnús Kristjánsson ráðherra,
andaðist í Kaupmannahöfn á laug-
ardagsmorguninn hinn 8. desem-
ber. Hann fór til Kaupmanna-
hafnar í haust til að leita sér
lækninga við innvortis meini og
var þar gerður á honum holskurð-
ur og dó hann skömmu síðar. —
Þessi fregn barst blaðinu svo
seint, að ekki er tækifæri til að
geta ráðherrans frekar að þessu
sinni.
Jón skáld Runólfsson á ein sex
bréf að 724 Beverley stræti.
Frá Islandi.
Reykjavík, 8. des. 1928.
Um mánaðamótin brann á Akur-
eyri hús Jóns Geirssonar stud med.
(vígslubiskups Sæmundsouar). —
Fólk bjargaðist við illan leik úr
eldinum, það sem heima var, en
húsmunir brunnu og munu hafa
verið óvátrygðir.1
Skömmu fyrir mánaðamótin
síðustu kom sýslunefnd Rangæ-
inga saman til að ræða um skóla-
málin. Kom þar fram tillaga um
að Rangæingar legðu fé til Langa-
vatnsskólans, en var feld. Einnig
var feld tillaga um að leita sam-
vinnu við Vestur-Skaftafellinga
um skólamálin.
Sýslunefnd lýsti því yfir, að
með stofnun Laugavatnsskólana
liti hún svo á, að slitið væri öllu
skólasambandi milli Árnes- og
Rangárvallasýslu, en skoraði á Al-
þingi að setja heimildarlög um
starfrækslp skóla með þeim hætti,
að nemendur fengju skólavist fyr-
ir skyldúvinnu. Loks var samþykt
að sýslan stofnaði sjóð til skólans
í Rangárþingi og er stofnféð 1000
krónur.
Mikill áhugi er vaknaður fyrir
Fjarðarheiðarveginum á Austur-
Iandi. Var haldipn fundur um
málið á Seyðistóði á sunnudag-
inn var og samþykt svohljóðandi
tillaga:
Borgarafundur skorar á bæjar-
stjórn kaupstaðarins, að beita sér
fyir því við ríkisstjórnina að hún
taki upp á næstu fjárlögum að
minsta kosti 50 'þús. króna fjár-
veitingu til Fjarðarheiðarvegs og
skora um leið á næsta þing að
samþykkja þá fjárveitingu og
þingmann kjördæmisins að fram-
fylgja þessu eftir við stjórn og
þing.
Enn fremur skorar fundurinn á
bæjarstjórnina, að hún leggi til
Fjarðarheiðarvegarins alt að 40
þús. kr. i eitt skifti fyrir öll, sem
útvegað yrði með lántöku með
sem allra hagfeldustum kjörum.
Verkamenn eru klofnir í mál-
inu, vilja sumir ekki að bærinn
Ieggi frafn fé til vegarins.
Afmæli fullveldisdagsins fór að
þessu sinni fram með mikilli við-
höfn. Veður var þó mjög óhag-
stætt, rigning og dimt yfir. Stú-
dentar gengu að þinghúsinu, og
forsætisráðherra flutti ræðu af
svölum þinghúsin. í báðum kvik-
myndahúsum bæjarins voru skemt-
anir haldnar að tilhlutun stúd-
enta, ræður haldnar, upplestur,
söngur og hljóðfærasláttur.
Samsæti var um kvöldið á Hótel
ísland. Töluðu þar auk formanns-
ins, Thor Thors lögfræðings, full-
BJÖRG FREDERICKSON
Teacher of Piano
Ste 8, Acadia Apts. Victor St.
Telephone: 30 154
trúar stjórnmála flokkanna, Jón
Þorláksson fyrir hönd íhalds-
flokksins, Benedikt Sveinsson fyr-
ir hönd Framóknar, Sigurður
Eggerz fyrir hönd frjálslynda
flokksins og Jón Baldvinsson fyr-
ir hönd jafnaðarm. Sendiherra
Dana, Fontenay fyrir minni ís-
lands, og Klemens Jónsson fyrir
minni konungs. Síðan var dans
stiginn. Annan dansleik héldu stú-
dentar i Iðnó.
Víða um land hefir afmæli full-
veldisins verið hátíðlegt haldið og
er gott til þess að vita, að menn
muna eftir þessum mesta merkis-
degi í einni tima sögu fslands. —
Vörður.
Karlakór K. F. U. M. söng í gær-
kveldi í Gamla Bíó í fyrsta skifti
á vetrinum. Aðsókn var hin bezta
og viðtökur ágætar. Söngflokkur
þessi er orðinn mjöf samfeldur og
ber meðferð allra hlutverkanna
vott um staka vandvirkni söng-
stjórans og natni. Þar er ekkert
óhugsað, hvergi “slumpað’ á neitt,
alt slétt og felt svo hvergi steitir
á steini. Það er mikil birta og
öryggi yfir öllum söngnum. Ein-
söngvarar voru Jón Guðmundsson
og Óskar Norðmann og tókst báð-
um vel.
Um bæjarfógetaembættið í Nes-
kaupstað í Norðfirði hafa sótt
Kristinn Ólafsson bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum og Jón Hall-
varðsson cand. jur.
Um lögmannsembættið í Reykja-
vík hafa sótt Magnús Guðmunds-
son hrm. og Dr. Björn Þórðarson.
Um lögreglustjóraembættið í
Reykjavík hefir sótt Hermann
Jónasson fulltrúi bæjarfógeta. —
Fór hann utan í suma’r til þess
að kynna sér lögreglustjórn.
Vitar íslands heitir bók, sem
vitamálastjóri hefir samið og gef-
ið út í minningu þess, að fyrsta
desember voru liðin fimmtíu ár
frá því kveikt var á fyrsta vitan-
um hér á landi, Reykjanesvitan-
um. Var hann um langt árabil
eini vitinn hér við land. En nú er
svo komið vitakerfinu, að óvíða
eru miklar gloppur í það þó mikið
vanti á það að við stöndum jafn-
fætis þeim þjóðum, sem bezt hafa
vitaðar strendur sínar. — Bók
þessi er mjög fróðleg og eiguleg.
Pappír og prentun er í bezta lagi.
— Vörður.
ROSE
THEATRE
Sargent and Arlington
Fallegasta leikhúsið í vest-
urhluta borgarinnar,
Fimtud. Föstud. Laugard.
þessa viku
Tvöföld sýning
‘Adventure Mad’
sem er reglulegur feluleikur
og heldur athygli fólks
Einnig er sýnt
‘The Branded Man’
..þar sem Charles Delaney
leikur aðal hlutverkið.
“Yellow Cameo Nr. 3”
Mánud. Þriðjud. Miðv.dag
næstu viku
Aftur tvölföld sýning
John Gilbert í leiknum
“ST. ELMO”
og Lya de( Putti
í leiknum
“BUCK PRIVATES”
Tvær verulega góðar
myndir.
Gaman. Fréttir
Eggert Stefánsson er nú í París
og hefir oft sungið þar í útvarp.
Ný, falleg bók
um Island.
eftir Daniel Bruun.
Enginn útlendingur hefir ferð-
ast jafn mikið um ísland sem
Daniel Bruun höfuðsmaður. Hann
kom hingað fyrst sumarið 1896, og
hefir síðan ferðast hér mörg 3um-
ur, seinast 1923. Hann hefir fai’-
ið um flestar bygðir landsins og
nær alla fjallvegi, bæði forna og
nýja. Nú hefir hann gefið út stóra
bók um árangurinn af öllum ferð-
um sínum. Hún heitir “Fortids-
minder og Nudtidshjem paa Is-
land”, eins og fyrsta bókin, er
hann ritaði um ferð sína 1896. Að
mestu leyti er þetta þó ný bók, enda
er hún rúmlega helmingi stærri og
með mörg hundruð myndum. Það
sem er tekið upp úr fyrstu bókinni
er alt enhurbætt. Má með sanni
segja, að bók þessi er ein af hin-
um beztu ritum, sem út hafa kom-
ið um ísland. Höfundurinn teikn-
ar prýðilega vel, og hann hefir
dregið upp margar myndir af
illlll
The Trend
Is To The
“DOMINION”
The consistent annual
increase in our enrol-
ment during the nineteen
years of our history, has
been the outstanding
feature of commercial
education in Winnipeg.
m
It pays
to attend
a good school
NEW TERM
Wednesday
January 2nd
Dominion Business Gollege
CTheMall. WlNNIPEG.
Enroll Monday
Day and Evening Classes
ENROLL THURSDAY EVENING
FOR NIGHT SCHOOL
BRANCHES
ELMWOOD
210 Hespeler Ave.
ST. JAMES
1751 Portage Ave.
llll8!l!llllllli:i!lllllllll!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Individual
Instruction
at the
I “DOMINION”
The Dominion Business
| College and its branches
are equipped to render f
1 a complete service in y
1 Business Education.
Wonderland Theatre
Continuous Daily 2 1 I p.m. Saturday snow starts I p.m.
Fimtud., Föstu- og Laugardag, þessa viku
WILLIAM HAINES .......
í leiknum
“TELLING THE WORLD”
Gaman og Tartan the Mighty
MÁNUD. ÞRIDJUD. MIDVIKUD. 7. 8. og 9. jan.
JOHN GILBERT í leiknum
“THE COSSACKS”
Gaman og Framhaldsleikur. Telef. 87 025
merkum sögustöðum og fríðum
sveitum, húsum og mörgu öðru,
sem prentaðar eru í bókinni. Auk
þess eru þar margar myndir eftir
ljósmyndum.
Bók þessi er vel rituð, ljós og
víða gagnorð. Höfundur lýsir ekki
aðeins fornleifum og sögustöðum,
-heldur og ýmsum lifnaðarháttum
manna nú á dögum, húsum, bún-
aði og ýmsu öðru. Bók þessi hef-
ir því ævarandi gildi, eins og
ferðabækur þeirra Eggerts og
Bjarna og Þorvaldar Thoroddsens.
Þeir, sem lesa þesas nýju 'bók
Daniels Bruuns og hinar ágætu
ferðamannabækur hans (Turist-
ruter), fá mikla þekkingu á landi
voru og lifnaðarháttum. Mynd-
irnar í ibókum þessum eru svo góð-
ar, að það er eins og menn sjái
landið.
Hin nýja bók Daniels Bruuns
kostar 12 kr. danskar. Hún er á-
gæt gjöf við hátíðleg tækifæri. —
F;æst í bókaverzlun Snæbjarnar
Jónssonar. B. Th. M.
—Lögrétta.
Stofnað 1882 Löggilt 1914
D D. Wood & Sons, Ltd.
KOLAKAUPMENN
Vér þorum að hætta mannorði voru og velgengni
á viðskiftin.
SOURIS — DRUMHELLER
FOOTHILIvS — SAUNDERS CREEK
POCAHONTAS — STEINKOL
Koppers, Solway eða Ford Kók
Allar tegundir eldiviðar.
Not - Gæði - Sparnaður
Þetta þrent hafið þér upp úr því að skifta við oss.
SÍMI: 87 308 Ross Ave. and Arlington St.
Vér færum yður kolin hvenær sem þér viljið.
......... .—111
Royal Grain Inquiry Commission
1928
TILKYNNING er hér með gefin um það, að nefnd þessi held-
ur fundi í Saskatchewan á þeim stöðum og tímum er hér segir:
Dagur: Staður: Tími:
Janúar 8, 9, 10, 11 Saskatoon 10 f. h.
Janúar 14 Davidson 10 f. h.
Januúar 17, 18, 19 Regina 10 f. h.
Janúar 23, 24 25 Moose Jaw 10 f. h.
Janúar 28 Weyburn 1 e. h.
Janúar 30' Carnduff 1 e. h.
Febrúar 1 Estevan 10 f. h.
Febrúar 5 Gravelbourg 10 f. h.
Febrúar 7 Assiniboia 2 e. h.
Febrúar 12 Wadena 10 f. h.
Febrúar 13 Humboldt 2 e. h.
Febrúar 16 1 Kindersley 9.30 f. h.
Febrúar 18 Roseown 10 f. h.
Febrúar 20 Kerrobert 10 f. h.
Febrúar 22 Unity 10 f. h.
Febrúar 25 Wolseley 1 e. h.
Hverjum þeim, sem hefir
ar að gefa nefndinni, sem
gæðum, blöndun eða sölu
einhverjum iþessum fundi.
Regina, 2. janúar 1929.
einhverja bendingu eða upplýsing-
að gagni megi verða viðvíkjandi
korntegunda, er boðið að mæta á
F. H. AULD,
Secretary.
A Strong, Reliahle
Business School
UPWARD OF 2000 ICELANDIC STUDENTS HAVE
ATTENDED THIS COLLEGE SINCE 1909.
The Success College, of Winnipeg, is a strong,
reliable school—its superior service has resulted
in its annual enrollment greatly exceeding the
yearly attendance of all other Business Colleges
in the whole Province of Manitoba. Open all
the year. Enroll at any time. Write for free
prospectus.
BUSINESS COLLEGE, Limited
385 y2 Portage Ave. — Winnipeg, Man.