Lögberg - 28.03.1929, Qupperneq 4
Bl3. 4.
LÖGBERG i/IMTUDAGINN 28. MAiRZ 1929.
o<=>oc=>oc
^ögticrg
Gefið út hvern fimtudag af The Col-
umhia Press, Ltd., Cor. Sargent Ave.
og Toronto St., 'Winnipeg, Man.
Talsímar: 86 327 og 86 328
Einar P. Jónsson, Editor
Utanáskrift blaðsins:
The Columbia Press, Ltd., Box 3172
Winnipeg, Man.
Utanáskrift ritstjórans:
Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man.
Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram.
The "Lögbergr” 13 printed and published by
The Columbia Press, Limited, in the Columbia
Building, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba.
->o<--->r><— ->o<-
oo <9
Iðnaður Manitobafylkis
Þótt enn séu eigi við hendina fullnaðar-
skýrslur yfir verðgildi landbúnaðar afurða
Manitobafylkis, á árinu sem leið, þá mun nú
mega fullyrða, að verksmiðjuframleiðslan hafi
hlaupið upp á drjúgum meiri peninga. Er það
í fyrsta sinni í sögu fylkisins, er nokkuð því-
líkt hefir átt sér stað.
Núna fyrir skemstu, hefir iðnráð Manitoba-
fylkis, samið bráðabirgða -skýrslu, vfir verk-
smiðju iðnaðinn á árinu 1928, og er hann sam-
kvæmt lienni metinn á $159,252,000.
Meðalverð landbúnaðarafurða fylkisins, sex
síðastliðin ár, hefir numið $133,000,000 um ár-
ið, og er það því sýnt af fyrgreindum tölum, að
verðgildi verksmiðjuiðnaðarins, er orðið drjúg-
um hærra.
Skýrsla iðnráðsins, sú er nú hefir nefnd
verið, ber það með sér, að á árinu, sem leið,
voru sextíu og tvö ný fyrirtæki, stofnsett í
Winnipegborg hinni meiri. Öll verksmiðjnfram-
leiðsla borgarinnar, jókst um 21 af hundraði á
árinu, eða því sem næst, og má það sannarlega
heita vel að verið.
Þrjátíu og sjö verksmiðjueigendur, létu
stækka til muna verksmiðjur sínar á liðnu ári,
og tuttugu og níu bættust í hópinn. Nú er í
ráði, að ekki færri en þrjátíu verksmiðjur setji
á fót útibú hér í borginni, á ári því, sem nú er
að líða.
Hér fer á eftir skýrsla, er sýnir vöxt hinna
ýmsu framleiðslutegunda fylkisins, árið sem
leið:
Hveitimölun ...............18 af hundraði
Kjötverzlun og niðursuða.... 14 af hundraði
Brauðgerð ............... 10 af hundraði.
Kaffi og kryddmeti ........20 af hundraði
Ölgerð ....................15 af hundraði
Prentun og bókaútgáfa .....15 af hundraði
Pappírsgerð ...........,...45 af hundraði
Húsagerðarsteinn ..........25 af hundraði
Fatnaður og fataefni ......22 af hundraði
Stál og járn ..............25 af hundarði
Kökur og brjóstsykur ......32 af hundraði
Vert er, að þess sé sérstaklega getið. hve
mjög hefir farið í vöxt notkun grjóts til húsa-
bygginga, úr Tyndall og Garson námunum.
Má nú svo að orði kveða, að þessi tegund bygg-
ingarefnis, sjáist í flestum stórhýsum hinnar
canadisku þjóðar, frá hafi til hafs.
Hamp-verksmiðjan í Portage la Prairie,
hefir færst svo út kvíarnar á síðastliðnu ári, að
reglulegri furðu sætir. Er þar að verða um
verule#an stóriðnað að ræða. Fer eftir-
spurnin eftir tvinna frá verksmiðjunni, jafnt
og þétt í vöxt.
Pappírsgerðar verksmiðjurnar miklu við
Pine Falls, juku svo við húsrými og mannafla
á árinu, sem leið, að framleiðslan jókst um 45
af hundraði.
Nýlunda má það teljast, á sviði pappírs-
framleiðslunnar, að stofnsett var hér í borg á
síðastliðnu ári, verksmiðja, er framleiðir vax-
pappír, hin fyrsta þeirrar tegundar, er komið
hefir verið á fót í Vestur-Canada. Var fyrsta
vagnhlassið af þeirri vöru, sent héðan til Ed-
monton, í öndverðum janúarmánuði síðast-
liðnum.
Þá var og stofnsett hér í borg á síðastliðnu
ári, verksmiðja, er framleiðir margvíslegan
glervaming, svo sem öl- og mjólkurflöskur, á-
samt kmkkum af ýmsum gerðum. Notar verk-
smiðja þessi við iðnað sinn, málmblandinn sand
frá Black Island í Winnipegvatni.
Þá hefir og steinlímsverksmiðjan í Tuxedo,
fært mjög út kvíarnar, og aukið mannafla sinn
að miklum mun.
Verksmiðjur þær, er fatagerð stunda, juku
ifmsetning sína til stórra muna á árinu, sem
leið, auk þess, sem ný útibú bættust í hópinn.
Þar að auki var stofnsett hér í borg verk-
smiðja, er það aðal-hlutverk hefir með höndum,
að framleiða hálsbindi handa karlmönnum. Er
hér einnig um að ræða fyrstu verksmiðjuna
þeirrar tegundar, er stofnuð hefir verið í Vest-
ur-Canada.
Framleiðsla matvörutegunda á árinu 1928,
varð all-miklu meiri, en á árinu þar á undan.
Þó er þess vænst, eftir því sem nú horfir við, að
slík framleiðsla muni í ár, verða meiri en
nokkru sinni fyr. Hefir nýléga ein af hinum
voldugustu matvörustofnunum auetanlands,
keypti stórhýsi eitt hér í borg, þar sem starfrækt
skal ein hin allra mikilfenglegasta macaroni-
verksmiðja á meginlandi Norður-Ameríku.
A öndverðu komanda sumri, er ráðgert, að
stofnaðar verði hér tvær niðursuðu-verksmiðjur,
af allra nýjustu og fullkomnustu gerð. Auk
þess er nú talið víst, að tvær sætabrauðs verk-
smiðjur taki til starfa hér í borginni, einhvern-
tíma á yfirstandandi ári.
1 viðbót við verksmiðjur þær, sem nú hafa
nefndar verið, liafa margar hinar smærri verk-
smiðjur, aukið við sig til stórra muna.
Byltingar þær hinar risavöxnu, er átt hafa
sér stað á sviði námaiðnaðarins, hafa meðal
annars leitt af sér það, að nú er verið að undir-
búa stofnun sprengiefna verksmiðju hér í Win-
nipegborg, til þess að fullnægja kröfum náma-
rekstursins.
1 hvaða átt sem litið er, mætir auganu látlaus
framþróur/ á sviði athafnalífsins, og spáir slíkt
góðu, eigi aðeins um framtíð Manitobafylkis og
Winnipeg-borgar, heldur og canadisku þjóðar-
innar í heild.
Arið sem leið, vörðu verksmiðjueigendur í
Manitoba-fylki, $1,920,000, til þess að stækka og
fullkomna verksmiðjur sínar. Hér er þó ekki
meðtalin miljón dala upphæð, er forvígismenn
steinlímsiðnaðarins eyddu, til aukinna fram-
leiðslutækja.
Síðustu f jögur árin, hefir iðnaðurinn í Mani-
toba tekið stöðugum framförum, og má vafa-
laust hins sama vænta í framtíðinni.
Samkvæmt opinberum skýrslum, liefir tala
atvinnuþega í verksníiðjum Mánitoba-fylkis,
hækkað síðan 1924, um 8,400. Til launa hefir
hefir verið varið því sem næst $8,000,000, en
framleiðslan í heild, hefir aukist um 33 miljón-
ir dala, eða rúmlega það.
Svo má heita, að fram til skamms tíma, hafi
canadiskur stóriðnaður haft megin-bækistöð
sína í Austurfylkjunum. Nú er þetta, sem
betur fer, smátt og smátt að breytast.
Það er nú orðið langt um liðið, frá því er
iðjuhöldar nágranna vorra syðra, komn auga á
það þýðingarmikla atriði, að óholt væri, að
safna um of verksmiðjum þjóðarinnar á fáa
staði. Voru það í rauninni þeir, er grundvöll-
inn lögðu að hinu margþætta útibriakerfi, sem
nú viðgengst í Bandaríkjunum, í svo að segja
hverri einustu grein verzlunarlífsins.
Vegalengdin frá framleiðslu miðstöðvum
Austurfylkjanna, til markaðsborganna í Vest-
urlandinu, er að meðaltali eitthvað um 1,700
mílur. Með því að koma hér á fót útibúum,
hverfur sú vegalengd að meira en þremur-
f jórðu, og má af því auðvéldlega sjá, hve mikið
sparast í flutningskostnaði, því meðal vega-
lengd frá Winnipeg til annara verzlunar-
miðstöðva Vesturlandsins, er ekki nema svo
sem 400 mílur.
Með það fyrir augum, hve raforka vestan-
lands er feykilega ódýr, og þá ekki hvað sízt
hér í borginni, má þess fyllilega vænta, að á
næstunni verði þeir ávalt fleiri og fleiri af
verksmiðjueigendum Austurfylkjanna, er
stofnsetji útibú víðsvegar um Vesturfvlkin,
landi og lýð til ómetanlegra hagsmuna.
Vér höfum hvað ofan í annað, hitt að máli
menn, sem hafa, þótt ótrúlegt kunni að þykja,
að því er þeim sjálfum segist frá, sára litla eft-
irtekt veitt nokkrum verulegum framförum hér
í fylkinu. En svo eru líka margir, er líta
langt yfir skamt, og éigi virðast veita því nægi-
lega athygli, “að holt es heima hvatP’
Hvort hehlur þeir eru margir eða fáir, sem
halda því fram, að hér í fvlkinu sé um kyrstöðu
að ræða a sviði athafnalífsins, þá verður því
samt eigi á móti mælt, að framfarimar síðustu
árin, hafa verið stórstígari en margan gmnar,
eins og sjá má af skýrslum þeim, sem vitnað er
til hér að framan.
Stjórnmálin í Manitoba
Flokksþing, all-fjölment, héldu fylgjendur
frjálslyndu stjóramálastefnunnar, hé'r í borg-
inni, þann 19. þessa mánaðar, á Marlbor-
ough hótelinu. Vom þar mættir fulltrúar frá
öllum kjördæmum fylkisins, auk margra ann-
ara gesta.
MeginJviðfangsefni þings þessa, var það,
að fliuga málaleitun frá stjórnarformanni
Manitoba-fylkis, Hon. John Bracken, um sam-
vinnu milli flokks þess, er hann styðst við, og
frjálslynda flokksins. Skilyrði þau til sam-
komulags, er Mr. Bracken bauð fram, era enn
eigi að fullu kunn. Þó mun það víst, að hann
hafi tjáð sig fúsan til þess, að veita liberölum
tvö ráðgjafasæti í stjórninni.
Þótt skoðanir væru að vísu nokkuð skiftar,
á hinu umrædda flokksþingi, þá var þó vafa-
laust allmikill meirihluti hlyntur samkomu-
lags tilraunum, eða samvinnu í einhverju
formi.
^ Eftirfylgjandi tillögur í sambandi við þetta
mál, voru afgreiddar frá þinginu, með miklu
afli atkvæða:
“Með því að frjálslynda flokknum hér í
fylkinu, hafa borist málaleitanir um samvinnu,
af hálfu núverandi stjómarflokks, þá hallast
flokksþing þetta að þeirri skoðun, að svo fremi
að samkomulag náLst um sameiginlega og við-
eigandi stefnuskrá, þá muni slík samvinna
verða fylkinu fyrir beztu.
“Með það fyrir augum, að greiða fyrir
slíkri samvinnu, fel.st þingið enn fremur á, að
kjörin skuli nefnd, samsett af þingmönnum
frjálslynda flokksins í fylkisþinginu, ásamt
fimm öðram fulltrúum, til þess að vinna að
samkomulags tilraunum.
“Tillögur nefndar þessarar, má síðan bera
undir álit fulltrúa þeirra, er þing þetta sóttu,
ef svo býður við að liorfa.
“Enn fremur skal lýst yfir því, að æskilegt
sé, að þingmenn frjálslynda flokksins, meðan
á samkomulagstilraunum stendur, greiði fyrir
þingstörfum stjómarinnar, og láti flokkslega
andspyrnu niður falla.”
Nefnd sú, er fyr var getið um, hefir nú skip-
uð verið af hálfu frjálslynda flokksins. Auk
þess hefir Mr. Bracken skipað nefnd manna úr
þingflokki sínum, með það fyrir augum, að
hrinda samvinnutilraununum í framkvæmd, sé
þess á annað borð nokkur kostur.
A þessu stigi málsins, er enn flest á
huldu um það, hvemig samkomulagstilraun-
unum muni reiða af. Þó bendir til þess
margt, að samkomulag muni nást við liberala,
um megin-atriðin, og má þá ganga út frá því
sem gefnu, að þeir veiti stjórninni að málum,
að minsta kosti á meðan að ekki hafa sannast á
hana þyngri sakir en þær, sem þegar er kunn-
ugt um. Því fram til þessa tíma, eru kærur
Mr. Taylors, að öllu leyti ósannaðar.
Sambandsþingið og friðarmálin
(Framhald af ræðu Mr. Thorson’s).
Samkvæmt 1. grein friðarsáttmálans, lýstu
sextíu og tvær þjóðir heims yfir því, að hernað-
arstefnan í deilumálum þjóða á milli, skyldi
talin ólögleg. Af því leiddi það, að drottinvald
þjóðhöfðingja, var takmarkað að sama skapi.
Það er nú undir engum kringumstæðum
framar lögum samkvæmt, að nokkur sú þjóð,'er
staðfest hefir með undirskrift sinni friðar-
samningana, geti gripið til vopna, með per-
sónulegan hagnað fyrir augum.
Með þessu var stigið óendanlega þýðingar-
mikið spor í rétta átt, því eins lengi og hin laga-
lega hlið styrjalda var viðurkend, gat ekki hjá
því farið, að hinar ýmsu þjóðir notuðu sér slíka
lagavernd, og keptust við, hver um sig, að auka
herafla sinn, sem frekast mátti verða. Meðan
svo var ástatt, var ekki viðlit, að gert yrði út
um ágreiningsefni á friðsamlegan hátt.
Nú hefir sú gjá, í sáttmála þjóðbandalags-
ins, er viðurkendi stríð, sem síðustu úrlausn
deilumála, verið brúuð að fullu og öllu.
Ekki er því að leyna, að margt hefir friðar-
sáttmálanum verið til foráttu fundið, og það
jafnvel innan vébanda þessa þings. Er því
meðal annars, barið við, að ákvæðin um tilgang
styrjalda, séu eigi nógu skýr, svo isem um það,
hvenær stríð skuli skoðað sem sjálfsvernd, eða
ágengni. Á það er einnig bent, að allar þjóðir,
er í ófriði hefðu átt, einkum hin síðari árin,
hafi, með tilliti til þeirrar vansæmdar, sem af
stríði leiði, er hafið sé í hagsmunalegum til-
gangi, jafnan lýst yfir því, að um sjálfsvernd
eina væri að ræða af þeirra hálfu.
Fyrverandi utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Mr. Kellogg, og Senator Borah, viður-
kendu það hvor um sig, ásamt Sir Austen
Chamberlain, að ekki væri í rauninni unt, að
skilgreina lögmæti sjálfsvemdar-stríðs, frá
stríðum í hagsmunalegum tilgangi, eða með
ágengni fyrir augum.
Yandlætarar þeir, er hæst láta yfir vankönt-
um friðarsáttmálans, hamra á því sýknt og
ueilagt, að eigi séu nein bein ákvæðið við hend-
ina, er fara megi eftir, er um það skal dæmt,
hvort þjóð hafi brotleg gerst við friðarsáttmál-
ann, að engar fastar reglur séu um það settar,
hvaða refsingu að brotlegur meðlimur skuli
sæta, að ekki sé um neina alþjóða skuldbind-
ingu að ræða, og friðarsáttmálinn í heild, sé í
raun réttri ekki annað, en átakanlegur trúð-
leikur. Máli sínu til sönnunar, ef um sönnun
gæti verið að ræða, hamra þessir sömu menn
það fram, hve augljóst það sé, að þjóðunum sé
í raun og veru engin alvara með að mótmæla
löghelgi styrjalda, þar sem jafnvel þær þjóð-
ir, er undirskrifuðu sáttmálann, haldi enn öll-
um sínum sínum vígbúnaði, og séu jafnvel að
auka hann.
Þessu til andsvara, er fyrst og fremst það,
að menn mega ekki ætla, að alþjóðafriður fáist
með því einu, að undirskrifa einhvem friðar-
sáttmála. Samt væri öldungis óverjandi, að
halda því fram, að friðarsáttmálinn væri ekki
nema trúðleikur einn, því þýðingarmikinn á-
rangur hefir hann þegar borið. Honum er það,
meðal annars, að þakka, að Bandaríkin hafa nú
heitið heimsfriðarmálinu í heild, skilyrðislausu
fyigi-
Hér við bætist það og, að í sáttmálanum
felst önnur trygging heimsfriðnum til eflingar,
sem sé sú, að sérhver þjóð, er telst til Þjóð-
bandalagsins, og leggur út í stríð, en neitar
jafnframt, að reyna sáttaleiðina, brýtur tvö
hátíðleg fvrirmæli sáttmálans, í stað eins, og á
það um leið á hættunni, að tapa alþjóða trausti.
Vandlætararair virðast einnig hafa glevmt
hinum þýðingarmiklu ákvæðum 2. greinar frið-
arsáttmálans, er hljóðar á þessa leið :
“Hinir virðulegu samningsaðiljar fallast á,
að í hvert sinn og ágreiningsefni rísa upp,
hvernig svo >sem þau eru til komin, og hver sem
orsök þeirra er, þá skuli allar hugsanlegar
leiðir reyndar, til þess að ráða þeim til lykta á
friðsamlegan hátt.” (Framh.)
Fundargerð Þjóðrœknis-
ifélagsins 1929
Framh.
Svariö hefir veriö aö blöðunum mundi
verða þetta meö öllu um megn, nema með
beinum styrk frá þeim, sem áhuga hefðu
fyrir þessu. Óhugsandi væri að þetta |
gæti borið >sig fjárhagslegá og blöðin
hinsvegar ekki fær um að taka á sig
byrðar. Stjórnarnefndin hefir ekki haft
neina heimild t(l þess að taka á sig, fyrir
hönd félagsins, neina fjárhagslega á-
byrgð í þessu skyni, en þingmönnum mun
gefast kostur á að ræða þettá mál frekara,
er rætt verður um fræðslumál.
Eins og þeir muina, er hér voru staddir
á síðasta þingi, var þá allmikið rætt um
hugmynd hr. Björns Magnússonar um
að Vestur-lslendingar ættu að veita heima-
þjóðinni á Islandi lið í tilraunum henn-
ar til að rækta skóg á íslandi. Var það
trú hans, og ýmsra annara, að vér gætum
prðið hér að verujegu liði. Þessi hug-
mynd hefir styrkst við það, að menn á
íslandi, sem sérstaklega hafa lagt fyrir
sig fræði skógræktarinnar, hafa látið í
ljós iþá skoðun sína, að vér gætum á
margvíslegan hátt veitt þeim atbeina í
þessu máli. átt bréfaviðskifti við skóg-
ræktardeildir bæði í Bandaríkjum 'Og
Canada, sem tekið hafa lipurlega í að
veita þá leiðsögn og aðstoð, er vér kynn-
um að1 æskja.
Þeir tveir menn úr stjórnarnefnd fé-
lagsins, Dr. Rögnvaldur Pétursson og Mr.
J. J. Bíldféll, sem fyrir nokkuru síðan
fóru heim til íslands, tóku að sér að ráðg-
ast um það við stjórnina á íslandi, hvern-
ig líklegt yrði að félagið gæti helzt orðið
að liði í þessu máli.
Mér hefir komið til hugar, að þing-
mönnum virtist eitthvað áskorta, ef ekki
væri hér drepið nokkrum orðum á þau
skrif öll, sem í bjöðunum hafa birst und-
anfarnar vikur út af hinum svonefnda
“Ingólfssjóði” þ. e. ýeim ráðstöfunum,
sem þing félagsins gerði fyrir nokkrum
árum á eftirstöðvum samskotafjárins, er
lokið var vörninni fyrir hinn dæmda
mann.
Eins og almenningi ér kunnugt, hefir
verið véfengt í blöðunum að félag vort
ætti nokkum rétt á þessu fé. Fyrverandi
lögmaður félagsins í varnarmálinu hefir
látið þess getið á prenti, að “það eru þrír
lögmenn þegar húnir að segja því (þ. e.
félaginu) að það hafi engan minsta laga-
legan rétt til sjóðsins.” Mér er ekki
kuninugt um við hvaða þrjá lögmenn er
átt, iþví að engir þrír lögmenn hafa sagt
eitt orð í þessa átt við félagsstjómina.
Hinsvegar hefir hr. Joseph Thorson,
þingmaður, sem eg hefi átt nokkuð tal
við uim þetta mál, látið uppi þá skoðun
sína, að enginn dómstóll í breska ríkinu
geti tekið þetta fé af félaginu. Jafnframt
hefir hann látið það fylgja með þessum
ummæjum, að þótt félagið sem plíkt eigi
féð, þá sé það “earmarkt” eins og hann
kemst að orði—þ. e. ekki sé heimilt að
nota féð nema til eins markmiðs—að
verja Ingólf Imgólfsson.\
1 stjórn félags vors eru ekki lögfræð-
ingar. En nefndinni virðist, frá sínu
leikmannasjónarmiði, ekki ósennilegt, að
þessi fræðimaður í lögum fari hér rétt
með. Að minsta kosti metur hún svo
mikils dóm hans, að henni þykir sjálfsagt
að skýra þingheimi frá þessari skoðun
hans. VSlji þingíð (taka þetta álit til
greina, virðist eðjilegt að biðja gjaldkera
félaginu að færa þetta fé á sérstökum lið
í reikningum sínum framvegis, án þess
að blanda því við aðra sjóði félagsins.
Stjórnarnefndinni var falið á síðasta
þingi að fara þess á leit við félag Norð-
manna hér í landi, sem fengið hafa lög-
gildingu fyrir nafni á þjóðræknisfélagi
sínu er þeir nefna “The League of Norse-
men in Cainada,” að þeir breyttu nafni
þessu með því að samkvæmt málvenju
ætti “Norse” við allar þjóðir Norður-
landa. Stjórnarnefndin, hefir átt tal við
nokkra forgöngumenn hins norska félags
um þetta mál. Sátu þann fund einnig
fulltrúar frá Svíum hér í borginni. Und-
ir tektir Norðmanna voru yfirleitt hinar
liðlegustu. En ihins gátu þeir einnig, að
það gæti tekið nokkurn tíma að koma
þessari breytingu á, sökum þess að stjórn-
amefnd félags þessa skipa fulltrúar í
ýmsum fylkjum landsins. Hefir því fé-
lagsstjórnin fylstu ástæðu til þess að ætla
að þessi bending um nafnábreytinguna
verði tekin til greina, en vekja vill hpn
athygli félagsins á ‘því, að bæði Norð-
menn og Svíar lögðu! mikla áherzlu á það
á þessum samtalsfundi, hve æskilegt það
væri, ef um meiri samvinnu gæti verið að
ræða meðal hinna norrænu þjóða í land-
inu. En í samibandi við það atriði langar
mig til þess að vekja máls á hugmynd,
sem mér þykir nokkuru skifta að félagið
taki til alvarlegrar Lhugunar.
Um mokkur undanfarin |ár hefir oft
borið á góma innan félagsins sú hugmynd,
hve æskilegt það væri, ef félag vort gæti
jkomið sér upp heimtili, sem jafnframt
yrði þá miðstöð fyrir ís,lenzka félagslega
starfsemi yfirleitt í landinu. En mönn-
um hefir að sjálfsögðu vaxið i augum
sá kostnaður, sem þetta hefði í för með
sjr, ef stofnun þessi ætti að vera með
þeim mytndarskap, sem þjóðflokknum
væri samboðinn. Nú heíir sá maður í
stjórnarnefnd félagsins, sem kunnugastur
er högum hinna norrænu frændþjóða
vorra hér vestra, hr. Jakob F. Kristjáns-
son, vakið athygli nefndarinnar á þvi,
að hinir þjóðflokkarnir hver um sig, séu
að hugsa um sama vandamálið. Allar
langar þá til þess að koma sér upp slíku
félagsjlegu hæli, en enginn er þess um-
kominn að gera það á eigin spýtur. Eg
hefi, samkvæmt þessari bendingu, grensl-
ast eftir því, hverjar undirtektir sú hug-
mynd mundi fá hjá hinum þjóðflokkun-
uim, að allir slægi sér saman og reistu
byggingu, sem yrði sameiginlegt hæli nor-
rænna manna og virðulegur minnisvarði
fyrir þá. Sameiginlegur stór fundarsal-
ur, sameiginleg bókasafns- og lestrar
stofa, sameiginlegar skrifstofur, veitinga-
salui* og setustofur—alt yrði þetta við-
ráðanlegra fyrir fjóra flokka en einn.
Sæju menn sér fært að afla nokkurs stofn-
fjár, virðist ekki óhugsandi að koma
mætti högum svo fyrir, að jafna mætti
eftirstöðvum niður á all-langt áratímabil.
Undirtektirnar, sem þessi hugmynd
hefir fengið hjá þeim forystumönnum
hinna þjóðflokkanna, sem við hefir verið
rætt, hafá verið á þá lund, að sjálfsagt
virðist að láta rannsaka þetta mál frekara
og til fuljnustu. Eg hefi enda verið beð-
inn af sumum þeirra að vekja máls á
þessu á þinginu, því að þeir tjáðu sig
hafa hinn mesta áhuga á að fá þessu
hrundið í framkvæmd. Er það von mín
að þingið taki þetta til ítarlegrar íhug-
unar.
Nái þetta mál fram að ganga á næstu
árum, virðist mér mikið meiri skilyrði
fyrir því, en ella myndi, að félagið fái
komið starfsaðferðum sínum í það horf,
sem eg hygg vera lífsskilyrði^ fyrir fram-
tíð mála vorra að gert verði. Vér þ“rj-
um að fá fastan ritara fyrir félagið, sem
geri það að lífsstarfi sínu að vinna að
íslenzkum þjóðrafknismálum. Mann, sem
sé jafnvígur á ensku og íslenzku, geti
verið málssvari vor út á við, ritað af
þekkingu um norræn menningarmál i
tímarit álfunnar, og haldið vakandi áhuga
þjóðflokksins inn á við. Tíu ára æfi fé-
Jagsins hefir leitt það í ljós, að full þörf
er á slíkum manni. Og Vestur-íslending-
ar hafa oft velt þyngra hlassi en erfiðleik-
arnir eru að lcosta mann til þess að hafa
á hendi slíka sálusorg íslenzkunnar. Og
ég vænti þess fastlega að til séu menn,
sem færir væru til þess að takast á hend-
ur slíkt sæmdarverk.
Stórnaraefndin leggur fram fyrir þetta
þing tijlögur um breytingu á stjórnarskrá
félagsins. Eg sé ekki ástæðu >til þess að
ræða um þær tillögur að svo komnu máli,
en gert mun grein fyrir þeim, er það mál
kemur á sínum tíma á dagskrá. Þó skal
þess getið, að nokkurar þeirra breytinga
standa í sambandi við fyrirmæli síðasta
þings um að útveguð skyldi löggilding á
félaginu. Saimkvæmt þeirri vitneskju, er
félagið hefir aflað sér, ar nauðsynlegt að
koma inn í lög félagsins sérstökum atrið-
um, til þess að> unt yrði að fá þá löggild-
ingu.
Stjórnarnefndin hefir átt bréfiviðskifti
við deildir félagsins í sambandi við aðal-
breytingarnar, sem hún ber fram. Er þar
sérstaklega átt við fyrirmæli 20. og 21
greina. Það kom greinilega í ljós á síð-
asta þingi, að við þær greinar varð ekki
unað Óbreyttar. Hafa d|eij!dimar tekið
einkar liðlega í þau tilmæli nefndarinnar,
að takmarka sjálfar í'þetta simn þann rétt,
sem þeim er heimilaður um fulltrúasend-
ingu, eða öllu heldur, að nota hann ekki
nema að nokkru í þetta skifti.
Félagstjórnin þefir Ikomist að þeirri
niðurstöðu að koma megi á hagkvæmum
breytingum á skiftingu á störfum innan
stjóraarnefndarinnar. Sérstaklega virð-
ist ekki hentuglega hagað störfum fjár-
má,laritara og skjalayarðar. Fjármálarit-
ari tekur við öllum félagsgjöldum og
kvittar fyrir þau, en skjalavörður sendir
síðan ritið til skuldlausra félaga. Þetta
virðist óþarfa krókaleið og enda varhuga-
verð. iMiklu réttara virðist að ritið fylgi
jafnan kvittun fjármálaritara. Er þetta
þarf að ganga i gegnum fleiri en eins
manns hendur, er mikið meiri hætta á að
ruglingur verði, enda hefir það komið
fyrir. Auk þess er skjalavarðarembættið
svo umfangsmikið með þessum hætti og
vinnufrekt, að hætt er við að menn fáist
ekki til þess að sinna þvi emibætti þókn-
unarlaust. Hefir því nefndin komist að
þeirri niðurstöðu, eftir allmikla atliugun,
að bezt sé að fela fjármálaritara, sem
mest bréfaviðskifti hlýtur að eiga við fé-
lagsmenn, sem allra mest af störfunum,
en launa honum svo vinnu sína á einhvern
hátt. Mun stjórnarnefndin leggja fram
ákveðnar ti|llögur í þessa átt uindir liðnum
“ný mál” á dagskránni.
Að svo mæltu mælist eg til þess að
þingið velji sér kjörbréfanefnd, sem rann-
saki, hverjir hér hafa lögleg þingsæti.
Fallegir
Alfatnadir oy Vfirhafnir
fyrir Páskana
$19 J5 ;i
cCESTAKLEGA-
Hægir
narskilmálar
1R PÁSKANA=
Búðin opin á'Fimtudaginn og Laugadaginn til kl. 10.
394 PORTAGE AVE., (Næst við Boyd Bldg.)